Lögberg - 08.01.1953, Blaðsíða 6

Lögberg - 08.01.1953, Blaðsíða 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 8. JANÚAR, 1953 J- ". . GUÐRÚN FRÁ LUNDI: DALALÍF „Sigríður hefur víst falið það einhvers staðar, sem ekki er hægt að finna það. Svo er hún stokkin á bæi. Hún ætlar að sitja að því sjálf, ef hún hefir þá ekki gefið prestinum það í nesti yfir fjallið. Slíkt og því líkt hef ég aldrei vitað. Ég get ímyndað mér, að honum hafi litizt á heimilisbraginn hérna, eins og myndarskap- urinn er hjá honum,“ sagði hún raunamædd. „Gefðu mér þá eitthvað að éta, áður en ég fer til ánna aftur. Þá skal ég segja þér, hvað hann vgr að segja við hann Jakob hérna upp á túninu í morgun.“ „Blessaður öðlingurinn. Hann segir nú margt,“ sagði hún og stóð upp og sótti flatköku ofan í búrkistu, smurði hana þykkt handa smalanum og fékk honum. Hann tók til hennar rösklega. „Hvað sagði hann svo?“ spurði Jóhanna. Henni fannst hún vera búin að leggja inn fyrir svolitlum fréttum. „Hann fann mig hérna fyrir ofan túnið og fór strax að tala við mig, eins og hann væri mér málkunnugur. Hann hefði ekki gert það hann séra Sigurður, sem lætur eins og hann sjái mig ekki, og þó er hann frændi minn.“ „Það eru nú ólíkir prestar. Það er svona lítillátt allt þetta Fellsfólk,“ greip Jóhanna fram í fyrir honum. „Og hann þúaði mig,“ hélt Runki áfram tyggjandi. „Svo fór hann að spyrja mig, hvað Jakob fengi marga landskuldargemlinga á hverju vori.“ „Ja, nú gengur fram af mér. Ekki vantar búhyggindin hjá hon- um blessuðum. Vissurðu nokkuð, hvað þeir voru margir?“ „Ég fer líklega nærri um það. Þeir eru svona sextíu.“ „Mikil er auðlegðin,“ sagði hún og brosti. En Runki hélt áfram: „Svo kom Jakob. Þá fór hann að ræða við hann. Ég heyrði það ekki allt, en svo mikið heyrði ég, að hann var að tala um, hvort hann ætlaði ekki að fara að gifta sig. En Jakob sagði, að það væri vandi að velja sér konu.“ „Einmitt það,“ sagði Jóhanna og kinkaði kollinum. „Svo heyrði ég, að klerkur sagði: ,Komdu vestur að Felli. Ég á nokkur stykki af konuefnum.1 — Svo heyrði ég ekki meira.“ „Og bölvaður refurinn,“ hvæsti Jóhanna. „Það vantaði nú bara, að hann færi að troða stelpugálunum sínum inn á hann. Hann fengi að vita af þeim. En það er nú ekki aldeilis séð, að hann Jakob hlaupi á sig. Hann er gætnari en svo. Líklega hefur hann þó narrað hann með sér núna vestur eftir?“ „Nei, nei. Hann var að koma áðan að Ásólfsstöðum,“ svaraði Runki. Flatkakan var horfin ofan í hann, svo að hann ranglaði af stað til kindanna og skildi við Jóhönnu allt annað en ánægður. KOSTARÍK KONA Eftir þetta reyndi Jóhanna að koma dætrum Helga prests inn í samtalið við heimilisfólkið, hvenær sem hún gat og lýsti þeim langt frá því, sem hún gerði í fyrstu. Nú voru þær fínindisdrósir og stoltar landeyður. Aldrei skipti Jakob sér neitt af því. Henni fannst hann vera eitthvað öðru vísi en hann var vanur, fátalaður og hugsandi. Oft sá hún hann standa við stofugluggann og horfa yfir yfir að Ásólfsstöðum, eins og hann væri að meta jörðina til verðs. Honum nægði sjálfsagt Nautaflatir, ógiftum. Að hugsa sér slíkt. Það var eins og fólkið sagði. Það var óskemmtilegt að