Lögberg - 28.12.1950, Síða 1
PHONE 21374
„ „ c^ca1*eTS
A Complele
Cleaning
Instituiion
PHONE 21 374
a \>‘r
otU CU<lTlCT
-*53*s
^ A Complete
Cleaning
Institution
63. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN. 28. DESEMBER, 1950 NÚMER 52
Eisenhower kjörinn yfirforingi
Vesfur-Evrópu varnarherjanna
Gestur forsetans
Að afloknum fundinum í j
Brussel, sem haldinn var í fyrri
viku og utanríkisráðherrar og
hernaðarsérfræðingar þ e i r r a
þjóða, er Atlantshafs bandalag-
ið mynda stóðu að, var gerð yfir-
lýsing þess efnis, að hlutaðeig-
andi þjóðir hefðu orðið á eitt
sáttar um það, að koma á fót
miljón manna her með það fyrir
augum, að verjast yfirgangi og
drottnunarstefnu rússneskra
kommúnista hvað svo sem það
kostaði; þá varð það og að ráði,
að innifela þýzkar hersveitir í
hinu nýja varnarbandalagi, án
þpss þó að þær hefðu sjálfstæða
hernaðarforustu með höndum.
Lengi voru frönsk stjórnar-
völd því mótfallin, að leitað yrði
til Þjóðverja um hernaðarlegan
styrk, en létu þó að lokum und-
an síga vegna hinnar sameinin-
legu hættu að austan; öllum
þeim, er áminstan fund sóttu
kom saman um það, að óhjá-
kvæmilegt væri að velja mann
til að hafa á hendi yfirstjórn
hinna nýju sameiginlegu varnar-
herja og voru þeir ekki lengi
að átta sig á því hvert leita
skyldi; var á það fallist í einu
Tvenn
dagverðarboð
Nýlega efndi Þjóðræknisfélag
íslendinga í Vesturheimi til
tveggja dagverðarboða, og var
hið fyrra þeirra haldið í Royal
Alerandra hótelinu til heiðurs
við Dr. Pál Kolka, sem eins og
vitað er, hefir heimsótt á vegum
þess flest íslenzk bygðarlög í
þessari álfu og getið sér hvar-
vetna hinn bezta orðstír, enda
er hann gáfumaður mikill og
skáld gott; forseti Þjóðræknis-
félagsins, séra Philip M. Péturs-
son, hafði samkvæmisstjórn með
höndum, og þakkaði Dr. Kolka
með hlýjum orðum giftusamt
starf hans í þágu félagsins, auk
þess sem hann fyrir hönd þess,
afhenti heiðursgefctinum dálitla
jólagjöf. Dr. Kolka þakkaði
fagurlega Þjóðræknisfélaginu
vinsemd þess í sinn garð og árn-
aði því framtíðarheilla.
Hitt boðið var haldið í Fort
Garry hótelinu í virðingarskyni
við biskupinn yfir íslandi, herra
Sigurgeir Sigurðsson og hans á-
gætu konu, frú Guðrúnu Péturs-
dóttur; hafði forseti Þjóðrækn-
isfélagsins, séra Philip, þar einn-
ig samkvæmisstjórn með hönd-
um; mintist hann með fögrum
orðum hins umfangsmikla
menningarstarfs þessara kær-
komnu gesta og ástúðar þeirra
í garð íslendinga vestan hafs.
v Séra Valdimar J. Eylands
þakkaði biskupshjónunum ljúfa
viðkynningu bæði heima á ís-
landi og hér, ásamt hans ómet-
anlega starfi til eflingar bræðra-
bandinu meðal íslendinga aust-
an hafs og vestan; þá þakkaði
biskup af þeim hjartahita, sem
jafnan einkennir mál hans, við-
tökurnar vestra 1944, sem og
handtökin hlýju, er hann nú í
annari heimsókn sinni hefði
mætt, ásamt frú sinni, en þetta
væri hennar fyrsta heimsókn til
íslendinga í þessari álfu; lagði
hann ríka áherzlu á það, hve
mikil menningarleg nauðsyn það
væri fyrir báða aðilja, að treysta
sem bezt brúna yfir hafið, og
láta það verk aldrei niður falla.
hljóði, að General D. Eisen-
hower yröi til þessa mikla á-
byrgðar- og vandaverks valinn;
mun það nú fullráðið, að hann
taki við yfirstjórn á öndverðu
komanda ári.
Rithandasafn
Fyrir nokkrum misserum síð-
an sendi Lárus S. Ólafsson á
Akranesi bók eina mikla hingað
vestur, með þeim tilmælum að
Vestur-íslendingar rituðu nöfn
sín í hana með eigin hendi, og
gerðu grein fyrir uppruna sín-
um og ætterni. Er hér um að
ræða enn einn þátt í viðleitni
áhugasamra ættbræðra okkar
austan við hafið til að halda sam
bandi við okkur Vestmenn, og
hjálpa ættingjum heima til að
öðlast upplýsingar um frændur
og vini 1 fjarlægðinni miklu.
Bók þessi er árituð af biskupi
íslands, sem einnig mælir með
því að bókin sé notuð samkvæmt
þessum tilgangi. Bókin hefir leg-
ið fyrir á ýmsum stöðum í Win-
nipeg, og mun nú þegar hafa
safnast í hana allmikið af nöfn-
um. Síðast er ég vissi til var
bókin í vörzlu þjóðræknisdeild-
arinnar á Lundar.
En það er ljóst að allir þeir
sem gjarnan vildu láta skrá-
setja sig í rithandasafn þetta,
geta ekki náð til bókarinnar.
Merkum öldruðum Islending,
Mr. J. A. Vopna, í Kenville,
Man., hefir hugkvæmst ráð til
að bæta úr þessu. Leggur hann
til að menn skrifi nöfn sín, ætt-
færslu, athugasemdir, vísur og
það annað sem þeim hugkvæm-
ist á lausa miða, og sendi þeim
sem bókina hefir með höndum
til innfærslu, og sé hann svo
límdur í bókina. Til þess að gera
öðrum ljóst hvernig hann hugs-
ar sér að gera þetta, hefir hann
sent undirrituðum pappírsmiða
með eftirgreindu í eigin handar
skrift:
„J. A. Vopni, f. 1. febr. 1868
að Ljótsstöðum í Vopnafirði.
Jón Illugason, afi minn, var
fæddur um aldamótin 1800; bjó
hann lengst á Djúalæk, í Skeggja
staðasókn í Langanessókn. Var
hann sæmdur Dannebrogsorðu
fyrir tuttugu ára hreppsstjórn.
Hann dó 1882. Sonur hans og
faðir minn var Jón timbur-
meistari og hreppstjóri á Ljóts-
stöðum í Vopnafirði, f. 1824 —
d. 1888, en móðir mín var Arn-
þrúður Vigfúsdóttir.
Gjafir Drottins gáfust mér,
gengi fram að byggja.
Aldursmark mitt orðið er
áttatíu og þriggja“.
Þeir sem kynnu að vilja fara
að dæmi Mr. Vopna, og senda
miða fyrir Rithandasafnbókina,
með upplýsingum um sjálfa sig,
mega gjarnan senda þá til mín,
og mun ég sjá um að þeir kom-
ist á sinn stáð. Þess má geta að
þegar búið er að fá bókina full-
skrifaða, eða fylta á annan hátt,
verður hún, samkvæmt uppá-
stungu Lárusar, send Lands-
bókasafninu í Reykjavík til
geymslu.
Valdimar J. Eylands.
Fjárgreiðslur til bænda
Vegna flóðanna miklu í Rauð-
árdalnum á öndverðu síðastliðnu
sumri, hafa bændum á áflæðis-
svæðunum verið greiddir $950,
000 úr flóðsjóðnum svonefnda,
og mun greiðslum svo að segja
lokið.
Heimsókn
biskupshjónanna
Hún verður okkur Vestmönn-
um lengi minnisstæð, heimsókn
biskupshjónanna, sem nú er ný-
lokið, því þau lögðu af stað á
þriðjudagsmorguninn suður til
Chicago, en þaðan áleiðis til
Mexico sem gestir dr. Árna
Helgasonar ræðismanns íslands
og frúar hans. Dr. Sigurgeir átti
annríkt þá daga, er hann dvaldi
hér um slóðir; hann heimsótti
Elliheimilið Betel í för með Mr.
og Mrs. J. J. Swanson og Mr.
