Lögberg - 28.07.1949, Blaðsíða 4
28
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 28. JÚLÍ, 1949
Góður gestur í heimsókn á Islandi
Frú Regina Eiríksson frá Minneapolis kom hingað
með „Geysi“ s. I. sunnudag
Á styrjaldarárunum lögðu margir íslenzkir námsmenn leið
sína til borgarinnar Minneapolis í Minnesotafylki í Bandaríkjun-
um. Veran þar mun hafa verið þeim flestum ánægjuleg, og er
það ekki sízt að þakka því, hve vel Vestur-íslendingar þeir, er
búsettir voru í borginni, tóku á móti hinum ungu löndum sínum.
Heimagangar
Einkum munu það þó hafa
verið þrjú heimili, sem íslenzku
stúdentarnir voru heimagangar
á þar sem þeir gátu gengið út
og inn og haít alla sína henti-
semi, rétt eins og þeir væru
heima hjá sér. Það var hjá Gunn
ari og Ingibjörgu Björnsson,
Tryggva og Svönu Athelstan og
Vilhjálmi (Bill) og Regínu Ei-
ríksson. Og gestrisni og hjálp
semi þessa fólks var óspart not-
uð.
„Fóstur“
Nú eru tvær af þessum „fóstr-
um“ íslenzkra stúdenta staddar
í heimsókn hér á íslandi. Frú
Athelstan kom hingað um miðj-
an júní, og dvelur nú hjá for-
eldrum sínum á Seyðisfirði, og
frú Eiríksson kom hingað með
flugvélinni „Geysi“ s.l. sunnu-
dag.
Svoleiðis er það hjá góðu
fólki
Allt frá því að fyrstu stúdent-
arnir komu til Minneapolis,
bjuggu einn eða fleiri af þeim
hjá Bill og Reginu, og eru þeir
nú orðnir býsna margir land-
arnir, sem þau hafa skotið skjóls
húsi yfir. Manni fannst húsið
þeirra ekkert mjög stórt. Samt
var alltaf pláss þar fyrir einn —
eða kannske tvo í viðbót. Svo-
leiðis er það alltaf hjá góðu
fólki.
Lítill þakklætisvottur
Bill er nú látinn fyrir nokkr-
um árum en sem örlítinn þakk-
lætisvott til þeirra hjóna, á-
kváðu íslenzkir námsmenn, sem
verið hafa í Minneapolis, að
bjóða Regínu heim til íslands í
sumar.. Og nú er hún komin.
Fréttamaður blaðsins hitti
hana sem snöggvast í gær —
svona rétt til þess að bjóða hana
velkomna.
Aldrei til íslands áður
— Þú hefir aldrei komið til
íslands áður?
— N'ei, nei. Ég er fædd í
Winnipeg — uppalin í Nýja-ís-
landi. Foreldrar mínir Þórður
Helgason frá Brúarfossi í Mýrar
sýslu og Halldóra Geirsdóttir
frá Raufarhöfn, voru bæði ung,
er þau fluttust út. Hann var að-
eins 15 ára en hún 18 ára. En
aldrei var talað annað en ís-
lenzka á heimili okkar.
Góð í íslenzku
'■ — Nú — þess vegna er það,
sem þú talar íslenzkuna eins og
þú sért fædd og uppalin hér.
— Ojæja — en ég æfðist auð-
vitað vel í málinu á því að tala
við stúdentana. Annars er in-
dælt að vera loksins kominn til
íslands — mér fannst ég raunar
vera komin hingað um leið og
ég kom um borð í „Geysi“. Og
mér lýst auðvitað prýðilega á
mig. —
Fáum meira að heyra
seinna
— Uss, blessuð vertu — ég
ætla ekki að yfirheyra þig um
hvernig þér lítist á þig, fyrr en
þú ert búin að sjá eitthvað af
landinu. En í haust fáum við
kannske meira að heyra frá þér
— er það ekki?
TÍMINN, 19 júlí
Sundkunnátta og
hreysti bjargar
mœðgum frá bana
Góð sundkunnátta og frábær
hreysti varð konu og þriggja ára
dóttur hennar til lífs, er bát, sem
þær voru í á Norðuá í Borgar-
firði, rak undan straumi að Lax-
fossum. Nokkru áður en bátur-
inn lenti í fossinum og brotnaði
þar, fleygði konan sér til sunds
með dóttur sína á bakinu og tókst
að ná landi. Er þetta talið frá-
bært björgunarafrek. Konan
heitir Aðalheiður Guðmunds-
dóttir, 29 ára, til heimilis að
Kópavogsbraut 179 Reykjavík.
Aðalheiður er ráðskona í veiði-
húsum við Norðurá í sumar.
Áin í foraðsvexti
Þann 17. júní fór Aðalheiður
með dóttur sína í bát frá veiði-
húsunum', sem eru norðanvert
við ána, yfir á suðurbakkan Þar
dvöldu þær mæðgur um hríð.
