Lögberg - 24.03.1949, Page 1
PHONE 21374
»nrieTS
Clc0Tl
W VS-^^Xfr. A Complete
Cleaning
Institulion
PHONE 21374
vwéS
i
rd 0*
Gt
^ deTe'" %XO***
LaU ® A Complete
Cleaning
Institution
62. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 24. MARZ, 1949
NÚMER 12
Samstiltir kraftar lyfta Grettistaki
Skýrsla um framgang háskólamálsins og áskorun
um fjárhagslegan stuðning af hálfu almennings.
í síðastliðnar nokkrar vikur, hafa fréttagreinar,
ritstjórnargreinar og bréf birst í íslenzku vikublöðunum
og dagblöðum Winnipeg borgar, varðandi stofnun hins
fyrirhugaða kenslustóls í íslenzkri tungu og íslenzkum
bókmentum við háskólann í Manitoba. Meir að segja
hafa ritstjórar þriggja dagblaðanna í þessari borg sam-
ið merkar forustugreinar um þetta málefni Þessar yfir-
lýsingar að hafa hrifið hjörtu sérhvers íslendings á
þessu meginlandi og endurvakið áhuga þeirra allra, er
kost áttu á að lesa þær.
Stjórnarvöld og embætt-
ismenn háskólans hafa
opinberlega þ a k k a ð ís-
lenzka mannfélaginu, hér
um slóðir fyrir höfðingskap
þess varðandi fjárframlög
til stofnunar deildar í ís-
lenzkum fræðum, sem að
þeirra dómi, mun vekja
athygli, eigi aðeins á hin-
um menningarlegu verð-
mætum, sem þessi nýja
deild veitir háskólanum,
sérstaklega deildum hans í
e n s k u og germönskum
tungum, heldur einnig als-
herjar menningarlegu gildi
íslenzkra fræða.
Samskonar yfirlýsingar
hafa borist frá mörgum
háskólaforsetum bæði í
Canada og Bandaríkjun-
um. í bréfi frá Dr. Sidney
Smith, forseta háskólans í
Toronto, standa ummæli,
sem eru þýðingarmikil í
þessu sambandi:
“Það er vel tilfallið.^bæði
vegna landfræðilegrar og
þjóðfræðilegrar afstöðu, að
öflug íslenzkukensla eigi
sér stað við Manitobahá-
skólann. Aðrir háskólar í
Canada munu viðurkenna
þá yfirburði, og senda
nemendur sína til Manito-
ba, sem þess æskja að
gerast hluttakendur í ís-
lenzkri menningu. Þetta
embætti gerir háskólanum
í Manitoba kleyft að koma
við rannsóknum í saman-
burðarmálfræði, er síðar
munu enduróma til aukn-
ingar Canadískri fræði-
mensku.”
Sendiherra íslands í
Canada og Bandaríkjun-
um, Thor Thors, sem
nýlega heimsótti Winnipeg
í tilefni af þrítugasta af-
mæli þjóðræknisfélagsins,
mintist í ræðum við ýms
tækifæri hinna mikilvægu
menningarlegu tengsla, er
s t o f n u n kenslustólsins
myndi skapa milli íslend-
inga austan hafs og vestan.
Sendiherran f 1 u 11 i á
þinginu kveðjur frá for-
seta íslands, rektor há-
skólans, mentamálaráð-
herranum og b i s k u p i
íslands fyrir hönd þjóð-
ræknisfélagsins á íslandi,
er í sér fólu hamingjuóskir
til fólks af íslenzkri ætt í
Canada og Bandaríkjunum,
er beitt hefði sér fyrir
stofnun kenslustólsins í
íslenzku við Manitoba há-
skólann, — Það var ekki
einasta að sendiherrann
dáði í ræðu hugsjónina um
stofnun kenslustóls í ís-
lenzku, heldur veitti hann
fyrirtækinu stuðning með
persónulegu fjárframlagi
og gerðist með því, í félagi
við íslendinga í Bandaríkj-
_ i
unum og Canada, einn af
stofnendum háskólastóls-
ins.
