Lögberg - 31.01.1952, Page 1

Lögberg - 31.01.1952, Page 1
HERRA SVEINN BJÖRNSSON, FORSETIÍSLENZKA LÝÐVELDISINS, LATINN Herra Sveinn Björnsson, forseti íslands Síðastliðinn föstudagsmorgun lézt í Reykjavík hinn mikilhæfi forseti íslands, herra Sveinn Björnsson. — Sjá frekari umsögn á ritstjórnarsíðu þessa blaðs. Vonlaust talið, að vélbóturinn Valur sé ofansjévar Snjöll ræða flutt á lcelandic Canadian mótinu Á honum voru sex ungir og ötulir sjómenn Það er nú vart talin von til annars en vélbáturinn Valur frá Akranesi, sem hvarf á heimleið úr róðri í ofviðr- inu á laugardaginn, hafi farizt og með honum sex ungir og hraustir sjómenn. Var skipstjórinn elztur skip- verja, 33 ára, en þrír af áhöfninni innan við tvítugs- aldur. Þessir menn voru á Val: Sigurður Guðni Jónsson skip- stjóri, Heiðarbraut 41 á Akra- nesi, 33 ára, fæddur að Lokin- hömrum í Arnarfirði 21/10, 1918, kvæntur og átti þrjú börn, 3, 5 og 7 ára. — Hann lauk prófi frá stýrimannaskólanum síðastliðið vor. Sveinn Traustason, 1. vél- stjóri, Akurgerði 22, 23 ára, fæddur á Hólmavík 24/6, 1928, ókvæntur. Ingimundur Traustason, 2. vél stjóri, 18 ára, fæddur á Hólma- vík 16/4, 1933, ókvæntur. Þeir Sveinn og Ingimundur voru bræður og fyrirvinna móður, sem er ekkja. Þeir voru báðir til heimilis á Hólmavík. Brynjólfur Önfjörð Kolbeins- son, matsveinn, 22 ára, fæddur á ísafirði 25/1, 1929 og þar til heimilis, kvæntur og átti tvö börn 4 og 1 árs, foreldrar á lífi. Guðmundur Hansson háseti, 19 ára, fæddur í Reykjavík 2/5, 1932, ókvæntur og foreldrar á lífi. Heimilisfastur í Reykjavík. Sævar Sigurjónsson háseti, Heiðarbraut 11 á Akranesi, 19 ára, fæddur á Sandi 30/8, 1932, ókvæntur, foreldrar á lífi. Skipið. Vélbáturinn Valur var eign Ásmundar h.f. á Akranesi, 66 lestir brúttó oð stærð, vél 180 hestöfl, smíðaður úr eik í Sví- þjóð 1944, en keyptur til Akra- ness 1946. Ællaði aðeins þessa einu sjóferð. Einn skipverja, Sævar Sigur- jónsson, ætlaði aðeins þessa einu sjóferð með skipinu. — Faðir hans hafði verið stýrimaður á því, en var hættur, en sá, sem við átti að taka, ekki kominn. Varð úr að Sævar færi þennan eina róður á Val sökum þeirra forfalla. Það varð hans síðasta ferð, eins og þeirra félaga allra. —TÍMINN, 9. jan. Vincent Massey skipaður lands- stjóri í Canada í lok fyrri viku var það kunn- gert samtímis frá London og Ottawa, að Rt. Hon. Vincent Massey hefði verið skipaður landsstjóri í Canada í stað Alexanders vísigreifa af Tunis, sem er á förum til Englands og tekst á hendur hermálaráðherra- embætti í ráðuneyti Mr. Chur- chills. Mr. Massey var fyrsti sendi- herra Canada í Washington og um langt skeið æðsti fulltrúi Canadastjórnar í London; hann er fyrsti Canada fæddi maður- inn, sem tekur við landsstjóra- embætti í fæðingarlandi sínu. Hann er þjóðkunnur hæfileika- maður, 64 ára að aldri. Hörmulegur atburður Síðastliðinn sunnudag kom upp eldur í húsi hjónanna, Mr. og Mrs. Henry Einarsson við Dauphin River. Mr. Einarsson, sem er sonur Helga Einarssonar útgerðarmanns við Gipsujnville, var að fiskveiðum um tíu míl- ur frá heimili sínu, er eldsvoð- ann bar að höndum. Fjögur börn þeirra hjóna brunnu inni, þrátt fyrir allar tilraunir móðurinnar til þess að bjarga þeim. ________________ Flokksþing í Winnipeg í fyrri viku stóð yfir hér í borg tveggja daga ársþing Liberal- Progressive stjórnmálasamtak- anna í Manitoba. Þingið var harlaijölsótt, umræður fjörugar og eining hin ákjósanlegasta. Við drekkum 1,5 lííra á mann, Danir og Norðmenn helmingi meira Árið 1949 drukku íslending- ar sem svarar 1.5 lítra af 100% áfengi á hvert manns- barn á landinu. Er þetta, sem betur fer, miklu minna en nokkurs staðar annars staðar í álfunni, að því er segir í Þingtíðindum Stórstúku Is- lands, sem Vísi hafa borizt. Til samanburðar má geta þess, að samsvarandi tölur Norðmanna eru 3.42 lítrar á mann, Dana 3.37, Finna 1.83, Breta 6,01, Tékka 5.95, ítala 8.40 og Frakka 17.01. Árið 