Lögberg - 04.08.1949, Qupperneq 1
PHONE 21 374
wsSgfe Clea Gt A Complele
Cleaning
Inslitution
62. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 4. ÁGÚST, 1949
PHONE 21374 \
d^.S A Complete \ Cleaning i Institution
NÚMER 31
Súðin leggur af stað til Grœnlands
í kvöld eða fyrramálið
Fer beina leið til Tovkussak, nyrztu hafnarinnar,
sem hún fær að nota
í kvöld eða fyrramálið leggur fiskveiða leiðangurinn af stað
á Grænlandsmið. Súðin, sem verður móðurskip leiðangursins
eins og kunnugt er, mun leggja af stað í kvöld eða fyrramálið
héðan úr Reykjavík. Einn bátur, Hafdís frá ísafirði, mun verða
henni samferða, en hinir»bátarnir fara síðar. Súðin fer beina leið
til Tovkussak, sem er ein þeirra hafna, sem hún fær að nota.
Blaðið átti í gær til við Jóhann Elíasson lögfræðing, sem annazt
hefir undirbúning leiðangursins af hálfu ríkisins.
Eggert Peterson
Skarar fram úr við nám
í fyrra birti Lögberg mynd af
þessum unga og gáfaða náms-
manni í tilefni af námsverðlaun-
um, er hann þá vann; og nú við
síðustu vorpróf vann hann
Isbisterverðlaun að upphæð 60
dollara; hann stundar nám við
United College.
Eggert er sonur þeirra mætu
hjóna Sveinbjarnar Peterson
og frúar hans, sem búsett eru að
Pine River hér í fylkinu.
Gjaldeyriseign bankanna í
júní mánuði 1949
í LOK júnímánaðar nam inn-
eign bankanna erlendis 9,3 milj.
í erlendum verðbréfum o. fl.,
29,1 milj. kr., að frádregnu því
fé, sem bundið er fyrir ógreidd
um eftirstöðvum af kaupver*i
eldri ríkisstjórnartogaranna. —
Ábyrgðarskuldbindingar bank-
anna námu á sama tíma 25,8
milj. kr., og áttu bankarnir, að
óeirri upphæð frádreginni, þann
ig 3,3 milj. kr. inneign erlendis
í lok síðasta mánaðar.
Við lok maímánaðar nam inn-
eign bankanna erlendis, ásamt
jónum króna. Hefir inneignin
Dannig lækkað um 6,0 miljón kr.
í júnímánuði.
Framlög Efnahagssamvinnu-
stofnunarinnar í Washington
eru ekki innifalin í þessum töl-
um, milj. dollara framlag, sem
látið var í té gegn því að íslend-
ingar legðu fram jafnvirði þeirr
ar upphæðar í freðfiski til Þýzka
lands, og enn fremur 2,5 milj.
dollara framlag án endurgjalds.
í lok júnímánaðar var búið að
nota til vörukaupa sem svarar
26,4 milj. kr. af þeim 39,0 milj.
kr., sem hér er um að ræða, og
voru því eftirstöðvar framlag-
anna 12,6 milj. kr. MBL.
Dánarfregn
Þann 8. júlí síðastliðinn lézt
á Grace sjúkrahúsinu hér í borg
frú Svanborg Sigurðsson ekkja
Sigurmundar Sigurðssonar fyrr
um kaupmanns í Arborg og að
Churchill; hún var 72 ára að
aldri og hafði átt við þunga van
heilsu að stríða síðustu mánuð-
ina; maðyr hennar lézt 1934.
Frú Svanbjörg var ættuð úr
Dalasýslu og fluttist til þessa
lands, er hún var 7 ára gömul;
foreldrar hennar voru Sigfús
Jónsson og Björg Jónsdóttir, er
námu land í Geysisbyggð og
nefndu bæ sinn Blómsturvelli.
Frú Svanbjörg lætur eftir sig
tvo sonu, Pálma og Oscar, sem
búsettir eru að Churchill, og
fimm dætur, Irene McAllan,
Mrs. G. Philbin, Mrs. C. John-
son og Mrs. F. Martin, sem allar
eiga heima að Churchill, og Mrs.
J. Bergman í Winnipeg, auk
þriggja stjúpbarna, Páls Sigurðs
sonar og Mrs. M. Gretchen í
Winnipeg, og Mrs. S. Torfason
í Vancouver; barnabörn frú
Svanbjargar eru tuttugu og
þrjú; fjögur systkini hennar eru
á lífi, Jóhann og Svanbergur í
Geysisbyggð, Mrs. I Kristinsson,
sem einnig á heima í þeirri
byggð Miss Rósa Sigfússon til
heimilis í Winnipeg.
Frú Svanbjörg var hin mesta
dugnaðarkona, og meðan hún
dvaldi í Arborg tók hún virkan
þátt í Kvenfélagi Árdalssafnað-
ar.
Útförin fór fram frá útfarar-
stofu Bardals á föstudaginn
þann 15. júlí.
Líkmenn voru John Bergman,
Valdi Thorvaldson, Stony Thor-
steinsson, S. Simmons, C. J.
Oliver og Páll Pálsson.
Frú Rósa Hermannsson —
Vernon, söng einsöng við útför-
ina, en séra Valdimar J. Ey-
lands flutti hin hinztu kveðju-
orð. — Jarðsett var í Brookside.
Sláttur almennt hafin
á Héraði
Páll Hermannson, fyrrum
Alþingismaður á Reyðarfirði,
skýrði Tímanum frá því í gær,
að stöðugt blíðviðri hefði nú
haldist á Austurlandi um
þriggja vikna skeið. Grasspretta
hefir verið óvenjulega ör og
hófst sláttur víða á Héraði fyrir
viku síðan. Nú má heita að slátt
ur sé almennt byrjaður þar
eystra.
TtMINN, 13. júlí
Farþegaflutningur með vélum F. í. hefir
aukizt 65 prós. s.l. ár frá aðalfundi
AÐALFUNDUR Flugfélags íslands 1949 var haldinn í Kaup-
þingsalnum í Reykjavík þann 24. júní. Framkvæmdastjóri félags-
ins, Örn Ó. Johnson, flutti skýrslu um starfsemi þess á árinu
1948 og. greindi frá því helzta í rekstri félagsins. Gat hann þess
m. a., að aldrei fyrr hefðu flugvélar félagsins flutt eins mikið af
farþégum, pósti og vörum á einu ári og s.l. ár, og hefðu t. d. fólks-
flutningar aukist um 65% miðað við árið 1947 og vöruflutningar
félagsins rösklega þrefaldast. --------------
Skipstjóri á Súðinni verður
Bernharð Pálsson en leiðangurs-
stjóri er Steindór Hjaltalín, út-
gerðarmaður. Súðin hefir nú ver
ið búin til þessarar ferðar eftir
því sem kostur er á. Verður
fiskurinn saltaður í henni en
auk þess hefir hún meðferðis
birgðir handa bátunum, svo sem
salt, beitu, olíu og matvæli. Mun
Súðin fara beina leið til Tovkus-
sak, sem er nyrzta höfnin, er
hún fær að nota, og af mörgum
talin næst beztu fiskimiðunum.
Alls munu 5—6 þilbátar
stunda þarna veiðar, og fer einn
þeirra, Hafdís frá ísafirði með
Súðinni, en hinir koma síðar.
Einnig verða allmargar trillur í
leiðangrinum, og eru þær fluttar
á þilfari Súðarinnar og skips-
hafnirnar fara með henni. Eru
flestar trillurnar frá Akranesi
Ur borg og bygð
Hr. Kristinn Oddson korn-
kauþmaSur frá Tyner, Sask.,
kom hingað á miðvikudagsmorg
uninn í fyrri viku úr tveggja
mánaða heimsókn til íslands;
ferðaðist hann allmikið um Suð-
ur og Norðurland, en átti þess
ekki kost að heimsækja Seyðis-
fjörð, fæðingarstað sinn, vegna
ófærðar á Austurlandi.
Kristinn dáði mjög þær risa
fengnu framfarir, er hann varð
allsstaðar var hvar, sem leið
hans lá um landið.
Leiðrétting
í nafnalista minningarsjóðs
kvenfélagsins Eining í Seattle.