Á það verður aldrei
ofmikil áherzla lögð, að
þeir, sem leggja fé í þennan
sjóð, eru að ná þremur
mikilvægum markmiðum: í
fyrsta lagi eru þeir að
endurstaðfesta á virkan
hátt virðingu sína og aðdá-
un fyrir þeirra eigin menn-
ingarlegum og bókmenta
legum verðmætum. í öðru
lagi eru þeir að reisa á sviði
æðri mentunar minnis-
merki um þrek og hugsjónir
íslenzkra frumbyggja á
þessu mikla meginlandi
Norður Ameríku, sem ís-
lendingurinn Leifur Eriks-
son, varð fyrstur Norður-
álfumanna til að leggja
undir fót. Og í þriðja lagi,
með þessari höfðinglegu
gjöf er háskóla Manitoba
fylkislögð á herðar, þá ekki
sér skjalfest, ábyrgð um að
viðhalda virkum áhuga á
íslenzkum listum og bók-
mentum.
Vert er að þess sé getið
þeim til skilningsauka, er
af einni eða annari ástæðu
hafa haldið því fram, að
háskólinn sjálfur hefði átt
að stofna áminstan ken-
slustól, án fjárhagslegs
stuðnings af hálfu íslend-
inga hér í álfu, að háskólinn
hefir ekki úr miklu að spila
frá fjárhagslegu sjónarmiði
séð; að kröfur á hendur
honum um nýjar og auknar
umbætur á þeim deildum,
sem hann nú þegar ber
ábyrgð á að starfrækja og
umbæta, eru miklar og að-
kallandi. En jafnvel þótt
háskólinn hefði séð sér
fært að stíga slíkt spor,
myndi það ekki hafa vakið
jafn almenpan áhuga. —
Með stofnun þessarar
deildar við háskólann ná
þær hjartfólgnu vonir fyll-
ingu, er íslenzkir frumherj-
ar og afkomendur þeirra
hafa borið í brjósti, að
komið yrði á fót stofnun til
verndar hér í álfu fegursta
kjarnanum í íslenzkri
menningu, tungu og bók-
mentum. Hugsjónum þess-
um til stuðnings hafa á
undaförnum árum verið
fluttar ræður og ritgerðir
samdar af leiðandi mönn-
um og konum hins íslenzka
kynflokks. Hreyfingin hefir
fengið byr í segl vegna
opinberra yfirlýsinga hátt-
settra vina íslendinga, svo
sem þeirra Dufferin
1 á v a r ð a r, Tweedsmuir
lávarðar og jarlsins af Ath-
lone, er allir voru ríkis-
stjórar í Canada,
heimsóttu frumbygðir ís-
lendinga við Winnipegvatn
og fluttu ræður á Gimli.
Þetta skýrir þá í stuttu
máli ástæðurnar fyrir hin-
um vaxandi áhuga á þessu
málefni og hinum víðtæka
stuðningi, sem það hefir
hlotið með framlögum ein-
staklinga og virkri sam
vinnu leiðandi, íslenzkra
mannfélagssamtaka í Am-
eríku, með bækistöðvar í
Winnipeg. Þessar félags-
stofnanir eru: Þjóðræknis-
félag íslendinga í Vestur-
heimi ásamt deildum þess;
Icelandic Canadian Club;
íslendingadagsnefndin; ís-
lenzkir Good Templarar í
Winnipeg, Jóns Sigurðson-
ar félagið I.O.D.E.; ritstjór-
ar íslenzku vikublaðanna
og Icelandic Canadian. Þar
að auk eiga íslenzku kirk-
jufélögin tvö áhrifamikla
fulltrúa í framkvæmdar-
nefndinni. '
Það er áríðandi að fram-
angreind atriði séu skýrð
með sterkum dráttum
vegna þess að í þeim felast
tvenn megin skilyrði: æski-
legur árangur fjársöfnun-
arinnar og framhalds áhugi
stofnana og einstaklinga
varðandi útbreiðslu ís-
lenzkrar fræðimenzku.—
Manitobaháskólinn hefir
lýst því yfir fyrir munn
forseta síns Dr. A. H. S. Gill
son, að jafnskjótt og mark-
m i ð i f jársöfnunarinnar
hafi verið náð, verði komið
á fót við háskólann kenslu-
deild í íslenzku og íslenzk-
um bókmentum, u n d i r
umsjón prófessors, sem
njóti jafnrar aðstöðu við
aðra prófessora háskólans.