1950 drukku íslendingar samtals 463.087 lítra af sterkum drykkjum (41%), 86.733 lítra af heitum vínföngum (19%) og 17.794 lítra af borðvínum y^Ðb 17.794 lítra af borðvínum (12%). Af þessu er ljóst, að drykkju- skapur íslendinga er ekki mik- ill samanborið við nágranna- þjóðirnar, að því er snertir á- fengi á hvert mannsbarn í land- inu. Við erum t. d. ekki „hálf- arættingar“ á við frændur vora Dani og Norðmenn, en hins veg- ar er alkunna, og okkur til van- sæmdar, hve drykkjuskapur er Stjórnarskipti Konungur Egyptalands vék frá völdum stjórnarformanni og ráðuneyti vegna óspektana, sem. urðu í Cairo á sunnudaginn var og skipaði nýja stjórn, sem lík- legt þykir að verða muni þjálli til samkomulags við brezk stjórnarvöld vegna deilunnar um Suez-skurðinn. Alvarlegar blóðsúthellingar hafa átt sér stað í landinu þessa síðustu daga. Hert á innflutningshöftum Vegna hins örðuga fjárhags, sem brezka þjóðin á við að búa um þessar mundir, hefir Chur- chill-stjórnin gripið til þeirra úrræða að draga úr vöruinn- flutningi til landsins, sem áætlað er að nemi 420 miljónum dollara á yfirstandandi fjárhagsári. Ræða sú, er Finnbogi prófess- or Guðmundsson flutti á skemti- móti Icelandic Canadian klúbbs- ins á föstudagskveldið og hann nefndi A Chesl of Books, þótti með afbrigðum snjöll og vakti hrifningu hlustenda, yngri sem eldri. Hann sagði söguna af Ingi- mundi presti Þorgeirssyni, er tók bróðurson sinn ungan til fósturs eftir fall föður hans — Guðmund Arason, síðar biskup. Ingimundur setti drenginn til bókar — barði hann til bókar því hann var ódæll — segir í Sturlungu. Þegar Guðmundur var um tvítugt brugðu þeir frændur sér til utanferðar, en lentu í ofsaveðri og urðu skip- reika; áhöfnin komst í land en skipið brotnaði í spón og far- hér áberandi. En á hinn bóginn leiða tölur þessar í Ijós, að drykkjuskapur hér er ekki eins almennur og oft hefir verið haldið fram, og það er gleðiefni. —VÍSIR, 3. jan. Finnur Jónsson, alþm. lótinn Finnur Jónsson, alþingis- maður, lézt hér í bænum 30. s.l. mánaðar eflir langa vanheilsu. Finnur Jónsson var fæddur 28. september 1894 og varð því 57 ára gamall. Hann var fyrst kjörinn á þing árið 1933 fyrir ísafjarðarkaupstað og sat á þingi allt frá þeim tíma, en þing það er nú stendur yfir gat hann ekki setið vegna sjúkleika. Hann kenndi fyrst sjúkdómsins, er dró hann til dauða, er hann var á ferð um Bandaríkin á s.l. sumri. Þegar hann kom heim var hann lagður á sjúkrahús og gerður á honum uppskurður. skömmu áður en hann lézt var hann fluttur heim til sín. Finnur hafði mikil afskipti af opinberum málum bæði hér á þingi og í ísafirði, en þar sat hann um langt árabil í bæjar- stjórn. Dómsmálaráðherra var hann árin 1944—’47. í dag verður Finns Jónssonar minnzt í Sameinuðu Alþingi, en það er fyrsti fundurinn eftir fundahléið um hátíðarnar. —VISIR, 3. jan. Eitfr flugslysið enn Á miðvikudaginn í fyrri viku var flugvél að reyna að lenda á N ewark-ilugvellinum í þoku- veðri; hún rakst á 3 hæða hús og brast þegar í bál með 23 menn innan borðs, er allir fór- ust ásamt 5 manns í húsinu. Fyrir mánuði síðan fórst flug- vél í mílu fjarlægð frá þessum stað og týndu þá 56 manns líf- inu. Nú er verið að rannsaka hvort tæki flugvallarins, sem vísa flugvélunum leið, séu göll- uð, eða staðurinn sjálfur hættu- legur; hann er 12 mílur frá New York-borg. angur allur týndist, þar á meðal bókakista Ingimundar og þótti honum það sárast „því þar var yndi hans, sem bækurnar voru“. Bað hann nú heitt og innilega að bókakista hans skyldi á land koma og bækur. Nokkrum nótt- um síðar spurðist, að kistan var á land rekin heil og alt það er í henni var. Hélt þá lokinu að- eins ein hespa en tvær voru brotnar. Finnbogi prófessor lauk ræðu sinni eitthvað á þessa leið: „Sumir munu spyrja, hvort við megumtvið því, tuttugustu ald- ar menn, að læra íslenzku jafn- framt enskunni. Að minni hyggju er það mikilvægari spurning, hvort við megum við því, að kunna íslenzku og lesa ekki eitthvað af hinum ágætu íslenzku bókmentum. Þið, sem kunnið íslenzku, hafið þá að- stöðu, að ein hespan heldur enn; þið þurfið aðeins að ljúka upp kistunni og lesa bækurnar“. Prófessor Skúli Johnson kynti ræðumanninn með hlýjum orð- um og spáði góðu um störf hans við íslenzkudeild háskólans. Dr. A. H. S. Gillson flutti kveðju háskólans og mæltist honum skemtilega að vanda. Mr. Alvin Blöndal skemti með söng, en Miss Sigrid Bardal með píanó- leik og var að hvorutveggju gerður góður rómur. Mr. W. Kristjánsson, forseti klúbbsins hafði samkomustjórn með höndum. I lok kveldverðar og skemtiskrár var stiginn dans með miklu fjöri. Samkoman var fjölmenn og um alt hin skemti- legasta. Gimli Tenor Gefrs Confrracfr Ólafur N. Kárdal Gimli’s “singing fisherman,” who turned to a musical career two years ago, has accepted a contract with the Lyceum Com- munity programme series in North Dakota, starting Sept. 15. The tenor, Olafur N. Kardal, who began his musical career in Winnipeg, won first place in an audition for the Stairway to Stardom programme on WCCO in Minneapolis two years ago. He later enrolled at the Mac- Phail College of Music. Well-known in Icelandic circles, Mr. Kardal has been soloist with the Icelandic Male Voice choir. He recently gave a series af recitals in Manitoba’s Icelandic districts and has ap- peared in various parts of Min- nesota and Nort Dakota. —Free Press Hryllilegfr morð Á föstudagsmorguninn var sjö ára gamalt stúlkubarn myrt hér í borginni og eru fósturforeldr- ar hennar, Gavin og Lillian McCullough, kærð um að hafa framið þennan verknað. Hjón þessi voru haldin miklu trúar- ofstæki; þau sóttu allar sam- komur prestsins A. C. Valdez, sem var hér í borg nokkrar vik- ur og þóttist geta gert krafta- verk og læknað sjúka. Talið er að trúarofsi hjónanna hafi auk- ist og snúist upp í brjálæði við það að sækja þessa trúaræsinga- fundi. Á föstudagsmorguninn veittu nágrannar hjónanna því eftir- tekt, að þau voru á knjánum í bæn í snjónum bak við húsið, og voru aðeins í náttfötum. Lög- reglunni var gert aðvart og fann hún þá lík litlu stúlkunnar í húsinu; hún hafði verið barin til dauðs þá um morguninn; senni- lega hafa þau haldið, að þau væru að reka úr henni illa anda, en öllum kunnugum kemur sam- an um, að þeim hafi altaf þótt mjög vænt um barnið. 77 íslendingar fórusfr af slysum órið 1951 Þrjátíu og Iveir biðu bana í sjóslysum Á árinu, sem nú er að líða, hafa ekki færri en 77 íslending- ar beðið bana af slysförum bæði á sjó og á landi. Þar af eru sjó- slys 32, í flugslysum hafa farizt 22, er flugvélin Glitfaxi og Rjúpan fórust. Vegna umferðar urðu 11 dauðaslys og af ýmsum öðrum ástæðum svo sem á vinnustöðum, heimahúsum og víðar 12 dauðaslys svo vitað sé, þar á meðal má nefna 3 dauða- slys vegna þess að menn hrapa eða detta úr stigum heima hjá sér. 2 dauðaslys hafa orðið í sveitum í sambandi við notkun landbúnaðarvéla, þá eru bruna- slys o. s. frv. (Frá Slysavarnafélaginu) —Þjóðv., 30. des. Hækkaður \ frign \ Bretakonungur hefir sæmt Viscount Alexander jarlstign í tilefni þess að hann lætur nú af embætti sem landsstjóri Canada; hefir hann gegnt því embætti síðan 1946. Hann mun flytja kveðjuávarp í útvarpið 15. febrúar og sigla heim til Eng- lands 17. febrúar. Miðsvefrrarmófr Fróns Tilkynnt hefir verið áður, að próf. Finnbogi Guðmundsson verði aðalræðumaðurinn á Fróns mótinu 18. febrúar n.k.; hefir hann nú þegar sýnt hve snjall ræðumaður hann er. I þetta skipti talar hann á móðurmáli sínu, enda verður, eins og venju- lega, reynt að hafa mótið al- íslenzkt. Nefndinni er það sér- stakt ánægjuefni að tilkynna að skáldið, Guttormur J. Guttorms- son, mun flytja kvæðaflokk á mótinu. — Aðrir liðir hinnar vönduðu skemtiskrár verða aug- lýstir í næsta blaði. íslendingar minnstu drykkju- menn Evrópuþjóða

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.