Lögberg - 31.01.1952, Page 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 31. JANTJAR, 1952
Hogbcrg
QeflC Ot hvern flmtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEQ, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
BDITOR LÖGBERQ, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEQ, MAN.
PHONE 21 804
Rritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $5.00 um árið—Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Autnorlzed as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Sveinn Björnsson forseti íslonds
Mig setti hljóðan, er canadíska útvarpið flutti þau
tíðindi laust eftir hádegi síðastliðinn föstudag, að þá
væri nýlátinn forseti íslenzka lýðveldisins, herra Sveinn
Björnsson, sjötíu og eins árs að aldri; að vísu var það
vitað, að hann hefði eigi gengið heill til skógar um
nokkur undanfarin ár, en þó var eigi langt um liðið frá
því, er sú fregn barst hingað vestur, að hann hefði hlot-
ið allverulega bót meina sinna í byrjun yfirstandandi
vetrar; skömmu eftir að dánarfregnin barst út um
heim á öldum ljósvakans, barst Gretti L. Jóhannssyni
ræðismanni símskeyti frá íslenzka sendiráðinu í Wash-
ington þar sem skýrt var frá láti hins ágæta þjóðhöfð-
ingja og þess jafnframt getið, að hjartabilun hefði orðið
honum að banameini.
Sveinn forseti var fæddur í Reykjavík 27. febrúar
1881, sonur þeirra þjóðkunnu hjóna Björns Jónssonar
ritstjóra ísafoldar, síðar ráðherra, og Elízabetar systur
Hallgríms biskups Sveinssonar; var Björn, eins og
kunnugt er, einn hinn allra snjallasti og áhrifamesti
blaðamaður, sem um getur í sögu íslenzku þjóðarinn-
ar og frábær starfsvíkingur, er hlífði sér lítt; stóðu því
að Sveini forseta styrkir stofnar í báðar ættir.
Sveinn forseti lauk ungur stúdentsprófi við Latínu-
skólann og hóf þegar að því loknu nám í lögvísi við
Kaupmannahafnarháskóla og lauk þar embættisprófi
með hinum ágætasta vitnisburði; er heim kom, gaf
hann sig brátt að málafærslustörfum og aflaði sér
brátt á þeim vettvangi almennra vinsælda og trausts
sakir réttsýni og skyldurækni; enda var hann manna
ráðhollastur, og áttu þeir þar eigi hvað sízt góðan hauk
í horni þar, sem hann var, er lítils voru umkomnir og
höllum fæti stóðu í lífsbaráttunni. Sveinn forseti var
mannkostamaður, er eigi fór í manngreinarálit.
Sveinn forseti tók frá æsku mikinn og giftudrjúg-
an þátt í mannfélagsmálum; hann átti sæti í bæjar-
stjórn Reykjavíkur og sat um eitt skeið á Alþingi fyrir
hönd höfuðstaðarins; hann var fyrsti sendiherra í Dan-
mörku og í raun og veru langt um víðar en þar, því
þegar mikið lá við, var hann viðriðinn samningagerðir
á Bretlandi og með fleiri þjóðum.
Sveinn forseti kvæntist ungur glæsilegri konu af
dönskum ættum, frú Georgíu, er setti virðulegan svip
á heimili þeirra hjóna, og þá ekki sízt á forsetabústað-
inn; var gott þangað að koma og heimilislífið mótað
hinu unaðslegasta smaræmi; verður mér slíkt jafnan
minnisstætt úr heimsókn minni til Bessastaða sumar-
ið 1946. Börn forsetahjónanna, þau, er ég kyntist,
höfðu auðsjáanlega þegið í arf flest hin beztu skap-
gerðareinkenni foreldra sinna, svo sem alúðina og
hina óhvikulu vinhollustu.
Sveinn forseti stóð í brjóstfylkingu þeirra manna,
er grundvöll lögðu að stofnun Eimskipafélags íslands,
og hefði vafalaust getað tekið undir með Hannesi Haf-
stein, þótt þeir stæði á öndverðum meiði í stjórnmála-
baráttunni, er hann orti þessar ógleymanlegu ljóð-
línur:
„Sé ég í anda knör og vagn knúða
krafti, sem vanst úr fossa þinna úða,
stritandi vélar, starfsmenn glaða og prúða,
stjórnfrjálsa þjóð með verzlun eigin búða“.
Sveini- forseta lá það þungt á hjarta, að þjóð sín
yrði engu síður sjálfstæð í efnahagslegum en stjórnar-
farslegum skilningi og brýndi jafnan fyrir henni að
þetta hvorttveggja yrði að haldast í hendur ef trygt
ætti að verða um hag þjóðarinnar í framtíðinni.
Árið 1940, er Danmörk lenti í klóm Þjóðverja og
konungur Danmerkur reyndist þess ómegnugur, að
framkvæma stjórnskipulega ltöllun sína á íslandi, kaus
Alþingi í einu hljóði Svein Björnsson að ríkisstjóra og
gegndi hann því vandasama embætti unz hann tók við
forsetatign við lýðveldistökuna 17. júní 1944 og hafði
hann það virðulega embætti á hendi til dauðadags,
dáður og virtur af þjóð sinni, hafinn með öllu yfir smá-
munalegan flokkadrátt; þjóðin vissi að henni var óhætt
að treysta honum; hann hafði brent sig inn í vitund
hennar sem prúður og hjartahreinn sonur, er vildi í
öllu veg hennar.
Sveinn forseti heimsótti Bandaríkin í boði Roose-
velts forseta sumarið 1944 og hreif hugi manna vegna
hógværðar hinnar og prúðmensku hvar, sem leið hans
lá; okkur vinum hans, sem áttum því láni að fagna, að
vera viðstaddir móttökuna, sem þáverandi borgar-
stjóri í New York, La Guardia, hélt til heiðurs honum
í ráðhúsi borgarinnar, mun seint úr minni líða hve
framkoma hans þar sem annars staðar var virðuleg,
hve honum mæltist fagurlega sem fulltrúa hins endur-
borna íslenzka lýðveldis.
Sveinn Björnsson var maður heittrúaður, þótt víð-
sýnn væri hann í þeim efnum og laus við öfgar; hann
var göfugmenni, borinn til mannaforráða og lausnar
vandamálum þjóðar sinnar; síðasta áramótakveðja
hans til íslenzku þjóðarinnar, fögur og drengileg, verð-
ur nú samferða hér í blaðinu fregninni um andlát hans,
en á því fer óneitanlega vel.
„ísland, þig elskum vér, alla vora daga"
Rabbað við
PÁL ÍSÓLFSSON
um Ameríkuför
ÞAÐ ER EKKI fréttnæmt leng-
ur að Páll ísólfsson og kona hans
hafi farið í tíu vikna för til
Ameríku í boði Bandaríkja-
stjórnar. — En nú eru þau kom-
in heim aftúr, ánægð að sjálf-
sögðu og hrærast nú í endur-
minningum hinnar dásamlegu
ferðar.
Ég tók Pál tali um daginn og
spurði hann frétta úr Bancfa-
ríkjaförinni. Fórust honum orð
á þessa leið:
— Við hjónin fórum utan með
Lagarfossi. Fengum við ágæta
ferð. Eftirvæntingin varð að von-
um mikil, en tíminn var drepinn
með ýmsu móti, m. a. með há-
karlsáti og skemmtilegum sög-
um.
En það var snemma sunnu-
dagsmorguns að komið var til
New York. — Þokumugga og
mistur byrgði fyrir allt útsýni
lengi vel. En loks kom í ljós
óljós mynd, tröllaukin og gífur-
leg. Hún skýrðist og þetta var
þá Manhattaneyja, þar sem allir
skýjakljúfarnir eru. Þessi sýn
var stórfenglegri en ímyndunar-
afl ókunnugs Islendings hafði
megnað að skapa. Við störðum
gapandi af undrun til lands.
Skipið leið hægt fram með eynni
og inn á höfnina — Manhattan-
eyja, sem einu sinni var keypt
fyrir 24 dollara. Það gat hvergi
verið annars staðar en í Amer-
íku. Hún myndi víst reynast
eitthvað dýrari nú á tímum.
í New York fengum við mót-
tökur hinar beztu. En okkur var
þegar tilkynnt að áður en hin
raunverulega ferð um Ameríku
hæfist, yrðum við að halda til í
Washington, því þar yrði gerð
áætlun yfir ferðalögin í sam-
ræmi við óskir okkar.
Borgin þar sem kirkju-
lurnarnir sjásl ekki.
En fyrst gafst okkur tækifæri
til að litast um í New York. Það
er fyrirtæki sem segir sex. En
þegar maður fer að hugsa um
eitt furðuverkið, er eins og hug-
urinn festist við það og önnur
gleymast. Þannig er það með um
ferðina. Hún er svo ör og mikil
að ógerningur er að gefa lýsingu
á henni. Það er engu líkara en
hver einasti maður sé að forða
lífi sínu, svo mikill er hraðinn.
Ofanjarðar er ógerningur að
flýta sér, nema þá hægt. En neð-
anjarðar fer allt hraðar. Þar
geisast bifreiðarnar áfram eftir
hvítkölkuðum göngum, og stór-
fljót eru þeim engar hindranir,
því svo langt er maður kominn
niður á við. Þannig er það með
brýrnar. Fleiri hundruð metra
langar brýr og í fjarska séð er
engu líkara en bjöllur séu að
skríða yfir, þegar bílaröðin lið-
ast milli endanna. Svona mætti
lengi telja.
Og aldrei sér maður kirkjurn-
ar álengdar eins og í öðrum
borgum. I New York skjóta þær
upp kollinum alveg fyrirvara-
laust. Turnar þeirra, margra
tuga metra háir, hverfa meðal
húsanna, — húsa, sem jafnvel
teljast smáhús. — Já, New York
er furðulegt fyrirbæri. Sann-
kallaður ævintýraheimur.
Einkennileg tilfinning að hand-
leika handril Beethavens.
Páll gerir stutt hlé á frásögn
sinni. Ég hafði enga spurningu á
reiðum höndum, því ég var að
hugsa um umferðina í New
York, brýrnar og kirkjurnar.
Þaðan héldum við til Wash-
ington, byrjar Páll á ný. Þar var
nokkurs konar miðstöð þessa
ferðalags, þar voru áætlanir
lagðar og þar skipulögðum vér.
Washington er óvenju fögur
og tilkomumikil borg. Gafst
okkur hjónunum einstakt tæki-
færi til að skoða hana, því okk-
ur, sem raunar öllum öðrum ís-
lendingum, var tekið opnum
örmum af Thor Thors sendi-
herra íslands og konu hans, frú
Ágústu. Gerðu þau allt til þess
að gera dvöl okkar skemmtilega
og ánægjulega og það tókst þeim
vel. Thor Thors nýtur í borginni
og alls staðar annars staðar
feikilegs trausts og vinsælda.
Þar er réttur maður á réttum
stað.
1 Washington gafst mér m. a.
kærkominn kostur á að skoða
bókasafnið Library of Congress.
Þar eru m. a. handrit ýmissa
mestu tónskálda heimsins t. d.
Beethovens, Bachs, Handel,
Brahms o. fl. Þetta eru ómetan-
legir fjársjóðir. Það er einkenni-
leg tilfinning að mega fara
höndum um handrit Beethovens
að verkum, sem maður hefir
þekkt frá blautu barnsbeini, —
fá að sjá frumdrögin að þessum
verkum og fylgjast með því,
hvernig þau hafa orðið til.
Keypt dýrum dómum.
— Er af handritinu einu sam-
an hægt að sjá hvernig verkið
hefir skapazt?
— 1 mörgum tilfellum er það
svo, einkum og sér í lagi þegar
um verk Beethovens er að ræða.
Hann vann stundum árum sam-
an að sama verkinu og margar
„skissur“ hans eru til. Er mjög
lærdómsríkt að kynnast þeim, og
emstaka þeirra hafa verið gefn-
ar út.
— Hvernig stendur á því að
öll þessi handrit eru í þetta safn
komin?
— Sum þeirra eru keypt dýr-
um dómum. Önnur hefir safnið
fengið að gjöf eða erft þau o. s.
frv.
Eins og skipasmíðastöð.
Síðan lá leiðin til Boston. Þar
áttum við hjónin heimboð hjá
einum mesta orgelsnilling Banda
ríkjanna, E. Power Biggs. Hafði
hann skrifað mér, er hann frétti
um fyrirhugaða ferð mína og
bauð okkur til sín í heimsókn.
Áttum við ógleymanlega viku
þar.
í Boston hittum við einnig
prófessorana R. Stark og
Murphy, en þeir hafa báðir
heimsótt Island nú nýlega og eru
góðir Islandsvinir. Fékk ég með
þeirra aðstoð einstakt tækifæri
til að kynnast Harvardháskóla
og tónlistarlífinu þar og um leið
því sem mér var hugleiknast:
orgellistinni í Bandaríkjunum.
Þarna og raunar alls staðar ann-
ars staðar fékk ég að kynnast
ýmsum tegundum orgela, sum-
um mjög merkilegum. Þau eru
mjög fullkomin enda er orgellist
í Bandaríkjunum á mjög háu
stigi og orgelið er mjög út-
breytt hljóðfæri þar í landi.
Það er bezt að geta þess hér
um leið, segir Páll, að síðar heim
sótti ég m. a. stærstu orgelverk-
smiðjuna í Bandaríkjunum og
þótt víðar sé leitað. Það eru
Möllers verksmiðjurnar í Hager-
stown í Maryland. Þegar þang-
að kemur finnst manni eigin-
lega að maður sé kominn í stóra
skipasmíðastöð. Þar vinna á
annað þúsund manns og eftir þá
liggur eitt orgel annan hvern
dag. í meðalstórum verksmiðj-
um er framleiðslan nokkur
orgel á ári. Tók það okkur þrjá
tíma að ganga í gegnum öll
vinnuherbergin.
Var mjög fróðlegt og skemmti
legt að kynnast hverju hand-
bragði við smíði þessara eftir-
sóttu hljóðfæra.
Framhald á bls. 5
Jólahefti „Kirkiuritsins"
Alltaf hlakka ég til, þegar jóla-
blöðin og jólaheftin koma heim-
an um haf, því að þau flytja svo
margt, sem fræðir og gleður og
gefur huganum vængi, bera
birtu í bæ í skammdeginu. Þessi
rit hafa nú aftur í ár hlaðist að
mér í hrönnum um og eftir há-
tíðarnar, og yrði það of langt
mál, ef lýsa ætti fjölþættu les-
máli þeirra, svo kennir þar
margra grasa og góðra. Að þessu
sinni verður því aðeins farið
nokkrum orðum um eitt þessara
kærkomnu rita, jólahefti
„Kirkjuritsins“.
Það var vandað rit og prýði-
legt í höndum þeirra starfs-
bræðranna, guðfræðiprófessor-
anna Ásmundar Guðmundsson-
ar og Magnúsar Jónssonar, og
heldur jafn ágætlega í horfinu
síðan Ásmundur prófessor tók
einn við ritstjórninni. Andlegt
víðsýni og fangvíð mannúð
svipmerkja rit þetta um annað
fram, enda er bjart umhorfs,
hátt til lofts og vítt til veggja í
trúarhöll ritstjórans, eins og
ræður hans og ritgerðir bera ó-
tvírætt vitni.
Jólaheftið hefst á einkar
íögrum sálmi, „Barn á bæn“,
eftir Jakob Jóh. Smára skáld,
sem löngu er kunnur af öðrum
sálmum sínum og andlegum
ljóðum; í fyrrnefndum sálmi
hans lýsir sér vel djúpstæð trú-
hneigð hans og innsæi, en þetta
er upphafsversið:
Ég barn sá krjúpa í bæn að
kveldi,
það bað með sakleysis skærum
róm.
Ég sá inn í himinsins helga veldi,
er heyrði ég tállausrar bænar
óm,
en geislar af dýrðlegum Drottins
eldi
dreifðust um húmið sem litrík
blóm.
Fagur er einnig jólasálmur
Jens Hermannssonar, sem birt
heíir margt góðra kvæða í blöð-
um og tímaritum, og prýðilegt
kvæði Arnfríðar Sigurgeirsdótt-
ur, „Vetrarsólhvörf“. Aðrir sálm-
ar í heftinu eru „Messu upphaf“
eftir séra Jakob Jónsson, „Bæna-
vers um batnandi heim“ eftir
Jón Arason, og „Búðakirkja“
eftir Braga Jónsson. Má um
sálma þessa segja hið forn-
kveðna, að þeir hafi allir til síns
ágætis nokkuð.
Látlaus en falleg er hún einnig
þessi „Jólaósk" hennar Ingi-
bjargar Guðmundsson (í Tuj-
unga, California), sem birt hefir
andleg ljóð beggja megin hafs-
ins:
Kveiki á kerti þínu
Kristur með orði sínu.
Líf hans í ljósadýrðinni,
það lýsi sálu þinni.
Og vissulega væri friðvæn-
legra um að litast í heiminum,
ef ljós kenninga og kærleiks
meistarans mikla ljómaði bjart-
ar í hugum valdhafanna og
annarra, sem þeim fylgja í spor.
Svo sem vænta má og vera
ber, er allmikið af lesmáli heft-
isins í óbundnu máli sérstaklega
helgað jólunum. Athyglisverð er
jólahugleiðingin („Frelsari fædd-
ur“) eftir séra Bjartmar Krist-
jánsson, ekki sízt þessi orð hans:
„Frelsunin er ekki fólgin í því,
að manni sé hlíft við verðskuld-
uðum afleiðingum heimsku-
strika sinna, sú frelsunaraðferð
væri enda hæpin velgerningur,
heldur er hún fólgin í því að
vaxa frá heimskustrikunum,
hún er fólgin í auknum þroska
hins innra manns, gæzku hjart-
ans og göfgi hugarfarsins“.
Merkilegt er einnig jólabréf-
ið til ritstjórans frá séra Jón-
mundi Halldórssyni, aldurfor-
seta þjónandi íslenzkra presta;
kemur hann víða við, og fær
maður eigi annað en dáð andans
fjör öldungsins og þann áhuga-
eld, sem logar undir orðum hans.
„Jólavaka barnanna“ eftir
séra Óskar J. Þorláksson er bæði
hugþekk mjög og nær sýnilega
ágætlega tilgangi sínum. Þar
sem helgisögnin „Brauðin og
fiskarnir" er að efni til náskyld
sjálfum jólaboðskapnum, má
geta hennar hér, en hún er
hvorttveggja í senn hugðnæm
og færð í prýðisgóðan íslenzkan
búning af séra Árelíusi Níels-
syni.
En þetta innihaldsríka hefti
flytur einnig margt almerms
efnis, um trúar- og menningar-
mál, sem tímabært er og hinn
bezti fengur að: — Erindið
„Þrjár raddir“ eftir dr. Árna
Árnason, „Rödd úr flokki leik-
manna“ eftir Jóhann Sigurðs-
son, „Kristindómsfræðsla í Nor-
egi“ eftir Þórð KriStjánsson,
erindið „Baráttan fyrir lífs-
skoðun“ eftir dr. Kristian
Schelderup biskup, og minning-
arræðan um séra Hallgrím Pét- .
ursson, eftir séra Sigurjón Guð-
jónsson; er sú ræða fögur að
hugsun og málfari og hittir
kröftuglega í mark.
Sérstaklega veigamikið og
vekjandi til umhugsunar er er-
indi dr. Schjelderups biskups,
enda er þessi norski kirkjuhöfð-
ingi nafnkunnur rithöfundur og
fyrirlesari; hann kom til Islands
í októbermánuði síðastliðnum
og flutti þá þetta erindi sitt í
Háskóla íslands. Horfðist dr.
Schjelderup djarflega í augu við
vandamál samtíðarinnar í and-
legum, siðferðislegum og menn-
ingarlegum efnum, og tekur þau
mál föstum tökum. Sýnir hann
fram á það með sterkum rökum,
hvernig m e n n geta, fyrir
dýrkeypta innri reynslu, fundið
sér andlega fótfestu í heimi
kristindómsips, og eru þetta
lokaorð þessa stórbrotna erindis
hans.
„Og það, sem enn meira er.
Við þessa reynslu öðlast hann
einnig aftur — í nýrri og ennþá
dýpri mynd — alla fyrri hug-
sjónabaráttu sína og viljann til
þess að , halda stríðinu áfram
fyrir þær hugsjónir, sem hafa
kennt honum að koma auga á
æðsta mark og tilgang lífsins —
kærleik, frelsi, sannleik, rétt-
læti. Nú er lífsóttinn horfinn,
komið í staðinn þor og þróttur.
Hann gengur studdur megin-
gjörðum út í baráttu lífsins gegn
öllum öflum myrkursins bæði
hið innra og hið ytra — út í líf,
sem jafnVel mitt í hita stríðsins
er mótað af því, er veitir sannar-
legt manngildi: Lotning fyrir líf-
inu, hvar sem það finnst, virðing
fyrir því, sem hverjum manni er
ætlað að verða, fyrir bróður vor-
um og frjálsri hugsun hans, kær-
leik til samfélags mannanna, þar
sem allir hafa jafnt rúm og
jafnan rétt“.
„Kirkjuritið“ minnist einnig
að vanda nýlátinna kirkjunnar
manna. Ritar séra Jón Auðuns
um móðufbróður sinn, séra Run-
ólf Magnús Jónsson frá Stað í
Aðalvík, Vigfús Guðmundsson
fræðimaður um séra Ingvar
Gestmund Nikulásson, um langt
skeið prestur að Skeggjastöðum
í Norður-Múlasýslu, og Ásmund-
ur prófessor Guðmundsson um
hinn unga efnismann séra Her-
mann Gunnarsson að Skútustöð-
um, er féll að velli langt um
aldur fram. Allar eru minning-
argreinar þessar vel samdar.
Arnfríður Sigurgeirsdóttir kveð-
ur séra Hermann einnig í inni-
legu og verulega fögru minning-
arkvæði.
Ýmislegt fleira er í þessu jóla-
hefti, svo sem „Sálmaskáldið
Valdimar Snævarr" eftir Ric-
hard Beck, afmælisgrein um
séra Magnús Bl. Jónsson níræð-
an, erlendar fréttir eftir séra
Óskar J. Þorláksson, „Samtín-
ingur utan lands og innan“ eftir
séra Gísla Brynjólfsson, inn-
lenda fréttir, ritfregn („Orða-
lykill að Nýja Testamentinu“
eftir séra Björn Magnússon pró-
fessor) o. fl. eftir ritstjórann.
Heftið er í litprentaðri kápu,
prýtt mörgum myndum, og því
um allt hið jólalegasta að bún-
ingi eigi síður en innihaldi.
Richard Beck