Ákveðið hefir verið að
safna 200,000 dollurum til
fulltryggingar hinni nýju
fræðslu deild. Eins og sakir
standa hafa safnast í fram-
lögum og loforðum $140,-
000.0Ó og af því hefir há-
skólinn veitt $115,000.00
viðtöku. Til þess að loka-
markinu verði náð, er enn
þörf á $60,000.00. Um þetta
lokaátak ber okkur öllum
að sameinast, sem berum
fyrir brjósti framgang
þessa mikilvæga menning-
armáls.
Fjársöfnunarnefndinni er
það áhugamál að hver og
éin íslenzk bygð sýni virka
þáttöku á einhvern þann
hátt, er hér er skýrt frá:
(1) Að bygðarfélög taki að
sér að safna 1000.00 upp-
hæð og með því verði nöfn
þeirra varanlega skrásett
við háskólann, sem stofn-
enda félög.—Á nýafstöðnu
ársþingi þjóðræknisfélags-
ins, setti félagið sér sem
markmið að safna 15 þús-
und dollurum í viðbót.
— Vonandi er að fram-
kvæmdarnefndir annara
félaga eigi frumkvæði að
því að mynda stofnenda
hópa. — (2) Að einstakl-
ingar í byggðunum gerist
sjálfir stofnendur með þús-
und dollara tillagi eða þar
yfir í sjóðinn. (3) Að fjöl-
skyldur leggist á eitt um að
heiðra minningu foreldra
með þúsund dollara fram-
lagi eða þar yfir: (4) Að
vinir forustumdínna í sér-
hverri byggð sameini fjár-
framlög sín í því augnamiði
að nöfn slíkra manna kom-
ist á stofnenda skrá, með
því verði minningu þeirra
heiðruð og haldið á lofti og
forusta þeirra og nytjastörf
í þágu byggðarlagsins við
urkend.
í fullnaðar skýrslum há-
SAMNINGUR UM SÖLU
HVEITIS
Þær fréttir bárust út um heim
frá Washington, D.C. á laugar-
daginn var, að fjörutíu og sjö
þjóðir hefðu þar komist að
samningum um innflutning og
útflutning hveitis yfir tímabil
næstu fjögurra ára; hliðstæðar
samningatilraunir voru á döfinni
í fyrra en strönduðu þá vegna
andspyrnu þjóðþingsins í Wash-
ington; nú hefir samist svo til að
lágmarksverð hveitis verði $1.50
á mæli, en hámarksverð $1.80.
Sumum þjóðum er flytja út
hveiti, þykir verðlag þess of lágt,
og má þar meðal annara tiltelja
Ástralíu, en stjórnarvöld þeirrar
þjóðar kenna Bretum um hið
lága verð, því þeir afsegi að
borga meira; áætlað er að á á-
minstu tímabili muni árlegur út-
flutningur, eða millilandaflutn-
ingur hveitis nema 450,000,000
mæla, og verður Canada þar efst
á blaði 200,000,000 mæla á ári.
ALGERT HLUTLEYSI
Sænska þingið afgreiddi þann
18. þ.m. 230 miljón dollara fjár-
veitingu til hervarna fyrir yfir-
standandi ár, en lýsti jafnframt
yfir algerðu hlutleysi þjóðarinn-
ar án tillits þeirra sáttmála eða
hervarnabandalaga, sem aðrar
þjóðir kynnu að stofna til á
næstunni.
Frá því í sumar, sem leið, voru
haldnir margir fundir í Stokk-
hólmi, Danmörku og Oslo með
það fyrir augum, að sameina
þessar þrjár Norðurálfuþjóðir
um sameiginlegar hervarnir, eða
sameiginlega afstöðu til her-
varna yfirleitt með hliðsjón af
viðhorfinu á vettvangi heims-
málanna; en allar tilraunir
strönduðu á sérskoðunum hinna
sænsku stjórnaravalda og yfir-
lýsingum þeirra um algert hlut-
leysi.
Ur borg og bygð
MINNISVARÐI UM JÓN
ARASON f SKÁLHOLTI?
