Lögberg - 07.04.1949, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 7. APRÍL, 1949
3
AliLGAMAL
LVENNA
Ritsljóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
DORCAS SOCIETY
By RUTH BENSON
On December 7, 1948, the executive of the Junior Ladies’ Aid
of the First Lutheran Church, Winnipeg, recommended that an
effort be made to form an evening group. This recommendation
was accepted by the general meeting and invitations were sent
out to ladies who might be
interested to attend a meet-
ing on January 7, at eight
o’clock.
The meeting took place
as arranged and Mrs. K. G.
Finnson, president of the
Junior Ladies’ Aid, after
welcoming all those who
had responded to the in-
vitation, handed the chair-
manship of the meeting
over to Mrs. V. J. Eylands.
Under the able direction of
Mrs. Eylands and the guid-
ance of the executive of the
Junior Ladies’ Aid and the
past presidents of that
organization who w e r e
present, the Dorcas Society
of the F i r s t Lutheran
Church was formed.
Membership is open to all
Women who are members*
or adherents of the l'irst
Lutheran Church and the
objects of the organization are to support the First Lutheran
Church by prayerful solicitude for the spiritual welfare of the
congregation and an earnest endeavor on the part of the Dorcas
Society to bring people to divine service; and by gathering money
by dignified and worthy methods for the financial support of the
congregation.
At the first meeting in January thirty persons indicated their
intention of becoming members; since that time the membership
has grown to 84. Meetings are held every second Thursday. Officers
and members of the executive are: Hon. Pres., Mrs. V. J. Eylands,
Pres., Miss Matthildur Halldorson; Vice-Pres., Mrs. G. Johnson;
Secretary, Miss Ruth Benson; Asst. Sec., Mrs. J. Storry; Treasurer,
Mrs. C. Scrymgeour. Members, Miss Rae Bardal, Mrs. H. Cormack
MATTHILDUR HALLDORSON
and Miss Inga Bjarnason.
♦
Þriðja útgáfa matreiðslu-
bókarinnar í vændum
Fyrir mörgum árum gaf
kvennfélag Fyrsta lúterska safn-
aðar í Winnipeg, út bók, sem
‘Parish Messenger”
Minnist
CETEL
f erfðaskrám yðar
Aða\stöÖ fyí«
páskagöng^ •
EATON
Póstpantana skrá!
*T. EATON
WINNIPCO CANAOA
EATON'S
náði sennilega meiri vinsældum
en flestar aðrar bækur, sem ís-
lendingar í Vesturheimi hafa
gefið út, og innan fárra ára varð,
fyrir áskoranir almennings, að
gefa hana út á ný; þetta var
matreiðslubókin. í bókinni er
safn af mataruppskriftum eft-
ir konurnar í kvennfélaginu og
ýmsar konur út um byggðir ís-
lendinga, sem kunnar eru fyrir
snilli sína í matartilbúningi og
bakstri. Sá kafli bókarinnar, sem
fjallar um tilbúning íslenzkra
rétta var sérstaklega vinsæll
vegna þess að þær leiðbeiningar,
sem þar eru, var ekki hægt að
fá í öðrum matreiðslubókum. —
Venjulega fengu flestar ís-
lenzkar stúlkur þessa bók að
gjöf frá einhverri vinstúlku
sinni, þegar þær lögðu út á hjú-
skapar brautina, enda á bókin
þann fróðleik að geyma, sem
húsmæður mega síst án vera.
Matreiðslubókin var útseld
fyrir nokkrum árum, en fyrir-
spurnir um hana hafa komið af
og til úr mörgum áttum og fjar-
lægum stöðum á skrifstofu Lög-
bergs, því hún var auglýst viku-
lega í blaðinu árum saman. Það
er því ánægjulegt að geta
skýrt frá því að hið
nýstofnaða f é 1 a g “Dorcas
Society”, sem skýrt er frá hér
ofan, hefur tekið að sér að gefa
ur þóttist viss um að væru akrar,
út bókina á ný. Bókin verður
af sömu stærð og þær fyrri ,og
b ez t u uppskriftirnar endur-
prentaðar, svo verða líka marg-
ar nýjar og ágætar uppskriftir,
sem félagskonur eru að safna. —
í ráði er að bókin komi út nokkr-
um vikum fyrir jól og þarf ekki
að efa að þessi bók verði eins
ágæt og vinsæl eins og fyrri út-
gáfurnar. Hér er að verki hópur
ungra kvenna sem eru stórhuga
og hugsjónaríkar. Kvennsíða
Lögbergs óskar þeim til ham-
ingju með félagsstofnunina og
góðs gengis.
Or borg og bygð
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
næsta fund sinn þriðjudags-
kvöldið 12. apríl að heimili Mrs.
P. J. Sivertson 497 Telfer St.
♦
Fundur í stúkunni Heklu í
kvöld, fimtudag.
-f
Kristín Tomasdóttir Erlendson
dó 5. marz s.l. á heimili sínu í
Vidir, Manitoba. Hún var 78 ára
gömul, fædd 4. maí 1870 að
Hvanneyri í Siglufirði, í Eyja-
fjarðarsýslu á íslandi. Faðir
hennar var séra Tómas Björns-
son, prestur að Hvanneyri en
síðar að Barði í Fljótum; var
hann föðurbróðir Hon. Thomas
H. Johnson, ráðherra í Manitoba.
Móðir hennar var Ingibjörg
Jafetsdóttir gullsmiðs í Reykja-
vík; en hún og Jón Sigurðsson
Forseti voru systkinabörn.
Maður Kristínar var Björn
Erlendson, ættaður úr Laxárdal
í Húnavatnssýslu. Þau giftust á
Islandi 1896, en komu þremur
árum síðar til Winnipeg. Tíu ár
stundaði Björn smíðar í Gimli,
en síaðn fluttu þaiT hjónin til
Víðirbygðar í Nýja Islandi, og
bjuggu þar til æfiloka. Björn dó
á góðum aldri árið 1925.
Börn Björns og Kristínar eru:
Friðrika (Mrs. Kristján Magnús-
son), í Framnes, Manitoba;
Óskar, í Selkirk, Manitoba; Thor-
arinn, í Arborg, Manitoba; Eð-
vald, í Spy Hill, Sask.; og Sigurð-
ur, bóndi í Víðir, Manitoba.
Hin látna kona var jarðsungin
frá heimili sínu þ. 8. marz s.I. af
séra B. A. Bjarnason.
Tína ber í aldingarði
Eftir RANNVEIGU K. G. SIGBJÖRNSSON
Hvenær eða hvar ég sá þessa setningu fyrst — eða setningu
mjög líka henni, man ég alls ekki, en hún kom í huga minn á ný,
er ég var stödd í Fyrstu lútersku kirkju, í júní í fyrra. Ég áttaði
mig á því þar með, að hvergi mun fegurri, hollari né á neinn hátt
meira aðalaðandi ávexti að finna en í akri kristinnar menningar.
Hugi, hraður sem fyr, hraðari en ljós eða hljóð, rendi sér á augna-
blikinu, til upphafs þeirra vega og til baka aftur sömu leið, er
kynna manni tíðindi þeirra mála, sem hér voru vædd. Maður
fann eiminn af baráttu og sigri margra alda og óteljandi fjölda
manna og kvenna, er borið höfðu vitnisburðinn um Jesúm Krist
fraslarann gagnvart hvers konar andúð eða skelfingu, sem um
ræddi. Golgata, Róm, miðaldri, svo ótlejandi margt alla leið hingað.
Og sigurstöðvarnar v o r u
margar. — Eru margar. Hér vor-
um við stödd á einni þeirra. Hér
var friður, vinsemd, samvinna
á sönnum og sameiginlegum
grundvelli mönnum til blessun-
ar bæði andlega og líkamlega.
Margan hafa berjaferðir glatt
og í þessari sérstöku “berjaferð”,
sem mig langar til að minnast
nokkuð á, er margs að minnast,
er til gleði stefnir.
Ástæðan fyrir ferðalaginu, var
sú, að Bandalag Lúterskra
Kvenna sýndi mér þá velvild og
þann sóma, að bjóða mér á þing
sitt 4.—7. júní, 1948.
Við lögðum því á stað, Sigurð-
ur Sigbjörnsson og ég, þann 3.
júní, er dóttir okkar Sigríður og
maður hennar Charles Inglehart
höfðu tekið við heimilinu á með-
an við værum í burtu.
Dagurinn var bjartur og heíð-
ur sókskinið glóði fram á kveld.