En er á leið daginn hvesti og óx
í ánni sökum leysinga þá um
morguninn. Var áin í foraðsvexti
er þær mæðgur ætluðu að fara
aftur norður yfir ána og var
vindur á móti þeim.
Báturinn var ekki kominn
langt út á ána er Aðalheiður varð
þess vör að hann rak óðfluga að
fossbrúninni og sá hún að hún
gat ekki viðráðið vegna straum-
hörku og hvassviðris. — Tók hún
því það ráð, að kasta sér til
sunds.
Dóttur sína tók hún á bakið
og hélt barnið sér um háls henni.
Það vildi til, að Aðalheiður er
sundkona góð og hafði vanið
barnið á að synda með það á
bakinu. Varð telpan því ekkert
hrædd og þær mæðgur komust
heilu og höldnu og gjörsamlega
óþjakaðar að landi norðan meg-
inn árinnar.
En bátinn rak í fossana, þar
sem hann gereyðilagðist.
Aðstoð frá landi óhugsándi
Um líkt leyti og Aðalheiður
og dóttir hennar náðu landi,
kom bóndinn á bænum Laxfossi.
Ætlaði hann að fara suður yfir
ána á bátnum. Fann hann ekki
bátinn, en sá Aðalheiði og dótt-
ur hennar á sundi í ánni. Hljóp
M ANITOBA
f
ÞRÓUN IÐNAÐARINS
SKAPAR KJÖLFESTU
Hin margbreytilega þróun iðnaðarins á síðustu
árum, tryggir öllum íbúum Manitobafylkis öryggi
og kjölfestu.
Tekjur af námum, grávöru, skógum, fiskiveiðum og
ferðamannastraumnum, hafa náð hámarki undan-
farin ár.
Þessu til viðbótar hefir verksmiðjuframleiðsla í
stórum stíl og minni, haft víðtæk áhrif á efnahags-
lega kjölfestu Manitobafylkis.
Deparlment ol Mines and Natural Resources
hann sem skjótast að næsta bæ,
en þangað er hálftíma gangur
og auk þess er sá bær, Veiði-
lækur, sunnan árinnar. Er bóndi
kom á móts við Veiðilæk kallaði
hann á ferju og fékk með sér
mannafla að Laxfossum, en þá
voru mæðgurnar komnar að
landi. En þetta sýnir best hve
gersamlega óhugsanlegt það hef-
ði verið, að þeim mæðgum hefði
borist hjálp frá landi í tæka tíð.
Minnist
CETEL
í erfðaskrám yðar
CONGRATULATIONS!
ARTHUR S.
THORFINNSON
REAL ESTATE
AND INSURANCE
OF EVERY KIND
WYNYARD SASKATCHEWAN
P O WE R
FOR BIG FARM JOBS!
in this pair of
MASSEY-HARRiS TRACTORS
Xhc No. 14 Is a 3-4 plow tractor wlth 5-speed transmission, standard
or row-crop design.
Lugging power when you need it . . . speed when you need it . . .
easy sei-vicing when you need it . . . easy handling at all times . . .
that combination is the key to satisfaction in big-scale farm
operations. And that’s what you get in Massey-Harris No. 44 and
No. 55 tractors.
The No. 44 is rated at 3-4 plow drawbar power under normal con-
ditions . . . the No. 55 at 4-5 plow drawbar power. The “44” has a
range of speeds from 2.34 mph. in lst to 13.1 mph. in 5th; the “55”
has a range from 2.96 in lst to 12.07 in 4th. Both have slip-in
cylinder sleeves for easy servicing and longer engine life. Both have
self starter and velvet ride seat. Both have high compression
engines, designed for maximum power delivery per gallon of fuel.
Ask your Massey-Harris dealer for complete details about these
two great tractors. Drive them yourself and see how easy they are
to handie. You’ll soon see why they are gaining in favor with
big-farm operators everywhere.
For sheer brute strength and lugKing power, the No. 55 is outstanding.
Economical Power
for any Farm Job!
The Massey-Harris line of
tractors offers you a choice
of five models, plus a wide
range of optional equip-
ment, to enable you to buy
the tractor that exactly suits
the kind of work you have
to do. If you have a
medium-size or small farm,
or if you need a lighter
tractor for any purpose, ask
your dealer a b o u t the
Massey-Harris No. 30, No.
22 or the “Pony”. All models
are engineered for top per-
formance and economical
operation in their respect-
ive power ranges.
No. 22 ís a new 2-plow model witli every
modern feature . . . standard or row-crop.
flexibility . . . standard or row-crop.
WINNIPEG, MANITOBA
HON. J. S. McDIAEMID, Minister D.M. STEPHENS, Deputy Minister
MASSEY HARRIS COMPANY LIMITED
WINNIPEG BRANDON REGINA SASKATOON YORKTON SWIFT ^URRENT
Established 1847 caigary ídmonton vancouver montreaí moncton toronto