Lögberg - 28.02.1952, Blaðsíða 4

Lögberg - 28.02.1952, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 28 FEBRÚAR, 1951 nögteta QeflC út hvern ílmtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA UtanS.sk rift ritstjórans: BDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN. PHONE 21 804 Rritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið—Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Autnorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa Minningarræða Thor Thors sendiherra um Svein Björnsson forseta Ruða þessi var flutt af Tlior Thors sendiherra útfarardiig forsetans hinn 2. febrúar I sendiráði íslands í París. Þar voru samankomnir Islendingar í París, alls 60 manns, og fluttu þeir Pétur Benediktsson sendiherra og Thor Thors sendiherra báðir ræðu. — Lögbcrg þakkar sendiherranum innilcga fyrir, að scnda því þessa fögru og drengilegu ræðu til birtingar. —Ritstj. Konung skal til frægðar hafa en eigi til langlífis. Við fráfall Sveins Björnssonar er vor þjóðhöfðingi fallinn. öll íslenzka þjóðin hefði æskt þess, að honum hefði enzt aldur og heilsa til að skipa öndvegi í þjóðfé- lagi voru enn um mörg ókomin ár. Þótt segja megi að vísu, að forsetinn hafi lokið löngu æfistarfi, þá fannst oss öllum hann vera svo ómissandi maður á sínum virðulega stað, að við vildum ekki hugsa þá hugsun, að við þyrftum brátt að missa hann. En eitt sinn skal maður hver deyja. Við fráfall Sveins Björnssonar er íslenzkt þjóð- félag miklu fátækara en áður. Við höfum misst mann- inn, sem öll þjóðin hafði sameinast um sem þjóðhöfð- ingja í undanfarin ellefu ár. Við fráfall hans hefir þjóðin eignast enn eitt nýtt og stórt vandamál. Hver skal taka upp skjöldinn eftir hann? Víst má telja, að þjóðin vilji um engan einn sameinast. íslenzka þjóðin átti sannar- lega nóg vandamál fyrir. Nafn Sveins Björnssonar verður að eilífu tengt við þann þátt íslandssögunnar, þar, sem framsóknin er mest og framfarimar stórstígastar. Hann lifði á því tímabili er íslendingar tóku að notfæra sér tækni nú- tímans í þágu atvinnulífsins bæði til sjávar og sveita. Við það færist þjóðfélag vort frá ömurlegustu fátækt til nokkurra bjargálna. Sveinn Björnsson átti sinn drjúga þátt í því, að framfarasporin vom stigin. Af- skipti hans af atvinnumálunum voru mikil og margvís- leg. Nægir í þeim efnum aðeins að minna á þann mikla þátt, sem hann átti í stofnun Eimskipafélags íslands, — er var geysilegt átak að því marki að gjöra íslendinga sjálfstæða að því er snerti flutninga til og frá landinu. En það er þó fyrst og fremst í stjórnmálasögu íslendinga, sem nafn Sveins Björnssonar mun standa glæstum stöfum á öllum ókomnum tímum. Hann var uppalinn á heimili þar sem sjálfstæðiseldurinn logaði skært og var óslökkvandi. Faðir hans, Bjöm Jónsson, ritstjóri, átti nægan eld hugsjóna og framsækni til að miðla sonum sínum. Sú varð og raunin, að nafn Sveins Björnssonar verður tengt við hvern þann sigur, sem við höfum unnið í baráttunni fyrir sjálfstæði og full- veldi. Og hvert sinn, sem nýr sigur er unninn og nýr vandi þjóð vorri á herðum er kallað á Svein Björnsson. Eftir að við fengum fullveldi vort að nokkur viður- kennt með sambandslögunum frá 1918 og íslandi gafst kostur á að skipa sinn fyrsta sendiherra erlendis, til að túlka málefni íslands við Danakonung og Ríkisstjórn Danmerkur, þótti Sveinn Björnsson sjálfkjörinn til að skipa þann virðingarsess. Og þar sat hann í nærfelt 20 ár, þjóð sinni til hins mesta sóma. Raunar var sendi- herrastarfið í Kaupmannahöfn aðeins einn hluti af um- fangsmiklu og víðtæku starfssviði Sveins Björnssonar. Tíðar sendifarir víða um Evrópu og samningagerðir fyrir hönd íslands voru e. t. v. engu þýðingarminni hluti af starfi sendiherrans. En eftir að síðasta heims- styrjöld skall á og sýnt þótti að íslendingar yrðu að taka stöðugt vaxandi þátt í meðferð sinna utanríkismála var Sveinn Bjömsson kvaddur heim til að vera ríkis- stjórn íslands til ráðuneytis um meðferð þeirra mála. En leið hans lá lengra fram á við. Eftir að nazistar höfðu hernumið Danmörku og öllu sambandi var slitið milli íslands og Danmerkur, þurftum við að skipa mann til að fara með konungsvaldið, skv. stjórnarskrá vorri. Aftur þótti Sveinn Björnsson sjálfkjörinn. Loks varð það að fegurstu draumar beztu manna þjóðarinnar á undanförnum áratugum tóku að rætast. ísland sagði með öllu skilið við Danmörku samkvæmt þeim rétti, sem oss var skapaður og tryggður með sambandslög- unum. Með almennri þjóðaratkvæðagreiðslu, sem að þátttöku og samhug má heita einsdæmi í sögu lýð- frjálsra þjóða, tókum við íslendingar þessa ákvörðun, góðu heilli, bjartsýnir á framtíðina og trúandi á eigin mátt og dug. Lýðveldi var stofnað á íslandi hinn 17. júní 1944. Hver skyldi verða fyrsti Forseti hins unga lýðveldis? Auðvitað enginn nema Sveinn Björnsson. Og árin 1945 og 1949 var hann endurkosinn gagnsókn- arlaust og við almenna ánægju allrar þjóðar. Það skal mikið til í okkar sundurlynda og órólega þjóðfélagi, þar sem öfund og illmælgi illu heilli svo oftsinnis fá miklu ráðið, að hljóta slíkar almennar vinsældir og viður- kenningu og halda hvorutveggju um langt árabil. Hvað olli öllum þessum vinsældum og slíkri virð- ingu. Fyrst og fremst, að minni hyggju, miklir mann- kostir, glæsileiki og fáguð framkoma, alúð og hjálpfýsi í garð allra, er til hans leituðu, árvekni við íslenzka hags- muni og einlæg löngun til að verða þjóð sinni að liði á hverjum stað, í hverju máli, við hvert tækifæri. Hinar æðstu mannvirðingar voru laun Sveins Björnssonar fyr- ir afburða vel unnin störf, laun, sem aðeins þeim íslend- ingum getur hlotnazt, sem allir unna frama. En frami Sveins Björnssonar var og frami íslands. Því var unnt að treysta, að framkoma og viðmót Forsetans yrði hverjum íslending, er á leið hans var, til stoðar og styrktar. íslendingar vissu það og fundu, að þeir áttu þjóðhöfðingja, sem þeir voru stoltir af — þjóðhöfðingja, sem skildi þjóðina og skipaði öndvegissess hennar virðulega. íslendingar vissu það einnig, að hvar, sem þjóðhöfðingi þeirra fór erlendis kom hann tiginmann- lega fram og sómdi sér með ágætum meðal mestu valda- og virðingarmanna ^orrar aldar. Þessa er mér ljúft að íminnast frá komu Forsetans til Washington sumarið 1944, er hann sótti heim Roosevelt Forseta — hinn mikla leiðtoga mannkynsins á þeim tímum — og ýmsa aðra helztu ráðamenn hins mikla heimsveldis Banda- ríkjanna. Það er og vitað, að Forsetinn naut virðingar og vináttu tiginmanna og valdamanna víðsvegar um EJvrópu, einkum á Norðurlöndum þar sem hann átti marga vini, er hann hafði eignast á starfsferli sínum. Fjölmennur og einlægur var sá vinahópur, er hann kvaddi í Kaupmannahöfn, er hann lét af sendiherra- störfunum þar, eftir nærfelt tuttugu ára þjónustu. Foringinn er fallinn. í dag var hann til grafar bor- inn. Þjóðarsorg breiðist yfir gjörvalt land vort, frá innstu dölum til yztu nesja. Ég veit, að öll hin íslenzka þjóð hefir í dag einhuga sameinast um að votta höfð- ingja sínum virðingu. Dægurþras og rýgur hafa í dag vikið. Hinstu kveðjur þjjóðarinnar voru virðulegar og einlægar. íslenzka þjóðin hefir svo margs að minnast úr æfi og fari hins fallna foringja. Hann hafði ferðast um flestar byggðir landsins, kynnt sér hagi og baráttu fólksins í striti og starfi, upp til sveita og út við sjó. Hann vildi skilja baráttu fólksins við óblíða náttúru og hann kynntist líka þjóðinni sjálfri, fólkinu, sem byggir hið erfiða land og reynir að halda uppi menningarríki við mikið fámenni í stóru landi. Og hvar sem Forsetinn kom var gleði og hátíðarstund. íslenzk þjóð er dásam- leg, stórbrotin og sérstæð þjóð. Hver einstaklingur er sjálfstæður höfðingi, sjálfstætt ríki innan vors litla ríkis. íslendingum er því ekki tamt að líta upp til höfð- ingja. En þó litu íslendingar upp til Forseta síns og vildu hann virðan vel hafa. Þetta var ljóst á ferðum Forsetans um landið. Hvarvetna skildi hann eftir ljúfar endurminningar. Persónulega minnist ég nú Sveins Björnssonar með virðingu og þakklæti. Hann hvatti mig sem ungan námsmann til að leggja á þá braut, er ég síðar í lífinu kaus mér, og þar sem ég nú stend. í starfi mínu naut ég skilnings og hlýhugs þjóðhöfðingjans. Ég á margar endurminningar um Svein Bjömsson. Sú, sem er einna skæmst og kærust í huga mér er frá unglingsárum mínum. Það var í hinni fyrri heimsstyrjöld. Við íslend- ingar urðum fyrir því óláni að missa annað af hinum nýju skipum Eimskipafélags íslands, Goðafoss.- Þá þótti Ægir þungur í skauti. En stjórn félagsins, undir forystu Sveins Björnssonar, vissi að bylgjur þær, sem brjóta knör, þær bera þó að landi, og hún trúði því, að altaf mætti fá annað skip. Nýtt skip var keypt til lands- ins. Þegar það lagðist að hafnarbakkanum var því fagnað mjög og hátíð í bænum. Sveinn Björnsson stóð þá á stjórnpalli og flutti ræðu. Hann sagði, að stefna stjórnar félagsins hafi verið: „Eigi skal gráta Björn bónda, heldur safna liði“. Ég er þess fullviss, að slíkur mundi boðskapur For- setans til þjóðarinnar nú í dag — ef hann mætti mæla til okkar. Við skulum því, íslendingar, vera samhuga um að láta eigi hryggð á okkur fá — en safna liði. Við söfnum liði með því einu móti að vera samtaka sem ein þjóðarheild — samtaka um að byggja upp farsælt þjóðfélag frjálsra, menntaðra, vaskra manna, þar sem hver má una glaður við sitt. Við skulum láta glæstan lífsferil Forsetans verða oss hvöt til að sækja fram til mennta, fram til dáða, fram til mannfélagsins æðstu gæða. / Við skulum vera bjartsýn og taka undir orð Jónasar Hallgrímssonar og segja: Veit þá engi, að eyjan hvíta á sér enn vor, ef fólkið þorir guði að treysta, hlekki hrista, hlýða réttu, góðs að bíða. Hlekkina skulum við forðast og við skulum vona, að hin íslenzka þjóð eigi nægð góðra hluta að bíða. En um minningu Forsetans getum við sagt: Veit þá engi, að eyjan hvíta átt hefir sonu fremri vonum. Megi Fjallkonan fríða gefa oss marga slíka sonu. Þá mun vel fara. íslenzkum kór boðið tíl Ameríku Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið hefir aflað sér, standa nokkrar vonir til, að Tónlistarfélagskórinn í Reykjavík fari í söng- för til Bandaríkjanna í vor. Frá þessum málum hefir þó ekki verið gengið til fulls, en kórnum hefir borizt boð um þetta, sem verið er að athuga, hvort hægt er að þiggja. Það er bandaríska herstjórn- in, sem sent hefir kórnum boð þetta með milligöngu bandaríska sendiráðsins hér, og mun aðal- lega ráðgert að kórinn syngi í herstöðvum og herskólum vest- an hafs. Býður bandaríska her- um stundum til að skemmta stjórnin slíkum skemmtikröft- hermönnum, með svipuðum hætti og bandaríski stúdenta- kórinn kom hingað í heimsókn til varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli um hátíðarnar. Gert er ráð fyrir að ferð þessi taki um fimm vikur, og munu þátttakendur verða milli 30 og 50. Má búast við að ferðin verði farin á tímabilinu frá miðjum maí til júníloka. Mun leiðin liggja um þver Bandaríkin allt vestur til Kaliforníu og haldnir margir hljómleikar. Er líklegt, að flokkurinn verði fluttur um í flugvél bæði milli landa og um Bandaríkin milli söngstaða. Ef Tónlistarfélagskórinn getur ekki þegið boð þetta, mun í ráði að bjóða öðrum íslenzkum kór, og þá líklega karlakór. Mun úr þessy verða skorið innan fárra daga. _tíMINN, 23. jan. Þúsundir við útför forsetans Látlaus, en virðuleg sorgarathöfn að Bessastöðum, í alþingishúsinu, dóm- kirkjunni og suður í Fossvogi Bálför forsetans fór fram samdægurs en aska hans fær legstað að Bessastöðum ÚTFÖR SVEINS BJÖRNSSONAR FORSETA, sem fór fram á laugardaginn, einkenndist af látleysi, en þó virðuleik. Þúsundir manna voru viðstaddir athöfnina, og mun aldrei fyrr hafa sézt svo mikill mannfjöldi við útför hér á landi. Auk þess var hvarvetna um land hlustað á útvarp frá útförinni, svo að segja má, að öll þjóðin hafi tekið þátt í sorgar- athöfninni, er fyrsti forseti henn- ar var kvaddur. Athöfnin hófst að Bessastöð- um kl. 12.45, en þar var aðeins viðstödd fjölskylda og nánustu vinir forsetans. Hófst athöfnin með því að strokkvartett undir stjórn Björns Ólafssonar, bróður sonar forsetans lék eitt lag, en því næst söng kór Bessastaða- kirkju sálminn „Ó, þá náð að eiga Jesúm.“ Bjarni Jónsson vígslubiskup flutti húskveðju, og séra Garðar Þorsteinsson söng sálminn „Kom dauðans blær,“ en að lokum söng kórinn sálminn „Þín miskunn, ó guð!“ Frímúrarar báru kistuna út af forsetasetrinu að líkvagninum. Leiðin milli Bessastaða og Reykjavíkur var lokað fyrir um- ferð meðan líkfylgd forsetans ók til Reykjavíkur, og ók bifreið lögreglustjóra fyrir líkvagnin- um, en næst á eftir líkvagnin- um bifreið forsetafrúarinnar, en síðan aðrir bílar með börn, tengabörn, vini og venzlamenn forsetans. Syðst í Lækjargötunni var mynduð fánaborg; en þar höfðu flest stéttarfélög og fleiri sam- tök safnazt saman með fána sína og gengu fánaberar á undan lík- fylgdinni í gegnum bæinn með lögreglusveit í broddi fylkingar. Líkfylgdin fór um þessar götur í miðbænum: Lækjargötu, Aust- urstræti, Aðalstræti og Kirkju- stræti, og var staðnæmzt fyrir framan alþingishúsið. Þúsundir bæjarbúa höfðu safnazt saman við göturnar, þar sem líkfylgdin fór, og við Austurvöll, framan við alþingishúsið og kringum dómkirkjuna. Þegar líkfylgdin kom að al- þingishúsinu lék Lúðrasveit Reykjavíkur sorgarlag en Karla kór Reykjavíkur söng „Yfir voru ættarlandi11 meðan kistan var borin inn í þinghúsið. Inn í al- þingishúsið báru hana forsetar alþingis og formenn þingflokk- anna. í anddyri alþingishússins voru viðstaddir, auk ríkisstjórnarinn- ar og alþingismanna, hinir sér- legu fulltrúar erlendar þjóðhöfð- ingja og aðrir opinberir fulltrú- ar erlendra ríkja. Kveðjuorð fluttu í anddyri þinkhússins Steingrímur Steinþórsson for- sætisráðherra og Jón Pálmason, forseti sameinaðs alþingis. Úr þinghúsinu að kirkjudyr- um báru kistuna fulltrúar ým- issa stéttarsaftaka: forseti Al- þýðusambands íslands, formað- ur Vinnuveitendasambands ís- lands, form. Fiskifélags íslands, formaður Verzlunarráðs íslands, formaður SÍS, forseti Landssam bands iðnaðarmanna og forseti Landssambands íslenzkra út- vegsmanna. Inn í kirkjuna báru fulltrúar frá hæstarétti, háskólarektir, form. Stéttarsambands bænda, form. Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, forseti ÍSÍ, full- trúi bæjarstjórnar Reykjavíkur og form. Félags ísl. iðnrekenda. Áður en kistan var borin í kirkju gekk biskup landsins og allir prestar Reykjavíkur, ásamt guðfræðiprófessorum háskólans og prófastinum í Gullbringu- og Kjósarsýslu í kórinn í fullum skrúða. Athöfnin í kirkjunni var lát- laus en hátíðleg. Hún hófst með því, að dómkirkjukórinn söng „Beyg kné þín, fólk vors föður- lands.“ Þá flutti biskupinn rít- ual og bæn, dómkirkjukórinn söng sálminn „Höndin þín drott- inn, hlífi mér.“ Þórarinn Guð- mundsson lék einleik á fiðlu og Karlakórinn Fóstbræður söng sálminn „Góður engill guðs oss leiðir;“ en að lokum söng dóm- kirkjukórinn þjóðsönginn. Út úr kirkjunni báru kistuna ríkisstjórnin, forseti hæstaréttar og forseti sameinaðs þings. Gjallarhornum var komið fyr- ir í kringum Austurvöll; stóðu þar þúsundir manna og hlýddu á athöfnina bæði í alþingishús- inu og dómkirkjunni. Enn frem- ur voru gjallarhorn í fríkirkj- unni og hlýddi fjöldi manna á athöfnina þar. Frá dómkirkjunni var ekið suður í Fossvog, þar sem sorgar- athöfninni lauk í kapellunni, og fylgdu um eða yfir 20 bílar lík- vagninum þangað. Inn í kapell- una báru kistuna synir forsetans tengdasynir og tveir bræðrasyn- ir og læknir forsetans. í kapellunni söng kór sálminn „Allt eins og blómstríð eina;“ séra Bjarni Jónsson kastaði rek- unum, en að lokum var þjóð- söngurinn sunginn. Síðar á laugardaginn fór bál- för forsetans fram; en jarðnesk- ar leifar hans voru eftir það fluttar suður að Bessastöðum, þar sem þær verða jarðsettar. —ALÞB. 5. feb. Kaupið Lögberg Business College Education In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Commence YourBusiness Traimnglmmediately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PRESS LIMITED PHONE 21 804 695 SARGENT AV L wlNNIPEG

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.