Lögberg - 01.09.1949, Blaðsíða 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 1. SEPTEMBER, 1949
Frá Vancouver, B.C.
22 ágúst, 1949
Sunnudaginn 31. júlí lágu all-
ar leiðir Islendinga á íslendinga
daginn í Blaine. Dagurinn rann
upp strax um morguninn ynd-
islega fagur. „Himinninn heið-
ur og blár, hafið var skínandi
bjart“. Það hafði verið áður á-
kveðið, að fólksflutningsbíll,
sem leigður til að flytja fólk
ið fram og til baka frá Blaine,
væri til staðar klukkan 12 á há-
degi á „HÖFN“, þar sem 16 af
heimilisfólkinu fór upp í bílinn,
á öðrum stað bættust nokkrir
við, svo að öll sæti voru upp-
tekin, um 30 manns. Var svo
lagt af stað til Blaine og komum
við þangað 1.30 eftirmiðdag.
Samkoman byrjaði ekki fyrr en
kl. 2, og var sá tími vel brúk-
aður til að heilsa gömlum kunn-
ingjum og vinum, sem þar voru
til staðar, því fólk var þar sam-
an komið úr öllum áttum.
Hátíðahaldið byrjaði á tiltekn
um tíma. Skemtiskráin var fjöl-
breytt. Aðalræðumaður var Mr.
Axel Vopnfjörð. Var það margra
dómur, að sú ræða hafi verið
ein af þeim beztu, sem þar hafi
verið fluttar. Sennilega verður
þessi ræða birt í íslenzku blöð-
unum, því að hún á erindi til
allr aíslendinga, hvar sem þeir
eru niðurkomnir. Söngurinn var
ágætur, því Blaine á margt söng
fólk, sem er þaulæft undir for-
ustu H. S. Helgasonar söngfræð
ings. Kvæði voru flutt af Mr.
J. S. frá Kaldbak og Þórði K.
Kristjánssyni. Kvæði J. S. K.
hefir verið birt í Voröld. Það
hefir verið mörgum vonbrigði
að Mr. Ármann Björnsson, sem
átti að flytja þar kvæði, og söng
mærin okkar Miss Margaret L.
Sigmar, sem átti að syngja þar,
voru bæði forfölluð og gátu ekki
komið. Þessar árlegu samkomur
í Blaine eru sóttar af Islending-
um úr öllum áttum, það er því
bezta tækifærið sem gefst til að*
mæta ættmennum sínum og
gömlum nágrönnum og vina-
fólki, sem annars mundi ekki
vera hægt, nema með miklu
ferðalagi og kostnaði, sem marg
ir gætu eki staðist við, því Is-
lendingar eru hér tvístraðir
allar áttir og víðsvegar.
íslenzki forsætisráðherrann
samþykt af sambandsstjórninni
að borga $49.00 ellistyrk um
mánuðinn, þá var það gjört
kunnugt af stjórninni í B. C.
að það gengi strax í gildi hér,
og að $10.00 viðbótin frá fylk-
inu, yrði borguð eftir sem áður,
svo gamla fólkið sem hefir feng
ið ellistyrkinn í British Colum-
bía fær nú $50.00 um mánuðinn.
Er mjög sennilegt að það sé
dugnaði Mr. Johnsons að þakka,
hvað fljótt þetta gekk í gegn
hér.
Lömunarveikin (Poliomyel-
itis) hefir gengið hér í British
Columbía í seinni tíð, 86 manns
hefir verið hjúkrað á almenna
sjúkrahúsinu hér, þegar þetta
er ritað. Aðeins tveir hafa dáið
úr þessari veiki enn sem komið
er. Mest eru það börn og ungl-
ÍBgar sem fá þessa veiki, samt
kemur það fyrir að fullorðið
fólk fái veikina; einn af þeim,
sem nú eru á sjúkrahúsinu er
maður um fertugt. Læknarnir
gefa vonum að veikin fari að
réna, nokkrir af þeim sem fyrst
urðu veikir, hafa verið sendir
heim aftur og taldir að vera al-
gjörlega læknaðir.
Nú er ný atvinnugrein komin
á fót hér í British Columbía, og
sennilega sú fyrsta í Canada
þeirrar tegundar. Mr. Alfred
George Gaspard af frönskum
ættum, hefir unnið hér við ýmis
legt um 30 ára skeið. Nú í seinni
tíð hefir hann stundað búskap
við Aldergrove B. C. og virðist
hann hafa loksins komist á rétta
hillu í lífinu og honum hefir
gengið búskapurinn vel. Hann
á stóra tjörn á landi sínu, sem
hann er búinn að brjóta heilann
um lengi, hvernig hann geti
gjört sér gagn af henni. Einu
sinni sem oftar, er hann var að
hugsa um þetta, dettur honum
í hug „Forty Million French-
men can’t be wrong“. Eins og
kunnugt er þá eru froskar þar
álitinn herramanns matur, og
eins hér í álfu sumstaðar, þar
sem froskasteik er fáanleg. Nú
hefir Mr. Gaspard fengið ráðið
er $1.75 pundið í heildsölu. Nú
er búið að panta hjá Mr. Gas-
pard alt það froskaket, sem hann
hafi í haust, og eru það fínustu
matsöluhúsin og ýmsir „Clubs“,
sem kaupa það. Nú er hann á-
nægður með tjörnina, og segist
hafa tekjur af henni árlega eftir
leiðis, Mr. Gaspard skýrir frá
því, að það sé mikið stúss og
eftirlit við þessa froskarækt.
Hann hefir sérstakt pláss aflok
að í tjörninni, þar sem hann
verður að varðveita eggin, því
annars éta froskarnir þau, og
eins verður að passa litlu frosk-
ana, svo að þeir gömlu nái ekki
til þeirra, því þeim þykir þeir
vera sælgætismatur, og sækjast
því eftir að ná í þá. Matgoggar,
sem hafa borðað steikt froska-
lær, segja að það sé mjög líkt
steik af ungum hænsnum. Ég er
forvitinn, eins og flestir Islend-
ingar eru, svo ég má til að ná
mér í froskasteik, þegar hún
verður fáanleg hér á matsölu-
húsunum, og skal ég láta les-
endur Lögbergs vita hvernig
mér smakkast sá réttur.
Mér er skrifað það frá Camp-
bell River á Vancouer-eyjunni,
að þann 11. ágúst hafi komið þar
haglstormur, sem eyðilagði mik
ið epla og aldinarækt á því svæði
sem stormurinn fór yfir. Þessi
haglstormur náði ekki yfir stórt
svæði, en öll íslenzka byggðin,
sem þar er, lenti í storminum.
Garðar urðu líka fyrir nokkrum
skemmdum. Að öðru leyti geng-
ur þar alt sinn vanagang og allir
una sér þar vel.
Mr. og Mrs. H. I. Johnson frá
Haney B. C. voru stödd hér í
borginni nokkra daga. Voru þau
á heimleið eftir að hafa ferðast
víða í Manitoba og Sask. til að
heimsækja skyldfólk sitt og vina
fólk sem þau eiga þar. Var þetta
ferðalag þeirra hið skemmtileg-
asta. Á meðan þau dvöldu hér,
var þeim haldið gildi af vensla-
fólki þeirra og vinum þann 7.
ágúst á heimili Mr. og Mrs. A.
C. Orr. Tilefnið var 25 ára gift-
ingarafmæli þeirra Mr. og Mrs. ■ að festa kauP á Pressu og ölluiu
áhöldum til að geta prentað
blaðið hér, og verður þá tæki-
1 fram úr því, hvernig hann geti
'hagnýtt sér tjórnina. Hann
í
British Columbia er nýkominn
til baka frá Ottawa, þar sem
hann undanfarið hefir setið á
ráðstefnum með stjórnarvöld-
unum þar. Erindi ráðherrans til
Ottawa, var að fá sambands-
stjórnina til að veita fylkinu ein
hvern styrk til að geta fullgert
„The Pacific Great Eastern
Railway“. Þessi járnbraut, sem
var byrjað á að byggja fyrir
mörgum árum síðan, hefir verið
aðeins að hálfu leyti byggð, við
það sem ákvarðað var í fyrstu
og hefir því verið til stórkost-
legs kostnaðar fyrir fylkisstjórn
ina ár hvert. Nú álítur Johnson
forsætisráðherra og ráðgjafar
hans, að ef þessi braut verði
fullgjörð, eins og til var ætlast
í upphafi, þá geti brautin vel
borgað sig. Þá fengi Peace River
héraðið í Norður Alberta styttri
leið og lægri flutningsgjöld fyr-
ir allar afurðir sínar, til hafnar
borganna á vesturströndinni,
Vancouver og Prince Rupert,
sem áður hefir verið flutt til
hafnarborganna á austurströnd-
um Canada, sem er mikið lengri
leið og kostnaðarsamari. Nú
varð Johnson forsætisráðherra
það ágengt, að sambandsstjórn-
in hefir lofað að leggja til $1.250.
000 til þess að fullgjöra braut
ina. Hafa samningar verið veitt
ir félögum hér í Vancouver til
þess að brautin verði fullgjörð
og er nú þegar byrjað á vinnu
við það á ýmsum stöðum á braut
arstæðinu. Það er almennt viður
kennt að Johnson forsætisráð-
herra sé sá atkvæðamesti og öt-
ulasti maður, sem hafi farið með
völdin í British Columbia. Það
er á mörgum fleiri sviðum, sem
hann hefir látið til sín taka. Til
dæmis strax og það hafði verið
keypti fjögur pör af því froska
kyni, sem kallað er „Jumbo
Giants“. Þeir eru mikið stærri
en þeir froskar, sem við höfum
vanist hér, og hefir náttúran
séð fyrir þeim síðan að mestu
leyti. ‘Nú telur hann víst að hann
eigi um tvö þúsund froska í
tjörninni á ýmsum aldri. Þegar
þessir froskar eru fjögra ára, þá
eru þeir fullvaxnir og vega frá
einu og hálfu pundi til tveggja
punda hver, og eru þá til fyrir
markaðinn. Markaðsverð á þeim
Johnson. Var þeim afhent mynd
arleg gjöf (Dinner Set) frá nán-
ustu skyldmennum þeirra. Mrs.
Johnson er systir þeirra Mrs. A.
C. Orr. og Mrs. C. H. ísfjörð hér
í boginni.
Mrs. Thelma Jóhannson frá
Edmonton, Alberta hefir verið
stödd hér í borginni um tíma.
Hún sótti íslendingadaginn í
Blaine. Líka heimsótti hún gam
almennaheimilið „Höfn“.
Mr. G. P. Magnússon prent-
smiðjueigandi frá Lundar Man.
var hér á ferð sér til skemmtun-
ar. Líka heimsótti hann marga
gamla kunningja og vini, sem
hann á hér. Hann er nú horfinn
heim aftur.
Dr. og Mrs. H. Sigmar eru
komin til baka úr tveggja mán-
aða ferðalagi í Manitoba, og svo
heimsóttu þau íslenzku byggð-
irnar í Norður Dakota, Dr. Sig-
mar messaði hér þann 21. ágúst
aftur eftir sumarfríið.
Þann 21. ágúst kom sá mesti
jarðskjálfti hér, sem sögur fara
af í British Columbía. Reiknast
vísindamönnum að aðalstöð
jarðskjálftans hafi verið um sex
til sjö hundruð mílur í norður
frá Victoria B. C. og að mestu
umbrotin hafi verið nálægt
Graham eyjunni í norður B. C.
Mest varð vart jarðskjálftans á
þeim svæðum og í Prince Rup-
ert B. C. Ekki hefir verið getið
um neinn mannskaða, en nokkr
ar skemmdir á húsum þar norð
ur með ströndinni. Það bar mjög
lítið á þessum jarðskjálfta í Van
couver eða neinstaðar hér um
slóðir; flestir vissu ekkert um
það fyr en þeir lásu það í dag-
blöðunum eða heyrðu sagt frá
því í útvarpinu. Seismographs
verkfærið sýndi jarðskjálftann
mörg þúsund mílur héðan suður
með ströndinni, sem sýnir það,
að þessi jarðskjálfti hafi verið
sá mesti hér, sem sögur fari af,
en eldgosið, sem orsakaði jarð-
skjálftan hafi verið langt úti á
hafi og á miklu dýpi svo þess
vegna hafi ekki orðið eins mik-
ið vart við hann.
Þann 16. ágúst lézt á almenna
sjúkrahúsinu, Margrét Einarson,
kona Einars E. Einarsonar, 62
ára gömul. Hana lifa auk manns
hennar ein fósturdóttir, Helen,
í heimahúsum, þrjár systur og
tveir bræður. Útförin fór fram
frá útfararstofu Center & Hanna
20. ágúst. Hún var jarðsett í
Ocean View Burial Park. Dr.
H. Sigmar þjónustaði við útför-
ina. Margrét sál. var mæt kona,
vel skynsöm og vel látin af öll-
um sem kynntust henni.
Útgefendur „VORALDAR“,
héldu fund nýlega. Það helzta,
sem þar gjörðist var að „Voröld“
á að koma út í sama formi og
byrjað var, einu sinni á mánuði,
fyrst um sinn. Útgefendur eru
Evening School Opening
Evening School will be op>en-
ing shortly and those interested
should follow the various news-
papers and CJOB radio progams
for announcements. A descrip-
tive folder giving the course out-
lines with the registration and
commencement dates will be
mailed to anyone desiring to en-
roll. Prospective students should
write or telephone the School
Board Offices, 21891, for a
folder.
Elementary English will also
be offered at Daniel Mclntyre,
Kelvin, St. John’s and Isaac
Newton Schools.
Those desiring Technical and
Commercial Courses should
obtain a bulletin to determine
the registration and commence-
ment dates at each centre.
The popular handicraft course
conducted at the Strathcona
School last year will be opening
again this year. The McGregor
Street bus leaves Portage and
Garry and stops in front of the
school. Leathercraft, Ornament-
al Metal, Woodwork, Sheet
Metal and Bookbinding will be
offered.
Instruction in Clothing will be
given in four high school
centres. Cookery will only be
offered at Daniel Mclntyre and
Kelvin High Schools.
The course on, “Health, Home
Nursing and Emergencies”, will
be conducted at the new Canad-
ian Red Cross Society Head-
quarters, Osborne Street ,and
York Avenue. The Parent Edu-
cation Courses, in conjunction
with the Home and School
Association, which commence
on September 13th (Tuesdays
only) will be held in the Gordon
Bell High School.
Those desiring to know some-
thing about the operation and
running of their automobiles
should attend the Automobile
Mechanics Course which is
offered at the Daniel Mclntyre
Collegiate.
Elementary and Advanced
Courses in Public Speaking will
be offered at Daniel Mclntyre
Collegiate as well as Kelvin
High School this year.
THE STAGE COACH RETURNS TO LONDON
A usefull dollar-earner is the 150-year-old stage coach now
trundling round London, England, every day with loads of Ameri-
can visitors, who find a novelty in seeing the old city in the old
way. Run by the Stage Coach Company, it is driven by “Yorky”
Wilson, former coachman to the Lord Mayor of London, who is
accompanied by the traditional red-coated Guard who blows his
long horn to give warning of approach in traffic. A round trip of
the “sights”, starting and finishing at the Milestone Hotel, Ken-
sington, takes IV2 hours. The coach holds 12 people in comfort and
offers an excellent vantage point for vision.
This picture shows the stage coach passing the Victoria
Memorial opposite Buckingham Palace, and watched by a young
American Officer and his wife who are on leave from Germany.
færi fyrir íslenzkan prentara að
komast þar að. Þeir, sem vildu
sinna þessu geta fengið allar
upplýsingar því viðvíkjandi,
með því að skrifa til „VORÖLD“
5790, Sherbrook St. Vancouver
B. C.
Miss May Stevens matreiðslu
konan á „Höfn“ er í skemmtiferð
til Winnipeg í sumarfríinu. Hún
kemur aftur til baka um miðjan
september.
Mr. og Mrs. Paul Geraldi frá
New York eru hér stödd í borg-
inni um mánaðartíma. Mrs. Ger
aldi er dóttir Mrs. B. Thomson,
forstöðukonunnar á Höfn. Aðra
systir á hún hér Mrs. Sam F.
Samson. Mr. Geraldi er College
prófessor í New York. Þau fara
á stað heimleiðið um mánaða-
mótin.
Mr. G. S. Berg er kominn til
baka frá Campbell River, þar
sem hann hefir verið til að líta
eftir eignum sínum þar. Hann
segir, að löndunum, sem þar eru
búsettir líði ölum vel.
Þetta ferðafólk hef ég orðið
var við síðan ég skrifaði seinast,
Guðrún A. Johnson frá Saska-
toon, Sask. Mr. og Mrs. J. H.
Straumfjörð frá Seattle, Wash.
Anna Stefánson, Guðrún Stefán
son, Jennie Johnson, Laura
Burns, Jay McGeachy, Mrs. D.
Elding, öll frá Winnipeg, Allie
Goodbrandson, Selkirk, Man.,
Mr. og Mrs. John Sigurdson,
Port Albernie, B.C.
S. Guðmundsson
Fréttir frá Stafholti
BLAINE, WASHINGTON
Herra ritstjóri:
Þetta heimili hefir nú verið
starfrækt x sjö mánuði og má
heita að alt gangi blessunarlega,
vistmenn eru yfirleitt mjög á-
nægðir með sitt hlutskifti, starfs-
fólkið gegnir skyldum sínum
mjög samvizkusamlega, svo að
bústaðurinn er, í sannleika
„heimili“. Islenzka er óspart töl-
uð og setur þjóðlegan brag á
þetta heimili, og enn er pláss
fyrir nokkra. Það sem við þurf-
um umfram annað, sem stendur,
er duglega vinnukonu, og verður
hún að tala íslenzku, og búa á
heimilinu. Hún fær gott kaup,
svefnherbergi út af fyrir sig, og
náttúrlega fæði, þarf helst að
vera borgari simnan línunnar.
Fjöldi gesta kemur daglega á
heimilið og rabbar við gamla
fólkið, er þetta mikils virði,
styttir tímann og skemtir, og
fólk sem á leið um Blaine ætti að
gera það að reglu, að koma við
og heilsa upp á vistmenn. Mjög
mun hafa verið gestkvæmt, að
Stafholti þann 31. júlí s.I., ís-
lendingadaginn, og þakkar fólk-
ið og nefndin öllum þeim sem
tóku sér tíma til að líta inn.
Þess vil ég minnast að lestrar-
félagið „Vestri“ í Seattle hefir
verið okkur „haukur í horni“ frá
fyrstu, og mikið unnið til að
hrinda þessu elliheimilismáli á-
leiðis, og síst má gleyma kvenfé-
lag íslenzkra kvenna í Seattle,
„Eining“, sem hefir miðlað úr
minningarsjóði upphæð sem nú
nemur $500.00. Svo eru mörg
önnur félag, Jón Trausti í Blaine,
Félag Islendinga í Bellingham,
Kári, og svo öll íslenzku félögin
í Blaine og margir einstaklingar
sem of langt yrði upp að telja
hér, þó verð ég að minnast á Dr.
Nina Paulson, sem hefir hvað
eftir annað sýnt kvikmyndir af
íslandi og hér vestra, sem hefir
vakið ógleymanlega ánægju vist-
manna og annara sem notið hafa,
og hefir Dr. Nina engu til sparað,
hvork fé né fyrirhöfn.
íslendingar í San Francisco,
Calif., héldu swnkomu til arðs
fyrir elliheimilið í Blaine, 18.
Stafholt fékk bankaávísun upp á
$7,500.00 og var þetta stór feng-
ur; alt þetta sýnir hvað róttækan
vilja og samtök þetta heimili hef-
ir nú þegar vakið í hjörtum ís-
lendinga hér sunnan línunnar, og
sýnir það, að landinn á enn í fór-
um sínum, þau einkenni sem
hvorki mölur né ryð fær grand-
að, og að mínu áliti, á enn fullan
rétt að teljast góðir Islendingar.
Svo læt ég þetta frá mér fara í
von um að þú ljáir því dálk í
blaðinu. Andrew Danielson
Feagoodl^RT/ LINE
neighbour
dK hagborg
tt
PHOME 2IS3I J——
Minnist
EETEL
í erfðaskrám yðar
^TO svnin INTERRUPTIONS 1
<a.1
F0R FASTER
L0N6 DISTANCE
SERVICE
Long Ðistance calling is
espocially heayy just now.
For best service . . .
Call Between These Hours
6:00 p.m. and 4:30 a.m.
AND ALLDAYSUNDAY
When you pick up your
receiver and hear someone
using the line, replace the
receiver gently so that the
conversation taking place will
not be interrupted. Please give
youj neighbour time to finish
the call before trying again.