Lögberg - 26.01.1950, Blaðsíða 1
PHONE 21 374
Cico^'
Gt
AeTcTS
j^O'U.'oO S A Complele
Cleaning
Inslituiion
PHONE 21374
A
Vcvco^*
-'aerers
lfl»fXJ* S A Complete
Cleaning
Institution
64. ÁRGANGUR
Málsókn hafin vegna verðlagssamtaka
Fyir atbeina dómsmálaráð-
herra sambandsstjórnarinnar,
Hon. Stuarts S. Garson, hefir
málsókn verið fyrirskipuð á
hendur 6 brauðgerðarfélögum
er reka viðskipti í 14 borgum,
sem grunuð eru um að hafa
b u n d i s t innbyrðissamtökum
varðandi smásöluverðlag á
brauði, og komið með því í veg
fyrir frjálsa og heilbrigða verzl-
unarsamkepni; félögin, sem hlut
eiga að máli eru þessi:
McGavin Bakeries Limited,
Brandon; McGavin Limited. Ed-
monton; McGavin Limited, Van-
couver; Canadian Bakeries Limi
ted, Calgary; Weston Bread and
Cake (Canada) Limited, Win-
nipeg, og Edmonton City Bak-
ing Limited, Edmonton.
Fyrsta réttarrannsókn í máli
þessu hefst í Calgary þann 30.
yfirstandandi mánaðar.
Ný fæðingardeild
við almenna sjúkra-
Kúsið í Winnipeg
Þann 1. marz næstkomandi
verður tekin til afnota hin nýja
og veglega fæðingardeild við Al-
menna sjúkrahúsið, ein hin allra
fullkomnasta stofnun slíkrar
tegundar í þessu landi; hefir ekk
ert verið til sparað, er auka
mætti á þægindi og veg þessarar
þörfu stofnunar, er setur nýjan
mannúðar- og menningarsvip á
bæjarfélagið; þetta er fyrsta
stórhýsið af mörgum, er rísa
eiga af grunni í sambandi við
hið mikla lækningaumhverfi,
Medical Centre, í þessari borg.
Ánægjuefni er það mikið, að
hinn víðfrægi læknir og menn-
ingarfrömuður, Dr. P. H. T.
Thorlakson, skyldi verða braut-
ryðjandi og hvatamaður að því,
að koma á fót þessu mikla Medi-
cal Centre á þessum stöðvum
þar sem svo margir íslendingar
eru saman komnir.
ENGAR FERÐIR TIL
MIÐJARÐARHAFSINS
Nú er útséð um það, að ekkert
verður úr ferðum m. s. Heklu til
Miðj arðarhafslanda.
Pálmi Loftsson, forstjóri Skipa
útgerðar ríkisins, tjáði Vísi þetta
nýlega. Skýrði hann svo frá, að
málið hefði strandað á fjárhags-
ráði og viðskiptanefnd, en þessir
aðilar hefðu ekki treyst sér til
þess að láta af hendi rakna gjald
eyri til ferðanna, en um það bil
200—250 þús. krónur í erlend-
um gjaldeyri hefði þurft í hverja
ferð. Hefði sú upphæð nægt fyr-
ir öllum kostnaði vegna 150 far-
þega í einni slíkri för.
Þá er þetta mál úr sögunni að
sinni, en vonandi skapast síðar
möguleikar til þess að hrinda því
í framkvæmd, því margir munu
hafa haft hug á því að nota þetta
tækifæri til þess að skoða suð-
ræn lönd af íslenzku skipi.
VÍSIR, 12. des
Skipaður í háa
ábyrgðarstöðu
MARÍA JÚLÍA FULLGERÐ
í ÞESSUM MÁNUÐI
Björgunarskipið María Júlía
verður væntanlega fullgert síð-
• í þessum mánuði, að því er
Vísi hefir verið tjáð.
