Lögberg - 19.02.1953, Side 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tnne-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
66 ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 19 FEBRÚAR, 1953
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
NÚMER 8
Vegna trúnaðar við uppruna og œtt fjölmenna Islendingar í þjóðrœknisþing
Hópferð til íslands í sumar,
flogið beint bóðar leiðir
Eins og mörgum mun kunnugt,
hef ég frá því er ég kom hingað
kallsað það við ýmsa, hvort þeir
mundu til í Islandsferð sumarið
1953, ef hægt yrði að útvega
flugvél til fararinnar, er flygi
beint milli Winnipeg og Reykja-
víkur. Hef ég að undanförnu
verið að athuga möguleika á
slíkri för og skrifað heim til ís-
lands í því skyni. Vill svo til, að
annað íslenzka flugfélagið, Loft-
leiðir, fer vikulegar áætlunar-
ferðir til New York. Datt mér
því í hug að leita til Alfreðs
Elíassonar, flugstjóra hjá Loft-
leiðum, og spyrja hann, hvort
þeir mundu geta fellt ferð héðan
saman við ferðir sínar milli
Reykjavíkur og New York.
Miðaði ég við 7 vikna ferð,
þannig að farið yrði héðan frá
Winnipeg um 10. júní og komið
aftur um eða upp úr mánaða-
mótunum júlí — ágúst. Kæm-
umst við þá til Islands fyrir
þjóðhátíðina 17. júní, en hingað
aftur að líkindum fyrir íslend-
ingadaginn á Gimli. Flogið
skyldi beint milli Winnipeg og
Reykjavíkur í báðum leiðum og
líklega komið við í Goose Bay í
Labrador eða Gander á Ný-
fundnalandi.
Hefur nú Alfreð sent ákveðið
tilboð í eftirfarandi símskeyti:
Getum farið umræddar ferðir
New York — Winnipeg —
Reykjavík sömu leið til baka
fyrir 2 dollara per mílu eða 20
þúsund báðar leiðir. Hluti greið-
anlegur í íslenzkum krónum. 50
farþegar í ferð. Þetta bundið
staðfestingu ykkar fyrir 30.
mars. —Alfreð, Loftleiðir.
Við sjáum, að miðað er við 50
farþega og fargjaldið alls 20
þúsund dalir eða 400 dalir á
mann báðar leiðir. 1 stuttu máli
sagt: vijdarkjör.
Trúi ég því ekki fyrr en ég tek
á því, að ekki muni fást 50
menn úr gjörvöllum byggðum
Vestur-íslendinga til að fara
slíka för. Og takist hún vel,
ryður hún brautina fyrir öðrum
ferðum milli landanna í framtíð-
inni. Þyrfti þá að afchuga, hvort
ekki mætti skiptast á hópum
héðan og frá íslandi, en slíkt
þarf auðvitað lengri undirbúning
en komið varð við í þetta sinn.
En hvað um kostnað á íslandi?
Því get ég ekki svarað að svo
stöddu, fer og nokkuð eftir því,
hve mikið menn vilja hreyfa sig
þar og hvort þeir eiga fólk að á
íslandi, er greiða mundi götu
þeirra að einhverju leyti.
Á ég von á upplýsingum frá
íslandi um dvalarkostnað þar,
fargjöld o. s. frv. Sjálfsagt verð-
ur að koma á ódýrum hóp-
ferðum um landið fyrir þá, er
það vilja, en sjá einnig um, að
menn séu sem frjálsastir ferða
sinna. Eflaust mundu menn þó'
halda hópinn fyrstu dagana,
meðan verið væri að skoða
Reykjavík og nágrenni hennar,
fara til Þingvalla o. s. frv.
Um vegabréf er það að segja,
að þeir, í Canada, sem eiga ekki
gilt vegabréf, verða að sækja um
það til Ottawa (Passp'ort Officer,
Ottawa). Síðan verða þeir að fá
vegabréfsáritun hjá ræðismanni
íslands í Winnipeg, þ. e. Gretti L.
Jóhannssyni, 910 Palmerston
Ave. Þurfa menn fyrst að skrifa
til hans eftir sérstöku eyðublaði
(Beiðni um vegabréfsáritun),
sem þeir að svo búnu útfylla og
senda ræðismanninum aftur á-
samt tveim ljósmyndum, áritun-
argjaldi ($3.50) ’og vegabréfinu
sjálfu.
Þeir, sem koma til farar þess-
arar sunnan úr Bandaríkjum,
afla sér að sjálfsögðu nauðsyn-
legra skilríkja eftir þeim leiðum,
sem þar tíðkast.
Mega menn af þessu sjá, að
talsvert umstang er við þetta, og
því nauðsynlegt, að þeir snúi
sér að því hið bráðasta.
I tilboði flugfélagsins var þess
getið, að það væri bundið stað-
festingu okkar fyrir 30. marz,
þ. e. 50 manns þurfa að hafa
skuldbundið sig til fararinnar
helzt ekki síðar en 15. marz, ef
vel á að vera. Hef ég hugsað
mér fyrirkomulagið þannig, að
væntanlegir þátttakendur sendi
mér (Heimilisfang: 30 Cavell
Apts., 449 Kennedy St., Winni-
peg) allt fargjaldið eða helming
þess, ef þeir kjósa að greiða það
í tvennu lagi, fyrir 15. marz.
Yrði það að vera óendurkræft,
því að hver ætti að borga skað-
ann, sem hlytist af því, ef menn
hættu við förina, eftir að samn-
ingurinn væri genginn í gildi?
Þeir, sem greiða fargjaldið í
tvennu lagi, mundu síðan senda
seinni helminginn fyrir 15. apríl.
Eins og menn sjá, er hér um
að ræða fargjaldið rétt og slétt.
Verði einhver smávegis kostnað-
ur af undirbúningi fararinnar
bæði hér og heima, yrði að jafna
honum niður á eftir, en hann
hlyti ætíð að verða hverfandi.
Fyrir miklu er, að þátttaka í
för þessari verði sem víðast úr
byggðum Vestur-lslendinga, og
áskil ég mér rétt til að taka sér-
Séra Valdimar J. Eylands
Forseli Þjóðræknisíélagsins
W. J. Lindal dómari
Forseli Iclandic Canadian Club
stakt tillit til þeirra, sem lengra
eiga að sækja, ef þátttaka verður
svo mikil, að allir, sem þess óska,
komast ekki með.
Ég vona svo að lokum, að mér
hafi tekizt að leggja málið ljóst
fyrir og nú sé ekki annar kostur
betri en láta til skarar skríða.
Er hér um litlu stærri hóp að
ræða en farið hefur til íslands
undanfarin sumur, en sá munur-
inn, að menn hafa þar verið að
tínast einn og tveir eftir ýmsum
leiðum og oft með ærnum kostn-
aði. Er ekki nær, að menn slái
saman pjönkum sínum og spari
sér þannig bæði kostnað og
fyrirhöfn, jafnframt því sem
þeir njóta ferðarinnar betur í
félagi, að ógleymdum þeim á-
hrifum, sem hópferð hefur fram
yfir ferðir einstaklinga til víð-
tækra kynna milli Islendinga
vestan hafs og austan.
Látum nú sjá, að okkur sé al-
vara og fyllum þessa vél í hvelli!
Finnbogi Guðmundsson
Gera með sér
sammnga
Stjórnarvöld Bretlands og
Egyptalands hafa nú gert með
sér samninga um framtíð Sudans
og stjórnmálaviðhorf landsins,
en eins og vitað er, hefir lang-
varandi ágreiningur átt sér stað
milli þessara tveggja þjóða varð-
andi lausn málsins; nú hefir það
verið fastmælum bundið, að
Sundanbúar fái aukið þjóðfrelsi,
að stofnað verði til þjóðþings og
að almennar kosningar fari fram
í landinu við allra fyrstu hentug-
leika; verður þá að sjálfsögðu
myndað ráðuneyti, er beri fulla
ábyrgð gagnvart þinginu; að
þremur árum liðnum verður svo
Sudanbúum það í sjálfsvald sett
hvort þeir vilja stofna sjálfstætt
ríki, ganga í stjórnmálabandalag
við Egypta, eða gerast meðlimir
í brezku þjóðafylkingunni.
Jón Ásgeirsson
Forseti deildarinnar Frón
Gestur Kristjánsson
Forseti Leifs Eiríkssonar
félagsins
Hann ávarpar lokasamkomu
þjóðræknisþingsins bæði á ís-
lenzku og ensku.
Próf. Finnbogi Guðmundsson
Aðalræðumaður á lokasam-
komu þjóðræknisþingsins í
Fyrstu lútersku kirkju hinn 25.
þ. m., kl. 8 að kveldi. Hann talar
um Gest Pálsson
Á miðvikudagskveldið í fyrri
viku hélt söngflokkur Fyrsta
lúterska safnaðar samkomu, er
var afarfjölsótt, enda var skemti-
skrá all-frábrugðin venju. Flest-
ir, er þátt tóku í skemtuninni,
voru búnir á þann hátt, er tíðk-
aðist um aldamótin og sungnir
söngvar bæði á íslenzku og
ensku, er þá voru vinsælir;
brugðið var upp lifandi mynd-
um (tableaux) og sungnir við-
eigandi söngvar: einsöngvar,
tvísöngvar og kórsöngvar í sam-
bandi við þær; var varpað mis-
munandi litum á myndirnar og
þótti alt þetta bæði fallegt og
skemtilegt. Mrs. Guðrún Blondal
var samkomustjóri, en aðal-
sögvarar flokksins, Mrs. Pearl
Johnson, Mr. Alvin Blondal, Miss
Ingibjörg Bjarnason og Miss
Lilja Eylands sungu einsöngva
og svísöngva; söngstjórinn, Mrs.
Björg V. ísfeld, /ar við hljóð-
færið. Mrs. Paul Bardal, M.L.A.,
rakti í stórum dráttum sögu
söngflokksins; Mrs. H. F. Daniel-
son las upp kvæði og próf. Finn-
bogi Guðmundsson las upp ný-
lega prentað bréf frá Rannveigu
Briem Jónasson til bróður henn-
ar Eggerts Briem, þar sem hún
lýsti safnaðarlífinu í Winnipeg
nokkru fyrir aldamótin. Var að
öllu þessu gerður hinn bezti
rómur. Mrs. Hawcroft, einn af
fulltrúum safnaðarins þakkaði
með hlýjum orðum öllum þeim,
er að samkomunni stóðu.
Hon. Valdimar Bjornson
Svo hafði veríð til ætlast, að
Skúli prófessor Hrútfjörð yrði
aðalræðumaður á næsta Fróns-
móti, en vegna embættisanna
fékk hann því miður eigi komið
því við; í hans stað flytur Hon.
Valdimar Björnsson fjármála-
ráðherra Minnesotaríkis aðal-
ræðuna.
Séra Harald S. Sigmar
ASalræðumaður á samkomu Ice-
landic Canadian Club í fyrstu
lútersku kirkju að kvöidi hins
24. þ. m. Umræðuefni: “The
Family of Icelandic Canadians“.
Söngflokkur Fyrsta lúterska
safnaðar hefir frá upphafi vega
staðið í brjóstfylkingu þeirra
manna og kvenna, er helgað hafa
krafta sína söngmenningu ís-
lendinga í Winnipeg.
Fyrrihluta vikunnar, sem leið,
snjóaði lítið eitt, en þó svo mikið
sunnanuands og vestan að nokk-
rir fjallvegir urðu ófærir bifreið-
um, m.a. vegurinn yfir Hnlta-
vörðuheiði, en Krísuvíkurleioin
er fær. Þung er færð víða í
kringum Hvalfjörð og uppi í
Borgarfirði, og ófært um Bröttu-
brekku og Fróðarheiði. Talsvert
frost hefir verið að undanförnu,
1 fyrradag til dæmis 10 til 11
stiga frost yfirleitt og mest í
Möðrudal 26 stig, og í gærmorg-
un var yfirleitt 8 til 10 stiga frost
á landinu.
☆
Fjárlög fyrir árið 1953 voru
afgreidd á Alþingi á þriðjudag-
inn var og eru niðurstöðutölur
á rekstrarreikningi sem hér
segir: Tekjur eru áætlaðar
418.685.000 krónur, en gjöld
380.163.000, og er rekstraraf-
gangur þá 38^4 miljón króna.
N iðurstöðutölur á sjóðsyfirliti
eru þessar: INN 423.645.000
krónur, ÚT 422.055.000 krónur.
Greiðslujöfnuður er þannig hag-
stæður um 1.590.000 krónur.
☆
Biskupinn yfir íslandi, herra
Sigurgeir Sigurðsson, birti ný-
lega áramótahugleiðingu og seg-
ir þar, að sennilega hafi skilning-
ur þjóðarinnar á starfi kirkjunn-
ar aldrei verið meiri en nú.
Kirkjan sé févana, eignir henn-
ar hafi smám saman verið lagð-
ar til hins opinbera með lögum,
en hún hafi mikla þörf fyrir
starfsfé og ekki sé það að vilja
almennings að fjárveitingar til
hennar séu skornar við nögl.
Margs sé þörf, og fyrir Alþingi
það, er nú situr, muni verða lagt
frumvarp um kirkjubyggingar.
Það þurfi að byggja kirkjur í
Reykjavík, endurreisa Skálholts
kirkju og Skálholtsstað, og enn
fremur þurfi að byggja upp 28
prestsetur á landinu og sum
prestaköll sé alls ekki hægt að
veita, fyrr en þar komi einhver
húsakynni fyrir prestinn. Hvet-
ur biskup söfnuði og presta til
starfa og segir að lokum: ,iÞjóð-
in vill sterka, sameinaða og starf
andi kirkju, þar sem af víðsýni
og skilningi, bjartsýni og bróður
Úr borg og bygð
Miðsvelrarmói „Fróns"
Eins og þegar hefir verið getið
í blöðunum, efnir Þjóðræknis-
deildin „Frón“ til hins vinsæla
miðsvetrarmóts síns í G. T.-
húsinu, mánudagskvöldið 23.
þessa mánaðar kl. 8 stundvíslega.
Aðalræðumaður kvöldisins að
þessu sinni átti að vera Skúli
Hrútfjörð, en á síðustu stundu
sendi hann skeyti þess efnis, að
hann gæti af ófyrirsjáanlegum
ástæðum ekki komið, en í sinn
stað kæmi • Valdimar Björnsson,
fj ármálaráðherra Minnesotarík-
is. Það er óþarfi að kynna Valdi-
mar fyrir lesendum blaðsins, því
þeim er öllum kunnugt um hver
ágætismaður hann er og ræðu-
snilli hans efast enginn um. —
Hér verður skemtiskrá mótsins
eigi frekar rakin, heldur vitnað
til auglýsingar, þar sem skemmti
skráin er birt í heilu lagi, á öðr-
um stað í blaðinu.
Aðgöngumiðar fást í bókabúð
Davíðs Björnssonar, 702 Sargent
Avenue, og við innganginn; —
en fólki skal þó ráðlagt að
tryggja sér miða tímanlega.
THOR VIKING, ritari Fróns
hug er starfað í anda Krists.“—í
grein sinni getur biskup þess, að
Strandakirkju hafi borizt sam-
tals 160.000 krónur á árinu í
gjöfum og áheitum.
☆
Menntamálaráðherra hefur skip-
að Vilhjálm Þ. Gíslason skóla-
stjóra útvarpsstjóra frá og með
deginum í dag. Vilhjálmur Þ.
Gíslason er þaulkunnugur mál-
um útvarpsins, enda hefur hann
starfað fyrir það meira eða
minna frá því að það tók til
starfa 1930. Hann lauk meistara-
prófi í íslenzkum fræðum við
Framhald á bls. 6
Stjornmala-
samband rofið
Þau tíðindi gerðust nýverið, að
sprengja orsakaði meiðsli fjögra
manna og einnar konu í sendi-
sveitarbústað Rússa í höfuðborg
ísraelsríkis, og var það kona
sendiherrans, sem hlut átti að
máli; yfirvöldin létu þegar rann-
saka allar aðstæður og handtóku
á annað hundrað manns, er
grunur lá á að átt hefðu upptök
að tilverknaðinum í hefndar-
skyni fyrir hinar ósvífnu árásir
kommúnista á Gyðinga, sem bú-
settir eru austan járntjalds;
rannsókn er enn eigi lokið.
Atburðir þeir, sem nú hafa
nefndir verið hafa leitt til þess,
að Rússar hafa kvatt sendisveit
sína heim og rofið með því stjórn
málasamband við Israelsríki.
Gyðingar staðhæfa að Rússar
hafi notað áminstan atburð sem
átyllu til að ná sér enn betur
niðri á þjóðflokki þeirra.
Gerist
heiðursverndari
Með bréfi dagsettu hinn 27.
janúar síðastliðinn, hefir His
Exellency the Right Honourable
Vincent Massey, C.H., Governor-
General of Canada, gerzt heiðurs
verndari Þjóðræknisfélags Is-
lendinga í Vesturheimi.
Falleg og lærdómsrík samkoma
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands