Lögberg - 24.03.1949, Síða 2
2
J-iÖGBERG, FIMTUDAGINN, 24. MARZ, 1949
THE * 695 HoQfatrs GefiS út hvern fimtudag af COLUMBIA PRESS LIMITED SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
Vtandskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 21 804
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The “Lögberg” is printed and publiehed by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
NORÐUR-ATLANTSHAFS BANDALAGIÐ
Eíins og almenningi er fyrir löngu kunnugt um, hafa
lengi verið á döfinni málaleitanir um öflugt varnar-
bandalag meðal hinna vestrænu lýðræðisþjóða; var
þetta talið óhjákvæmilegt vegna hinna óvægilegu
áróðurs- og yfirdrotnunarstefnu rússnesku ráðstjórn-
arríkjanna; frumkvæði að hugmyndinni um áminst
varnarbandalag áttu Bandaríkin, Bretland, Frakkland,
Holland, Belgía og Luxembourg. Canadísk stjórnarvöld
voru frá upphafi vega hlynt málinu og hafa nú fyrir
alllöngu heitið því eindregnu fylgi; nú hefir Noregur
nýlega bæzt í hópinn, og Danmörku, íslandi, Portugal og
ítalíu, verið boðin þátttaka.
Síðastliðinn föstudag gerðust þau tíðindin, að
grundvallaratriði hins fyrirhugaða varnarbandalags
voru kunngerð öllum þjóðum heims, og síðan hefir um
fátt annað verið talað eða ritað, og ber það í rauninni
sízt að undra, þar sem annað eins stórmál átti hlut.
Manitoba s First Telephone Operator
Miaa Ida Cates Mra. Robert Steel
(In 1885-1886) (Photoqraphed January 1949)
On January 20th, 1949, Manitoba's íirst woman telephone operator celebrated her
83rd birthday anniversary.
Formerly Miss Ida Cates, she became Mrs. Robert Steel on July 14th. 1890. resign-
ing her position of chief operator in the Winnipeg exchange. Today, Mrs. Steel lives
with her son Frederick in Great Falls, Montana, having lost her husband there in
March. 1948. Active and in good health, she has many interesting recollections of
days when the telephone was young.
MARGRÉT INDRIÐADÓTTIR:
1 heimsókn hjá Mormonum
Ég var lengi búin að hlakka til þess, að heimsækja mormóna-
fylkið Utah í Bandaríkjunum. Einkum og sérstaklega vegna þess,
að ég gerði mér í hugarlund að þar byggi óvenjulegur hópur
manna, sem myndi tilbreytni í að kynnast.
E!ins og vænta mátti hylla Vesturveldin í megin-
atriðum þennan nýja sáttmála, og staðhæfa að með
honum sé stígið óvenju mikilvægt spor til varanlegs
friðar. Rússinn er ekki alveg á sömu skoðun, og hið
sama er að segja um leppríki hans.
Grundvallaratriði varnarbandalagsins, þau, sem
mestu máli skipta, eru á þessa leið:
Vopnuð árás á einhverja þeirra þjóða, er að banda-
laginu standa, skal skoðast sem árás gegn hinum þjóð-
unum öllum, er með undirskrift sinni hafa staðfest
tilgang og tilverurétt bandalagsins, og skal þá gripið til
þeirra ráða, er öruggust þykja, að inniföldum vopna-
burði, ef svo býður við að horfa.
Bandalagsþjóðimar skulu viðhalda og byggja upp
þau viðnámstæki gegn vopnuðum árásum, er í þeirra
eigin valdi stendur, og leita einnig á samvinnugmndvelli
sáttmála um varnarsamtök. Þeir aðiljar, er undirskrifað
hafa varnarsáttmálann, skulu ráðgast um það í sam-
einingu hverjar ráðstafanir skuli teknar, ef þjóð innan
bandalagsins lítur þannig á, að land sitt og pólitískt
sjálfstæði sé í hættu.
Sérhver bandalagsþjóð geri sér alt far um að
þroska sínar eigin frjálsu stofnanir og vinni að því í
anda þeirra, að skapa innbyrðisfestu og vellíðan.
