Lögberg - 06.03.1952, Page 1

Lögberg - 06.03.1952, Page 1
PHONE 21374 Aox& Cletttv «ideTeT* t,tt'ttin'<1 ® A Complete Cleaning Institution 65. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 6. MARZ, 1952 NÚMER 10 Sambandsþingið í Ottawa sett að viðstöddu miklu fjölmenni Þann 28. febrúar síðastliðinn var sambandsþingið í Ottawa sett að viðstöddu miklu fjöl- menni, en því var frestað rétt fyrir jólin. Þingsetningin var að þessu sinni næsta sögufræg, því þetta var í fyrsta skiptið, sem lands- stjórinn, innfæddur Canada- maður, las stjórnarboðskapinn og setti þing; hinn nýi lands- stjóri, Rt. Hon. Vincent Massey, er þjóðkunnur afreksmaður; hann var fyrsti sendiherra Canadastjórnar í Bandaríkjun- um og um langt skeið æðsti um- boðsmaður þjóðar sinnar í Lon- don. Canadiska þjóðin er í sorg vegna fráfalls Hans Bátignar konungsins og gætti þess ábæri- lega við þingsetninguna, sem mótuð var djúpri alvöru, jafn- framt því sem landsstjóri og þingmenn sóru hinni ungu drottningu hollustueið. Það vakti almenna aðdáun hve virðu lega hinn nýskipaði landsstjóri leysti af hendi sitt fyrsta em- bættisverk. í stjórnarboðskapnum var meðal annars vikið að því, að sambandsstjórn myndi taka til athugunar allar hugsanlegar ráð- stafanir til að koma í veg fyrir útbreiðslu gin- og klaufnasýk- innar, sem brotist hefði út í hér- uðunum umhverfis höfuðborg Saskatchewan fylkis, og bænd- um yrði greiddar skaðabætur fyrir þann búpening, er af völd- um plágunnar yrði að lóga. Þess var getið, að fjárhagur þjóðarinnar væri í hinu ákjós- anlegasta ásigkomulagi þótt verðbólgu gætti að vísu nokkuð, sem stjórnin ynni sleitulaust að, að halda í skefjum. Endurskipun kjördæma kem- ur til úrslita á næstunni vegna siðasta manntals og mun þetta geta leitt til þess, að Manitoba missi tvö þingsæti en Saskat- chewan fimm, þó einhver breyt- ing geti að vísu á þessu orðið Hin mikla mannúðarsfofnun Síðastliðinn mánudag hófst hér í landi hin árlega fjársöfn- un í sjóð Rauða Krossins, þessar umfangsmiklu líknarstofnun- ar, sem umlykur allan heim og aldrei fer í manngreinarálit; þar er hvorki spurt um hörundslit né þjóðernislegan uppruna; þar eru allir jafnir fyrir lögunum, og markimiðið það eitt, að koma skilyrðislaust til hjálpar þar, sem þörfin er mest. Enginn veit hvenær röðin kemur að sér; þjóðir verða fyrir ógæfu af manna völdum og nátt- úruhamförum, og þær fá eigi af sjálfsdáð skilað sér á kjöl; en þar, sem svo er ástatt kemur dís mannúðarinnar á vettvang og ber smyrsl í sárin. Alls skal safna í ár í Rauða Kross sjóðinn í Canada $5,222, 000, en skerfur sá, sem Mani- toba er gert að skyldu að leggja fram, nemur þrjú hundruð þús- undum dollara. Manitobabúar eru ekki vanir að láta sinn hlut eftir liggja varðandi framlög til mannúðar- málanna og þeir gera það ekki heldur í þetta sinn. Rt. Hon. Vincenl Massey um það er lýkur; ráðgert er og, að vegna hinna svonefndu Colombosamþyktar leggi Canada fram $25,000,000, en slíkt er gert til styrktar þeim þjóðum í Austurlöndum, sem skemst eru á veg komnar varðandi nauðsyn- lega framleiðslutækni. Gagnger breyting á hegning- arlöggjöfinni verður lögð fyrir þing, svo og ýmissar mikilvægar breytingar á innflytjenda lög- unum. Ákvarðanir verða teknar með það fyrir augum, að koma á fót alþjóðarbókasafni eins fljótt og slíku verður viðkomið. Þá lagði stjórnarboðskapurinn áherzlu á það, að vegna hins við- sjála viðhorfs á vettvangi heims- málanna væri það óumflýjan- legt, að veita Vesturveldunum allan þann hernaðarlegan og fjárhagslegan stuðning, sem kostur væri á. Telja má víst, að þing þetta eigi langa setu því svo mörg og mikilvæg verða viðfangsefni þess. Befrel samkoman tokst með ógætum Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar hefir nú haldið enn einu sinni upp á afmæli Betels með meiriháttar samkomu mg rausnarlegum veitingum fyrir alla samkomugesti. Frú Hansína Olson átti frumkvæðið að því, að félagið byrjaði að efna til þess- ara árlegu skemtana til arðs fyrir Betel, eins og samkomu- stjóri, séra V. J. Eylands, skýrði frá; stýrði hann samkomunni röggsamlega og hafði gamanyrði á reiðum höndum. Ánægjmlegt var að sjá hve margt ungt fólk styrkti þessa stofnun með því að koma þarna fram og skemta með söng og píanóleik; Var yndislegt að hlýða á það. Mrs. Tallman, forstöðukona Betels, flutti einkar hlýlegt erindi um Betel og skýrði frá starfinu þar; væri' fróðlegt að sjá það á prenti. Árið 1951 var Betel þungt í skauti; þá létust 19 vistmanna, hæzta dánartala í sögu stofnun- arinnar. Erindi próf. Finnboga Guð- mundssonar var frumlegt og skemtilegt; sagði hann frá ferð sinni í fylgd með föður sínum, Dr. Guðmundi Finnbogasyni, til Dimmuborga í Mývatnssveit; á- hrifum tröllamyndanna þar á þá feðga, og sýndi síðan myndir af tröllunum. — Samskotin námu $270.00 og er það víst það mesta, sem inn hef- ir komið á Betels samkomu. Fregnir af búpeningssýkinni Varpað fyrir borð Þau tíðindi hafa gerzt innan vébanda verkamannaflokksins brezka, er vakið hafa mikið um- tal og víðtæka athygli, en eru fólgin í því, að trúnaðarráð flokksins hefir í pólitískum skilningi varpað Herbert Morri- son fyrrum utanríkismálaráð- herra fyrir borð sem formanni þeirrar nefndar, er skipulagn- ingu skyldi hafa með höndum varðandi meðferð utanríkismál- anna; eftirmaður hans verður Hugh Dalton, er um nokkurt skeið í Attlee stjórninni gegndi f j ármálaráðherraembætti. Landskjálfti og stórtjón Síðastliðinn mánudag reið ó- stjórnleg flóðalda yfir eina hinna nyrztu eyja japanska veldisins, er orsakaði geisilegt manntjón og eigna, og engan veginn víst að öll kurl séu enn komin til grafar; nú er vitað að um tvö hundruð manns hafi týnt lífi í þessum hamförum náttúrunnar, auk þess sem þús- undir standa uppi ráðþrota án skýlis yfir höfuðið; eignatjón nemur, að því er síðast fréttist, miljónum dollara. Bandaríkjastjórn lagði þegar svo fyrir, að ein hersveit hennar í Japan færi þegar til land- skjálftasvæðanna í því augna- miði að flytja þangað læknislyf og vistir, og koma upp bráða* birgðabústöðum. Minna mótfri nú gagn gera Frá bænum Reno í Nevada- ríkinu er símað þann 1. þ. m., að innbrotsþjófar hefðu þá um daginn þreifað fyrir sér í heim- ili miljónamærings, sem þar á heima, er hann sat að dagverði á ríkmannlegu hóteli, og haft á brott með sér $2,500,000 í pen- ingum, skrautmunum og verð- bréfum, en þeim hefði sézt yfir miljón í útleysanlegum verð- bréfumj sem voru í ferðatösku í setustofunni. Stjórnarkreppa í Frakklandi Það er reyndar engin ný bóla þó stjórnarkreppu verði vart í Frakklandi, því síðan að síðari heimsstyrjöldinni lauk, hafa nítján ráðuneyti verið mynduð og dáið drottni sínum; hið síð- asta varð liðlegá mánaðargam- alt og enn hefir forsetanum, eft- ir nálega vikuþóf, ekki lánast að koma nýju ráðuneyti á laggirn- ar þrátt fyrir ítrekaðar umleit- anir við forustumenn aðalþing- flokkanna. Síðasta ráðuneytið féll vegna þess að það krafðist 15 af hundr- aði aukinna útgjalda til her- varna en fékk því eigi fram- gengt. Alvarlegar ókærur Rússnesk blöð hafa undanfar- ið haldið fram þeirri ósvífni, að hersveitir sameinuðu þjóðanna hafi gerzt sekar um sýklahern- að í Kóreustríðinu með þeim hætti að strá yfir Norður-Kóreu opnum umslögum með eitruð- um skorkvikindum í; ákærum þessum hafa hernaðaryfirvöld hinna sameinuðu þjóða mót- mælt sem illvígum og staðlaus- um heilaspuna. Margháttaðar ráðstafanir af hálfu þessopinbera hafa þegar verið gerðar og er verið að geira vegna búfjársýkinnar alvarlegu, sem upp kom í Saskatchewan- fylkinu ekki alls fyrir löngu, frá aðflutningsbanni á cana- dískum búpeningi til Banda- ríkjanna, ásamt kjöti, hefir áður verið sagt; um tilslökun í þeim efnum er enn, sem komið er, ekki að ræða að öðru leyti en því sem amerísk stjórnarvöld hafa heimilað innflutning reykts svínakjöts; millifylkja banni hef- ir verið komið á, og nú hefir, sambandsstjórn bannað með öllu innflutning búpenings og kjöts frá öðrum þjóðum í því augna- miði að tryggja svo sem framast megi verða markaðinn heima fyrir. , Ekki er enn vitað með hverj- um hætti áminst sýki hefir fluzt til landsins þó nú standi yfir ná- kvæm rannsókn í því efni. Mikið umtal hefir orðið um það, hvort svo gæti verið, að Miklir húsbrunar í Winnipeg Þrátt fyrir það þó vetur hér um slóðir hafi verið óvenju mildur og lítið um stórviðri, hafa húsbrunar í Winnipeg ver- ið langt um fleiri en algent er, og hefir eignatjón numið miklu fé. í fyrri viku brunnu hér til kaldra kola Furby-leikhúsið, sem var yfir fjörutíu ára gamalt og skrifstofu- og aðalvinnustöð fyrirtækisins Fort Rouge Dyers and Cleaners á Osborne stræti. Manntjón varð ekkert á hvor- ugum staðnum; um upptök elds- ins er enn eigi vitað. „Þorkell móni#f siærsti togari flotans kom í gærkvöldi Um miðnætti í nótt kom hing- að til Reykjavíkur hinn nýi tog- ari Bæjarútgerðar Reykjavíkur, Þorkell máni, sem er stærsti togari íslendinga. Togarinn er hinn 9. í röðinni af þeim 10, er verið hafa í smíðum í Bretlandi undanfarin ár. Ber 300 smálestir. Þorkell máni er dieseltogari Hann er hálfu feti breiðari og hálfu öðru feti lengri en stærstu eimknúðu togararnir, og ber um 300 tonn af ísvörðum fiski. Að ytra útliti er hann allfrábrugð- inn hinum nýsköpunartogurun- um. F iskim j ölsverksmið j a og hraðfrystitæki. í togaranum er fiskimjöls- verksmiðja og hraðfrystitæki. Hægt er að vinna úr 20 tonnum af fiskúrgangi og beinum í verk- smiðjunni og í hraðfrystirúm- inu má framleiða 2,5 tonn af frystum flökum á dag. 30—48 manna áhöfn. Á fiskveiðum verður 30 manna áhöfn á togaranum, en séu salt- fiskveiðar stundaðar og fisk- mjölsvinnslan og hraðfrystingin starfrækt, verður 48 manna á- höfn á þessum stærsta togara ís- lendinga. Hannes Pálsson er skipstjóri, Hergeir Elíasson 1. stýrimaður og Sigurjón Þórðarson 1. vél- sfjóri. —Mbl. 24. jan. þýzkur innflytjandi, sem settist að á veikindasvæðinu kynni að hafa flutt með sér sýkilinn, og er verið að rannsaka föt hans og föggur í Hull, Quebec. Nú er verið að slátra hinum sýkta búpeningi, og er skrokk- unum komið fyrir í tíu feta djúpum gryfjum. Úr borg og bygð Mr. og Mrs. Eggert Borgfjord frá Geraldton, Ont., lögðu af stað síðastliðinn laugardag í tveggja mánaða skemtiferð suð- ur um Bandaríki og ætluðu einnig að heimsækja Vancouver; þau ferðast í bíl og eru væntan- leg helm í byrjun maímánaðar. ☆ The Women’s Association of the First Lutheran Church are having a “Special Sale of Ice- landic dishes” —“Rúllupylsa — Lifrapylsa — Vínarterta” — Friday March 7th from 7.30 to 10.30 p.m. in the church parlors. Come and bring your friends and have*a cup of Coffee — which will be for sale also. ☆ A meeting of the Women’s Association of the First Luth- .eran Church will be held in the church parlors Tuesday March llth at 2.30 p.m. ☆ Sigurður J. Magnússon, 763 Banning Str.., hér í borg, lézt á sunnudaginn 2. marz, 84 ára að aldri. Hann var ættaður úr Skagafirði, en kom til þessa lands fyrir 67 árum og hefir verið búsettur í Winnipeg síðast- liðin 40 ár. Hann var um langt skeið starfsmaður hjá Heil- brigðisdeild bæjarins. Hann misti konu sína, Þorgerði Ey- steinsdóttur, árið 1941. Hann lætur eftir sig þrjár dætur: Mrs. Davíð