Svo sem Vísir hefir áður skýrt
frá, verður skip þetta í senn
björgunarskip, varðskip og haf-
rannsóknarskip, en í því eru
nauðsynleg tæki til þessara
hluta. Vestfirðingar hafa lagt
300 þúsund kr. til byggingar
skipsins, en annan kostnað greið-
ir ríkissjóður. VÍSIR, 12. des
FORNLEIFAFÉLAGIÐ
70 ÁRA
Aðalfundur Fornleifafélags-
ins var haldinn s.l. laugardag.
Stjórnin er skipuð sömu mönn
um og áður, nema hvað prófes-
sor Jón Stefensen var kosinn í
hana í stað Páls Eggerts Ólason-
ar, er lézt á árinu. Annars er
Matthías Þórðarson forseti fé-
lagsins, Kristján Eldjárn ritari
og Jón Jóhannsson gjaldkeri.
Fornleifafélagið var stofnað
1879 og er því réttra 70 ára nú.
Félagar eru sem næst 300. Ný
árbók fyrir þetta ár og næsta er
væntanleg í vetur.
Á fundinum urðu nokkrar um
ræður um framtíðarmál félags-
ins og sér í lagi um útgáfu ár-
bókarinnar.
VISIR, 19. des.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 26. JANÚAR, 1950.
160 millilandaferðir
Íslenskra skipa
árið 1 948
Á árinu 1948 voru siglingar
milli íslands og annara landa
jafnmiklar og verið hafði árið
1949.
í bókinni „Landsbanki ís-
lands 1928“ segir m. a. svo um
þetta: „Siglingar milli íslands og
útlanda voru í líku horfi og árið
áður (þ. e. 1917). Til viðbótar
þei minnlendu aðilum, sem haft
hafa skip í reglulegum milli-
landaflutningum undanfarin ár,
kom Eimskipafélag Reykjavík-
ur h.f. með m.s. Kötlu. Auk þess
var m.s. Esja höfð í áætlunarferð
um milli Reykjavíkur og Glas-
gow um sumarið. Ekki var um
að ræða skipaferðir af hálfu
Bergenska skipafélagsins, en hin
4 erlendu skipafélög 1 danskt, 2
brezk og eitt hollenzkt, sem hafa
haft skip í förum milli Islands og
útlanda undanfarin ár, héldu á-
fram starfsemi sinni.
Tala millilandaferða á vegum
Eimskipafélagsins og þeirra 8
aðila annara sem hér um ræðir
var 160, en árið áður 161, þar af
20 til Ameríku, en 140 til Evrópu.
Samtals voru flutt til landsins
um 108 þúsund lestir af margs-
konar vörum, en árið 1947 voru
samtals fluttar til landsins 88
þúsund smálestir.
Farþegaflutningar með skip-
um Eimskipafélags Gslands voru
hverfandi litlir, en með skipi
Sameinaða gufuskipafélagsins
voru fluttir 1100 farþegar til ís-
lands og um 1700 farþegar frá
því. Með Esju voru fluttir um
500 farþegar frá Glasgow, en um
450 þaðan og til íslands.
VÍSIR, 12. des.
NÚMER 4
Or borg og bygð
Séra Philip M. Pétursson
Mótfallinn hýðingam
ungra afbrotamanna
Séra Philip M. Pétursson lýsti
yfir því í kirkjuræðu í sam-
bandskirkjunni hér í borg síðast-
liðið sunnudagskvöld, að hann
væri því algjörlega mótfallinn,
að hýðingum væri beitt við ung-
linga, sem lent hefðu á refilstig-
um; kvaðst hann þeirrar skoð-
unar, að slík miðaldahegningar-
aðferð gerði hlutaðeigandi ung
menni að verri mönnum í stað
þess að hún bætti skapgerð
þeirra og innræti.
Fœðan sigrar
kommúnismann
Fárviðri vestan
lands
Svo ramt hefir kveðið að veðri
vestan lands undanfarna viku,
einkum í British Columbia, að
til fádæma má telja; símalínur
hafa færst úr skorðum og járn-
brautarlestir tafist svo sólar-
hringum skipti; sjö farþegalestir
stönsuðu í snjókyngi um hundr-
að mílur frá Vancouver, og var
þá það ráð tekið, að flytja far-
þegana í flugvélum til borgar-
innar.
