Lögberg - 24.04.1952, Blaðsíða 8
8
LÖGBEHG, FIMTUDAGINN, 24. APRÍL, 1952
Úr borg og bygð
COOK BOOK
Matreiðsiubók, sem Dorcasfé-
lag Fyrsta lúterska safnaðar lét
undirbúa og gaf út; þegar þess
er gætt, hve bókin er frábærlega
vönduð að efni og ytri frágangi,
er það undrunarefni hve ódýr
hún er; kostar aðeins $1.50 að
viðbættu 15 centa burðargjaldi.
P a n t a n i r, ásamt andvirði,
sendist:
Mrs. R. G. Pollock,
708 Banning St.
Winnipeg,
Sími 36 603
Miss Ruth BárdaL
5 — 54 Donald St.
Winnipeg.
- Sími 929 037
☆ /
Mrs. Svanhvít Josie frá Ot-
tawa kom nýlega í heimsókn til
foreldra sinna Dr. og Mrs. Sig.
Júl. Jóhannesson; þau hafa verið
lasin en eru nú að hressast.
☆
Síðastliðið mánudagskvöld lézt
á Grace sjúkrahúsinu hér í borg-
inni John Anderson 90 ára
gamall, ættaður frá Krithóli í
Skagafirði; hann kom til Mani-
toba í stóra hópnum svonefnda
árið 1876. John stundaði búskap
í grend við St. Andrews hér í
fylkinu í 43 ár; konu sína
Agnesi Adshead misti John 1931.
’ Þau áttu eina dóttur, Mary,
sem búsett er í Winnipeg. John
lætur eftir sig eina systur, frú
Elísabetu Polson, 652 Goulding
Street í þessari borg. John átti
heima hin síðustu ár að 780
McDermut Avenue og bjó þar
með áminstri dóttur sinni.
Útförin fer fram í dag (fimtu-
dag) frá útfararstofu Bardals,
kl. 2 e. h. Dr. Rúnólfur Mar-
teinsson jarðsyngur.
☆
Þann 6. apríl var haldið sam-
kvæmi í bæjarráðshúsinu á
Gimli til heijjprs Mrs. John
Josephson og til að þakka henni
mikið og vel unnið starf í þágu
Gimli safnaðar. Hún hefir verið
42 ár í kvenfélagi safnaðarins,
12 ár forseti safnaðarins og 8 ár
í djáknangfndinni. Hún tók að
sér fyrir ári síðan að safna í
minningarsjóð til að kaupa orgel
í Gimli kirkju og hefir það nú
verið gert og var orgelið vígt á
páskadag.
Barney Egilson bæjarstjóri
þakkaði heiðurstgestinum fyrir
hönd ofnannefndra félaga og af-
henti henni að gjöf silfur-te-sam-
stæðu á silfurbakka. Að því
loknu skemtu gestir sér við spil
og síðan voru bornar fram
veitingar.
☆
Á páskadaginn, 13. apríl,
var fallegt nýtt orgel tekið til
notkunar í lútersku kirkjunni á
Gimli. Orgelið var gefið í minn-
ingu um látna vini og ættingja
safnaðarfólksins. Sóknarprest-
urinn, séra Haraldur S. Sigmar,
framkvæmdi minningarathöfn-
ina; Mr. Ólafur Kárdal söng og
Mr. Gunnar Erlendsson frá Win-
nipeg lék fögur tónverk á hið
nýja orgel. Miss Magnúsína
Halldórsson las upp nöfn þeirra,
sem minst hafði verið með þess-
ari gjöf; forseti safnaðarins, Mr.
Barney Egilsson, þakkaði söfn-
uðinum og sérstaklega Mrs.
John Josephson fyrir að taka að
sér söfnun orgelsjóðsins og út-
vega hljóðfærið.
☆
Mrs. Guðfinna Bergson frá
Árborg, Man., lézt á njánudag-
inn 14. apríl á Elliheimilinu
Betel. Hún var 85 ára að aldri.
Húskveðja var á Betel á mið-
vikudaginn 16. apríl, en jarðar-
förin fór fram í Cavalier, N.D.
Guðfinna kom til þessa lands
fyrir 40 árum og settist þá að í
Árborg. Eiginmaður hennar,
Sigurður,,er látinn fyrir nokkr-
um árum. Hún lætur eftir sig
tvo sonu, Heiðmar Björnsson,
Víðir, Man., og Samúel Samúels-
son, og eina dóttur, Rose Samú-
elsson.
Gifling
Eva May Pool, dóttir Mr. og
Mrs. D. Pool frá Carlyle, Sask.,
og John Harold Magnússon, son-
ur Mr. og Mrs. Einar Magnús-
son, Selkirk, Man., voru gefin
saman í hjónaband í Selkirk á
laugardaginn, 12. apríl. Að lok-
inni hjónavígslunni fór fram
vegleg veizla í Lutheran Hall,
Selkirk. Heimili ungu hjónanna
verður þar í bæ.
Meðal utanbæjargesta voru
Mr. og Mrs. E. K. Magnússon og
Mundi frá Hnausa, Man.
☆
Dánaríregn —
Á miðvikudaginn 16. þ. m. lézt
að heimili sínu að Hnausa, Man.
bóndinn Sumarliði Kárdal. eftir
all-langa legu og miklar þrautir.
Hann var aðeins rúmlega fimm-
tugur, fæddur að Kárdalstungu
í Vatnsdal, sonur Jóns Konráðs-
sonar og Guðfinnu Þorsteins-
dóttur. Hann hafði átt heima að
Hnausa síðan 1923, og stundaði
búskap og fiskiveiðar. Hann
lætur eftir sig ekkju og tvö
börn uppkomin að mestu.
Jarðarförin, sem var afar fjöl-
menn, fór fram frá heimili hins
látna og kirkjunni að Hnausa
síðstliðinn mánudag, 21. apríl.
Séra Harald S. Sigmar á Gimli
og séra Valdimar J. Eylands
fluttu kveðjumál.
☆
Oddur Árnason, Gimli, Man.,
lézt á Elliheimilinu Betel, 11.
apríl síðastliðinn, 82 ára að aldri.
Hann kom til þessa lands með
Stóra hópnum árið 1876, nam
land nálægt Gimli og bjó þar
alla tíð þar til hann hætti við
búskap fyrir átta árum. Hann
lætur eftir sig þrjá sonu, Árna
í Winnipeg, William á Gimli og
Stefán í Vancouver; þrjár dæt-
ur, Mrs. Barney Egilson, Gimli;
Mrs. James Guttormsson, Gimli
og Mrs. Charles England,
Boulder, Colorado; ennfremur
níu barnabörn. Húskveðja fór
fram á Betel á mánudaginn 14.
apríl og útförin frá lútersku
kirkjunni.
☆
Þjóðræknisdeildin í Selkirk
hefir farið fram á það við bæjar-
stjórnina, að fá leyfi til að reisa
samkomuhús á Queen Avenue
þar í bæ.
/☆
Mr. Wilfred Bristow, sonur
Mr. og Mrs. George Bristow,
Gimli, Man., dvaldi tvær vikur
um páskana hjá foreldrum sín-
um; hann er nú farinn til Regina,
Sask., en þar er hann að undir-
búa sig fyrir R.CM.P.
☆
Munið eftir Sumarmálasam-
komunni í Fyrstu lútersku
kirkjunni í kveld, fimtudaginn,
24. apríl. Gleðilegt sumar!
☆
Elías Elíasson trésmíðameist-
ari frá Vancouver, B.C., lagði af
stað héðan úr borg á mánudags-
morguninn loftleiðis austur til
New York, en þaðan flýgur hann
til Islands og kemur til Reykja-
víkur í dag. Mr. Elíasson er ætt-
aður frá Steinsmýri í Vestur-
Skaftafellssýslu og kom til þessa
lands árið 1911. Hann var lengi
búsettur í Árborg; hann á syst-
kyni á íslandi og mörg systkina-
börn, meðal þeirra er Helgi
Elíasson fræðslumálastjóri ís-
lands.
Elías gerði ráð fyrir að verða
um þriggja mánaðatíma í ferða-
laginu; hann bað Lögberg að
flytja kveðjur þeim vinum sín-
um, er honum vanst eigi tími
til að setja sig í samband við.
☆
Mrs. Gróa Skagfjord, sem
lengi hefir búið á Gimli, lézt á
þriðjudaginn 15. apríl, 64 ára að
aldri. Hana lifir eiginmaður
hennar, Jón; sonur, Bernard;
dóttir, Mrs. A. Benson og þrjú
barnabörn. Útförin fór fram á
laugardaginn frá lútersku kirkj-
unni á Gimli.
☆
Mr. og Mrs. Norman Stevens
frá Gimli fóru nýlega í tveggja
vikna skemtiferð til Minne-
apolis og Duluth.
Mrs. Kristín Tait frá Miami,
Florida, sem dvalið hefir hér í
nokkrar vikur í heimsókn hjá
skýldfólki og vinum lagði af stað
til California í gær, en í Berkley
búa tvær dætur hennar. I fylgd
með Mrs. Tait fór systurdóttir
hennar, María Anna Lund frá
Raufarhöfn; hún kom með Mr.
og Mrs. A. G. Eggertson frá ís-
landi fyrir tveim árum og hefir
dvalið hjá þeim síðan. Miss
Lund fer frá Berkley til New
York og þaðan með skipi til ís-
lands; verður starfs hennar hér
nánar getið síðar.
☆
Þann 19. þessa mánaðar voru
gefin saman í hjónaband Miss
Pauline Evelyn Martel og Roy
Francis Björnsson. Brúðguminn
er sonur Mr. -og Mrs. Andrés J.
Björnsson, Fort Garry Court,
Winnipeg; hann er útskrifaður í
Science frá Manitobaháskólan-
um. Heimili ungu hjónanna
verður í Winnipeg.
☆
Guðmundur Stefánsson, Shoal
Lake, Mán., lézt að heimili sínu
6. apríl eftir langvarandi sjúk-
dóm. Hann var fæddur á íslandi
1876. Konan hans dó árið 1939.
Hann lætur eftir sig tvo sonu,
Halldór í Shoal Lake og Baldur,
prófessor við Manitobaháskól-
ann; fjórar dætur, Mrs. B. Aust-
fjord, Vestfold; Mrs. H. Koche,
Vibank, Sask.; Mrs. H. Hicks,
Devin, Sask., og Mrs. Stone
Vancouver, B.C.
☆
Mr. og Mrs. G. L. Stephenson,
York Apts., hér í borginni, eru
nýlega komin heim eftir tveggja
mánaða dvöl í Vancouver .
☆
Fólkið frá Lundar, sem slas-
aðist í bílaárekstri nálægt
Warren 7. apríl s.l., er nú alt á
góðum batavegi.
☆
Fishermen’s Festival verður
haldið í Gimli Pavilion á sunnu-
daginn þann 18. maí næstkom-
andi. Séra Haraldur S. Sigmar
flytur guðsþjónustu, en auk þess
flytja ræður Campbell forsætis-
ráðherra, Dr. S. A. Thompson,
fylkisþingmaður og Barney
Egilsson bæjarstjóri á Gimli,
allri athöfninni verður útvarp-
að yfir C.K.Y. og stendur yfir
frá kl. 2 e. h. .til kl. 3.30 e. h.
Að lokinni útvarpsathöfn fer
fram skrúðganga fiskimanna.
☆
Á mánudaginn var lézt hér í
borginni Victor Byron, íslenzk-
ur í báðar ættir, bóndi í Swan
River bygð 45 ára að aldri; auk
ekkju sinnar Marion og móður
sinnar Berthu Byron, lætur hann
eftir sig fjóra sonu, Irvin, Lloyd,
Vern og Wayne, einnig tvær
dætur Eleanor og Loraine; fimm
bræður hans eru á lífi, Harry,
Daniel, Ross, Bertle og William,
svo og þrjár systur, Mrs. George,
Schell, Mrs. Harry Sandbrook
og Mrs. K. L. MacKenzie.
Útförin fór fram að Swan
River.
☆
Mrs. Robert Younger (Vera)
ásamt ungri dóttur sinni kom
flugleiðis frá Centralia, Ont., á
laugardaginn í heimsókn til for-
eldra sinna, Mr. og Mrs. J. G.
Jóhannsson, Arlington Str.
☆
Mr. Barney Egilsson bæjar-
stjóri á Gimli kom til borgarinn-
ar á þriðjudaginn ásamt frú
sinni.
☆
FRóNS-fundur
Almennur fundur Þjóðræknis-
deildarinnar Frón verður hald-
inn í G. T.-húsinu á mánudaginn
5. maí n.k. kl. 8 e. h.
Meginverkefni þessa fundar
verður kosning erindreka á
Þjóðræknisfélagsþingið, sem
haldið verður í Winnipeg dag-
ana 2.—4. júní n.k.
Samkvæmt venju fer fram
skemtiskrá að loknum fundar-
störfum. Um hana verður nánar
ritað í næsta blaði.
H. Thorgrímsson,
ritari Fróns
Sögufélagið fimmtíu éra
SÖGUFÉLAGIÐ á í dag hálfrar
aldar afmæli. Það var stofnað
7. marz 1902 og voru aðalhvata-
mennirnir að stofnun þess þeir
dr. Jón Þorkelsson, dr. Hannes
Þorsteinsson og Jósafat Jónasson
(Steinn Dofri), en stofnendur
voru um 70. Meðlimir félagsins
eru nú um 940.
Markmikið félagsins var frá
upphafi að vinna að útgáfu heim
ildarrita að sögu íslands, og hef-
ur félagið gefið út mikinn fjölda
merkra rita, auk tímaritanna
„Blöndu“ og „Sögu.“
Undirbúningur að stofnun
Sögufélagsins hófst í janúar 1902.
Var þá sent út áskorunarskjal
um stofnun félagsins og rituðu
um 70 menn nöfn sín á það. Síð-
ar var kosin 5 manna nefnd til
þess að semja lög fyrir félagið, en
stofnfundurinn var haldinn 7.
marz, og voru lögin þar sam-
þykkt og kosin stjórn.
í fyrstu grein laganna segir
svo um hlutverk félagsins: „Það
er uphaf laga vorra, að félag vort
heitir Sögufélag, og er ætlunar-
verk þess að gefa út heimildarrit
að sögu Islands í öllum grein-
um frá miðöldum og síðan, og í
sambandi við þau ættvísi og
mannfræði þessa lands.“
Þessa hlutverki sínu hefur
Sögufélagið verið trútt, og gefið
út ýms rit árlega, að undanteknu
einu ári, en útgáfustarfsemin féll
niður vegna fjárskorts.
Rit félagsins eru þessi: Alþing-
isbækur íslands frá 1570 - 1800;
komin eru út 8 hefti, er ná til
1690; Landsyfirréttar- og hæsta-
t éttardómar frá 1800 til 1874, en
síðan hafa dómarnir verið gefnir
út árlega að tilhlutan þess opin-
bera; Hyllingarskjölin frá 1649;
Biskupasögur séra Jóns Halldórs
sonar í Hítardal; Tyrkjaránið á
íslandi 1627, Morðbréfdbækling-
ar Guðbrands biskups Þorláks-
sonar, Aldarársbók Páls lög-
manns Vídalíns 1700 - 1709, Guð-
frœðingatal þeirra manna ísl. er
tekið hafa háskólapróf 1707 -
1907; Prestaskólamenn; Lögfræð-
Ángatal; Ævisaga Gísla Konráðs-
sonar; Ævisaga Jóns prófasts
Steingrímssonar; Læknatal, eftir
J ó h a n n Kristjánsson; Skóla-
meistarasögur Jóns prófasts Hall
dórssonar og Vigfúsar prófasts
Jónssonar; Ævisaga Þórðar há-
yfirdómara Sveinbjarnarsonar,
Grund í Eyjafirði, eftir Klemenz
Jónsson, Þjóðsögur Jóns Árna-
sonar, Galdur og galdramál á ís-
landi, eftir Ólaf Davíðsson; Læk-
nar á íslandi; Landsyfirdómur-
inn 1800 - 1919 eftir dr. jur. Björn
Þórðarson; Stiftamtmenn og amt
menn á íslandi, eftir Magnús
Ketilsson; og loks tímaritin Saga
og Blanda.“
Blanda byrjaði að koma út
1918, og í þessu riti hefur birzt
margvíslegur sögulegur fróðleik-
ur og einnig frumsamdar grein-
ar. Naut Blanda mikilla vinsælda
og varð mest við alþýðuhæfi út-
gáfurita Sögufélagsins, næst
Þjóðsögum Jóns Árnasonar; en
er þær komu út jókst meðlima-
tala félagsins að miklum mun og
hefur aldrei verið hæri en þá.
Sögufélagið hefur þó horfið að
því ráði að hætta útgáfu Blöndu
með IX. bindi, sem í verður
nafnaskrá og efnisskrá, og mun
það koma út á þessu ári. I stað
Blöndu hefur verið hafin útgáfa
á tímaritinu Saga og eru komin
út tvö hefti af því, og í því síðara
er ýtarleg grein um Sögufélagið
eftir dr. Jón Jóhannesson. Saga
flytur eingöngu sagnfræðilegt
efni, og er fyrsta tilraun til út-
gáfu sagnfræðilegs tímarits hér
á landi.
Sögufélagið hefur tíðum átt í
fjárhagsörðugleikum, eins og
mörg menningarfélög önnur,
enda hefúr útgáfustarfsemi þess
Mr. Marlin J. G. Magnússon,
ritstjóri og eigandi hálfsmánað-
arblaðsins Interlake Municipal
Observer var í borginni þessa
vikuna; var hann að athuga
möguleika til þess að gefa út
blað sitt vikulega.
ekki verið miðuð við það, hvað
gróðavænlegt hefur verið að
gefa út, og munu forráðamenn
félagsins frá uphafi hafa gert
sér það ljóst, að slíkt útgáfufyr-
irtæki myndi ekki geta borið sig
fjárhagslega. Aðaltekjustofn fé-
lagsins hefur verið árstillög fé-
lagsmanna og ævifélagagjöld,
en gegn því fá meðlimir félags-
ins öll rit þess. Árstillag hvers fé-
lagsmanns var lengi ekki nema
5 krónur og ævifélagagjald 50
krónur. Nú er árgjald félags-
manna 50 krónur og ævifélaga-
gjöldin 300 krónur. Loks ber að
geta þess, að frá 1906 hefur fé-
lagið árlega notið nokkurs styrks
frá alþingi, en hann hefur verið
mismunandi frá ári til árs, og
ekki ævinlega fylgt breytingum
á verðgildi peninganna á hverj-
um tíma eða hækkuðum útgáfu-
kostnaði.
Síðustu árin hefur hagur félag-
sins þó farið batnandi, en 1940
var breyting gerð á tilhögun út-
gáfustarfseminnar, sem orðið hef
ur félaginu hagkvæm. Þá gerði
félagið samning við ísafoldar-
prentsmiðju þess efnis, að prent-
smiðjan tók að sér allan kostnað
af útgáfu bóka félagsins, 22ja
arka árlega, gegn árstillögum fé-
lagsins. Jafnframt var ákvæði
um að ísafold skyldi innheimta
árstillögin og annast afgreiðslu
bókanna til félagsmanna. Hins
vegar skyldi félagið eiga það af
upplaginu, er umfram yrði, þeg-
ar félagsmenn væru búnir að fá
bækur sínar. Stjórn félagsins
átti og að ráða hvaða rit yrðu
gefin út hverju sinni. Samningur
þessi var gerður til 5 ára, en síð-
an framlengdur næstu 5 ár, með
þeirri breytingu, að arkatala út
gefinna bóka á ári hækkaði upp
í 30. Síðan hefur samningurinn
verið framlengdur frá ári til árs
óbreyttur.
Á þessi ári munu eftirtalin rit
koma út á vegum Sögufélagsins:
Síðasta hefti Blöndu, registrinu
lokið; framhald af Alþingisbók-
unum; Dómasafnið, framhald;
Lögréttumannatal I. bindi og 3.
hefti af tímaritinu Sögu.
Forsetar Sögufélagsins hafa
verið þrír á þessum fimmtíu ár-
um, sem liðin eru frá stofnun
þess; þeir dr. Jón Þorkelsson frá
1902 - 1924, dr. Hannes Þorsteins-
son frá 1924 - 1935 og dr. Einar
Arnórsson, fyrrverandi hæsta-
réttardómari, frá 1935 og síðan.
í stjórn Sögufélagsins eru nú
auk Einars Arnórssonar; dr. Þor-
steinn Þorsteinsson fyrrv. hag-
stofustjóri, Guðni Jónsson skóla-
stjóri, Þorkell Jóhannesson pró-
fessor og Jón Jóhannesson pró-
fessor. Varamenn í stjórninni eru
dr. Björn Þórðarson og Stein-
grímur Þorsteinsson prófessor.
— ALÞBL. 7. marz.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
1
A fv
?!
Séra Valdimar J. Eylands
Heimili 686 Banning Stfeet.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 27. apríl:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl 12.
Islenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
— Gimli Lutheran Parish —
Sunday April 27th
H. S. Sigmar, Pastor
9:00 a.m. íslenzk messa á Betel
11:00 a.m. Sunday School in
Gimli
2:00 p.m. Riverton á ensku
7:00 p.m. Gimli á ensku.
C. E. Wilson . . .
Framhald af bls. 5
skoðunum sínum fram af kappi
og getur slegið sterklega í borð-
ið til þess að fylgja orðum sín-
um eftir. Þrátt fyrir þetta er
hann líka samningamaður, þótt
það dyljist nokkuð við fyrstu
sýn. Þegar menn hafa lært að
umgangast hann, meta þeir hann
meira. Útsjónarsemi hans og at-
orku virða allir. Engar kröfur
hafa komið fram um það, að
annar maður verði settur í sæti
hans.
Eigingjarnar hvatir hafa ekki
valdið því, að Wilson hefir tekið
þetta starf að sér. Árslaun hans
eru nú ekki nema 22.500 dollar-
ar, en voru áður 175 þús. dollar-
ar. Hann telur sér hins vegar
skylt að þjóna landi sínu, þegar
þess er krafizt. Ameríkumönn-
um finnst það og á ýmsan hátt
táknrænt að hafa mann eins og
Wilson í þessu embætti. Hann
er góður fulltrúi þeirra manna,
sem hafa hafizt úr fátækt og
umkomuleysi til mestu áhrifa-
starfa, en það eru öðrum fremur
slíkir menn, sem gert hafa
Bandaríkin að því stórveldi,
sem þau eru í dag.
—TÍMINN, 6. marz