Lögberg - 08.09.1949, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 8. SEPTEMBER, 1949
THE 695 J.ogtjerg GefiB út hvern fimtudag af COLUMBIA PRESS LIMITED SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
Utandskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 21 804
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Authorized as Second Class Mail, Post Ofíice Department, Ottawa
LITIÐ UM ÖXL
Þann 1. yfirstandandi mánaðar voru liðin tíu ár frá
þeim tírna, er Adolf Hitler, drukkinn af mikilmensku-
brjálæði, skipaði fyrir um innrásina í Pólland með það
fyrir augum, að leggja undir sig allan heiminn; hann
hafði á tiltölulega fáum árum, alið upp í Þýzkalandi
kynslóð vitskertrar æsku, Hitlers-æskunnar svonefndu,
er einskis sveifst, en rándýrseðlið lék lausum hala; hún
hafði drukkið í sig kynþáttahatur, eins og hinar djöful-
legu ofsóknir gegn Gyðingum báru svo glögg merki um;
þúsund ára ríki þýzkra ofbeldisafla átti að gróðursetj-
ast í mannheimi þar sem ríkisvaldið væri almáttugt,
en einstaklingarnir ómyndug og óábyrg peð; alt var
þetta í beinni mótsögn við hugsjónir lýðfrjálsra þjóða,
er settu öllu ofar virðuleik einstaklingsins og grund-
völluðu þjóðfélög sín á persónuhelgi hans.
Það útheimti geisileg átök og gífurlegar fórnir, að
koma Nazismanum á kné, en það lánaðist þó engu að
síður, og vegna þess geta þjóðir heims, að minsta kosti
margar hverjar, séð til sólar og andað að sér lífrænu
lofti, að undanskildum þeim þjóðlöndum, er kommún-
isminn, albróðir nazismans, hefir hneppt í þrælaviðjar;
þar hvílir enn niðamyrkur yfir djúpinu án þess að nokk-
urs staðar rofi til.
Og nú er verið að telja rússnesku æskunni, Stalíns-
æskunni trú um það, að Rússar hafi unnið stríðið einir;
fyr má nú vera blygðunarleysið og blekkingin!
Á því örlagaríki tíu ára tímabili, sem hér ræðir um,
fengu Þjóðverjar, ítalir og Japanir sína vöru selda,
voru frá yfirgangs og hernaðarlegu sjónarmiði séð,
muldir til agna, en forsprakkar þeirra hrepptu óvirðu-
legan dauðdaga.
Viðnámi Breta framan af styrjöldinni, en síðar
kyngimagnaðri sókn þeirra, mun lengi viðbrugðið. Og
hvað hefði orðið um Rússann ef hin djarfa og volduga
Bandaríkjaþjóð eigi hefði komið til sögunnar, byrgt
hann upp að flugvélakosti og öðrum varnartækjum og
tekist á hendur meginforustuna á orustuvettvangi Norð
urálfunnar, þrátt fyrir það þótt hún væri önnum kafin
í Kyrrahafsbaráttunni líka.
Og nú hafa Rússar dregið saman her við landamæri
Júgóslavíu, vegna þess að Tító, sem einnig er kommún-
isti, vill ógjarna láta segja sér fyrir verkum frá Moskvu,
eða sætta sig við það, að erlend og óviðkomandi öfl
blandi sér inn í innanríkismál þjóðar sinnar. Og því
ætti hann líka að láta annan eins óvinafagnað líðast
átölulaust?
Pátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott.
Upp af rústum hruninna halla, hafa Sameinuðu þjóð
irnar komið fram á sjónarsviðið og Norður-Atlants-
hafsbandalaginu verið hrundið af stokkum; markmið
beggja stofnana er eitt og hið sama, að vinna í einingu
að alþjóðfriði og koma í veg fyrir ofbeldi og landrán úr
hvaða átt, sem slíks yrði vart; að þessu er unnið að
beztu manna yfirsýn, er bera hamingiu mannkynsins
fyrir brjósti.
