Lögberg - 21.12.1950, Blaðsíða 1

Lögberg - 21.12.1950, Blaðsíða 1
/ Biskupshjónin heimsækja Minneapolis og Winnipeg Frú Guðrún Pétursdótíir, Valdimar Björnsson, dr. Sigurgeir Sigurðsson í bréfi til Lögbergs frá Min- neapolis, Minn., er sagt frá komu dr. Sigurgeirs Sigurðssonar og frúar hans þangað til borgar, og hversu þeim, sem vænta mátti, var fagnað þar. Eins og Lögberg hefir áður skýrt frá kom dr. Sigurgeir hing- að vestur vegna heilsu sinnar og gekk undir nákvænia læknis- skoðun við Mayolækningastofn- unina frægu að Rochester, Minn., kom þá brátt í ljós, að vanlíðan hans stafaði mestmegn- is af þreytu, sem sízt er að undra, því hann á langan og umsvifa- mikinn embættisferil að baki og er maður, sem hlífir sér lítt. Biskupshjónin komu í tæka tíð til Minneapolis til að geta komið þar á fund í Kvenfélag- inu Hecla, sem er eini íslenzki félagsskapurinn í þeirri fjöl- mennu og fallegu borg; hef- ir þessi fáliðaði hópur lagt lofs- verða rækt við íslenzk menn- ingarverðmæti; var fundur þessi hinn ánægjulegasti um alt, og hinum tignu gestum fagnað af mikilli alúð; daginn eftir gafst fleiri íslendingum þess kostur að heilsa upp á biskupshjónin auk kirkjulegra yfirvalda, svo sem dr. Dresslers rektors við North Western lúterska presta- skólann, en þar stundar nú guð- fræðinám Stefán Guttormson, sonur séra Guttorms Guttorms- sonar í Minneota; voru þar einn- ig viðstaddir ræðismenn Norður- landaþjóðanna. Blaðið St. Paul Despatch birt- ir fagurt viðtal við biskup, þar sem hann einkum lagði áherzlu á það, hve íslenzk æska ætti greiðari aðgang að mentun, en víðasthvar annars staðar gengst við, auk þess sem í landinu ríkti algert trúarbragðafrelsi. — f áminstu fréttabréfi er þess getið, að senn fari heim til ís- lands ung hjón, Elías læknir Ey- vindsson ættaður úr Vestmanna- eyjum, sem er nýkvæntur ame- rískri hjúkrunarkonu;' hann stundaði um tveggja ára skeið nám í Rochester, en síðar í Wis- consin; þá er og hér við nám Mikilvægur fundur Þessa dagana hefir staðið yfir fundur í Brussel meðal utanrík- isráðherra og hernaðarsérfræð- inga þeirra þjóða, er að Atlants- hafsbandalaginu standa; ábyggi- legar upplýsingar um niðurstöðu fundarins eru eigi við hendi, þó staðhæft sé að samkomulag hafi náðst um samræmdar hervarnir Vestur-Evrópu að inniföldum nokkrum herafla úr Þýzkalandi. annar íslenzkur læknir, Richard Thors, sonur Richards Thors forstjóra, kona hans er með hon- um, dóttir Kristins Markússonar kaupmanns í Geysisverzluninni í Reykjavík. Fréttaritari Lögbergs í Min- neapolis lætur þess getið, að myndin, sem samferða er þess- um greinarstúf, hafi verið tekin á járnbrautarstöðinni í Minne- apolis, er biskupshjónin komu, en þau gistu Björnson-heimilið í þeirri borg. Hingað til borgar komu þau dr. Sigurgeir biskup og frú á mánudagskvöldið, eftir að hafa dvalið sólarhring á heimili þeirra Dr. Richards Beck og frú Berthu Beck í Grand Forks, N. Dak. Fyrir nokkrum árum heim- sótti dr. Sigurgeir Winnipeg og fleiri nýbygðir íslendinga vest- an hafs og er þar skemst frá að segja, að hann kom, sá og sigr- aði, enda er ljúfmenska hans hvarvetna rómuð; hann er því hingað kominn í vinahóp; börn biskupshjónanna fjögur, hafa heimsótt okkur Vestmenn og verið aufúsugestir; en þetta er fyrsta ferð frú Guðrúnar, þessar- ar háttvísu og glæsilegu konu, sem sett hefir virðulegan og ó- gleymanlega svip á biskups- heimilið í Reykjavík; um það er okkur kunnugt, sem átt höfum þess kost, að njóta þar hinnar kunnu alúðar og risnu innan vébanda þess; frúin verður okk- ur engu síður kærkominn gestur en hinn ágæti maður hennar; hlýtt handtak beið þeirra beggja. Dr. Sigurgeir hefir í mörg ár verið forseti Þjóðræknisfélags íslands, og hefir hann í því starfi, e.ins og á öðrum sviðum, reynst Vestur-íslendingum hollvinur, og stuðlað á fagurlegan hátt, að glæddum og gagnkvæmum skiln ingi meðal ættbræðranna beggja vegna hins breiða hafs. Biskupinn prédikar í báðum íslenzku kirkjunum hér í borg um jólin; þau hjón verða gest- ir séra Valdimars J. Eylands og frú Lilju Eylands þann tíma, sem þau dvelja hér. Hinn nýkjörni dómsmólaráð- herra í Norður Dakota Það þóttu að vonum nokkur tíðindi, ekki síst meðal Islend- inga í landi hér, þegar það frétt- ist, að kornungur maður úr þeirra hópi í Norður Dakota, Elmo T. Christianson lögfræð- ingur í Cavalier, hefði verið kos- inn dómsmálaráðherra ríkisins í nýafstöðnum kosningum. Er mér ljúft að verða við tilmælum rit- stjóra þessa blaðs um að segja lesendum þess nokkuð frekari skil á þessum landa þeirra, sem þannig hefir óvenjulega ungur að árum hafist í virðingar- og ábyrgðarstöðu. Christianson, sem stendur á þrítugu, er sonur þeirra Lárusar Kristjánssonar og konu hans Guðrúnar Sveinsdóttur, sem, eins og áður var getið hér í blað- inu, búa skammt suður af Akra í Pembinahéraði. Hann gekk á sveitarskóla á þeim slóðum, en lauk gagnfræðaprófi (miðskóla- prófi) í Calvalier. Síðan stund- aði hann hærra nám á Kennara- skólanum í Mayville, N. Dak., og á ríkisháskólunum í Wis- consin og N. Dakota og lauk em- bættisprófi í lögum á síðarnefnd- um háskóla, og hefir síðan unn- ið að lögfræðislegum störfum í Cavalier. Hann hefir einnig tekið mik- inn þátt í félags- og bæjarmál- um, meðal annars verið héraðs- ritari Rauða Krossins og féhirð- ir lútersku kirkjunnar í Caval- ier, en fermdur var hann í Vída- línskirkjunni í heimabyggð sinni af dr. H. Sigmar. Á stríðsárunum var Christian- son í flugher Bandaríkjanna í nærri fjögur ár, loftskeytamaður á sprengjuflugvélum, og tók þátt í fjölda flugárása á Þýzkaland og Austurríki. Kom hann þó heill á húfi úr þeim hildarleik. Hann kvæntist 1943 Bernice Huffman, sem einnig er úr Pem- binahéraði, og eiga þau tvö börn, dóttur og son. Christianson fylgir „Nonparti- Hon. Elmo T. Chrislianson san League“ stefnu Republican flokksins að málum og var kos- inn með miklu afli atkvæða. Hann er maður frjálslyndur og framsækinn í stjórnmálaskoðun- um, eins og fram kom í kosn- ingaræðum hans. Hann er hinn geðþekkasti maður í viðkynningu og því lík- legur til vinsælda 1 starfi sínu. íslenzku skilur hann og talar, og er annt um að leysa hið mikil- væga starf sitt þannig af hendi, að það verði þjóðstofni hans til sæmdar, eins og hann orðar það í bréfi til undirritaðs. Landar hans óska honum áreiðanlega heilum huga til hamingju með kosninguna í hið virðulega em- bætti sitt, og vænta hins bezta af honum. Má jafnframt geta þess, að hann er þriðji íslendingurinn, sem skipað hefir embætti dóms- málaráðherra í N. Dakota; hinir voru þeir Sveinbjörn Johnson og Nels Johnson, eins og kunn- ugt er. En það er jafnframt nokkur vottur þess, hvern þátt Islendingar hafa tekið í málum ríkisins, og um þann skerf, sem þeir hafa lagt til framgangs þess og forystu á þeim vettvangi. RICHARD BECK Lóta til sín taka ó vettvangi athafnalífsins Ánægjulegt er það og þakkar- vert, er menn af íslenzkum stofni vekja á sér athygli sam- ferðamanna sinna vegna dreng- skapar og atorku í hvaða starfs- grein, sem er, eins og réttilega má segja um þá Halldór bygg- ingameistara Sigurðsson og kjör- son hans Halldór Melvin, en þeir reka eins og vitað er í félagi stórfyrirtæki, varðandi hvers konar byggingariðnað, einkum þó múrhúðun, og njóta hvar- vetna virðingar og trausts sak- ir árvekni og ábyggileiks 1 starfi; þeir hafa marga menn í þjónustu, er lítt munu fyrir það gefnir, að skipta um húsbændur, og er þá vel, er slík aðstaða skapast. — Halldór Sigurðsson er fæddur í Svignaskarði 15. september árið 1884, sonur hinna kunnu höfðingshjóna Sigurðar Sigurðs- sonar, síðar bónda á Rauðamel og Ragnheiðar Þórveigar Þórð- ardóttur frá Leirá. Halldór kom Halldór Sigurðsson til þessa lands árið 1901, og tók sér brátt fyrir hendur að nema múrhúðunariðn, en gaf sig jafn- framt að öðrum greinum bygg- ingariðnaðarins og reisti mörg stórhýsi; í fyrra lauk hann ásamt kjörsyni sínum múrhúðun mik- ils fjölda húsa 1 hermannabæn- um Shilo hér í fylkinu fyrir hönd sambandsstjórnar, og hljóp samningurinn um það verk upp á hundrað þúsundir dollara; hafa íslendingar jafnan átt góðan hauk í horni þar, sem Halldór var varðandi atvinnu, væri þess nokkur kostur; hann er manna félagslyndastur og hefir liðsint íslenzkum mannfélagsmálum af ráði og dáð. Halldór er tvíkvæntur, var fyrri kona hans Þorgerður Hör- dal, ættuð úr Dalasýslu, vel gef- in og stjórnsöm húsmóðir, er lézt í febrúarmánuði árið 1937. Ein fulltíða dóttir þeirra er á lífi, Mrs. Idora Augustine For- rest. Seinni kona Halldórs er Rannveig Guðmundsdóttir, ætt- uð úr Mýrasýslu, mikil atgerfis- lcona. Þau Halldór og fyrri kona hans tóku að sér ungan svein, ísland gerist aðili að samkomulagi Norðurlanda um fátækraframfærslu Stokkhólmi, 17. nóv. — í dag samþykkti sænska stjórnin tillöguna um nýtt samkomulag milli Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur, ís- lands og Finnlands um gagn- kvæma fátækraframfærslu. Að líkindum undirrita full- trúar frá Norðurlöndunum fimm þetta samkomulag í Stokkhólmi í næstu viku. Styrkur ekki endurkræfur í heimalandinu. Nýja samkomulagið er nokk- uð frábrugðið því, sem nú er í gildi milli ríkjanna. Gert er ráð fyrir, að fátækrastyrkur til handa þegnum þeirra ríkja, er aðilar eru að samkomulaginu, sé ekki endurkræfur í heimalandi þurfalingsins. ísland gerist aðili. Þá gerist ísland aðili að sam- komulagi þessu og hefir ekki verið svo fyrr. —Mbl. 18. nóv. Falleg ummæli Norska vikublaðið „Decorah- Posten“, sem gefið er út í De- corah, Iowa, og er víðlesnasta blað Norðmanna vestan hafs, birti á ritstjórnarsíðu sinni þ. 30. nóvember einkar löfsamlega umsögn um bók dr. Richards Beck, „History of Icelandic Poets: 1800-1940“, eftir einn af aðalritstjórum blaðsins, Georg Strandvold, sem er kunnur norskur blaðamaður. Eftir að hafa bent á það, að bókin bæti úr brýnni þörf og þá miklu elju, sem undirbúning- ur hennar hafi útheimt, rekur ritdómarinn í megindráttum efni hennar, og lýkur lofsorði á hvað skarplega sé þar rakinn þróunarferill íslenzkra bók- mennta á umræddu tímabili. Hann lætur einnig sérstaklega í ljósi aðdáun sína á vestur-ís- lenzkri ljóðagerð, og telur kafl- ann um hana mjög mikilvægan. Strandvold ritstjóri lýkur dómi sínum um bókina með þessum orðum: „1 þessari bók — eins og í öllu öðru, sem dr. Beck hefir ritað á liðnum árum (og það er ekki lítið) finnur maður þann eldmóð, þá innilegu starfs- gleði, sem fyllt hefir hug^ hans meðan á verkinu stóð. Ávöxtur- inn er þess vegna bókmennta- sögulegt verk, sem enginn unn- andi norrænna nútíðarbók- mennta getur án verið“. Vinarkveðja úr fjarlægð Söfnuðunum í Argyle og vin- unum mörgu í Winnipeg og ann- ars staðar, þakka ég ógleyman- legar móttökur á liðnu vori. Minningarnar um vinsemd ykk- ar við mig og tryggðina við minn- ingu mannsins míns, eru mér dýrmætari en þið vitið. Ég óska ykkur öllum gleði- legra jóla og Guðs blessunar á nýju ári. Bentína Hallgrtmsson, Reykjavík, ísland. Batnandi fjárhagur Fjármálaráðherra Breta lýsti yfir því í þingræðu í vikunni, sem leið, að svo hefði fjárhagur þjóðarinnar farið batnandi upp á síðkastið, að hún frá næstu árum mundi eigi þarfnast Mars- hallaðstoðar frá Bandaríkjun- um nema því aðeins, að eitthvað óvænt kæmi fyrir; var þessari yfirlýsingu ráðherrans fagnað mjög af öllum þingheimi. Úr borg og bygð Látin er nýlega í Seattle, Wash. Mrs. Steinunn Jónasdótt- ir Björnsson, áttatíu og tveggja og sex mánaða að aldri, ættuð frá Keldudal í Hegranesi í Skaga firði; hún kom vestur um haf, er hún var fimtán ára gömul; hin látna dugnaðar- og myndar- kona lætur eftir sig tvo sonu og sex dætur; hún lætur einnig eftir sig tvo albræður, J. J. Samson og Sam J. Samson í Winnipeg ásamt tveim hálfsystrum, Dýr- finnu í Reykjavík og Sigríði Miller í Winnipeg. ☆ VEITIÐ ATHYGLI! Vænt þætti mér um ef ein- hverjir, sem kynnu að vita um frændur eða frænkur móður minnar heitinnar Elínar Gunn- laugsdóttur (Mrs. Gísli Einars- son), er kynnu að eiga heima í Winnipeg eða annars staðar í Vesturfylkjunum; skriflegum upplýsingum yrði þakksamlega viðtaka veitt. Vinsamlegast, Mrs. George Lambert Hekla P. O. Muskoka, Ont. I Halldór Melvin Sigurðsson Halldór Melvin, er þau gengu í góðra foreldra stað og gjörðu að kjörsyni; er hann vel gefinn maður, er nýtur almennra vin- sælda; var hann á fimta ár í síðustu heimsstyrjöld við góðan orðstír; en er heim kom gekk hann í félag við fósturföður sinn, nam múrhúðunariðn og er hans önnur hönd í iðnaðarfyrirtæki þeirra; hann er kvæntur konu af frönskum ættum. Áminst fyrirtæki gengur und- ir nafninu H. Sigurdson & Son Ltd., og færir ört út kvíar. Þriggja manna nefnd í fyrri viku var sett á laggir að Lake Success þriggja manna nefnd að tilhlutan sameinðuðu þjóðanna, er það hlutverk skyldi hafa með höndum, að gera til þess tilraun að koma á vopna- hléi í Kóreu. Sæti í nefnd þess- ari á utanríkisráðherra Canada, Mr. Pearson; naumast þarf að efa að nefndin eigi við ramman reip að draga því svo eru þau sjónarmið ólík, sem verið er að reyna að samræma; nefndin hef- ir talið sig fúsa til að fljúga til höfuðborgarinnar í Kína, og ræða þar við forsprakka kín- verskra kommúnista hvort sem af því verður eða eigi. Launahækkun Forsætisráðherra sambands- stjórnarinnar, Mr. St. Lourent, hefir formlega tilkynt, að laun opinberra starfsmanna hinnar canadísku þjóðar, verði hækkuð um tíu af hundraði frá 1. yfir- standandi mánaðar að telja; laun starfsmanna þjóðlögreglunnar verða einnig hækkuð að mun, svo og kaup hermanna; mun ráð- stöfun þessi hafa talin verið með öllu óhjákvæmileg vegna hinn- ar vaxandi dýrtíðar í landinu.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.