Lögberg - 27.01.1949, Page 1
PHONE 21 374
iot<
,4«^ #***
\
' CVe^cTS
VfV Zr
»ó
A Complele
Cleaning
Institution
62. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 27. JANÚAR, 1949
NÚMER 4
ÞING KEMUR SAMAN
Nú hefir formlega verið kunn-
gert, að fylkisþingið í Manitoba
komi saman til funda þann 8.
febrúar næstkomandi; búist er
við að meðal þeirra mála, er
þingið taki til meðferðar verði
frumvarp til laga um nýja kjör-
dæmaskipun, frumvarp um raf-
orkumálin og tillögur um dýrtíð-
aruppbót opinberra starfsmanna
fylkisins.
Þetta verður fyrsta þingið
undir forustu Mr. Cambells.
ÍSRAELSRÍKI FÆR LÁN
Banki sá 1 Bandaríkjunum,
sem gengur undir nafninu Ex-
port-Import Bank, hefir veitt
Israelsríki 35 miljón dollara lán,
og verður fé þessu aðallega var-
ið til kaupa á búnaðarverkfær-
um og hráefnum til iðnaðar-
framleiðslu..
Um sömu mundir og þetta
gerðist, viðurkendi stjórn
Frakka hið nýja Israelsríki með
því skilyrði, að hagsmunum
frönsku þjóðarinnar í Palestínu
yrði að fullu og öllu borgið.
GUNNAR GUNNARSSON
ALFARINN ÚR
FLJÓTSDAL
Gunnar Gunnarsson rithöf-
undur, kona hans og skyldulið
er um þessar mundir að flytja
búferlum af Austurlandi til
Reykjavíkur. Kemur Gunnar og
fólk hans hingað með Herðu-
breið.
Héraðsbúar kvöddu skáldið
og fjölskyldu hans með miklum
virktum, áður en hann fór, og
þykir mörgum skarð fyrir skildi,
er hann er nú fluttur brott. Hef-
ir hann meðal annars verið
skeleggur og ótrauður málsvari
byggðar sinnar í ýmsum málum,
þar sem honum þykir hlutur
hennar hafa verið fyrir borð
borinn, og hvergi vikið undan,
þótt við ríkan væri að etja.
TÍMINN, 18. nóv.
FYRIRHUGAÐ AÐ
8YGGJA ÚTVARPSSTÖÐ
f FÆREYRUM
Engin útvarpsstöð er ennþá
komin upp í Færeyrjum, en að
undanförnu hafa verið uppi all-
miklar umræður þar um bygg-
ingu útvarpsstöðvar.— Dagblað-
ið í Færeyjum ber fram tillögu
um það, að Færeyingar fari þeg-
ar að greiða útvarpsgjöld og
renni þau í sjóð til byggingar út-
varpsstöðvar.
Færeyingar hafa hins vegar
að undanförnu greitt útvarps
notendagjöld til danska útvarp-
sins, og eru Færeyingar mjög ó-
ánægðir með það. — Færeyingar
hlusta líka lítið á danska útvarp-
ið, en miklu meira á það norska.
Nú hefir Færeyjum hins vegar
verið úthlutað bylgjulengd og
leyft að byggja útvarsstöð, en
orka hennar á ekki vera meiri
en 5 kw. Mun heyrast til þeirrar
stöðvar um eyjarnar, en skip úti
á hafi munu ekki heyra til henn-
ar nema í mjög góðum tækjum.
Hingað til lands mundi heldur
ekki heyrast til hennar nema á
mjög góð tæki. Eru Færeyingar
óánægðir með að fá ekki að
kyggja sterkari útvarpsstöð.
TÍMINN
STÓRKOSTLEGUR
ELDSVOÐI í REGINA
Á sunnudaginn var þjakaði svo
ægilegur eldsvoði að íbúurn Re-
ginaborgar í Saskatchewan, að til
einsdæma má teljast í sögu Vest-
urlandsins; brann þar til kaldra
kola mikið af strætisvögnum
borgarinnar ásamt fjölda fólks-
flutningabíla; eignatjón er metið
á aðra miljón dollara; frostharka
var mikil og umferð um borgina
hin örðugasta.