Hver þjóð, sem í gæfu og gengi vill búa
á Guð sinn og land sitt skal trúa.
Mennirnir mega ekki við því, að glata traustinu á
öllum og öllu þótt eigi blási ávalt sem byrvænlegast
og stundum skyggi snögglega í álinn.
NAUMAST EINLEIKIÐ
Verkamannadagurinn, eða sá dagur, sem einkum
og sér í lagi er helgaður hinum vinnandi stéttum, er
um garð genginn; veður var kalt og bjart, eins og Jónas
Hallgrímsson skáld sagði um veðrið í himnaríki.
Svo sem venja er til, þyrptist fólk, er byggir megin-
land N.-Ameríku áminstan verkamannadag í tugþús-
unda og miljónatali til hinna ýmsu hressingar- og
skemmtistaða víðsvegar um landið, og var það í sjálfu
sér einungis gott og blessað, því það er fólki lífsnauð-
syn að létta sér upp; en hitt er erfiðara tilhugsunar,
ef slíkar skemmtiferðir snúast upp í harmsögu eða jafn
vel þjóðarsmán, en slíkt gerðist síðastliðinn verka-
mannadag í Canada og Bandaríkjunum á átakanlegri
og umfangsmeiri hátt, en dæmi voru áður til, og var
það vægast sagt naumast einleikið.
Nákvæmar skýrslur yfir umferðaslys á verkamanna
daginn eru enn eigi við hendi, þó víst sé að þau hafi
orðið gífurleg og í raun og veru óverjanleg.
Að því er blöð og útvarp herma, höfðu umferðaslys
í Bandaríkjunum, er leiddu til bana, orðið eitthvað á
fimta hundrað, auk þess sem freklega þúsund manns
sættu mismunandi meiðslum; og í Canada urðu hlut-
föllin tiltölulega litlu betri; við svo búið má ekki lengur
standa án þess, að stjórnarvöldin taki alvarlega í taum-
ana og hætti að taka mjúkum móðurhöndum á öðrum
eins óvinafagnaði.
Það er engu líkara en fólk tapi þessari vitglóru, er
það hlaut í vöggugjöf, er það kemur í bíl sínum út á
þjóðvegu landsins og skeyti hvorki um skömm né
heiður.
MINNINGARORÐ:
Sigurást Daðadóttir Björnson
Þann 27. apríl 1949 andaðist
á Almenna sjúkrahúsinu í Innis-
fail, heiðurskonan Sigurást Daða
dóttir Björnson eftir langvar-
andi legu; hún var á 86. aldurs-
ári.
Sigurást var fædd 10. ágúst
1863 í Dalasýslu á íslandi, faðir
hennar hét Daði en móðir Sig-
ríður Erlendsdóttir; að öðru
leyti er mér ókunnugt um ætt
hennar, nema hún var eitthvað
í ætt við Arngrím lærða.
Um æsku hennar og uppeldi
er mér einnig ókunnugt. Hún
giftist Þórhalli Jónssyni 1890.
Missti mann sinn eftir fimm
ára samveru, og var eftirskilin
með 3 börn. Hún fluttist með
föður sínum til Ameríku árið
1900, en missti hann skömmu
seinna; mun hún hafa haft ofan
af fyrir sér og börnum sínum
í Winnipeg næstu fimm árin.
Árið 1905 fluttist hún vestur
til Alberta og varð bústýra hjá
Jóhanni Björnssyni á Tindastól,
og giftust þau ári seinna 1906.
Jóhann dó 1942. Hana lifa nú 3
börn frá fyrra hjónabandi. Þau
eru: Sarah Rose Edwards, í San
Francisco, Cal., Lillian Thorp í
Oakland, Cal. og Thorhallur
Johnson í Calgary, Alta.
Sigurást sál. var greind kona,
vinsæl og gestrisin með afbrigð-
um, góð móðin og húsmóðir;
munu gestir og gangandi lengi
muna gestrisni þeirra Tindastóls
hjóna.
Jarðarförin fór fram frá Lút-
ersku kirkjunni á Markerville,
sunnudaginn 1. maí að við-
stöddu fjölmenni, og var hún
jarðsett í Tindastóls-grafreit af
Dansk lút. presti, séra Olesen.
Blessuð sé minninq hennar.
A. J. C.
Friðarstarf S.Þ. er þegar
orðið mjög árangursríkt
Skýrsla Tryggve Lie til meðlima landanna
TRYGVE LIE, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, lagði síðustu
hönd að ársskýrslu S.Þ. skömmu
áður en hann lagði af stað í frí
sitt til Noregs. Nú er lokið við
að prenta skýrslu aðalritarans,
og hún var opinberlega birt
seint í gærkvöldi. Ársskýrslan
hefir þegar verið send til hinna
59 meðlimalanda S. Þ., en hún
nær yfir mánuðina tólf til 30.
júní. Hér fer á eftir lauslegt yfir
lit yfir innihald skýrslunnar, á-
samt niðurstöðum aðalritarans.
Með aðstoð Sameinuðu þjóð-
anna, hefir á síðastliðnum tólf
mánuðum reynst mögulegt að
skapa fjórðungi mannkynsins
friðsamleg kjör að lifa við, en
segja má, að allar þessar mill-
jónir hafi til skamms tíma búið
við ófrið eða yfirvofandi stríð.
Auk þess má fullyrða, að mill-
jónir manna hafi fengið bót á
lífskjörum sínum fyrir atbeina
S. Þ.
Deilun stórveldanna hafa ekki
orðið til þess að stöðva starf-
semi Sameinuðu þjóðanna á
sviði heilbrigðismála, landbún-
ftlðar, barnahjálpar, verkalýðs-
mála og efnahags- og verzlunar-
mála almennt, fullyrðir Trygve
Lie. S. Þ. hefir meira að segja
tekist að draga úr deilunum um
þessi mál. Auk þess tókst sam-
tökunum að minnka þann stríðs-
ótta, sem var Berlínardeilunni
samfara, með því að beita sér
fyrir ráðstefnu utanríkisráð-
herra stórveldanna.
Tillögur
Með hliðsjón af þeim megin
deilumálum, sem nú eru uppi í
veröldinni, kemur aðalritarinn
með eftirfarandi tillögur:
1. Að stórveldin haldi enn á-
fram tilraunum sínum til að
komast að samkomulagi. Að því
hlýtur að koma, segir Lie, að
þau verði að komast að ein-
hverri niðurstöðu um Þýzka-
land, Japan, atomorkuna, vopna
búnað og herafla til handa Ör-
yggisráðinu.
2. A& fyrrverandi nýlendur
Itala verði settar undir eftirlit
verndargæzluráðs Sameinuðu
þjóðanna.
3. Að hin nálægari Austur-
lönd verði látin ganga fyrir um
aðstoð S. Þ. til handa þeim lönd-
um, sem enn eru eftirbátar ann-
arra á sviði menningar og tækni.
4. Að þegar í stað verði hafist
handa um að reyna að leysa
efnahagsvandamál veraldarinn-
ar, með forystu S. Þ.
5. Að beiðni þeirra fjórtán
landa, sem nú vilja fá upptöku
í S. Þ. verði svarað játandi.
6. Að stofnað verði 300 manna
einkennisklætt varðlið, til Jjess
að aðstoða sendinefndir S. Þ.
víðsvegar í heiminum.
StyrjalcLir stöðvaðar
Um friðarstörf Sameinuðu
þjóðanna segir Lie meðal ann-
ars:
Enda þótt S. Þ. hafi ekki leyst
deilur stórveldanna, hefir tekist
að koma í veg fyrir að þær yllu
friðslitum ... En á meðan á þessu
hefir gengið, hefir árangurinn
af starfi S. Þ. sífelt órðið meiri.
Sameinuðu þjóðirnar hafa stöðv
að styrjaldir víðsvegar í heim-
inum, og þær hafa beitt sér fyrir
alþjóðlegri samvinnu á nær öll-
um sviðum
Þá er Lie þeirrar skoðunar,
að allsherjarþingið sé að verða
„ein öflugustu friðarsamtökin,
sem veröldin hefir átt“.
i
Alþióðadómstóllinn
í einum kafla ársskýrslunnar
er rætt um Alþjóðadómstólinn
og hið sívaxandi hlutverk, sem
hann á að gegna í heimsmálun-
um. Dómstóllinn kvað í ár upp
fyrsta dóm sinn frá því Sam-
einuðu þjóðirnar voru stofnað-
ar: Hann komst að þeirri niður
stöðu, að Albanir hefðu átt sök
á manntjóninu, sem varð á
tveimur brezkum tundurspill-
um, er þeir rákust á tundurdufl
á Korfusundi 1946. Dómstólinn
taldi einnig, að Bretar hefðu rof
ið albönsku landhelgina, er þeir
hreinsuðu tundurdufl úr sund-
inu eftir atburð þennan.
Dollaraskortur
Dollaraskorturinn hefir haft
það í för með sér, að frétta og
úpplýsingaþjónusta S. Þ. hefir
enn ekki getað orðið jafn um-
fangsmikil og skyldi, segir í
skýrslunni. Þessi skortur hefir
meðal annars orðið til þess að
takmarka fjölda erlendra frétta
manna við aðalbækistöð S. Þ.
Fyrsta júní í ár áttu 35 lönd
fréttamenn í Lake Success.
Upplýsingaþjónusta S. Þ. hef-
ir nú 15 skrifstofur utan Banda-
(Frh. á hls. 3)
Marx og hin rússneska
yfirgangsstefna
Minni hvalveiði
en í fyrra
Eins og allir vita, er Karl
Marx átrúnaðargoð kommúnista
og alt sem á að hafa útgengið
þeirra augum heilagur sannleik-
ur, sem þeim öllum er skylt að
hlýða, eins og iielgu Guðs orði.
Kenningar Marx eru trúarbrögð
kommúnista, andlegt fóður
þeirra, sem þeir eiga að lifa á,
ásamt með Stalín-dýrkuninni.
En það kemur fyrir, að valda-
menn kommúnismans leggi hin-
um skeggjaða júða eitt og ann-
að í munn, sem hann hefir ekki
sagt. En sé það viðurkennt af
Moskvaklíkunni, gildir það sem
sannleikur, og trúarbrögð fyrir
kommúnista.
George Izard hefir nýlega gef-
ið út bók sem heitir „Kravtjenko
og Moskvamenn". Þar nefnir
hann nokkur dæmi þess, hve ó-
ráðvandlega kommúnistar fara
stundum með orð og kenningar
Karls Marx, og segir t. d. að ef
Marx hefði nú verið uppi, þá
myndi hann óefað hafa verið
fylgjandi Atlantshafssáttmálan-
um.
Marx var á sínum tíma frétta-
ritari í London fyrir New York
Tribune. Þann 12. apríl 1853
birti hann grein um rússneska
utanríkispólitík. Þar kemst hann
m. a. þannig að orði:
Skyldi hinn rússneski risi
nokkurntíma hætta því að
stefna að heimsyfirráðum?
Enda þótt vilji væri til þess, þá
munu kringumstæðurnar ekki
leyfa honum það. Eðlileg landa-
mæri hans frá náttúrunnar
hendi, liggja frá Danzig eða jafn
vel frá Stettin suður til Trieste.
Og það er ómótmælanlegt að
stjórnarvöld Rússa gera sitt
ítrasta, til þess að víkka út landa
mæri sín jafnvel svo langt. And-
staðan gegn Rússum, sem dugar,
er fyrst og fremst fólgin í kyngi-
krafti lýðræðishugsjónarinnar,
og meðfæddri frelsisþrá mann-
kynsins.
Þannig fórust þeim manni orð,
sem kommúnistar trúa fyrst og
fremst að fari rétt með, og hafi
verið maður til að kenna þeim
lífsspeki.
Skyldi það ekki vera næsta
augljóst mál, að Marx myndi nú
hafa talið eðlilegt að vestrænar
þjóðir leituðu samvinnu sín á
milli, til þess að freista að
stemma stigu fyrir yfirgangs-
stefnu Rússans, og vernda með
því lýðræðið og frelsi sitt.
Piltarnir, sem vörpuðu grjót-
inu inn í þingsalinn 30. marz,
munu vera aldir upp í þeim anda,
að trúa Karl Marx, sem alvitr-
um. En hann var þá ekki meira
hlyntur yfirgangsstefnu Rússa
en þetta. Og taldi það eðlilegt,
að lýðræðisþjóðir kæmu fyrir
sig vörnum.
Það má segja fyrir munn
þessara grjótelsku náunga, að
svo bregðast krosstré sem önn-
ur tré. Mbl., 31. júlí
Hvalveiðivertíðin í ár hefir
gengið ver en vertíð fyrra árs,
sagði Loftur Bjarnason, í sam-
tali við Mbl. í gær, en Loftur er
einn af stjórnendum Hvalveiði-
stöðvarinnar í Hvalfirði.
Frá því að vertíð hófst í apríl
mánuði s.l. hafa verið veiddir
168 hvalir alls. Eru nú fjórir
norskir hvalveiðibátar gerðir út
og er veiðin í ár því sem næst
helmingi minni á bát en í fyrra.
Norsku hvalveiðimennirnir
telja víst að minna sé um hval
við landið nú en í fyrra. Bát-
arnir hafa venjulega fengið
þetta einn og tvo hvali í för og
mest þrjá.’. Hvalveiðimiðin eru
djúpt út af Faxaflóa.
Bráðlega mun verða tekið til
notkunar við Hvalveiðistöðina
gæligeymzla fyrir hvalkjötið, á
þar að vera hægt að geyma um
30 smál. af kjöti í einu. Úr kæli-
húsinu, sem heldur ákveðnum
! kulda á kjötinu, fer það í hrað-
. frystihúsið. Mbl. 16. ágúst.
Prestskorning
í S.-Þingeyjarsýslu
í gær voru talin á skrifstofu
biskups atkvæði við prestskosn-
ingar í Skútustaðaprestakalli í
S.-Þingeyjars slu.
Umsækjandi var aðeins einn,
Hermann Gunnarson, cand.
theol.
Á kjörskrá voru 246 kjósend-
ur, en 152 greiddu atkvæði.
Umsækjandinn var löglega
kosinn með 143 atkvæðum, en 9
seðlar voru auðir.
Mbl. 4. ágúst
Minnist
BCTCL
í erfOaskrám y5ar
JOHN J. ARKTJE
Opiometrist and Optician
(Eye* Kxunlned)
Phone 95 650
MITCHELL COPP LTD.
FORTAOK AT HABORAVK
The Swan Manufacluring Co.
Oor. ALEXANDKR and ELIiEN
Pbone 22 641
Halldór M. Swan eigandl
Heimili: 912 Jessie Ave — 46 958
Bus. Phone 27 989—Res. Phone 36 151
Ravaizos Flower Shop
Our Specialties:
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGNS
Mrs. S. J. Ravatzos, Proprietress
Formerly with Robinson & Co.
253 Notre Dame Ave.
WINNIPEG MANITOBA
THAT'S RIGHT!
Time to Stock Up on
WESTINGHOUSE LAMPS
Put a Westinghouse lamp in every socket in
your home! Then you’ll have lots of good
light throughout the Fall and Winter months.
Light that lasts longer, stays brighter.
You can order Westinghouse lamps from
your City Hydro meter reader, bill deliverer
or collector. Have them sent C.O.D. or
charged to your monthly light bill.
----CITY HYDRO-----------
Porlage and Kennedy Phone 848 131