Lögberg - 02.02.1950, Síða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 2. FEBRÚAR, 1950.
7
Fimmtugur á morgun:
Einar Ól. Sveinson, prófessor
FYRIR meira en átta árum
síðan var ég, ásamt með tveim
kunningjum mínum, á ferð norð
ur í landi um fagran sumardag.
Við höfðum gist höfuðstað Norð-
urlands og vorum komnir upp í
áætlunarbifreið, sem átti að
fara til Mývatnssveitar. Okkur
var glatt í geði, spaugsyrði hrutu
af vörum, líklega ekki öll sem
gáfulegust, en þó í léttum tón.
Lítinn gaum ætla ég samt, að
velflestir samferðamenn í bíln-
um hafi gefið spjátri okkar,
kímni og kringilyrðum. Sumir
þeirra brostu í laumi, líklega af
vandlætingu.
En þrír farþeganna tóku létt
á gasprinu í þessum farandfugl-
um, kunningjum mínum og mér,
fyrirgáfu allan glannaskap undir
eins og kynntu sig fyrir okkur
af hæversku og alúð og fóru áð-
ur en varði að taka þátt í sam-
ræðum okkar, gamni og glensi.
Þetta voru þau doktor Einar Ól-
afur Sveinsson, frú Kristjana
Þorsteinsdóttir kona hans og
Sveinn sonur þeirra. Við urðum
öll samferða í kringum Mývatn
og ofan í Reykjadal, þar senní
leiðir skildi í bráð. Hjónin og
sonur þeirra fóru heim að Lauga
skóla, en við þrír héldum út í
Aðaldal. Fáum dögum síðar urð-
um við öll sex, af tilviljun, sam-
ferða þaðan norður í Keldu-
hverfi, að Ásbyrgi.
Ári seinna eða tveim höguðu
atvikin því einnig þannig, að ég
varð samferða doktor Einari, frú
Kristjönu og Sveini austur í
Skaftafellssýslu. Og skemmti-
legra né betra samferðafólk hef
ég aldrei haft, hvorki fyrr né
síðar, að öllum öðrum ólöstuð-
um. Fór þar saman græskulaus
gamansemi, fyndni, alúð og fróð
leikur. Þekking Einars Ólafs á
Skaftafellssýslu í fortíð og nú-
tíð né önnur fjölkyngi hans kom
mér að vísu síður en svo á óvart.
Ég hafði lesið eftir hann Um
Njálu og fleiri ágæt fræðirit. En
hitt vissi ég ekki, að doktorinn
væri jafn framúrskarandi ferða-
félagi og hann reyndist mér:
hrókur alls fagnaðar, leiðbein-
andi og hjálpsamur öðlingur, eigi
síður á hálum og breiðum braut-
um samtímans en í myrkviðum
fyrnsku og miðalda. Vitanlega
áttu þau frú Kristjana og Sveinn
ómetanlegan hlut í að gera þetta
ferðalag ánægjulegt. Hafi ég
áður gefið nýtilega bendingu um
örnefni eða því um líkt í Þing-
eyjarþingi, sem efasamt er, þá
fékk ég það nú endurgoldið með
ríkulegum vöxtum.
Eftir þetta hef ég oftar en tölu
verði á komið notið „góðra
galdra og gamanrúna“ Einars
Ólafs og frábærrar gestrisni á
heimili hans og frú Kristjönu.
Síðan við áttum samleið „norður
heimalöndin sunnan jökla“, hafa
í ,nóttleysunni‘ og um ,sólhvörf‘
þessi sæmdarhjón varla mátt af
mér vita, að eigi nyti ég hjá þeim
góðgerða í orði og verki. Og því-
líkan vitnisburð geta víst allir
málvinir þeirra borið þeim. En
tugþúsundir manna, sem aldrei
hafa séð Einar Ólaf og frú Krist-
jönu standa líka í óbættri þakk-
arskuld við þau. Á ég þar fyrst
°g fremst við bækur þær, er
Prófessorinn hefur samið og náð
hafa viðurkenningu og hylli.
Orunur minn er, að kona hans
hafi veitt honum ómetanlegan
stuðning í því starfi, beinlínis
°§ óbeint. Hitt má eigi heldur
í Þagnargildi liggja, hvílíkra vin-
sælda Einar Ólafur nýtur hjá
Öllum þorra útvarpshlustenda
Þýssa lands. Þær hygg ég, að
séu einsdæmi.
Om vísindastörf og fræði-
mennsku $inars ólafs verður hér
Weak, Tired, Nervoos,
Pepless Men, Women
Get New Vim, VIKo
to these weak
to welk lTrY?ion and ne
be blood. Get ui
leftP„SPy vfd day, have ple
ap^Itl^d J^atestys
^»>vb^df°rne.
ekki dæmt. Verða sjálfsagt aðr-
ir, og mér miklu færari, til að
minnast þeirra, svo og kennslu
hans við Háskólann, á þessu
fimmtugsafmæli prófessorsins.
Getið var áður bókar hans Um
Njálu. Síðar skrifaði hann aðra
bók um sama listaverk: Á Njáls-
búð, sem hreif mig mjög. Hygg
ég varla ofmælt, að enginn mað-
ur hafi lagt jafn drjúgan skerf
til skilnings og rannsókna á
þessu öndvegisriti íslenzkra bók-
mennta og prófessor Einar Ólaf-
ur Sveinsson, enda er hann við-
urkenndur sérfræðingur á því
sviði.
Og Einar Ólafur veit á fleiru
skil. Hann hefur samið rækileg-
asta og bezta rit, að ég hygg, um
íslenzkar þjóðsögur. Mér finnst
ekki úr vegi, að leikmenn eins og
ég færi vísindamönnum heilhuga
þakkir fyrir þeirra fræðirit, enda
þótt undirritaður geti eigi fært
vísindaleg rök fyrir máli sínu.
En fleira á og rétt á sér, svo sem
smekkur og sérstök viðhorf.
Ætti ég að velja þrjár íslenzkar
bækur að lífsförunautum og
væri eigi um fleiri að gera,
mundi ég kjósa Sæmundareddu,
Njálu og Þjóðsögur Jóns Árna-
sonar. Enginn fræðimaður hef-
ur gert tveim síðastnefndum
bókum drengilegri skil en pró-
fessor Einar Ólafur. Fyrir það
hvort tveggja er ég honum eilíf-
lega þakklátur. Um fleiri fræði-
rit tala ég ekki, þó vert væri.
Með þessu er þó eigi nema
hálf sagan sögð. Orðstír þessa
mikilsvirta fræðimanns er eigi
aðeins bundinn við ísland.
Frægð hans hefur borizt suður
um sjó. Eigi alls fyrir löngu var
prófessor Einar Ólafur fenginn
til að halda fyrirlestra við „Uni-
versity College, Dublin“, stærsta
háskóla írlands, um íslendinga
sögur. Af viðtölum við lærða og
leika þar í landi er mér kunnugt
um, að fyrirlestrar Einars Ólafs
vöktu óskipta hrifningu áheyr-
enda, og hann varð þjóð sinni
til mikils sóma. Síðastliðinn vet-
ur fór Einar Ólafur til Svíþjóðar,
í boði Uppsalaháskóla, tli þess
að flytja fyrirlestra. Að því
loknu tafðist honum í Stokk-
hólmi og Gautaborg í sömu er-
indum. Bendir það ekki til þess,
að Svíar hafi orðið fyrir von-
brigðum að hlýða á hann í Upp-
sölum.
Þó að einungis þessi tvö dæmi
séu nefnd um kynningarstarf
Einars prófessors erlendis, mun
þar vera af meiru að taka, sem
mér er þó ókunnara, og seppi
ég því af þeim sökum. En sem
dæmi um það álit, er hann hefur
aflað sér meðal fræðimanna, sem
þekkja hann utan við pollinn,
og sönnun fyrir vinsældum þar,
sums staðar að minsta kosti, vil
ég í fám orðum segja frá viðtali,
sem ég átti við írskan háskóla-
kennara í Dyflinni síðastliðinn
vetur. Sá heitir prófessor
Delargy, er sérfræðingur á sviði
þjóðsagna, tungumálamaður
mikill, kann meðal annars ís-
lenzku svo vel, að honum eru
íslenzkar þjóðsögur og ævin-
týri vel skiljanlegar á frummál-
inu. Hann hefur ferðazt víða um
heim, kynnzt fjölda fólks, er
mannþekkjari mikill, skarpgáf-
aður og hinn mætasti maður.
Rétt er að geta þess, að Del-
argy hefur dvalið hér á landi um
tíma. í áðurnefndu viðtali við
rhig sagði hann ýmislegt um
þjóðsögur okkar, málefni og
menn, sem hann hafði kynnzt
hér, svo mæta vel athugað, að
ég hef ekki vitað íslenzka menn
hitta betur naglann á höfuðið,
er þeir dæma eigin málefni og
samborgara sína. Hann er ein-
arður og hreinskilinn, sagði
kosti og löst á íslendingum hlífð
arlaust, en var þó sanngjarn,
minntist margra, er hann hafði
kynnzt hér og hafði séð með
glöggum gestsaugum. Lofaði
hann margt og marga, en engan
svo sem Einar Ólaf, eins og Del-
argy nefndi hann ávallt, titla-
laust.
Gjafir til gamalmennahælisins
BORG, Mountain, North Dakota
f minningu um Jóhannes Jónasson lœknir og Björgu konu hans
frá Báru og íslendingum nær og fjœr.
Hrósyrði þessa valinkunna
írska fræðimanns um hinn ís-
lenzka starfsbróður sinn verða
hér hvorki endurtekin né ís-
lenzkuð. Ég býst ekki við, að
Einar Ólafur kæri sig um það.
í þeim efnum verður líka að
gæta hófs, þegar prentsvertan á
í hlut, ekki fyrir það, að ég væri
eigi Delargy fyllilega sammála.
En „oft má satt kyrrt liggja“,
jafnt um mæti manna sem ávirð-
ingar. Þó vil ég tilfæra eina setn-
ingu, sem Delargy sagði um Ein-
ar Ólaf:
„He has a poet’s voice“ —
hann hefur rödd skálds.
Þetta er satt. Þarna er ein af
skýringunum á því, hvers vegna
öll þjóðin hlustar, þegar Einar
Ólafur talar, ef hún á annað borð
á þess kost.
En það er meira en Einar Ól-
afur eigi rödd skálds. Hann er
skáld, eitt af beztu núlifandi
skáldum þjóðarinnar, bæði í
bundnu og óbundnu máli. Menn
lesi bók Einars „Á Njálsbúð“ og
dæmi sjálfir um. Þar eru kaflar
með því bezta, sem ritað hefur
verið á íslenzku, að hugarflugi,
skyggni og fágun. Rúmsins
vegna er ekki hægt að finna þess
um orðum stað með tilvitnun-
um, því örðugt er að taka smá-
kafla út úr, svo að þeir njóti sín,
án þess að samhengið slitni.
En svo vel vill til, að eftir Ein-
ar Ólaf liggja smærri verk að
vöxtum, en gimsteinar að gæð-
um, ljóð, sem þola fyllilega sam-
anburð við bundið mál öndvegis-
höfunda íslenzkra. Máli mínu til
sönnunar leyfi ég mér að taka
eftirfarandi kvæði; það heitir:
Er sem allt íslenzkt, lætur ekki
mikið yfir sér, en lumar á efni
og formi. Þar er hvergi orði of-
aukið, einskis vant, allt hnit-
miðað, samræmt í listræna,
fagra heild:
„Er sem allt íslenzkt
á öllum tímum
lands og lýðs
leiki mér í hug:
ilmur úr gróandi
anganbrekku,
öræfa bylur,
úr af sævi,
setur, hjáleiga
og sjómanns búð,
höfuðstaður
og heiðakot
auður, örbirgð,
eymd og sœla,
barns vormorgunn
og blinds manns nótt.“
Svona kveða ekki aðrir en góð
skáld, ritsnillingar. Ættjarðar-
ást og mannvinátta loga í hverri
línu. Lærimeistarinn og fræði-
maðurinn leyna sér ekki heldur.
Fjarri fer því þó, að þeir virðu-
legu herrar rýri gildi skáldsins.
Þeir auka það og efla.
Er ég þá kominn að lokaþætti
og aðalefni þessa greinarkorns:
að segja Einari Ólafi til synd-
anna og biðja hann að bæta ráð
sitt. Hann setur ljósið undir
mæliker, þvert undir bann hei-
lagra ritninga og, mér liggur við
að segja í trássi við eigin sam-
vizku. Eftir Einar Ólaf hef ég
aðeins séð örfá kvæði á prenti.
Þau mættu vera miklu fleiri. Þó
að hann sé einn af okkar ágæt-
ustu vísindamönnum, þá met ég
enn meira skáldgáfu hans, lista-
smekk og ritsnilld. Þeir eru ekki
svo margir, sem gefin er sú and-
lega spekin, að þeir megi grafa
pund sitt í jörðu.
Ég þakka Einari Ólafi pró-
fessor virktavel fyrir störf hans
í þágu íslenzkra fræða, óska hon
um af hjartans einlægni til ham-
ingju á þessum merku tímamót-
um ævinnar. Ég á ekki til nema
venjuleg orð, sem ótal sinnum
hafa verið sögð og rituð. Samt
eru þau í fullu gildi, þegar hugur
fylgir máli. Ég óska honum æ
meiri frama á vísindamanns-
brautinni, farsældar og langra
lífdaga, en um fram allt stöðugt
vaxandi hylli skáldgyðjunnar.
Ég vona og veit, að frú Kristjana
muni ekki verða um of afbrýði-
söm í garð þeirrar tignu dísar.
Þóroddur Guðmundsson
Alþbl. 11. des.
BÁRA $ 250.00
Safnað af S. A. Björnson,
Mountain, N.D.
Mrs. B. F. Olgeirsson $ 5.00
Mr.-Mrs. S. A. Bjornson 5.00
Mr. T. H. Steinolfson.... 5.00
Mrs. T. H. Steinolfson... 5.00
Mr.-Mrs. J. A. Hanson 5.00
H. G. Gudmundson .......... 5.00
Veiga Nupdal 1.00
S. T. Hjaltalin ......... 10.00
John P. Hillman 1.00
Garl Johnson r............. 2.00
Mr.-Mrs. V. A. Bjornson 5.00
Mr.-Mrs. H. B. Grimson... 5.00
Mr.-Mrs. Arni Johnson.... 2.00
M. Jonasson ............... 5.00
H. T. Hjaltalin 5.00
J. J. Myres 10.00
Gisli Halldorson .......... 5.00
Mr.-Mrs. K. Halldorson 5.00
Stanley Bjornson .......... 5.00
Mrs. G. Gudmundson ........ 5.00
M. W. Gudmundson .......... 5.00
S. H. Halldorson .......... 5.00
Benidictson’s Family ..... 10.00
Mrs. John Byron ........... 5.00
Mr.-Mrs. S. J. Hanson 5.00
Melsted Family............ 10.00
J. M. Einarson............. 5.00
Mr.-Mrs. S. V. Hanneson 5.00
Mr.-Mrs. Wm. Olgeirson
and Margaret............. 5.00
Oli Soli .................. 5.00
Mr.-Mrs. R. H. Gestson... 2.00
Mr.-Mrs. B. Johnson...... 1.00
Mr.-Mrs. Mike Byron 5.00
Fred Halldorson ........... 1.00
Mr.-Mrs. A. Byron and
Mr.-Mrs. Louis Byron 50.00
Sig Indriadson ............ 1.00
Mr.-Mrs. M. Steinolfson 1.00
S. J. Hallgrimson ......... 2.00
Mr.-Mrs. Sam Steinolfson... 3.00
Mr.-Mrs. Steve Indridason 2.00
Chris Indridason ........ 1.00
Chris. S. Gudmundson 3.00
Mr.-Mrs. Oli G. Johnson 10.00
Mr.-Mrs. F. M. Einarson 10.00
Mrs. Rosa Olafson 10.00
Mrs. Lil Clark............. 5.00
Mrs. Bjorg Wiseman....... 5.00
Omar Soli ................. 5.00
Mr.-Mrs. James Spittal... 10.00
Mr.-Mrs. I. Benjaminson... 5.00
Mrs. Anna Goodman........ 5.00
M. B. Hillman 2.00
Mr.-Mrs. W. G. Hillman... 2.00
Mr.-Mrs. E. Thorlacious.. 5.00
M.-Mrs. W. H. Hannesson 2.00
Mrs. M. F. Bjornson...... 1.00
Thorbjorg Oddson .......... T.00
Mr.-Mrs. Oliver Einarson... 2.00
Olafur Thorsteinson ..... 5.00
Mr.-Mrs. B. C. Johanneson 5.00
A. E. Paulson............. 1.00
M. F. Bjornson 1.00
Mr.-Mrs. H. Olafson 10.00
Mr.-Mrs. T. Gudmundson.. 2.50
Jack Thorfirtnson . 5.00
Mr.-Mrs. S. F. Steinolfson 3.00
Mr.-Mrs. James Innes..... 1.00
Mr.-Mrs. V. F. Hannesson 5.00
Mr.-Mrs. O. T. Bernhoft . 2.00
Mr.-Mrs. J. J. Kristjanson 5.00
Mr.-Mrs. John Hillman 25.00
Mr.-Mrs. Joe Simundson 5.00
Mr.-Mrs. L. W. Thorfinn-
son ................... 2.00
M. W. Davidson 5.00
Louis Hillman .,.......... 5.00
Mr.-Mrs. M. Steinolfson 2.00
Munda Reykjalin .......... 5.00
Kenneth Indridason ....... 5.00
C. I. Gudmundson.......... 5.00
Wm. Austfjord 5.00
Mrs. Kristjana R. Johnson
and Family ............ 5.00
R. S. Johnson Family. 1.00
Carl Soli ................ 1.00
Mr.-Mrs. K. Halldorson 2.00
Mrs. Tr. Bjarnason 2.00
John H. Bjarnason ........ 1.00
Thordur Breidfjord 10.00
S. K. Johnson ........... 3.00
Johannes Anderson 5.00
Omar Bredeson 5.00
Mr.-Mrs. M. Halldorson 2.00
Mr.-Mrs. J. Hallgrimson 10.00
Sigurbjorn Olafson 5.00
Mr.-Mrs. O. J. Jonason 20.00
Mr.-Mrs. Blake Basher 5.00
Mr.-Mrs. F. A. Bjornson 2.00
Mr.-Mrs. Wm. K.
Halldórson ............ 5.00
Mr.-Mrs. W. K. Halldorson 2.00
Safnað af G. J. Jónasson, Gard-
ar, N.D. og Helga Laxdal.
Theo Thorleifson $10.00
Helgi Laxdal 10.00
Johann Gestson .......... 5.00
T. L. Hanson ............ 5.00
Mr.-Mrs. Geo. Jonasson... 5.00
Mrs. Ingibjorg Jonasson.. 5.00
Mr.-Mrs. J. C. Hallgrimson 5.00
Joe Gestson ............ 10.00
John H. Johnson.......... 5.00
John Thorarinson 5.00
Fred G. Johnson 5.00
Mrs. Olina Eirikson ..... 5.00
Steve Thordarson . 10.00
J. K. Olafson 1.00
Jacob Hall .............. 2.00
Alvin Melsted ........... 5.00
Mr.-Mrs. Stefan Melsted . 5.00
Margaret Gudmundson 2.00
Oli G. Johnson 5.00
Mr.-Mrs. John E. Johnson 5.00
Mr.-Mrs. Bjorn Olgeirson . 5.00
Thordis Olgeirson......... 5.00
Mr. John V. Davidson 5.00
Lauga Geir ............... 5.00
G. A. Gudmundson 4.00
Oddur Sweison ............ 4.00
A. A. Gudmundson ....... 10.00
Leonard Gudmundson ....... 5.00
H. S. Gudmundson......... 3.00
J. G. Hall ............... 7.00
Albert Bjarnason ......... 5.00
Kristen Snydal 5.00
S. O. Johnson 3.00
Svold
Mrs. Una Sturlaugson 5.00
Mr.-Mrs. V. Sturlaugson 5.00
Safnað af G. J. Jónasson, Ey-
ford, N.D.
G. A. Christianson .... 5.00
Frank Herrey ........... 5.00
Walter Thorsteinson 5.00
B. S. Gudmundson 5.00
Sigm. Gudmundson ....... 5.00
H. M. Jonasson 5.00
John G. Jonasson 5.00
J. E. Peturson,
Cavalier, N.D........ 10.00
B. Th. Sigfuson 5.00
Mr.-Mrs. Ben Byron 5.00
Mr.-Mrs. H. Hannesson 5.00
Rosa and Kristbjorg
Kristjanson ......... 10.00
J. J. Kristjanson ........ 5.00
Mr.-Mrs. E. J. Myrdal,
Edinburg .............. 5.00
Mr.-Mrs. Gardar Johnson,
Edinburg .............. 5.00
Olafson Brothers ......... 5.00
Mr.-Mrs. H. K. Halldorson 5.00
Mr.-Mrs. A. Christianson. 5.00
Mr.-Mrs. S. S. Kristjanson 5.00
Krist Kristjanson ........ 5.00
Mr.-Mrs. Johann Geir.... 5.00
V. Olafson................ 5.00
Asmundson Brothers...... 10.00
G. G. Gestson ........... 5.00
Mrs. Walter Thorsteinson,
Beulah and Joyce..... 20.00
Bill Thorsteinson 10.00
Mr.-Mrs. G. J. Jonasson 5.00
Arnie G. Johannesson ..... 5.00
J. H. Hallgrimson......... 5.00
Mr.-Mrs. R. Thoísteinson.. 5.00
Safnað af Helga Finnson.
O. W. Peterson $ 5.00
Steini Goodman ........... 1.00
A. G. Magnusson .......... 5.00
John Goodman ............. 2.00
Franklin Grimson ......... 2.00
Herman Bjarnason.......... 5.00
Arman Bjarnason........., 2.00
Cecil Bjarnason........... 1.00
Alfred Gustafson 1.00
Kristin and Gudrun
Goodman 5.00
Gudrun Gunnarson 5.00
Grimsi Goodman 10.00
O. O. Einarson 1.00
H. H. Peterson 5.00
G. S. Goodman 20.00
Steve Goodman ........... 10.00
Mundi Goodman............. 1.00
Leonard Benson 5.00
Mr.-Mrs. Helgi Finnson .... 14.00
Safnað af Björn Stevenson.
J. D. Jonasson $ 5.00
Mrs. B. Eastman .......... 3.00
Lilja Bjornson 2.00
Ed. Einarson 3.00
Hallur J. Einarson 5.00
Mr.-Mrs. Sig Byron 5.00
Arnor Simondson 5.00
Mrs. E. J. Einarson 2.00
John J. Einarson.......... 2.00
Mr.-Mrs. John Goodman 5*00
Mr.-Mrs. B. Stevenson 2.00
Safnað af A. M. Ásgrímsson.
Wm. Sigurdson $ 5.00
Mr.-Mrs. Bill Magnuson 20.00
M. W. Magnuson 15.00
Mrs. Lillian Jordan 10.00
Sigurjon Johnson 5.00
Skuli Stefanson 2.00
Chris Bernhoft 2.00
A. M. Asgrimson........... 5.00
Arinbjorn Sigurdson 5.00
Framkvæmdarnefnd Bárunn-
ar þakkar hér með kærlega
fyrir framúrskarandi dugnað
nefndarinnar, sem safnaði og á-
gætar undirtektir gefenda. Alls
kom inn í sjóðinn $1332.50, kær-
ar þakkir.
H. B. GRÍMSON, skrifari
A BRITISH SCENE — ABINGER HAMMER SURREY
The village of Abinger Hammer lies along the road between
Dorking and Guildford in Surrey. Many travellers will remember
the quaint little clock which projects over the roadway on entering
fhe village. The clock, with a figure of a smith complete with
hammer which strikes the hour, is the only reminder to the
general public that in olden days the village had its own iron
industry. Inscribed on the side of the clock is a motto for users
of the road, it reads: “By me you know how fast to go”, which
can easily be seen when entering the village.