Borgarbúum bárust víða að til-
boð um hjálp, þar á meðal frá
Halifax og Winnipeg.—
Sporbrautafélag Winnipeg
borgar bauð Reginabúum að
hjálpa þeim um 6 fólksflutninga-
bíla.
ÁKVÆÐISVERÐ HVEITIS
I lok fyrri viku gerði forsætis-
ráðherrann í Canada það lýðum
ljóst, að samningar hefðu tekist
milli Canada annarsvegar og
brezkra stjórnarvalda hinsveg-
ar, um verð þess hveitis, er Bret-
ar kaupi héðan úr landi yfir
uppskeruárið 1949—1950. Hefir
lágmarkasverð verið sett fyrir
no. 1 Northern í Fort William,
é
Port Arthur og Vancouver, $2.00
á hvert bushel.
Samningar standa yfir milli
brezkra og Canadadískra stjórn-
arvalda um verðlags uppbót af
hálfu Breta á því hveiti, sem
þeir keyptu hér í fyrra, og var
nokkuð neðan við verðlag al-
þjóða hveitimarkaðs.
Samkvæmt ákvæðum áminsts
samnings, kaupa Bretar hér í
landi næsta uppskeruár, að
minstakosti 140 miljónir bushela
af hveiti.
ÚTVARPÁ
SUNNUDAGINN
Á sunnudaginn kemur, 30. jan.
verður árdegisguðsþjónustunni
frá Fyrstu lútersku kirkju út-
varpað frá stöðinni CBW. Mrs.
Pearl Johnson syngur einsöng,
og yngri söngflokkurirm undir
stjórn Mr. Paul Bardal aðstoðar
einnig með sérstökum hátíða-
RÁÐIÐ FRAM ÚR
VANDAMÁLI
Stjómin í Manitoþa hefir haf-
ist handa um lagningu akbraut-
ar frá Washow Bay á Winnipeg
vatni og til stöðva, sem liggja
gagnvart Matthesoney; er hér um
C0 mílna vegalengd að ræða.
Frá tildrögum þessa máls var
skýrt í fyrri viku, en þau voru í
því falin, hverjum erfiðleikum
það var bundið að koma til Win-
nipeg vétrarfiskinum, sem í vatn
inu hafði veiðst á yfirstandandi
vertíð.
Svo hefir skipast tiL að fiski-
menn, og þeir sem um flutninga
annast, leggi fram nálega $2000
en stjámin igreiði um $8000 til
lagningar áminstri .akbraut; tek-
ið var til starfa við lagningu veg-
arins um miðja fyrri viku.
Vel sé þeim öllum, er hófust
handa um framkvæmdir þessa
máls, því að öðmm kosti hefði
hagmunum fiskimanna á Winni-
pegvatni verið stofnað í mikinn
háska.
FRAMVINDA BORGARA-
STRÍÐSINS í KÍNA
Þó ekki sé ávalt auðvelt að
henda reiður á fréttaflutningi
frá Kína um þessar mundir, þá
er það engu að síður deginum
ljósara, að her Nationalista fer
daglega eina hrakförina annari
meiri, og sýnist í rapninni ekki
eiga annað eftir en gefast alveg
upp; nú eru hersveitir Kommun-
ista svo að segja komnar að
borgarhliðunum í Nanking, og
nú er svo komið að helztu em-
bættismenn stjórnarinnar eru í
óða önn að hypja sig á brott
þaðan með alt sitt hafurtask.
Síðastliðinn laugardag skýrðu
blöð og útvarp frá því, að forseti
Kínaveldis, Chiang Kai-Shek,
hefði látið af embætti með það
fyrir augum, að þá kynni að
reynast auðveldara að semja frið
við Kommunista; á mánudaginn
var sú fregn borin til baka, og
því bætt við, að forsetinn hefði
komið sér upp stjómaretri á öðr-
um stað.
DR. ARNOLD SETTLAGE
MERKUR ÍSLANDSVINUR
Eins og sagan sýnir, hefir ís-
landi oft orðið vel til vina fyr
og síðar, þar sem erlendt fólk
hefir tekið órofatrygð við land
og þjóð, og sýnt slíkt engu síður
í verki enn í orði. Þessum úrvals-
hóp merkra manna og kvenna,
hefir enn á ný bæzt góður liðs-
maður, og er sá kunnur og mik-
ilsmetinn læknir í Los Angeles,
Dr. Arnold Settlage, sem nú á
síðustu árum hefir flutt fjölda
fræðandi fyrirlestra um ísland
frá dvöl sinni þar, er Bandaríkja-
herinn var þar fjölmennastur.
Einn slíkan fyrirlestur flutti
þessi mæti maður á samkomu
um síðastliðin jól, sem Islend-
ingar stofnuðu til í Danish Audi-
torium hér í Los Angeles, en þar
komu samari yfir hundrað og
fimmtíu manns.
Jafnvel þó Dr. Settlage við-
hafi enga gullhamra í látlausri
frásögn sinni, getur það ekki far-
ið fram hjá neinum- hve góðvild
hans, ásamt næmum skilningi á
högum þjóðarinnar, rennur eins
og rauður þráður gegnum það
alt, sem hann leggur til mála;
hann kom víða við bæði í gamni
og alvöru; sagði hann einkar
skemtilega frá laxaveiðum í
Norðurá, silungsveiðum í Þing-
vallavtni og Hvítá hinni eystri;
hann dáði og mjög íslenzku gæð-
ingana fyrir .það hvað þeir væru
fótvissir fjörugir og snarir í
snúningum.
I sambandi við fyrirlestra sína
sýnir Dr. Settlage myndir og
minjagripi frá íslandi, svo sem
fagurlega ofna ábreiðu úr ull
með öllum sínum eðlilegum lit-
um; svo og margar tegundir fá-
séðra steina, sem einkennilegir
eru hvað lit og lögun snertir;
heimili hans stendur á fögrum
stað í Los Angeles, og er það
prýtt fjölda af mynda- og fræði-
bókum; þar minnir svo margt á
ísland, að óhjákvæmilegt er að
slíkt veki hjá manni undrun.
Dr. Settlage hefir sterka löng-
un til að heimsækja Island á ný
og kynnast þjóðinni undir öðr-
um kringumstæðum en hann
gerði þann tíma, sem hann
dvaldi á íslandi á hernámsárun-
um frá 1943—1945.
Mér finst ekki mega minna
vera, en athygli sé beint að
mönnum eins og Dr. Settlage,
sem leggja á sig hvers konar
ómök til að fræða landa sína um
þjóð okkar og land.
Dr. Settlage er óvenju glæsi-
legur maður, bjartur yfirlitum
og mikill að vallarsýn.
Islendingar í Los Angeleseiga
hauk í horni þar sem eru þau
ágætu hjón Katherine og Dr.
Arnold Settlage.
Los Angeles California
10 janúar 1949.
Skúli Bjarnason
0r borg og bygð
Þau hjónin Mr. og Mrs. Walt-
er Reykdal, að Siglunes, Man.,
urðu fyrir þeirri sáru sorg að
missa dóttur sína Dianne Paul-
ine, nærri þriggja ára gamla,
fimtudaginn, 6. janúar, eftir
stutta legu í mislingum er sner-
ust upp í lungnabólgu. Hún var
jarðsungin, af séra Rúnólfi
Marteinssyni, mánudaginn 10.
janúar. Kveðjuathöfnin fór fram
í kirkjunni og grafreitnum að
Vogar. Mr. T. J. Clemens var
útfarstjórinn, Mrs. Johnson var
organistinn. All-stór hópur fólks
var viðstaddur.
♦
Síðastliðinn föstudag lézt á
Deer Lodge sjúkrahúsinu hér í
borginni Adolph Stanley Zator
lögfræðinemi við Manitobahá-
skólann, 25 ára að aldri; hann
var fæddur í Arborg og kvæntur
Jóhönnu dóttur Carls Vopni tré-
smíðameistara; auk konu sinnar
lifa Mr. Zator tvö börn, Ralph
og Constance; einnig lætur hann
eftir sig móður í Arborg og fimm
systkini. Útförin fór fram í Ar-
borg á mánudaginn undir um-
sjón Bardals.
Lögberg vottar sifjaliði hins
látna, unga manns, innilega hlut-
tekningu í hinum þunga harmi,
sem að því er kveðinn.
‘ ♦
The Annual Meeting of the
Jon Sigurdson Chapter, IODE,
will be held on Thursday Even-
ing, February 3, at 8:00 o’clock
at the home of Mrs. E. Isfeld, 668
Alverstone Street.
-f
Þann 20. þ.m. voru gefin sam-
an hjónabandi þau Lilian John-
son, elzta dóttir Mrs. Emil John-
son í Cypress River bygðinni, og
John Jardine Roberts 431
Charles Street hér í borginni
Rev. W. Gordon MacLean fram-
kvæmdi hjónavígslunathöfnina,
er fram fór í kirkju Presbytera.
Svaramenn voru systir brúðgu-
mans, Sylvia G. Roberts og B.
Buelow. Brúðkaupsveizla var
haldin í Fort Garry hótelinu, og
sátu hana nánustu ættingjar
og vinir. Að veizlunni afstaðinni
fóru brúðhjónin í skemtiferð
suður til Minneapolis. Pramtíð-
arheimili þeirra verður í Winni-
peg.
-f
Gefin saman í hjónaband að
prestsheimilinu í Selkirk þann
22. janúar:
Bamey August Vogen, Selkirk
og Helen Sawchuck, sama
staðar.
Einnig Carl Guðmundson, Vo-
gen, og Elizabeth Sowchuck
sama staðar. Giftingarvottar
voru: Audrey Thelma McDonald
og Edward Henry Sabel. Ungu
hjónin setjast að í Selkirk.
♦
Síðastliðinn föstudag lézt í
bænum Geraldton í Ontariofylk-
inu, frú Helga Freden 42 ára að
aldri eftir langt og strangt sjúk-
dómsstríð; hún var dóttir Jónas-
ar heitins Pálssonar og eftirlif-
andi ekkju hans frú Emilíu Páls-
son, frú Helga var ágætlega gef-
in kona og fyrirtaks pianoleik-
ari; hún var tvígift, fyrri maður
hennar, Skarphéðin Tighe, féll í
síðasta stríði; þau áttu þrjú böm,
sem öll lifa, Mrs. Barbara Joel,
Vancouver, B.C. Stearne Tighe.
Blue River, B.C. og Brian Tighe,
Wisconsin. Seinni maður Helgu,
Mr. Freden er á lífi í Geraldton,
Ont.
Einnig lætur frú Helga eftir
sig þrjár systur, Svöla, Olgu, og
öldu.
DÁNARFREGN
Föstudaginn, 14. janúar and-
aðist á sjúkrahúsinu í Eriksdale,
Manitoba, Mrs. Jónína Nelson,
eftir tveggja ára heilsubilun.
Hún ól allan sinn aldur í
Lundar-bygð, var fædd, þar 21
júní 1921, dóttir hjónanna Guð-
jóns og Guðríðar Stefaníu Erik-
son.
Fyrir 5 árum giftist hún Fred-
erick Phillip Nelson, manni af
sænskum ættum. Þau bjuggu á
landi í grend við Lundar-bæ.
Þangað til síðasliðið haust, að
þau fluttu í bæinn. Þau eignuð-
ust eina. dóttur, Phyllis Gerald-
ine, sem nú er tveggja ára.
Mrs. Nelson var jarðsungin, af
séra Rúnólfi Marteinssyni, föstu
daginn, 21. janúar og var margt
manna viðstatt. Ahöfnin fór
fram í Lútersku kirkjunni á
Lundar og í grafreit skamt frá
bænum.
Systkini hinnar látnu eru. Sig-
urlína, Mrs. Robert Pentland,
búsett í grend við Holland, Man.
og tveir bræður, Guðjón og Sig-
urður Júlíus, er báðir eiga heima
á Lundar.
Þungur harmur er kveðinn að
ástvinum þessarar ungu, ágætu
konu.
♦
A Silver Tea and a sale of
Home Cooking in aid of the First
Lutheran Church, to be held in
the church parlors by the Senior
Ladies Aid on February 2, 1949
from 2:30 to 5:00 p.m. and also
in the evening from 8:00 p.m. to
10:00 p.m. A short program in
the evening at 8:30 including
songs by Erlingur Eggertson and
Corrine Day. There will also be
a film in Technicolor shown by
the National Film Board.
Everybody welcome.
♦
“Wings og the Wind”
Athygli skal hér leidd á ný,
að hinni einkar laglegu ljóðabók
Alberts Halldórssonar. sem getið
var í síðasta jólablaði Lögbergs;
í bókinni, sem er 80 blaðsíður að
stærð, er margt íhyglisverðra
ljóða. Bókin kostar einn dollar
og fæst hjá höfundinum, 357
Beverley Street, Winnipeg.
-f
Fulltrúa kosningar Icelandic
Good Templars of Winnipeg fara
fram á Heklu fundi þann 10. feb.
næstkomandi, eru eftirfylgandi
Stúkumeðlimir í vali Áríðandi
að allir meðlimir mæti á fundi.
BECK, J. T.
BJARNASON. G. «M.
EYDAL, S.
GÍSLASON, HJÁLMAR
ISFELD, FRED
ISFELD, HRINGUR
JOHANNSON, ROSA
MAGNUSON, ARNY
MAGNUSSON, VALA
PAULSON, S.
FLYTUR RÆÐU f
PRINCE ALBERT
Þann 2. febrúar næstkomandi
flytur hinn heimsfrægi land-
könnunarmaður og rithöfundur-
Dr. Vilhjálmur Stefánson, ræðu
í Prince Albert, Sask., og fjallar
ræðan um “Social and economic
Value of a general development
of our great North.” Dr. Vil-
hjálmur flytur ræðu þessa að til-
hlutun þess félagsskapar, sem
gengur undir nafninu Hudson
Bay Route Association, er það
hlutverk hefir með höndum, að
beina athygli almennings í Vest-
urlandinu að þeim hlunnindum,
sem flutningar með Hudsons-
flóabrautinni hafi til brunns að
bera.
söng.
GUTTORMUR J. GUTTORMSON OG FRÚ
Á sjötugsafmæli skáldsins 14. nóvember, 1948
Sjötugan skáldjöfur hyllum viÖ hér,
honum er örðugt að gleyma.
Sannlega Ijóðin hans lifa hjá mér
og lifa hjá Ipjóðinni heima.
í sjöunda himinn þar hafinn hann er, •
höfðingi talinn og metinn.
Af vitrustu mönnum að viti hann ber
í Vínlandi fæddur og getinn.
Þá Guttormur skáld er að lesa sín Ijóð
lætur hann menn verða káta;
hlustendum finst þau svo hnyttin og góð,
þeir hlæja um leið og þeir gráta.
Ungur fór Guttormur eitt sinn á ról,
því ástin í brjóstinu grœr;
þar fann hann í bygðinni sannefnda sól,
sólirnar skinu þá tvær.
Af konunnar völdum hann hafinn er hæðst
og hamingjuþráðurinn spunninn.
- Það vita það flestir að ástin er æðst,
frá almættis kærleika runnin.
Þú ert í bragsnilli fleygur og fær
og flýgur með aldrinum hærra.
Svo ertu í byðinni konunum kær.
um karlana tala ég færra.
1
Ég óska að þið hjónin lifið sem lengst
og lof ykkar fari sem víðast.
Gangið þann veginn sem gatan er þrengst
og gistið í Paradís síðast.
FRIÐRIK P. SIGURÐSSON