Lögberg - 05.07.1951, Page 6

Lögberg - 05.07.1951, Page 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGÍNN 5. JÚLÍ, 1951 NÓTT OG MORGUN Eftir LYTTON LÁVARÐ J. J. BtLDFELL,. Þýddi „Eitt af blómunum barn! Til hvers?“ „Ó, hún kom frá Frakklandi, Madame, þar sem að kaþólska fólkið lætur blóm og borða og þess háttar á grafirnar; þú manst, Madame, að við vorum að lesa um Pére-la-chaise í gær“. „Já, hvað um það?“ „Og ungfrú Fanny gerir hvað sem að við biðjum hana að gera fyrir okkur ef við gefum henni blóm“. „Hann bróðir minn sagði mér hvar ég ætti að láta þau. — En ég hefi aldrei haft eins falleg blóm og þessi eru. Þau máske koma með hann til baka aftur! Ég skal vera svo ósköp góð, ef að þú vilt gjöra svo vel að gefa mér eitt — aðeins eitt“. „Þú ‘ætlar að læra lexíurnar þínar, ef ég gef þér eitt, Fanny?“ „Ó, já! Bíddu í mínútu!“ Fanny fór og settist í sæti sitt, opnaði staf- rófskverið, tók báðum höndum um ennið og ruddi úr sér heilli runu af örðugum tveggja atkvæðisorðum. Sambandinu var náð! Upp frá því vissi kennarinn hvernig að hún átti að örfa lærdómsgáfu hennar, og hún lærði að lesa, og það mátti heita, að þekkingarbraut hennar væri blómum stráð! Katrín, synir þínir voru langt í burtu, en gröfin þín var ein blóma- breiða! Á þessum skóla, eins og títt er, voru einföld ljóð, oft helgiljóð um hönd höfð til að skerpa minni barnanna. í því námi tók Fanny auð- vitað þátt; en það einkennilega var, að þau sýndust rugla hugsun hennar, á sama tíma og þau vöktu og æstu huga hennar, eins og þeg- ar blíðveðursvindur fer um laufgaðan lund og hrærir blöð á hverri grein. Hún hafði þegar í æsku haft gaman af að fara með barnakvæðin, sem að nunnurnar á nunnuklaustrinu fóru með og kendu henni, til gamans og afþreyingar, en smekkur hennar hafði nú náð meiri þroska. En þrátt fyrir þann þroska átti hún erfitt með að greina ljóðin, sem hún var nú að læra, eða að gjöra sér grein fyrir mismunandi efni þeirra. Hljómbylgjurnar bárust að eyrum • henni og fóru þar í meiningarlausan hávaða, en hún náði vissum setningum og vissum pörtum úr ljóðunum og óf úr því heild, sem að hún sjálf, en enginn annar skildi. Og hún var oft vön að syngja eða fara með þann sam- setning sinn, þegar að hún var á gangi á göt- um bæjarins, eða annars staðar, og fólkið á götunum stansaði, hristi höfuðið raunalega og vorkendi vesalingnum, sem var að fara með þetta, sem í rauninni var ekkert annað &n bull eða röfl, en virtist þó eiga vel við og vera í fullu samræmi við hið óstöðuga og leitandi hugarflug hennar.. Það hjálpaði ekki aðstöðu Fanny, að frú Boxer hvar sem að hún fór í nágrenninu var að kvarta undan vandræðun- um, sem að hún væri i með að eiga við vesal- ings barnið, sem að væri auðsjáanlega andlega bilið; það var svo sem auðséð á öllu, venjum stúlkunnar, þegðun, og svo væri hún tekin upp á því að halda sig í kirkjugarðinum og það væri viss vottur u mandlega bilun fólks, þegar að það tæki upp á því. Þessar prédikanir frú Boxer voru ekki lengi að festa rætur. Börnin fóru að víkja úr vegi fyrir henni þar sem að hún var á ferð eftir götunum og stungu saman nefjum í hjátrú og hræðslu og hvísluðu: „Þetta er brjálaða stúlk- an“. — Brjáluð — hve óendanlega miklu meira af ljósi himinsins lýsti ekki í þessu skýi, heldur en blaktandi kertaljósin varpa á óhreinar íbúð- ir þeirra, sem álíta sig stjörnur mannfélagsins! Mánuðir og ár liðu. — Fanny var þrettán ára, þegar að ný sólhvörf urðu í lífi hennar. Frú Boxer hafði aldrei komist yfir fyrstu andúð sína til Fanny. Hún var alltaf ill í hennar garð og stundum blátt áfram grimm. En Fanny kvartaði ekki, og þar sem framkoma frú Boxer við Fanny var alltaf smjaðursleg og fleðuleg þegar að gamli maðurinn heyrði til þeirra, þá hafði hann ekki hugmynd um hvað sonardóttir hans, sem að hann hélt að væri, varð að líða. Fyrir nokkrum árum hafði sambúð þeirra Símonar Gawtrey og frú Boxer vakið hneyksli í nágrenni þeirra; klæðaburður hennar, hvað hún var fröm, og hljóðskraf um að æska henn- ar hefði ekki verið Vestu vígð, gaf þessum orð- róm vængi. Ein ástæðan fyrir því, að við erum ekki viss um að þessi orðrómur væri ósannur var, að Símon hafði tekið svo hart á heimsku- pörum sonar síns! En hvernig sem þessu kann að hafa verið varið, þá er það víst, að konan hafði mikil áhrif á Símon Gawtrey áður en Fanny kom og hún hafði átt mikinn þátt í að herða huga hans á móti William syni hans. Það var einnig víst, að hún hafði ásett sér að verða erfingi að eignum nirfilsins hvenær sem að forsjóninni þóknaðist að taka hann til sín. Hún vissi, að Símon hafði látið gjöra erfðaskrá fyrir löngu og ánefnt henni eigur sínar; og hún vissi lika, aö hann hafði ekki breytt henni. Hún hélt því, að þrátt fyrir ást þá, sem hann hafði fengið á Fanny, að þá mundi hann unna ■ gulli sínu svo mikið meira, að hann gæti ekki fengið sig til að sleppa því í hendur þess, sem ekki kynni með það að fara. ■ Þessi hugsun, hafði að nokkru leyti sætt bústýruna við komu Fanny, sem hún þó hataði af heilum huga, eins og hundur hatar hund, ekki aðeins fyrir að taka bein, heldur fyrir að líta á það. Allt í einu veiktist Símon. Aldurinn gjörði það að verkum, að það var ekki ólíklegt að hann mundi deyja. Hann fór í rúmið — andar- drátturinn varð æ daufari — það leit út fyrir að hann væri dáinn. Fanny, sem ekki gjörði sér grein fyrir hættunni, sat við rllmstokkinn hjá honum og hélt niðri í sér andanum svo að hún vekti hann ekki. Frú Boxer þaut að skatt- holinu — hún lauk því upp, leitaði að erfða- skránni, en fann hana ekki, en hún fann þrjá poka, iulla af glóandi gullpeningum, sú sjón gladdi hana. Hún helti gullinu úr þeim á græna dúkinn sem var á skattholinu — og fór að telja, en rétt í því rumskaði gamli maðurinn alveg eins og að aðdráttarafl peninganna hefði hrifið hann úr dáleiðslumókinu. Blindni hans varðveitti hann frá geðshræringu, sem hefði getað riðið honum að fullu, ef að hann hefði séð hina syndsamlegu svívirðingu, en hann heyrði hljóminn í peningunum, og hann vakti hann og styrkti. En veikir menn eru ávalt slungnir — hann lét ekkert á sér bera. „Frú Boxer“, sagði hann veiklulega. „Ég held, að ég hafi lyst á ofurlitlum súpuspæni". Frú Boxer reis á fætur óttaslegin og lét drag- kistuskúffuna aftur og hljóp ofan eftir súp- unni. Símon fór að spyrja Fanny um hvað frú Boxer hefði verið að gjöra, og þegar að hann vissi hvað erfinginn tilvonandi hefði verið að gjöra, lét hann Fanny loka dragkistunni og færa sér lykilinn, en fara svo tafarlaust til lögfræðings, sem að hann gaf henni nafnið á, og sagði henni hvar hann væri að finna, og koma tafarlaust með hann. Þegar frú Boxer kom með súpuna, "brosti gamli maðurinn illgirnislega og sagði: „Þú ért óeigingjörn manneskja, frú Boxer; ég held, að þú munir sjá eftir mér þegar að ég dey“ Frú Boxer fór að snökta, og áður en hún var búin að jafna sig, kom lögfræðingurinn inn. Ný erfðaskrá var samin þá um daginn, og lög- fræðingurinn tilkynti frú Boxer á kurteislegan hátt, að veru hennar og vinnu þar á heimilinu, væri lokið næsta dag fyrir hádegi, og að hann þá kæmi með hjúkrunarkonu til að taka plássið hennar. Frú Boxer hlustaði á þetta, og réði strax við sig hvað hún skyldi gera. Undir eins og Símon sofnaði aftur, læddist hún inn í her- bergið til hans, eftir að hafa tekið Fanny og læst hana inni í sínu herbergi, fann lykilinn að dragkystunni undir koddanum hjá honum, tók allt úr dragkystunni sem að hún gat hönd á fest, og var horfin um morguninn og fannst aldrei! Tap Símonar var meira, en vænta mátti, * því að undantekinni smáupphæð, sem að hann átti á sparibanka, hafði hann, eins og flestir aðrir nirflar, geymt allt sem að hann átti heima hjá sér. Eignir hans voru í sannleika mikið minni, en að menn héldu, því að peningar ávaxtast ekki, nema að þeir séu lánaðir út með vöxtum; það hafði hann ekki þorað að gjöra. Frú Boxer hafði víst hugsun á að eyði- leggja það sem að hún hafði tekið í bankaseðl- um, því að númerin á þeim, sem að Símon mundi, komu aldrei fram. En gullið gat eng- inn helgað sér. Svo að faðirinn, sem hafði gjört son sinn að útlaga til að auðga þjónustukon- una, var öreigi í elli sinni, nema fyrir þá litlu upphæð sem hann átti á bankanum, og þessa fáu húsmuni sem í húsinu voru. Þessu var þó haldið leyndu fyrir honum samkvæmt ráði læknis, er lögfræðingurinn leitaði til upp á sínar eigin spýtur, þangað til að hann var orð- inn svo hress, að hann þyldi að heyra það. En slík bið, hjálpaði auðvitað frú Boxer til þess að komast undan lögreglunni og lögunum. Þegar að Símoni var sagt frá því, sem fyrir hafði komið, sat hann þegjandi og utan við sig all-langa stund. Fanny, sem var ótta- slegin, hljóp til hans og hjúfraði sig upp að brjóstinu á honum. Hann ýtti henni frá sér: — „Farðu — farðu — farðu, barn!“ sagði hann. „Ég get ekki fætt þig lengur. Láttu mig svelta í hel“. „Svelta“, sagði Fanny hugsandi og hún fór og settist niður í þungum þönkum. Svo gekk hún ofurhægt til lögfræðingsins, sem var í þann veginn að fara, eftir að vera búinn að gefa Símoni öll þau ráð sem að hann gat; hún tók í handlegginn á honum og hvíslaði 1 eyra hans: „Ég þarf að tala við þig! — Komdu með mér“. Hún fór méð hann út úr húsinu, stansaði þar og sagði: „Segðu mér, þegar að fátækt fólk reynir til að verjast hungri, vinnur það þá ekki?“ „Jú, góða mín“. „Ríka fólkið kaupir vinnu fátæka fólksins?“ „Vissulega, mín kæra, vissulega“. „Nú, jæja. Frú Boxer var vön að selja það, sem að ég bjó til. Fanny skal vinna fyrir fæði afa síns! Farðu og segðu honum að tala aldrei um hungur framar“. Lögfræðingurinn, sem var allra bezti mað- ur, komst við af þessu. „Heldur þú, að þú getir virkilega unnið? Jæja, settu á þig hattinn, komdu með mér og talaðu við konuna mína“. Og það urðu aftur sólhvörf í lífi Fanny. Hún hætti á barnaskólanum, en hóf nám í skóla lífsins. Þarfirnar þroskuðu skynjun