Herbert Hinrickssyni, og hann
flutti prédikanir í báðum ís-
lenzku kirkjunum hér í borg-
inni við geisiaðsókn og mikla
hrifningu, auk þess sem hann
flutti ræður um þjóðræknismál.
Vegna þess að Lögberg var svo
að segja'fullprentað fyrir jólin,
Kæri séra Valdimar.
Nú er aftur orðin vík milli
vina. Ég kom hingað heim 12
okt. eftir ágæta ferð um Banda-
ríkin. Fór ég meðal annars eftir
vesturströndinni frá Blaine til
Los Angeles. Því miður komst
ég þó ekki norður til British
Columbia og langaði þó mikið
til þess, en áætlunin var svo
hörð, að hvergi mátti út af
bregða. Alls staðar hitti ég Is-
lendinga, unga og gamla, alls
staðar tóku þeir mér vel. í Blaine
kom ég á íslenzkan bóndabæ og
borðaði þar nýja lifrarpylsu.
Það þótti mér næsta merkilegt.
í Seattle og San Fransisco var
ég á samkomu landa, og hefði
mig ekki grunað að þeir væru
svo margir, sem raun bar vitni,
á þeim slóðum. Ef ég hefði þaft
vit á að skipuleggja ferðina bet-
ur, hefði ég lokið mér af í Wash-
ington, áður en ég kom til ykk-
ar, en síðan farið vestur um
Canada, en síðan suður um. Með
því móti hefði ég getað farið
víðar um og gefið mér betri
tíma. >
Seinustu dagana í New York
kenndi ég mér einhvers innan-
meins, og þrem dögum eftir að
ég kom heim, varð ég að fara
á spítala og láta skera mig upp.
Var ég nokkuð lengi að ná mér,
en má nú heita albata og tekinn
við starfi mínu. Annars líður
okkur öllum vel. Dóttir mín,
Ingibjörg, sem varð stúdent í
vor, var svo heppin að fá styrk
til náms í Ameríku, og dvelst
hún nú í St. Paul, Macalester
College. Næsta sumar kemur
hún svo heim, en gaman þætti
leyfir rúm eigi frekari umsögn
um heimsókn hinna tignu gesta
að sinni, en í næstu viku mun
birt verða ritstjórnargrein um
megingildi heimsóknarinnar.
Segir skilið við
flokk sinn
Mr. E. A. Brotman, er um síð-
astliðin átta ár hefir setið í bæj-
arstjórninni í Winnipeg sem full-
trúi C. C. F.-flokksins fyrir 3.
kjördeild, hefir kvatt flokkinn
fyrir fult og alt; í bréfi til mið-
stjórnarinnar lét Mr. Brotman
þannig ummælt:
„Vegna grundvallarlegs skoð-
anamunar, sem skapast hefir
milli mín og C. C. F.-flokksins,
héfi ég ákveðið að segja skilið
við flokkinn nú þegar og ætlast
til að nafn mitt verði strikað út
af meðlimaskrá hans“.
mér, að hún gæti skroppið norð-
ur fyrir línuna áður. Ef svo færi,
er vísast, að ég leitaði til þín
um að leiðbeina henni. Annars
er þetta óráðið og óvíst, eins og
margt annað nú á dögum.
Oft verður mér hugsað til
ykkar. Það er í fullri hreinskilni
sagt, og oft minnumst við hjón-
in ferðarinnar vestur og dval-
arinnar hjá ykkur þar. Ég stríði
Ragnhildi á því, að auk annars
hafi hún silfurást á ykkur, og
víst er, að hún hefir gaman af
að sýna kjörgripina. Hitt er víst,
að gestrisni og góðvildar ykkar
hjónanna og annarra íslendinga,
sem við kynntumst vestur þar,
munum við lengi minnast, og
satt að segja vildi ég óska, að ég
ætti eftir að koma aftur vestur
og sjá enn fleiri. Sennilega verð-
ur þó ekki af því, en heimilt er
mönnum að óska engu að síður.
Nú bið ég þig þeirrar bónar
að bera kveðju okkar hjónanna
til meðnefndarmanna þinna í
móttökunefnd, til Þjóðræknisfé-
lagsins og í stuttu máli allra
þeirra, sem við hittum. Ég verð
þér mjög þakklátur, ef þú vildir
biðja íslenzku blöðin um að skila
þessari kveðju, aðeins stuttri
kveðju, með alúðarþökkum fyr-
ir viðkynninguna í sumar og
beztu árnaðaróskum um farsælt
komandi ár. Ykkur hjónunum,
börnum ykkar og öllum vinum
sendum við innilegustu jóla- og
nýárskveðjur með dýpstu þökk
fyrir hinar ógleymanlegu sam-
verustundir í sumar.
Þinn einlægur
Pálmi Hannesson
Eftirfarandi lýsing á Clement
Attlee forsætisráðherra Eng-
lands, birtist í ensku blaði 2.
desember og var endurprentuð
í Free Press:
„Truman forseti tekur næsta
mánudag á móti gesti, sem er
einn hinn allra einkennilegasti
maður í stjórnmálum heimsins
nú á dögum. Það er Clement
Richard Attlee, forsætisráð-
herra verkamannastjórnarinnar
á Englandi.
Truman sér þar speglast að
minsta kosti suma eiginleika
sjálfs síns.
„Clem“, eins og hann er altaf
nefndur meðal jafnaðarmanna,
er 66 ára gamall: Hann er ó-
mannblendinn og stundum ná-
lega sjálfslægjandi. En á bak við
hina mildu framkomu hans er
hann gæddur járnsterku vilja-
þreki.
Þeir sem bezt þekkja hann,
segja að hann sé einhver á-
kveðnasti maður í skoðunuum,
sem þeir hafi kynst.
Hann hefir sterka tauma sem
leiðtogi á stjórn sinni, þrátt fyr-
ir það að hana skipa menn gagn-
ólíkra skoðana.
Attlee er mildur í máli, vin-
gjarnlegur, aðgengilegur og
sanngjarn. En hann er líka stíf-
pr eins og stál, þegar honum
finst þess þörf. Jafnvel eldheit-
ustu andstæðingar hans í stjórn-
málum viðurkenna það að hann
sé með afbrigðum einlægur.
Hann hefir þá hæfileika sem
til þess þarf að skera fljótt og
óhikað úr vandamálunum.
Mörg þau mál, sem verka-
mannastjórnin hefir afgreitt,
eiga rætur sínar að rekja til
hans persónulega. Það var að
þakka stjórnvizku hans og á-
hrifum að: Indland, Pakistan,
Ceylon og Burma hlutu sjálf-
stjórn.
Attlee er einnig gæddur þeirri
gáfu að geta hrundið algjörlega
úr huga sér stórum málum og
mikilsvarðandi jafnskjótt og
hann hefir afgreítt þau og taka
tafarlaust til starfa í sambandi
við önnur ný stórmál, sem fyrir
lágu og ráðast á þau með heilum
huga og óskiftum kröftum.
Hann og kona hans, ásamt
fjórum börnum þeirra (eins son-
ar og þriggja dætra) hafa látið
Úrskurður vegna
járnbrauta-
verkfallsins
Eins og menn rekur mínni til,
var R. L. Kellock dómari í hæzta
rétti Canada, skipaður af sam-
bandsstjórn til að skera úr þeim
ágreiningi milli járnbrautar-
þjóna og félaganna, sem leiddi
til verkfallsins mikla í síðast-
liðnum ágústmánuði; var þá
aukaþing kvatt saman til að
koma slagæð samgöngukerfis-
ins í sitt upprunalega og eðli-
lega horf; með því að deiluaðil-
um lánaðist ekki að ráða fram
úr ágreiningsefnunum, var full-
valda gerðardómari skipaður og
úrskurði hans urðu báðir aðilar
að hlíta.
Nú hefir gerðardómarinn birt
niðurstöður sínar og falla þær í
megin átriðum járnbrauta.r-
þjónum mjög í vil; kaup þeirra
hækkar um 7 cents á klukku-
stund frá 1. september síðast-
liðnum að telja, en frá 1. júní
1951 fá járnbrautarþjónar 40
klukkustunda vinnutíma fimm
daga í viku í stað 48 án þess að
kaup þeirra lækki við stytting
vinnutímans; fólk, sem vinnur
við hótel járnbrautarfélaganna
fær 3ja centa hækkun á klukku-
stund, en verður að vinna 48
klukkustundir á viku.
sér takast það að gera númer 10
í Downing Str. að óbreyttu
hversdagslegu heimili.
Forsætisráðherrann gefur sig
ekki mikið við skemtunum, en
hefir þó sérstaka skemtun að
smáhnatta leik; hann getur
treyst minni sínu alveg eins og
alfræðisbók í sambandi við þann
leik.
Sem ræðumaður er hann mis-
jafn: stundum fremur áhrifalít-
ill. Aftur á móti ef Rt. Hon.
Winston Churchill eða einhver
annar stórfiskur í andstæðinga-
liði ráðast á hann, þá stendur
hvorki á viðeigandi orðum né
sárbeittri fyndni.
Líkamlega er Attlee framur
lítill vexti, sköllóttur. Hann
Hann stenzt engan samanburð
í útliti við Churchill, sem er
persónugerfi Jóns Bola.
Sig. Júl. Jóhannesson þýddi
„Jökulfelli" hleypf
af stokkunum í
Svíþjóð
Þriðja skipi Sambands ísl.
samvinnufélaga var hleypt af
stokkunum í Oscarsham í Sví-
þjóð í gær.
Kona aðalforstjóra Samvinnu-
sambands Svía, frú Linnea Jo-
hannsson, gaf skipinu nafnið
„Jökulfeir.
„Jökulfell“, sem er 100 tonn
dw., er frystiskip, búið nýtízku
frystiútbúnaði og á að halda 20
stiga frosti.
Rúmmál skipsins er ca. 60,000
cbf. Ganghraði þess er 13 mílur.
Skipið er væntanlegt til af-
hendingar Sambandinu á fyrri
hluta næsta árs.
Strangt
verðlagseftirlit
Þess er alment vænst, að í
Bandaríkjunum verði þá og þeg-
ar komið á fót ströngu verðlags-
eftirliti með líku sniði og við-
gekst í hinni síðari heimsstyrj-
öld; var það Truman forseti, er
reið á vaðið í þessu efni í hinni
berorðu ræðu, er hann útvarp-
aði frá hvíta húsinu í fyrri viku;
brýndi hann þar fyrir þjóð sinni
hve óumflýjanlegt það væri
vegna hins uggvænlega við-
horfs á vettvangi heimmálanna,
að framleiðslan yrði aukin á öll-
um sviðum svo sem framast
mætti verða; ekkert annað en
risaátök varðandi hergagna-
framleiðsluna, gæti komið til
mála, eins og nú hagaði til með
yfirvofandi hættu á allar hliðar;
lífsvenjur þjóðarinnar og alt,
sem henni væri kært, krefðist
þess að enginn lægi á liði sínu;
þjóðinni yrði að lærast að spara,
og hún mætti heldur ekki undir
neinum kringumstæðum kippa
sér upp við það, þó hún yrði að
neita sér um eitt og annað, er
hún fram að þessu hefði átt að-
gang að hamlanalaust; frelsið
væri þjóðinni fyrir öllu og um
það yrði hún að standa órofa
vörð.
Aukin matvæli frá
USA til Júgóslavíu
Tilkynnt var nýlega í Belgrad,
að gerður hafi verið samningur
um auknar matvælasendingar
frá Bandaríkjunum til Júgó-
slavíu til viðbótar þeim mat-
vælasendingum, sem áður höfðu
tekizt samningar um.
Var tekið fra mí tilkynningu
júgóslavnesku stjórnarinnar, að
Bandaríkin hefðu farið þess á
leit í sambandi við þessa nýju
samninga, að ekki yrði fækkað í
her Júgóslavíu.
Kveðja frá Reykjavík, 12. des. 1950