Lögberg - 03.07.1952, Síða 3
LÖGBERG. FIMTUDAGINN, 3. JÚLI, 1952
3
Gyð
Tékkóslóvakíu
ingaofsóknir kommúnista í
hamslausari en nazistanna
Eítirfarandi skýrsla er riluð af
ungum, tékkneskum mennta-
manni, sem hefir orðið að flýja
föðurland sitl undan hinni kom-
múnisku ógnarstjórn. Hann var
nýlega á ferð hér á landi og rit-
aði þá skýrslu þessa fyrir Morg-
unblaðið. í henni gerir hann
glögga grein fyrir hve mjög hin
kommúniska sljórn landsins er
undirgefinn Moskvustjórninni,
hvernig hreinsanirnar i n n a n
flokksins eru miskunnarlaust
framkvæmdar og hve hinn tékk-
neski kommúnislaflokkur hefur
líkt nákvæmlega eftir villtustu
ofsóknum nazistanna á hendur
Gyðingum í landinu.
Af skiljanlegum á s t æ ð u m
verður nafni hans haldið hér
leyndu.
Núna á annað ár hefur staðið
yfir hreinsun í kommúnista-
flokknum í Tékkóslóvakíu. Tal-
ið er, að 14.000 menn og konur
hafi verið handtekin samtals, en
meðal þeirra er há prósenttala
af Gyðingum eða mönnum af
Gyðingaættum.
Skefjalausar kynþáltaofsóknir
Þegar Vladimir Clementis
fyrrverandi utanríkisráðherra,
var afsettur og handtekinn fyr-
ir einu og hálfu ári síðan, urðu
fyrir aðallega háttsettir embætt
ismenn þriggja ráðuneyta, þ.e.
a.s. utanríkismálaráðuneytisins,
utanríkisverzlunarmála og upp-
lýsingamála. Af þeim voru
þekktir menn af Gyðingaættum
sem hér segir:
Evzen Plinger, forstjóri blaða-
mannadeildarinnar í utanríkis-
málaráðuneytinu, var einn af
þeim fyrstu. Evzen Loebl, annar
varautanríkismálaráðherra,
framdi sjálfsmorð í fangelsinu.
Stanislav Budin (hét uppruna-
lega Batz, seinna Benzion), for-
stjóri deildar fyrir áróður er-
lendis í upplýsingamálaráðu-
neytinu, sætti til að byrja með
árásum fyrir bók um Bandarík-
in; sú bók er full af svæsnum á-
sökunum í garð Ameríkumanna,
en semt þótti hún ekki 'vera
nægilega austræn; seinna hvarf
hann úr opinberu lífi. Önnur
fórnardýr voru: Oskar Kosta
(hét áður Kohn), háttsettur em-
bættismaður fjármálaráðuneyti-
sins, Arthur London og Vavro
Hajdu úr utanríkismálaráðu-
neytinu. Flestir þessara manna
hafa verið kammúnistar frá
fornu fari. Algengasta skýring-
in á falli þeirra var, að þeir
höfðu lifað í Bretlandi eða
Bandaríkjunum á stríðsárunum.
(Evzen Klinger í hrezkum fanga
búðum!) og að þeir voru grun-
aðir um vestrænan hugsunar-
hátt. Ekki einu orði var á þeð
íninnzt, að þeir voru Gyðinga-
ættar.
Alþjóðasinni sama sem
glæpamaður!
En um vorið 1951 var breytt
um tón. Þá var byrjað að koma
í ljós nýtt „samsæri,“ í þetta
sinn í sjálfri flokksstjórninni.
Samsæri, sem var kennt við að-
alritara flokksins Rudolf Slarr-
sky. Á Slansky var þá ekki ráð-
izt enn, heldur var Otto Sling
kallaður upphafsmaður samsæri
sins. Otto Sling var ritari flokk-
sins í Bruno (Brunn). Hann var
kominn af miðstéttarfólki Gyð-
ingatrúar. Kæran á hendur hon-
um gleymdi ekki að geta þess,
að hann var af „borgaralegum“
og „erlendum“ rótum runninn.
Með honum voru handteknir
margir meiri háttar Gyðingar.
Merkastur þeirra var Bedrich
Reycin, sem hafði orðið herfor-
ingi af pólitískum ástæðum. Op-
inberlega var tilkynnt, að þess-
ir menn hefðu þröngvað sér inn
í þjónustu aðalritarans Slansky,
meðan hann var veikur.
Fórnardýrin voru ekki „vest-
rænir menn“ í þetta sinn, heldur
flokkshöfðingjar og lögreglu,
sem hingað til hafa verið álitnir
hinir tryggustu þjónar Moskvu.
Eigi að síður voru þeir ákærðir
fyrir að vera „kosmopolítar —
alþjóðasinnar" og agentar hinar
vestrænu yfirráðastefnu, sem
ætluðu að koma kapítalisman-
um aftur á í landinu. Dylgjurnar
um, að „samsærismenn" væru
„rótlausir í föðurlandinu," voru
tíðar. Þegar hér var komið mál-
um, byrjuðu tékkneskir lesend-
ur að átta §ig á því, að orðið
kosmopolíti þýddi um þa§ bil
sama og Gyðingur. En orðið
„Gyðingur" hefur þá enn ekki
verið notað opinberlega og enn
var hægt að álíta hina háu pró-
senttölu Gyðinga meðal þeirra
handteknu sem tilviljun eina.
Ritarinn handtekinn
En allar efásemdir hurfu, þeg-
ar hreinsunin náði til aðalritara
Kommúnistaflokks Tékkósló-
vakíu, Rudolf Slansky. Hann
var settur af og ekki löngu
seinna var hann handtekinn
sem höfuðforsprakki samsæri-
sins. Þegar forsætisráðherra, An
tonín Zápotocký, tilkynnti hand
töku hans 18. desember 1951,
sagði hann, að tékkneska stjórn
in mundi ekki sætta sig við í-
hlutun, hvort sem hún kæmi
„frá Washington eða London,
frá Róm eða Jerúsalem.“ Hann
talaði ennfremur um landráða-
menn, sem hefðu gert samsæri
til þess að skila þjóðnýttum
eignum aftur „í hendur kapítal-
ista, Gyðinga og annarra.“
Slansky hefur verið sakaður
um að hafa reynt að koma aftur
kapítalismanum á fót með hjálp
vestrænna imperíalista. Tékk-
nesk blöð skildu táknið og hófu
allsherjar hríð gegn Zíonisma og
alþjóðahyggju. Því var haldið
fram, að þessar stefnur væru
verkfæri bandarískrar yfirráða-
stefnu. Zíonisminn og alþjóða-
hyggjan höfðu áhrif á tékkneska
borgara af gyðinglegum upp-
runa og jafnvel á kommúnista af
Gyðingaættum í foringjastöð-
um. — Gyðingar, „menn sem
höfðu engar rætur í ættjörðinni,
sem voru þar að auki flestir
komnir af borgaralegum fjöl-
skyldum, höfðu tilhneigingu að
smitast af slíkum hugsunar-
hætti. Flokkurinn og stjórnin
urðu að hreinsast af „stéttaróvin
unum,“ sem hafa smokrað sér
upp í háar stöður og vernduðu
þaðan hagsmuni gyðinglegra
auðkýfinga.
Allt þetta er augljós uppspuni
Enginn þeirra hreinsuðu hafði
haft tengsl við zíonisma, nema
ef ske kynni Stanislav Budin.—
Langflestir þeirra voru einlæg-
ir og áfjáðir óvinir kapítalis-
mans í hvaða mynd sem er. En
áróður stjórnarvaldanna reynir
að innprenta fólkinu#þessa lík-
ingu: Gyðingur—kosmopoliti —
agent auðvaldsins — landráða-
maður og njósnari fyrir Banda-
ríkjamenn.
Slóvakísku blöðin gefa þeim
tékknesku ekkert eftir, enda
hafa þau s ö m u húsbændyr.
Pravda og L’ud saka Gyðingana
um, að þeir hafi reynt eftir styr-
jöldina að ná — á kostnað sló-
vakiskrar alþýðu — sömu fjár-
hagslegri afstöðu, og þeir höfðu
fyrir styrjöldina. Ennfremur
saka þau þá um að hafa flutt ó-
grynni fjár og auðæfa til ísrael.
Áróðurinn g e g n gyðinglegum
auðkýfingum" er tengdur dylgj-
um, að þeir njóti aðstoðar af
Gyðingum í hæstum embættum
kommúnistaflokksins í þeim til-
gangi að koma kapítalismanum
aftur á fót. Á þennan hátt reyn-
ir áróðurinn að útmála alþjóða
samsæri, sem stjórnað er bæði
frá Jerúsalem og Washington.
Myndin er áberandi lík áróðri
nasista. Hver og einn Gyðingur
er.grunaður um að vera þátttak-
andi í samsærinu vegna „rótleys
is“ síns og vegna hins „erlenda
sjónarmiðs.“ Margar ræður og
ritstjórnargreinar e n d a með
kröfunum um, að „kosmopolitar
verði afmáðir og i stað þeirra
komi „ósviknir tékkneskir og
slóvakískir föðurlandsvinir."
Utanríkisþjónustan „hreinsuð"
En hreinsunin heldur áfram á
öðrum sviðum. Af skiljanlegum
ástæðum er hún augljósust í út-
anríkisþjónustu Tékka. Eftir ára
mótin var sendiherra Golstueck-
er frá T1 Aviv tekinn úr umferð
svo lítið bar á. Hann hefur ver-
ið skipaður sendiherra í Stokk-
hólmi, en var handtekinn, þegar
hann kom til Prag. Tékkneski
konsúll í Israel, Frantisek Nec-
as (ekki Gyðingur) var kallaður
heim til þess að vitna gegn þess-
um fyrrverandi samstarfsmanni
sínum, en hann „hoppaði af“ og
sótti um dvalarleyfi og griða í
Frakklandi. Sendiherra Tékka í
Kína var Gyðingur Jan Weiss-
kopf; um hann hefur ekkert
frétzt síðan um áramót, en í
febrúarlok var tilkynnt, að ann-
ar sendiherra hafi verið skipað-
ur, þingmaðurinn Frantisek
Komzala.
I febrúarlok sagði af sér Karel
Stern, starfsmaðui- viðskipta-
sendinefndar ) Bern í Sviss. Fyr-
ir styrjöldina var Stern lögfræð-
ingur í norðurhluta Bæheims.
Fjölskylda hans hefur verið
strádrepin á styrjaldarárum af
nasistum, þar sem hún var Gyð-
ingatrúar. — Stern gerðist þá
kommúnisti í þeirri trú, að kom
múnistar muni aldrei taka upp
Gyðingaofsóknir, en varð fyrir
slíkum vonbrigðum, að hann
sagði af sér í mótmæla skyni.
Loks má geta þess, að í febrú-
ar var í Prag handtekinn þegn
ísraelsríkis Mordekai Oren (hét
áður Ohrenstein), sem er í sínu
heimalandi þingmaður kommún
istaflokksins MAPAM. — Þess
vegna og vegna almennrar and-
gyðingastefnu Pragstjórnarinn-
ar var sendiherra ísraels í Prag
kallaður til' umræðna heim í
Tel Aviv. — MBL., 20. maí
Ljóð, sem leyna á sér
Gestur Guðfinnson: Þenk-
ingjar. Ljóð. Alþýðuprent-
smiðjan h. f. Reykjavík 1952
GESTUR GUÐFINNSSON hef-
ud birt allmörg kvæði í tímarit-
um undanfarin ár, en „Þenking-
ar“ er fyrsta ljóðabók hans.
Þetta er svo athyglisverð frum-
smið, að Gestur á tvímælalaust
að halda áfram að yrkja. Hins
vegar eru ljóðin ærið misjöfn og
vinnubrögðunum stundum allt
of ábótavant. Fæst kvæðin geta
talizt fullunnin, en efniviðurinn
í flestum þeirra er ósvikinn.
Gestur á vonandi eftir að gefa
út betri bók en þessa. Samt þarf
hann síður en svo að blygðast
sín fyrir „Þenkingar.“ Þetta er
bók, sem leynir á sér og vekur
ánægjulegar vonir, þrátt fyrir
gallana. Ef Gestur yrkir meira
og vandar sig betur, getur hann
orðið gott ljóðskáld, því að æð-
ina á hann til.
Mörg kvæðin mínna helzt á
uppkast. Það er eins og höfund-
urinn hafi ort þau í stemningu
líðandi stundar, en vanrækt að
fágu þau. Þetta er auðvitað illa
farið og ámælisvert. Stundum
finnst lesandanum líka hann
heyra í fjarska ó m i n n af
strengjaslætti Stefáns frá Hvíta-
dal, Davíðs Stefánssonar, Tóm-
asar Guðmundssonar, Guðmund
ar Böðvarssonar og Steins Stein
arr, þó að því fari hins vegar
fjarri, að Gestur geri sig sekan
um stælingar. En hanh þarf að
leggja aukna áherzlu á að slá
persónulegan tón, og hans gætir
í sumum kvæðunum, en er of
daufur og fjarlægur. Verst tekst
höfundinum, þegar hann vill
færast mikið í fang, en bezt, er
hann verður barnslegur og kím-
inn og bregður upp svipmynd-
um í smágerðum ljóðum. Kvæði
eins og Vor, Ó, ljóðs míns dís,
Ein er sú nótt, Haust, Tál, Að
leikslokum og Haustmyrkur ná
tilgangi sínum, þó að sum þeirra
þyrftu að vera sýnu betur kveð-
in, og þau vitna um ótvírætt
skáldefni. Þau eru í ætt við blæ
og sólskin. Hin eru of áþekk þok
unni, þó að sitthvað beri þar fyr
ir augu og eyru, ef vel er að
gætt.
Gestur Guðfinnsson ætti að
gera sér far um að lesa kvæði
erlendra skálda, og helzt þyrfti
hann að leggja leið sína út í
lönd til þess að vikka sjóndeild-
arhring sinn, finna nýjan and-
blæ leika um sig og líta furður
veraldar. Undirritaður er ekki í
neinum vafa um, að slíkt ævin-
týri myndi verða skáldinu í
Gesti andleg opinberun. En jafn
framt yrði hann að aga sig hlífð-
arlaust og temja sér ný og
strangari vinnubrögð. Gestur er
í dag athyglisvert skáldefni ,en
slakur hagyrðingur. Guði sé lof,
að hann er þó ekki slyngur hag-
yrðingur, en lélegt skáld! Eitt
smákvæði, þar sem fyrir bregð-
ur skáldlegum glömpum eins og
í beztu ljóðum Gests, er sann-
arlega meira virði en hestburð-
ir af velrímuðum leirburði.
Gestur býður lesendum sínum
upp á gott en lítið unnið hrá-
efni af kvæðum. En hann verður
áreiðanlega ekki til að spauga
með, ef honum auðnast að kom-
ast upp á lag með vinnsluna, og
þess mun ekki langt að bíða, ef
hann vill og birir.
Bezta kvæðið í „Þenkingum“
er sennilega Ein er sú nótt:
Ein er sú nótt, er hljóðlát heilsar
þér,
og hinzti glampi deyr á bak við
ský.
Og vitund lífsins hverfur sjálfri
sér,
og sjálfum þér.
Og vaknar ekki á ný.
Ein er sú nótt, að ekki dagar
meir
og um þig lykur tóm og dauða-
þögn.
Og út í tómið sérhver draumur
deyr
í dauðaþögn.
Og svo er ekkert meir.
Að leikslokum þyrfti að vera
betur ort, en hittir samt í mark:
Hver vinur að síðustu sveik þig
og yfirgaf,
er sat við þinn heimilisarin,
og eftir stendur þú einn með
þinn mal og staf,
og ævin er lifuð og farin.
Og ef til vill finnst þér eilítið
dapurlegt
og ekki huggnuarmikið
að horfa á eftir öllum, sem þig
hafa blekkt
og yfirgefið og svikið.
En þungbærust reynsla alls er
þín eigin sekt,
og óvægnust síðasta skrefið
sú vissa, að þú hefur sjálfur þig
sárast blekkt
og svikið og yfirgefið.
Undirritaður bindur samt
mestar voni^ við Gest Guðfinns-
son sem skáld vegna eftirfarandi
smáljóðs, er nefnist Haust:
Váleg er veðurátt
og vindagari,
loftið haustlegt og’ hrátt
með skýjafari.
Lítil blóm eiga bágt
í engu vari.
Tré standa blaðlaus og ber
í brekku sinni.
Sjórinn skvettist við sker
í fjarðarmynni.
Hrollkalt, hrollkalt er mér
og veröldinni.
er að minnsta kosti ekki vatn.
Business and Professional Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPBG CLINIC St. Mary’i and Vaughan. Wlnnlpag PHONE 926 441 • S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh St. Winnipeg PHONE 924 624
J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hú8. Ut. vega peningalán og eldsábyrgO, bifreiðaábyrgB o. s. frv. Phone 927 538 Phone 21101 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON Asphalt Roofi and Inanlated Slding — Repalrs Country Orderi AtteodeO To 632 Slmcoe St. Wlnnlpeg, Man.
SARGENT TAXI PHONE 204 845 PHONE 722 401 FOR QUICK. RELIABLE SERVICE GIMLI FUNERAL HOME 51 First Avenue Ný útfararstofa með þeim full- komnasta útbúnaði, sem völ er á, annast vlrðulega um útfarir, selur llkkistur, minnisvarða og legsteina. Alan Couch, Funeral Director Phone—Business 32 Residence 59
DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk. Man. Offlce Houra 2.30 - 6 p.m. Phonea: Office 28 — Rea. 230
DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephonpe 202 398
Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson jLögfrœ/Hngar 200 BANK OF NOVA SCOTLA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291 DR. ROBERT BLACK SérfrœOingur i augna, eyma, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrlfstofuslml 923 815 Heimaslmi 403 794
CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAGE, Managing Directcr Wholeaale Dlatrlbutors of Freah and Frozen Fiah. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 28 328 Rea. Ph. 73 917 Comfortex the new sensation for the modem girl and woman. Call Lilly Matthews, 310 Power Bldg., Ph. 927 880 or evenings, 38 711.
Offlce Phone Rea. Phone 924 782 726 118 Dr. L. A. Sigurdson 828 MEDICAL ARTS BLDG. Otflce Houra: 4 p.m. - • p.m. and by appolntment. GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Nettino 58 VICTORIA ST. WINNIPEG Phone 928 211 Manager T. R. THORVALDBON Your patronage wlU be apprcdated
A. S. BARDAL LTD. , FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur líkklstur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. StofnaO 1894 Sími 27 324
Minnist BETEL í erfðaskrám yðar.
Phone 23 998 700 Notre Dame Ave. Opposlte Maternity Pavilllon, General Hospltal. Nell’s Flower Shop Weddlng Bouquets. Cut Flowers, Funeral Deslgna, Corsages, Bedding Planta NeU Johnson Rea. Phone 27 482 PHONE 927 025 H. J. H. Palmason, C.A. H. J. PALMASON Jk CO. Chartered Acconntanta 505 Confederation Life Bldg. WTNNIPEG MANITOBA
Offlce 933 587 Res. 444 389 THORARINSON & APPLEBY BARRISTERS and SOLICITORS 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Maln Street WINNIPEG CANADA
PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barristers - Solicilors Ben C. Parker, K.C. B. Stuart Parker, A. F. Kriatjanaaon 500 Canadlan Bank of Comntrec Chambers Wlnnlpef, Man. Phone «X3 9t1
SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hretnlr. Hltaelnlngar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita frá að rJOka út með reyknum.—Skrifið, simið til KELLT SVEINSSON 825 WaU Street Wlnnipeg Just North of Portage Ave. Símar: 83 744 — 34 431
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 404 SCOTT BEK, Slmi 925 227
J. WILFRID SWANSON & CO. Insurance in aU its branches. Real Estate - Mortgages - Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 937 181 Res. 403 480 LET US SERVE YOU
Bullmore Funeral Home Dauphin, Manitoba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
Creators of Distinctive Pringting Columbia Press Ltd. 695 Sargent Ave., Wlnnipeg Phone 21804 Kaupið Lögberg