hennar. Það komu tár í augu fólks, þegar að það sá hana ganga á daginn með körfu á handleggn- um eftir götum bæjarins með handsaumum sín- um í, og syngja enn sömu ósamstæðu erindin og sundurslitnu setningarnar með gleðihreim. Þá sögðu menn, jafnt sem börn, án þess að nokkur fyrirlitningarhreimur heyrðist í rödd þeirra: „Það er fábjánastúlkan, sem að vinnur fyrir honum afa sínum, sem að er blindur!" Fólkið kallaði hana enn fábjána! IV. BÓK I. Kapííuli Lesari, ef að þú hefir nokkurn tíma litið á. vatnsdropa í gegnum stjörnukíkir, þá hefir þú máske furðað þig á, hvernig í ósköpunum standi á því, að allur sá ófögnuður sem þar mætir auganu skuli hafa verið falinn fyrir þér, þér hefir boðið við lögnum, sem að þú hélst áður að væri hreinn — þú hálfpartinn hugsaðir þér að hætta við að drekka vatn; en daginn eftir ertu búinn að gleyma hinum grimmu lífsverum, sem blöstu við þér í ótelj- andi myndum, hins iðandi aragrúa í vatnsglas- inu, og ef að þorstinn hefir svo kvalið þig svo að þú hefir ekki getað haldið þér frá að drekka úr glasinu, þrátt fyrir það þó að þessi iðandi aragrúi sé að limlesta, gleypa og troðfylla sig hver á öðrum í vatninu, sem þú drekkur með svo mikilli ánægju. Þannig er það með hið sögulega og innihaldsmesta atriðið í því, sem við nefnum lífið. Umkringdur öllum þægind- um hímir þú hangandi 1 hefðarsæti hugmynd- anna — þegar að máske í fyrsta sinni að þú lítur í gegnum kíkir vísindanna á hið ægilega öldukast, sem með sogafli sínu fyllir hverja holu og rauf jarðarinnar, vökvar hverja sýni- lega smáögn og hvert jarðefni, sem að þú snertir. — Þér bregður í brún, og skefldur spyrðu sjálfan þig: Getur þetta verið? Mig hefir aldrei dreymt um þetta áður! Ég hélt, að það sem ég sæi ekki, væri ekki til. Þessari sjón minni gleymi ég aldrei“. Daginn eftir er sýnin og heitið gleymt. — Efnafræðingurinn getur hreinsað glasið. — Geta vísindin hreinsað hjörtu mannanna? Við snúum okkur nú til landshluta þess, sem menn fegurstan líta. Hver mundi þakka guði fyrir hans óumræðilega sköpunarverk, ef að hann fengi ekki að líta döggdropa drjúpa af rósviðnum, eða glitra í geisla sólarinnar án stj örnukíkirsins? Það eru tíu ár liðin síðan að William Gaw- trey dó: — Láttu mig, lesari góður, fylgja þér til fegursta útsýnis, sem til er á Englandi — útsýnis, sem vígt er þeim sönnustu lýsingum í ljóði, sem vér þekkjum — lýsingu á sveitafriði og ró. Það var komið haust og grösin voru farin að fölna á bökkum Vinandermere-árinnar. — Sumarið hafði verið óvanalega hlýtt og fag- urt; og ef að 'þú hefðir verið gestur við ensku vötnin það ár, þá hefðir þú máske séð við og við, á meðal fólksins sem þar var að skemta- sér, tvær pe'rsónur, sem sérstaka eftirtekt vöktu, eða öfund — persónur, sem þér hefði fundist, að væru í einkennilegu samræmi við fegurð og yndisleik staðarins. Persónurnar voru báðar ungar — báðar glæsilegar. Elskendur hefðir þú haldið að þær væru, en elskendur, sem að Fletcher hefði sérstaklega falið í umsjá Hjarð- gyðjunnar — persónum, sem hefðu getað hvíslast á: Blómum stráðum bökkum, brunnsins hreina, þar sem ljósálfar leika, í ljósi tunglsins. Því í kærleika þessara persóna virtist vera svo mikið af hreinleik og sakleysi, sem var í fullu samræmi við skapgerð þeirra og fegurð. Kærleikur stúlkunnar var máske skyldari þeirri tegund kærleika, sem að frjóangar lífsins varpa upp á yfirborðið, eins og vorgróðurinn blómum jarðarinna, heldur en hinum grund- vallaða djúpsetta óeigingjarna kærleika, sem að einn er varanlegur, og sem að fyrstu kær- leikstilfinningarnar, eða öllu heldur fyrsta í- myndunin, er síður móttækileg fyrir, heldur en grundvölluð velvild síðari ára. En hann, elsk- andinn, var svo óvanalega og einkennilega fagur, að fegurðin ein nægði til að vekja kær- leika þann, sem að ljómi augnanna yfirstígur. En til að byrja á upphafinu, þá hafði heldri kona og dóttir hennar, átján ára, tekið sér ferð á hendur haustið áður en saga þessi gerðist, til Vatnahéraðsins á Englandi. Hún varð hrifin af fegurðinni við Vinandermere, og þar sem að svo vel vildi til að eitt af hinum vandaðri og skrautlegu stórhýsum á vatnsbakkanum var til leigu, hafði hún sest þar að og dvalið þar vetrarlangt. U mvorið hafði eldri konan veikst hættulega og treysti sér ekki til að taka þátt í samkvæmislífinu í Lundúnum, og máske líka sökum þess, að hún sjálf hafði verið fegurðar- goð í samkvæmislífi borgarinnar, kærði sig ekki um að kynna dóttur sína þar, fyrri en nauðsyn krefði, svo að hún hafði haldið kyrru fyrir þarna í Vatnahéraðinu, að mestu leyti í heilt ár. Bóndi hennar, sem var mikill heims- umhyggjumaður í Lundúnum, og átti stóran búgarð úti á landi, kom við og við til þeirra, en hann var ekkert hrifinn af sveitafegurðinni, sem engar rentur gaf honum, og lét sig hana því litlu varða. Fyrsta mánuðinn, sem að þær mæðgur voru í Vinandermere, höfðu þær kynnst ungum manni á eftir farandi hátt: Kveld eitt þegar að þær voru á gangi á grasvellinum, sem var framundan húsi þeirra og lá í aflíðandi halla ofan að vatinu, þá heyrðu þau leikið á flautu svo yndislega vel, að það dróg þær eins og í leiðslu ofan að ströndinni. Sá, sem á flautuna lék, var ungur maður, sem sat í bát, er hann hafði fest við tré á vatnsbakkanum á land- bletti, sem húsi þeirra heyrði til. Hann var einn í bátnum, að undanteknum Nýfundnalands hundi, sem að sat í skut bátsins, horfði á mann- inn og hlustaði á músikina. Þegar að mæðg- urnar færðust nær bátnum fór hundufinn að urra, og maðurinn hætti að leika á flutuna, en sá þær þó ekki. Síðustu geislar sólarinnar, sem var að setjast, léku um höfuð og andlit mannsins, þegar að hann leit við, og andlitið var slíkt, að jafnvel gyðjurnar frá Delos hefðu aldrei getað gleymt því. — Andlit Appolos — ekki sem hetjunnar, heldur hjarðguðsins — ekki bogmeistarans, heldur flautunnar — ekki Pythori-sigurvegarans, heldur draumhýra æsku mannsins í forsælu-skugganum, — sem að læri- meistarinn hefir mótað og látið standa athafna- lausan upp við eik skógarins — æskuguðinn, sem enn er jarðbundinn og hefir hvorki kynst guðaheiminum né heldur umhverfi sínu. Rétt í þessu stekkur hundurinn upp úr bátnum og eldri konan hljóða upp, sem að vakti eftirtekt mannsins sem í bátnum var, svo að hann fór líka í land. Hann kallaði á hundinn til sín, og bað fyrirgefningar með hæversku en fullri sjálfsvirðingu á þessari tilviljun. Sagðist ekki hafa vitað, að fólk byggi í húsinu, sem stað þessum fylgdi — en sér þætti mikið til hans koma og að hann ætti heima í nágrenninu. Eldri konunni þótti mikið til þessarar skýr- ingar koma, en þó einkum til útlits mannsins. í fari hans var einhver tign, sem með orðum verður ekki lýst, en sem er áhrifameiri heldur en aðeins fegurð líkamans, og sem að aldrei er hægt að apa eftir eða læra. Þau skyldu samt í þetta sinn án þess að meiri kynning tækist á milli þeirra. Nokkrum dögum síðar hittust þau í húsi nágranna þeirra og voru þá gerð kunnug með nöfnum. Mæðgurnar könnuðust ekkert við nafn unga mannsins, en öðru máli var að gegna með þeirra. Þegar að hann heyrði þau, fölnaði hann, varð hljóður og hélt sig mjög út úr fé- lagsgleðinni allt kveldið. Þau hittust oft eftir þetta; og í fleiri vikur — nei, mánuði, virtist hann forðast að endurnýja kunningsskapinn, sem svo kátlega byrjaði, en smátt og smátt dróg fegurð yngri konunnar úr þessum fáleika og andúð hans. Ferðir upp í fjöllin í nágrenninu dróg þau saman, unz að síðustu að aðdráttaraflið, sem að hann hafði ásett sér að standa á móti yfirbugaði hann. Þessi ungi maður átti heima hinu megin við vatnið á rólegu heimili, þar sem að hann var tilbeðinn. Hann hafði lifað þar eins hreinu og rólegu lífi, eins og þó að hann hefði verið í klaustri; smekkur hans var hreinn, lyndis- einkunnir hans sýndust viðkvæmar og fínar, en undir því rólega ytra yfirborði duldust á- stríðu blossar, sem samfara eru eðli skáldanna, brennandi og viðkvæmir, sem brutust út við og við. Hann hafði dvalið á þessum slóðum nálega frá barnæsku. Um heiminn vissi hann ekkert, nema það sem að hann las í bókum — ljóðabókum og skáldsögum. Hann átti þar heima hjá skyldfólki sínu — öldruðum manni ókvæntum og tveimur öldruðum systrum hans, sem að báðar voru piparmeyjar — og sem öll virtust vera jafn saklaus og óþroskuð. Þetta var fjölskylda, sem þeir ríku virtu, en þeir fátæku elskuðu — óáleitin, gjafmild og í góðum efnum. Það þótti sjálfsagt, að hver sem að efnin voru, að þá mundi ungi maðurinn erfa þau. Nafn þessa unga manns var Charles Spencer; konurnar voru frú Beaufort og dóttir hennar Camilla. Fyrst í stað athugaði frú Beaufort ekki, þótt að hún væri athugul kona, að nein hætta mundi stafa frá kunningsskap þeirra Camillu og Spen- cer. Hugur hennar og metnaður var ekki bund- inn við dóttur hennar. Hugur hennar og um- hyggja snerist öll um son h'ennar, Arthur, sem að dvaldi mestmegnis utanlands. Hann var á- litinn að vera gáfaður, þegar að hann vildi beita skynsemi sinni sér til frama og upp- hefðar, hann var nógu laglegur til þess að allar koriur, sem voru að líta eftir gjaforði fyrir dætur sínar, þætti hann tilkomumikill, nógu geðgóður til þess að vera vinsæll í félagslífinu, sem að hann tók þátt í, og fleygði peningum út á báðar hendur takmarkalaust. Arthur Beau- fort, þegar að hann var þrjátíu ára að aldri, hafði getið sér mikinn orðstír, sem að endurgreiðir áhuga manna um stund. Það var sú tegund orðstírs, sem að móðir hans kunni að meta, en sem föður hans, sem var sparsamari, þótti allmikið til koma, þó að hann léti það ekki í ljósi. Hann lét sem sér væri frægð sú, sem að sonur hans gat sér, á móti skapi. Þessi son- ur, eins og sagt hefir verið, var augasteinn foreldra sinna; dóttirin var þeim lítils virði i samanburði við soninn. Hvernig gat dóttirin haldið hinu volduga Beaufort nafni uppi?

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.