Með árás er átt við hvaða tegund yfirgangs, sem er,
gagnvart bandalagsþjóð eða nýlendum hennar, eða
gagnvart hernámsliði bandaþjóða hennar í Evrópu.
Tilkynning um árás á bandalagsþjóð skal send
öryggisráði sameinuðu þjóðanna til meðferðar, og jafn-
skjótt og þær hafa aflað sér nauðsynlegs styrks til að
binda enda á slíka árás, skulu sáttmálaþjóðimar eigi
lengur beita valdi í því tilefni.
Nefnd skal sett á laggir til að hrinda í framkvæmd
ákvæðum vamarbapdalagsins, og skal hver hlutaðeig-
andi þjóð eiga fulltrúa í nefndinni.
Sérhver þjóð, er þess æskir, getur fengið inngöngu
í varnarbandalagið, ef allar þær þjóðir, sem að sátt-
málanum standa, era slíkri umsókn samþykkar.
í því falli að einhver þjóð vilji segja sig úr vamar-
bandalaginu, er henni það heimilt gegn árs fyrirvara, að
tuttugu ámm liðnum.
Þannig em þá innviðir hins nýja varnarsáttmála
í megin dráttum; hér er ekki farið í felur með neitt,
heldur eru spilin lögð á borðið eins og þau em, og verður
slíkt að teljast holl nýbreytni frá baktjaldabralli hins
gamla skóla.
Utanríkisráðherra Breta, Mr. Bevin, lýsti yfir því í
brezka þinginu við mikla hrifningu þingheims, að með
Atlantshafssáttmálanum hefðu Bandaríkin í fyrsta
sinn í sögunni beitt sér fyrir um það, að bindast á friðar-
tímum sáttmála um sameiginlegar varnir við Evrópu.
Forsætisráðherranum í Canada, Mr. St. Laurent
fómst meðal annars þannig orð um leið og hann lagði
fram í báðum deildum hins Canadíska þjóðþings, fulln-
aðartexta vamarsáttmálans:
■ ■■ "i 11 .
“Þessi nýji sáttmáli er annað og meira en gamal-
dags hernaðarsáttmáli; hann er fyrst og síðast frið-
arsáttmáli, og ég er ekki í neinum vafa um að Canadíska
þjóðin muni alment fagna staðfestingu hans.”
Utanríkismálaráðherra Hollendinga kvaðst ekki í
neinum vafa um það, að hvaða yfirgangsþjóð, sem væri,
mundi hugsa sig um tvisvar áður en trygt þætti, að veita
atlögu þeim 250 miljónum manna, er að hinum nýja
varaarbandalagi stæði.
Ég held helzt að ég hafi gert
mér vonir um að hitta þar sér-
stök afbrigði homo sapiens, er
hvergi væru til annarsstaðar.
Raunin varð hins vegar sú, að ég
hitti þar ósköp venjulegt fólk,—
sem er rétt eins og þú og ég, að
öðru leyti en því, að það játar
aðra trú. Og kannske er það ein-
mitt trú þeirra, sem gerir morm-
ónana hraustlegri, glaðlegri og
ánægðari með lífið og tilveruna
en þú og ég erum.
Utah hefir ýmislegt til síns á-
gætis, framyfir önnur fylki í
Bandaríkjunum. Alþýðufræðsla
er þar á hærra stigi en annars-
staðar og þar fæðast að meðal-
tali fleiri börn, en í nokkru öðru
fylki, enda segja mormónar að
helzta samgöngutæki þeirra sé
barnavagninn. I fylkinu er at-
vinnuleysi óþekkt fyrirbæri og
velmegun því almenn.
Við vorum þrír fslendingar á
ferð saman í Utah, sumarið 1947.
Við dvöldum nokkra daga í
höfuðborginni og heimsóttum
einnig smábæi og þorp í ná-
grenninu. Saltvatnsborgin (Salt
Lake City) hefir um 183 þús.
íbúa. Það er fögur borg og með
afbrigðum hreinleg. Fyrst og
fremst tekur maður eftir götun-
um. Þær eru breiðar og tandur-
hreinar, nærri því eins og hvít-
skúrað baðstofugólf. Við land-
arnir sögðum hvert við annað,
með spekingssvip, að íslenzkir
verkfræðingar myndu víst geta
lært sitthvað um gatnagerð af
mormónunum.
