Lögberg - 03.03.1949, Page 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 3. MARZ, 1949
7
NÝJASTA UNDRIÐ
NÝ UPPFINNING er komin fram á sjónarsviðið í Ameríku
og mun hún með tíð og tíma hafa geisimikla þýðingu fyrir öll
viðskifti. Hún nefnist Ultrafax og að henni standa the Radio
Corporation of America og Eastman Kodak. —
Uppfinningin er bygð á þeirri
þekkingu sem menn hafa fengið
á sjónvarpi og hrað-ljósmyndun
og henni er ætlað að senda skeyti
með þeim hraða, sem ekki á sinn
líka. Það er talið að æfður sím-
ritari geta sent 45 orð á mínútu,
en við fyrstu tilraun, sem gerð
var með Ultrafax í Washington,
var öll skáldsagan “Gone With
the Wind” (1.033.000 orð) send
staða á milli á 2 mínútum og 11
sekúndum. Þó er talið að hægt
hefði verið að “símasenda” bók-
ina á helmingi skemmri tíma.
Þetta var reynslusending og
henni því ekki hraðað eins og
hægt var. Þegar Ultrafax tekur
til starfa fyrir alvöru, er talið að
það geti sent sem svarar 30 blað-
síðum í bók á hverri sekúndu.
Og það getur eigi aðeins sent
letur, heldur einnig myndir,
teikningar ljósmyndir, eigin-
handrit o.s. fyrv.
Gert er ráð fyrir að það muni
með tímanum algjörlega útrýma
símritun, og sendar verða mynd-
ir blaða og bóka í einu vetfangi
inn á heimili þeirra, sem hafa
sjónvarpstæki. Það getur og orð-
ið mjög þýðingarmikið fyrir lög-
gæsluna, því að hægt er að senda
ljósmyndir, handrit og fingraför
borga á milli á broti úr sekúndu.
Einnig getur það orðið keppi-
nautur flugvélanna um það
flytja póst, því að það getur kom-
ið eiginhandarbréfum á ákvörð-
unarstöð á álíka tíma og verið
er að hita hreyfla flugvélanna.
Uppfinning þessi byggist sem
sagt á sjónvarpi og hraðljós-
myndun. Því, sem senda skal,
hvort það eru myndir, skrift eða
prent, er brugðið fyrir sjónvarps-
-sendivélina. Á mótttökustöðinni
er ljósmyndavél, sem tekur
myndir af sendingunum jafnóð-
um og skilar þeim “framkölluð-
um” á augabragði og í sömu
stærð og frumritið var.
Þótt uppfinning þessi sé nú
þegar fullgerð, verður þess nokk-
uð að bíða að hún verði alment
notuð í heiminum. Hún verður
að bíða eftir sjónvarpinu, vegna
þess að hún er háð því. Nú sem
stendur er ekki hægt að sjón-
varpa lengri leið en út að sjón-
deildarhring, eða um 40 enskar
mílur. Þegar lengra skal síma,
eða þá að stetja upp dýrar endur-
varpsstöðvar með svo sem 40
mílna millibili. En mörg ár verða
þangað til slíkt sjónvarpskerfi er
komið um alla álfuna. Nú sem
stendur getur Ultrafax sent á
milli borga, sem hafa sjónvarps
samband sín á milli. Þeir, sem
hafa sjónvarpstæki heima hjá
sér, geta fengið sendar frétta-
síður dagblaðanna um leið og
þau koma út.
Eins og áður segir mun Ultra-
fax útrýma símritun. Á skemmri
tíma en símritarinn þarf til þess
að senda einn staf, getur Ultra-
fax sent heilar blaðsíður. Nú eru
símskeytagjöld reiknuð þannig
að ákveðið gjald er fyrir hvert
orð, en það fær ekki staðist þeg-
ar hægt er að senda mörg hundr-
uð orða fyrir líkt gjald. Símrit-
urum getur mistekist og villur
komist í skeyti, en hjá Ultrafax
getur engin villa komist að.
Ekki þurfa sendendur skeyta
eða bréfa heldur að óttast, að
aðrir geti hnýst í þau. Þegar
Ultrafax tekur til starfa fyrir
alvöru, þá koma menn þangað
með bréf sín í lokuðum umslög-
um. Bréfin eru ekki opnuð, það
er náð mynd af þeim inni í um-
slaginu og sú mynd er aftur
framkölluð á bréf í lokuðu um-
slagi á móttökustöðinni, og veit
þá auðvitað enginn hvað í bréf-
inu stendur.
Þá er talið að uppfinning þessi
geti haft stórkostlega þýðingu
fyrir kvikmyndaiðnaðinn. Með
aðstoð hennar geta kvikmynda-
félögin sent myndir sínar sam-
tímis til sýninga í þúsundum
kvikmyndahúsa. Verður þá al-
veg hætt að senda filmurnar
sjálfar á milli.
Talið er að hægt sé að koma
Ultrafax sendingum yfir úthöf-
in, með því að láta 12—14 flug-
vélar fljúga með vissu millibili
yfir höfin og endurvarpa hver
frá annari. En til þess að geta
tekið við sendingunum og end-
urvarpað þeim, þurfa flugvél-
arnar auðvitað að hafa sérstak-
an útbúnað.
Þá gera menn sér og miklar
vonir um að uppfinningin muni
hafa geisimikla þýðingu í styrj-
öld ef til hennar §kyldi koma.
Eitt blað segir að Ultrafax sé
/
TIL GUTTORMS
— Á SJÖTUGS AFMÆLI
Að jafnaði fjáði ég flaður og hrós
Og flest sem að manndýrkun lýtur;
Því heimurinn oft sínu hirðlofi jós
Á hann, sem að erfði sín metorð og goz,
Og afstœðis atlota nýtur.
En Guttormur fæddist í félagsskap þann,
Sem fátœkt í einangrun hefti.
í götóttum klœðum hann kól eða hrann,
Þá keppinn hann löngum að búskapnum vann,
Og söguna í hendingar hnepti.
Og hóndi, eins og Stephán, hann batt sig við það,
Sem brjóstið og náttúran sögðu.
Og þó að hann kastaði kýmni á blað,
Fékk kurteisin brúað hið tæpasta vað,
Og gáfurnar grunntóninn lögðu.
Og bergmálin heyrðust um hauður og sjá
frá hörpunnar voldugu strengjum.
Sjálf Fjallkonan hrifin sér tylti á tá,
Og teigaði ómana syninum frá,
Við þrœldóm á erlendum engjum.
Og hýr eins og brúður hún bauð honum heim,
Að bera sér vestrœnu Ijóðin,
Og gladdist að flest-alt í fjársjóði þeim
Var frónskt eins og Geysir að eðli og hreim,
Og eilíft sem íslenzka þjóðin.
Því er okkur Vestmönnum óhætt í dag
Að auðsýna þakklætis vottinn.
Þótt skorti mig sárlega lærdóm og lag,
Ég lœt hér mitt tillag í svolítinn brag,
Af vinsemd og virðingu sprottinn.
P.B.
sjöunda furðurverkið í viðskifta-
lífinu. Hinn mikli hraði, sem
verði á öllum skeytasendingum,
sé samboðinn öld kjarnorkunn-
ar.
(Broadcasting-Telecasting
Magazine)
Lesbók, Mbl.
Talsverð brögð að atvinnuleysi
í Reykjavík
í fyrsta skipti síðan fyrir stríð
Atvinnuleysiskráningu, sem
fram fór í Ráðningarskrifstofu
Reykjavíkurbæjar, lauk í fyrra-
dag. Létu skrá sig 135 atvinnu-
lausir menn, og af þeim er um
helmingur heimilisfeður, sem
eiga allt upp í fimm börn. Þó er
vitað, að allmargir verkamenn,
sem vinna við höfnina. en hafa
aðeins vinnu dag og dag, hafa
ekki látið skrá sig. Er það í
fyrsta sinn síðan fyrir stríð, að
atvinnuleysis verðu vart í Reyk-
javík.
Tala atvinnulausra nær
tífaldazt á þremur
mánuðum.
í fyrrakvöld lauk atvinnuleys-
iskráningu, sem fram fór á veg-
um Reykjavíkurbæjar. Höfðu þá
komið 135 atvinnulausir menn
og látið skrá sig. Af þeim, sem
skráðir voru, eru langsamlega
flestir verka menn, ófaglærðir,
eða samtals 104. Þar næst eru
bílstjórar, 15 talsins, 7 iðnaðar-
menn, 8 sjómenn, sem ekki hafa
farið út úr bænum til að leita
sér vinnu, og loks einn garð-
yrkjumaður.
Flestir þeirra, sem nú eru at-
vinnulausir, hafa flutzt til bæj-
arins á árunum í kring um 1940
og þar á eftir. Er sýnilega tví-
sýnt fyrir fólk að flytja í bæ-
inn, án þess að hafa vísa örugga
atvinnu.
Um helmingurinn
fjölskyldufeður.
Af þeim, sem skráðir voru, eru
63 einhleypir. 23 eru kvæntir, en
barnlausir. Tuttugu eru fjöl-
skyldufeður, sem hafa fyrir einu
barni að sjá, en aðrir eru fjöl-
skyldufeður, sem hafa fyrir fleiri
börnum að sjá, allt að fimm.
Langsamlega flestir hinna at-
vinnulausu manna eru á bezta
aldri. Af þeir eru 62 innan við
þrítugt, en nær allir hinir á aldr-
inum milli þrítugs og sextugs.
Það þarf að fyrirbyggja
atvinnuleysið í byrjun.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið hefir fengið frá forstöðu-
manni ráðningarskrifstofu bæj-
arins, sem jafnan sér um at-
vinnuleysisskráningar, er þetta
í fyrsta sinn síðan fyrir stríð, að
vart verður við atvinnuleysi hér
í Reykjavík. Fyrir þremur mán-
uðum, þegar síðasta atvinnu
leysiskráning fór fram, voru til
dæmis aðeins 14 menn skráðir
atvinnulausir.
Á hitt er vitaskuld líka að líta
að oftast er þrengra um atvinnu
í bænum á vetrum en endranær.
En eiga að síður er tala hinna
atvinnulausu orðin ískyggilega
há.
Tíminn, 5. febrúar
HOUSEHOLDERS
ATTFNTION!
We can supply your fuel needs with all the
standard brands of coal and coke such as
Saunders Creek, Foothills, Drumheller, Black
t
Nugget, Briquettes, Saskatchewan Lignite,
Zenith and Winneco Coke.
Stoker Coals in Various Mixtures Our Specialty
MCf URDY CUPPLY f 0. LTD.
V/ BUILDERS' U SUPPLIES AND COAL
Erin and Sargent Phone 37251
BRÉF UM BETEL
Kæri herra ritstjóri:
Viltu gjöra svo vel að ljá þess-
um línum rúm í blaði þínu. Ég
hef lesið um það í blaðinu að
elliheimilið Betel hafi undanfar-
ið verið í fjárþröng. Það hafi orð-
ið að taka á stofnsjóði sínum sem
tæplega mun endast lengi ef
ekki kemur hjálp frá almenningi
svo jafnvægi haldist og Betel
geti aftur rétt við.
Ég hef orðið þess vör að fólk
misskilur hjálp Betel Nefndar-
innar til Mountain og Vancouver
elliheimilanna og finst mér þörf
sé á að leiðrétta þann misskiln-
ing því hjálpin til þessara
tveggja ellUieimila var gerð i
besta tilgangi og á þann hátt að
með þessari fjárupphæð væri
lagður grundvöllur að tveimur
elliheimilum sem gætu veitt
mörgum ellilúnum gamalmenn-
um viðtöku sem annars gætu átt
á hættu að þurfa að hrekjast
stað úr stað. Hugsum okkur þeg-
ar við nú erum komin á háan
aldur og höfum ekki átt varan-
legt heimili, að alt í einu fyrir
rástafanir Guðs og góðra manna
séu opnaðar fyrir okkur dyr að
indælu og varanlegu heimili sem
slíkt ágæti býður og hve glöð
við tækjum þvílíku fagnaðar-
boði.
Ef almenningur aðeins getur
skilið hinn góða tilgang Betel
Nefndar þá treysti ég landanum
til að létta undir byrðina og
hjálpa með gjöfum til Betel svo
aftur komist jafn vægi á þannig
að ekki þurfi að taka meir á
stofnfénu en það sem -búið er.
Ekki er mælst til stórra upphæða
heldur miklu fremur að samskot
afmælisgjafir og jólagjafir séu
sem almennastar.
Hugsum okkur hvað mikið fé
kom saman um árið þegar Dr.
Sig. Júl. Johannesson var rit-
stjóri Lögbergs og mæltist til
þess í blaði sínu að börn vildu
gefa 10 cent hvert þá streymdi
inn til blaðsins eitt þúsund og
fimm dollarar. Vel sé mannvin-
inum góða fyrir að vekja það
góða og göfuga í barnssálinni.
Aldurhnignu gömlu börnunum
til varanlegrar hjálpar. Ef fólk
hugsaði út í það hvað margt
smátt gerir eitt afar stórt þá léti
enginn sitt eftir liggja að senda
Betel sinn pening.
Ég vildi óska að einhver mér
pennafærari vildi skrifa grein
um þetta málefni og útskýra það
betur en ég get gert.
Með heilla óskum til allra Is-
lendinga fjær og nær.
Mrs. Guðrún S. Ólafsson
Foam Lake, Sask., Box 297
Ágætur afli á línubáta
frá verstöðvum við Faxaflóa
Brezkir togarar spilla
veiðarfærum
Það virðist vera mikið af fiski
á bátamiðunum í Faxaflóa, og
hafa bátar úr verstöðvunum við
flóann fengið ágætan afla af góð-
um fiski, þegar gefið hefir á sjó.
