Lögberg - 21.12.1950, Side 6

Lögberg - 21.12.1950, Side 6
6 NÓTT OG MORGUN Eftir LYTTON LÁVARÐ J. J. BlLDFELL. þýddi „Philip Morton, þú hefir gáfulegt andlit. Ég fer mikið eftir útliti mamma. Þú veist um samn- ingana, þeir eru allir þér í hag. Engin meðgjöf — ég ráðstafa henni við Roger. Ég legg til fæði og rúm — þú sérð um þína eigin þvotta — stað- föst hegðun — lærdómstíminn aðeins fimm ár. Þegar hann er úti mátt þú ekki byrja verzlun í sama bæ og ég er í. Ég skal sjá um samning- ana. Hvenær geturðu byrjað?“ „Þegar þér þóknast, herra“. „Daginn eftir á morgun, þú kemur með póstvagninum klukkan sex“. „En herra“, sagði Philip“, fæ ég ekkert kaup? — Ekki eitthvað agnar lítið, sem að ég gæti sent henni móður minni?“ „Kaup sextán ára? — Fæði og rúm. — Ekk- ert meðlag! Kaup til hvers? Lærlingar fá ekkert kaup! Það skal fara vel um þig“. „Gefðu mér minni þægindi, svo að ég geti sent móður minni meira; ofurlítið af peningum, hvað lítið sem það er, og dragðu það 'frá fæðis- kostnaði mínum, ég get komist af með eina mál- tíð á dag, herra“. Bóksalinn komst við, hann tók duglega í nefið úr dósum, sem hann tók upp úr vestisvasa sínum og sat þegjandi dálitla stund svo sagði hann: „Jæja, ungi maður. Ég skal segja þér hvað ég skal gera. Þú skalt koma hingað og sýna hvað þú getur gjört — og vita hvernig fellur á með okkur, áður en við skrifum undir samningana. í millitíðinni borga ég þér fimm „shillings“ á viku. Ef að þú sýnir hæfileika og atorku þá sjáum við til, hvað við Roger getum gert með að borga þér ofurlítið meira. Dugir þér það?“ „Þakka þér fyrir herra, já“, sagði Philip þakklátur. „Þá er það búið. Komdu með mér — ég ætla að kynna þig frú P.“ Með þessum ummælum lét hr. Plaskwith bréfið í vasabókina, og vasabókina í vasann, tók höndunum saman fyrir aftan bakið, leit upp og strunsaði inn í litla setustofu, sem vissi út að litlum garði. í stofunni sat þunn og krangaleg kona við borð (frú Plaskwith) ásamt tveimur ungum dætrum sínum. Þar sat og rangeygður maður með svuntu, hér um bil tuttugu og fjögra ára gamall. Hann var í móleitum baðmullarbux- um, sem hefðu getað þolað að þær hefðu verið þvegnar, dökkri flauelstreyju og vesti. Þessi ungi maður var mjög freknóttur í framan, hár- ið á honum, sem var strýótt og dökkt, stóð upp öðru megin á höfðinu á honum en niður hinu megin; hann hafði stutt og þykt nef, þykkar varir, og af honum lagði vindlareiksþef, þegar þú komst nærri honum. Þetta var herra Plimm- ins ráðsmaður Plaskwiths í bókabúðinni og að- stoðar ritstjóri „Mercury“. Herra Plaskwith gerði Philip kunnugan þessu fólki. Frú P. kink- aði kolli, yngismeyjarnar klipu hvor aðra og kýmdu, herra Plimmins fór með hendina í gegnum hárið á sér , leit í spegil og hneigði sig mjög kurteislega. „Jæja, frú P. gefðu mér te í bollann aftur, og gefðu hr. Morton bolla af tei. Þú hlýtur að vera þreyttur, herra — heitur dagur. Jem- ina hringdu — nei, farðu fram að stiganum og kallaðu meira af steiktu brauði (Toast). Það er greiðari vegur — árvekni er mín regla í lífinu, hr. Morton, en heyrðu, hefurðu nokkurn tíma kynnt þér ævisögu Napoleons Bónar- parts?