Lögberg - 09.02.1950, Síða 1
PHONE 21 374
LA'l11'd S A Complele
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21374
, vjw''lc<V
* La*nd?OlV ^ A Complele
Cleaning
Insíiíuíion
64. ÁRGANGUR
SEXTUGUR:
Halldór
Jóhannsson
Sextíu ára er í dag, 22. des-
ember Halldór Jóhannsson frá
Haugi í Miðfirði, nú til heimilis
á Hvammstanga. Hann er sonur
hjónanna Jóhanns bónda Ás-
mundssonar á Haugi og síðari
konu hans, Arndísar Halldórs-
dóttur, og var hann einkabarn
þeirra. Halldór er fjórði maður,
í beinan karlegg, frá séra Bjarna
Jónssyni á Mælifelli, sem lézt
árið 1809, en frá þeim presti eru
miklar ættir komnar. Jóhann á
Haugi átti nokkur börn með
fyrri konu sinni, og fóru þau
systkin til Ameríku. Af hálf-
bræðrum Halldórs þar varð
nafnkunnastur Ásmundur P. Jó-
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 9. FEBRÚAR, 1950
NÚMER 6
Frances Abbott and Joan Bergman, Winnipeg Winter Club, placed
first in the ladies pairs in the recent Western Canadian Figure
Skating Championships, leading an entry of six. They were in
top form showing precision, good timing and uniformity through-
out in their jumps and spins,.and won the Glenora trophy. Joan
Bergman came 3rd in the ladies Junior Singles event. Frances
Abbott has her gold medal, the highest award in figures, 8th test,
and Joan Bergman is on her sixth test.
Miss Bergman is the daughter of Mr. and Mrs. J. Bergman, Red-
wood Apts., Winnipeg.
Halldór Jóhannsson
hannsson, fasteignasali í Winni-
peg, sem nú er um það bil hálf-
áttræður að aldri.
Halldór ólst upp í föðurgarði
við venjuleg sveitastörf. Innnan
við tvítugsaldur fór hann til
náms í Flensborgarskóla og var
þar einn vetur, 1908—1909. Hæfi-
leikar hans til náms voru ágætir,
námið mun hann hafa stundað
að af mestu alúð og með prýði-
legum árangri. En skóla gangan
varð ekki lengri. Mun það hafa
stafað af því, að faðir hans lézt
haustið 1909 og tók Halldór þa
við búsforráðum með móður
sinni, í stað þess að halda áfram
skólanámi. Fáum árum síðar
kvæntist hann ágætri konu þar í
sveitinni, Guðrúnu Jónasdóttur.
Hún er elzt af börn um hjónanna
Jónasar Jónssonar og Önnu
Kristófersdóttur á Syðri-Reykj-
uni, sem bæði eru enn á lífi, og
attu þau 60 ára hjúskaparafmæli
u síðastl. sumri.
Halldór og Guðrún bjuggu á
Haugi til ársins 1947, en þá létu
Þau af búskap og fluttust til
Hvammstanga. Þó að þau hefðu
ekki stórt bú, var búrekstur
Þeirra á margan hátt til fyrir-
^yndar. Meðferð á öllum skepn-
Um var þar ágæt, og því góður
urður af búinu. Jörð sína bættu
‘3au til muna og öll umgengni
var ^ar mjög góð, jafnt utan
æiar sem innan. Eigi varð þeim
úonum barna auðið, en þau
13 a upp nokkur fósturbörn
°S þar að auki hafa börn og ungl
ingar oft dvalið á heimili þeirra
um lengri eða skemmri tíma. Á
nimili þeirra er got að koma þar
er öllum gott að vera, og margir
afa notið hjálpfýsi og greiða-
Semi Þeirra hjóna.
alldór Jóhannsson er sérstakt
P.rimmenni í allri framkomu,
s ar aefur í bezta lagi og nýtur
h ^raus^s allra, sem hann
e ja. Honum hafa því verið
a ín mörg trúnaðarstörf fyrir
sveit sína 0g sýslu. sem hann
Skírnarfontur
vígður í Glenboro
Á sunnudagskvöldið 11. des.,
að aflokinni guðsþjónustu, (við
hátíðlega athöfn) í kirkju Glen-
borosafnaðar, var vígður Skírn-
arfontur sá hinn fagri og veg-
legi, sem Mrs. G. Lambertson og
börn hennar nýlega gáfu söfn-
uðinum í ástkærri minningu um
eiginmann og föður þeirra, Guð-
mund Lambertson, gullsmið,
sem dó 27. okt. 1947. Vígsluat-
höfnina framkvæmdi séra Eric
H. Sigmar. sóknarpresturinn
með sínum vanalega myndar-
skap og flutti stutta ræðu, og
söng einsöng. Forseti safnaðar-
ins mælti nokkur orð á íslenzku
fyrir hönd safnaðarins, þakkaði
þessa veglegu og virðulegu gjöf
og fór lofsamlegum orðum um
líf og störf Hr. Lambertsen, sem
var meðlimur safnaðarins frá
stofnun hans til dauðadags, hann
var fulltrúi og skrifari lengst
alla tíð safnaðarins, og tryggur
styrktarmatSur hans með ráði og
dáð, seint og snemma, og stólpi
íslenzkra félagsmála; yfir höfuð
að tala, Mrs. Lambertsen og
börn hennar eiga þakkir skyldar
fyrir virðulega og höfðinglega
gjöf. G. J. Oleson
Frægur fésýslumaður
látinn
Þann 4. þ. m. lézt í London
einn hinn víðfrægasti fésýslu-
maður Breta á síðari tímum
lávarður Norman, 78 ára að
aldri; hann var forseti Bank of
England frá 1920 til 1944, er
hann lét af störfum; hann hét
fullu nafni Montagu Callet Nor-
man, en var hafinn til lávarðs-
tignar sama árið og hann hætti
forsetastöðu við áminsta pen-
ingastofnun.
Mestur herbúnaður
í heimi
Flugmálaráðherra Bandaríkj-
anna, W. Stuart Symington,. lét
þannig ummælt í ræðu, sem
hann flutti að Waco, Texas, þann
1. yfirstandapdi mánaðar, að
einræðisherrar Rússlands hefðu
til taks þann mesta herbúnað,
er um þessar mundir þektist í
heiminum; þetta gilti jafnt um
fótgöngu- og vélalið, lofther og
neðansjávarbáta; hann kvaðst
ekki í neinum vafa um, að Rúss-
ar gætu hleypt af stokkunum
atómsprengjuhernaði hvenær
sem vera vildi, er tvísýnt væri
um að Bandaríkin gætu rönd við
reist.
„Landher Rússa“, sagði Mr.
Symington, „er margfalt stærri,
en allur landher Bandaríkjanna
og sambandsþjóða þeirra; hið
sama er að segja um lofther
R ú s s a o g kafbátafylkingar
þeirra“.
Mr. Symington lagði sérstaka
áherzlu á það, að þjóðþing
Bandaríkjanna mætti ekki horfa
í skildinginn varðandi öryggis-
mál þjóðarinnar.
Þing akuryrkjuróSsins, sem
haldið var í Niagara Falls
Hálf veröldin ólæs
Unesco hefir safnað fróðleg-
um skýrslum um lestrarkunn-
áttuna í heiminum. í Norður-
Evrópu, Bandaríkjunum og Can-
ada er ástandið bezt og þar er
aðeins 1% ekki læsir
Evrópulöndunum eru sumstað-
ar 55% ólæsir og í Asíu allri eru
80—90% af fólkinu hvorki læst
né skrifandi. í Afríku er ástand-
ið verst, því að þar eru milli 90
og 99% ólæsir. Það vekur eftir-
tekt hve margir eru læsir í Suð-
urhafseyjum, en þar hafa trú-
boðar líka starfað mikið.
Afmæli
forsæfisráðherrans
Þann 1. þ. m., átti forsætisráð-
herrann í Candada, Rt. Hon.
Lauis St. Laurent, 68 ára af-
mæli; hann vann þann dag,
venju samkvæmt, myrkranna á
milli, og rétti þeim öllum hlýja
hönd, er litu inn á skrifstofuna.
Mr. St. Laurent er hamhleypa
að vinnu og rís jafnan snemma
úr rekkju; hann vinnur persónu-
lega að því manna mest, að búa
undir þá löggjöf, er lögð verður
fyrir næsta þing, sem kemur
saman þann 16. yfirstandandi
mánaðar.
Séra Pétur
Hjálmsson látinn
Nýlega hafa borist fregnir frá
Innisfall, Alberta, þess efnis að
séra Pétur Hjálmsson hafi lát-
ist að heimili sínu þar í sveit 30.
janúar s.l. og verið jarðsettur
þar 2. febrúar.
Séra Pétur var fæddur að
Norðtungu í Mýrasýslu, 15. maí
1863, sonur Hjálmars Pétursson-
ar og Helgu Arnadóttur, sem þá
áttu heima að Norðtungu og síð-
ar að Hamri. Varð búfræðingur
frá Olafsdal, gekk í latínuskól-
ann og varð student 1891, og
kandidat frá prestaskólanum
1895. Fluttist vestur til Canada
1899, vígður til prests á kirkju-
þingi 1903. Eftir þar starfáði
hann lengi á vegum lúterska
kii'kjufélagsins sem trúboðs
prestur, uns hann settist að í
Markerville, Alberta, og þar
dvaldi hann síðan sem prestur
og bóndi. Blindur hafði hann
verið í mörg ár. Hann var barn-
laus, en lætur eftir sig ekkju,
Jónínu, systur Helga Johnson
1923 Ingersoll St. í Winnipeg.
Miss Muriel Stevenson
hefir rækt af mestu vandvirkni
og samvizkusemi. Hann er hag-
leiksmaður og skrifar svo góða
Kaupfélags Vestur-Húnavetn-
inga og var lengi formaður fé-
lagsstjórnarinnar. Með störfum
sínum þar hefir hann unnið því
um langt skeið sæti í stjórn
félagi mikið gagn, enda er hann
einlægur samvinnumaður og til-
lögugóður við lausnir allra mála.
Eg vil ljúka þessum fáu orðum
með því að flytja Halldóri Jó-
hannssyni kærar þakkir fyrir
ánægjulegt samstarf á liðnum
tíma, og óska honum og heim-
ili hans gæfu og gengis á kom
andi árum.
Skúli Guðmundsson
Á braut listarinnar
Sú hin unga og glæsilega
stúlka, sem hér um getur, Miss
Muriel Stevenson, er dóttir
þeirra Mr. og Mrs. E. Stevenson,
sem búsett eru í Estonhéraðinu
í Saskatchewan; hún er tuttugu
og eins árs að aldri og lýkur á
Suður- i næsta vori prófi í myndlistar-
gerð við fjöllistaskólann í Cal-
gary. Ritstjóri Lögbergs hefir
góðu heilli átt þess kost, að sjá
nokkrar ljósmyndir af frum-
myndum þessarar gáfuðu stúlku,
sem auðsjáanlega bera vitni
frumskapandi hæfileikum henn-
ar.
Faðir Miss Stevensen er ís-
lendingur, en móðirin af skozk-
um og írskum uppruna.
Þjóðkunnur prófessor
látinn
Nýlátinn er í Montreal pró-
fessor William E. Osborne, er
fyrst gegndi embætti við Wesley
College hér í borginni, en varð
síðar prófessor í frönsku við
Manitobaháskólann, kunnur bók
mentafræðingur og fyrirlesari;
hann var sérstakur mælskumað-
ur, róttækur all mjög í skoðun-
um.
Undanfarna daga stóð yfir í
bænum Niagara Falls í Ontario
ársþing akuryrkjuráðsins í Can-
ada — Caadian Federation of
Agriculture; var þingið afarfjöl-
sótt af erindrekum úr öllum
fylkjum landsins; margar álykt-
anir voru gerðar, er í þá átt mið-
uðu, að tryggja bændum fast-
ákveðið grunnverð fyrir fram-
leiðsluna, svo sem áður var til-
kynt; þes var og krafist, að stjórn
in beitti sér fyrir um, að koma á
fót föstum nefndum innan vé-
banda hvers fylkis um sig, er
stæðu í sem allra nánustum sam
böndum við verðlagsuppbótar-
nefnd sambandsstjórnar með
það fyrir augum að koma á
auknu samræmi milli allra
þeirra aðilja, er að bættum skil-
yrðum fyrir sölu canadískra
búnaðarafurða vinna.
Rt. Hon. James G. Gardiner
landbúnaðarráðherra sambands-
stjórnar flutti ræðu á þinginu
og varði gerðir sínar svo sem
föng stóðu til, en sætti engu að
síður nokkurri andúð af hálfu
erindreka.
H. H. Hannam var endurkos-
inn forseti áminsts akuryrkju-
ráðs, en W. J. Parker frá Win-
nipeg, var kosinn varaforseti.
Vestmannaeyjabátar óvenju
snemma tilbúnir á vetrarvertíð
Margir hyggjast hverfa frá togveiðum
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins, Vestmannaeyjum.
UNDIRBÚNINGUR að vetrarvertíð er nú í fullum gangi í Vest-
mannaeyjum, og eru líkur til þess að bátar þar verði með allra
fyrsta móti tilbúnir á veiðar. Flestir eða allir bátar, sem gengu
á vertíð í fyrra, munu ganga í vetur, og vitað er um að minnsta
kosti tvo stóra báta, sem búið er að kaupa til Eyjanna til viðbótar.
Eru það tveir ungir formenn, sem keypt hafa bátana.
í þorskanetaveiðinni verður
Lætur hort
mæta hörðu
Nýlega gerðist sá atburður, að
stjórnin í Tjekkóslovakíu gerði
landræka tvo canadíska flug-
menn, sem voru í þjónustu cana
dísku sendisveitarinnar í Prag,
og sakaði þá um njósnarastarf-
semi; menn þessir neituðu þess-
um ákærum og kváðu þær á
sandi bygðar; nú eru þeir komn-
ir til Ottawa og hafa fengið sam-
bandsstjórn skýrslur sínar í
hendur. Stjórnin hefir svarað á-
minstu tiltæki stjórnarinnar í
Prag með því að vísa úr landi
tveimur af hennar mönnum, er
störfuðu við sendisveit hennar í
Ottawa.
mikið meiri þátttaka en undan-
farið, og munu að minnsta kosti
10 bátum fleira stunda þorska-
netaveiðar í vetur en í fyrra.
Útlit er fyrir að Vestmanna-
eyjabátar hugsi heldur til að
hverfa frá togveiðum og liggja
til þess ýmsar ástæður.
Beitusíldarbirgðir munu vera
nægar í Vestmannaeyjum og
þegar mun vera fyrir hendi eins
mikið magn af salti og notað
var í fyrra. Hefir Katla verið að
undanförnu að afferma á annað
þúsund smálsetir af salti.
Ríkisútvarpið sagði frá því í
fréttum fyrir skömmu, að mjög
dauft væri yfir öllum útgerðar-
Richard Beck
VETRARKOMA
Vetrarins hrímgrái valur
vænghraður blikar við ský;
gustar aj frosthvítum fjöðrum
feigðin í hrollköldum gný.
Fölna á vanga og vikna
vallarins síðustu blóm,
heyra í vængjanna hvini
hljóma sinn örlagadóm.
Blaðrúnar bjarkir og merkur
blikna við fjaðranna gný.
Hratt flýgur vetrarins valur —
vorar þó aftur á ný.
undirbúningi í Vestmannaeyj-
um og kom þessi frétt kynlega
við Eyjaskeggja, því þótt útgerð
þeirra hafi að ýmsu leyti átt við
sömu örðugleika að stríða að
undanförnu sem önnur útgerð,
þá hefir það ekki dregið kjark
úr útgerðarmönnum þar, eins og
undirbúningur undir vertíðina í
ár sýnir. — Alþbl. 14. des.
Vatnavextir
valda tjóni
miðja fyrri
Um
viku gerði
hellirigningu í Kentucky, West
Virgina og Tennessee, Arkansas
og víðar, er gerði það að verk-
um, að ár flæddu yfir bakka, og
þúsundir manna, kvenna og
barna urðu að flýja heimili sín;
eignatjón hefir enn eigi verið
metið að fullu.
Endurkosinn borg-
arstjóri í Reykjavík
Samkvæmt fregn frá sendiráði
Islands í Washington, var hr.
Gunnar Thoroddsen endurkos-
inn borgarstjóri í Reykjavík á
fimtudaginn var; gefur þetta
augljóslega til kynna, að sjálf-
stæðisflokkurinn hafi hlotið
meiri hluta í bæjarstjórn við ný-
afstaðnar kosningar.
Ólafur N. Kardal
Ólafur N. Kardcl
Presented with
Scholarship
The Icelandic Canadian Club
has presented Mr. Ólafur Kardal
of Gimli, Manitoba, with $100.00
from it’s scholarship fund. Mr.
Kardal is taking vocal training
in Minneapolis, Minnesota, and
has made excellent progress.
The Icelandic Canadian Club
will be pleased to receive con-
tributions to it’s scholarship
fund on his behalf. Contributions
such as these can be used as in-
come tax deductions.