Lögberg


Lögberg - 29.09.1949, Qupperneq 4

Lögberg - 29.09.1949, Qupperneq 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGT.NN, 29. SEPTEMBER, 1949 Eogbcrg GefiC út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN. PHONE 21 804 Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and publiehed by The. Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa MIKILVÆGUR OG SÖGURÍKUR ATBURÐUR Á næsta hausti verður landnám íslendinga við Winnipegvatn sjötíu og fimm ára gamalt, og má víst telja að^þess verði að makleikum minst á sem allra veglegastan og eftirminnilegastan hátt; saga þess, þótt henni í einu og öðru kunni að vera áfátt, hefir verið skráð, og er slíkt óneitanlega þakkarvert; frum- býlingsár íslendinga í þessu landi, voru stimpluð svita og tárum; þau voru saga þeirra bitrustu eldrauna, er íslenzkt mannfélag nokkru sinni hefir horfst í augu við, þar sem allsleysið og plágurnar héldust í hendur; en þau voru líka prófsteinn á íslenzkt manngildi, þar sem hinn vígði þáttur norræns táps og stæltrar hetju- lundar gekk sigrandi af hólmi; nú hefir eldraunasagan umskapast í glæsilegq, sigursögu, eins og frjálsmann- legar fylkingar manna og kvenna af íslenzkum stofni í landnámi frumherjanna, bera glögg merki um; nú blasa við, svo að segja í hvaða átt, sem litið er, reisu- leg nýtízku heimili með gróðurþrungin akurlendi á all- ar hliðar; yfir landnáminu í Nýja-íslandi hvílir fagur og vingjarnlegur menningarbragur, sem spáir góðu fyrir um framtíðina; fólkið er hamingjusamt Canada- fólk, þótt það jafnframt sé minnugt uppruna síns og ættar. Að afmælisins verði glæsilega minst, er hvorki meira né minna, en óumflýjanleg ræktarskylda. Íslendingadagurinn átti sextugsafmæli á líðandi sumri, og var þess minst með afarfjölmennu og virðu- legu hátíðahaldi þann 1. ágúst á Gimli; um undirbún- ing allan, venju samkvæmt, annaðist íslendingadags- nefndin, er leysti starfið af hendi með prýði, hvað sem þökkum eða vanþökkum leið. — Á öðrum stað hér í blaðinu er þess getið, að ís- lendingadagsnefndin haldi ársfund í Goodtemplara- húsinu á mánudagskvöldið þann 3. október næstkom- andi; um mörg undanfarin ár hafa ársfundir íslend- ingadagsnefndarinnar verið svo slælega sóttir, að til vanvirðu má teljast; slíkt má ekki lengur svo til ganga; sóma síns vegna, verða íslendingar nú að rakna úr rotinu og fjölmenna svo á áminstan ársfund, að kosn- ing stjórnarnefndar verði að minsta kosti framkvæm- anleg. íslendingar verða að taka höndum saman og leggj- ast á eitt um undirbúning sjötíu og fimm ára land- námshátíðarinnar næsta sumar, svo að hún verði í einu og öllu samboðin minningu hinna brattsæknu og djörfu, íslenzku frumherja, er helguðu krafta sína því veglega hlutverki, að breyta vestrænni villimörk í blómgaðan akurteig. ☆ ☆ ☆ ÚRVALS RÁÐUNEYTI Hið nýja St. Laurent ráðuneyti getur lítið fært sér til afsökunar, reynist það þess eigi umkomið, að ráða fram úr þeim vandamálum, er það nú hefir til með- ferðar; og víst er um það, að minsta kosti næstu tvö til þrjú árin, stendur það drjúgum betur að vígi, en nokkrir af fyrirrennurum þess; nú verður því eigi um kent, að andúðaröfl frá Qubebec stemmi stigu fyrir framgangi nýtra þingmála, né heldur að ráðuneytið eigi í höggi við andvíga efri deild; um þingfylgi stjórn- arirfnar í neðri málstofunni er það að segja, að er alveg sérstætt í sinni röði Það var ekki einasta, að núverandi forsætisráð- herra fengi svo að segja einhliða þingfylgi ættbræðra sinna í Quebec, heldur varð niðurstaðan nálega hin sama alt yfir landið; aðstaða stjórnarinnar er slík, að hún getur fyrirhafnarlítið hrundið í framkvæmd hverju einasta áhugamáli sínu hvort heldur um innanríkis- mál ræðir, eða meðferð hinna vandasömustu utan- ríkismála; í þessu er hún eigi aðeins sjálfri sér nóg, heldur getur hún hlutast til um framkvæmd og mála- forustu að eigin vild. Núverandi sambandsráðuneyti er skipað einvala liði; það nýtur enn fulltingis sinna reyndustu manna, svo sem þeirra C. D. Howe og James J. Gardiners, auk þess sem því hafa bæzt frábærir, nýir starfskraftar, þar sem þeir Lester B. Pearson, Mr. Lapointe og Mr. Winter eiga í hlut; um ráðuneytið í heild, má réttilega segja, að þar sé valinn maður í hverju rúmi, og hefir slíkt þá jafnan þótt góð skipshöfn, er svo var ástatt. Nú hefir stjórnin, eins og þegar er vitað tekið það ráð, að fella canadíska dollarinn í verði, og hefir það fram að þessu valdið litlum mótmælum; verðfellingin nemur 10 af hundraði; þetta hefir þegar leitt til þess, að matvara hefir hækkað í verði um 3 af hundraði, og líkur á, að ekki verði þar við setið; það liggur í augum uppi, að þetta hljóti að koma óþægilega við láglauna- stéttirnar og blessað gamla fólkið, sem ekki hefir ann- að en ellistyrkinn til að styðjast við. í þessu efni er auðsæilegra úrbóta þörf, sem ekki ættu að dragast á langinn. Frá Vancouver B.C, 16. september 1949. Hér hafa verið óvanalega miklir hitar í seinni tíð og aftur farnir að gjósa upp skógareldar á ýmsum stöðum í fylkinu, og nú lítur út fyrir að skógarhöggs- vinnu verði hætt, þar til rignir aftur á þeim svæðum, sem eld- arnir ge’ysa. Það er nú kominn sá tími árains, að haustið og vot- viðrin eru í nánd, og þá fer öll skógarvinna á stað aftur og taf- arlaust. Lögbergi frá 1. sept. var sér- staklega vel tekið hér í Van- couver. „Bezta blaðið, sem þeir hafa gefið út í mörg ár“, var sagt áf mörgum. Svona eiga blöðin að vera fréttir frá Mountain N. D., Blaine Wash., Vancouver B. C. og Glenboro Man. Nú er vonandi að það verði framhald á þessu, og að nokkrir fleiri úr öðrum byggðarlögum íslendinga bætist við. Með því eina móti geta blöð- in verið tengiliður á milli hinna ýmsu byggða fslendinga. Land- ar góðir, þið sem hafið svo vel byrjað að skrifa fréttir til blað- anna, látið það ekki verða enda- slept, haldið því áfram í fram- tíðinni. Það má teljast sem rót- tæk þjóðræknisstarfsemi. Seinustu fréttir frá Queen Charlotte eyjunum í British Columbía, skýra frá því, að jarð- skjálftinn sem þar varð nýlega, (22. ágúst), hafi gjört mikið meiri skaða en haldið var. Fréttir frá Cumshews Inlet í B. C. segja að Aero Logging Company hafi beð ið mörg þúsund dollara skaða, sem þessi jarðskjálfti orsakaði. Þar hrundi að grunni sínum olíu geymir, (Tank) og laskaðist svo, að 14.000 gallons af olíu runnu niður á jörðina. Líka eyðilögðust bryggjur og hús á þeim svæðum meira og minna. Svo féllu skrið- ur úr fjöllunum í kring, sem gerðu víða skemmdir. Þann 20. ágúst var þeim Mr. og Mrs. Rögnvaldi Sveinsson haldið fjölment og virðulegt sam sæti að 6130 Cypress Street. Voru það venzlamenn og vinir þeirra hjóna, sem stóðu fyrir því. Komu þar saman á annað hundr- að manns. Dr. H. Sigmar stjórn- aði samkvæminu með sinni vel- þekktu lægni við slík tækifæri. Aðalræðumaðurinn var séra Al- bert Kristjánsson frá Blaine, Wash. Til skemmtunar var söng- ur og hljóðfærasláttur, frumort kvæði fluttu þeim, góðskáldin okkar, Páll Bjamason og J. S. frá Kaldbak, og margt fleira var þar á dagskrá. Að endingu þakk- aði heiðursgesturinn fyrir þann heiður og vinfengi, sem þeim hjónum væri sýnd, var ræða hans krydduð fyndni og gaman- yrðum, sem hann er velþekktur fyrir. Allir, sem tóku þátt í þessu samsæti, eru sammála um að það hafi verið ánægjulegasta og skemmtilegasta samsæti, sem þeir hafi verið í. Þann 4. október n.k. verður elliheimilið „Höfn“, tveggja ára gamalt og ætlar elliheimilis- nefndin að minnast þess, og hefir stofnað til þess að haldin verði veizla og skemmtisamkoma þann dag, í „Hastings Auditorium“, kl. 7 síðdegis. Skemmtiskráin verður margþætt, og vandað þar til eftir beztu getu. Að endingu verður stiginn dans til miðnætt- is. Aðgöngumiðar að samkom- unni eru á $1.50, og gengur allur ágóði af samkomunni í Elliheim- ilissjóðinn. Nefndin óskar að þessi samkoma verði vel sótt. Með því að sækja samkomuna, skemtið þið ykkur vel og um leið styrkið þið þessa veglegu stofnun, elliheimilið „Höfn“. Það mun vera ákvárðað af nefnd inni, að þessar afmælissamkom- ur heimilisins verði haldnar ár- lega til ágóða fyrir heimilið. Barnaskólarnir voru opnaðir hér, eins og til stóð, þann 6. sept- ember, jafnvel þó að lömunar- veikin sé ekki mikið að réna enn þá. 122 manns þafa verið hér á sjúkrahúsum, sem hafa tekið þessa veiki, þegar þetta er skrif- að. Skólastjórn borgarinnar var- ar fólk alvarlega við því, að senda ekki börn á skólana, sem eru nokkuð lasin, og kalla strax á læknir til að gefa álit sitt um lasleika barnsins. Það verður gjört allt sem mögulegt er að gjöra til að varna því, að veikin breiðist út. Um 40.000 ungmenni hafa innritast við skóla borgar- innar í þetta sinn. Nú er byrjað á að bora eftir olíu hér á vesturströndinni í British Columbía. Er það á Gra- hameyjunni, einni af Queen Charlotteeyjunum. Það er „Roy- alite Oil Company“, sem stend- ur fyrir því. Það félag var eitt af þeim félögum, sem fyrst fann olíu í Turner Valley í Alberta og víðar í því fylki. Sagan segir, að S. F. Heard forseti' Royalite félagsins hafi fengið leyfi hjá stjórninni í British Columbía til að leita eftir olíu á 220.000 ekr- um á Grahameyjunni. Sérfræð- ingar, sem félagið hefir haft þar norður frá til að leita að olíu á þeim svæðum, þykjast vissir um að olía sé þar í jörðu. Þeir hafa fundið olíu fljóta ofan á sjónum þar víðsvegar, sem þeir segja, að hljóti að koma frá hæðunum þar í kring, og þykir það svo lík- legt, að svo sé, að félagið vatt strax bráðan bug að því að fá leyfið hjá stjórninni, og er nú þegar farið að vinna þarna. Það er mikilsvert fyrir British Col- umbía ef þarna finnst olía heima fyrir, áður hefir mikið af olíu verið flutt inn í fylkið frá Cali- fornía og víðar langt að. Getur þetta orðið mikill tekjuauki fyr- ir fylkið, og einnig veitt atvinnu mörg hundruð manns. Magnús Elíasson er komin til baka úr ferðalagi til 'Toronto og Montreal. 1 Toronto mætti hann á ársþingi „Canadian Federation for the Blind“, sem erindreki þess félagsskapar í British Col- umbía. Flutti hann þar erindi og tók þátt í ræðuhöldum, sem þar fóru fram. Er kosningar fóru fram var Magnús kosinn vara- forseti þessa félagsskapar. Frá Toronto fór hann til Denver í Colorado U. S. A. og mætti þar sem erindreki frá „The Can- adian Federation for the Blind“ á ársþingi „The National Feder- ation for the Blind“, í Banda- ríkjunum. Magnús stóð við einn dag í Chicago og gisti hjá Agli Anderson lögmanni, sem sýndi honum borgina eins og tími vanst til. Mr. Anderson er hálf bróðir G. F. Gíslason hér í borg. Dr. Nína Paulson (Dentist) frá Bremerton Wash., auglýsti að hún ætlaði að sýna myndir frá íslandi á Höfn þann 27. ágúst s.l. Rétt þegar fólk var að koma á samkomuna, kom skeyti frá Dr. Paulson þess efnis, að hún gæti ekki komið á samkomuna, vegna einhverrar, tálmunar sem hún gat ekki ráðið bót á. Um 50 manns, auk vistmanna, voru þar samankomin til að sjá myndirn- ar, sem eflaust hafa orðið fyrir vonbrigðum er það fórst fyrir, en það rættist vel fram úr því, er fólkið hafði rabbað saman um stund sér til skemmtunnar, sett- ist Mrs. H. Sigmar við hljóðfær- ið og sló þar á nokkrar nótur, þá flyktust allir þar að og hófst þar glymjandi söngur, fór þessi skemmtun fram um stund. Þá kom þar fram 10 ára gömul stúlka, Eunice, dóttir þeirra Mr. og Mrs. G. G. Gíslasonar. Er hún þó ung sé, orðin þaulæfður fim- ieikari (Acrobat, sýndi hún ýms- ar kúnstir um stund og þótti það góð skemmtun. Seinast komu konurnar með kaffi og alslags sælgæti, sem þær höfðu búið sig út með, eins og hvern lysti. Séra Albert Kristjánsson mess aði á „Höfn“ þann 11. september. Margt aðkomandi fólk sótti mess una, svo það varð húsfyllir. Mrs. Gail Johnson aðstoðaði við hljóðfærið. Eftir messuna buðu Guðrún Tómasdóttir Johnson „Kona, sem er góð eiginkona, og góð móðir, er virðingarverð- ari persóna en nokkur önnur“. Þessi orð Theodórs Roosevelt forseta koma mér í hug, þegar ég hugsa um Guðrúnu Tómásdótt ur, því mér finnst að þau séu vel valin, og makleg yfirskrift yfir minningu þeirrar mætu konu. Ég ætlaði mér ekki að skrifa hóflaust hól, eða skjall, um þessa konu, því að ekkert hefði verið fjær vilja hennar sjálfrar, en ég vildi í allri hrein- skilni leitast við að draga fram nokkur lífseinkenni hennar, því þau eru hugljúf til umhugsunar og lærdómsrík til eftirbreytni. Guðrún var heilsteypt kona, hugsunin hrein, viljinn fastur og óbilandi, orðheldnin ábyggi- leg, trúmenskan traust, tilfinn- ingarnar næmar og skyldurækn in óþrjótandi. Þetta voru inn- stæðurnar, sem Guðrún átti, byggði líf sitt á, hélt fast við, og þroskaði alla ævi sína. Hún var landnámskona í þremur nýbyggðum íslendinga í Kanada, Þingvallabyggðinni og Qu’Apelle-byggðinni í Saskatc- hewan og Wild Oak — nú Lang- ruth-byggðinni í Manitoba svo hún fékk áreiðanlega að kenna á frumbýliserfiðleikunum, sem Islendingar urðu að ganga í gegnum á fyrstu árum sínum í þessari álfu, en hún tók þeim öllum með atorku, hugprýði og festu. Margt var það annað, sem kallaði að á þessum árum, en að ná fótfestu^ og afla sér til hnífs og skeiðar, eða það sem beint snerti heimilið, því allt líf íslendinga hér, verklegt og and- legt, varð að byggjast upp frá rótum. í athöfnum utan heim- ilisins tók Guðrún lítinn þátt annan en þann, að hún var með í þeim, sem henni þótti til upp- byggingar miða og styrkti þær peningalega eftir megni. Heim- Guörún Tómásdóttir Johnson ilið var ’hennar erksvið og þar var hún óskipt, að vaka yfir heill þess, prýða það og sjá það vaxa, ekki aðeins hið ytra, heldur líka að samúð og ylríki, það var henn ar yndi og aðaláhugamál og svo, þegar börnin komu, að vaka yfir velferð þeirra, yfir orðum þeirra og athöfnum, yfir fyrirmyndun- um, Sem fyrir augu þeirra báru, hugsunum þeirra og heilbrigði andlegri og líkamlegri. Slíkt var ævistarf Guðrúnar Tómásdóttur, og hún leysti það af hendi með þeirri prýði, sem að heilsteypt- um og hreinlyndum konum ein- um í Ölfusi, í sömu sýslu. Guðrún Tómásdóttir var fædd á Litlamóti í Flóa í Árnessýslu á íslandi, 26. september 1864. Foreldrar hennar voru hjónin Tómás Ingimundarson og Guð- rún Eyjólfsdóttir. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum, fyrst á Litlamóti og síðar á Egilsstöð- um í Ölfusi, í sýmu sýslu. Árið 1886, fluttist Guðrún á- samt foreldrum sínum og syst- kinum, Jóni, Eyjólfi, Bjarna, Guðfinnu, Ragnheiði, Katrínu og Guðrúnu (yngri) til Kanada og tóku foreldrar hennar land í konurnar, sem þar voru að kom- andi, öllum inn í borðsalinn, þar sem þær veittu öllum kaffi og alslags góðgæti. Þegar því var lokið, leið öllum svo vel, að eng- inn bjóst til brottferðar. Mrs. Gail Johnson settist þá við hljóð færið, og allur hópurinn í kring um hana. Og byrjaði þá strax söngur, sem allir tóku þátt í, bæði þeir sem gátu sungið og eins hinir, sem ekki gátu sungið, voru samt með. Svo hér hófst nokkurskonar „Song Festival“. Allt voru það íslenzk lög, sem sungin voru og var það góð skemmtun fyrir alla. Um kl. fimm fór aðkomufólkið að leggja af stað heimleiðis. Það lét í ljósi, að það hefði haft hér ánægju- lega og skemmtilega dagstund. Kvæðið, sem J. S. frá Kald- bak, flutti á Islendingadaginn í Blaine, hefir verið þýtt á ensku, og hefir það vakið nokkra eftir- tekt á meðal enskumælandi fólks. Hinn alkunni rithöfundur og „Columnisti“ fyrir Vancouver „Sun“, (Elmore Philpött), hefir bent á þetta áhrifa mikla kvæði í dálki sínum í „Sun“. Hann tek- ur upp í grein sína nökkrar fyrstu ljóðlínurnar í þessu kvæði og óskar þess, að hann hefði get- að birt kvæðið í heild sinni, en rúmið leyfði sér það ekki. Þetta er í annað sinn, sem kvæði eftir J. S. frá Kaldbak, hefir vakið eftirtekt, og verið tekið til um- ræðu í dagblöðunum í Van- couver. Þetta kvæði hefir verið birt í Voröld og Heimskringlu. Donald, sonur H. I. Johnson í Haney B. C. meiddist talsvert í bílslysi nálægt Haney nýlega. Hann hefir verið á sjúkrahúsi hér í borginni og er á batavegi. Mrs. Wm. Mooney varð fyrir því slysi að handleggsbrotna fyr- ir nokkru síðan, er hún orðin næstum albata. Mr. og Mrs. Gunnlaugur Holm eru komin heim úr ferðalagi sínu til Winnipeg og víðsvegar í Nýja íslandi. Þau áttu þar heimili um langt skeið, og eiga þar marga (Frh. á bls. 8) Þingvallanýlendunni, en Guð- rún ásamt systrum sínum varð eftir í Winnipeg, þar sem hún tókst á hendur heimilisþjón- ustu í nokkur ár, eins og flestar íslenzkar stúlkur gerðu á þeirri tíð, sem nýkomnar voru að heim- an. Árið 1890 kvæntist hún Jón- asi Jónssyni frá Árhrauni á Skeiðum á íslandi, mesta mynd- ar og athafna manni. Þau áttu eina dóttur, sem þau misstu á fyrsta ári, og eftir tveggja ára sambúð missti hún mann sinn, Jónas. Árið 1896 kvæntist Guðrún í annað sinn Böðvari Jónssyni frá Auðsholti í ölfusi í Árnessýslu á Islandi, framsæknum, dugn- aðar og drengskaparmanni og fluttu þau hjón þá strax til Lang ruth í Manitoba, þar sem Guðrún hóf landnámsstörf sín í þriðja sinn, og bjó til æviloka. Þau Böðvar og Guðrún áttu níu börn. Tvö þeirra misstu þau á fyrsta ári, og einn son, Harald, sem varð fyrir slysi í korn- hlöðu í bænum Langruth, þar sem að hann vann, mannvænleg- an atorku og efnismann. Sex börn þeirra eru á lífi hvert öðru myndarlegra. Jónas ógiftur og á heima í Langruth. Tómás gift- ur íslenzkri konu í Langruth. Archibald giftur Sveinbjörgu Rawkelsdóttur. Ingibjrörg gift William Lundal í Chicago, Krist ín gift H. G. Sigurðssyni í Winni- peg. I Wild Oak breyttu þessi hjón, auðninni í blómlega akra, reistu sér heimili, sem er fyllilega sam bærilegt við fullkomnustu bændaheimili hér vestrá' í sveit- um íslendinga og bjuggu rausn- arbúi í meira en hálfa öld. Guðrún lézt á heimili sínu 20. ágúst 1949 og var sungin til jarð- ar af Rev. P. C. Base, sem á heima í Portage Laprairie, 22. sama mánaðar í grafreit Islend- inga í Langruth-byggð. J. J. B.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.