En gæftir hafa verið slæmar.
Akranes.
Fréttaritari Tímans á Akra-
nesi skýrði blaðinu svo frá í
gærkvöldi, að þaðan væru nú
seytján bátar byrjaðir róðra.
Hafa þeir yfirleit aflað 6—17
smálestir í róðri, og er fiskurinn
vænn og fallegur. I fyrra dag
reru fimmtán bátar frá Akranesi
og fengu þeir samtals 136 smá-
lestir af fiski. í gær var ekki róið
frá Akranesi.
Fiskurinn er flakaður í hrað
frystihúsunum, það af honum
sem við verður komið, en af gang
urinn saltaður. Er nú hörgull á
kvenfólk til vinnu í hraðfrysti-
húsiunum, en nægjanlegt fram-
boð á karlmönnum, bæði á bát-
ana og til landvinnu.
Keflavík
Keflavíkurbátar hafa einnig
aflað vel, og eru nú um sextán
bátar byrjaðir þaðan línuveiðar.
Á sunnudaginn fengu þeir ágæt-
an afla, allt upp í fimmtán smá-
lestir á bát, en nokkru minna í
fyrra dag. í gær reru aðeins tveir
Keflavíkurbátar.
Sandgerði
Miklu færri bátar eru nú á
þessari vertíð gerðir út frá Sand-
gerði en verið hefir síðustu ára-
tugi. Munu línubátar, sem þaðan
sækja sjó í vestur, aðeins vera
12—13. Afli hefir verið góður frá
Sandgerði, þá daga sem róið hef-
ir verið, 10—15 smálestir í róðri
nú um helgina.
Kvartað er yfir því, að enskir
togarar séu teknir að gera tals-
verðan usla í veiðarfærum bát-
anna og eru uppi um það hávær-
ar raddir meðal sjómannanna, að
varðbátur verði látinn gæta veið-
arfæranna til þess að koma í veg
fyrir veiðafæra- og aflatjón.
Tíminn, 2. febrúar
Félag til varna gegn
krabbameini
Læknafélag Reykjavíkur gekst
fyrir því, að haldinn var fundur í
I. kenslustofu háskólans í gær-
kveldi til að undirbúa stofnun
féalgs sem beiti sér fyrir vörn-
um gegn krabbameini. Á fund-
inum var kjörin átta manna
nefnd til að undirbúa stofnun
slíks félags. í nefndina voru
kjörnir: Niels Dungal prófessor,
Alfred Gíslason læknir, dr. Gísli
Petersen yfirlæknir, Ólafur
Bjarnason læknir og Katrín
Thoroddsen læknir, Sveinbjörn
Jónsson hrlm. Gísli Sigurbjörns-
son forstjóri, frú Sigríður Magn-
ússon og Magnús Jochumsson
póstfulltrúi.
Alfred Gíslason, formaður
undirbúningsnefndar, s e m
Læknafélagið kaus setti fund-
inn, Jón Sigurðsson skólastjóri
var fundarstjóri en Gísli Sigur-
björnsson forstjóri, frú Sigríð-
Dungal prófessor flutti fróðlegt
erindi um krabbamein og nauð
syn á félagsskap eins og nú væri
til umræðu að stofna.
Aðrir ræðumenn voru Páll
Sigurðsson læknir, dr. Gísli Pet-
ersen yfirlæknir, Gísli Sigur-
björnsson forstjóri, frú Sigurð-
ur Magnússon, Ófeigur Ófeigs-
son læknir og Sigurður Sigurðs-
son yfirlæknir og tóku allir í
sama streng um nauðsynina á
stofnun félagsskapar til varnar
gegn krabbameini.
Mbl. 2. feb.
Vegna ALLRAR
Heimabökunar kaupa
GÓÐAR HÚSMÆÐUR
Notið það í brauð,
bollur, skorpusteik, kökur
og aðra bakningu — notið
það til allra hluta.
Það er malað úr bezta Canada hveiti.
GRÍPIÐ TÆKIFÆRID
Eins og samkepni á sviði viðskiptalífsins nú er
háttað, liggur það í augum uppi hve mikilvægt
það sé, að piltar og stúlkur fái notið hagkvæmrar
méntunar í öllu því, sem að skrifstofustörfum
lýtur; slíka mentun verður fólk að sækja á Business
College. Það verður nemendum til ómetanlegra
hagsmuna, að leita upplýsinga á skrifstofu Lög-
bergs í sambandi við verzlunarskólanámsskeið.
Þau fást með aðgengilegum kjörum.
CRfPIÐ TÆKIFÆRIÐ!
THE COLUMBIA PRESS LTD.
695 SARGENT AVENUE WINNIPEG.