Björnsson, Winni- peg; Mrs. William Rinn og Mrs O. J. Mclnnis, báðar í Los Angeles; ennfremur fimm barna börn. Útför þessa mæta manns fór fram á miðvikudaginn frá Sam- bandskirkjunni. Séra Philip M. Pétursson jarðsöng. tr Mr. Sigurður Stefánsson og tengdadóttir hans, Mrs. S. Ste- fánsson frá Prince Rupert litu inn á skrifstofu Lögbergs á föstudaginn; þau fóru heimleiðis á mánudaginn. Sigurður kom til að vitja sjúkrar dóttur sinnar, Mrs. Th. Anderson; hún er nú á batavegi. Þau sögðu góða líð- an fólks í Prince Rupert. ☆ Theodore M. Sigurgeirsson frá Prince Rupert, sem dvalið hefir í Hecla, Man., síðastliðna tvo mánuði, kom til borgarinn- ar í fyrri viku og lagði af stað vestur á þriðjudagsmorgun; hann rpun dvelja nokkra daga í Moose Jaw, Sask., hjá systur sinni og tgngdabróður, Mr. og Mrs. V. Valgardson, en þaðan fer hann til Prince Rupert, þar sem hann stundar fiskiveiðar. ☆ Fyrir nokkru var skýrt frá listaferli söng- og leikkonunnar, Miss Eileen Christy, í Lögbergi. Þar var þess einnig getið, að hún hefði umsjón með hálftíma skemtiskrá við útvarpið viku- lega. — Þessi skemtiskrá heyrist frá Bismark útvarpsstöðinni (550) klukkan 9.30 á sunnudags- kvöldum. Miss Lillian Eyjólfsson, sem starfrækir Lil’s Beauty Parlor, 802 Ellice Ave., ásamt systur sinni Mrs. Herdísi Madden, fór suður til Chicago á föstudags- kveldið í fyrri viku til þess, að sitja Mid West Hairstyle- and Trade sýninguna, sem þar var haldin dagan 2., 3. og 4. marz. Hún verður í burtu í eina viku. ☆ Um þessar mundir er frú Júlíanna Friðriksdóttir, kona Haraldar leikara Björnssonar í Reykjavík, stödd hér í borginni. Hún kom að heiman í haust og hefir verið að kynna sér nýj- ungar í hjúkrunarfræði við Deaconess Hospital í Grand Forks, N. Dak., en þar lærði hún upphaflega hjúkrunarfræði. ☆ Séra Harold S. Sigmar og fjöl- skylda lögðu af stað á föstudag- inn áleiðis til Vancouver og Seattle. Búast þau við að dvelja vestra hjá ættingjum og vinum fram undir páska, en hverfa þá aftur til prestakalls síns að Gimli. ☆ Mrs. Anna Josephson frá Gimli var í borginni á fimutdag- inn í fyrri viku ásamt fóstursyni þeirra hjóna, John Howardson. ☆ Mrs. Aðalbjörg (Ada) Thordar- son, Selkirk, Man., lézt á fimtu- daginn, 28. febrúar, 66 ára að aldri. Foreldrar hennar voru Matthías T ’ordarson og kona hans, bæði látin. Hún fluttist með foreldrum sínum til þessa lands árið 1887 og átti á- valt síðan heima í Selkirk. Hún lætur eftir sig eina systur á ís- landi. ☆ Þjóðræknisdeildin „FRÓN" heldur almennan fund á mánu- daginn, 24. marz. Ágæt skemtun á boðstólum, auglýst nánar síðar., ☆ Leiðrélling: — í minningarorðum um Önnu sálugu Goodman, er birtust í Lögbergi 21. febrúar, er sagt að Kris. Goodman hafi sungið ein- söng við útförina, en á að vera Kris. Benson. Mr. Arni G. Eggertson, Q.C., kom heim á laugardaginn eftir fimm vikna ferðalag um Ottawa, New York, Miami og Havana. Cuba. 1 Miami dvaldi hann hjá tengdasystur sinni og manni hennar, Mr. og Mrs. E. B. Tait og fóru þau með honum til Havana, Cuba. Lét hann hið bezta yfir ferð sinni. ☆ Mrs. E. B. Tait frá Miami er nýkomin hingað í heimsókn til systkina, vandamanna og vina. Hún dvelur nú hjá systur sinni og tengdabróíur, Mr. og Mrs. A G. Eggertson, 919 Palmerston Ave. ☆ Óskað eflir fyrsta og öðru hefti af ritinu ÁRDÍS. Sendist til Mrs. B. S. Benson, Columbia Press, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man. Stjórnarskipti í Egyptalandi Liðlega mánaðargömul stjórn hefir hröklast frá völdum í Egyptalandi, en við af henni tekið ráðuneyti óháð öllum stjórnmálaflokkum, er það hefir efst á stefnuskrá sinni að hreinsa til heima fyrir og útrýma glæp- samlegri fjármálaspillingu í landinu.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.