Lögberg - 08.09.1949, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 8. SEPTEMBER, 1949
3
A.H U©AA4AL
LVENINA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
ÞÁTTASKIL
Þegar ég leit út um gluggann
í morgun, sá ég að haustið er í
þann veginn að ganga í garð.
Norðan svali blés inn um opinn
gluggann; laufin á trjánum eru
rétt að byrja að skipta um lit;
hópur fugla var á flugi í suður-
átt.
Þegar þessi þáttaskipti eiga
sér stað í ríki náttúrunnar verð-
ur manni ljóst hve margt er líkt
með árstíðunum og hinum ýmsu
tímabilum í ævi mannsins —
vorinu og æskunni; sumrinu og
fullorðinsárunum; haustinu og
miðaldursáfunum; vetrinum og
ellinni.
Hamingja mannsins er mikið
undir því komin hvernig hon-
um gengur að sætta sig við
þessar breytingar; hvernig hann
innir af hendi það hlutverk, sem
hvert tímabil krefst af hans
hálfu.
Vorið — æskan er aðallega
tímabil hins líkamlega þroska.
Á næsta tímabili, fullorðinsár-
unum, er mestallri orku manns-
ins beitt að hinni daglegu at-
vinnu til að tryggja sér stöðu í
félagslífinu, koma á stofn heim-
ili, ala upp börn og mennta þau
og bæta efnahag sinn. Þetta er
nauðsyn og í samræmi við nátt-
úrulögmálið.
En svo kemur haustið áður en
varir, og í skammsýni okkar
kvörtum við og kveinum yfir
þessari breytingu; horfum til
baka til alls þess, er sumarið
hafði að bjóða með svo miklum
söknuði, að við áttum okkur
ekki á að haustið býður okkur
ný viðfangsefni og nýtt líf.
Mannveran er ekki aðeins
skepna; hún hefir einnig sál. —
Vorinu og sumrinu — æskunni
og fullorðinsárunum mætti líkja
við hinn líkamlega þroska og
hina ytri og efnalegu framsókn
mannsins. En þegar haustið kem
ur, miðaldursárin, rumskast sál-
in; hið nýja tímabil, sem nú
hefst í ævi mannsins krefst þess
að hann leggi aðaláherzluna á
hinn andlega þroska sinn.
Þeir, sem ekki vilja sjá að nú
eru komin þáttaskil; þeir, sem
ekki vilja sinna köllun sálarinn-
ar; þeir, sem enn vilja halda
dauðahaldi í sumarið og verk-
efni þess, lifa ekki í samræmi
við lögmál lífsins, og sá, sem er
ekki í samræmi við þróun lífsins
getur ekki náð þeim þroska, sem
honum hefir verið áskapaður né
verið ánægður.
Það eru ótrúlega margir, sem
eiga örðugt með að átta sig á
því að á þessum tímamótum
hefst alveg eins mikil breyting
eins og þegar þeir fluttust af
æskuskeiði til fullorðinsára og
viðhorf þeirra til lífsins verður
því að breytast. Margir vilja
halda áfram í sama hjólfarinu;
einbeita allri hugsun að hinni
daglega vinnu og allri orku sinni
til þess að afla efnislegra gæða.
Þeir hlýða ekki kalli sálarinnar
og í stað þess að þroskast, standa
þeir í stað eða fara minkandi
andlega.
Á þessu nýja tímabili er nauð-
synlegt að eignast ný áhugamál,
beina hugsuninni að leyndar-
dómum mannlífsins, opna augu
og eyru fyrir fegurðinni í ríki
náttúrunnar og í heimi listar-
innar; leitast við að beita hug-
viti sínu, listrænni eða hagri
hönd við ýms verkefni.
Þegar Benjamín Franklín
varð miðaldra, ráðstafaði hann
atvinnu sinni þannig, að hann
fékk meiri tómstundir til vís-
inda og heimspekisiðkana.
Frönsku lærði hann eftir að
hann var kominn á efri ár. Hann
hafði aldrei notið skólamennt-
unnar en varð samt einn mennt-
aðisti maður þjóðar sinnar og
nýtasti þegn hennar. Hann mat
peninga einungis fyrir þær tóm
stundir, sem þeir veittu honum
til að sinna áhugamálum sín-
um.