hreppstjór- inn skyldi vera ógiftur. Svo var það einn daginn, að Jakob kom inn með ísak flæking á eftir sér. Hann flæktist um hálft landið. En sjaldan hafði hann komið að Nautaflötum. Það var verið að borða miðdegismatinn. Sigríður sagði svona við Jóhönnu, að það væri sjálfsagt að gefa vesalingnum að borða. En hún sagðist ekki gefa svona fólki mat. Hún var reið yfir, að Jakob talaði ekki um það sjálfur við hana. Þá tók Sigríður búrhnífinn og sagði: „Það hefur víst enginn beðið þig að skammta, hvorki honum né öðrum.“ Þá byrjaði hávær rimma, meðan hún tók til matarbitann. Umrenningurinn fór, þegar hann var búinn að seðja sig, en Jakob var nú fálátari en nokkru sinni áður, það sem eftir var dagsins. Morguninn eftir lét hann sækja þrjá beztu hestana, sem hann átti, og tygjaðist til fferðar. Hann fór í sparifötin og lét falleg- asta silkiklútinn um hálsinn. Jóhanna stóð á hliðinu, þegar hann kom út. „Hvert er ferðinni heitið?“ spurði hún. „Vestur yfir fjall,“ svaraði hann stuttaralega. „Á ekki að fara að hreinsa tún á morg- un?“ spurði hún mjúkmál. „Ég hef sagt fólkinu fyrir verkurn," sagði hann jafn þurrlega og áður. Henni líkuðu ekki vettlingarnir, sem hann var með, og hljóp inn eftir öðrum betri; en þegar hún kom aftur, var hann kominn langt fram á eyrar. „Það liggur eitt- hvað ekki vel á blessuðum húsbóndanum núna,“ sagði hún við Runka. „Veiztu til þess, að kerlingarskrattinn hún Sigríður liggi í eyrunum á honum? Hann var ekki svona fyrst eftir að ég kom hingað. Hvað skyldi hann ætla langt?“ Runki vissi ekkert. Það liðu þrír dagar, án þess að Jakob hreppstjóri kæmi aftur. Jóhanna var óróleg. „Nú hlýtur hann að koma í dag,“ sagði Runki að morgni fjórða dags, „jafnvel þó að hann hafi farið vestur að Felli.“ „Hvernig dettur þér í hug, að hann hafi farið vestur að Felli?“ spurði Jóhanna. „Af því að presturinn bauð honum það. Svo kom ísak gamli með bréf, sem hann sagði, að væri frá séra Helga.“ „Hver fjandinn! En ég býst ekki við, að hann anzi svo- leiðis,“ anzaði hún, en það leið kvíðvænleg stuna frá brjósti hennar. Seint um kvöldið, þegar allt vinnufólkið var hætt útivinnu og sat inni, kom Runki að utan og var talsvert niðri fyrir. „Nú kemur Jakob, og það er kvenmaður með honum, í söðli og með hatt,“ sagði hann. „Hvern fjandann skyldir þú sjá það, þvættikoll- urinn þinn!“ sagði Jóhanna og sló til hans með sokk, sem hún hélt á. „Þú skalt sanna til, hvort ég segi ekki satt,“ sagði harín móðgaður. Allt heimilisfólkið þaut fram í skála og stofu og horfði út um gluggana, sem sneru fram á hlaðið. Það var satt, sem Runki hafði sagt. Jakob var að koma heim túntröðina og kona með honum á bleikum hesti. „Þetta er einhver hofróða, sem slegizt hefur í förina með hon- um. Hún er ekki á hestunum hans,“ sagði Jóhanna. Jakob fór af baki, gekk til stúlkunnar og lét hana styðjast við sig, meðan hún hoppaði fjörlega niður úr söðlinum. Það var svo sem auðvitað, hvað til stóð. Svona lagaða kurteisi sýndi hann engri konu. Enginn þekkti gestinn, nema Jóhanna. Hún snerist í hring á gólfinu og sló vindhögg út í loftið. „Fjandinn fjærri mér! Það er engin önnur en Lísibet Helgadóttir. Þið fáið að vita af henni, dé- skotans hrokagikknum þeim. En ég skal sýna henni það, að hún skal ekki kúga mig. Og það er heldur ekki víst, að ég sé búin að afhenda henni lyklavöldin.“ Hún þaut inn í eldhús ,og henti og hrinti kollum og kirnum með miklum hávaða. Sigríður gekk út og allt hitt heimilisfólkið á eftir. Jakob heils- aði því og sagði, að þetta væri tilvonandi húsmóðir þess og nefndi nafn hennar. Lísibet var glæsileg kona, há og grönn, með mikið, hrafnsvart hár. Hún líktist mjög föður sínum í sjón, blíðmál og aðlaðandi. Jakob sýndist næstum ólaglegur við hliðina á henni, og var hann þó myndarlegur. Það var komið kvöld. Lísibet var látin sofa í stofurúminu. Jóhanna reyndi að vera kumpánleg við hana, en átti þó fjandi bágt með það. Morguninn eftir leiddi Jakob heitkonu sína um allt túnið og upp í fjall. Hann var að sýna henni jörðina sína og dalinn. En heima í búrinu andvarpaði Jóhanna. „Aumingja Jakob! Ég kenni í brjóst um hann. Hún velgir honum áreiðanlega, þessi drós. Það er flagð undir fögru skinni. Það skuluð þið sanna.“ Hún bar á borðið fyrir þau bæði frammi í stofu. Þegar þau höfðu matazt, sagði Lísibet: „Mér finnst, að margt gæti farið betur hérna í stofunni. En þú vilt kannske ekki láta breyta því, fyrst mamma þín hafði það svona.“ „Hafðu það eins og þú vilt, góða mín,“ sagði hann auðmjúkur. Hún fór að færa allt úr lagi og í lag aftur í stofunni. Sömu skil gerði hún hjónahúsinu. Allir sáu, að þetta fór mikið betur. Og hún hélt áfram um allan bæinn. Seinast var búrið tekið. Jóhanna var í illu skapi. Hún var að skammta við búrborðið, þegar Lísibet kom inn og fór að gæta inn í búrskápinn. „Ég kæri mig ekkert um, að það sé verið með nefið niðri í því, sem ég geng um,“ sagði Jóhanna æst. „Nú, hvað er um fyrir þér?“ spurði Lísibet og gekk fast að henni. „Jakob hefur sagt mér, að þú hafir ráðizt hingað sem vinnukona,“ bætti hún við. Rómurinn var ekki eins blíður og vant var. „Ég tók að mér ráðsmennskuna, af því að heimilið var allt í skít og skötulíki og ekki boðlegt nokkurri almennilegri manneskju,“ hreytti Jóhanna út úr sér. Hún fann til smæðar sinnar í návist þessarar konu. Lísibet tók búrhnífinn úr hendi hennar, án þess að hún sýndi mótþróa. „Nú þarf þín ekki lengur við,“ sagði hún. Það var eitt- hvað í málrómnum sem gaf til kynna, að það ætti að hlýða henni. „Annað hvort ferðu að hreinsa með hinum stúlkunum eða þú ferð burt af heimilinu. Nú tek ég við.“ Jóhanna gekk í burtu steinþegjandi, tók saman fötin sín og fór í burt, án þess að kveðja nokkra manneskju. Hún kom á flesta bæi í dalnum og umtalsefnið var alltaf það sama: „Hafið þið heyrt það nýjasta? Nei, þið hafið ekki heyrt neitt nýtt. Svo þið hafið ekki heyrt um nöðruna, sem séra Helgi á Felli er búinn að koma inn í sveitina, inn á Jakob hreppstjóra. Hún er nógu stássleg, ekkl vantar það. En hvað stoðar það. Úlfurinn gægist alltaf undan gær- unni. Hún byrjar á því þriðja daginn, sem hún er á heimilinu, að reka dyggðahjú burt úr vistinni, og það verður ekki síðasta til- tækið hennar. Hún kemur út svitanum á Jakobi, þessum ágætis- manni, og hún velgir fleirum. Þetta er mesta flagð. Ég heyrði, hvað sagt var um hana þar vestra.“ Þannig lét Jóhanna dæluna ganga, og fregnin flaug um sveitina., Næsta sunnudag var messað að Nautaflötum. Það var fjöldi fólks við kirkju. Alla langaði til að sjá þetta nýja konuefni, sem komið var í dalinn. Konurnar litu hana allt annað en hýru auga. Þær vissu vel, að slík kona myndi standa þeim fyrir ljósi og njóta eftirtektar allrar sveitarinnar. Kirkjufólkið talaði ekki um annað á heimleiðinni en fallegu konuna, sem komin var svona allt í einu í sveitina fyrirvaralaust. Jóhanna Andrésdóttir slóst í förina utarlega í dalnum. Hún hafði verið að rangla eitthvað milli bæja. „Nú, hvernig lízt ykkur á nýja maddömuefnið?“ spurði hún hæðnislega. „Það er nú tæplega hægt annað en að lítast vel á hana,“ svaraði ungur vinnumaður í hópnum. „Ég blóðöfunda Jakob af henni. Mér hefur alltaf fundizt hann laglegur, en við hliðina á henni er hann tilkomulítill og rindilslegur,“ bætti hann við. „Það er ekki furða, þó að þú öfundir hann af því að vera skóþurrkan hennar; því það verður hann auðvitað,“ svaraði Jóhanna. „Ég skil ekkert í því, að hann skyldi fá svon fallega konu,“ sagði vinnumaðurinn; hann vissi, hvað Jóhönnu sveið mest. „Það eru vandræði að skilja það. Hvað ætli séra „silkitunga“ hafi verið að hugsa um, þegar hann spurði Runka að því hvað Jakob fengi marga landskuldagemlinga á vori hverju, og fór svo að bjóða Jakobi vestur að Felli á eftir. Ætli það hafi ekki verið auðurinn, sem hann hefur verið að hugsa um. Hann hefur líklega séð, að það myndi ekki fara neitt sérlega illa um dóttur sína í reytunum hans. Hún notar sér þær líklega. Þær verða varla lengi að fuðra upp í lúkunum á henni. Hún hefir ekki verið lengi að stinga honum undir iljarnar, þessum kærasta, sem hún átti í Reykjavík, af því að hann var fátækur. Það má segja, að séra Helgi er reglulegur refur. Þessi blíða og gæði, en flærðin undir niðri. Það eru fleiri en kvenfólkið, sem hann yfirtalar, sá maður. Mér heyrðist nú fólkið þarna fyrir vestan álíta, að hún líktist honum í flestu. Því segi ég það. Aumingja Jakob, þessi skikkelsis- maður, að lenda á þessari manneskju.“ Jóhanna talaði í háum prédikunartóni, sem heyrðist um allan hópinn. „Hann hefði sjálfsagt getað fengið sæmilega konu nær sér,“ kvað við frá einni húsfreyjunni. „Það er líklegt,“ svaraði Jóhanna. „Hvað ætli hún sé betri fyrir það, þó að hún sé prestsdóttir. Ekki er auðurinn þar. Allt gengur í fínheitin. Þessar jarðir, sem hann átti, er búið að selja. Eyðslan er þessi óstjórn. Þau venja á sig allra handa óþjóðalýð, flækinga og óþrifakrakka. Ef hún hefur sama siðinn, get ég hugs- að, að Jakobi þyki nóg um, því hann er nú sparsamur eins og ættin.“ Það heyrðust ýmsar raddir úr hópnum. Konurnar voru öllu tortryggnari og spáðu, að hún reyndist ekki vel, þó að hún væri falleg. Karlmennirnir höfðu gagnstæða skoðun. „Ég get tæplega ímyndað mér annað, en að hún sé gæðakona, fyrst hún er dóttir séra Helga. Sá maður fær almenningslof,“ sagði einn bóndinn. „Ykkur verður að því,“ sagði Jóhanna. „Ég gæti trúað, að það heyrðist eitthvað um það, áður en lýkur.“ Á næsta bæ fyrir utan Nautaflatir, sem hét Hvammur, bjó bóndi, sem Björn hét. Hann hafði verið mörg ár vinnumaður í Felli og var því eini maðurinn í sveitinni, sem þekkti Lísibetu. Honum hafði þótt fjarska vænt um börn séra Helga, sem öll voru góð og vel uppalin. Hún tók vel á móti honum og sagðist vonast eftir, að þeim semdi sæmilega í nágrenninu. Og honum var boðið ásamt konu sinni í brúðkaupið, sem haldið var vestur í Felli. öðrum var ekki boðið úr sveitinni, og þótti það mjög ómyndarlegt. Séra Helgi og kona hans, sem hét Dagbjört, fylgdu nýgiftu hjónunum á leið, að afstöðnu brúðkaupinu. „Það er lítill heimamundurinn, sem fylgir dóttur minni,“ sagði prestur, þegar Jakob kvaddi hann. „En þessa stóðhryssu á hún, og vona ég, að hún verði kynsæl. Það er valið kyn að henni. Hún getur gefið þér reiðhest handa Jóni Jakobssyni. Ég þykist vita, að hann hafi gaman af að sitja á hesti.“ Hann rétti Lísibetu tauminn á hryssunni, sem var bleik að lit. Birni í Hvammi fannst það óviðeigandi, að brúðurin teymdi hryssuna, og bauðst til þess. En prestur hló bara. „Hún vill sjálf- sagt teyma hana sjálf heim í dalinn, þar sem þær eiga báðar að auka kyn sitt.“ Svo kvöddust vinirnir. Leiðirnar skildu. Það fundu allir, að það var komin húsmóðir á heimilið, þegar Lísibet tók við stjórninni. Hún sagði öllum fyrir verkum, jafnt körlum sem konum. Jakob spurði hana ráða um flest, sem þurfti að gera. Hún var hjúum sínum góð og umhyggjusöm. Heimilið breyttist algerlega. Enginn þóttist hafa þekkt aðra eins húsmóður eða séð slíkt hjónaband. Þegar hún var búin að vera tvö ár að Nautaflötum, voru allir þess fullvissir, að hún væri alveg einstök kona, því í hennar fari væri enginn galli. Hún tók fátæk börn heim til sín, þegar þröngt var í búi hjá foreldrunum, og hafði þau hjá sér, þangað til ástæðurnar fóru eitthvað að skána. Þá skilaði hún þeim aftur vel útlítandi. Hún áminnti mæðurnar um að leggja vöndinn til hliðar og láta ekki börnin hafa nein kynni af honum, slíkt væri skammarlegt athæfi. Hún fór til þeirra, sem veikir voru, og hlynti að þeim. Margt gamalmennið tók hún heim til sín og annaðist það, meðan það þurfti þess. Það var leitað til hennar með flest vandkvæði, og hún gat jafnan greitt úr þeim. Hún var einstök kona. Hún gat sýnt fólki fram á, að hreppsómagar hefðu sömu tilfinningu og annað fólk. Konurnar komu dætrum sínum til hennar. Þar lærðu þær fínan tóskap og margt nytsamlegt. Þær komu heimaftur dagfarsprúðari og orðvarari en áður. Jakob lét allt vera eins og hún vildi, og búið stækkaði, en minnkaði ekki, þrátt fyrir alla rausn hennar. Fátæklingar sögðu, að það fylgdi guðs blessun öllu, sem slík kona ætti um að hugsa. Hún ríkti sæl og einvöld yfir sveitinni. Það þýddi ekkert, þó að Jóhanna Andrésdóttir reyndi að kosta skugga á tign hennar. Hún var dáð og elskuð, ekki vegna auðæfa sinna, heldur vegna mannkosta. Samt þóttust margir vissir um, að hún væri ekki alls kostar ánægð. önnur eins kona, sem breiddi sig yfir börnin, hlaut að þrá að verða móðir. En hjónaband hennar var barnlaust. Bleika hryssan var búin að færa henni tvö hestsefni í búið handa erfingjanum, en*hann lét bíða eftir sér. STÚDENTINN Þá kom nýr maður í sveitina. Hann hét Hallgrímur og var frændi Lísibetar, og það gaf honum mikið gildi. Hann kom til kaupmannsins, sem verzlaði í Ósnum, og var alltað kallaður „undir- kaupmaður.“ Hann vakti mikla eftirtekt eins og frændkona hans. Hann var fallegur maður og hann var lærður maður. Fólkið kall- aði hann því oft stúdentinn. Heldur þótti hann vera á ferðinni þar í kaupstaðnum. Hann var drykkjumaður og gekk mjög í augun á kvenþjóðinni. Oft fór hann fram að Nautaflötum að finna frænku sína, og var honum þar vel tekið, eins og öðrum. En konu kaup- mannsins var illa við útslátt hans og drykkjuskap. Hún vildi láta hann vera heima og líta hýrlega til systur, sem hún átti og var orðin nokkuð roskin til að bíða öllu lengur eftir hjónabandssæl- unni. En stúdentinn elskaði frelsið og lét ekki búrið halda sér, heldur flaug burtu, hvenær sem færi gafst. Allt gekk þó sæmilega, þangað til á jólunum. Þá vildi maddam- an láta spila og fara í leiki. Hann tók þátt í því dálitla stund, en svo fór hann að syfja, svo að hann varð að fara út. Eftir það sást hann ekki, nema við máltíðar. Eitt kvöldið var húsmóðir hans svo reið, að hún lokaði hann hreinlega úti. Um morguninn, þegar komið var á fætur, sat vesal- ings stúdentinn á forstofutröppunum, blár í framan af kulda, og steinsvaf. Kaupmaðurinn átaldi konu sína fyrir tiltækið, en við því yarð ekki gert. Hallgrímur veiktist svo upp úr þessu og lá uppi í óupphituðu herbergi sínu og þjáðist af öllu því lakasta, sem drykkjuslark og næturvökur hafa í för með sér. Jómfrúin, systir maddömunnar, reyndi að hjúkra honum eins vel og hún gat, en hann var oftast með óráði, þegar hún var uppi, eða þá að hann svaf, og gat því lítið gert henni skiljanlegt, hvers hann þarfnaðist. Mörg sjómannsdóttirin horfði upp í gluggann hans og hafði sterka þrá til að hjúkra honum, en þorði ekki að láta sjá sig í húsinu. En fregnin flaug um sveitina, að undirkaupmaðurinn væri orð- inn veikur af fylliríi og hefði óráð. „Ekki get ég sagt, að mér falli það vel að láta þetta eina skyldmenni, sem ég á, liggja þarna dauðveikan en aðhlynningar- lausan,“ sagði Lísibet á Nautaflötum, þegar hún heyrði fregnina. Jakob skildi konu sína vel. Hann lét hana ráða í því sem öðru. Það var sleginn saman kassi, mátulega stór fyrir stúdentinn. í hann var svo hnoðað mörgum sængum og farið með hann á sleða ofan að Ósi. Húsfreyja fór sjálf með og tveir vinnumenn hennar. Maddaman varð vandræðaleg, þegar hún heyrði gestakom- una. En Lísibet var blíð í máli, eins og vant var. Hún sagðist vita, að allt væri gert til þess, að Hallgrími liði sem bezt. En af því að hann væri svo skyldur sér, þá langaði sig til að flytja hann fram- eftir, -— með hennar leyfi auðvitað. Sér léti og heldur vel að hjúkra veikum. Þá hýrnaði yfir maddömunni. Hún hafði hálvegis óttazt, að Lísibet léti í ljós óánægju yfir meðferðinni á stúdentin- um. Nú varð hún guðsfegin að losna við að láta hjúkra honum og bíða eftir því að hann dæi á hennar heimili, því hún þóttist vita, að sá yrði endirinn. Hún leyfði því fúslega, að hann yrði fluttur. En jómfrúin sagði, að hann væri áreiðanlega ekki ferðafær, því að óráðið væri alltaf það sama. Lísibet langaði þó til að sjá hann.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.