Lögberg - 07.05.1953, Page 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil • Gmu
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
*
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
66 ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 7. MAÍ, 1953
NÚMER 19
P. H. T. Thorlakson, M.D., LL.D., heiðraður
ósamt frú með virðulegu samsæti
sæmdur Stórriddarakrossi hinnar íslenzku Fálkaorðu
°g
Á fimtudagskvöldið hinn 30.
apríl síðastliðinn, var P. H. T.
Thorlakson, M.D., L.L.D., heiðr-
aður ásamt frú með eftirminni-
legu og glæsilegu samsæti í
salarkynnum Royal Alexandra
hótelsins, og má með fullum rétti
segja, að þar hafi ríkt hinn
fegursti eindrægnisandi. Þjóð-
ræknisfélagið stóð að samsætinu
og forseti þess, séra Valdimar J.
Eylands, hafði með höndum
veizlustjórn, og leysti hann þann
starfa af hendi með miklum
skörungsskap. Fyrverandi for-
seti félagsins, séra Philip M.
Pétursson, flutti borðbæn.
Að loknu borðhaldi hófst hin
reglubundna skemtiskrá; reis þá
G. L. Johannson ræðismaður úr
Dregur sig í hlé
Hon. J. S. McDiarmid
Eftir þrjátíu ára stjórnmála-
feril hefir Hon. ÍJ. S. McDiarmid
náttúrufríðindaráðherra fylkis-
stjórnarinnar dregið sig í hlé af
stjórnmálasviðinu og leitar ekki
endurkosningar í Winnipeg
South kjördæmi í hinum al-
mennu kosningum, sem haldnar
verða hinn 8. júní næstkomandi.
Þess er getið til, að Mr, Mc-
Diarmid verði næsti fylkisstjóri,
er Mr. McWilliams lætur af því
embætti, sem líklegt þykir að
verði í sumar.
í South Winnipeg kjördæmi
hefir Liberal-flokkurinn tvo
frambjóðendur í kjöri, Mr.
Turner fjármálaráðherra . og
Mr. McLeod, fyrrum bæjarfull-
trúa.
Lætur af
þingmensku
Mr. Austin Dewar þingmaður
fyrir Ou’Appelle sambandskjör-
dæmið í Saskatchewan, hefir
sagt af sér þingmensku, eða
sennilega verið knúður til þess
vegna orðróms, sem fékk vængi
og því laut, að grunsamlegt
þætti um viðskipti hans við
byggingarfélag eitt í Regina,
sem hafði með höndum allmikið
verk fyrir sambandsstjórnina;
er Mr. Dewar, sem telst til
stjórnarflokksins, kunngerði
þingmannsafsal sitt, kvaðst hann
ekki hafa hagnast um grænan
túskilding í viðskiptum sínum
við áminst félag og lýsti jafn-
framt yfir því, að hann myndi
leita endurkosningar í kjördæmi
sínu; mál þetta hefir vakið geisi-
umtal jafnt utan þings sem
innan. \
sæti og nældi á Dr. Thorlakson
fyrir hönd forseta íslands, Stór-
riddarakross hinnar íslenzku
Fálkaorðu, en um sömu mundir
hafði ræðismanni hlotnast heið-
ursmerki sömu tegundar; að
þessum lið loknum, sem mjög
jók á virðuleik samsætisins, risu
veizlugestir úr sætum, að til-
mælum veizlustjóra og drukku
skál forseta íslands. Þá tóku til
máls Dr. Gillson forseti Mani-
tobaháskólans, prófessor Finn-
bogi Gupmundsson, Dr. C. W.
Burns, hinn nýkjörni forseti
læknafélagsins í Canada og Dr.
C. B. Stewart, samstarfsmaður
heiðursgestsins við Winnipeg
Clinic.
Þau íslenzk mannfélagssam-
tök hér í borg, sem áttu nánast
samstarf við heiðursgestinn
undanfarin ár, bæði í kennslu-
stólsmálinu og á fleirum sviðum,
tóku þátt í samsætinu, en full-
trúar þeirra létu í ljós fögnuð
sinn í stuttum og skilmerkileg-
um ávarpsorðum; má þar til
telja Mr. G. F. Jónasson, forseta
The Columbia Perss Ltd. og út-
gáfunefndar Lögbergs, en hann
og Dr. Thorlakson hafa skipt
með sér forustu í stjórn fyrir-
tækisins í mörg undanfarin ár;
af hálfu Jóns Sigurðssonar fé-
lagsins, I.O.D.E., flutti ávarp
Mrs. B. S. Benson, Mr. J. T. Beck
tók til máls fyrir hönd Good
templara, af hálfu Leifs Eiríks-
sonar félagsins flutti ávarp ung-
frú Lilja Eylands, en Jón Ás-
geirsson fyrir hönd Fróns.
Með einsöng skemtu Mrs.
Lincoln Johnson með aðstoð
Miss Sigrid Bardal og Mr.
Robert Publow, en um undirleik
annaðist Mrs. McKidd; með
hljóðfæraslætti skemti hljóm-
sveit Pálma Pálmasonar.
Fyrir hönd Thorlakson fjöl-
skyldunnar tók til máls séra H.
S. Sigmar sóknarprestur á Gimli.
W. J. Lindal dómari, mælti
fyrir minni Mrs. Thorlakson, en
Mrs. V. J. Eylands afhenti henni
forkunnar fagran blómknapp. —
Einar P. Jónsson flutti kvæði,
en fyrir minni Dr. Thorlakson’s
maélti Arni G. Eggertson, Q.C.,
og er ræða hans birt á öðrum
stað hér í blaðinu; heillaóska-
skeyti voru lesin frá Dr. Richard
Beck og frú, séra Agli Fáfnis og
frú, Dr. Rúnólfi Marteinssyni og
frú, Guðmundi Grímssyni hæsta-
réttardómara og frú, ungfrú
Helgu Sigurdson í New York og
frá Dr. Haraldi Sigmar og frú í
Blaine fyrir hönd meðlima Thor-
laksson-fjölskyldunnar á Kyrra-
hafsströndinni.
í lok samkvæmisins þakkaði
Dr. Thorlakson með hlýjum og
fögrum orðum þeim öllum, er
að undirbúningi mannfagnaðar-
ins hefðu unnið og hverjum út
af fyrir sig, er við skemtiskrá
var riðinn; hann þakkaði inni-
lega ungfrú Margréti Pétursson
fyrir hennar frábæra starf í
kenslustólsmálinu, og þeim
mæðgum, að 45 Home Street,
fyrir alúð og gestrisni, en á
heimili þeirra hélt nefndin flesta
fundi sína; því miður gátu þær
mæðgur ekki komið því við að
sitja veizluna, og var öllum að
því mikil eftirsjá. Ennfremur
þakkaði hann Dr. Lárusi Sigurd-
son og öðrum nefndarmönnum
fyrir starf þeirra í háskólastóls-
nefndinni.
íslenzka mannfélagið á Dr.
Thorlakson mikið gott upp að
unna; hann hefir reynst því
traustur og ósérhlífinn forustu-
maður og stækkað flestum
fremur menningarlegt landnám
þess í Vesturvegi; hann þakkaði
með nokkurri viðkvæmni sæmd-
ina, er forseti íslands hefði veitt
sér og hvatti jafnframt Vestur-
íslendinga til samstiltra átaka
um verndun íslenzkunnar og
annarra dýrmætra menningar-
erfða.
Samsætinu sleit með því, að
allir sungu God Save the Queen.
Dr. P. H. T. Thorlakson
(Samsætisljóð)
Eftir EINAR P. JjÓNSSON
Að eignast menn, sem voga að horfa hátt,
er hjartastyrking einstaklinga og þjóða.
Og þeim, er djarfir sigla í sólarátt
er sjaldan hætt í roki Drafnarslóða,
því formannseðlið á síns upphafs þátt
í erfðafestu brims og hetjuljóða.
Þó torfær leið til sigurhæða sé
hún sækist þeim, er hörfa ei til baka,
því víkingslundin á sín óðalsvé
og útskygni til lífsins dýpstu raka.
Þeim bjargar fátt, sem hypja sig í hlé
og hafa ekki rænu á að vaka.
Að nema lönd og lækna mannkyns sár,
er lífsins fyrsta og stærsta aðalsmerki.
Sá verður enginn ungur elligrár,
sem iðkar boðorð kærleikans í verki.
Þó sviftibyljir hristi reiða og rár
ei raskast við það formannsandinn sterki.
Ég veit þú reynist jafnan einn af oss,
í allra fremstu röð og stálbrynjaður.
Og þó þú hlytir himinborinn kross,
er hærri tign að vera aðalsmaður.
Er aðrir teldu svefninn sætast hnoss
þú sækja myndir eldinn glaðvaknaður.
Það sæmir lítt að hamra að haustað sé
og hinztu dægur bíði vorrar tungu,
því Island lætur okkur margt í té, —
og ástarljóð, er skáldin fegurst sungu
skal planta eins og lim af lífsins tré
í lífsskoðun og vitund hinna ungu.
Á myndinni sjást þeir Dr. P. H. T. Thorlakson og G. L.
Johannson þar, sem þeir takast í hendur eftir að ræðis-
maður hefir fyrir hönd forseta íslands, nælt á hann
Stórriddarakrossi hinnar íslenzku Fálkaorðu.
Fréftir fró ríkisúfvarpi íslands
Kalt hefir verið hér á landi að
undanförnu og á sumardaginn,
fyrsta var sums staðar stórhríð
norðanlands og vegir í byggð
tepptir af fönnum. Sunnanlands
var þá bjart en hvasst og kalt.
Samt voru hátíðahöldin í Reykja
vík á sumardaginn fyrsta mjög
fjölmenn. — Barnavinafélagið
Sumargjöf efndi til skemmtana
í flestum samkomuhúsum bæj-
arins, eins og venja er, en
skemmtanirnar byrjuðu með því
að börn gengu prúðbúin og með
fána í skrúðgöngu frá tveimur
barnaskólum bæjarins á Austur-
völl og voru í fylkingunum
skrautvagnar og á þeim ýmsar
persónur úr ævintýrum, m. a.
Sauðhetta litla og úlfurinn, ís-
birnir og krummahjón, og á ein-
um vagni var sumarið sjálft en
á öðrum Vetur konungur. Þótti
börnum þetta hin bezta skemmt-
un. Staðnæmst var á Austur-
velli og þar flutti séra Óskar J.
ÞorláksSon stutta ræðu af svöl-
um alþingishússins. — Sumar-
gjöf lét selja merki og blöð
þennan dag til ágóða fyrir starf-
semi sína og samkvæmt bráða-
birgðauppgjöri námu tekjurnar
126.000 krónum, og er það all-
miklu meiri upphæð en í fyrra.
— Barnavinafélagið Sumargjöf
annast rekstur barnaheimila í
Reykjavík og rennur fé þetta til
þeirrar starfsemi.
☆
Þeir Bjarni Benediktsson utan
ríkisráðherra og Hermann Jónas
son landbúnaðarráðherra fóru
flugleiðis til Parísar á þriðjudag-
inn og sátu þar ellefta ráðsfund
Atlantshafsbandalagsins, s e m
lauk í París í gær. í för með
þeim var Hans G. Andersen
þjóðréttarfræðingur. Ráðherr-
arnir eru væntanlegir heim aftur
á morgun.
☆
Biskupinn yfir íslandi, herra
Sigurgeir Sigurðsson, hefir fyrir
nokkru ritað öllum próföstum
landsins bréf um það, að hann
•hafi ákveðið að hinn almenni
bænadagur þjóðkirkjunnar skuli
að þessu sinni vera sifhnudaginn
10. maí. Þetta er þriðji almenni
bænadagurinn, sem haldinn er
á vegum kirkjunnar. Hinir voru
1951 og 1952.
Prestastefna íslands verður að
þessu sinni haldin í Reykjavík*
25. APRÍL
dagana 19. til 21. júní og hefst
með guðsþjónustu í dómkirkj-
unni.
☆
Karlakór Reykjavíkur kom
heim úr Miðjarðarhafsför sinni
í gær og var mikill fjöldi fólks á
hafnarbakkanum til að fagna
kórnum og öðrum farþegum á
Gullfossi, þegar skipið lagðist að
hafnarbakkanum. Kórinn söng
víða, bæði í útvarp og í sam-
komusölum, og meðal annars
söng kórinn fyrir páfann í við-
hafnarsal í Páfagarði. Við það
tækifæri sæmdi páfinn söng-
stjórann Sigurð Þórðarson heið-
ursmerki, og ræðan, sem páfinn
flutti þá, birtist á forsíðum blað-
anna í Rómaborg. Síðasti sam-
söngur kórsins var í Lissabon.
☆
Ákveðið hefir verið, að Iðnað-
arbanki íslands h.f. taki til
starfa 25. júní í sumar og sama
dag verður aðalfundur bankans
haldinn í Reykjavík. Bankastjór-
inn, Helgi Hermann Eiríkssonv
og bankaráð vinna nú að því að
undirbúa starf bankans.
☆
Á sunnudaginn var fór fram
lokun áfengisútsölunar þar í bæ.
atkvæðagreiðsla á ísafirði um
Á kjörskrá voru 1535, en at-
kvæði greiddu rúmlega 900. —
Samþykkt var með 562 atkvæð-
um gegn 357 að loka útsölunni.
☆
1 marzmánuði s.l. var hafizt
handa um að fylla upp í ós Bessa
staðatjarnar á Álftanesi. Sjórinn
hefir stöðugt brotið þar æ meira
land með því að grafa undan
tjarnarbökkunum, og í stór-
straumi flæddi yfir um 20 hekt-
ara lands, sem nú verður hægt
að nytja, þegar ósinn hefir verið
fylltur. Teknar voru á leigu til
framkvæmdanna tvær jarðýtur.
Verkinu lauk á mánudaginn var,
og nam kost;naðurinn um 300.000
krónum.
☆
Aðfaranótt miðvikudagsins
kom upp eldur í hraðfrystihús-
inu á Suðureyri í Súgandafirði
og varð ekki slökktur fyrr en
um hádegið. Vélar frystihússins
ónýttust, enda brann vélasalur-
inn, svo og flökunarsalur, fiski-
móttaka og skrifstofur fyrir-
tækisins og þak af tveimur fisk-
25 ár við
Háskóla íslands
I dag á próf. Asmundur
Guðmundsson aldarfjórð-
ungs afmæli sem kennari
við Háskóla íslands.
Próf. Ásmundur var skipaður
kennari við guðfræðideild Há-
skólans 1. apríl 1928, dósent 2.
sept. 1929, en prófessor hefir
hann verið frá árinu 1934.
Nemendur guðfræðideildar
Háskólans færðu honum í dag
biblíu í skinnbandi, áritaða með
skrautletri, en allir nemendur
deildarinnar rituðu nafn sitt á
hana og þökkuðu próf. Ásmundi
störf hans. —VÍSIR, 1. apríl
Gerður Helgadóttir
getur sér orð
erlendis
Gerður Helgadóttir mynd-
höggvari opnaði sýningu á
verkum sínum í Brussel
síðastliðinn miðvikudag.
Hafði henni verið boðið að
halda sýningu þar í borg í sýn-
ingarsal, sem nefnist Gallerie
Appollo, og eru það einvörðungu
ný verk, sem Gerður sýnir þar.
Hún fór til Parísar síðastliðið
haust, og hefir unnið að verkum
þessum síðan.
Þá hefir Gerði og verið boðið
að sýna í Köln í Þýzkalandi, og
í maílok stendur henni til boða
að halda sýningu í París, en um
þessar mundir er hún einnig
þátttakandi í samsýningunni i
Osló og Bergen.
Gerður var meðal þeirra, sem
sendu verk á sýninguna í Lon-
don, sem kennd er við óþekkta,
pólitíska fangann. Aðeins var
ltið brot verka þeirra, er send
voru, valin úr til þess að vera á
sýningunni, og hljóta þau öll
verðlaun. Var verk Gerðar tekið
á sýninguna.
Svo sem sjá má af þessu, svo
og ýmsum ummælum, sem birzt
hafa um Gerði og listaverk henn-
ar á undanförnum árum, er það
ljóst, að hún hefir getið sér
skjótan frama á listabrautinni,
og á hún áreiðanlega eftir að
bera hróður íslands víða.
—VISIR, 7. apríl
geymsluklefum. Geysimikill afli
hafði verið þarna dagana áður
og margt manna unnið í hrað-
frystihúsinu, en nú verða bát-
arnir, sem þaðan eru gerðir út,
að leggja afla sinn annars staðar
á land, og verður því um mikið
atvinnutap að ræða fyrir byggð-
arlagið, auk brunatjónsins. í
fiskgeymslum hraðfrystihússins
voru um 10.000 kassar af hrað-
frystum fiski og var megnið af
því óskemmt.
☆
1 Vestmannaeyjum hefir verið
mokafli og má heita að unnið
væri þar um tíma dag og nótt í
fiskverkunarstöðvunum. Kennsla
féll niður að mestu í gagnfræða-
skólanum og nemendur voru
settir til vinnu við fiskaðgerð.
☆
Þessi framboð við alþingis-
kosningarnar í sumar voru kunn
gerð í vikunni: Axel Benedikts-
son skólastjóri verður í kjöri
fyrir Alþýðuflokkinn í Suður-
Þingeyjarsýslu, — á framboðs-
lista Framsóknarmanna í Rang-
árvallasýslu eru þessir menn:
Helgi Jónasson læknir, Björn
Björnsson sýslumaður, Sigurður
Tómasson bóndi á Barkarstöðum
og Hafliði Guðmundsson bóndi í
Búð. Eiríkur Þorsteinsson al-
Framhald á bls. 5