I minningu um Kristi Arnason
Mrs. Freda Roundhurst gaf $1.00
í staðinn fyrir 81.00.
f minningu um W’m R. John-
son gaf Pauline Johnson $2.50 í
staðinn fyrir $2.00.
Sleppt úr — f minningu um
Guðmund Goodman: Björg
Thordarson $5.00.
Það átti að vera — í minningu
um Helgu Sumarlidason og
Helgu Hallson í staðinn fyrir
Helga.
Mr. og Mrs. W. Norberg frá
Montreal Que. eru stödd í borg-
inni í heimsókn til foreldra og
vina. Mrs. Norberg er Audry,
dóttir þeirra Jóhannesar og
Bergþóru Johnson að Oak View,
Man. Einar Sigurðsson faðir
Bergþóru og þeirra systkina hef
ir legið þungt haldinn hér á al-
menna spítalanum og hafa börn
hans skipst á um að hjúkra hon
um.
/
Hr. John Johnson úr Voga-
bygð var fyrir skömmu staddur
bér í borginni ásamt tveimur
sonum þe'irra hjóna.
Miss Gloria Sivertson lauk í
vor hljómlistarprófi við Mani-
tobaháskólann með hárri fyrstu
einkunn.
Mr. Guðmundur Jónsson úr
Vogabygð var í borginni seinni
part fyrri viku.
og einnig frá Ólafsfirði og Stöðv
arfirði.
Gert er ráð fyrir að Súðin
verði 7—8 daga á leiðinni vestur.
Þar með er þessi fyrsti fiskveiði
leiðangur íslendinga til Græn-
lands hafin og er þess að vænta,
að hann lánist vel og verði upp-
haf að meiri sókn á Grænlands-
mið.
TfMINN, 8. júlí
Afgreiðsla máls
Síðastliðinn laugardag af-
greiddu báðar málstofur franska
þjóðþingsins Atlantshafssáttmái
ann méð miklu afli atkvæða
þrátt fyrir hróp og háreysti
kommúnista, er kunnu sér lítt
hóf.
Merkiskonan frú Helga Mar-
teinsson, ekkja Bjarna Marteins-
son^r í Hnausabyggð í Nýja fs-
landi, átti áttræðisafmæli á
sunnudaginn þánn 24. júlí síðast
liðj'-'n; söfnuðust þá saman á
heimili hennar börn og tengda-
börn ásamt öðrum ^iánum ætt-
ingjum í heiðursskyni við þessa
öldnu ágætiskonu; um 60 manns
tóku þátt í gleðimóti þessu; sátu
gestir þar lengi vel við kaffi-
drykkju, samræður og söng;
meðal gesta voru þau Dr. Rún-
jlfur Marteinsson og frú, en Dr.
Rúnólfur er tengdabróðir frú
Helgu.
Hr. Halldór Thorkelsson kaup
maður í Ashern, er nýlega kom-
inn heim úr heimsókn til íslands
ásamt frú sinni; voru þau hjón
in rúma tvo mánuði á ferðalag-
inu, og undruðust þau marg-
breytilegar framfarir, er orðið
hefðu á íslandi frá þeim tíma,
er þau fluttu vestur um haf.
— BLAÐATILKYNNING —
Hr. G. L. Jóhannsson rœðis-
maður lét Lögbergi eftirfarandi
tilkynningu góðfúslega í té, er
honum hafði nýlega borist í
hendur frá Hon. Thor Thors
sendiherra íslands í Canada og
Bandaríkjunum:
„Herra Sveinn Björnsson tók
við forsetaembætti að nýju með
hátíðlegri athöfn 1. ágúst.
Mr. og Mrs. S. Péturson frá
Pine River komu til borgarinnar
í vikunni, úr heimsókn úr Voga
bygðinni við Manitobavatn.
Hr. Jón Ólafsson málmvinslu-
fræðingur frá Salmon Arm.,
B. C., dvelur í borginni um þess
ar mundir; starfaði hann eins og
kunnugt er í fjölda mörg ár hjá
Vulcan Iron Works félaginu við
mikinn orðstír; er hann þjóð-
kunnur maður vegna afreka
sinna á vettvangi stáliðnaðarins
og hefir samið ýmissar vísinda-
legar ritgerðir um slík efni.
Frú Sigrún Johnson.og Lena
Lindal dóttir hennar frá Lundar,
lögðu af stað vestur til Van-
couver í f jrrri viku og hyggst frú
Sigrún að setjast þar að.
Grettir Valdimar Kristjáns-
son M. D.
Lýkur prófi í læknisfræði með
fyrstu ágætiseinkunn
Þessi ungi og ágæti námsmað-
ur, Grettir Valdimar Kristjáns-
son lauk embættisprófi í læknis
fræði við Queensháskólann í
Kingston, Ont., þann 4. júní síð-
astliðinn með fyrstu ágætiseink
unn með skurðlækningar að sér-
fræði; hann hefir nú tekist á
hendur stöðu hjá Ottawa Civic
Hospital.
Grettir læknir er fæddur í
bænum Winnipegosis 13. sept-
ember árið 1923, en fluttist með
foreldrunum til Geraldton, Ont.
1938 og þar naut hann barna-
skóla- og gagnfræðaskólamennt-
unar og var jafna efstur í sínum
bekk; hann er sonur Ottós bygg-
ingarmeistara Kristjánssonar í
Geraldton og frúar hans.
77 ára gamall maður
bjargar barni
Aldraður maður vann það af-
rek austur á Eskifirði, fyrir
nokkrum dögum, að bjarga
telpu frá drukknun. — Maður
þessi er Þorgeir Clausen útgerð-
armaður þar en hann er nú 77
ára að aldri.
Þetta gerðist við bátabryggj-
una í Eskifirði, síðastl. sunnu-
dag. Tólf ára telpa, sem dvelur
hjá sóknarprestinum ætlaði út í
bát, er lá við bryggjuna, en þá
vildi svo slysalega til, að hún
féll í sjóinn, en telpan var ó-
synd.
Ekkert af því fólki, sem nær-
statt var, mun hafa kunnað
sund. Bar Þorgeir að í þessu.
Án þess að hika stakk gamli
maðurinn sér til sunds og tókst
að ná telpunni og synti síðan
með hana upp að landi, skamt
frá bryggjunni.
Talið er, að telpan litla myndi
hafa drukknað, ef Þorgeir hefði
ekki sýnt þetta snarræði og
þykir gamli maðurinn hafa unn
ið hið mesta afreksverk.
Mbl. 19. júH
Byrjað að safna hlutafé
í áburðarverksmiðju
í Lögbirtingablaðinu frá 6.
júlí s.l. er frá því skýrt, að hafin
sé hlutafjársöfnun til áburðar-
verksmiðj unnar.
Hér er um almenna fjársöfn-
un að ræða, sem hafin er um
land allt, en atvinnumálaráðu-
neytið hefir á hendi framkvæmd
ir um hlutafjársöfnunina.
Svo er kveðið á í lögum, um
byggingu slíkrar verksmiðju, að
því aðeins verði hlutafélagið
stofnað um verksmiðjuna, bygg-
ingu hennar og rekstur, að hluta
fjárframlög nemi minnst fjórum
miljónum króna.
' Mbl. 19. júlí
GIFTING
Vegleg hjónavígsla var fram-
kvæmd í íslenzku byggðinni í
grend við Morden, Man., síðast-
liðinn laugardag, 30. júlí. Brúð-
hjónin voru Jacob Júlíus Block,
frá Steinbach, Man., og Helga
Stefanía Björg Thomasson frá
Morden. Þau voru gift í Evagelic
Reformed kirkjunni þar í byggð
inni. Organisti var Mrs. T. J.
Gíslason. Mr. Steini Thomasson,
bróðir brúðarinnar, leiddi brúð-
arathöfnina. Tvær litlar stúlkur,
frá Lundar, systurdætur brúðar-
innar, Judy Daníelson og Christ
ine Hjartarson, báru blóm. Mr.
Jónatan Thomasson leiddi brúð
urina að altari. Brúðgumasveinn
var Mr. Peter Block, bróðir brúð
gumans, en brúðarmær var
Sigrid Gillis. Miss Petrína Sig-
urdson söng tvisvar: Fyrst sálm
með fyrirsögninni „Prayer“, og
síðar „Beacause". í fjarveru
sóknarprestsins, séra Sigurðar
Ólafssonar, sem ekki gat konjið,
framkvæmdi séra Rúnólfur Mar
teinsson hjónavígsluna.
Á æskuheimili brúðarinnar
býr nú, með sonum sínum, móð
ir hennar, Mrs. Ingunn Thomas
son, ekkja Árna Thomassonar
Þar héldu þau fagnaðarsamsæti,
að vígslunni lokinni. Borð voru
reist úti í góðu skýli, hjá fögrum
trjám. Þar átti fjöldi fólks glaða
stund við ágætan veizlufagnað
á vinamóti. Séra Rúnólfur
mælti fyrir minni brúðarinnar,
og brúðguminn svaraði góðlát-
lega og fallega. í þessu hófi var
gott að vera.
!r Prúðhjónin fóru skemmtiferð
til Clear Lake, Man. og dvelja
Dar um stund.
a
Föstudaginn 15. júlí s.l. voru
gefin saman í hjónaband, þau
Ida Sigurbjörg Sigurdson, dótt-
ir Einars Sigurdsonar fyrrum
bónda við Churchbridge, Saski,
og Kristínar sál. konu hans, og
Frederick John McPherson, son
ur Mr. og Mrs. J. C. McPherson
í Winnipeg. Hjónavígslan fór
fram í Fyrstu lútersku kirkj-
unni í Winnipeg. Sóknarprestur
inn séra Valdimar J. Eylands
gifti.
Brúðarmeyjar voru Constance
Sigurdson systir brúðarinnar,
Margaret Harton og Dorothy
McPherson systir brúðgumans.
Leonard McPherson aðstoðaði
bróður sinn. Harold Sigurdson
bróðir brúðarinnar og Hugh
Muttall vísuðu til sætis. Miss
Corinne Day söng einsöng, en
organisti kirkjunnar H. J. Lup-
ton lék á hljóðfærið.
Að hjónavígslunni lokinni var
setin fjölmenn veizla í Valour
Road Legion Hall. Næsta morg-
un lögðu ungu hjónin af stað
í brúðkaupsferð suður í Banda-
ríki. — Framtíðarheimili þeirra
verður í Winnipeg.
2000 mál í bræðslu
Fréttaritari Mbl. á Siglufirði
símaði í gærkvöldi, að þangað
hefðu borist um 2300 mál síldar
til bræðslu og um 200 tunnur til
beytufrystingar. Þangað bárust
engar fréttir um síld í gærdag.
Á sunnudaginn fór síldarleitar-
flugvélin í leiðangur. Var veður
hið bezta og skyggni gott, en
ekki sást síld.
Mbl., 19 júlí
STÖÐUGAR rigningar og sval
viðri um nætur, hafa mjög
breytt til batnaðar uppskeru-
horfum vestan lands, einkum í
Manitoba og Saskatchewan.
í árslok 1948 átti Flugfélag
Islands alls 9 flugvélar, sem gátu
flutt samtals 165 farþega. Á ár-
inu eignaðist félagið eina nýja
flugél, en það var „Gullfaxi“,
sem kom hingað til lands þann
8. júlí. Tekjur af flugi árið 1948
námu samtals krónum 5.959. 962,
55, en halli á rekstrinum varð
kr. 12.522,73.
Að lokum gat framkvæmda-
stjórinn þess, að ekkert slys
hefði orðið á farþegum með flug
vélum félagsins.
Stjórn félagsins var öll endur-
kosin, en han skipa: for-
maður, Guðmundur Vilhjálms-
son, frkvstj., varaformaður,
Bergur G. Gíslason, stórkaupm.,
ritari, Jakob Frímannson,
frkvstj., Friðþjófur Ó. Johnson,
forstjóri og Richard Thors,
frkvstj. Varamenn í stjórn eru:
Jón Árnason, bankastjóri og
Svanbjörn Frímannsson, aðal-
bókari, og voru þeir sömuleiðis
endurkjörnir. Endurskoðendur
félagsins eru þeir Eggert P.
Briem, fulltrúi og Magnús
Andrésson, fulltrúi.
Mbl., 19. júlí