Lögberg - 05.01.1950, Síða 5

Lögberg - 05.01.1950, Síða 5
5 /4H UGAMAL IWENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 5. JANÚAR, 1950 Her Royal Highness Princess Elizabeth, Duchess of Edinburgh, and her one-year-old son, Prince Charles A new portrait of Her Royal Highness Princess Elizabeth, Duchess of Edinburgh, with her infant son, Prince Charles, who was one year old on 14th November, 1949. At IIV2 months the* Prince weighed 24Ú2 pounds, had six teeth, and was tall for his age. A special point of interest in this portrait is that it was taken by Marcus Adams, who had the honour of taking the first photo- graph of Princess Elizabeth in 1926. Upphaf siglinga ÁRAMÓTIN Um hátíðirnar óska menn vin- um sínum gleðilegra jóla og far- sæls nýárs; með hverju nýju ári gera mennirnir að einhverju leyti reikningsskil, kveðja það sem liðið er, ýmist með sorg eða fögnuði, og búa sig undir að veita því, sem framundan er við- töku með hugprýði og kjarki. „Enginn veit hvað átt hefir fyrr en mist hefir“. Á liðnu ári hafa margir átt um sárt að binda og margir notið ósegjanlegrar lífshamingju; þannig skiptast að stæður mannanna jafnan í tvö horn. Nýbyrjað ár er jafnan óráðin gáta; enginn veit hvað það felur eða kann að fela í skauti sér; en vegna þess hve vonin, verndar- engill lífsins, er dyggur föru- nautur, göngum við fagnandi framtíðinni á hönd. Ritstjóri kvennasíðunnar í Lög bergi árnar íslenzka mannfélag- inu góðs og gæfuríks nýárs, og þakkar ástúðina og góðvildina á árinu sem leið. Hagsýni við heimilisstörfin Hagsýni í vinnubrögðum til- heyrir ekki aðeins skrifstofum, verksmiðjum og á öðrum slíkum vinnustöðum, segir í nýlegum húsmæðradálki í dönsku blaði. Hagsýni í störfum á alls staðar við og líka á heimilinu. Ef menn verða þreyttir, verð- ur nokkur tími að líða unz þreytutilfinningin er horfin, og vitaskuld þarf lengri tíma eftir því sem maður er þreyttari. Það er mikilvægt fyrir húsmóðurina að hún hagi þannig störfum sín- um, að þreytutilfinningin verði ekki svo mikil, að hún geti ekki hvílzt út áður en hún tekur fyr- ir nýtt verkefni. Allir þekkja, að þegar maður er dálítið þreyttur, en þarf að byrja á einhverju starfi, grípur mann nokkurs konar ólyst á starfinu, og jafnframt starfa menn þá hægar en ella. Þarna er ekki hagsýni í starfi, og marg- ar húsmæður mundu hressari og unglegri ef þær gættu þess jafn an, að vera hagsýnar í störfum sínum, hagsýnar til þess að halda líkamlegum og andlegum kröftum. Strauning 'með hvíldum Straudagurinn er dágott sýn- ishom. Flestar húsmæður vilja straua í lotunni og hvíla sig svo á eftir. Stundum standa þær 3—4 tíma við straubrettið. Til- raunir hafa sýnt og sannað, að þetta eru óhagkvæm vinnu- brögð. Ef maður strauar 4 tíma í lot- unni, tekur það a. m. k. IV2 klst. að hvílast á eftir. Ef maður strau ar aftur á móti í klukkutíma í lotu og hvílir sig í fimm mínút- ur — og það verður að vera al- gjör hvíld og afslöppun, — strau ar svo annan tíma, og hvílist í fimm mín., þriðja tímann og hvílir sig svo í 10 mín. og fjórða tímann og hvílir sig þá í 15 mín., fær maður á 35 mínútum þá hvíld, se mtekur ll/z klst. með því að standa í lotu. Það er ekki oft, sem húsmóð- ir getur leyft sér að hvíla sig í 1% klst. samfleytt. Oftast verð- ur hún að byrja á einhverju starfi áður en hvíldin er fengin, og fyrir bragðið ofþreytist hún. En oft er mögulegt að raða deg- inum niður í smáhvíldartíma og taka svo til við störfin á ný, betur undir þau búin en áður. Þetta er það, sem kalla má hag- sýni í verkum, segir í þessu danska blaði, og konunum er ein dregið ráðlagt að reyna þetta kerfi. Ráð Smjör, smjörlíki, feiti eða olía má aldrei standa ólokað. Feit- meti hvers konar er mjög mót- tækilegt fyrir alls konar lykt og eyðilegst fljótt af bakteríum loftsins ef það stendur opið. Smjör á að geyma á köldum og dimmum stað. Látið smjör aldrei sjóða, það tapar bragði við það. GOTT ER að hreinsa hakka- vél með því að hakka hráar kar- töflur að lokum. Gullin regla Það er gullin regla, sem hver húsmóðir ætti að reyna að koma á í heimili sínu, að hver heimilis- meðlimur eða yfirleitt að hver, sem notar þvottaskál, þvoi hana að innan að lokinni notkun. Verði þetta föst regla, er lítil hætta á blettum, sem skapast af langvarandi óhreinindum, né nokkurs konar skemmdum á glerunginum. Sama gildir um baðkerið, og er góð regla að hafa ávalt bursta eða klút við hendina, sem ætl- aður er til þess arna. Ekki væri heldur úr vegi, að festa á vegg- inn litla áminningu um að skilja vel við. Þetta á þó að sjálfsögðu að- eins við þar, sem börn eru í heimili, fullorðna fólkið ætti ekki að þurfa að minna á jafn sjálfsagðan hlut og að ganga hreinlega um. Munið: — að silfurmuni má hreinsa með því að þvo þá vel úr vatni af soðnum kartöflum. — Að smábarnaskór með mjúkum sólum verða oft hálir, svo að barnið hrasar á þeim. Er þá gott að nudda sólana með sandpappír. Skær augu Ef augun eru þreytt og döpur eftir langan og erfiðan dag, og mann langar til að hressa ögn upp á útlitið, er mesta heillaráð að bleyta t. d. bómull í ísköldu vatni og leggja hana á lokuð augun í ca. 10 mínútur. Að því búnu á að depla hvoru auga 20 sinnum. Þetta eykur starfshæfni augnavöðvanna og gerir augun skærari. Ráð Þegar verið er að þvo upp um veggi eða loft, er hætt við að vatn renni úr þvottaklútnum nið ur handleggi þess er á heldur og alla leið upp í handarkrika og þaðan niður á síðu. Þetta er ó- þægilegt, en það má forðast með því að binda klút um ulfliðinn. Þegar þú ert að mála eitthvað heima hjá þér, er hætt við að fara vilji utan hjá málninga- krúsinni. Flestir setja því dag- blöð eða eitthvað þess háttar undir krúsina. Betra ráð er að líma allstórt pappaspjald við botninn á krúsinni. — Þá get- urðu flutt hana með þér hvert sem þú vilt, og öryggið fylgir henni. Hrœðsla í fornöld var það talið hetju- merki að kunna ekki að hræð- ast. — Hugdjarfir menn voru að skapi sagnfræðinganna, en þeir þó helzt, sem ekki kunnu að hræðast. Haraldur konungur Sigurðsson sagði Halldóri Snorra syni það til hróss að honum brygði manna síst við váveif- kga hluti. Fræg er lýsing Þor- gils á Reykjahólum á fóstbræðr- um og Gretti, er hann var spurð ur hvernig þeir væri skapi farn- ir. Hann sagði að Þormóður væri guðhræddur, Grettir myrk hræddur, en Þorgils frænda sinn kvað hann ekki hræðast kunna. En hvort sem þetta eru ýkju- (Frh. af bls. 4) þessum voru ekki ætlaðar ferð- ir á hafi úti, því naumast er hægt að róa standandi þar sem öldu- gangur er að ráði. Skipunum var stýrt með breið um árum eða stýrum, sem kom- ið var fyrir aftarlega á stjórn- borðshlið. Eitthvað skýli mun hafa verið frammi í stafni þess- ara skipa, að minnsta kosti hinna stærri. Skip Egyptana voru allmis- munandi að stærð. Flest þeirra voru lítil, en kunnað hafa þeir að gera býsna stór skip. Sagnir herma, að þegar flytja þurfti stærstu granítbjörgin, hafi verið smíðaðir sérstakir prammar, geysistórir, sem 30 róðrarbátar voru látnir draga eftir fljótinu. Er mönnum það enn í dag hulin ráðgáta, hvernig Egyptar hafa lyft margra smálesta björgum af skipi og á. Þótt skipum Egypta hafi eink- um verið það hlutverk ætlað, að halda uppi siglingum á Níl, virð ast hin stærstu þeirra hafa verið nothæf til meiri háttar sæfara. Egyptar sigldu að minnsta kosti tvisvar sinnum til landsins Punt, en það er nú kallað Somailland. Fyrri ferðin var farin árið 2750 fyrir Krists burð. Þegar foringi leiðangursins kom heim eftir giftusamlega för, var nafn hans höggvið á klett einn mikinn, á- samt stuttri skýrslu um ferðina. Hefir hvorttveggja varðveitzt fram á þennan dag. Ferðin var farin að tilhlutan konungsins, til að sækja kryddvörur, og tókst hún í alla staði vel. Leiðangurs- sögur, eða að mönnum hefir far ið aftur með kjark, þá er það víst, að engin hetja nú á dögum er svo, að hún kunni ekki að hræðast. Þeir, sem bezt og hraustlegast gengu fram í stríð- inu, játa allir, að þeir hafi orðið hræddir og stundum óstjórnlega hræddir. Amerískur sálfræðingur, Law- rance F. Shaffer, prófessor við Columbía háskólann, hefir rann- sakað þetta og hefir hann sér- staklega átt tal við flugmenn. Þeir játuðu það allir, að þeir hafi verið hræddir í hverri ein- ustu árásarferð. Hræðslan lýsti sér þannig að þeir fengu ákafan hjartslátt, það stríkkaði á öllum taugum, köldum svita sló út um þá, tungan skrælnaði í munnin- um og svo var þetta „tóm“ í maganum, sem margir kannast við. Hvorki metnaður, von um heiðursmerki né hatur á óvin- unum megnaði að vinna bug á hræðslunni. menn komu aftur með hlaðin skip af myrru, fögrum steinum og dýrmætum viði. Frásögnin á klettinum endar með þeim orð- um, að aldrei fyrr hafi mannleg- ar verur unnið þvílíkt siglinga- afrek. Síðari leiðangurinn til Punt var farinn um 1200 árum síðar. Frásagnir og myndir frá þeim leiðangri voru höggnar á veggi hofs nokkurs. Segir þar, að Egyptar hafi hlaðið skip sín í þessu landi auðæfanna, og flutt þaðan reykelsi, gull fílabein, augnsmyrsl, apa og þræla. Þegar fram liðu stundir, urðu Egyptar mjög íhaldssöm þjóð, næstum því eins og Kínverjar. Allt stóð í stað, hjakkaði í gömlu fari. Svo var einnig um skipin, enda fór svo fyr en varði, að framsæknari þjóði'r komust langt fram úr Egyptum í skipa- smíðum og siglingum öllum. Fyrsta siglingaþjóðin við Mið- jarðarhafið, sem verulegar sög- ur fara af, eru Kríteyingar. Þar reis tiltölulega snemma á fót merkilegt menningarríki, og voru siglingarnar ein af megin- stoðum þess. Kríteyingar héldu snemma uppi miklum siglingum til Egyptalands, verzluðu við Egypta, lærðu af menningu þeirra og endurbættu margt, einkum í hagnýtum efnum. Um 2000 árum fyrir Krists burð, virð ast leirvörur Kríteyinga hafa verið algengar orðnar í Egypta- landi. Síðar komust Kríteyingar alllangt 'suður með Afríku- ströndum og ráku þar verzlun. Þeir sigldu einnig vestur á bóg- inn, til Sikileyjar og ítalíu. Hafa fundizt í löndum þessum gaml- ar myntir Kríteyinga, sumar frá því um 1200 fyrir Krists burð. Loks er vitað, að Kríteyingar sigldu gegnum Messínasund. Sumir telja, að þeir hafi komizt fyrir Gíbraltar, út úr Miðjarð- arhafi, allt til vesturstrandar Spánar. En röskum 1000 árum fyrir Krists burð hrundi ríki Krítey- inga í rústir. Hellenskir þjóð- flokkar lögðu það undir sig og tileinkuðu sér menningu þess og tækni. Þar með var lokið sögu Kríteyinga sem sjálfstæðrar og merkilegrar siglingaþjóðar. Heimildir um skip Kríteyinga eru af heldur skornum skammti. Þau hafa eflaust verið miklum mun fullkomnari en fljótabátar Egypta og sennilega líkari skipa kosti Fönikíumanna, sem brátt mun lýst. Langmesta siglingaþjóð forn- aldar voru Fönikíumenn. Hafa fáar þjóðir lagt jafnmikinn skerf og þeir til þróunar siglinga og skipagerðar. Fönikíumenn bjuggu fyrir botni Miðjarðarhafs, milli þess og Líbanonsfjalla. Þeir mæltu á semítiska tungu og voru vafa- laust komnir sunnan og austan úr Arabíu, eins og aðrar Semíta þjóðir. Fönikíumenn voru svo vel í sveit settir, að þeir bjuggu í þjóðbraut milli tveggja gam- alla menningarríkja, Egypta- lands og Mesapótaníu. Því fylgdi ágæt aðstaða til að læra af þessum þjóðum og nytja þær uppgötvanir og framfarir, sem þróuðust hjá þeim. Og Fönikíu- menn voru bæði gáfaðir og nám fúsir. Þeir hagnýttu sér tækni- lega menningu nágranna sinna og endurbættu margar uppgötv- anir þeirra. Þeir tóku upp ó- brotið og auðvelt stafróf. Þeir hófu að nota silfur og síðar gull sem gjaldmiðil. Skipagerðarlist ina lærðu þeir af Egyptum. En þeim nægði það ekki, að smíða hina sömu gerð skipa og Egypt- ar höfðu notað um margra alda skeið. Á tiltölulega skömmum tíma gjörbreyttu þeir skipalag- inu og komu sér upp góðum haf skipum, sem hægt var að sigla á til fjarlægra landa. Skip þeirra voru löng, mjó og rennileg, ó- likt hraðskreiðari og betri í sjó að leggja en stamparnir, sem ná- grannar þeirra, Egyptar og Babylohíumenn, hjökkuðu í við bakka stórfljótanna. Til eru öruggar heimildir fyr- ir þvi, að Fönikíumenn héldu uppi stöðugum siglingum um allt Miðjarðarhaf, komu sér þar víða upp nýlendum og reistu borg- ir þar sem hafnarskilyrði voru bezt. Varð Karþagó þeirra lang- samlega voldugust og frægust. Á 12. öld fyrir Krists burð sigldu þessir djörfu garpar gegnum Njörvasund og þar með vestur á Miðjarðarhaf. Um 1100 reistu þeir borg á vesturströnd Spán- ar, en þangað var í lok fornald- ar talin 80 sólarhringa sigling austan frá Tyros. Og þeir létu ekki þar við sitja. Nokkru síðar brutust þeir alla leið norður að ströndum Englands, og sóttu þangað tin og aðra málma. Þá eru ýmsar líkur til þess, að Föni- kíumenn hafi siglt til hafna við Norðursjó sunnanverðan og jafn vel allt inn í Eystrasalt. Sögur herma, að þangað hafi þeir sótt hið dýrmæta raf, sem ákaflega mikilsvert þótti á þeim tímum. Loks eru til frásagnir um sigl- ingu Fönikíumanna í kringum Afríku. Ýmsir hafa viljað vé- fengja þær frásagnir, en ferða- sagan er svo greinileg og sann- færandi, að maður freistast ó- neitanlega til að trúa henni. Menn þeir, er förina fóru, lögðu af stað eftir Rauða hafinu og sigldu suður á bóginn. Þegar vist ir þraut, fóru þeir í land, sáðu korni og biðu eftir uppskeru. Að því búnu sigldu þeir áfram, unz þeir að þrem árum liðnum komu aftur úr svaðilför þessari, eftir að hafa farið hringinn, og héldu þá um Njörfasund og Miðjarðar haf. Fönikíumenn stofna fyrsta sjóveldið, sem um getur í ver- aldarsögunni. Margt sannar það, að sjóveldi þessarar harðduglegu þjóðar var meira en nafnið tómt. Greinilegar frásagnir og óvé- fengjanlegar eru til um gífur- legan skipaflota Karþagóborgar. Við Karþagó gerðu Fönikíu- menn stórfelldar hafnarbætur fyrir skipastól sinn. Voru þar tvær hafnir afgirtar, önnur fyr- ir kaupför en hin var herskipa- lægi. Svipað, en nokkru smærra, hefir þetta verið í öðrum hafnar borgum Fönikíumanna til og frá við Miðjarðarhaf, vestur á Spán arströndum og suður með allri vesturströnd Afríku. Skip Fönikíumanna munu að- allega hafa verið af tveimur gerðum, herskip og kaupskip. Voru herskipin rennileg og hrað skreið, en kaupförin breiðari, borðhærri og betur undir það búin að velkjast lengi í hafi. Minnir þessi skipting mjör greini lega á þróun norrænna skipa um Bjarni Eggertson Word has been received in Winnipeg of the death of Bjarni Eggertson, co-owner of the Bur- lington Brush a n d Machine Works, who died December 15th at his home at 340 N. Winooski Ave., Burlington, Vermont. Mr. Eggertson was born at Tantallon, Sask., in 1903, and farmed for a number of years on the home farm before going east, where he entered the brush busi- ness. He attended First Congre- gational Church, and was a member of the Burlington Masonic Lodge and the Lions Club. He is survived by his widow, Nora (Goodman) Eggertson; three daughters, Sheila, Jona and Marsha; three sisters, Mrs. E. Symons, Rocanville, Sask.; Mrs. M. Watts, Regina, Sask.; Mrs. C. H. Smith, Winnipeg; a brother, Wilfred, Burlington. Funeral service was held Dec. 20, in the First Congregational Church, with Rev. Charles Stan- ley Jones officiating. A delega- tion from the Masons and Lions Club attended the service. Pall-bearers were: Carl Wil- liams, Seth Bruce, Judge Clarke A. Gravel, John French, Nicholas A. Morwood, Earl Denicore. —Winnipeg Tribune, Dec. 29. og fyrir víkingaöld, en sú þróun hefir orðið með furðu svipuðum hætti. Ekki verður margt sagt með öruggri vissu um seglbúnað á skipum Fönikíumanna. Helzt er svo að sjá, sem þeir hafi í upp- hafi notazt við hina einkennilegu trönusiglu. Egypta. En síðar hafa þeir lagt niður tvímastrið og tekið upp einfalda siglu í miðju skipi. Þeir notuðu einung- is rásegl, og hefir það verið all- stórt. Sum yngstu skip Fönikíu- manna virðast hafa verið tví- sigld. Stórsiglan var þá aftur í miðju skipi, en önnur sigla minni mjög framarlega í skipinu. Var sitt ráseglið á hvorri siglu. Sægarpar þessir notuðu akk- eri, og gátu legið við þau á grunnsævi þegar veður var ekki mjög illt. Akkeri þessi voru þó ekki úr járni. í þess stað not- uðu þeir þunga steina eða húð- poka fyllta með grjóti. Þegar fram liðu stundir, eign- uðust Fönikíumenn skæða keppi nauta á höfunum, sem náðu smám saman frá þeim verzlun og siglingum.. Voru það Hell- enar og síðar Rómverjar. Fyrsta sjóveldi veraldarsögunnar leið undir lok, en siglingaafrek Föni kíumanna munu varðveitast í sögn og sögu, svo lengi sem nokk urt skip fer um sæinn. Sjómannablaðið VÍKINGUR Minnist í erfðaskrám yðar

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.