Jónas Jónsson flytur í samein-
uðu þingi tillögu til þingsálykt-
unar um, að alþingi álykti að
skora á ríkisstjórnina að beita
sér fyrir því, að reist verði 1
Skálholti árið 1950 minnismerki
um Jón biskup Arason, á fjögur
hundruð ára dánarafmæli hans.
1 greinargerð segir, að Jón
Arason sé eini maður á Islandi,
sem látið hafi líf sitt fyri? frelsi
þjóðar sinnar í baráttu við erlent
vald. Hafi Skagfirðingar safnað
fé til að reisa við Hóladómkirkju
minningarturn um þennan þjóð-
skörung, en nauðsynlegt erlent
efni í þá byggingu virðist ekki
fánalegt að svo stöddu. Hins
vegar hafi Einar Jónsson fyrir
allmörgum árum gert mjög and-
ríka táknmynd um líf of hetju-
dauða Jóns Araspnar, en hún
eigi hvergi heima nema á dánar-
stað hans.
Alþýðb. 25. feb.
Brauðgerðarverkfallið
Verkfall brauðgerðarmanna
hér í borg, sem skýrt var frá í
fyrri viku, stendur enn yfir og
tvísýnt um lausn ágreiningsefna.
Brauðgerðarfélögin hafa til-
kynt verkfallsmönnum, að ann-
aðhvort verði þeir að hefja
tafarlaust vinnu með sömu kjör-
um og áður, eða leita sér atvinnu
annarsstaðar; verkfallsmenn
hafa þverneitað að verða við
slíkri kröfu.
Starfsmenn Brown’s brauð-
gerðarinnar í Selkir, hafa gert
samúðarverkfall.
SIGURÐUR SKÁLD Á
ARNARVATNI LÁTINN
HÚSAVÍK, 25. febr. — í gær
andaðist Sigurður Jónsson,
skáld, að Arnarvatni. Hann hefir
átt við vanheilsu að búa s.l. ár
og legið rúmfastur á Akureyrar-
spítala síðan í haust.
Hann lætur eftir sig konu,
Hólmfríði Pétursdóttur frá Gaut-
löndum, og 11 uppkomin börn.
Mgbl.
Vill grafhellur á leiði
þriggja látinna stórskálda
Jónas Jónsson flytur í sam-
einuðu þingi tillögu til þings-
álytkunar um, að alþingi álykti
að skora á ríkisstjórnina að láta
nú í ár steypa á leiði þriggja
stórskálda grafhellur, sams kon-
ar og notaðar eru í þjóðgrafreitn-
um á Þingvelli.
Skáld þessi eru Bjarni Thorar-
ensen, sem hvílir að Möðruvöll-
um, Bólu-Hjálmar er hvílir að
Mikalbæ, og Grímur Thomsen,
sem hvílir að Bessastöðum.
Alþb. feb. 25.
Sex lömunarsjúklingar
héðan farnir til Kaup-
mannah&fnar
1 morgun fór Snorri Sigfússon
námsstjóri flugleiðis til Kaup-
mannahafnar, til dvalar á hress-
ingarstofnun vegna lömunar.
Eru þeir þá orðnir 6 lömunar-
veikissjúklingarnir, sem búið er
að flytja héðan til Kaupmanna-
hafnar. Fimm þeirra dvelja á
Kommune Hospitalet og mun
liðan þeirra allra góð og um
framför að ræða hjá öllum, þótt
hægt fari.
Dagur 16. feb.
ERFIÐIR DAGAR FYRIR
INNANLANDSFLUGIÐ
Innanlandsflug hefur gengið
treglega og er ástæðan fyrir því
hið mjög svo óhagstæða tíðarfar
sem hefur verið hér síðastliðna
mánuði. Aðeins 12 flugdagar
hafa verið síðan á ára mótun,
flognir hafa verið 11160 kíló-
metrar á 52.15 klst. fluttir
hafa verið 203 farþegar, 2505 kíló
af farangri, 329 kíló af flutningi
og 2123_ kíló af pósti. Til saman-
burðar má geta þess að á sama
tíma í fyrra flutti félagið 768
farþega, 8019 kíló af farngri, 310
kíló af flutningi og 9085 kíló af
pósti og var þó tíðarfar ekki
meira en sæmilegt í janúar og
febrúar 1948.