Walter Friðfinnsson
Mr. Walter Friðfinnsson, sem
gekk ungur í þjónustu Canadian
Pacific járnbrautarfélagsins, og
hóf starf við farþegadeild þess,
hefir frá 1. febrúar næstkomandi
að telja, verið skipaður aðalfar-
þegaumboðsmaður þess í Win-
nipeg.
Mr. Friðfinnsson er hæfileika
og dugnaðarmaður; hann er son-
ur hinna þjóðkunnu hjóna, Jóns
tónskálds Friðfinnssonar og frú
önnu Friðfinnsson, sem bæði
eru fyrir nokkru látin.
NÝTT MYNDABLAÐ:
„GLATT Á HJALLA“
Nýtt blað, sem flytur am-
erískar skopmyndasögur fyrir
unga og gamla, hefir hafið
göngu sína hér í Reykjavík.
Blað þetta heitir „Glatt á
hjalla“ og er litprentað í Litho-
prent. Útgefandi er Ærslabelgur
h.f. Thorolf Smith, blaðamaður
hefir endursagt myndasögurnar
og gerir það af sinni alkunnu
smekkvísi.
Glatt á hjalla flytur 10 bráð-
smellnar skopmyndasögur. Þær
heita: Naggur, Mamma siðar
pabba, Flosi flakkari, Falur fjöl-
kunni, Dísa Dalakoff, Rindill og
Dindill, Lalli litli, Strákar eru
strákar, Fanney og fjölskylda og
Stjáni sterki. — Fimm af sögun
um eru litprentaðar, en hinar
prentaðar með smekklegum lit-
um.
Yfirleitt er blaðið mjög vel úr
garði gert og mun vekja kátínu
þeirra er það lesa. — Það kostar
þrjár krónur og verður selt
götunum næstu daga.
VISIR, 19. des.
Minna mátti
nú gagn gera
Þann 18. þ. m., réðust mu
grímu'klæddir illræðismenn á
skrifstofur Brink’s Incorporated
í Boston og námu á brott með
sér miljón dollara í peningum
og hálfri miljón í ávísunum; er
þetta talið hið umfangsmesta
rán, sem um getur í sögu Banda-
ríkjanna; forstjóri áminsts fyrir-
tækis hefir heitið hundrað þús-
und dollara verðlaunum fyrir
að hafa hendur í hári bófanna.
Þrjú hundruð lögreglumenn
vinna nótt sem nýtan dag að
rannsókn málsins, án þess að ár-
angur hafi borið fram að þessu.
KVENKJÓSENDUR RÉÐU
ÚRSLITUM
Einn hinna áhrifameiri manna
miðstjórn verkamannaflokks-
ins í New South Wales, lét ný-
lega þannig ummælt, að það
hefðu einkum verið kvenkjós-
endur, er komið hefðu verka-
mannastjórninni fyrir kattarnef
síðustu sambandskosningum í
Ástralíu; kvað hann þetta þeim
mun furðulegra sem vitað væri
að stjórnin hefði komið í fram-
kvæmd löggjöf um framfærslu-
styrk barna, ellistyrk og marg-
háttuðum öðrum umbótum; auk
þess hefði hún trygt heimilis-
feðrum trygga og vellaunaða at-
vinnu öll þau ár, er hún fór með
völd.
Samið um kaup
osti
Landbúnaðarráðherra sam-
bandsstjórnarinnar, James G.
Gardines, kunngerði á fimtu-
daginn í fyrri viku, að samning-
ar hefðu tekist milli brezku
stjórnarinnar annarsvegar og
canadísku stjórnarinnar hins-
vegar, um kaup á 85 miljónum
punda áT osti héðan úr landi á
yfirstandandi ári. Bretar greiða
25 cent fyrir pundið, en Canada
stjórn bætir við þremur centum
á pund.
I fyrra keyptu Bretar í Can-
ada 50 miljónir punda af osti og
greiddu þá 36 cent fyrir pundið.
