Lögberg - 03.07.1952, Blaðsíða 7
íjÖGBERG, FIMTUDAGIínN. 3. JÚLÍ, 1952
7
íslands á leiðum loftsins
1 grein þessari segir Örn Ó.
Johnson, í siuitu máli, sögu
ílugmálanna á íslandi frá
byrjun lil dagsins í dag.
FYRIR rúmum 48 árum, 17. des-
ember 1903, tókst tveimur
Bandaríkjamönnum, W r i g h t -
bræðrunum, að hefja sig til
flugs. Höfðu þeir sjálfir smíðað
flugvél sína. Þeir flugu tvisvar
þennan dag og tókst öðrum
þeirra að halda sér á flugi í 59
sekúndur í einu. Þessi atburður
er talinn vera upphaf fluglistar-
innar og Wright-bræðurnir því
feður hennar.
Sem að líkum lætur, vakti
þessi atburður mikla athygli um
heim allan og varð til þess að
þeim fjölgaði stórum, sem fóru
að glíma við smíði flugvéla, og
brátt rekur hvert metið annað, í
hraða, vegalengd og flughæð.
Þegar heimstyrjöldin fyrri skell-
ur á, hafa hernaðarþjóðirnar
komið auga á flugvélina sem
hernaðartæki og keppast við að
koma sér upp flugflota, sem sé
fær um að bjóða andstæðingun-
um byrginn. Hærra og hraðar,
hærra og hraðar en óvinurinn,
verður það takmark, sem hern-
aðarþjóðirnar setja sér.
Þegar þetta kapphlaup stríðs-
þ j ó ð a heimsstyrjaldarinnar
fyrri er háð, er ekki enn komið
til sögunnar það, sem við köll-
um flugsamgöngur. En þegar
styrjöldinni 1 ý k u r er þess
skammt að bíða, að sá þáttur
flugsins hefjist. Stríðið skilur
eftir mikinn aragrúa flugvéla,
sem nú er ekki lengur þörf fyr-
ir ,auk fjölda æfðra flugmanna
og vélvirkja. Margir þessara
manna hafa þegar komið auga
á þá framtíðarmöguleika, sem
flugtæknin hefir upp á að bjóða
og áður en langt er liðið frá
Btríðslokum eru fyrstu flugfé-
lögin stofnuð. Þau eru ekki stór-
vaxin í byrjun — nokkrir menn
slá sér saman um kaup og rekst-
ur einnar flugvélar, sem hefir
sæti fyrir einn eða tvo farþega,
selja skemmtiflug og annast
stuttar leiguferðir. En það sann-
ast hér, sem svo víða annars
staðar, að „mjór er mikils vísir.“
Fram til þessa hafði flugið
verið okkur íslendingum óvið-
komandi. Við horfðum á úr
fjarlægð. Myndi víst engan
undra þó svo hefði verið lengur
en raun varð á, en sá framfara-
hugur, sem árin eftir aldamótin'
skópu hjá þeirri kynslóð, sem á
þessum árum lyfti hverju Grett-
istakinu öðru stærra, megnaði
einnig á þessu sviði að hvetja
menn til dáða. Árið 1919 stofna
nokkrik Reykvíkingar, undir
forustu G a r ð a r s Gíslasonar,
'Halldórs Jónassonar og fleiri
góðra manna, Flugfélag íslands
h. f., hið fyrsta af þremur félög-
'um, sem þetta nafn hafa borið.
Þeir festa kaup á landflugvél af
svokallaðri AVRO-gerð. Flug-
vélin getur flutt einn farþega,
auk flugmannsins, og benzín-
forði hennar nægir til þriggja
klukkustunda flugs.
Þann 3. september árið 1919
svífur flugvél í fyráta sinn yfir
íslandi. Stjórnandi hennar er
Cecil Faber, höfuðsmaður í
lofther Breta, en flugvélin er
eign Islendinga sjálfra. Hún
rennir sér varlega upp frá Vatns
mýrinni við Reykjavík og svein-
ar nokkra hringi yfir höfuðstað-
num. Mikill mannfjöldi hefir
safnast saman við „flugvöllinn“
til að sjá þetta furðuverk svífa
um himingeiminn 1 kvöldskin-
inu.
Næstu vikurnar er flugvélin
alloft á sveimi yfir nágrenni bæ-
jarins, en í lok septembermán-
aðar ér hún tekin í sundur, til
geymslu yfir veturinn. Flugvél-
ar þeirra tíma voru ekki ætlað-
ar til ferða yfir vetrarhjarn ís-
lands.
Næsta sumar, 1920, er hafizt
handa um flugferðir að nýju.
Nýr flugmaður hefir verið feng-
inn til landsins, Frank Fredrick-
son, Vestur-lslendingur. Verk-
efnið er ekki fjölþætt, hringflug
yfir Reykjavík og nágrenni, en
margir verða til að kaupa sér
far í þessum ferðum. Gerð er til-
raun til að fljúga til Vestmanna-
eyja, en vegna hvassviðris við
eyjarnar neyðist flugmaðurinn
til að snúa við.
Taprekstur og fjárskortur
neyðir félagið til að gefast upp
og haustið 1920 er flugvélin seld
úr landi.
Þótt þessi fyrsta tilraun til að
koma hér á flugsamgöngum mis
tækist, var hún á margan hátt
hinn merkilegasta, og þess má
geta, að ef félaginu hefði auðn-
ast að starfa fram á þennan dag,
þá væri það nú annað af tveirn
elztu flugfélögum veraldar. —
Elzta félagið, Det-Danske Luft-
fartselskab, var stofnað um líkt
leyti, en það næst elzta, hollenz-
ka flugfélagið K. L. M., var stofn
að árið 1920.
Þégar þetta fyrsta íslenzka
flugfélag hætti störfum líður
alllangur tími þar til hafizt er
handa að nýju um að koma á
flugsamgöngum hér á landi.
Sumarið 1924 koma hér við
þ r j á r amerískar flugvélar í
hnattflugi og ein ítölsk. Vafa-
laust hefir koma þessara er-
lendu flugvéla hingað til lands
orðið til að vekja athygli lands-
manna á þeirri þróun flugsins,
(sem orðið hafði síðan á fyrstu
árunum eftir heimsstyrjöldina
fyrri, en ennþá líða nokkur ár
þar til „Súlan“ og “Veiðibjall-
an“ verða skáldum að yrkisefni.
Þann 1. maí 1928 er lugfélag
íslands h. f. stofnað öðru sinni.
Nú er það hugsjónamaðurinn
Alexander Jóhannesson prófess-
or, sem hrindir málinu af stað,
og af sínum alkunna dngnaði.
Sumarið 1928 er starfrækt ein
fjögra farþega JUNKERS sjó-
flugvél, en næstu þrjú sumur
eru það útlendingar, sem annast
bæði flugstjórn og eftirlit flug-
vélanna en síðar taka Islending-
ar við þessum störfum, flug-
mennirnir Sigurður Jónsson og
Björn Eiríksson og vélamennirn
ir Gunnar Jónasson og Björn
Ólsen.
I
Þetta félag, Flugfélag íslands
nr. 2, starfar í fjögur sumur,
1928—1931, en verður þá að
hætta vegna fjárhagsörðugleika.
Síðasta sumarið, sem félagið
starfaði, varð það fyrir því ó-
happi að báðum flugvélum þess
hvolfdi við legufærin, annarri á
Reykjavíkurhöfn en hinni á
Akureyrapolli. Áttu þessi óhöpp
mikinn þátt í því að félagið
neyddist til að hætta störfum.
Rekstur félagsins var all um-
fangsmikill þau ár, sem það
starfaði. Flugvélar þess flugu
um 180 þús. km., lentu á 40—50
stöðum víðs vegar við landið og
með þeim ferðuðust um 2600
farþegar. ----- Heildarrekstur-
kostnaður félagsins mun hafa
numið um hálfri milljón króna.
Nú verður aftur hlé á flug-
ferðum hér á landi um nokkurra
ára bil. Ýmsir erlendir flug-
menn leggja þó leið til íslands á
ferðum sínum um Norður At-
lantshafið. Nöfn eins og Ahren-
berg, Balbo, Cramer, Lindbergh
og von Gronau eru minnistæð
flestum íslendingum, sem náð
hafa þrítugsaldri. — Hingakoma
þessara frægu manna hefir vafa-
lítið gert sitt til að vekja, eða
a. m. k. halda við, þeim áhuga
fyrir flugtækninni, sem nú var
að vakna hja íslenzkum æsku-
mönnum.
3. júní er Flugfélag Akureyrar
h. f. stofnað á Akureyri. Hvata-
maður að stofnun þess var Agn-
ar Kofoed-Hansen, þá nýkom-
inn heim að loknu flugnámi í
Danmörku. Hann mun fyrst
hafa reynt að koma af stað slíku
félagi í Reykjavík en Reykvík-
ingar verið vantrúaðir á mögu-
leikana með tilliti til fyrri
reynslu.
Flugfélag Akureyrar hóf starf
semi sína 2. maí 1938 með einni
3—4 farþega sjóflugvél. Rekstur
félagsins gekk vonum framar og
verkefnin fóru ört vaxandi. —
Snemma árs 1940 varð það ó-
happ að flugvélinni hvolfdi á
Skerjafirði og laskaðist hún svo
mikið að viðgerðin tók marga
mánuði. Var þá ákveðið að festa
kaup á annarri flugvél af sömu
gerð en til þess þurfti aukið
fjármagn. Var þess aðallega afl-
að í Reykjavík og var aðsetur
félagsins flutt til Reykjavíkur
og nafni þess breytt í Flugfélag
íslands h. f.
Starfsemi félagsins jókst nú
hröðum skrefum. Árið 1942 eign
aðist félagið fyrstu tveggja
hreyfla flugvélina (8 farþega),
og árið 1944 fyrsta Catalina flug
bátinn (22 farþega).
Árið 1944 er stofnað hér ann-
að flugfélag, Loftleiðir h. f. og
byrjar það starfsemi sína með
einni 4ra farþega sjóflugvél.
Strax á sama ári keypti félagið
einnig tveggja hreyfla Grumm-
an flugbát.
Bæði félögin, Flugfélag ís-
lands og Loftleiðir, auka svo
starfsemi sína jafnt og þétt. F. 1.
byrjar millilandaflugferðir með
Catalina flugvél sumarið 1945 og
með 4ra hreyfla leiguflugvélum
19 6. Loftleiðir eignast Sky-
master-flugvélarnar „Heklu"
1947 og „Geysi“ 1948 og F. í.
kaupir „Gullfaxa“ sama ár.
1 dag eiga þessi tvö félög sam-
tals 16 flugvélar, eina Skymaster
5 Dakota, 5 Catalina, 2 Grumm-
an og 3 minni. Samanlagt geta
flugvélar þessar flutt um 290
farþega.
Félögin halda uppi ferðum
milli Reykjavíkur og 25 staða
innanlands og auk þess til Prest
wick, London, Oslo og Kaup-
mannahafnar.
S.l. sumar unnu um 160 manns
hjá íslenzku flugfélögunum og
mun skipting starfskreina hafa
verið þannig:
Áhafnir flugvélanna ......... 38
Vélvirkjar ................. 46
Skrifstofu- og
afgreiðslustörf 36
Ýms önnur störf 40
Starfsemi félaganna hefir auk
ist hröðum skrefum ár frá ári.
Nægir að benda á nokkrar tölur
þessu til sönnunar:
Arið 1941 voru fluttir 1.062
farþegar en nál. 42 þús. árið 1951
Árið 1941 voru fluttar um 10
smál. af vörum en 1.010 árið 1951
Árið 1941 var flutt um 1%
smál. af pósti en um 115 smál
árið 1951.
Árið 1941 námu brúttótekjur
um 215 þús. kr. en sennil. um 20
millj. kr. 1951.
Þessar tölur sýna, svo ekki
verður um villst, að flugið er
orðinn allverulegur þáttur í
samgöngumálum þjóðarinnar.
Er nú svo komið, að engin þjóð
notar flugvélar sem samgöngu-
tæki í jafn ríkum mæli og við
íslendingar, sé mikað við íbúa-
tölu landsins. Ef til vill var
þetta markmiðið, sem hinir
framtakssömu 1 a n d a r vorir
eygðu, er þeir árið 1919, stofn-
uðu fyrsta íslenzka flugfélagið,
isem jafnframt var eitt þeirra
fyrstu, sem stofnað var í heim-
inum. Um það er mér ekki kunn
,ugt, en hafi svo verið, mætti það
vera þeim nokkur fróun, að
sjá það svo áþreifanlega sannað,
að enda þótt tilraun þeirra mis-
tækist, þá stefndu þeir þó í rétta
átt.
Þróun fluglistarinnar h e f i r
verið stórstíg, og nú er svo kom-
ið, að nálega 100 þús. manns ferð
ast á degi hverjum með flugvél-
um víðs vegar um heiminn.
Vöruflutningar samsvara því að
fluttar væru um 1150 smálestir
á degi hverjum milli Reykja-
víkur og Kaupmannahafnar og
póstflutningar um fjórðungi
þess magns.
Þetta eru stórar tölur, þegar
þess er gætt, hve ungt flugið er
að árum, en þess mun skammt
Lifir maðurinn brátt 150 ár?
Nýjustu blóðvatnstilraunir lofa
góðu um það
Rabbað við franskan lækna-
prófessor
PARIS 1 APRÍL
Einn af heitustu draumum
mannsins hefir ávallt verið sá,
að geta varðveitt æskublóma
sinn óskertan, og haft betur í
glímunni við Elli kerlingu.
Fræðaþulir fortíðarinnar hafa
brotið heilann, þar til hárin á
höfðum þeirra tóku á sig silfur-
gráan lit, um lífsins lyf, — elixir
vitae, er endurveitt gæti mann-
inum æsku hans og bernskufjör.
Plinius skýrir frá dularfullu lífs-
lyfi og Aristoteles skýrir í riti
sínu „Bók leyndardómanna" frá
uppskriftum og samsetningum
fjölmargra lyfja og áburða, er
veitt gætu manninum eilífan
æskublóma, ef rétt væri að farið.
Vísindi nútímans hafa einnig
tekið þátt í leitinni og slegist í
hópinn. Prófessor Serge Vornoff
lýsti því hátíðlega yfir að fyrri
heimsstyrjöldinni endaðri, að
hann hefði fundið uppsprettu
eilífrar æsku, með tilraunum
sínum er fólust í því að græða
kirtla úr öpum í mannlegan lík-
ama, en þær tilraunir runnu
fljótt út í sandinn, þar sem ár-
angurinn varð langt frá öllum
vonum, og yfrið minni en þeir
svartsýnustu höfðu spáð.
Nýjustu tilraunir
lofa góðu
Dr. E. N. Hervey frá Princeton
háskólanum í Bandaríkjunum
segir það skoðun sína, að lykill
ráðgátunnar liggi fólginn í því
hver sé hin innsta og fullkomn-
asta samsetning eggjahvítuefn-
anna, og rússneski prófessorinn
Bogomoletes skýrði svo frá árið
1938, að hann hefði uppgötvað
blóðvatn, sem gæti lengt manns-
ævina allverulega. Sjálfur dó
hann hlægilega ungur að árum,
aðeins 65 ára gamall.
En vísindin halda áfram rann-
sóknum sínum. Ameríski doktor-
inn og lífeðlisfræðingurinn
Thomas Gardner, heldur því
fram, að innan tíu ára finnist
lyf er fái varnað hrörnun manns
líkamans og segir að meðalaldur-
inn muni hæglega geta tvöfald-
ast. í Frakklandi er einnig unnið
að því af kappi miklu að finna
blóðvatn, er viðhaldi æsku í
æðum og sinni æviárin öll til
enda.
Rætt við vísindamann
Prófessor Henri Desoille er
einn þeirra frönsku lækna, sem
fylgjast af brennandi áhuga með
tilraunum þeim, sem fram fara
á þessu sviði, og blaðamaður
einn hitti hann að máli á Braus-
sais sjúkrahúsinu, þar sem hann
hafði rétt nýlokið morgunfyrir-
lestrunum og hafði nokkrar frí-
stundir aflögu, og spurði hann
frétta af nýjustu blóðvatnsrann-
sóknum í þessum efnum og
væntanlegum árangri af þeim,
oss dauðlegum mönnum til
huggunnar.
— Fyrst og fremst vil ég taka
það fram, að tilraunir þær, sem
fram hafa farið í blóðvatns-
rannsóknum í þessu skyni eru
enn á byrjunarstigi.
Blóðvatnið cyto-toxique lofar
þó góðu um farsælt áframhald
þeirra. Það er ekki einungis
mikilvægt við það að lengja lífið,
heldur hefir einnig komið í ljós,
að það hefir mjög læknandi á-
hrif á fjölda sjúkdóma, m. a.
margskonar bólgu og ígerðar-
sýkla, geðsjúkdóma, heyrnar-
leysi, krabbameinsvöxt o. fl.
En allt þetta er enn á til-
raunastigi og ógerlegt er að
segja nokkuð með fullri vissu
enn sem komið er.
— Ég hef heyrt, segir blaða-
maðurinn, að cyto-toxique blóð-
vatnið sé unnið úr líkömum
ungra manna, sem hafa farizt á
voveiflegan hátt.
— Alveg rétt. Blóðvatnið er
unnið úr beinmergnum og auð-
veldast er að vinna það úr merg
ungra hraustra manna er látizt
hafa af slysförum. Að því loknu
er efnið látið liggja í saltblöndu
nokkra hríð og því næst er því
sprautað inn í hesta, eða eins og
við fremur kjósum hér 1 Frakk-
landi, inn í kanínur, og síðan er
blóðvatnið unnið úr blóði þess-
ara dýra. Þegar það er gefið inn
í smáum skömmtum hefir það
örvandi áhrif á vöxt bandvefs-
ins í mannslíkamanum.
Getum við orðið
150 ára gömul?
— Þér nefnið í blaðagrein, að
manninum ætti að vera gjörlegt
að ná mjög háum aldri, e. t. v.
150 árum.
— Vísindamenn nútímans
íeyna ekki að finna lífslyf er
veiti manninum eilífa æsku.
Hlutverk þeirra er að finna eitt-
hvert það ráð, er endurvakið
geti og viðhaldið lífskrafti frum-
anna eftir lífeðlisfræðilegum
(biokemiskum) leiðum með það
takmark fyrir augum að safna
og auka styrk mannslíkamans
og ná á þann hátt stöðugu og
öflugu samræmi og viðhaldi
allra líffæranna og mannslíkam-
ans alls.
Ég lít svo á, að hægðarleikur
sé, að með stöðugum tilraunum
með cyto-toxique efnið takist
okkur að auka meðalaldur
mannsins upp í 150 ár. Ekki er
hægt að vísa þessari kenningu
heim til föðurhúsanna með
nokkrum rökrænum aðferðum,
sökum þess að iðulega heyrum
við um fólk, sem er 105 eða 110
ára gamalt, og er því tiltölulega
auðvelt að lengja ævina enn
meir.
Æska og líkamsfegurð
í heila öld
— Ég hefi heyrt því fleygt,
*segir blaðamaðurinn enn, að nú
þegar hafi náðst góður árangur
við notkun hins nýja blóðvatns,
og að konur,- sem hafi verið
komnar yfir fimmtugt hafa við
blóðvatnsinngjöf aftur orðið
færar til þess að geta börn.
— Eins og ég hefi þegar tekið
fram, eru tilraunir þessar enn
á byrjunarstigi og við þorum því
ekki að draga neinar almennar
reglur af furðu góðum árangri
einstákra tilrauna okkar. Ég get
aðeins fullyrt , eins og sakir
standa, að við höfum reynt hin-
ar ýmsu blóðvatnstegundir á
karlmönnum og konum með
hinum prýðilegasta árangri.
— Viljið þér þá segja, að kona
framtíðarinnar muni geta varð-
veitt æsku sína og fegurð, allt
þar til hún verður hundrað ára
að aldri?
— Certainement! Minnist þér
bara Ninon de Lenclos, sem var
fögur og heillandi, þar til hún
var komin fast að níræðu. Til-
raunir með hið nýja blóðvatn
munu segja til um hvort okkur
tekst í náinni framtíð að lengja
lífsferil konunnar og þar með
alla líkamsstarfsemi hennar sem
eiginkonu og móður. Ef þessar
til raunir takast eftir vonum þá
getur maðurinn hætt að telja
aldur sinn í árum, sem hingað
til — maðurinn er þá aðeins jafn
gamall og bandvefurinn í líkama
hans.
—Mbl., 15 maí
Business College Education
In these modern times Business College
Education is not only desirable but almost
imperative.
The demand for Business College Educa-
tion in industry and commerce is steadily
increasing from year to year.
Commence Your Business TrainmgImmediately!
For Scholarships Consult
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
PHONE 21804
695 SARGENT AV *. wTNNIPKG
LL
BATOH'S
ttoUM#}
rmAAA\\\\,
W>fltunt
I/
f//
'hliL
að bíða að þær marg-faldist.
Fluginu má líkja við fjallgöngu-
manninn, sem alltaf eygir hærri
hjalla fram undan. Við erum
enn við rætur fjallsins.
Af þessu litla yfirliti má sjá,
að þróun flugsins á íslandi hef-
ur verið stórstíg og furðulega
markviss.
AKRANES, 1952
<7
\=££=^="\'-
i === 1 i ^
dillÉ mm i i
%
f€i
|V>
blaðsíður af óviðjafnanlegum
kjörkaupum handa allri
fjölskyldunni Tryggið yður hlut-
\I l*2K r ( |_ deild í þessum
▼ 61*110 I T3BKO TIO miklu kjörkaupum
o'T. EATON C?.™
WINNIPEG CANADA
EATON ORDER OFFICES IN MANITOBA
Brandon • Dauphin • Flin Flon • Fort Churchill • Portage la Prairie
The Pa$ • /n Wmniptg, Htoni tr riat th» Salts t— fci Thi Mail Ordtr tldgu