Lögberg


Lögberg - 03.11.1950, Qupperneq 1

Lögberg - 03.11.1950, Qupperneq 1
PHONE 21374 ko* u<^e cvea^e1' * ••tO**' ljOVn y'O'P- ® A Complele Cleaning Instiluiion PHONE 21 374 U *ó'e< , nneTs C\ean' „ÆeTers a'l0^ Laiir1 ** A Complete Cleaning insíitution 63. ARGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 3. NÓVEMBER, 1950 NÚMER 44 Bæjarstjórnar- kosningarnar Kosningar þær til bæjarráðs í Winnipeg, sem fram fóru á miðvikudaginn þann 25. október síðastliðinn, breyttu litlu til um samsetningu þess frá því, sem áður var. Mr. Coulter var endur- kosinn til borgarstjóra með geysilegu atkvæðamagni um- fram gagnsækjanda sinn, Jack Blumberg, er bauð sig fram und ir merkjum C.C.F.-sinna. í 2. kjördeild, þar sem íslenzkra á- hrifa gætir mest, voru þeir Hallonquist og Scott, endurkosn- ir við fyrstu talningu, en Mc- Kelvey, C.C.F., náði endurkosn- ingu við þriðju talningu; í skóla- ráð fyrir 2. kjördeild voru end- urkosnir þeir Jessiman og Ro- bertson. Til skólaráðs fyrir 1. kjördeild var kosinn Peter D. Curry, sem er íslenzkur í móðurætt. Sofa ekki á verði Hinn 7. október síðastliðinn, var helgaður Leifs Eiríkssonar hátíðahöldunum í Los Angeles, Cal., og komu íslendingar þar allverulega við sögu; aðalræðuna um Leif Eiríksson flutti Mr. Sumarliði (Sumi) Sveinsson, en frú hans sem er sérlega listræn kona, annaðist um sögulega skrautsýningu af Þorfinni Karls- efni, er var fyrsti hvíti maður- inn, sem festi rætur í Ameríku. Stanley T. Ólafsson, ræðismað- ur, flutti kveðjur fyrir hönd ís- lenzku ríkisstjórnarinnar. í undirbúningsnefnd af hálfu íslendinga áttu sæti þau Mr. og Mrs. Sumarliði Sveinsson, högg- myndasnillingurinn víðkunni, Miss Nína Sæmundsson og Jó- hannes Newton. Kjörinn í skólaróð Fræðslustarfsemi Dr. Becks Dr. P. H. T. Thorlakson Flytur ræðu ó þingi skurðlækna Dr. P. H. T. Thorlakson, sem víðkunnur er um þetta mikla meginland vegna frábærrar for- ustu sinnar á vettvangi læknis- fræðinnar, lagði af stað suður til Cleveland, Ohio, á mánudags- morguninn, til að flytja þar eina aðalræðuna á ársþingi ameríska skurðlæknafélagsins, sem hófst á þriðjudaginn. Dr. Thorlakson er væntanlegur heim á laugar- daginn; hann bauð Ðr. Páli Kolka, sem setið hefir á lækna- þingi í New York, að koma til Cleveland og vera þar gestur sinn. Enn er barist í Kóreu \ Þó sýnt þætti í fyrri viku, að því er yfirstjórn sameinuðu herj anna skýrði frá, að Kóreustríðið væri í þann veginn að syngja sitt síðasta vers, eru þó enn háð- ar í landinu snarpar orustur í grend við landamæri Mansjúríu; hafa kommúnistar þar um slóð- ir smalað að sér nokkrum her og veita allsnarpt viðnám; er það ærið alment álitið, að stjórnin í Kína hafi séð aumur á skoðana- bræðrum sínum í Norður-Kóreu og sent þeim nokkrar þúsundir hermanna. Mr. Peter D. Curry Við nýlega afstaðnar kosning- ar til bæjarstjórnar í Winnipeg, var Mr. Peter D. Curry kosinn í skólaráð fyrir 1. kjördeild með miklu afli atkvæða; er þetta í fyrsta skipti, sem hann hefir boðið sig fram til þátttöku í opinberum málum. Mr. Curry, sem er hið mesta glæsimenni, er íslenzkur í móðurætt, sonur hinnar mikilhæfu höfðingskonu, frú Berthu Curry, sem dvalið hefir langvistum í borginni San Diego í Kaliforníuríkinu; faðir hans, sem var hinn mesti dugn- aðarmaður á vettvangi viðskipta lífsins, er látinn fyrir allmörg- um árum. Hinn nýi skólaráðsmaður rek- ur í stórum stíl fésýslufyrirtæki hér í borginni. Milliþinganefnd að verki Fyrir skömmu hefir setzt á rökstóla milliþinganefnd, er það hlutverk hefir með höndum, að íhuga ýmissar breytingar á stjórnarvínsölu löggjöf Mani- tobafylkis, sem eigi hefir árum saman verfð endurskoðuð svo teljandi sé; formaður nefndar- innar er Hon. C. Rhodes Smith dómsmálaráðherra; nefndin hef- ir þegar yfirheyrt nokkur vitni, og hafa ýms þeirra látið þá skoð- un í ljósi, að gild ástæða myndi til, að takmarka vínveitinga- leyfi til klúbba og veizluhalda, þar sem orð léki á, að slíkum leyfum væri tíðum misbeitt. John A. McDowell, þingmaður Iberville kjördæmisins, gerði fyrirspurn um það, hvort ölgerð- arfélög ættu fjölda hótela út um sveitir landsins og réðu því að mestu leyti sjálf hvaða tegundir öls yrðu seldar þar. Mr. C. A. Tanner forstjóri hótelsamtak- anna í Manitoba, kvaðst eigi sjá sér fært, að svara áminstri fyrir- spurn fyrirvaralaust. Valdsvið áminstrar milliþinga nefndar er harla takmarkað, og þess því naumast að vænta, að þær tillögur, sem hún leggur fyrir þing, komi í framkvæmd- um róttækum brytingum á nú- gildandi löggjöf, þó marghátt- aðra umbóta sé vafalaust þörf. Mr. Jobin, þingmaður fyrir Pas-kjördæmið, vill láta breyta vínsölulöggjöfinni frá upphafi til enda og telur hana með öllu úrelta. Dr. Richard Beck prófessor, forseti Grand Forks deildar fé- lagsins „The American Asso- ciation for the United Nations“, flutti átta ræður þar í borg síð- astliðna viku í tilefni af fimm ára afmæli Sameinuðu þjóðanna. Þrjár af ræðum þessum voru fluttar á sjálfan afmælisdaginn, þriðjudaginn þ. 24. október, um hádegið, á fundi yngri deildar verzlunarráðsins í Grand Forks, seinni hluta dagsins í útvarp frá útvarpsstöð ríkisháskólans Norður-Dakota, og um kvöldið á fundi lestrarfélags kvenna East Grand Forks. Aðrar þrjár ræður flutti dr. Beck daginn eftir, um hádegið á fundi Kiwanis-klúbbsins í Grand Forks og um kvöldið á fundum verkalýðsfélags borgarinnar og þjóðræknisdeildar Norðmanna (Sons of Norway). Síðdegis á fimmtudaginn hélt dr. Beck ræðu á helzta skóla kaþólskra manna í Grand Forks (St. James Academy) og fyrir hádegið á föstudaginn ræðu á allsherjar samkomu kennara og nemenda aðal-gagnfræðaskóla borgarinnar (Central High School) fyrir yfir 1000 áheyr- endum. Allar fjölluðu ofannefnd ar ræður um fjölþætta starf- semi Sameinuðu þjóðanna frá ýmsum" hliðum, eigi aðeins á sviðum heimsfriðar og alþjóða- samvinnu í þá átt, heldur einnig varðandi viðskiptamál, atvinnu- og menningarmál. Undanfarnar vikur hafði dr. Beck flutt ræður og erindi á þessum stöðum: í ársveizlu Bóka varðafélagsins í N. Dakota, sem haldin var til heiðurs rithöfund- unum þar í ríkinu, í Fargo 6. október; við afhjúpun frumherja minnisvarða í Drayton, North Dakota, 8. október; á samkomu dr. P. Kolka að ^Æountain, N. Dakota, 9. október; útvarpsræðu um Leif Eiríksson frá stöð ríkis- háskólans 12. október; sem er Landfundadagur (Discovery Day) í N. Dakota, og ræðu um heimsmálin og alþjóðasamvinnu í ársveizlu Oddfellow félagsins í Grand Forks þ. 16. október. Sem forseti þeirrar deildar Allra þjóða dagur í Los Angeles, Calif. Þann 14.—15. okt. s.l. safnað- ist saman fólk af mörgum þjóð- ernum afi 435 S. Boyle Ave. í húsakynnum sem að þessi félágs skapur hefir yfir að ráða, og er það í fyrsta sinni, sem að ís- lendingar hér hafa tekið sinn þátt í þessum félagsskap. Til sýnis voru margir fagrir og fá- 1 séðir munir frá íslandi, og enn- framur sýnishorn af íslenzkum 1 matartilbúningi, sem að nokkrar úrvals konur stóðu fyrir. Það er óþarfi að taka það fram að þarna var margt um manninn, sennilega um 2—3000 manns. Margt var að sjá, . kynnast og læra frá hinum ýmsu þjóðar- brotum, sem að byggja Cali- forníu, og þar sem að þau minstu og fámennustu vilja skara eld að sinni köku engu síður en þau, sem að stærri og voldugri eru. Sverrir Runólfsson söng þrjá íslenzka söngva, en kona hans, Jamica Murphy, spilaði undir, og var hin bezta skemtun. Skúli G. Bjarnason Hervarnasáfrtmóli í fyrri viku undirskrifuðu Canada og Bandaríkin sín á mill um nýjan hervarnasáttmála, er rýmkar all-mjög um viðskipti meðal þjóðanna og samræmir betur vopnagerð og hervarnir, en áður gekst við. Af hálfu Can- anda undirskrifaði sáttmálann Hume Wrong sendiherra í Was- hington, en fyrir hönd Banda- ríkjanna Dean Acheson utan- ríkisráðherra. Mr. G. A. Williams kaupmað- ur frá Hecla, var staddur í borg- inni í fyrri viku. / Gustav Svíakon- ungur lótinn Síðastliðinn sunnudag lézt í Stokkhólmi Gustav fimti Svía- konungur 92 ára að aldri, vin- sæll og merkur þjóðhöfningi, er setið hafði að völdum í fjóra ára- tugi; hann unni friði og vildi í öllu veg þjóðar sinnar; sama dag tók við konungdómi erfSáprins- inn, sem nú er orðinn Gustav sjötti konungur Svía, 68 ára að aldri. Kennarafélagsins í N. Dakota, er fjallar um málefni æðri skóla (Higher and Professional Edu- cation), fyrir yfirstandandi ár, skipaði dr. Beck einnig forsæti á fundi hennar í sambandi við ársþing félagsins 1 Fargo þ. 20. október. Einn af aðalræðumönn- um var dr. Albert F. Árnason, fræðslumálastjóri æðri skóla í N. Dakota, sem lýsti því, hvern- ig Þýzkaland kom honum fyrir sjónir, er hann átti þar þriggja mánaða dvöl síðastliðið sumar. Mr. B. J. Lifman frá Árborg kom til borgarinnar snögga ferð á föstudaginn var. Rússin samur viö sig Jakob Malik hinn rússneski hefir barist gegn því með hnú- um og hnjám, að Tryggve Lie yrði endurskipaður aðalritari sameinuðu þjóðanna, og beittu Rússar synjunarvaldi sínu í ör- yggisráðinu í þessu efni; hatast þeir auðsjáanlega við Mr. Lie vegna hinnar skjótu og djarf- mannlegu afstöðu hans til inn- rásarinnar í Suður-Kóreu; mik ill meiri hluti vestrænna þjóða er hlyntur endurkosningu Mr. Lie’s, og þarf því ekki að efa að hann gangi sigrandi af hólmi við almennar atkvæðagreiðslur í þingi hinna sameinuðu þjóða. Dr. Harald Blondal Ryður sér brauf ó sviði vísindanna Eins og áður hefir verið skýrt frá lauk Dr. Harald Blondal em- bættisprófi í læknisfræði við Manitobaháskólann árið 1949, en áður hafði hann útskrifast í raf- urmagnsverkfræði frá s ö m u mentastofnun; hann er ágætur námsmaður og ástundunarsam- ur að sama skapi; í fyrra veitti The National Research Council Dr. Blondal álitlega fjárhæð til framhaldsnáms, og hefir hann til skamms tíma unnið að kjarn- orkurannsóknum að Chalk River; og nú hefir hann orðið þess heiðurs aðnjótandi, að fá frekari fjárstyrk frá The Nation- al Cancer Institute of Canada til framhalds vísindalegra rann- rannsókna við Royal Cancer Hospital í London, og mun hann dvelja þar að minsta kosti ár- langt, og þess þá vænst, að hann komi aftur til Winnipeg; nú er Dr. Blondal fyrir skömmu kom- inn til London ásamt frú sinni; hann er sonur hins mikilhæfa læknis og listmálara, Dr. Ágústs heitins Blöndal og ekkju hans, frú Guðrúnar Blöndal. Samvistum slitið íhaldsflokkurinn í Manitoba hélt ársþing sitt í Brandon, er stóð yfir í tvo daga í fyrri viku; þar flutti flokksforinginn í land- inu, George Drew, aðalræðuna; megin a f r e k þingsins var það, ef til afreka mætti teljast, að slíta pólitískum samvistum við Campbell-stjórnina í Mani- toba, og krefjast nýrra fylkis- kosninga, en þó eigi fyr en á næsta vori, svo forkólfum flokks ins ynnist tími til að semja nýja stefnuskrá, sem heldur mun ekki hafa verið vanþörf á. Flokksþingið endurkaus Erick Willis til fylkisforingja. Kínar róðast ó Tibet Nú er það formlega viðurkent, að kínverskar hersveitir hafi ráð ist inn í smáríkið Tibet og sætt þar lítilli mótspyrnu, enda hafa Tibetbúar ekki nema örlitlu varnarliði á að skipa. Indverjar hafa mótmælt innrásinni. TIL Halldórs Sigurðssonar byggingameistara MR. GARNET COULTER Endurkosinn til borgarstjóra í Winnipeg með feikna afli atkvæða. 15. sept. 1950 Lífshvöt þín er litarsterk með lundareinkunn beztri, þú hefir löndum lagt til í lífsönn hérna í Vestri. verk MRS. GARNET COULTER Hin gáfaða og virðulega borgar- stjórafrú í Winnipeg. Uppgjöf hjá þér engan stað átti — það er mátinn: stóðstu fast þó styrmdi að og stundum gæfi á bátinn. Glaður og reifur gæfuskeið gekstu fram um skjÖldu kjölur risti lagar-leið löðurtypta öldu. Þegar vandi og verkastyr á vegamótpm standa: vertu altaf eins og fyr athvarf þinna landa.^ Lifðu sæll! um lífsarn þinn lýkur vinahringur. Greypt er á skjöld og grunnfald þinn: „Góður íslendingur!“ Jón Jónatansson Endurkosnir í bæjarráð fyrir 2. kjördeild Ernest Hallonquist H. B. Ssott íslcndingar á nor- rænu stéttarþingi í Höfn Kaupmannahöfn, 29. sept. — Miðstjórn norræna Bænda- ráðsins heldur ársþing sitt í Kaupmannahöfn þessa dagana. Forseti samtakanna, Hauch, landsþingsmaður, bauð íslenzka fulltrúa, sem sækja þingið sér- staklega velkomna, en þetta er í fyrsta sinni, sem íslenzkir full- trúar taka þátt í þingi þessara samtaka. Þátttaka íslands í miðstjórn- inni var samþykkt með lófataki. móttökurnar fyrir hönd íslenzku Sveinn Tryggvason þakkaði fulltrúanna og kvað hann ís- lenzka bændur hafa lært mikið af stéttarbræðrum sínum á Norð urlöndum og fylgjast vel með þróun landbúnaðarmála hjá þeim og myndu gera í fram- tíðinni. Mbl. 29. sept.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.