Saltvatnsborgin stendur hátt,
eða 4354 fet yfir sjávarmáli og
er loftslag þar mjög heilnæmt.
Hún liggur við rætur Klettaf jall-
anna og húsin, sem eru óvenju
lágreist og flest umkringd fögr-
um skrúðgörðum, teygja sig
upp í hlíðar- þeirra. Skammt frá
borginni er Saltavatnið mikla,
sem hún dregur nafn sitt af.
Furðurlegt þótti okkur löndun-
um að “synda” þar. Vatnið er
sjö sinnum saltara en sjórinn og
vitanlega ranghermi að tala um
að synda í því. Maður sekkur
ekki — situr bara ofan á vatninu,
eins og dúnmjúkum sessi, og
horfir upp í bláan himininn.
Fyrsta daginn okkar í' borg-
inni heimsóttum við Musteris-
torgið (Temple Square), sem er
Mekka mormónanna. Þar er hið
fræga musteri þeirra, sem var 40
ár í smíðum, enda hin fegursta
bygging. öllum óviðkomandi er
bannaður aðgangur og það eru
meira að segja tiltölulega fáir
mormónar, sem fá að koma þang-
að inn, eða aðeins þeir, sem í einu
og öllu hlýða boðorði kirkjunn-
ar.
í upplýsingaskrifstofunni hitt-
um við mann einn aldraðan og
spurðum hvort ekki væri nokkur
leið að við, sem værum hér í
pílagrímsferð alla leið frá ís-
landi, gætum fengið að skoða
musterið.
— Jú, ekkert er auðveldara,
svaraði kauði og varð stríðnis-
legur á svip. Þið þurfið ekki að
gera annað en aðhyllast trú okk-
ar, hætta að drekka áfengi, kaffi
og te, hætta að neyta tóbaks og
láta tíunda hlutann af tekjum
ykkar renna til kirkjunnar. Það
eru einu skilyrðin til þess að fá
inngöngu í musterið.
Við héldum að maðurinn væri
að gera gys að okkur, fáfróðum
útlendingunum, og strunsuðum
út. En seinna fékk ég eftirfarandi
upplýsingar:
Rétttrúaðir mormónar nota
ekki tóbak drekka ekki áfenga
drykki, te né kaffi. Hinsvegar er
enginn fótur fyrir því, að þeim
sé bannað að nota pipar og ann-
að krydd. Drykkurinn kóka-kóla
hefir einnig verið fordæmdur af
Kínverzkir Kommúnistar úthúðuðu sáttmálanum á
allar lundir, en kyrjuðu Stalin óspart lof.
Forsætisráðherra Belgíubúa Paul Henri Spaak,
kvað það ábyggilega vera einsdæmi í sögu milli-þjóða
samninga, að texti slíks samnings lægi til umræðu og
væri birtur orði til orðs, löngu áður en hann kæmi til
framkvæmda; slíkt yrði að skoðast sem góðs viti, og
yrði vafalaust metið að makleikum.
Stjórnarvöld Austurríkis tjáðu sig hlynt vamarsátt-
málanum og vilja gjarnan leita þar sem allra fyrst
skjóls.
Ritari sameinuðu þjóðanna, Tryggve Lie, gaf stór-
veldunum ádrepu fyrir ósamkomulag þeirra og áfeldist
þau fyrir að hafa ekki farið að ráðum sínum varðandi
lausn Berlínardeilunnar; en orðalag sáttmálans vildi
hann ekki gera að umtalsefni eins og á stóð.
Nú er það talið nokkurn veginn víst, að áminstur
vamarsáttmáli verði undirskrifaður í Washington
fyrstu vikuna í Aprílmánuði næstkomandi.
kirkjunni á þeim forsendum, að
hann innihaldi eiturefnið “coffe-
in.”
Spámaðurinn Joseph Smith,
faðir mormónatrúarinnar, hélt
því fram að hverskonar eitur-
lyfjanautn gerði manninn
skammlífari. Mormónar (sem
eru furðanlega langlífir) vilja
lifa eins lengi og mögulegt er.