“ Herra Plimmins gúlpaði niður teinu og sparkaði í Philip undir borðinu. Philip gaf ráðs- manninum illt auga og svaraði önugur: „Nei, herra“: „Það er slæmt. Napoleon Bónarparte var mikilhæfur maður — stór mikilhæfur. Þú hef- ir séð standmynd af honum? Þarna er brjóst- líkan af honum á hyllunni. Líttu á það! Sérðu ekki svip?“ „Svip, herra? Ég sá aldrei Napoleon Bónar- parte“. „Þú sást hann aldrei! Nei, en líttu í kringum þig. Á hvern minnir þetta brjóstlíkan þig? Hverjum er það líkt?“ Þegar hér var komið stóð hr. Plaskwith upp og setti sig í stellingar, með hendina í barmi sér og hallaði höfðinu alvarlegur að teborðinu. „Hugsaðu þér, að ég sé á St. Helena, að þetta borð sé sjórinn. Sérðu nú ekki hverjum þetta brjóstlíkan er líkt, hr. Philip?“ „Ég spái, herra, að það sé líkt þér“. „Já, það er það! Líkingin er Öllum Ijós! Er hún ekki frú P., er hún ekki? Og þegar þú hefir LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 21. DESEMBER, 1950 kynnst mér betur, þá sérðu siðferðislíking- una — siðferðis herramanninn! blátt áfram stilltur — markviss — djarfur — ákveðinn!" „Tíminn líður hr. P.!“ sagði frú Plaskwith önug mjög, flýttu þér að drekka teið, ég býst við að ungi maðurinn vilji fara heim til sín, og póstvagninn kemur eftir fimtán mínútur". „Hefurðu séð Kean í Rikkarð þriðja, hr. Morton?“ spurði hr. Plimmins. „Ég hefi aldrei séð sjónleik“. „Aldrei séð sjónleik! Það er þó skrítið!“ „Ekkert skrítið, hr. Plimmins“, sagði bók- salinn. „Hr. Morton hefir kynnst erfiðleikun- um — réttu honum brauðsteikina á meðan að hún er heit“. Philip sat þegjandi og úrillur, en frekar þó með fyrirlitning en hryggð, hlustaði hann á þetta röfl í kringum sig með andúð og virti fyrir sér hið óaðgengilega samfélag, sem að hann átti nú að vera þátttakandi í. Hann var ekki áfram um að koma sér í mjúkinn hjá því. Hann hafði aldrei sótzt eftir slíku og kærði sig ekkert um það. Það nægði honum að leit- ast við að koma auga á eitthvað í framtíðinni, sem lofaði honum fegurri degi, og farsælli von- um. Hvaða sorg er það, sem getur fryst vonir sextán ára manns? eða spámannlegur ótti, hvíslað að metnaðarkendinni: Þú ert heimsk- ingi! Hann ætlaði sér að ryðja úr vegi öllum torfærunum og hefja ástvinina sem heima voru til efna ef ekki auðs og valda, og hann leit fram á veginn frá sjónarhæð fimm skild- inga (shillings) kaups á viku. Herra Plaskwith leit á úr sitt og sagði: „Það er tími til að fara ef þú átt að ná í póstvagn- inn; hneigðu þig fyrir fólkinu og hafðu þig á stað — flýltu þér, er orðið!“ Philip reis á fætur, tók hattinn sinn, hneigði sig styrðlega fyrir fólkinu og fór út með bók- salanum. Frú Plaskwith varð rólegri undir eins og að hann var farinn. „Ég hefi aldrei séð sérkennilegri, villimann- legri, ósiðfágaðri, ungan mann! Ég er bara hrædd við hann. Hvílík augu að hann hefir“. „Óvanalega dökk; ég mundi segja, að hann hefði augu eins og flökkumenn (Gypsies)“. „Hí! hí! þú ert alltaf svo orðsnjall, Plimm- is. Eins og flökkumanna-augu, hí! hí! Það er það, sem að hann hefir. Skyldi hann geta spáð fyrir mönnum?“ „Það verður langt þangað til að hann getur spáð nokkru fyrir sjálfum sér. Hæ! hæ!“ sagði Plimmins. „Hí! hí! Þetta var svei mér gott! Þú ert svo skemtilegur, Plimmins“. Á meðan að þessir sleggjudómar um Philip fóru fram var hann sjálfur kominn upp á þakið á póstvagninn og eftir að veifa hendinni virðulega til framtíðar húsbónda síns, þaut vagninn á stað skröltandi í moldryki og móðu. „Það er ákaflega heitt í kveld, herra minn“, sagði farþegi sem sat í sæti hægra megin við Philip og reykti í ákafa úr stuttri þýzkri pípu, sem hann hafði upp í sér og lagði reykinn fram- an í Philip. „Mjög heitt. Viltu vera svo góður og reykja framan í manninn, sem situr hinu megin við þið“, svaraði Philip önugur. „Ó, ó,“ svaraði farþeginn og skellihló eins og þeir einir er þróttmiklir eru geta hlegið. „Þú reykir ekki ennþá; þú kemst upp á það bráðum, þegar þú hefir kynnst áhyggjunum og hugarraununum, sem að ég hefi orðið að ganga í gegnum. Pípa, er sefandi, geðþekk hressing! Bláu djöflarnir flýja fyrir heiðarlegu andartaki hennar! Hún skerpir hugsunina — hún opnar hjartað, og sá, sem reykir hugsar eins og spekingur, og hagar sér eins og Sam- verji!“ Philip vaknaði eins og af draumi við þessa ræðu og leit snögglega á sessunaut sinn. Hann sá mann risavaxinn og kraftalegan — herða- breiðan, bringumikinn, ekki þó holdmikinn, en eins mikinn ummáls eins og þeir, sem hold- miklir eru, en hold hans voru vöðvar stæltir eins og leikfimismannsins. Hann var í blárri treyju hnepptri upp í háls, og hafði barðastóran stráhatt á höfðinu, sem hallaðist út í vangan, og gaf manninum órólegan svip, sem þrátt fyrir hans glaðværð og glaðlyndi, benti á djarfa og ákveðna skapgerð. Andlitið var í fullu sam- ræmi við líkamsvöxtinn að því leyti að það benti til andlegs þróttar, sem var full-fær um að temja og ráða yfir miskunarlausu líkams- afli; augun voru ljósleit og báru vott um yfir- burða gáfur. Andlitssvipurinn hrjúfur, ein- beittur og eftirtektarverður. Það var hugsana afl og skap í augabrúnunum loðnu, rákunum djúpu, nösunum víðu og í vörunum þykku, sem alltaf voru á iði. Philip leit alvarlega og fast hann, og maðurinn leit á Philip með sama augnaráði. „Hvað heldur þú um mig, ungi maður?“ spurði ferðafélagi Philips og setti reykjarpíp- una aftur upp í sig. „Ég er myndarlegur maður á að sjá, er ég ekki?“ „Þú virðist vera einkennilegur“. „Einkennilegur! — Ég er þér ráðgáta eins og að ég hefi verið fleirum. Þú getur ekki séð í gegnum mig eins auðveldlega og að ég get lesið þig. Á ég að geta til um skapgerð þína og kringumstæður? Þú ert aðalborinn, eða eitt- hvað í þá átt — ég heyri það á málfari þínu. Þú ert fátækur, bláfátækur, ég sé það á gatinu á treyjunni þinni. Þú ert stoltur, geðríkur, ó- ánægður og þér líður illa — allt sé ég þetta á andlitinu á þér. Það var af því að ég sá þetta á andlitinu á þér, að ég talaði til þín. Ég leita ekki eftir kunningsskap þeirra, sem ánægðir eru, að fyrra bragði“. „Ég á ekki von á því, því ef þú kynntist öll- um þeim, sem ólánssamir eru, þá hefðir þú nægilega stóran kunningjahóp“, svaraði Philip. „Þú ert vitur umfram aldur þinn! Má ég spyrja: Hvað hefst þú að?“ „Ekkert sem stendur“, svaraði Philip, stundi við og roðnaði. „Því aumkunarverðari ertu!“ hreytti mað- urinn með reykjarpípuna úr sér og blés fram í nefið. „Ég hefði haldið að þú værir ótaminn ný- sveinn í höndum óvina þirtna“. „Óvina! Ég skil þig ekki“. „Með öðrum orðum planta, sem grær út úr skrifborði lögfræðinganna. Ég skal gjöra grein fyrir þessu betur. Það er ein tegund af köngu- lóm, iðinn og verkgefinn áttfótungur, sem með áreynslu heila síns (því að ég tel það óetað, að köngulær hafi vel þroskaðan heila) riða sín eigin net, og veiða sínar eigin flugur. Það er önnur tegund af köngulóm, sem engan afkasta þrótt hafa til að vefa sinn eiginn vef, þær sveima því í kring til þess að leita sér eftir átu, sem nágrannar þeirra hafa unnið fyrir og ráð- ast á vefi þeirra, sem þeim eru minnimáttar, þegar þær finna þá fulla átu, og elta eiganda vefsins til holu sinnar, drepa hann og éta, ef þær geta, en ef hann er of seigur skirpa þær honum út úr sér, og setjast rólegar að vængjun- um og fótleggjunum sem þær fundu í veiðivef hans. Þessar köngulær kalla ég óvini — heim- urinn kallar þær lögfræðinga!“ „Philip hló: „Og hverjar eru þessar fyrsta flokks köngulær?“ „Heiðarlegar skepnur, sem viðurkenna opin- berlega, að þær lifi á flugum. Lögfræðingarnir hremma þær undir því yíirskyni, að þeir séu að vernda þær. Þeir eru undursamlegar blóð- sugur, þessir lögfræðingar, þrátt fyrir alla hræsnina. Ha! ha! Hó! hó;“ Og maðurinn hló kok-hlátur, sem bar frek- ar með sér illkvitni en ánægju, sneri sér við, fór aitur að reykja pípu sína í ákafa, steinþagn- aði og sat þannig á meðan að póstvagninn þaut áfram eina míluna á eftir annari. Philip var heldur ekki hneigður til sam- ræðu. Umhugsunin um sitt eigið ástand og um það hvað fyrir jér mundi liggja fyllti huga hans og kæfði forvitni þá, sem að hann annars kynni ap hafa haft á þessum einkennilega sessunaut sínum. Hann hafði ekki smakkað mat frá því snemma um morguninn. Áhyggjurnar höfðu gjört hann tilfinningalausan fyrir hungri, þang að til að hann kom til Plaskwiths, og þá vakti praktin og allsnægtirnar viðbjóð hjá honuni. Hann fann nú ekkert til hungurs, en var þreytt- ur og máttvana. Svefn hans sem æskumaður- inn getur svo illa án verið, hafði verið brotinn og órólegur, og nú hafði hin fljóta ferð póst- vagnsins og landloftið haft meiri áhrif á hann, en að hann hafði orðið fyrir í marga mánuði, svo að hann tók að syfja og í huga hans komu fram óljósar myndir af heimili Plaskwiths og stúlkunum þar, sem blönduðust saman við trén sem dönsuðu fyrir augunum á honum meðfram veginum og af brautinni sem lá eins og þráður í gegn um landið. Höfuðið hneig ósjálfrátt ofan á brjóstið á honum og varð honum þá það á, að leita sér aðstoðar þar sem að hann fann hana styrkasta og auðveldasta, svo að hann hneig upp að öxl sessunautar síns. En farþeg- inn, , þegar að hann fann þungan leggjast að öxl sér, tók reykjarpípuna út úr sér, sem að hann var búinn að fylla þrisvar, hreytti ein- hverju út úr sér, og þegar það hafði engin á- hrif, heldur jókst þunginn, eftir því sem dreng- urinn sofnaði fastara, sagði hann ,í hvellum rómi: „Heyrðu, ungi maður, ég borgaði ekki far mitt til þess að þú hefðir mig fyrir kodda“, og ýtti drengnum frá sér. Philip brá við og hafði fallið út af hliðinni á póstvagninum ef að félagi hans hefði ekki gripið hann með hraustri hendi. „Rumskaðu, þú hefðir getað fengið slæma byltu“, sagði hann. Philip buldraði eitthvað á milli svefns og vöku og leit á félaga sinn með augnaráði sem var bæði ásakandi og auðmjúkt, svo að ferða- félaga hans rann það til rifja, en áður en að hann gat sagt nokkuð til afsökunar eða hug- hreystingar, þá hafði Philip sofnað aftur, en nú, eins og að hann hefði móðgast af aðfinsl- unni hallaði hann höfðinu í burtu frá sessunaut sínum, upp að, eða réttara sagt út að hliðar- brúninni á vagninum upp að ofurlitlum kassa, sem þar stóð á þaki póstvagnsins — sem var hættulegur koddi, því að hann gat hrokkið út af þakbrúninni við hverja snögga hreyfingu, sem á vagninn kæmi og Philip með því ofan á götuna. „Vesalings drengurinn! — Hann er svo föl- ur“, tautaði ferðafélagi Philips og hristi úr pípu sinni og lét hana með gætni í vasa sinn. „Máske, að þú hafir ekki þolað tóbaksreykinn, þú sýn- ist vera veikur og magur“, og hann tók í hönd drengsins. „Hann er kinnfiskasoginn! Og hver veit nema það stafi frá skort á fæðu? Ó, ég var þorpari. Hægan ökumaður, hægan! Talaðu ekki svona hátt og fjandinn hafi þig“, hann íellur vissulega út af, og hann lagði hendina gætilega og varlega utan um mittið á Philip. „Nú nú, að færa til höfuðið á honum; svona, svona, þetta er gott“, og Philip hvíldi með höf- uðið við brjóstið á ókunna manninum. Vesa- lings auminginn! brosir nú; hann er máske að hugsa heim til sín og um fiðrildin sem hann elti þegar að hann var lítill — þeir dagar koma aldrei aftur — aldrei — aldrei — aldrei! Ég held, að vindurinn sé að snúast til austurs, hon- um verður máske kalt“ — og maðurinn færði höfuðið á Philip frá brjósti sér og að öxlinni, hneppti frá sér yfirhöfn sinni og lét höfuð drengsins aftur hníga að brjósti sér og vafði kápulafinu utan um hann sofandi, en lét vind- inn og næturloftið leika um brjóst sér því hann var ekki í neinu vesti. Þannig vafinn að brjósti þessa ókunnuga manns í höfgvi svefnsins dreymandi ef til vill — á meðan að í hjarta ó- kunna’ mannsins fór fram grimmilegt stríð, við lífið og syndina. VII. Kapítuli Á meðal götulampaljósanna vagnaskrölts, fólksfjölda og hávaða Lundúnaborgar vaknaði Philip af værum svefni. Hann var hálf utan við sig og ringlaður og sá ókunnuga manninn horfa vingjarnlega á sig: „Hefurðu sofið vel, drengur minn?“ spurði ókunni maðurinn í hárri og hraustmannlegri rödd sem tók yfir allan skarkalann. „Þú hefir látið mér gjöra þér allt þetta ó- næði!“ sagði Philip með meiri þakklætishreim í röddinni og í augnaráði sínu heldur en að hann hafði sýnt nokkrum öðrum, utan sinnar eigin fjölskyldu. „Þú hefir ekki átt við mikið vinarþel að búa, drengur minn, ef að þér finnst svo mikið til um þetta“. „Nei — einu sinni voru mér allir góðir. Þá mat ég það ekki“. Þegar hér var komið, var póstvagninn að fara inn um hliðið fyrir framan gestgjafahúsið. „Hugsaðu vel um sjálfan þig, drengur minn! Þú lítur veikindalega út“, og í hálfbirtunni tók maðurinn 18 kr. gullpening og lagði hann í lóf- ann á Philip. „Ég þarf ekki á peningum að halda. Þó að ég sé þér þakklátur, það væri svívirða að betla á mínum aldri. En veistu af nokkurri atvinnu, sem að ég gæti innunnið mér dálítið við? Það, sem að þeir bjóða mér er svo lítið. Ég á móður og bróður — barn að aldri, heima herra minn“. „Atvinnu!“ endurtók ókunni maðurinn, og þar sem vagninn var nú stansaður við gestgjafa- húsidyrnar féll dyraljósið eða blik þess á and- lið hans. „Já, ég veit af atvinnu; en þú ættir að biðja einhvern annan að útvega þér at- vinnu! Hvað mig snertir, þá er ekki líklegt að við sjáumst nokkurn tíma aftur“. „Mér þykir fyrir að heyra það! — Hver og hvað ertu?“ spurði Philip. „Ó, ég þekki fólk, sem kallar mig heiðarleg- an mann“, mælti ferðafélagi hans og hló. „Taktu atvinnuna sem þér býðst, hvað lítið sem að kaupið er. Varastu alla óreiðu. — Góða nótt!“ Ókunni maðurinn fór tafarlaust ofan af þaki póstvagnsins og á meðan að hann var að fá vagnstjórann til að finna ferðatöskuna sína sá Philip þrjá eða fjóra velbúna og broshýra menn koma og fagna honum. Philip stundi við: „Hann á vini“, tautaði hann fyrir munni sér, borgaði fargjaldið og lagði einsamall á stað heim til sín. Viku eftir að Philip heimsótti Plaskwith i R.— fyrst var hann sestur að hjá honum sem nýsveinn og heilsu móður hans hafði svo átak- anlega hnignað, að hún réði af að leita læknis og fá að vita hispurslaust hvers að hún mætti vænta. Læknirinn fór fyrst undan í flæmingi, en þegar frú Morton sagði ákveðið: „Ég hefi skyldum að gegna, og undir svari þínu eru ráð- stafanir gagnvart börnunum mínum komnar — ef að ég dey skyndilega öreigi". — Læknirinn leit alvarlega á hana og sá að henni var alvara og svaraði hreinskilnislega: „Dragðu þá ekki að gjöra þínar ráðstafanir; lífið er fallvalt alltaf — og sérstaklega verð ég að segja það um þig; þú getur lifað nokkurn tíma, en lífsþróttur þinn er lamaður. Ég er hræddur um að það sé vatn í brjóstholinu á þér. Nei, frú — það kostar ekkert, ég kem aftur og lít á þig“. Læknirinn sneri sér að Sydney, sem var að skoða úrkeðju hans og horfði stpð- ugt á hann. „Og þetta barn, herra!“ sagði móðirin, „ei svo veiklulegt“, og gleymdi dómnum sem ny- búið var að kveða upp yfir henni. „Nei, alls ekki frú, hann lítur ágætlega út drengurinn“, og læknirinn klappaði á kollinn á Sydney og fór út. „Ó, mamma, ég vildi að þú vildir taka þér reiðtúr — ég vildi að þú vildir taka hvíta hest- inn!“ tt „Vesalings drengur! Vesalings drengur! stundi móðirin upp. „Ég má ekki vera sín- gjörn“. Hún tók höndunum fyrir andlitið og sat hugsi.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.