Mgbl. 3. marz
skólans um þetta mál
verður framlag hvers ein-
staklings skrásett og viður-
kent.
Fyrir hönd nefndarinnar í
kenslustólsmálinu,
P. H. T. THORLAKSON, formaSur
MARGRÉT PÉTVRSBON, skrifari
Strangari skömtun kjöts
Birgðaráðuneytið brezka hefir
tekið þá ákvörðun, að lækka
kjötskamt á Bretlandi um 16 af
hunaraði frá því, sem nú er;
sú ástæða er gefin fyrir þessari
ráðstöfun, að Argentína hafi
hvergi nærri fullnægt samning-
um við Bretland um birgðir
nautakjöts þaðan úr landi.
Mikill rekstarhalli
Þær fréttir hafa borist frá
Ottawa, að rekstrarhalli þjóð-
eignabrautanna, Canadian Nat-
ional Railways á árinu, sem leið,
muni nema 47 miljónum dollara.
Laugardaginn þ. 12. þ.m. voru
gefin saman í hjónaband af séra
S. S. Christopherson í grend við
Churchbridge, Sask. Þau Ingi-
björg Grace Hinrikson og Glen
Howard Davis. Brúðirin er dóttir
Björns E. Hinriksonar, forsetá
Konkordiasafnaðar og konu hans
Vilborgar, sem er forseti kvenn-
félags safnaðarins.
Brúðguminn er sonur Mr. Qg
Mrs. Herbert Davis, sem eru til
heimilis innan bygðar. Miss
Rúna Magnúson var brúðar-
meyja og Richard Davis bróðir
brúðgumans stóð upp með hon-
um.
Fór athöfnin fram á heimili
Mr. og Mrs. Hinrikson við marg-
menni vina og vandamanna.
Voru frambornar að lokinni gift-
ingu miklar og ágætar veitingar.
Brúðarkaka var prýðileg, og
stundin mjög ánægjuleg.
Kæri herra ritstjóril
Við erum tvær íslenzkar stúlk-
ur, sem langar til að komast í
bréfasambönd við Vestur-lslend
inga á aldrinum 15—18 ára. Þess
vegna datt okkur í hug að biðja
yður að birta nöfnin okkar í yðar
vinsæla blaði “Lögberg.”
Við skrifum einnig ensku.
Með fyrirfram þökk,
Ása Hauksdóttir
Norðurgötu 53,
Akureyri, íslandi.
og
Dagfríður Finnsdóttir,
Grundarfirði,
Snæfellsnessýslu,
íslandi.
Sixth Annual Viking Banquet
and Ball will be held Thursday,
March 31, at 6:30 p.m. in the
Marlborough Hotel, 8th floor.
Guest speaker: Mr. Tryggvi T.
Olson, profesor in history, Unit-
ed College, who will respond to
the toast to “The Immortal Vik-
ing Spirit.”
Chairman: H. Jacob Hansen,
presidenj of The Viking Club.
Solo-singers Alec Johnson,
Icelandic baritone, accompanied
at the piano by Dr. Gerda Alli-
son.
Community-Singing will again
be led by Mr. Paul Bardal, and
a special song-sheet will be pro-
vided.
Honored guests: His Worship
Mayor Garnet Coulter and Mrs.
Coulter, who will open the ball
with the grand march at 9:00
p.m.
Dance Music will again this
year be to the tunes of Jimmie
Gowler’s orchestra, which has
proved to be very popular with
the Scandinavians.
Programme Committee: J. G.
Johannsson (chairman): Carl
Simonson, Fred Hansen, Mrs.
Gretsingar, Mrs. M. Norlen, O. S.
Clefstad, Mrs. E. J. Hallonquist, •
H. A. Brodahl and H. Jacob
Hansen.
Tickets: Banquet and Dance,
— $2.00. Dance alone, — ,75c.
Tickets should be reserved
early to avoid disappointment,
and may be had from committee
members or fram the treasurer:
Mrs. E. J. Hallonquist, 518
Mclntyre Block, Phone 927 781
Come all, and let us make this
annual event the biggest and
best ever.
For The Programme Commitee
H. A. BRODAHL,
Secretary.