Auk þess verða þeir að notast
við sama líkamann í milljónir
ára eftir “dauðann” (mormónar
“deyja” ekki) og er því ofur
skiljanlegt að þeir vilji annast
sem bezt um hann í þessu lífi.
Annan daginn okkar í borg-
inni heimsóttum við þinghúsið,
sem er merkilegt að því leyti,
að það er jafnframt notað sem
safn. Allir gangar þess eru fullir
af gömlum munum, sem frum-
byggjarnir höfðu með sér — allt
frá íslenzkum vettlingum, sem
vekja athygli af því að þeir hafa
tvo þumla, og upp í stóra flutn-
ingsvagna. í þinghúsinu hittum
við konu af íslenzkum ættum,
Mrs. Carter. Hún er forseti víð-
tæks félagskapar, sem heitir
Landnámsmanadætur Utah, og
er auk þess þekktur rithöfundur.
Hún tók okkur af mikilli alúð
og gaf okkur heimilisfang bróð-
ur síns, John Bearnson í Spring-
ville, sem er smábær skammt frá
höfuðborginni.
Nokkrum dögum seinna heim-
sóttum við Bearnson og konu
hans, sem reyndust vera hið
elskulegasta fólk. Þau tóku
okkur tveim höndum og dvöld-
um við hjá þeim 1 góðu yfirlæti.
Þau sögðu okkur margt úr sögu
mormónanna, sem er hin merk-
asta.
(Frh. á hls. 4)
STEEELE-BRIGGS'
FORAGE CROP SEEDS
Carefully Cleaned io Grade on Our Own Equipmeni
BROME CERTIFIED No. 1 SEED
TIMOTHY No. 1 SEED
FLAX DAKOTA CERTIFIED No. 1 SEED
DAKOTA No. 1 SEED
FLAX RED WING No. 1 SEED
ALFALFA GRIMM REGISTERED No. 1 SEED
ALFALFA GRIMM No. 1 SEED
PEAS DASHAWAY CERTIFIED No. 1 SEED
Ask for Price List
STEELE, BRI6GS SEED (0., LIMITED
WINNIPEG. MAN. TELEPHONE 928 551
Also at Regina and Edmonton
DO YOU WANT
• An upsiairs finished
• Floors laid or sanded
• Decorating and painting
• Roof repairs or renewed
• A fence or garage built
• A kilchen or bathroom modernized
• Insulaling work
• Concrele walks or garage floors. etc.
• Heating system
• Or any other type of home improvement
lf you do, we are prepared to do this
for you under our
HOME IMPROVEMENT CREDIT PLAN
On ierms io suii your budget.
Free Estimates — No Ohligation
Galaugher Agencies Lld.
REALTORS — CONTRACTORS
4ih Floor Crown Trusi Bldg.
Phone 927 958
Evenings or Weekends
41 644 or 404 691
Dehorn Your Cattle
And Avoid the $1.00 Marketing Penalty
Plan Dehorning Campaigns — Caustic Young Calves
Consult Your Agricultural Representative or write to
THE LIVESTOCK BRANCH
Treat All Cattle for Warbles
Get Warble Fly Powder through your Municipal Office.
Get started on this job now — It will pay dividends.
Control Contagious Abortion
By Vaccinating Calves 4 to 8 months of age with Strain 19.
Vaccination must be done by a Registered Veterinarian.
Department will pay $1.00 for each Calf Vaccinated.
Improve the Quality of Your Cattle
By using a Pure Bred Bull.
Department provides 20% of Purchase Price.
Maximum grant not to exceed $80.00.
Policy available to owners of Grade Herds.
AUCTION SALES
WINTER FAIR BUILDING, BRANDON
BRED SOW SALE
Tuesday, April 7th—1.00 p.m.
PURE BRED BULLS AND FEMALES
Friday, April 8th—12.00 Noon
Sáles imder auspices of the
Swine and Cattle Breeders’ Associations.
For further particulars, apply to the
LIVE STOCK BRANCH
Department of Agriculture,
Legislative Building,
Winnipeg, Manitoba.