Mr. Gardiner lét þess jafn-
framt getið, að eins og á stæði,
hefði ekki verið unt að komast
að hagfeldari samningum við
brezk stjórnarvöld.
Mr. Júlíus Davíðsson bygg-
ingameistari hér í borg, lagði af
stað vestur til Vancouver síðast-
liðinn laugardag ásamt frú sinni;
mun þau hjón ferðast allvíða um
Kyrrahafsströnd og verða að
heiman í tvo mánuði.
☆
— DÁNARFREGN —
Þann 6. jan. andaðist á Elli-
heimilinu Betel á Gimli, Sumar-
liði Jónsson Hjaltdal, ættaður úr
Skagafirði, 84 ára að aldri; for-
eldrar hans voru Jón Helgason
og Þuríður Þorleifsdóttir. Hann
fluttist vestur um haf 1902. Hann
kvæntist Sigríði Lárusdóttur, er
dó 1940. Fjögur börn þeirra eru
á lífi, sum búsett í Winnipeg, en
sonur að sögn á Kyrrahafs-
strönd. Ein af börnum hins látna
er Mrs. Lára Russell, búsett í
Winnipeg, er ásamt fleirum ást-
vinum hins látna var viðstödd
kveðjuathöfnina, er fór fram á
Betel, þann 9. jan. Sumarliði var
blindur síðustu æviárin. Hann
var fjörmaður og vel gefinn um
margt. Séra Sigurður Ólafsson
flutti kveðjumál. —
☆
Kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar efnir til Silver Tea og
sölu á heimatilbúnum mat í sam-
komusal kirkjunnar eftir hádeg-
ið og að kvöldinu þann 1. febrú-
ar næstkomandi; birgið yður af
úrvalsréttum og fjölmennið á
útsöluna. — Að kvöldi fer einnig
fram skemtiskrá, þar sem sýnd
verður kvikmynd í litum, og
einnig skemt með samsöng.
☆
Síðastliðinn laugardag lézt á
Deer Lodge sjúkrahúsinu í grend
við Winnipeg, Vilhjálmur Bjer-
ring 66 ára að aldri; hinn látni
var einhleypur maður; hann tók
þátt í fyrri heimstyrjöldinni. Mr.
Bjerring var sonur hinna vin-
sælu hjóna, Ólafs og Nönnu
Bjerring, er um langt skeið voru
búsett í þessari borg; hinn látni
lætur eftir sig einn bróður, Mr.
S. O. Bjerring forstjóra Can-
adian Stamp Limited.
Útför Vilhjálms fór fram frá
Bardals á mánudaginn. — Séra
Valdimar J. Eylands jarðsöng.
☆
Þeir Bjarni Loftson frá Lund-
ar og Bjarni sonur hans, voru í
borginni í fyrri viku.
Þannig féllu nýlega orð John
Diefenbaker sambandsþing
manni fyrir Lake Centre kjör-
dæmið í Saskatchewan, og munu
fáir véfengja sannleiksgildi
þeirra. „Sagan hefir skýlaust
sannað,“ bætti Mr. Diefenbaker
við, „að þar, sem nóg er til að
bíta og brenna, ríkir einstakl-
ingsfrelsi og lífshamingja“.
Mr. Diefenbaker lagði áherzlu
á það, að eins og nú hagaði til í
Canada og Bandaríkjunum, að
um miklar afgangsvistir væri að
ræða, væri það siðferðileg skylda
stjórnendanna, að hlutast til um
að slíkur vistaafgangur kæmist
til þeirra þjóða, er horfast í augu
við hungur og jafnvel algera tor-
tímingu; þetta væri verkefni,
sem sameinuðu þjóðirnar yrði
að beita sér fyrir um að leysa,
því fyr þess betra.
Útlendingi gefið
málverk eftir
Kjarval
Ríkisstjórn Islands, Reykja-
víkurbær og Akureyrarbær hafa
ákveðið að gefa Olav Hedegaard
bankastjóra í Kaupmannahöfn,
fallegt málverk fyrir veitta að-
stoð í ýmsum fjárhagsmálum
fyrir framangreinda aðila.
Hefir Olav Hedegaard verið
okkur íslendingum mjög vin-
veittur og hjálparhella hin mesta
í sambandi við ýmis fjármál ís-
lenzka ríkisins og íslenzkra kaup
staða.
Hafa því ríkisstjórnin, Reykja-
víkurbær og Akureyrarkaup-
staður bundizt samtökum um að
kaupa málverk af Jóh. S. Kjar-
val fyrir 10 þús, kr. til að gefa
bankastjóranum. Leggur ríkið
fram helming andvirðis, en kaup
staðirnir sinn fjórða hlutann
hvor. — VÍSIR, 21. des.
PÓSTHÚS í UPP-
SIGLINGU
Póstmálaráðherra sambands-
stjórnar var staddur hér í borg-
inni í vikunni, sem leið, til að
kynna sér allar aðstæður varð-
andi hið fyrirhugaða, veglega
pósthús, sem rísa skal hér af
grunni á næstunni; mun nú full-
ráðið, að vinna við stórhýsi þetta
hefjist jafnskjótt og hlýna tekur
í veðri; veitir bygging pósthúss-
ins, þegar þar að kemur, fjölda
manns stöðuga atvinnu.
BÆJARBRUNI
LUNDAR
VIÐ
Þann 20. þ. m. brann til kaldra
kola heimili þeirra Mr. og Mrs.
Stefán Árnason, sjö mílur aust-
ur af Lundar; þau Árnasons-
hjón, ásamt þremur börnum sín-
um, komust ómeidd út úr eld
hafinu og gátu náð með sér ein-
hverju af fötum, en litlu sem
engu af innanstokksmunum;
hvort eigur þeirra hjóna voru
vátryggðar, er Lögbergi ókunn-
ugt um.
Eldsvoði í Árborg
Á miðvikudaginn hinn 18. yfir
standandi mánaðar brann til
kaldra kola skóli Árborgarbæj-
ar; tjónið er metið á 20 þúsundir
dollara; kennarar og nemendur
komust á brott án þess þá sak-
aði með eitthvað af bókum;
sjálfboðaslökkvilið gekk djarf-
mannlega fram og bjargaði með-
al annars píanói, sem skólinn
átti.
Hon. D. L. Champbell
Forsætisráðherra Manitoba-
fylkis, Hon. D. L. Cambell, hefir
kunngert, að fylkisþingið komi
saman til funda þann 14. febrú-
ar næstkomandi; venju sam-
kvæmt er vitaskuld enn alt á
hundu um þau lagafrumvörp,
sem stjórnin leggur fyrir þingið.
Einn af C. C. F. þingmönnum
Winnipegborgar, Mr. Gray, hef-
ir lýst yfir því, að hann í þing-
byrjun muni krefjast hækkun-
ar á ellistyrknum um fimm doll-
ara á mánuði; þá má þess og
vænta, að húsaleigumálin verði
tekin til alvarlegrar yfirvegunar.
Olíuhreinsunar-
verksmiðja
Imperial olíufélagið hefir
kunngert, að það sé nú við því
búið, að hefja vinnu við mikla
olíuhreinsunarstöð, er bækistöð
hafi í East St. Paul skamt norð-
an við Winnipeg; áætlað er að
verksmiðja þessi kosti um 11 mil
jónir dala, og veiti að minsta
kosti 175 manns fasta atvinnu.
Ráðuneytisbreyting
Forsætisráðherra sambands-
stjórnar, Louis St. Laurent, til-
kynti þann 18. þ. m., að Walter
E. Harris hefði verið skipaður
þegnréttinda og innflutnings-
málaráðherra. Náttúrufríðinda-
ráðherrann, Mr. Gibson, hefir
verið skipaður dómari í hæzta-
rétti Ontariofylkis, en við em-
bætti hans í ráðuneytinu tekur
Mr. Winters endurskipulagning-
arráðherra.