Fyrst fórum við í bifreið til
bæjarins og járnbrautarstöðv-
anna, svo um borð í Kanada-
Kyrrahafs - Járnbrautarlestina,
sem í daglegu tali er altaf kölluð
C.P.R. Þar voru viðtökur allar
þær sömu og að vanda. Við höfð-
um alloft og okkar nánustu ferð-
ast með þeirri braut og við erum
sem sé þeirrar skoðunar, að
hvergi í víðri veröld muni vera
betri járnbrautarlest eða betra
faratæki á landi. Lestin með sín-
um þægindum, frammistaða
fólksins, sem þar starfar og mað-
ur mætir, í hvaða deild sem er,
rúm, matur og hvað annað, sem
til stendur að þar sé: Alt í fyrsta
flokki.
Á lestinni hittum við skemti-
lega og vel þekta konu hér um
slóðir, frú Sigþrúði Guðvalda-
dóttur Guðmundsson, um mörg
ár póstmeistari í Elfros, sem er
næsta járnbrautarstöð fyrir
vestan Leslie. Við töluðum sam-
an og vissum ekki hvernig tím-
inn flaug með okkur. Fyr en
varði var kominn háttatími.
Morgunin eftir, er við risum
úr rekkju og tókum að litast um,
varð okkur starsýnt á menjar
flóðs og rigninga frá vorinu.
Stórir flákar af landi, sem mað-
lágu undir vatni. Tjarnirnar svo
stórar, sumar, að stöðuvatni líkt-
ist.
Loks rennur lestin inn í sitt
fríða og fagra völundarhús, höll
þá hina miklu, sem nefnist C.P.R.
Station, í Winnipeg borg.
Að dyrunum á svefnvagninum
kemur Jóhanna dóttir okkar. Við
erum öll hjartanlega glöð að
hittast.
Er við komum að nokkurskon-
ar sigurborga, sem er yfir aðal-
götuna stendur þar gild móttöku-
nefnd, einn af vorum atkvæða-
miklu Vestur-íslenzku höfðingj-
um, Arinbjörn Sigurgeirsson
Bardal og hin ágæta kona hans
frú Margrét Bardal. Þau taka
okkur tveim höndum þó við höfð-
um ekki talast við fyrri, fara
með okkur út í stóra og fallega
bifreið er beið þar útifyrir í hópi
margra slíkra. Við stigum upp
í bílinn og Mr. Bardal ekur hik-
laust og óskeikult þvert yfir
borgina, heim til sín.
Viðtökunar þar eru allar af
fyrsta flokki. Þau Bardals hjónin
hafa fært sig úr svefnherbergi
sínu og frú Margrét afhendir
okkur það til íbúðar allan tím-
ann, sem við stöndum við. Hún
vildi ekki heyra það nefnt að
við færðum okkur þegar þingið
var búið, þó við stæðum við í
nokkra sólarhringa eftir það.
Við höfum ágætan morgunverð
þarna og finnum það fljótlega á
framkomu allra, að við erum
velkomin og frjáls ferða okkar
um heimilið, svo sem værum við
heimilismenn.
Við skruppum ofan í Hudson’s
Bay til þess að finna þar stúlku
sem við vissum að er þar. Hún
er héðan að vestan, Miss Anna
Johnson, stórmyndarleg stúlka,
væn og vel látin. Anna tók okk-
ur tveim höndum. Það er fallegt
í kringum hana þarna og þær
sem með henni starfa og hún
sómir sér vel innan um það sem
fallegt er. Anna býr með móðir
sinni í borginni. Heim til þeirra
hefðum við viljað koma en það
reyndist ekki hægt.
Siguður vildi koma í borðsal-
inn hjá Hudson’s Bay, svo við
fórum þangað ásamt Jóhönnu og
fáum okkur þar miðdagsverð.
Salurinn er all-stór og skraut-
legur .Þar var óþrjótandi
straumur af sérlega vel prúð-
búnu fólki bæði inn og út, en
reglan á móttöku og afgreiðlsu
virðist alveg óhaggandi þrátt
fyrir fólksfjöldann. Maturinn
var ágætur og verðið sanngjarnt.
Seinna fóru þau Jóhanna og
Sigurður yfir til Eaton’s það var
vel til fallið því til Eaton’s send-
um við nær því æfinlega, þegar
eitthvað skal verzla utan héraðs.
Framhald.
Business and Professional Cards
SELKIRK METAL PROOUCTS LTD.
Reykh&far, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeining, ný
uppfynding, sparar eldiviÖ,
heldur hita.
KELtiY SVEINSSON
Simi 64 358.
187 Sutberland Ave., Winnápeg.
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh Sl. Winnipeg
Phone 924 624
Office Ph, 925 668 Res, 404 319
NORMAN S. BERGMAN, B.A..LLJ.
Barrlster, Solicitor, etc.
411 Childs Bldg,
WINNIPEG CANADA
A[m
123
TENTH ST.
BRANDON
447 Portage Ave, Ph, 926 885
PARKER, PARKER
& KRISTJANSSON
Barrisíers - Solicilors
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadian Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg, Man. Phone 923 561
JOHN A. HILLSMAN.
M.D.. Ch. M.
(27 Medlcal Arta. Bld*.
OFFICE 929 349 Home 403 388
Phone 724 944
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 6 — 652 HOME ST.
594 Agnas St.
ViCtalatimi 3—6 eftlr hádegl
1
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Offlce hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Office 26 — Rea. 330
Manitoba Fisheries
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch, framkv.atj.
Verzla f heildsðlu meö n ýjan og
froslnn flsk.
303 OWENA 8TREET
Skrifst.slmi 25 355 Heima 65 463
DR. A. V. JOHNSON
Dentiat
606 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Office Phone Res Phono
924 762 726 115
Dr. L. A. Sigurdson
628 MEDICAL ARTS BLDO.
Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO OEN. TRUSTS
BTIILDINO
Cor. Portage Ave. og Smith 8t.
Phone 926 952 WINNIPEO
Talslmi 925 826 HelmiUs 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
BérfrasOinour < augna, eyma, nef
00 kverka ajúkd&mum.
309 Medlc&l Arts Bldg.
Stofutlmi: 2.00 U1 5.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
BérfrœOinovr i aupna, eyma,
nef oo hálaafúkdómum.
401 MEDICAJL ART8 BLDO
Qraham and Kennedy St.
Skrifstofusfmi 923 851
HetmaMmi 408 794
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
ialenakur Ij/faaU
Fölk getur pantaS meðul og
annaC meC pösti.
Fljöt afgrelCsla.
A. S. B A R D A L
848 8HERBROOK STREET
Selur llkklstur og annast um Qt-
f&Hr. Allur úthönaCur sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
mlnntov&rCa og legsteina.
Skrifstofu talstral 27 324
KeimlUs talslmi 26 444
Dr. Charles R. Oke
Tannlaknir
For Appointments Phone 924 908
Offlce Hours 9—6
404 TOROIÍTO OEN. TRUST8
BÚTLDINO
283 PORTAG? AVB.
Wlnnipeg, Man.
SARGENT TAXI
Phone 722 401
FOR QUICK RKI.IABIJB
BKRVICE
J. J. SWANSON <ft CO.
LIMITED
308 AVENUJD BLDO WPO.
Fasteignasalar. Leágja hOa. Ot-
vega peningalán og eldsJIjyrgC
blfreiOaftbyrgO, o. s. Sr.
Phone 927 638
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LðofrœOinoar
209BANK OF NOVA 8COTIA BQ.
Portage og Ganr 9t.
Phone 928 291
Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPKQ CUNIC St. Mary’s and Vaughan, Wpg. Ph. 928 231 GUNDRY PYMORE Limited Britiah Quality Viah Nettino 58 VICTORIA ST„ WINNIPBO Phone 98 311 Manaoer T. R. THORVALDBOlf Your patronage wiU be appreoiated
Phone 924 981 C A N A D 1 A N FISH
H. J. H. PALMASON PRODUCERS, LTD.
and Company J. H. PAOB, Manaoino Direcéor
Chartered Accountanta Wholesale Dlstrlbutors of Fríeh and Frozen Flsh.
319 Me INTYRE BLOCK 311 CHAMBERS 8TRB^ Office Ph. 26 228 Rea. Ph. 78 917
Wlnnlpegv Canada
Phone 49 469
Radio Service Speclalists
ELECTRONIC LABS,
B. THORKBLBON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
180 OSBORNE ST., WINNIPEG
O. F. Jonasson, Pres. á Man. Dtr
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLK, Siml »35 28T
Wholeaale Diatributora of
FRESH AND FROZEN FI8H