En margur mun nú segja sem
svo að honum gefist enginn tími
frá því að afla sér og sínum lífs-
viðurværis. Þegar maður heyrir
slíkar viðbárur verður manni á
að hugsa um hina íslenzku land-
námsmenn Nýja íslands. Fátækt
þeirra og erfiðleikar eru öllum
kunnir. Ætla mætti að þeir
hefðu átt nóg með að afla hinna
frumstæðustu lífsnauðsynja —
fæðis, klæða og skýlis. En þeir
voru þroskaðir menn þeir skildu
það að maðurinn lifir ekki á
einu saman brauði. Þeir héldu
fundi og ræddu velferðarmál
sín, bæði hin efnislegu og and-
legu, og hin síðarnefndu ekki
af minna kappi, jafnvel þó þeir
ættu, svo að segja, ekki mat til
næstu máltíðar. Þeir mynduðu
þegar söfnuði, stofnuðu skóla og
komu á stofn blaði. Þeir unnu
ekki aðeins fyrir sér og sínum,
þeir gáfu sér tíma til að lifa. —
Hausttími ævinnar opnar
manninum nýja útsýn yfir lífið,
býður honum ótal ný viðfangs-
efni og getur orðið gleðiríkasta
tímabil ævinnar.
Elstu jarðarbúar
EFTIR CHRISTIAN SIVERTZ
Fyrir skömmu dvaldist ég
nokkrar vikur í San Francisco í
Kaliforníu og skoðaði þá meðal
annars nátúrusögusafnið, sem
er í Golden Gate Park.
Þar var margt merkilegt að
sjá og þar á meðal búta úr einu
af hinum heimsfrægu Seqoia
trjám, sem venjulegast ganga
undir nafninu Kaliforníu rauð-
viður. Nokkrum mánuðum fyr
hafði ég séð svipaðan trjábút í
Chicago — sennilega úr sama
tré — og fanst mér þetta svo
merkilegt að mér datt í hug að
menn vildu fræðast meira um
þetta, þar sem sjaldan mun hafa
verið minnst á Seqoia-trén í ís-
lenzkum blöðum.
Það sem hér fer á eftir er ekki
annað en afrit af þeim upplýs-
ingum, sem prentaðar eru og
liggja frammi í safninu gestum
til fræðslu. Mér var sagt, að
ekki væri hægt að fá þessar
prentuðu upplýsingar, en mér
væri velkomið að skrifa þær hjá
mér. Ég lét ekki segja mér það
tvisvar og þessar eru upplýsing-
arnar:
„Þessi bútur er sagður úr
stofni trés í Sequoia- National
Park. Eru þar þúsundir slíkra
trjáa, og mörg miklu stærri en
þetta var. Tré þessi vaxa um 30
mílur fyrir norðan og austan
Vaselia og liggur þangað ágæt-
ur vegur og er umhverfið undra
fagurt.
Tré það, sem þessi bútur er
úr, var 330 fet á hæð, 23 fet var
stofninn í þvermál neðst, 16 fet
í þvermál 15 fet frá jörðu og
11% fet í þvermál 50 fet frá
jörðu.
Tvær eru tegundir Sequoia
trjáa. Risatréð (Sequoia giantia)
og Rauðaviður (Sequoia semper
visen). Risatrén eru aðeins í
Sierra á mjóu belti og eitthvað
250 mílna löngu, og er um 5000
til 7500 fet yfir sjávarmál. Rauð
viðurinn vex aðeins í strandfjöll
unum, frá Monterey County
norður til Oregon. Á fyrri jarð-
öldum hafa trén vaxið miklu
víðar en nú. Steindar leyfar
þeirra hafa víða fundist, jafn-
vel langt norður frá. Nú vaxa
tré þessi hvergi í heiminum
Stærsta olíustöð, sem íslendingar
reisa, í smíðum í Laugarnesi
ÞAR ERU 10 OLÍUGEYMAR.
SEM TAKA 42.500 SMÁL.
Þessa dagana rís af grunni inni við Laugarnes, mesta oliustö,,
sem Islendingar hafa reist, olíutöð Olíuverzlunar Islands h.f. og er
búist við, að hún verði fullgerð að ári.
Er þarna verið að reisa 10 olíu-
geyma, er taka samtals 42,500
smálestir, og verður stöðin búin
öllum nýtízku tækjum, svo og
önnur mannvirki, er slíkri stöð
tilheyra.
Hröð vinnubrögð
Unnið er að smíði allra gey-
manna samtímis og eru sumir
þeirra langt komnir. Verkið var
fyrst hafið hinn 1. maí s.l., en
fyrsta platan var sett í geymana
26. júní, og hefir það því gengið
afbragðs vel, enda hafa vélsmiðj-
ur Reykjavíkur lagt hönd á
plóginn: Landssmiðjan, Stál-
smiðjan, Keilir, Hamar og Héð-
inn og smiðja Kristjáns Gísla-
sonar að nokkru leyti. Vinna þær
en eftirlit með verkinu af hálfu
þeirra allra, annast Hjálmar
Bárðarson verkfræðingur.
Feykilegt mannvirki.
Blaðamönnum var í gær boðið
að skoða mannvirkið, í fylgd
Hreins Pálssonar, forstjóra Olíu-
verzlunarinnar, enska verkfræð-
ingsins R. Hedley Sheldrakes,
sem hefir yfirumsjón með verk-
inu, auk fleiri verkfræðinga og
kunnáttumanna. Var þarna ys og
þys og mikill dynur í lofti, enda
munu þarna vera á annað hundr
að manns að verki og 40—45
lpgsuðuvélar. Geymarir eru 10
að tölu, eins og fyrr greinir, 7
stórir og 3 minni. Eru stóru geym
arnir 26 m. í þvermál og 13 metr-
ar á hæð og í hvern þeirra fara
um 150 smálestir af stáli. Nær
olíustöðin fullgerð yfir um 11
hektara lands. Verkið er unnið í
tveim áföngum, álíka mikið í ár
og á næsta ári.
Fjárfestingarleyfi hefir þegar
fengizt fyrir verkinu, nema hinni
fyrirhuguðu bryggju, er þarna á
að ganga í sjó fram, en þar til
hún kemur, verður notazt við
neðansjávarleiðslu út íolíuskipin
nema í Californiu og suðurhluta
Oregons.
Þetta eru elztu tré í heimi. í
tré, sem fellt var í Convesegrave
austur af Fresno árið 1892, voru
árhringarnir nákvæmlega tald-
ir og reyndist það 3210 ára gam-
alt. Það hefir því verið 1300 ára
þegar Kristur fæddist.
Tré það, sem þessi bútur er
af, var fellt veturinn 1917—’18
og var þá 1710 ára gamalt. Þeg-
ar Kolumbus fann Ameríku hef
ir það verið voldugt tré, 300
feta hátt og 22 fet í þvermál,
enda 1275 ára gamalt“.
Samkvæmt þessu hefir tréð
skotið upp kollinum árið 207.
Það var því til nokkru fyrr en
Gotar lögðu undir sig rómverska
ríkið. Það hefir verið 660 ára í
þann mund er ísland byggðist
og nær 800 ára þegar Leifur
heppni fann Ameríku.
Lesbók Mbl.
fyrir utan, er verður lagt við
trausta stjóra á sundinu.
Leiðsla að Klöpp.
Olíuleiðsla verður lögð frá
hinni nýju stöð að olíustöðinni á
Klöpp og olíunni dælt þangað og
síðan fram í skip, en síðar verður
Klapparstöðin eins konar milli-
liður hinnar nýju stöðvar og
hafnargarðsins. Leiðsla þessi
verður um 2Vz km. að lengd.
Auk geymanna verða þarna
reistar ýmislegar byggingar, svo
sem ketilhús, dæluhús, rafstöð,
bílskúrar, verkstæði, skrifstofu-
bygging, kaffistofa starfsfólks o.
s. frv.
Byggingarfélagið Brú annast
aðrar framkvæmdir en stálvinn-
una.
Góð samvinna.
Hinn enski verkfræðingur
Sheldrake, lauk miklu lofsorði á
góð vinnubrögð og ekki sízt vin-
samlega samvinnu bæjaryfir-
valdanna, slökvistjóra, hafnar-
stjóra, rafmagnsveitunnar og
annara aðila, er hlut eiga að máli,
enda sagði hann, að annars hefði
ekki verið unnt að áorka eins
miklu á svo skömmum tíma, sem
raun ber vitni.
Ekki þarf að taka fram, að
stöðin verður vel úr garði gerð,
ef illa tækist til og sprengingar
yrðu í einum eða fleiri geym-
anna, varnargarður umhverfis
alla geymanna og auka-garður
um þá, sem hafa eldfimast efni
inni að halda. Er þetta gert í sam-
ráði við slökkviliðsstjóra.
Vísir, 13. apríl
Hveitiuppskeran í ár
Kornslætti og þreskingu í
Sléttufylkjunum er nú víða um
það bil að vera lokið; jafnbezt
hefir hveitiuppskeran orðið í
Manitoba, og veður um þresk
ingartímann með allra hagstæð-
asta móti.
Staðhæft er að hveitiuppskera
Sléttufylkjanna muni verða um
364 miljónir mæla.
Friðarstarf S.Þ.er þegar
orðið mjög árangursríkt
(Frh. aj hls. 2)
ríkjanna. í ár voru nýjar skrif-
stofur opnaðar í Sydney, Cairo
og Buenos Aires.
Fjárlög Sameinuðu þjóðanna
fyrir 1950 eru áætluð 44,3 millj.
dollara, eða um 800.000 dollur-
um hærri en í ár.
Unnið er að byggingu nýrra
aðalbækistöðva í New York, en
í þær verður ekki hægt að flytja
fyrr en 1951. Stjórnarbyggingin,
sem er 39 hæðir, á að vera full-
gerð í janúar 1951.
Mbl., 16. ágúst.
Business College Education
In these modern times Business College
Education is not only desirable but almost
imperative.
The demand for Business College Educa-
tion in industry and commerce is steadily
increasing from year to year.
Commence Your Business Traininglmmediately!
For Scholarships Consult
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
PHONE 21 804 695 SARGENT AVE., WINNIPEG
Business and Professional Cards
SELKIRK METAL PRODUCTS LTD.
Reykháfar, öruggasta eldsy'örn,
og ávalt hreinir. Hitaeining, ný
uppfynding, sparar eldiviC,
heldur hita.
KKLX.Y SVKINSSON
Slmi 64 358.
187 Sutherland Ave., Winnápeg.
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh St. Winnipeg
Phone 924 624
PARKER, PARKER
& KRISTJANSSON
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadian Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg, Man. Phone 923 561
JOHN A. HILLSMAN.
M.D.. Ch. M.
332 Medical Arts. Bldg.
OFFICE 929 349 Home 403 388
Office Ph, 925 668 Res, 404 319
NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B.
Barrister, Soiidtor, etc.
411 Childs Bldg,
WINNIPEG CANADA
Alto
123
TENTH ST.
BRAN00N
447 Portage Ave, Ph, 926 885
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GBN. TRUST8
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
Phone 926 952 WINNIPEG
Talslmi 926 826 Heimili* 5*893
DR. K. J. AUSTMANN
Sérfrœðlngur < auona, eyma, ncf
oo kverka ajúkdómum.
209 Medical Arts Bldg.
Stofutlmi: 2.00 U1 5.00 e. h.
SARGENT TAXI
Phone 722 401
FOR QUICK RELIABLE
SERVICE
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPG.
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega penlngalán og eldsábyrgC.
bifreiSaábyrgC, o. s. frv.
Phone 927 638
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Wpg.
Phone 926 441
Phone 927 025
H. J. H. Palmason, C.A.
H. J. PALMASON & CO.
Chartered Accountants
305 Confederation Life Bldg.
Winnipeg Manitoba
Phone 49 469
Radio Service Speclallsts
ELECTRONIC LABS,
H. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
192 ERfN St. WINNIPEG
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
Löofrœ'ingar
209BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
Phone 928 291
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Netting
58 VICTORIA ST„ WINNIPEG
Phone 98 211
Manayer T. R. THORVALDSON
Your patronage wlll be appreciated
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE, Managing Dlrector
Wholesale Distributors of Fraeb
and Frozen Fish.
311 CHAMBER8 STREET
Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr.
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLK, Slmi 925 227
Wfholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
DR. ROBERT BLACK Sérfrœöingur i augna, eyma, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrlfstofusfmi 923 851 Helmasfml 403 794
EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N. DAK. islenzkur Xyfsali Fölk getur pantaö meöul og annaö meö pösU. Fljðt afgreiösla.
A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá beztl. Ennfremur selur hann allskonar m'lnnisvaxöa og legsteina. Skrifstofu talsími 27 324 Heimilis talsfmi 26 444
Cars Bought and Sold
SQUARE DEAL
MOTOR SALES
"The Working Man’s Friend"
Bi. ,,■<! 297 Princbss STRKirr
rn. /0404 ffaif Block N. Logan
Phone 21101 ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Asphalt Roofs and Insulated
Siding — Repairs
632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
606 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Teiephone 202 398
Phone 724 944
Dr. S. J. .Jóhannesson
SUITE 6 — 652 HOME ST,
ViÖtalatlmi 3—6 eftir hAdegri
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk. Man.
Offloe hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Office 26 — Res. 230
Office Phone Rea Phone
924 762 726 115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment