Lögberg - 03.07.1952, Blaðsíða 5

Lögberg - 03.07.1952, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 3. JÚLÍ, 1952 5 9WWVVVVVVVWVWVVVVVVWVVVVV* ÁlilG/iHÍL LVCNNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON KARTÖFLURNAR Kartöflurnar eru svo hversdagsleg fæða, að þeim er venjulega lítill gaumur gefinn nema ef þær vanta á borðið við miðdegis- eða kveldverðinn; þá finna menn fljótt hve þær eru mikilsverðar í daglegu mataræði fólks. Þær hafa jafnan verið fremur ódýr fæða og þess vegna hafa sumar húsmæður ekki gætt þess að fara sparlega með þær; þær hafa skorið hýðið af þeim og um leið mikið af kartöflun- um sjálfum, og fleygt soðinu af þeim og um leið miklu af nær- ingarefnum þessa góða ávaxtar. Nú hafa kartöflur hækkað í verði eins og flest annað matar- kyns, og eru nú komnar upp í 9 til 10 cent pundið hér í borg- inni. Þessi verðhækkun verður sennilega til þess að margar konur reyna að gera sér meiri mat úr kartöflunum en áður og má þá segja: „Að fátt sé svo með öllu ilt að ekki boði nokkuð gott.“ Kartöflúr eru svo ríkar af næringar- og fjörefnum, að í matarreglunum er heilbrigðis- deild stjórnarinnar gefur út, er ráðlagt að neyta þeirra að minsta kosti einu sinni á dag. En þá er líka áríðandi að ræna þær ekki þessum efnum með því að af- hýða þær og sjóða þær í miklu vatni. í kartöflunum er C-vítamín og dálítið af B-vítamín. C-vítamín læknar skyrbjúg og styrkir lík- amann. Séu kartöflur soðnar eða bakaðar með hýði er C- vítamín tapið mjög lítið, en séu þær afhýddar og soðnar í miklu vatni tapa þær að minsta kosti ☆ ☆ VINNUR SÉR í hvert sinn, sem einhver af íslenzkum ættum vestur hér, karl eða kona, vinnur sér eitt- hvað til frægðar, má það vera ánægjuefni, eigi aðeins ættingj- um og vinum, heldur einnig ís- lendingum almennt, því að hvert slíkt afrek varpar ljóma á ætt- stofninn í heild sinni. Á það eigi sízt við um námsfólk af íslenzk- um stofni í landi hér, er, góðu heilli, heldur enn sem fyrri á- fram að vinna sér margháttaðan Irama. í þeim hópi er ungfrú Marvel Adele Kristjánson frá Garðar, North Dakota, sem þ. 10. júní siðastliðinn brautskráðist af ríkisháskólanum í Norður Da- kota (University of North Ðakota) með ágætum einkunn- um og hlaut menntastigið “Bachler of Science in Edu- cation” og “Bachelor’s Diploma in Teaching”, er ber því vitni, að hún hafði jafnframt lokið kennaraprófi í námsgreinum sinum; aðalnámsgrein hennar var verzlunarfræði, en hljómlist aukanámsgrein. Á Marvel sér að baki óvenju- lega glæsilegan námsferil; hafði tekið mikinn þátt í félagslífi há- skólastúdenta og hlotið margvis- legar heiðursviðurkenningar. — Hún var kosin félagi í “Sigma Alpha Iota”, en það er félags- skapur þeirra kvenna, er hljóm- list stunda; einnig félagi í “Pi Omega Pi”, en það er alþjóðar félag stúdenta í verzlunarfræð- um, og var hún einnig um skeið á skólaárunum forseti í deild þess félags við ríkisháskólann; síðast en ekki sízt má geta þess, að hún var kosin félagi í “Pi Lambda Theta”, en það er heið- ursfélag kvenstúdenta í fræðslu- málum, og var hún um hríð á námsárunum féhirðir þess. Auk þess var hún félagi í systra- og heimavistarfélaginu ‘ Gamma Phi Beta Sorority” og tók mikinn þátt í starfsemi þess, þriðjung af C-vítamínmagninu og kartöflustappa tapar á sama hátt um helming af C-vítamín magninu. Fyrir þessar ástæður ætti aldrei að afhýða kartöflur fyrr en búið er að sjóða þær eða baka; séu þær soðnar, að nota þá sem minst vatn. C-vítamínið er mest í nýjum kartöfltim en minkar eftir því sem líður á geymslutímann og er minst að vorinu. Þegar kartöflur eru bakaðar ætti að velja þær af sömu stærð svo þær verði búnar samtímis; þvo þær vel með bursta, þurka þær og bera á þær feiti og baka í 425 til 450 gráða hita í 40 til 60 mínútur. Strax og þær eru bakaðar er stungið á þeim með gaffli til að hleypa gufunni út úr þeim. — Kartöflur þekktust ekki í Evrópu fyrr en á 16. öld. Þegar Spánverjar komu til Perú í Suður-Ameríku, þá voru kar- töflur ræktaðar þar. Þær voru nefndar „battata“ eða „papa“. Sagt er að múnkur nokkur hafi flutt þær til Spánar og þaðan bárust þær til ítalíu og Belgíu. Nokkrum árum síðar flutti Sir Walter Raleigh kartöflur til ír- lands. Þar hafa þær jafnan verið mikið ræktaðar og ein af megin- fæðu þjóðarinnar eins og sést á því að þegar kartöfluuppskeran brást 1846 vegna sýki í kartöfl- unum olli það hungursneyð í landinu. Kartöflur eru nú ræktaðar í flestum löndum heimsins og er framleitt meira af þeim en nokkrum öðrum garðávöxtum. ☆ ☆ NÁMSFRAMA Marvel Adele Kristjánson ennfremur í stjórnarnefnd Kristi legs félags ungra kvenna við há- skólann (Y.W.C.A.) og starfaði í Háskólafélagi lúterskra stú- denta (Lutheran Students’ As- sociation). Marvel er fædd 23. ágúst 1930 í Buffalo, New York, þar sem foreldrar hennar voru búsett um allmörg ár, en fluttist með þeim 8 ára að aldri til Garðar og hefir alist þar upp; stundaði hún þar alþýðuskóla- og gagnfræðaskóla- nám og lauk burtfararprófi á gagnfræðaskólanum 1 Garðar vorið 1948 og hóf þá þegar sama haust nám sitt á ríkisháskólanum í Grand Forks, N. Dak. Og þeim, sem þekkja til ættar Marvel Kristjánson, þarf ekki að koma námsferill hennar á óvart, því að traustir stofnar standa að henni á báðar hendur. Foreldrar hennar eru merkishjónin Krist- ján kaupmaður og trésmíða- meistari Kristjánson og frú Val- gerður kona hans að Garðar. Er Kristján ættaður frá Bolungar- vík, sonur Kristjáns Halldórs- sonar, er var kunnur formaður og ^jósóknari; en frú Valgerður, sem er kennslukona að menntun, er dóttir hinna ágætu hjóna Stefáns Magnússonar Breiðfjörð Gaman og alvara Ég var eitt sinn á ferð fram hjá dálitlum runna að næturlagi. Það var dimmt og drungalegt loft; sárkaldur vindur næddi um mann; fáein haglkorn bárust úr loftinu. Það var eins og hin gleðivana náttúra væri að syrgja yfir sjálfri sér. 1 runnanum var tvíbýli; tvenn smáfuglshjón bjuggu þar búum sínum. Þau tilltu sér á smágrein- um og ræddu áhugamál sín með mikilli glaðværð. Dapurleiki veðursins sýndist ekki hafa nein áhrif á samræðurnar. Ég lét mér nú skiljast, að glaðvært hugar- far fer ekki eftir ytri ástæðum, heldur eftir innvortis ásigkomu- lagi; mér skildist einnig, að höf- undur lífsins ætlast ekki til, að sorgin sé hið ríkjandi afl lífsins, heldur á það að vera gleðin. Það verður naumast varist þeirri á- lyktun, að gleði er að .finna á flestum stöðum, ef athygli ekki brestur. Það má að öllu leyti teljast eðlilegt, að þeir, sem búa við þung kjör, finnist líf sitt gleði- snautt; þó er það ekki sjald- gæft, að þeir, sém bergja súran bikar rauna og mótlætis berist betur af en þeir, sem virðast búa við yfirfljótanleg gæði. Yfirleitt talað, mun mörgum hlotnast fleiri glaðidagar en sorgardagar, þótt maður enginn mæðulaus má í heimi búa. Ákvörðun í þeim efnum er mikið undir hugsunar- hætti komin. Það tekur mikla hugaræfingu til þess að geta samsint orðum skáldsins: — „Margur reiknar sér til sorgar, sinna gagn, er ætti að fagna.“ Stundum eru sorgir manna sprottnar af vanheilum hugsun- arhætti; menn í góðum efnum sjá ofsjónum yfir eignum annara, sem meira hafa handa á milli; menn líta auðmanninn öfundar- auga; þó mun það mála sannast, að þeir sem búa við mikil auð- æfi hafa byrðar að bera, sem hinir efnaminni hafa ekkert af að segja; fáir eru einmana eins og auðmaðurinn. Hann hefir iðulega yfir sveit manna að ráða, misjöfnum að innræti; sumir dyggir, en aðrir ódyggir. Mönn- um hættir við að girnast gullið, en gleyma manninum, serrf hefir yfir því að ráða. Hann á örðugt með að lesa í sundur vini og óvini; þar af leiðandi á hann færri vini en ætla mætti. Hann hefir mikið fyrir lífinu; þung byrði hvílir honum á herðum. Mun nokkuð sjaldgæft að finn- ist glaðværir auðmenn. Tökum til samanburðar fugl- ana í runnanum; þeir eru kátir og skrafhreyfir, og spjalla mikið hvernig sem viðrar. Þeir eiga engin forðabúr gegn vetrinum, en framfleyta lífinu á leyfum og úrgangi, sem fleygt er út frá mannlegum híbýlum; þeir hvorki vinna né' spinna. Þeiy Id. 1937) og konu hans Kristínar Bergman, sem enn er á lífi, all- mjög við aldur, og búsett að Garðar. Heimili þeirra Kristjáns og frú Valgerðar að Garðar er víð- kunnugt fyrir myndarskap og rausn; eru þeir æði margir orðn- ir gestirnir heiman um haf og úr hópi íslendinga hér í landi, sem geyma í þakklátum huga góðar minningar um frábærar viðtökur á heimili þeirra hjóna, því að þar fara saman höfðingsskapur og gleðskapur í beztu merkingu orðsins. En svo að horfið sé aftur að Marvel dóttur þeirra hjóna, þá hefir hún, foreldrum sínum, ætt- ingjum og vinum til íagnaðar- efnis, eigi aðeins unnið sér mik- inn námsframa, heldur einnig þegar hlotið ágæta kennarastöðu í sínum fræðigreinum við gagn- fræðaskólann í Thief River Falls i Minnesota, einum af beztu slík- um skólum í þeim hluta ríkisins; þarf eigi að efa, að hún' muni geta sér gott orð í kennslustarf- inu, jafn mikinn dugnað og hún hefir sýnt í háskólanámi sínu, RICHARD BECK sofa værum hressandi og á- hyggjulausum svefni til kom- andi dags. Einhver hefir komist þannig að orði: „Ef að viltu hér í heim, hjálpast frjáls og glaður. Lít til fugla og lærðu af þeim, lífs að njóta,' maður-. Frítt þeir kvaka um foldargeim, fljúga í lofti hæsta. Sefur hver á sinni grein, sœll til morguns næsta.“ Ég veit um íkorna, sem hefir gaman af að spóka sig í eikar- tré. Ég var að setja á mig hvernig hann hefðist við. Hann sat á grein ofarlega í trénu; alt í einu skaust hann'eins og eld- ing niður á við og kom aftur með sýnilega hálfþurra flís af börk; tók hann til matar síns og bruddi þetta átmeti með mik- illi lyst eins og hann sæti að konungskrásum. Hann gaf mér auga eins og hann vildi að ég tæki vel eftir sér, eins og hann vildi segja við mig: „Þarna get- ur þú séð lifnaðarháttu okkar náttúrubarnanna. Við færum okkur til munns alt er náttúran ber á borð og alt sem seður okk- ur. Hér gerist engin þörf fyrir matreiðslu eða borðbúnað. Við borðum fremur eftir þörf en lyst; borðum okkur södd, en etum aldrei yfir okkur. Móðir okkar, náttúran, leggur nægilegt öllum, sem þiggja vilja. Það er engin dýrtíð, engin verk- föll, enginn er að metast við annan um það sem á borð er borið; allir hafa hinn sama rétt og gildi; Hér eru engir yfir- menn eða undirgefnir; enginn metnaður út af mannkostum eða yfirburðum; hér ganga engir með táknum tigna eða titla. Náttúran er móðir jafnt allra og gerir ekkert upp á milli barna sinna; engin er hér öfundsemi, og búksorg þekkjum við ekki. Hérna undir trénu hefi ég hús- næði í jörðinni; þakið er vatns- helt og hlýtt; veggir eru tjaldað- ir innan með voðfeldu, og húsið er alt í einu: forðabúr, setu- stofa og svefnsalur. Ég hefi Tveir lœknar, þeir Alfreð Gíslason og Jón Si'gurðsson borgarlœknir, sem fengnir voru af bæjarstjórn Reykja- víkur til þess að segja álit sitt á stofnun og rekstri drykkjumannahœlis hafa ný lega sent bæjarráði eftir- farandi álitsgerð: Á FUNDI bæjarráðs hinn 4. marz s.l. var rætt um nauðsyn þess að koma sem fyrst upp stofnunum fyrir áfengissjúkl- inga, og fól bæjarráðið okkur undirrituðum að gera tillögur til bæjarráðs um framkvæmdir á þessum málum. Við viljum því að athuguðu máli taka eftirfar- andi fram: Áfengis- eða drykkjusjúkling- ur er sá maður, sem neytir á- fengis svo í óhófi, að hann vinn- ur sjálfum sér með því tjón í heilsufarslegu eða félagslegu til- liti. Hann drekkur þrátt fyrir betri vitund um að honum væri hollara að gera það ekki og stjórnast í því tilliti af knýjandi hvöt. Það er augljóst af þessari skil- greiningu, að takmörkin milli svokallaðrar hófdrykkju og of- drykkju eru engan veginn skörp, og að í einstökum tilfellum getur verið erfitt að ákveða, hvort um ofdrykkju sé að ræða eða ekki. Hins vegar leikur enginn vafi á um, að þegar drykkjumenn eða venzlamenn hans sjá sig til- neydda að leita hjálpar lækna eða annarra vegna áfengis- neyzlunnar, þá er í óefni komið. Engar skýrslur eru fyrir hendi um fjölda áfengissjúklinga í Reykjavík. Það mun þó álit flestra að allmikið kveði að of- gengið svo vel frá heimili mínu, að engin konungshöll getur verið notalegri. Hér á ég gott meðan hínar harðúðgu hrynur vetrar- ins eru að ganga um garð. En þið, hinar miklu skepnur guðs og andlegir risar, heimtið að vistir ykkar séu margseyddar með vissum smekk, lit og lögun, annars snertið þið ekki við þeim; bezt er að þær séu bornar fram á dýrum skrautskálum. Til þess að fullnægja þessum kröfum verður að leita fanga heimsskautanna á milli á sjó og landi. Húsakynni ykkar mann- anna eru svo úr garði gerð, að þau verður að hita með báleld og ærnum kostnaði og fyrirhöfn til þess að þið króknið ekki úr kulda. Alt þetta og margt annað af ímynduðum þörfum knýr menn til þess að vera á sífeldu stökki. Áhyggjur eru svo margar og miklar af þessu, að það er eins og menn gangi undir þyngsla- byrðum á bak og brjóst, með blý- skó á fótum.“ Hvað sem mönnum annars kann að finnast um ræðu íkorn- ans, mun ljóst, að það er mikil list að kunna að lifa, án þess að baka sér óþarfa fyrirhöfn og mæðu. ' Það hefir verið sagt: „Sá er ekki ríkur, sem mikið hefir, heldur hinn, sem lætur sér nægja það sem hann hefir.“ Það er alt af hætta af hilling- um og innbyrlingum út af far- sæld manna, sem virðast baða í rósum, en, sem ef til vill ganga undir brugðnu og hangandi sverði. Sigling flestra í þessum heimi er með stöfuðum eða röndóttum seglum; þótti fara vel á því til forna, og er ef til vill enn svo. Að horfa aðeins á dökku rand- irnar er ekki holt; það leiðir til ama og þunglyndis. Ekki er heldur gott að ana áfram í ein- tómri glaðværð og hugsunar- leysi. „Þar fíflskuhlátur hvellur um hjörtun vitnar tóm.‘r „Guð það hentast heimi fann, það hið blíða blanda stríðu. Alt er gott sem gjörði hann.“ Svo lærist mönnum bezt að meta ljósið, að þeir hafi haft kynni af myrkrinu. drykkju hér. Annar okkar, A. G., hefir nýlega birt tölur um drykkjusjúklingafjölda þann, er leitaði eða leitað var %rrir til hans og Áfengisvarnarnefndar Reykjavíkur á árinu 1951. Reyndust þeir 342 að tölu. Voru þeir allir, að fáeinum undan- teknum, úr Reykjavík. Þá hefir fyrstu þrjá mánuði þessa árs verið leitað til A. G. vegna 51 drykkjusjúklings, sem ekki voru á sjúklingaskrá 1951. Það gefur að skilja, að ekki eru með þess- um tölum öll kurl til grafar komin. Við teljum, að áætla megi tölu þessara sjúklinga í Reykja- vík einhvers staðar á milli 500—1000. Af þessum tölum má álykta að full þörf sé aðgerða, og er það álit okkar, að þær verði ekki nógu öflugar án beinnar aðstoð- ar af hálfu hins opinbera. Við lítum á þetta sem mikilvægt heil brigðismál, sem hafi víðtæka fé- lagslega þýðingu. Sjúkdómur sá, er hér greinir, snertir ekki að- eins sjúklingana sjálfa, heldur skaðar hann, öðrum sjúkdómum fremur, einnig fjölskyldur þeirra og þjóðfélag í heild. Við teljum rétt að taka fram að þær tillögur, sem við munum, leggja fram hér á eftir, byggjast að verulegu leyti á áliti ýmissa erlendra lækna, sem ritað hafa um áfengisvandamálið á síðari árum. f læknismeðferð drykkju- manna hefir meir og meir gætt tilhneigingar til að láta þá ekki fyrr en í síðustu lög dveljast langtímum saman á hælum. Sú meðferð þykir ekki hafa reynst vel og hefir þá augljósu ókosti FJAÐRAFOK Á Þingvöllum 1874 Þegar sást til konungs að aust- an, raðaði fólkið sér beggja meg- in við veginn, svo að hann gæti riðið á milli. Þegar ég heyrði hróp, fór ég út til að reyna að sjá og heyra það, sem ég gæti. Ég kom mátulega til þess að sjá hestinn fælast undir konungi, hræddan við ópin og ósköpin. Geir gamli Zoega hljóp af baki og var svo heppinn að ná í taum- ana og stilla hestinn, til allrar hamingju, og mikið var hann fljótur. Konungur gaf honum silfurkaffikönnu. Minna gat það varla verið. En það er satt að hann fékk líka medalínu, og hana úr gulli, meira að segja. —(Guðrún Borgfjörð) Flosagjá Flosagjá heitir gjáin austan- vert við Lögberg, sem svo var oftast kallað í minni tíð. En af því að Nikulásarpyttur er í sömu gjánni, mun hún einnig, eftir að hann drap sig í honum 1742, hafa verið kölluð Nikulásargjá. Ég veit ekki betur en að gjá þessi héti Flosagjá, neðan að og upp úr, einnig bak við Lögberg, hvaðan gjáin, sem er að vestan- verðu við Lögberg, er klofning- ur, á hverjum ég vissi ekkert nafn. (Séra Einar S. Einarsen á Þingvöllum. — f Flosagjá er Nikulásarpyttur þar sem nú er farið að nefna Peningagjá). Jarðskjálftarask á Þingvöllum í jarðskjálftanum 1789 sökk landið milli Almannagjár og Hrafnagjár um 4 álnir, sem mæla mátti á eftirlátnum merkjum svarðlínunnar, hvar hún hafði áður legið eftir berginu. Þá sökk cg líkt bil í Henglinum útundan Hestvík í Þingvallavatni, er menn tóku sem merki þess, að Kaldá rynni þar undir úr vatn- inu. Þá hvarf urriiaveiðin úr gjánni Silfru, sem liggur 4 út- suður til vatnsins norðan við Lambhagann suður undan bæn- um, í hverri veiðin var lögð jöfn við snemmbæra kú. Þá hvarf og murtuveiði af Leirunni niður undan Miðmundartúninu, sem var lögð við 2 snemmbærar kýr. Þá gleikkaði einnig Flosahlaup á Flosagjá, er hrundi úr austur- bakka hennar, eins og einnig hrundi úr fleiri gjám. Sjálfsagt hefir vegurinn verið gamall aust- an yfir allt hraunið að Þingvalla- túni. En strax eftir jarðskjálft- ann 1879 lagðist vegurinn um túnið, og traðirnar ásamt tún- garðinum hlóð í hjáverkum sín- um á tveimur árum úr^grjóti er hann tók upp úr túninu, Jón sál. Þormóðsson, sem var vinnumað- ur stakur að dygð og atorku, á Þingvöllum hjá tveimur prest- um frá 1750—1821 og deyði á Meðalfelli hjá séra Einari sál. Pálssyni. Sléttaði Jón túnið að nokkru leyti um leið og hann tók grjótið upp úr því. (Séra Einar S. Einarsen) —Lesb. Mbl. að vera þjóðfélaginu kostnaðar- söm og sjúklingunum óþægileg vegna frelsisskerðingarinnar. Þá mun það nú almennt viðurkennt, að geðveikrahæli sé ekki heppi- legur vettvangur til meðferða á þessum sjúklingum, fyrst og fremst vegna rótgróinnar andúð- ar fólks á dvöl á slíkum hælum. Þótt slík andúð sé ekki skynsam- leg, er hún engu að síður rík í huga almennings og verður naumast upprætt í náinni fram- tíð. Þetta er staðreynd, sem verð- ur að taka tillit til þegar ráð- stafanir til drykkjumannahjálp- ar eru gerðar. Viðleitnin hefir á síðari tím- um beinst méir og meir að því, að hefta sem minnst frjálsræði drykkjusjúklinganna meðan á læknismeðferð stendur. Er þeim þá veitt læknisleg og félagsleg hjálp í sérstökum stöðvum, sem þeir leita til reglubundið eftir læknisákvörðun hverju sinni. Kostir þessarar meðferðar eru þeir, að drykkjusjúklingurinn er Framhald á bls 8 —S. S. C. Ðrykkjumannahæli

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.