Lögberg - 04.08.1949, Blaðsíða 3
LOGBERG, FIMTUDAGLNN, 4. ÁGÚST, 1949
3
/iHUeAyHÁL
LVCNNA
Ritstjóri: LNGIBJÖRG JÓNSSON
ÁVARP FJALLKONUNNAR
á íslendingadaginn á Gimli, 1. ágúst 1949
Hólmjríður Daníelsson
Fjallkonan heilsar yður, börnum sínum, samankomnum víðs-
vegar að á þessum söguríka stað til þess nú í sextugasta sinn að
minnast þeirrar aríleifðar, sem þér hafið frá henni þegið og til
þess að treysta bróðurböndin meðal yðar sjálfra.
Lífið hefir fært henni mörg merk tímamót, en þessi dagur
mun lengi sveipast dýrðarljóma í huga hennar, og engin orð fá
túlkað þær tilfinningar, sem leita til yðar frá stoltu og þakklátu
móðurhjarta.
Hver hátíðisdagur, — jafnvel hver hugsun, sem þér hafið
helgað hinni öldnu móður yðar á undanförnum árum, hefir verið
henni sem dýrmæt perla, er hún hefir skoðað sem gjöf frá yður
og veitt móttöku af hrærðu hjarta. Þó var henni dft þungt innan-
brjósts, er hún hugleiddi þá stund, er síðasta perlan frá börnun-
um í vesturheimi yrði lögð með trega á altari minninganna.
En nú býr ei lengur sorg né kvíði í huga hennar. Aðefns óum-
ræðileg gleði, ást og þakklæti fylla hann á þessari stundu. Þessi
merki og sérstæði dagur er ekki einungis sextíu ára afmæli hins
fyrsta hátíðahalds, er þér helguðuð henni á þessum slóðum. Hann
er umvafinn minningum um nærfelt heillrar aldar sigursælt starf
íslendinga í þessari heimsálfu, og órjúfanlega tryggð þeirra við
ættland feðranna. En hann er ekki tengdur aðeins við minningar
hins liðna þó þær séu margar og hugnæmar, því að hann hefir
fært henni fullvissu fyrir því, að börnin fyrir handan hafið muni
aldrei gleyma ætterni sínu og uppruna og er því óneitanlega
forboði nýs tímabils í sameiginlegri sögu vor og samstarfi.
Aldrei finnum vér eins og nú hve góð, traust og gæfurík bræðra-
böndin geta orðið milli íslenzkra niðja vestan hafs og austan. Því
þér hafið á þessu ári lagt traustan grundvöll að því að íslenzkum
bókmenntum og tungu verði reist virðulegt sæti í menningar-
kerfi þessa lands, svo að kynslóð eftir kynslóð megi njóta hinna
andlegu verðmæta, sem landnemarnir gróðursettu í hjörtum
barna sinna.
í gegnum margra alda ánauð, þrengingar og eymdarkjör
geymdu íslendingar og þroskuðu með sér óviðjafnanlegt sálar-
þrek. Þegar hetjumóður, þolgæði og kjarkur virtust vera að þrot-
um komin þá var sem yfirnáttúrulegur varaforði andlegs styrks
streymdi um æðar þeirra og gæfi þeim máttinn til nýrra átaka
og enn öflugri framsóknar. Islenzkir frumherjar í vesturheimi
áttu einnig í ríkum mæli þennan dýrmæta innri þrótt, svo þeim
óx ásmegin við hverja þraut og auðnaðist að yfirstíga óteljandi
örðugleika. Allt vildu þeir leggja í sölurnar til þess að tryggja
yður, börnum sínum, betri og bjartari framtíð. En framtíðin er
ekki örugg enn! Og nú horfast börn þeirra í augu við örlagarík
andleg viðfangsefni. Ægileg umbrot eiga sér stað um heim all-
ann og ótti og óvissa sækja að úr öllum áttum. Sagan sýnir að
voldug menningarkerfi hafa hrunið til grunna sem afleiðing af
langvarandi heimsstyrjöldum, og enn leitar andleg afturför í
kjölfar þeirra.
Já, menningin er enn í deiglunni, og mikils er ætlast til af yður,
því mikið hefir yður verið gefið; Sem niðjar íslands og sem börn
þessa mikla meginlands eruð þér arftakar tveggja merkilegra
menningarstofna, sem börn guðs eruð þér, ennfremur, erfingjar
hinna háleitustu hugsjóna, sem heimurinn hefir eignast. Varð-
veitið vel og ávaxtið þennan dýra fjársjóð!
Móðirin veit og skilur veikleik barna sinna. En hún þekkir
einnig þau öfl til blessunar, sem búa í sálum þeirra. Hún man
að íslendingar hafa ætíð metið manndóm, vit og þekkingu meira
en veraldlegan auð og metorð, og dyggilega hafa þeir starfað að
uppbyggingu síns nýja kjörlands. Hún veit að, þó þeir séu „fáir
og smáir“, þá muni niðjar þeirra hér enn eiga öflugán þátt í
þróunarsögu sinnar ungu þjóðar. Því einn lítill hópur manna
getur með göfugu líferni upphafið samtíð sína, sett aðalssvip á
umhverfi sitt og gróðursett óteljandi fræ andlegs þroska í skauti
framtíðarinnar.
Engin fjarlægð né framandi lönd fá aðskilið yður frá hjarta
móðurinnar. Hugur hennar, vonir og árnaðaróskir fylgja yður
allt til enda veraldar- Hún kveður yður og biður yður blessunar
drottins. Megi göfugt, gleðiríkt og farsælt starf verða yðar hlut-
skipti, megið þér sækja fram í baráttu lífsins, djörf og stöðuglynd,
brynjuð þeim góðu dyggðum, sem einar eru þess megnugar að
leiða mannkynið fram til gæfu og sigurs:
„Hreysti, ráðsnilli og hugprýði
vina styðji von, sigri sannindi
og samheldni, ást guðs öllum hlífi“.
Business College Education
In these modern times Business College
Education is not only desirable but almost
imperative.
The demand for Business College Educa-
tion in industry and commerce is steadily
increasing from year to year.
Commence Your Business TrainingImmediately!
For Scholarships Consult
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
PHONE 21 804 695 SARGENT AVE., WINNIPEG
lsfisksölur togaranna
eru enn óhagstœðar
Talsvert fiskmagn dœmt ósöluhæft
Undanfarið hafa níu íslenzkir togarar selt ísvarinn fisk á mark-
að í Þýzkalandi og fimm togarar á Bretlandsmarkað fyrir rúm-
lega 900 þús. kr. alls. — Sölur hafa verið óhagstæðar bæði í Þýzka-
landi og Bretlandi. Þar náði þó einn togaranna rúmlega 10 þús.
sterlingspunda sölu.
Ósöluhœfur fiskur.
Nokkurt magn af afla þeirra
togara er seldu í Þýzkalandi,
hefir verið dæmt ósöluhæft, þó
togararnir hafi yfirleitt allir ver
ið með góðan fisk og nýjan eins
og vant er.
Lálegur ís.
Það, sem valda mun þessum
skemdum á fiskinum, er einkum
tvennt. Isinn, sem fiskurinn er
lagður í, er keyptur erléndis.
Margir togaranna, sem seldu
bæði í Þýzkalandi og Bretlandi,
keyptu ís í sig erlendis, er Dags-
brúnarverkfallið stóð yfir hér
heima. Þessi ís er miklu lélagri
en hinn íslenzki og á því sinn
þátt í að eyðileggja fiskinn.
Einnig mun það hafa nokkur
áhrif, að miklir hitar hafa verið
ir um dreifingu fisksins inn í
í Þýzkalandi og gert erfiðar fyr
landið.
Togararnir.
Togararnir, sem lönduðu í
Þýzkalandi eru: Ján Þorláksson
68 smál. af fiski, Helgafell RE
230 smál., Þórólfur 179 smál.,
Bjarni riddari 283 smál. Askur
264 smál., Vörður 280 smál.,
Elliði 297 smál., Garðar Þor-
steinsson 299 smál. og ísborg
með 256 smál. *
1. fl. fiskur á góðu verði.
Frá Bretlandi berast þær
fregnir, að markaður sé góður
fyrir 1. fl. fisk. Einn hinna ís-
lenzku togara náði mjög góðri
sölu nú um daginn, enda var
hann með prýðisgóðan fisk. —
Þetta var Jón forseti frá Rvík,
er seldi 2968 kit af fiski fyrir
10.851 sterlingspund. Eru nú
margar vikur síðan að íslenzkur
togari hefir náð jafn hagstæðri
ísfisksölu í Bretlandi. — Þennan
sama dag seldi Karlsefni 3142
kit af fiski fyrir 7274 pund.
Bjameyjarfiskur.
Júlí er nú búinn að selja
Bjarneyjarfisk sinn. Hann land-
aði í Aberdeen 3688 kit og seldi
fyrir 3408 stpd., eða tæplega eitt
pund fyrir hvert kit af fiski. —
Þá seldi Geir 3909 kit fyrir 6445,
Úranus 3623 kit af fiski fyrir
6695 pund og Bjarni Ólafsson,
sem var með 2157 kit af fiski og
seldi fyrir 4723 stpd.
Mbl. 19. júlí
Stórfellt tjón í eldsvoða
í Reykjavík í gœrdag
Trésmiðja og bílaverkstæði Almenna byggingar
félagsins brann til kaldra kola ásamt miklu af
efni og vinnuvélum
I gær varð stórbruni í Reykjavík. Brann trésmiðja og verk-
stæði Almenna byggingarfélagsins við Borgartún og þar inni
mikið af dýrmætum vinnuvelum og efni til bygginga og smíða.
Eldurinn magnaðist á skammri stundu og gat slökkviliðið ekki
við neitt ráðið í verkstæðisbyggingunni, sem brann til kaldra kola.
Átti slökkviliðið fullt í fangi með að verja næstu hús og það að
eldur kæmist í olíutank við gafl verkstæðisbyggingarinnar og
má það teljast vel gert að það tókst, þegar tekið er tillit til þess
hve eldurinn var orðinn magnaður strax og slökkviliðið kom á
vettvang.
I gærmorgun um kl. 10,30
urðu menn þess varir að eldur
var laus í verkstæðisbyggingu
Almenna byggingafélagsins við
Borgartún en bygging þessi er
mjög stór að flatar máli ein hæð
og lágt ris. Var þar áður til húsa
aðalbækistöð Almenna bygginga
félagsins, en skrifstofa og af-
greiðsla er fyrir nokkru flutt í
stórhýsi það, sem félagið hefir
byggt austar með götunni. I þess
ari byggingu voru því nú smíða
verkstæði, bifreiðaverkstæði og
geymslur fyrir efni og vinnu-
vélar. Þegar eldurinn kom upp
var geymt þar mikið af timbri
og öðru byggingarefni svo sem
einangrunarefni og fleira.
Brann það allt að heita má. Auk
þess var í húsinu allmikið af
stórum vinnuvélum, jarðýtum
skrani. Tókst að ná þessum verk
færum út úr húsinu en hins veg
ar brunnu inni mikið af verk-
stæðisvélum, sem tilfinnanlegt
tjón er að missa.
Slökkviliðið kom á brunastað-
inn nokkru fyrir klukkan ellefu
og var eldurinn þegar orðinn
mjög magnaður. Logaði að heita
má öll byggingin að innan og
eldtungurnar lagði út um glugg
ana. Eldurinn hafði þá breiðzt
út um allt verkstæðisgólfið
enda var mikið af eldfimu efni
þar svo sem timbur og annað
sem álíka er eldfimt eða eld-
fimara. Stór timburhlaði var á
einum stað á verkstæðisgólfinu
og magnaðist eldurinn til mik-
illa muna er hann komst í hlað-
ann. Slökkviliðsmennirnir lögðu
strax til uppgöngu á þak húss-
ins þó að því fylgdi mikil hætta
þar sem það var úr asbesti, sem
að vísu brennur ekki en spring-
ur sundur og fellur niður við
hinn mikla hita. Varð brátt séð
að við ekkert varð ráðið inn í
sjálfri verksmiðjunni og því
lögð aðaláhrezla á að verja nýja
húsið en gaflinn sem snýr að
verksmiðjunni er úr timbri og
mikil hætta á ferðum, kæmist
eldurinn í hann. Sneru slökkvi-
liðsmennirnir því niður af þak-
inu enda mátti það ekki seinna
vera, því skömmu eftir það fór
asbestið að springa og þakið að
falla niður í eldhafið og hefði
hverjum þeim, sem þar hefði nið
ur fallið verið bráður bani bú-
inn. Asbestbrot úr þakinu þeytt
ust af hitanum langt í loft yfir
austurbæinn, þegar bálið var
sem mest. Féll sótið yfir ná-
grennið svo að þeir sem á ferð
voru í túnahverfinu fengu sót-
flyksur framan í sig. Veður var
stillt en hægur andvari af
norðri.
Eftir að þakið féll var lögð
áherzla á það, að dæla á það,
sem verja þurfti og næst hús-
inu var og tókst það giftusam-
lega. Það var ekki fyrr en klukk
an var nokkuð farin að ganga
eitt að slökkviliðsmönnum var
unnt að ráðast til atlögu gegn
eldinum í rústunum sjálfum og
tók það mestan hluta dagsins
í gær að slökkva eldinn í þeim.
Síðasti slökkviliðsbíllinn kom
aftur heim á stöðina um klukk-
an hálf fjögur e. h. en lengi eftir
það unnu slökkviliðsmenn að
því að dæla vatni í rústirnar og
drepa í glóðunum.
Eldsvoði þessi er með meiri
eldsvoðum í Reykjavík og eitt
mesta bál, sem hér hefir sézt.
Þarna fórust verðmæti svo
hundruðum þúsunda nemur.
Eldsupptök voru ekki kunn í
gærkvöldi en eldurinn kom upp
í saggeymslu.
TIMINN, 13. júlí
Business and Professional Cards
SELKIRK METAL PRODUCTS LTD.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinlr. Hitaeiningj ný
uppfynding, sparar eldiviS,
heldur hita.
IÍELLY SVKINSSON
Slmi 54 358.
187 Suthcrland Ave., Wlnnipeg.
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith Sl. Winnípeg
Phone 924 624
Office Ph, 925 668 Res, 404 319
NORMAN S. BERGMAN, B.A..LL.B.
Barrlster, Solicltor, etc.
411 Childs Bldg,
WINNIPEG CANADA
AUo
123
TENTH ST.
BRANDON
i 447 Portage Ave, Ph, 926 885
KH)SlTOl
JEWELLE RS
Phone 21 101 ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Asphalt Roofs and Insulated
Slding; — Repalrs
632 Simcoe St. Winnipeg, Man *
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
606 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Horne Telephone 202 398
Talsfml 925 826 Heimllls 63 893
DR. K. J. AUSTMANN
BérfrœOinyur i augna, cyrna, nef
og kverka sjúkdómum.
209 Medical Arts Bldg.
Stofutlmi: 2.00 til 5.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
BérfræOlngur < augna. eyma,
nef og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslml 923 861
Helmaslmi 408 794
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
islenzkur lyfsali
Fölk getur pantað meBul og
annaB meB pöstl.
Fljöt afgreiBsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur tlkklstur og annast um Ot-
farir. Allur OtbflnaBur sá heztl.
Ennfremur selur hann allskonar
minnl8varBa og legsteina.
Skrifstofu talslml 27 324
HeimlUs talslmi 26 444
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Wpg.
Phone 926 441
Phone 927 025
'H. J. H. Palmason, C.A.
H. J. PALMASON & CO.
Chartered Accountants
305 Confederatlon Llfe Bldg.
Winnipeg Manitoba
Phone 49 469
Radio Service Specialiets
ELECTRONIC LABS.
H. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Eciuipment System.
692 ERIN St. WINNIPEG
PARKER, PARKER
& KRISTJANSSON
Barrislers - Solicitors
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadian Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg, Man. Phone 923 561
JOHN A. HILLSMAN.
M.D., Ch. M.
332 Medical Arts. Bldg.
OFFICE 929 349 Home 403 288
Phone 724 944
i
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 6 — 652 HOME ST,
ViBtalstlml 3—5 eftir hádegl
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selklrk, Man.
Office hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Offlce 26.s— Res. 230
Offlce Phone Res Phone
924 762 726 116
Dr. L. A. Sigurdson
628 MEDICAL ARTS BLDQ.
Office Hours: 4 p.m.—6 pjn.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO QEN. TRUST8
BUÍLDING
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
Phone 926 952 WINNIPHQ
Cars Bought and Sold
SQUARE DEAL
MOTOR SALES
"The Working Man’s Friend"
Ph: 26464
297 Princbss Strsdt
Half Block N. Logam
SARGENT TAXI
Phone 722 401
FOR QUICK RELIABLE
SERVICE
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDQ WPG.
Fasteignasalar. Lelgja hús. Ot-
vega peningalán og eldsábyrgB.
blfreiBaábyrgB, o. s. fry.
Phone 927 638
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfrœOingar
209BANK OF NOVA SCOTIA BO
Portage og Garry 8t.
Phone 928 291
____________________
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Netting
58 VICTORIA ST„ WINNIPEG
Phone 98 211
Manager T. R. THORVALDBON
íour patronage will be appreciated
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAQE, Managing Director
Wholesale Distrlbutors of Fraah
and Frozen Flsh.
811 CHAMBERS STREET
Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLK, Slmi #26 227
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH