Lögberg - 26.03.1953, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 26. MARZ, 1953
7
Fréttir frá ríkisútvarpi íslands
Hlýtt hefur verið í veðri að
undanförnu en umhleypinga-
samt, hvasst oft og úrkoma tals-
verð. Gæftir voru stirðar sunn-
anlands síðari hluta febrúar, en
sæmilegar við Breiðafjörð. Afli
Akranessbáta var í lok mánaðar-
ins orðinn rösklega 600 lestum
meiri en á sama tíma í fyrra og
eru þó færri róðrar nú en þá.
☆
í sl. mánuði fóru tveir fulltrú-
ar íslenzkra togaraeigenda til
Englands, þeir Björn Thórs og
Jón Axel Pétursson og áttu þar
viðræður við brezkan kaupsýslu
mann um möguleika á því að
rjúfa löndunarbannið og koma
íslenzkum fiski á markað í Bret-
landi að nýju.- Ekki hafa ák-
varðanir verið teknar í þessu
efni enn.
☆
Hér er 'nú staddur Valdimar
Björnsson fjármálaráðherra
Minnesota-ríkis í Bandaríkjun-
um. Hann kom hingað að beiðni
Stassens yfirmanns hinnar gagn-
kvæmu öryggismálastofnunar
Bandaríkjanna til þess að kynna
sér störf og framkvæmdir stofn-
unarinnar hérlendis, einkum í
sambandi við lokaþátt fram-
k v æ m d a við Sogsvirkjunina
nýju, Laxárvirkjunina og áburð-
arverksmiðjuna. Valdimar kom
á fimmtudaginn og heldur heim-
leiðis á þriðjudagsmorgnu. Hann
ræðir við ríkisstjórnina og flyt-
ur Stassen skýrslu um för sína.
í viðtali við fréttamenn sagðist
Valdimar líta svo á að nú væru
tímamót í íslenzkri menningu í
Vesturheimi, því að ungt fólk af
íslenzkum ættum væri að týna
íslenzkri tungu. !Þó mætti segja,
lað það, hefði öðlast skilning á
Isínum menningararfi frá Islandi
og stofnun íslenzks kennarastóls
í íslenzkum fræðum við háskól-
ann í Winnipeg væri mjög mik-
ilvægt atriði og myndi glæða á-
huga Vestur-íslendinga á tengsl-
unum við ísland. Til kennara-
stóls þessa hafa safnast 200.000
dollarar, og þar af lagði As-
mundur P. Jóhannsson fram 50-
000 dollara. Þjóðræknisfélag Is-
lendinga í Vesturheimi minnist
þess í haust að liðin eru 100 ár
frá fæðingu Stephans G. Steph-
anssonar og verður efnt til há-
tíðahalda í því sambandi.
☆
Nýlega var haldinn aðalfund-
ur Sjómannadagsráð-
sins í Reykjavík og Hafnarfirði.
Eignir þess og byggingarsjóðs
dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna nema nú um 3.275.000
krónur. Byrjað var að grafa fyr-
ir grunni dvalarheimilis aldr-
aðra sjómanna í haust og er því
verki lokið fyrir nokkru. Beðið
er eftir ákvörðun fjárhagsráðs
um leyfi til byggingarinnar, en,
þegar það er fengið, verður bygg
ingin boðin út. Mikill áhugi er á
því að koma heimilinu upp sem
fyrst, og hafa fultrúaráði sjó-
mannadagsins þegar borist um-
sóknir um vist á heimilinu.
☆
Menntamálaráðuneytið hefur
nýlega auglýst nýtt embætti til
umsóknar, skólameistaraem-
bætti við menntaskóla í sveit,
það er á Laugarvatni. Embætti
þetta veitist frá 1. apríl þessa
árs. Á Laugarvatni hefur verið
að undanförnu framhaldsdeild,
en þar sem skólinn hafði ekki
réttindi til að brautskrá stú-
denta, luku stúdentsefni þaðan
prófi við Menntaskólann í
Reykjavík á sl. vori.
☆
Dr. Benjamín Eiríksson, ráðu-
nautur ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum, hefur verið ráðinn
bankastjóri h i n s nýstofnaða
Framkvæmdabanka.
☆
Vegna fráfalls Jósefs V. Stal-
ins marskálks, forsætisráðherra
Ráðstjórnarríkjanna, sendi for-
seti íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, Nikolai Shvernik for-
seta Ráðstjórnarríkjanna, sam-
úðarkveðjur. Bjarni Benedikts-
son utanríkisráðherra sendi sam-
uðarkveðjur Jakob Malik að-
8. MARZ
Ráð-
stoðar utanríkisráðherra
st j órnarríkj anna.
☆
Þessi framboð við alþingis-
kosningarnar í sumar voru gerð
kunn í vikunni, sem leið: Emil
Jónsson verður í framboði fyrir
Alþýðuflokkinn í Hafnarfirði,
Benedikt Gröndal í Borgarfjarð-
arsýslu og Guðmundur I. Guð-
mundsson í Gullbringu- og Kjós-
arsýslu. Af hálfu Framsóknar-
flokksins verður Sigurvin Einars
son í kjöri í Barðastrandarsýslu,
og listi flokksins í Árnessýslu
verður þannig skipaður: Jörund-
ur Brynjólfsson, Hilmar Stefáns-
son, Þorsteinn Sigurðsson og
Gunnar Halldórsson. Ó 1 a f u r
Thórs v e r ð u r frambjóðandi
Sjálfstæðisflokksins í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, Pétur
Gunnarsson í Mýrasýslu og
Friðjón Þórðarsson í Dalasýslu.
☆
Norrænt bindindisþing verður
háð hér á landi í sumar í byrjun
ágúst. Það er 19. norræna bind-
indisþingið og hið fyrsta, sem
háð er hér á landi. Það munu
sækja um 220 erlendir bindindis-
monn. ísléndingar hafa sótt nor-
ræn bindindisþing í rúm 30 ár
og átt fulltrúa í stjórn þeirra í
rúman aldarfjórðung. Tilgangur
þinganna er að efla bindindiS'
hreyfinguna á Norðurlöndum,
svo sem mest má verða með fyr-
irlestrum, umræðum og persónu-
legri samvinnu. Þingið verður
sett í þjóðleikhúsinu að kvöldi
31. júlí. Um 170 erlendir gestir
koma með norska skipinu Branc
V, og um það bil 50 með Gull
fossi. Hópur Svíanna verður
langstærstur og eru líkur til
þess, að í þeim flokki verði há-
templar Góðtemplarareglunnar
Ruben Wagnson landshöfðingi í
Kalmar.
☆
Menntamálaráð hefur nýlega
úthlutað námsstyrkjum og gert
tillögur um námslán, en á fjár-
lögum þessa árs eru veittar 875
000 krónur til námsstyrkja og
400,000 krónur til námslána. Að
þessu sinni bárust 237 umsóknir
um styrki og lán. Veittir voru
framhaldsstyrkir til 69 náms-
manna. Lán verða veitt með
sömu kjörum og á sl. ári, en sú
breyting var nú gerð, að náms-
mönnum, sem hlotið höfðu styrk
frá Menntamálaráði fjórum sinn
um og eiga enn nám fyrir hönd-
um, var gefinn kostur á láni, og
21 námsmanni úthlutað slíku
láni. Styrkirnir voru að þessu
sinni, eins og þrjú síðastliðin ár,
m i s h á i r eftir dvalarlöndum.
Fylgt var þeirri regul, að veita
eigi styrk til þess námsfólks,
sem ekki hafði byrjað nám, þeg-
ar styrkveitingin fór fram. Það
námsfólk, sem hyggst að stunda
eða stundar langt nám var að
öllu jöfnu látið sitja fyrir um
styrku og lán. Um stúdenta, sem
sækja um styrk til verkfræði-
náms erlendi en hafa ekki áður
lokið fyrrihlutaprófi við verk-
fræðideild háskólans hér, er
fylgt þeirri reglu, að ef hægt er
að stunda námið hér að fyrri-
hluta, hljóta þeir ekki styrk fyrr
en þeir hafa lokið sem svarar
fyrrihlutaprófi annars staðar.
Frá þessu er aðeins vikið, ef sér-
stakar ástæður eru fyrir hendi.
☆
íslenzkum stúdent stendur til
b o ð a námsstyrkur við Dart-
mouth College í Bandaríkiunum
næsta vetur. Fær styrkhafi ó-
keypis kennslu, um 700 dollara
til greiðslu á fæði og húsnæði
og 50 dollara á mánuði til ann
arra þarfa. Er hún um að ræða
u p p h a f stúdentaskipta milli
Dartmouth College og Háskóla
íslands, og mun stúdent þaðan
verða hér við nám í íslenzku.
Skrifstofa Háskóla íslands veit
ir nánari upplýsingan.
☆
I ráði er að byggja við Lands-
spítalann í Reykjavík nýja álmu
og eiga að verða 100 sjúkrarúm
í þeirri viðbyggingu. Einkum er
aðkallandi að þar verði komið
upp sjúkradeild handa þeim
sjúklingum, sem þarfnast geisla-
lækninga, þar sem hvergi eru
hér geislalækningatæki nema í
Landsspítalanum. Ætlunin er,
að byrja á þessu verki í vor og
verja til þess 5 til 6 miljónum
króna á þessu ári. Krabbameins-
félag íslands hefur samþykkt að
stuðla að þessari stækkun spítal-
ans með því að efna til almennr-
ar fjársöfnunar til þess að flýta
byggingarframkvæmdum, og
mundi sú fjárhagsaðstoð þá bund
in því skilyrði ,að sjúklingum,
sem þurfa geislalækningu, verði
tryggð 16 til 20 rúm í viðbygg-
ingunni. Fyrsta starfsár Lands-
spítalans nutu 11 sjúklingar
geislalækninga í Röntgendeild-
inni, en árið 1952 voru þar 144
sjúklingar til röntgen- og radí-
um-lækninga vegna illkynjaðra
meinsemda. Af þeim voru 39
rúmfastir í ý m s u m deildum
Landsspítalans, en margir urðu
að koma og fara daglega vegna
skorts á sjúkrarúmum.
☆
Nú eru liðin 22 ár síðan farið
var að veita styrki úr Minningar
gjafasjóði Landsspítala íslands,
og hafa alls verið veittar úr hon-
um um 430,000 krónur, og sjóð
urinn nemur nú um 650,000
krónum. Fé úr sjóðinum hefur
hingað til verið varið til að
hjálpa fólki til að greiða sjúkra-
kostnað í Landsspítalanum, en
nú hefur sjóðurinn fært út
starfssvið sitt
Vatnsskortur er mikið vandamál víða um heim
Deilur um vatnsrétiindi — og
jafnvel rigningu — eru algengar
með breytingum
á skipulagsskrá og verða fram
vegis einnig veittir styrkir úr
honum til sjúkrahússdvalar er-
lendis, fáist ekki fullnaæjandi
læknishjálp hérlendis.
☆
I febrúarmánuði sl. f 1 u 11 i
Flugfélag íslands samtals hátt
á 12 hundrað farþega, þar af 155
milli landa. Bæði og fólksflutn-
ingar með vélum félagsins juk
ust stórlega, miðað við sama
mánuð í fyrra, en póstflutningar
minnkuðu mikið. Farnar voru
tvær ferðir til Grænlands í mán-
uðinum, og eru horfur á því að
Er menn hafa í huga vot-
viðrasamt veðurlag á suð-
vesturhluta Islands, er næsta
erfitt að gera sér grein fyrir
því, að útvegun neyzluvatns
geti verið vandamál í
heiminum.
En vatnsskorturinn er mikil
hætta, sem fer vaxandi með
íverju ári. Það er t. d. algent
lagabrot í Karachi, höfuðborg
Pakistans, að stela vatni á geitar
skinnsbelg úr einhverjum vatns-
geyminum þar, sem lögregla eða
herlið halda jafnan vörð um.
Án vatns getur engin lífvera
dafnað, en jafnframt því er það
mikilvægt efni og notað við
margs konar iðnað. Til þess að
framleiða eina smálest af fyrsta
flokks stáli, þarf hvorki meira
né minna en 270 smálestir af
vatni, og svipað magn þarf til
þess að búa til eina smálest af
pappír. Auðvelt er að reikna út
hve mikils neyzluvatns er þörf | miklum dei]um og pólnískri tog.
segja um vatnið, sem bundið er
í jökulbungum heimsskautanna.
Segja má, að við getum ekki
notfært okkur 95% af þessu
vatnsmagni fyrirhafnarlaust.
Hin ^prósentin eru í ósöltum
vötnum, fljótum eða vatnsæðum
neðanjarðrfr. Óbeint fáum við
þó allt vatn frá heimshöfunum.
Amerískur jarðfræðingur hefir
reiknað út, að um það bil 80.000
teningsmílur vatns gufi upp ár
hvert, og falli síðan til jarðar
sem regn, en mikið af því fellur
að sjálfsögðu aftur í höfin.
Vatnsskorturinn hefir víða
leitt til „rányrkju“. Menn bora
æ dýpra eftir vatni og á fáum
árum þrjóta neðanjarðarvatns-
bólin, sem náttúran hefir verið
að koma sér upp á mörg þúsund
árum.
Vain orsakar deilur
Mannkyninu er löngu orðið
ljóst, að vatn er verðmætt. Þar
af leiðandi hefir réttur til njóta
og stöðuvatna iðulega valdið
— þ. e. vatns, sem raunverulega
er drukkið eða notað í mat, en í
nýtízku iðnaðarþjóðfélagi getur
vatnsnotkunin komizt upp í 4000
lítra á sólarhring á hvern íbúa.
Sums staðar er miklum erfið-
leikum bundið að útvega vatn.
T. d. segja Danir, að bráðlega
verði erfitt að sjá Kaupmanna-
höfn fyrir nægilegu vatni frá
vatnsbólum Sjálands.
Mikið valn, sem erfitt er
að nota
70.8% af yfirborði jarðar eða
361 milj. ferkílómetrar, eru
huldir vatni, en hins vegar er
ekki fyrirhafnarlaust unnt að
nota hið ævintýralega magn sem
þar felst. Svipaða sögu er að
Guðrún Brunborg kvikmynd
frá síðustu vetrar-olympíuleik-
unum og verður ágóðanum varið
til þess að kaupa íbúðir fyrir ís-
Flugfélag íslands taki að sérjlenzka námsmenn í stúdenta-
meiri flutninga fyrir dansk að
ilja til og frá Grænlandi í ná
inni framtíð. Flugvél frá Flug-
félagi íslands flutti í fyrradag
danskan læknir til Meistaravík-
ur í Grænlandi, en læknirinn
Dar í ná mabænum hafði veikst.
Um 50 Danir hafa þar vestur-
setu.
☆
Dönsk kennarasambönd hafa
ooðið 15 íslenzkum kennurum
til þriggja vikna dvalar í Dan-
mörku í júnímánuði í sumar, og
tekur boð þetta til kennara við
barnaskóla og framhaldsskóla.
☆
Áburðarverksmiðjan auglýsti
í fyrra að stofnað væri til sam-
k e p p n i á framleiðsluvörum
verksmiðjunnar, og bárust nær
tvö hundruð tillögur. Ákveðið
var að veita fyrstu verðlaun fyr-
ir heitið Magni.
☆
Kvennadeild Slysavarnafélag-
sins á Siglufirði átti nýlega 20
ára afmæli. Deildin hefur safnað
samtals 200,000 krónum til slysa-
varna síðan hún tók til starfa og
m. a. látið byggja skipbrots-
mannaskýli að Látrum við Eyja-
fjörð og eflt mjög björgunar-
skútusjóð Norðurlands.
i *
Komið er á fjórða ár síðan
fjárskipti fóru fram um mestan
hluta Snæfellsness og er heildar
tala sauðfjár orðin heldur hærri
þar en var fyrir niðurskurðinn.
Nýji fjárstofninn, sem er af
Vestfjörðum, hefur reynzt af-
urðagóður en ekki jafnduglegur
til beitar og gamli fjárstofninn.
1 haust og í vetur voru stofnuð
10 sauðfjárræktarfélög á Snæ-
fellsnesi og ráðinn búfræðingur
til að ferðast á milli félaganna og
leiðbeina bændum um sauðfjár-
rækt í vetur.
☆
Skákþingi Reykjavíkur er ný-
lega lokið. Skákmeistari Reykja-
víkur varð Lárus Johnsen.
☆
Um þessar mundir sýnir frú
bænum á Sogni í Oslo. Þegar
hafa 10 íslenzkir námsmenn feng
ið þar herbergi, og eigi þær í-
búðir að greiðast á fjórum árum.
Frú Guðrún Brunborg hefur um
mörg undanfarin ár unnið að
eflingu menningartengsla milli
Noregs og íslands og orðið mik-
ið ágengt.
☆
Á föstudaginn var gerð í
Reykjavík útför Ólafs Thorlaci-
us, fyrrum héraðslæknis, er lézt
í Landsspítalanum laugardaginn
28. febrúar sl. Mikið fjölmenni
var við útförina.
☆
Ferðaskrifstofa ríkisins hefir
ákveðið að gangast fyrir
skemmtiferðum héðan til Spánar
í vor, og verður farið flugleiðis.
Tvær ferðir verða í apríl og ein
í byrjun maí.
☆
Skautamót íslands var haldið í
Eyjafirði á miðvikudaginn og
fimmtudaginn, og voru keppend-
ur níu, allir út Skautafélagi
Akureyrar. Sett voru sex Islands
met. Björn Baldursson, Akur-
eyri, varð Islandsmeistari í
skautahlaupi og hlaut Skauta^
bikar íslands. Hann hljóp 5000
metra á 9 mín. 58,3 sekúndum.
Stigatala hans var 223,280. Norski
skautahlauparinn Reidar Lia-
klev, sem að undanförnu hefir
þjálfað skautamenn á Akureyri,
sýndi skautaíþróttir á mótinu.
☆
Sendiráðið brezka færði Lands
bókasafni íslands nýlega 60
nýjar bækur enskar að gjöf frá
British Council. Er þar um að
ræða ýmis nýjustu rit enskra
höfuðskálda.
☆
Nýtt blað hefur hafið göngu
sína í Reykjavík. Það er mynda-
blað og nefnist Fréttir í myndum.
Skýringartextar eiga að fylgja
myndunum en lesmál að öðru
leyti mun verða lítið. Blaðinu er
ætlað að koma út einu sinni í
mánuði.
streitu. Til dæmis hafa Egyptar
og Súdanbúar löngum deilt um
réttinn til vatnsins í Níl. Stíflu-
garðar, sem e. t. v. væru til hinna
mestu hagsbóta fyrir landbúnað
í Súdan, hefðu í för með sér
háskalega þurrka og bitra neyð
í Egyptalandi. Á sama hátt veld-
ur fljótið Indus heiftarlegum
deilum milli Pakistan-búa og
Indverja. Pakistan á mikið
undir fljóti þessu, en Indverjar
ráða yfir þrem mikilvægustu
kvíslunum, sem í það falla frá
Punjab. Mikið af vatni því, sem
veitt er á stór svæði í Pakistan,
kemur frá yfirráðasvæði Ind-
verja, og við hefir borið í Kas-
mírdeilunni, að Indverjar hafi
„skrúfað fyrir“ vatnið.
Svipuðu máli gégnir um ána
Jórdan í Israel, en eins og sakir
standa fellur hún ónotuð að heita
má í Dauða hafið. Vegna fram
tíðarskipunar iðnaðar og land-
búnaðar í Jórdaníu og ísrael er
nauðsynlegt, að Gyðingar og
Arabar komi sér saman um
notkun vatnsins.
nægilegt magn af fersku vatni
eru sameiginlegir mörgum lönd-
um heims. En alveg sérstaklega
er ástandið alvarlegt í Asíu.
Ýkjulaust má fullyrða, að örlög
um 500 milj. manna eru undir
því komin, hvernig unnt er að
nýta fljótin og aðra vatnsgjafa.
Með áveitum má rækta matvæli
handa hungruðu fólki, en raf-
orkuver má nota til iðnaðar-
þarfa og þar með bættrar af-
komu fólksins.
Á Indlandi eru stærstu land-
flæmi heims, sem áveitur eru
notaðar við, en aðeins 6% af
vatnsorku landsins er nýtt. —
Hinir 94 hundraðshlutarnir fara
ónýttir til sjávar, en valda oft
og einatt feikna eyðileggingum.
Hungurvofan blasir ævinlega við
350 milj. íbúum landsins.
Mikil áform Indverja
Indlandsstjórn hefir á prjón-
unum gífurleg áform um stíflu-
garða og vatnsveitur, sem vafa-
laust er nægilegt viðfangsefni
þessa öld. Þar er einna stórfeng-
legust Bhakra-Nagngal stíflan,
200 metrar á hæð, en ofan við
hana myndast stöðuvatn, 100
km. á lengd. Um 60 þús. manns
vinna nú við þá framkvæmd,
sem verður lokið árið 1956, en
allt er þetta unnið af handafli,
að heita má.
Ceylonbúar, sem eru um 7,3
milj. að tölu, eiga einnig við
vatnsskort að stríða. Þar hafa
menn gripið til þess ráðs að
endurbæta vatnsker, sem finna
má inn í frumskógum landsins,
og notuð eru til að safna regn-
vatni, og eru sum þeirra um 100
ára gömul. Þar mætist gamalt og
nýtt, en menn telja að þessi
gömlu steinker geti nú enzt í
nokkrar aldir til viðbótar í glím
unni við þessa erfiðleika, sem
forfeðurnir áttu einnig við að
stríða.
—VISIR, 17. febr.
Hver á skýin?
Víða 1 heiminum hefir komið
til deilna um vatnsréttindi, svo
sem milli írans og Afghanistans,
svo og í Bandaríkjunum, milli
fylkjanna Kaliforníu og Arizona,
Montana og Wýoming, Colo-
rado og Nebraska. Þá hefir rign-
ingarvatn stundum orsakað lög-
fræðilegar deilur í Bandaríkjun-
um. Stundum er unnt að láta
ský gefa frá sér raka, „búa til
rigningu“ með því að dreifa kol-
sýrudufti úr flugvélum ofan á
skýin. — En hverjum heyra
skýin til? Hvað segir bóndinn,
sem sér skýin „nema staðar“ og
vera rænd vætunni, rétt áður
en þau koma inn yfir landareign
hans? Eða er hægt að fá mann-
inn, sem veldur rigningu með
þessum hætti, dæmdan til þess
að greiða knattspyrnumótsnefnd
skaðabætur vegna þess, að helli-
rigning skellur á til handa bænd
um, sem búa í námunda við
völlinn?
Erfiðleikarnir á því að útvega
Fimm menn
drukkna
Fjórir menn komust lífs af á
gúmmíbát upp í Landeyjarsand
Það hörmulega slys skeði í
gær, að Vestmannaeyjabáturinn
Guðrún VE 163 fórst milli Eyja
og lands og drukknuðu fimm
menn. Fjórir skipverjar komust
hins vegar lífs af í gúmmíbát
upp í Landeyjarsand og að Hall-
geirsey síðdegis í gær, einn.
þeirra þó meiddur á handlegg.
Menn þeir, sem komust lífs af,
voru Reynir Böðvarsson, Sveinn
Hjálmarsson, vélstjóri, Jón
Björnsson og Hafsteinn Júlíus-
son. •
Þeir, sem fórust, voru Óskar
Eyjólfsson, skipstjóri, G u ð n i
Rósmundsson, Sigþór Guðnason,
Elís Hinriksson og Kristinn Aðal
steinsson. Þeir munu flestir eða
allir hafa verið kvæntir og
flestir átt heima í Eyjum, en
sumir nýfluttir úr öðrum lands-
hlutum.
Þeir, sem af komust, eru allir
úr Vestmannaeyjum og yngstu
mennirnir af bátnum.
— TIMINN, 24. febr.
STRIVE FOR KNOWLEDGE
In these modern times Business College
Education is not only desirable but almost
imperative.
The demand for Business College Educa-
tion in industry and commerce is steadily
increasing from year to year.
Commence Your Business
Training immediately!
For Scholarships Consult
THE COLUMBIA PRESS LIHITED
PHONE 74-3411 695 SARGENT AVE., WINNIPEG