Lögberg - 05.01.1950, Síða 4

Lögberg - 05.01.1950, Síða 4
4 WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 5. JANÚAR, 1950. Hogbcrg GefiC Qt hvern fimtudag af THE CGLUMBIA PRESS LIMITED «9« barobnt avenue, winnipeg, manitoba Vtandskrift ritstjórans: EDITOR ) ÖGBERG, 696 SARGENT AVENUE. WINNIPEG, MAN. PHONE 21 804 Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið—Borgist fyrirfram The "Lögberg” ia printed and published by The Columbia Press Ltd. 69 5 Sargent Avenue, Winnipeg, Manltoba, Canada. Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa ÞÁTTASKIL Eiitt af öðru hverfa þau, árin, út í blámóðu eilífð- anna og eiga ekki afturkvæmt, en einhverjum minnis- merkjum skolar þó jafnan upp á fjörur tímans, og víst er um það, að minningarnar vaka. Árið 1949, sem nú hefir sungið sitt síðasta vers, var viðburðarríkt um margt; í þessu fagra landi varð liið nýliðna ár í orðsins fylztu og fegurstu merkingu, bless- að og farsælt ár; auðæfi lands og sjávar miðluðu cana- dísku þjóðinni ríkulega úr skauti sínu, og í landinu ríkti atvinnufriður sem þá, er bezt gerist. Almennar kosningar til sambandsþings fóru fram, eins og vitað er, í júnímánuði síðastliðnum, og lauk þeim með eftirminnilegum sigri fyrir Liberalflokkinn undir forustu hins nýja og víðskygna leiðtoga sfns, Louis St. Laurents; enn sem fyr sannfærðist þjóðin um það, að Liberalstefnan væri hin sanna jafnvægisstefna, þar sem siglt væri heilu og höldnu framhjá blindskerj- um tveggja öfga, er báðar miðuðu að glundroða í þjóð- félaginu; að með Liberalstjórn við völd væri þjóðein- ingunni bezt borgið. Þau tíðindi gerðust og á nýafstöðnu sambandsþingi, að mikilvægri breytingu á stjórnskipulögum landsins var hrundið í framkvæmd varðandi fullveldi þjóðarinn- ar; hæztiréttur Canada var gerður að æðsta dómstóli hinnar canadísku þjóðar, en með þeirri ákvörðun lýkur áfrýjun mála héðan úr landi til hæztaréttar Breta, og upp frá þessu getur sambandsþing á eigin ábyrgð breytt eins og þurfa þykir stjórnskipulögum þjóðarinnar varð- andi þau mál, er sérstaklega heyra undir verksvið sam- bandsstjórnar; þann 10. yfirstandandi mánaðar hefst í Ottawa fundur milli sambandsstjórnarinnar annars vegar og stjórna hinna einstöku fylkja hins vegar, þar sem ræddar verða tillögur og ákvarðanir teknar lút- andi að væntanlegum stjórnskipulagabreytingum, með hliðsjón af réttarfarslegri afstöðu fylkjanna gagnvart æðstu stjórn landsins. Á vettvangi utanríkismálanna lét Canada allmikið til sín taka á liðnu ári, og má meðal annars leiða athygli að því, að á þingi sameinuðu þjóð- anna í Lake Success, var utanríkisráðherrann, Lester B. Pearson, kjörinn formaður hinnar pólitísku nefndar og leysti þann vandasama starfa af hendi með slíkri rögg og slíkri háttvísi, að aðdáun hvarvetna vakti; út frá þessu, eins og reyndar svo mörgu öðru í athafna- og þróunarsögu þjóðarinnar á hinu nýliðna ári, stafar fögrum bjarma, sem þjóðin í heild fagnar yfir og ornar sér við.----- Hið nýhafna ár er enn eins og reifabarn í vöggu, og svo að segja alt enn á huldu um þær brautir, er.það kann að beinast inn á; en með hliðsjón af því liðna, er vissulega einfalt og eðlilegt, að menn spyrji sjálfa sig: „Höfum vér gengið til góðs götuna frameftir veg?“ Nú um áramótin er þegar farið að brydda á ískyggi- legu atvinnuleysi í þessu auðuga og frjósama landi, er mest kveður að í Ontario og British Columbía eins og sakir standa; slíkt verður ekki auðveldlega réttlætt, og þess að vænta, að stjórnarvöld og iðjuhöldar skerist röggsamlega í leikinn og fyrirbyggi útbreiðslu slíks ó- fagnaðar, enda nóg verkefni fyrir hendi, sem gera má skil til framtfðarþrifa. Skammdegið er um garð gengið, og nú lengist hver dagur að minsta kosti um hænufet, og senn verður bjart um alt loft; megi hið unga ár flytja öllum börnum jarðar iífshamingju og frelsandi frið! ★ ★ ★ Tuttugasta öldin er í þann veginn að verða hálfnuð; hið nýbyrjaða ár, er síðasta árið af fyrra helmingi henn- ar; margir og merkilegir atburðir gerast tíðum á skemmri tíma en hálfri öld, er víðtæk og varanleg áhrif hafa á þróun eða glapstigasögu mannkynsins; og víst er um það, að þó þróunarskrefin á áminstu tímabili yrði mikilvæg og mörg, snerist líka viðleitni mannanna í mörgum tilfellum upp í rammagaldur og harmleik; á- minstur aldarhelmingur hefir verið blóði drifinn og kost að hinar átakanlegustu fórnir; á hitt ber þó jafnframt að líta, að þær fórnir voru bornar fram til vemdunar lýðfrelsinu í heiminum með það fyrir augum, að koma í veg fyrir að ofbeldis og hermdarverkastfenan bæri sig- ur úr býtum í viðureign sinni og ofsókn gegn mannúðar- stefnunni, sjálfri lífsstefnunni; í tveimur heimsstyrjöld- um, sem hin hálfnaða öld var vitni að, mátti svo að orði kveða, að allar máttarstoðir siðmenningarinnar léki á reiðiskjálfi og að slökkt yrði á flestum vitum; en svo fór þó hér sem oftar, að hin góða dís, draumkona mann- kynsins hiR betri, vísaði veginn og beindi mönnum, að minsta kosti meiri hluta þeirra á þær vörður, er stefndu frá myrkri til ljóss. Hin tæknilega þróun, er fyrri helmingur tuttugustu aldarinnar hleypti.af stokkum á engan sinn líka í sögu mannkynsins, þó hún því miður yrði tvíeggjað sverð; en margt fyrirgæfist áminstum aldarhelmingi, ef hið síðasta ár hans svo gæti treyst stoðir sameinuðu þjóð- anna áður en því lýkur, að trygt yrði um varanlegan frið í mannheimi. GILS GUÐMUNDSSON: Upphaf Þegar hvítir menn komu fyrst til Ástralíu og tóku að kanna þá heimsálfu, fundu þeir meðal annars báta úr tréberki, sem frumbyggjar álfunnar notuðu mikið. Frumbyggjarnir losuðu börkinn af stórum trjám, lok- uðu endum barkarhólksins með viðarspeldum, — og þá var fleyt an fullsmíðuð. Síðan ýttu þeir á flot, settust upp í farkostinn og stjökuðu sér áfram rneð priki eða réru jafnvel með höndunum. Með þessum hætti komust þeir yfir vötn og lygnar ár og gátu einnig veiff skelfiska og önnur sjávardýr uppi við landsteina. Þarna var enn í notkun svo frumstæð fleyta, að naumast var hægt að kalla hana bát. Óralangt er bilið frá barkarnökkva þess- um og til eimdrekanna miklu, sem nú plægja úthöfin. Og þó má fullyrða, að sízt hafi þeir far kostir verið veglegri, sem for- feður okkar, hvítra manna, not- uðust við fyrir örófi alda. Að vísu má gera sér það í hugar- lund, að einhvers konar flekar hafi verið notaðir til fargreiða áður en nokkur sú fleyta verð til, sem bátsnafn verðskuldar. En skammt mun þó hafa verið komið sögu manns hins viti gædda, þegar hann tók að hola innan trjábút og ýta honum eða damla eftir ám og vötnum. Frumstæðir þjóðflokkar á eyj- um ýmsum í Kyrrahafi, Borneo, Sumatra og Java, notast enn í dag við mjög einfalda og auð- smíðaða báta, sem eru þó svo gerðir, að þejr þykja ótrúlega traustir og góðir í sjó að leggja. Aðalhluti bátsins er trjábútur, holaður innan, en samsíða bátn- um, í fimm til sex feta fjarlægð, er komið fyrir á bæði borð tveim öðrum trjábútum, álíka löngum, en grennri, til að koma í veg fyrir að báturinn velti. Þessi ein faldi útbúnaður gerir eintrján- inginn furðu stöðugan og góðan í sjó að leggja. Á slíkum bát má fara allra sinna ferða þótt mikil ylgja sé og jafnvel krappur sjór. Maður, sem kann að stjórna þess konar fleytu, er jafnöruggur og Eskimói í húðkeip sínum, því að viðarbútarnir, sem festir eru samsíða bátnum, mynda jafn- vægi og koma í veg fyrir að hvolfi. Bát þessum er auðstýrt siglinga með árum og hægðarleikur að sigla honum undan vindi. Að vísu er ekki hægt að koma þar fyrir margbrotnum seglabúnaði, en þurrkað skinn eða jafnvel strigamotta fest við krosstré, tekur nógu mikið á sig til þess, að báturinn skríði undan vindi. Það mun nú skoðun margra fræðimanna, að vagga skipagerð ar hafi staðið við strendur Asíu, en ekki við Níl eða Miðjarðar- haf, eins og löngum var talið. Víst er það, að Kínverjar kunnu til siglinga löngu á undan for- feðrum okkar, Evrópumanna. Fleyta Kínverjanna, sem junka nefnist er harla ólík vestrænum skipum. Sú skipagerð mun vera firnagömul, og er raunar líklegt, að junkan hafi engum höfuð- breytingum tekið um óralangt skeið. Og þessum sérkennilegu skipum, sem að stofni til eru aftan úr grárri forneskju, hefir á síðari tímum verið siglt yfir úthöf, jafnvel umhverfis jörðina, með strádúk í segla stað. Miklar siglingar Asíuþjóða löngu áður en Evrópumenn koma fram í birtu sögunnar, eru óvéfengjanleg staðreynd. Frá Suðurlöndum kom áttavitinn, sem gjörbreytti siglingum Ev- rópumanna á 14. öld. Með nokkru öryggi má benda til þess, þótt ekki sé það fullsannað, að hann sé kominn frá Kínverjum. En þótt sennilegt sé, að fyrstu skipagerðarmennirnir, sem það nafn eiga skilið, hafi átt heima við suður- og austurstrendur Asíu, eru heimilidir um þá og afrek þeirra nær engar til. Raun veruleg saga skipasmíða og sigl inga hefst því ekki fyrr en með Egyptum, Kríteyingum og Föni- kíumönnum. En frá Egyptum má rekja þessa merkissögu með allmiklum sannindum um ná- lega átta þúsund ára bil, þótt raunar verði að geta nokkuð í eyðurnar. Átta þúsund ár er langur tími. Hann er langur mið að við sögu mannkynsins, því reyndar vitum við harla fátt um mannskepnuna allan fyrri helm ing þess tímabils. En átta þús- und ár geta ekki heitið langur tími í hlutfalli við aldur manns- ins á jörðinni. Það er líka óefað, að menn hafa getað fleytt sér yfir ár og vötn á einhvers kon- ar farkosti, þúsundum ára áður en elztu heimildir greina frá. Ýmsir hafa gert sér það til gamans, að geta í þá eyðuna, hvernig manninum hafi fyrst dottið í hug að gera sér bát. Lengi vel var þeirri skoðun mjög á lofti haldið, að útþrá og ævin- týralöngun hafi þar miklu ráð- ið þar miklu um. Skáldlega sinn aðir menn lýstu því með inn- fjálgum orðum, hversu eyjarn- ar úti fyrir ströndunum hafi heillað og seitt. Það er sagan um Ódyseif og Iþöku, draumalandið úti í sænum, sem sögð hefir ver- ið í óteljandi myndum. En ýmsir hyggja, að veruleikinn hafi verið öllu hversdagslegri og hvergi nærri eins rómantískur og skáld in vilja vera láta. Saga mannkynsins kann frá því að greina, að flestar eða all- ar þær uppgötvanir, sem snilli- legastar voru og ollu aldahvörf- um, urðu til vegna brýnnar nauð synjar, til að auðvelda barátt- una fyrir lífinu. Rómantík og idealismi áttu þar harla lítinn hlut að máli. Jafnvel stafrófið, sem ritlistin og löngu síðar prentlistin byggja á, og raunar undirstaða allrar æðri menning- ar, var fundið upp af duglegum verzlunarþjóðum, vafalaust til þess eins, að létta og auðvelda kaupskap og viðskipti. Það voru hagrænar ástæður, sem mestu ollu, en ekki ást á fögrum list- um og vísindum. Svipað mun mega segja um upphaf sigling- anna. Það var fyrst og fremst þörfin, sem beindi frummannin- um út á sjóinn. Hann sá trjá- stofna fljóta á vötnum og ber- ast niður ár. Ár og vötn voru honum farartálmi. Oft þurfti hann að flýja skyndilega undan aðsteðjandi hættu, óvinum, villi dýrum, sumum í mannsmynd. Stundum gat hann synt eða svamlað yfir ána sjálfur, jafnvel með afkvæmi sitt á bakinu, en ósjaldan var yfirkoman vonlaus án farkostar. Hann þurfti líka að veiða seli, smáhveli og önnur sævardýr. Af þeim fékk hann ekki aðeins fæði handa sér og hyski sínu, heldur skinn, og hörð, verðmæt bein, sem höfðu hliðstætt gildi fyrir frummann- inn og stálið fyrir afkomanda hans á vorum dögum. Þörfin kenndi honum að nota heilann og búa til farkost, sem gæti fleytt fjölskyldu hans yfir ár og vötn, ásamt spjótum, öxum, veiðinetum og öðrum frumstæð um tækjum, sem hann átti af- komu sína undir. Það þurfti ekki mikið hugvit til að setjast á trjábol, láta berast niður eftir fljóti og stjaka sér yfir með stöng. Næsta skrefið var að binda saman nokkra trjáboli og gera úr þeim fleka, sem ýta mátti áfram með stöngum. Síð- an datt einhverjum það snjall- ræði í hug, að kljúfa trjádrumb og hola hann innan, bæði með rauðglóandi steinum og hníf eða exi úr beini. Það var stórum þægilegra að sitja í slíkum far- kosti og ýta sér áfram, en að standa á fleka og stjaka honum. Síðan hefir einhver Edison þeirra frummannanna fundið það af hugviti sínu eða lært af reynslunni, að núningsmótstað- an í vatninu varð minni og fleyt an gangbetri með því að ydda hana til endanna. Loks hefir ein hver tekið eftir því, sennilega af tilviljun, að vindurinn jók á hraðann, einkum ef dýrshúð eða strámottu var tyllt yfir nökkv- ann. Þar með var fyrsti vísirinn að segli kominn til sögunnar. Hinir holuðu trjádrumbar voru mjög þunglamaleg farar- tæki og burðarmagn þeirra sára- lítið. Þróun skipagerðar með þessum hætti voru ákaflega þröngar skorður settar. Það var því ekki lítið framfaraspor, sem þeir forfeður okkar stigu, sem fyrstir hófu raunverulega að smíða báta, lyftu skipagerðinni yfir eintrjáningsstigið, ef svo mætti að orði kveða. Löngu fyrr hefir þetta orðið, en mannkind- in kom fram í birtu sögunnar, Séu einhverjir okkar á meðal í vafa um það um áramótin hvert stefni, eða beri að stefna, gæti komið að nokkru haldi, að rif ja upp fyrir sér fyrstu grein þjóð- ræknisfélags íslendinga í Vesturheimi, sem er í þremur liðum og hljóðar á þessa leið: „Að stuðla að því af fremsta megni, að íslendingar megi verða sem beztir borgarar í hérlendu þjóðlífi. Að styðja og styrkja íslenzka tungu og íslenzka bók- vísi í Vesturheimi, bæði með bókum og öðru, eftir því sem efni þess framast leyfa. Að efla samúð og samvinnu millum íslendinga vest- an hafs og austan, og kynna hérlendri þjóð hin beztu sérkenni þeirra“. Menn getur greint á um starfsháttu og leiðir, en um áminst markmið hljóta allir að verða sammála. Það væri óviðurkvæmilegt, og óafsakanlegt vaii- þakklæti, að minnast eigi þeirrar frábæru velvildar og þess frábæra astuðnings, er Lögberg hefir orðið aðnjót- andi á árinu, sem nú er fyrir fáum dögum liðið í aldanna skaut; ber það þess ljós merki hve íslendingum er það mikið áhugamál, að blaðið geti haldist við í sem allra lengstu lög þeim til gagns og yndis, og þjóðbroti okkar til varanlegs vegsauka; þeim er það ljóst, að mörg verkefni bíða enn óleyst, eða hálfleyst, sem þurfa á stuðningi af hálfu Lögbergs að halda, verkefni, sem í rauninni þola ekki bið, svo sem háskólastólsmálið; áður en hið nýbyrjaða ár verður liðið í aldanna skaut, þarf svo að verða um hnúta búið, að nægilegt fé hafi safnast í sjóðinn, svo að unt verði að koma háskólastólnum á fót við byrjun næsta kenslutímabils við háskólann, þetta er lang innviðamesta menningarmál íslendinga vestan hafs, og það málið, sem alveg vafalaust setur varanleg- astan menningarsvip á sögu niðja okkar í þessari álfu; með stofnun háskólastólsins verður minningu feðra okk ar og mæðra eigi aðeins reistur hinn fegursti og var- anlegasti minnisvarði, heldur má einnig víst telja, að prófessorsembættið í íslenzkri tungu og bókvísi við háskóla okkar, verði sá fræðslubrunnurj er mennta- menn af íslenzkum stofni og öðrum þjóðernum, er leggja vilja rækt við norræn fræði og gerkynna sér stofnensku, bergi af í aldir fram. — Það skal ítrekað á ný, að framtíð Lögbergs er undir því komin, að andvirði blaðsins sé greitt reglubundið fyrirfram. og verður því að ráða flest af líkum. Fræðimenn hyggja, að næsta skrefið eftir eintrjáningana hafi verið gerð húðkeipa eða skinn- báta. Frumstæðum manni var það ekki um m^gn að leggja sam an nokkra viðarbúta, klístra á milli þeirra trjákvoðu eða biki, og þekja síðan að utan með húð- um. Skinnbátar Eskimóa eru gott sýnishorn þess, hversu prýði legar slíkar fleytur geta verðið. Sjálfsagt hafa fyrstu bátarnir af þessari gerð verið klunnaleg- ir og óhentugir, en smám saman hefir reynslan kennt mönnum að sníða af þeim helztu lýtin. Þegar smíðar skinnbáta voru komnar á allhátt þróunarstig, gengu bátasmiðir feti framar. Þá voru ýmis hjálpartæki manna, einkum eggvopn, orðin fullkomnari en áður var. Nú. fóru menn smám saman að smíða báta og skip úr tré, leggja borð við borð, planka við planka, og telgja eða sauma saman. Þeg- ar fyrst fara sögur af elztu menn ingarþjóðum, er skipagerðarlist- in komin á allhátt stig, ef miðað er við trjádrumb frummannsins. Er fyrst að segja frá Egyptum. Egyptaland er, eins og flestir vita, mjó landræma beggja meg- in Nílar. Fljótið Níl varð snemma lífgjafi og menningar- gjafi milljóna manna, sem kom- ust upp á lag með að breyta eyðimörk í frjósama akra, með flóknu og hugvitssamlegu áveitu kerfi. Frá þeirri þjóð, sem þarna bjó, höfum við nútímamenn fyrstu raunverulegar heimildir um skipagerð og siglingar. Elzta mynd, sem til er af skipi, er á egypzku leirkeri, sem geymt er í British Museum, og þykir að sjálfsögðu hinn mesti dýrgripur. Mynd þessi er talin vera um 8000 ára gömul. Frá næstu árþúsund- um þar á eftir er til f jöldi mynda af egypzkum skipum á veggjum grafhýsa og mustera. Lítil skips- líkön hafa einnig fundizt í gröf- um Egypta. Stendur það vafa- laust í sambandi við trúarskoð- anir þeirra. Hafa þeir ætlað hin um látnu að sigla á skipum þess um um höf undirheima. Hvernig voru nú þessi skip, sem Egyptar notuðu lífs og liðn- ir? Gera má sér um það nokkra hugmynd, en þó ekki glögga. Listhneigðin er manninum í blóð borin. Ber það sízt að lasta. Þó myndi nú margur óska þess, að myndhöggvarar og leturgerðar- menn á dögum Forn-Egypta hefðu látið listræn viðhorf þoka nokkuð um set, er þeir gerðu skipamyndir sínar, en nálgast fremur vinnubrögð skipateikn- arans. En svo er nú ekki, og þá er að tjalda þeirri vitneskju, sem til er. Skip Egyptanna báru þess glögg merki, til hvers þau voru notuð. Það voru ekki skip mik- illar verzlunar- og siglingaþjóð- ar. Egyptar voru fyrst og fremst akuryrkjumenn, bændur. Þeir þurftu skip til þess að komast yfir ána Níl. Þeir þurftu skip til að flytja stórgrýtið í hofin og pýramídana miklu. Skip þeirra voru mjög breið, grunn og flat- botnuð, svo að auðvelt væri að flytja á þeim stór granít- og blá- grýtisbjörg. Skipin voru gerð úr smáviði, stuttum plönkum, sem felldir voru saman og festir bæði með trésaumi og þvengjum. Stafnar báðir voru bogmyndaðir og sköguðu langt fram. Var það gert til þess, að auðveldara væri að ferma skipin og losa, þar eð trjónan hefir náð upp á þurrt land þegar flatbotnað skipið kenndi grunns. Skip Egypta voru seglskip, en seglaútbúnaðurinn frumstæður. Siglan var gerð úr tveim rám, sem stóðu gleitt að neðan, sín út í hvorn borðstokk, en voru festar saman í toppinn. Líktist siglan mest trönum. Seglið var aðeins eitt, ferhyrnt þversegl, og hefir naumast komið að notum nema byr væri mjög hagstæður. Árar Egyptana voru með einu blaði. Réru menn standandi, og sýnir það glögglega, að skipum (Frh. á bls. 5)

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.