Lögberg - 08.01.1953, Page 1

Lögberg - 08.01.1953, Page 1
Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil • Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs Mll—JUIM 66 ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 8. JANÚAR, 1953 NÚMER 2 Fréttir fró ríkisútvarpi íslands Verkfallinu, sem hófst 1. des- ember s.l. og varð umfangs- mesta verkfall, sem háð hefir verið hérlendis, lauk í gær- morgun og hófst þá vinna þegar. Verkfall höfðu gert milli 50 og 60 verkalýðsfélög. Aðalkrafa verkfallsmanna var upphaflega 15% hækkun á grunnlaun, en það kom fljótt í ljós og var því lýst yfir í greinargerð að skoðun verkalýðsfélaganna væri sú, að aukinn kaupmáttur launanna væri æskilegasta leiðin til að bæta afkomuskilyrði vinnandi fólks. Með hliðsjón af þessu lagði ríkisstjórnin fyrir sátta- nefndina í vinnudeilunni tillög- ur til lausnar, þar sem hún lof- aði að beita sér fyrir því, að lækkað yrði verð á tilteknum nauðsynjavörum, m. a. mjólk, kaffi, sykri og kartöflum, þannig að framfærsluvísitalan lækkaði um rúmlega 5 stig, enn fremur myndi ríkisstjórnin beita sér fyrir lækkunum á flutnings- gjöldum til landsins um 5%, lækkun á benzíni um 4 aura á lítra og varðlækkun á ýmsum nauðsynjum. Lækkun vísitölu skyldi ekki hafa áhrif til lækk- unar á kaupi fyrr en lækkun vísitölunnar næmi meira en 10 stigum og þá einungis að því leyti, sem lækkunin yrði um- fram 10 stig. Þá var enn fremur heitið auknum fjölskyldubótum, um, þannig að bætur yrðu greiddar við annað barn, en nú eru þær ekki greiddar fyrr en við fjórða barn. Ávinningur hjóna, sem eiga þrjú börn, myndi þá nema rösklega 1400 krónum. Tillögur þessar voru ræddar á fundum sáttanefndar og samninganefnda deiluaðilja, en samninganefnd verkalýðsfé- laganna taldi ekki gengið nógu langt til móts við kröfur verka- manna. Sáttanefndin breytti þá tillögunum nokkuð og stefndi síðan samninganefndum deilu- aðilja á sinn fund á fimmtudags- kvöldið og stóð sá fundur alla nóttina og fram yfir hádegi og voru þá undirritaðir samningar b^eð þeim fyrirvara að félögin, sem deiluaðiljar voru, sam- Þykktu. Grundvöllur þessara samninga er sá, sem áður var getið, en að auki hafa borgar- stjórinn í Reykjavík og niður- jöfnunarnefnd þar heitið ráð- stöfunum til lækkunar útsvörum af lágtekjum, enn fremur verði orlof 15 virkir dagar eða 5% af kaupi, en var áður 4%. Á grunn- laun, sem eigi eru hærri en 1830 krónur á mánuði, greiðist vísi- töluuppbót samkvæmt kaup- gjaldsvísitölu að viðbættum 10 stigum, — á grunnlaun, sem eigi eru hærri en 2200 kr. á mánuði skal greiða fulla vísitöluuppbót. 77 Samningurinn gildir til 1. júní n.k. og er uppsegjanlegur með eins mánaðar fyrirvara. — Þegar kunnugt varð, að samn- mgarnir hefðu verið undirritað- lr’ boðuðu félögin, er að deil- Unni stóðu, fundi til atkvæða- greiðslu um málið, og var út- jarpi haldið áfram í fyrrakvöld am yfir dagskrártíma til þess úrslir^K Væri að tilkynna fólki ^eirrar atkvæðagreiðslu. mvndVar*ráð fyrir Því’ að unnt um í að aflýsa verkfallinu þá lögin V° r>lð’ þar eð stærstu fé- Samþykkt7akjavík höfðu þegar gnæSndi mTrlhfuT3 ^ ^ Pat hó oa . luta» en ekki g 4 þ° samnmganefnd verka- 20. DESEMBER 1952 lýðsfélaganna aflýst verkfallinu fyrr en klukkan sex í gær- morgun. Ráðstafanir höfðu verið gerðar til að hefja þegar vinnu, enda ærið að starfa, ekki sízt við höfnina, þar sem fjöldi skipa liggur og hefir beðið afgreiðslu í marga daga. í skipum Eim- skipafélags íslands munu til dæmis vera um 10.000 lestir af vörum, og mikið af varningi sem komast átti til annarra hafna landsins frá Reykjavík fyrir jólin mun ekki komast á áfanga- stað fyrr en milli jóla og nýjárs eða eftir hátíðirnar. ☆ Alþingi frestaði fundum sín- um á föstudaginn var til 12. janúar næstkomandi. ☆ Dómsmálaráðuneytið hefir á- kveðið, að fella skuli niður frá áramótum öll leyfi til áfengis- veitinga á samkomustöðum sam- kvæmt 17. grein áfengislaganna. Jafnframt hefir ráðuneytið á- kveðið að beita ekki heimild þeirri, sem dómsmálaráðherra er veitt í 11. grein áfengislaganna til að leyfa einu veitingahúsi í Reykjavík veitingaleyfi á áfeng- um drykkjum og hefir því frá 1. janúar að telja afturkallað leyfi það til vínveitinga að Hótel Borg, sem veitt var í ársbyrjun 1930. Loks hefir ráðuneytið gef- ið út auglýsingu um gildistöku laganna frá 1943 um héraða- bönn. — Þess hefir áður verið getið í fréttum, að í haust var lagt fram á þingi frumvarp að nýrri áfengislöggjöf, þar sem gert var ráð fyrir talsverðum breytingum á núgildandi lög- gjöf, en frumvarp þetta náði ekki fram að ganga. ☆ Á ráðherrafundi Efnahags- samvinnustofnunar Evrópu, sem haldinn var í París um daginn, flutti ólafur Thors atvinnu- málaráðherra ræðu og skýrði frá þeim örðugleikum, sem löndun- arbann brezkra útgerðarmanna hefir valdið Islendingum. Rakti ráðherrann sögu landhelgismáls- ins í stórum dráttum og skýrði málstað og sjónarmið íslend- inga. Brezki fulltrúinn, Mr. Haudling, talaði fyrir hönd Breta og svaraði Ólafur Thors síðan þeirri ræðu. ☆ Um fyrri helgi snjóaði tals< vert austanlands og er nokkur snjór um norðausturhluta lands- ins, en sunnan lands og vestan er víða enginn snjór í byggð. Áætlunarferðum bifreiða er haldið uppi milli Akureyrar og Reykjavíkur. Talsvert frost var fyrrihluta vikunnar, sem leið, en í gær var hiti víðast yfir frost- mark. — Mánuðina september, október og nóvember var einu stigi hlýrra miðað við landið í heild, en í meðalári á þeim tíma árs. Hlýjast var í október eða tveimur stigum hlýrra en í þeim mánuði í meðal ári. September- mánuður var þurrviðrasamur, október vætusamur og mildur og nóvember þurrviðrasamur og einkenndu miklar stillur þann mánuð. Úrkoma var meiri en í meðallagi á Vestfjörðum á þessu tímabili en annars staðar var hún minni en í meðallagi, þótt miklar rigningar væru í október. ☆ Endurvarpsstöðvarnar nýju í Höfn í Hornafirði og á Akur- eyri byrjuðu reglubundnar próf- anir í gærkveldi. Stöðin í Höfn endurvarpar daglega dagskránni frá Reykjavík frá hádegi og Framhald á bls. 5 Ægilegt slys í hafnarborginni Valparaiso á Chile kviknaði í vöruhúsi á nýj- ársdag, og týndu þar að minsta kosti fimmtíu og tveir menn lífi. Vöruhúsið var ríkiseign, er vegamálastjórnin hafði umráð yfir og var meðal annars geymt þar allmikið af sprengiefni; or- sakir eldsvoðans eru enn eigi kunnar þrátt fyrir ýtarlega rann sókn af hálfu þess opinbera; grunur leikur þó á, að brennu- vargar hafi verið valdir að til- verknaðinum. ## ELDRAUNIN ## ný skáldsaga eftir Jón Björnsson komin út Þessa dagana er að koma á markaðinn ný skáldsaga eftir Jón Björnsson rithöfund. Heiti hennar er „Eldraunin“ og hún er látin gerast á 17. öldinni — öld galdramálanna. Þetta er allstór bók, eða um 300 bls. í meðal stóru broti. Bókinni er skipt í nítján kapítula og eru fyrir- sagnir þeirra sem hér segir: Hjarta landsins, Á Öxarár- þingi, Galdrabrenna, Ræða höf- uðsmannsins, í búð lögréttu- mannsins, Semingur í Nesi, Vandamál lögréttumannsins, Á sýslumannssetrinu, Förukonan, Frá séra Gils á Kálfafellsstað, Hjálmar á Hervararstöðum, At- burðurinn í kirkjunni, öfl ann- ars heims, Ráðagerðir, Héðan og handan, Freistingin, Aðför að Hjálmari, Óvænt tíðindi, Samn- ingur, Gögnin brennd, „Ég veit að mín bíða þung örlög“, Eið- takan, Uggvænlegt útlit, „Holds- ins lyst“, Þorlákur og Sturla, Lautinantinn, Hýðingin, „Eldur Helvítis", Aftur á Öxnarárþingi. Fá tímabil í sögu þjóðarinnar eru óhugnanlegri í minningu eftirtímans en galdrabrennuöld- in. Sagan fjallar um viðhorf al- þýðufólks gagnvart galdramálun um og undanbrögð valdsmanna í afskekktu héraði til að komast hjá að hlýðnast galdratilskipun- um hinna erlendu yfirboðara. Sagan er atburðarík og litauðug. Vandamál hins unga sýslumanns er einnig brennandi vandamál nútímamanna. í persónu sýslu- manns sameinast ýmsir beztu kostir fólks þess, sem hann er vaxinn upp á meðal, er hann einbeitir sér gegn ofsóknum valdsins. Mun höfundurinn hafa í hyggju að rekja sögu hans lengra áfram í nýju verki. Jafnframt því að „Eldraunin“ er spennandi og dramatísk, þar sem ljós og skuggi þessarar ald- ar kemur greinilega fram, vekur hún máls á alvarlegu málefni, sem varðar hvern einasta mann. Sagan fer því langt út fyrir hin tiltölulega þröngu tímatakmörk sín, og sá boðskapur, sem hún flytur, er boðskapur mannúðar og skilnings, en þetta tvennt hefir lengstum átt fremur erfitt uppdráttar. Verður bókin óefað kærkomin hinum mörgu lesend- um skáldsagna höfundarins. —Mbl., 7. des. Minningarorð um mætan samferðamann Með okkur Jóhannesi Kristófer Péturssyni tókst vinátta löngu áður en fundum okkar bar sam- an og án þess að línur í sendi- bréfsformi hefðu nokkru sinni farið okkar á milli; það var upp- runalega vegna kunningsskapar Jóhannesar við móður mína að við urðum vinir; móðir mín hafði numið klæðskurð í Kaupmanna- höfn og komið á fót saumastofu á Seyðisfirði. Jóhannes nam sams konar iðn í Noregi, og er hann að loknu námi kom til Seyðisfjarð- ar, mun móðir mín að einhverju leyti hafa leiðbeint honum varð- andi hina sameiginlegu iðn, og hann sagði mér, er við hittumst vestan hafs, að slíkt hefði orðið sér tíl heilla, og víst var um það, að um móður mína talaði hann jafnan með mikilli virð- ingu, og mér varð hann eins og hjartfólginn fóstbróðir. Jóhannes Kristófer var fædd- ur að Geirastöðum í Austur- Skaftafellssýslu hinn 8. dag aprílmánaðar árið 1875. For- eldrar Jóhannesar voru þau Pét- ur Jónsson á Geirastöðum og kona hans Ragnheiður. Hinn 16. marz aldamótaárið kvæntist Jóhannes og gekk að eiga Þorbjörgu Hóseasdóttur frá Jórvík í Breiðdal, mikilhæfa og þreklundaða konu, er reyndist honum ástríkur lífsförunautur og hlífði sér lítt; hún lézt í Win- nipeg 16. apríl 1945 og var jarð- sungin frá Sambandskirkjunni fjórum dögum síðar að viðstödd- um fjölmennum hópi þakklátra samferðamanna. Séra Philip M. Pétursson flutti hin hinztu kveðjumál. Þau Jóhannes og Þorbjörg fluttust vestur um haf árið 1903 og hófu búskap í Wynyard- bygðinni í Saskatchewan; farn- Jóhannes K. Pétursson aðist þeim þar hið bezta; þau nutu í héraði almennra vinsælda sakir háttprýði og frábærrar risnu; þau tóku veigamikinn þátt í íslenzkum mannfélagsmálum og hölluðust á sveif vinstri- manna varðandi kirkjumál. Eftir langan og annaríkan, búskaparferil að Wynyard flutt- ust þau Jóhannes og Þorbjörg til Winnipeg og í þeirri borg seig þeim báðum hinzti blundur á brá. Jóhannes var háttvís maður svo af bar, brosmildur og hlýr í viðmóti; hann kunni glögg skil á gildi bóka og braut vandlega til mergjar innihald þeirra; hugðarefni hans, langflest, lutu að eilífðarmálunum; hann var síleitandi að æðri markmiðum og hafði unun af leitinni hvað, sem fundinum leið; þó hygg ég að hann hafi tíðum fundið margt, sem þess var vert að finna. Jóhannes sagði mér, að í vísu þeirri, sem hér fer á eftir, væri fólgin trúarjátning sín: „Trúðu á tvent í heimi tign sem æðstá ber: Guð í alheimsgeimi, guð í sjálfum þér.“ Jóhannes sagði mér, að sér hefði þráfaldlega birst fagrar, vitranir í draumi, sem veitt hefði sér innsýn í dýrðarheima hinna æðri máttarvalda. Og nú er leitandi andi hans sigldur á breið og heillandi höf. Þeim Jóhannesi og Þorbjörgu varð sjö barna auðið og verða þau nú talin hér: Jörgen, bú- settur í Winnipeg, kvæntur Svönu Kristjánsson ættaðri frá North Dakota. Hóseas Björn, lézt á barnsaldri 1903. Björn Jósep Hóseas, bóndi í Wynyardbygð, kvæntur Svöfu Sigurðsson. Guð- björg (Mrs. Peters), er maður hennar tannlæknir í Boston. Ragnar Friðrik, kvæntur enskri konu, búsettur að Enfield, Conn. Petra Ingiríður (Mrs. Smith), hjúkrunarkona í Boston og Björn Kristinn, til heimilis að Autpost Island, North West Territories. Öll eru börn þeirra Jóhannesar og Þorbjargar hin mannvænlegustu og kippir þeim mjög í kyn til sinna ágætu for- eldra um drengskap og vinholl- ustu. Jóhannes Kristófer varð bráð- kvaddur að heimili sínu hér í borg þann 19. júlí síðastliðinn og var jarðsunginn frá Sam- bandskirkjunni 24. s. m. af séra Philip M. Péturssyni; mann- fjöldi mikill var viðstaddur kveðjuathöfnina, sem var hin virðulegasta um alt. Vertu sæll Jóhannes minn og sólin blessuð signi þig. Einar P. Jónsson Mitchell Hepburn látinn Síðastliðinn mánudag lézt í svefni á búgarði sínum í grend við bæinn St. Thomas í Ontario- fylki, Mr. Mitchell Hepburn, fyrrum forsætisráðherra fylkis- ins, 56 ára að aldri, mælskumað- ur mikill, hvikull í skoðunum og kappsamur um framgang þeirra mála, er hann beitti sér fyrir. Mr. Hepburn átti um hríð sæti á sambandsþingi áður en hann tókst á hendur forustu Liberal- flokksins í Ontario; hann var búhöldur góður og fékk einkum orð á sig fyrir hvítlauksrækt. Fylkisþingi stefnt til funda Forsætisráðherra Manitoba- fylkis, Mr. Campbell, hefir kunn- gert, að þingi hafi verið stefnt til funda á þriðjudaginn þann 13. þ. m., kl. 2.30 e. h. Ekki er þess vænst, að þingið eigi langa setu að sinni, þó vel megi vænta snarp^a umræðna. Fyrir þing verða lagðar uppástungur fylkis- stjórnarinnar um kaup á orku- verum Winnipeg Electric. Frændkona kvödd Til minningar um frú Oddnýju Vigfúsdóttur ekkju Ingólfs Gíslasonar læknis; hún lézt í Reykjavík þ. 18. nóvember s.l. Frænka góða! Fækkar enn fagurtrjám í ættarlundi; með þér eik að hauðri hrundi, há í skóg og prúð í senn. Frænka kæra! Kveðja mín kliðar þér í ljóði smáu, yfir djúpin himinháu; hugljúf geymist minning þín. —RICHARD BECK Franskur blaða- maður skrifar um ísland Síðastliðið sumar kom hingað til lands franskur blaðamaður, Michel Salmon, fréttaritari fyr- ir „Le Monde“, sem er eitt stærsta og áreiðanlegasta dag- blaðið, sem gefið er út í Frakk- landi. Dvaldist hann hér, ásamt konu sinni, í nokkurn tíma og ferðað- ist allvíða um land, m. a. norður til Mývatns. Um þessa ferð sína hingað hefir hann síðan skrifað sex greinar, sem birtust í blaði hans í síðastliðnum mánuði. Eru þær í senn lýsing á landi og þjóð, lifnaðarháttum okkar og at- vinnulífi. Ein greinanna fjallar sérstak- lega um fiskveiðar Islendinga og yfirstandandi deilu okkar við Breta út af landhelgismálinu. — Vekur hann þar m. a. athygli á því, að nýuppkveðinn dómur al- þjóðadómstólsins í Haag í sams- konar deilu á milli Norðmanna og Breta réttlæti greinilega mál- stað íslendinga. Auðsætt er af skrifum þessa franska blaðamanns, að hann hefir haft augu og eyru opin þann tíma, sem hann dvaldist hér. Hefir hann viðað að sér miklu efni og fróðleik um Is- land, sem hann fer yfirleitt satt og rétt með. Ein mynd birtist með hverri grein til prýðis og skýringar. —Mbl., 6. des. Þjóðþing Bandaríkjanna var sett á mánudaginn; forseti neðri deildar varð Joe Martin, en Robert A. Taft framsögumaður meirihluta í efri deild. Glæsilegur togari í smíðum Tímaritið Fishing Gazette, birti þann 16. desember síðast- liðinn mynd af togara, sem nú er í smíðum á Englandi að til- hlutan íslenzku ríkisstjórnarinn- ar; hefir togaranum verið valið nafnið Þorkell Máni; í umsögn, sem fylgir myndinni, er frá því skýrt, að þessi mikli og glæsi- legi togari, sem verður 185 fet á lengd, sé búinn öllum þeim fullkomnustu tækjum, er þekk- ing nútímans í þeim efnum kunni skil á; togarinn verður ramger mjög og kæliútbúnaður slíkur, að annan getur hvergi betri. Þorkell Máni verður höfuð- prýði íslenzka togaraflotans. Churchill vonbetri um frið Forsætisráðherra Breta, Mr. Churchill, kom til New York um síðustu helgi til fundar við Dwight Eisenhower, er innan fárra daga tekur við forseta- embætti í Bandaríkjunum; í viðtali við blaðamenn kvaðst Mr. Churchill sannfærður um, að varðandi friðarmálin væri nú drjúgum bjartara umhorfs en í fyrra, þótt víða gæti að líta blik- ur og bakka, sem ekki yrði auð- ráðið framúr yfir hverju byggi; hann taldi það höfuðnauðsyn að einangra svo Kóreustríðið, að annars staðar þyrftu sameinuðu þjóðirnar ekki að veikja krafta sína í ófriði; hann kvaðst ekkert vera hræddur við Asíumálin; mesta hættan vofði yfir í Vestur- Evrópu.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.