Lögberg - 07.05.1953, Page 2
2
LÖGBERG, FIMTUÐAGINN, 7. MAÍ, 1953
Hinir ódauðlegu menn þjóðanna
Eftirfarandi arindi var skrifað árið 1949 og þá boðið ríkis-
útvarpinu, en var ekki talið boðlegt hlustendum útvarps-
ins. Til þess að hafa ekki unnið verkið fyrir gýg, áræði ég
nú að bjóða lesendum Einingar það, þótt ég kunni að hljóta
vanþökk fyrir. Fram undan er páskavika og á þá ekki illa
við að lesa spjall um spámenn og skáld. — P. S.
Hinn heimskunni söguritari
og rithöfundur, H. G. Wells. telur
6. öldina f. Kr. eitt merkilegasta
timabil fornaldarinnar, sökum
þess, að þá voru uppi ýmsir spá-
menn og spekmgar, sem mann-
kynssagan greinir. Weils segir:
„Sjötta öldin var raunar ein
merkilegasta öld sögunnar. Alls
staðar var sem færðist nýr
þróttur í mannlega hugsun . . .
Og það er vert að geta þess hér
um leið, hve mikilvæg sjötta
öldin f. Kr. var í sögu mann-
kynsins, því að þá voru ekki að-
eins grísku heimspekingarnir að
reyna að gera sér ljósar hug-
myndir um heiminn og stöðu
mannsins í honum og Jesaja að
hefja spádóma Gyðinga á hæsta
stig þeirra, heldur var . . . Gaut-
ama Budda að kenna á Indlandi
og Kung Tu-tse og Lao-tse í
Kína.“
Það er bæði skemmtilegt og
eftirtektarvert, að söguritarinn
skuli leggja slíkan mælikvarða á
ágæti hvers tímabils.
Þessir menn voru stórtækir,
jafnt á aga sem útbýtingu mik-
illar andlegrar auðlegðar. Þeir
höfðu eitthvað að segja. Hvaðan
kom þeim það?
Spámenn ísraels hefja oft upp
raust sína á þessum orðum: „Orð
drottins kom til mín, svo hljóð-
andi.“ — Með öðrum orðum:
þeir höfðu orðið einhvers að-
njótandi. Þeim hafði gefizt, þeir
voru sendir, þeir höfðu boðskap
að flytja, líkt og eldingu hafði
einhverri hugsjón slegið niður í
þeim, það hafði eins og kviknað
í þeim, þeir voru brennandi í
anda, heitir og máttugir í boðun
orðsins. Þeir höfðu séð sýnir,
fengið vitranir og miklar gjafir
andans. Hið innra brann eldur
guðmóðs, eldur áhuga og vand-
lætingar, hirtingavöndurinn er
jafnsár sem fyrirheitin eru
glæsileg og vonarbjarminn skær.
Þeir þruma yfir mönnum, láta
tilheyrendur sína finna sem þeir
standi á barmi glötunar, á barmi
sjálfs helvítis, en sjái þó inn í
himnana allt að hásæti almættis-
ins og útréttum náðarfaðmi
Guðs. Þeir mála spillingu þjóð-
lífsins sterkum, litum og þræl-
dóm hins syndsamlega lífs, sem
mönnum beri að hverfa frá, en
þeir láta einnig óskalöndin ljóma
í bjarma hinna dýrðlegustu
fyrirheita:
„Hvergi á mínu heilaga fjalli
(jörðinni) munu menn illt fremja
eða skaða gera, því að jörðin er
full af þekkingu á drottin, eins
og djúp sjávarins er vötnum
hulið . . . Þá mun úlfurinn búa
hjá lambinu og pardusdýrið
liggja hjá kiðlingnum, kálfar,
ung Ijón og alikálfar ganga
1 saman og smásveinn gæta
þeirra . . . brjóstmylkingurinn
mun leika sér við holudyr nöðr-
unnar, og barnið nývanið af
brjósti stinga hendi sinni inn í
bæli hornormsins."
Þannig hljómar einn skærasti
strengurinn og hæsti tónninn í
guðamáli mestu spámannanna.
Annar höfuðspámaður gefur
fyrirheit á þessa leið:
„Sjá, þeir dagar munu koma —
segir drottinn — að ég mun gera
nýjan sáttmála við ísraels hús
og Júda hús ... I þessu skal
sáttmálinn folginn vera, sá er ég
geri við ísraels hús eftir þetta —
segir drottinn: Ég legg lögmál
mitt þeim í brjóst og rita það á
hjörtu þeirra, og ég skal vera
þeirra Guð og þeir skulu vera
mín þjóð. Og þeir skulu ekki
framar kenna hver öðrum, né
neinn bróðirinn öðrum, og segja:
Lærið að þekkja drottin! Því að
þeir munu allir þekkja mig, bæði
smáir og stórir, segir drottinn.“
Og enn fremur:
„Því sjá, ég skapa nýjan him-
in og nýja jörð, og hins fyrra skal
ekki minnst verða og það skal
engum í hug koma. Nei, gleðjist
og fagnið ævinlega yfir því, sem
ég skapa . . . eigi skal þar framar
heyrast gráthljóð eða kvein-
staíir. Eigi skal þar framar vera
nokkurt ungbarn, er aðeins lifi
fáa daga, né nokkurt gamal-
menni, sem ekki nái fullum
aldri, því að sá er þar ungur
maður, sem deyr tíræður . . .
því að aldur fólks míns mun
vera sem aldur trjánna og mínir
útvöldu skulu sjálfir njóta
handaverka sinna. Eigi mumt
þeir erfiða til ónýtis og eigi börn
geta til skammlífis, því að þeir
eru kynslóð manna, sem drott-
inn hefur blessað.“
Og um lausnarverkið jnikla,
segir spámaðurinn Jesaja þetta:
„Andi drottins, Guðs, er yfir
mér, af því að drottinn hefur
smurt mig til að flytja nauð-
stöddum gleðilegan boðskap, og
sent mig til að græða þá, sem
hafa sundurkramið hjarta, til að
boða herteknum frelsi og fjötr-
uðum lausn, til að boða náðarár
drottins og hefndar dag Guðs
vors, til að hugga alla hrellda.“
En svo kveður við annan tón,
þegar þessir miklu andar standa
andspænis vonzku og spillingu
manna: „Þér nöðru afkvæmi,
hver kenndi yður að flýja undan
hinni komandi reiði?/1 Svo þrum-
aði rödd hrópandans og braut-
ryðjandans í eyðimörkinni. Og
Meistarinn sjálfur margendur-
tekur þessar hárbeittu setningar:
„Vei yður, fræðimenn og
farísear, þér hræsnarar . . . þér
höggormar, þér nöðru-afkvæmi,
hvernig ættuð þér að geta um-
flúið dóm helvítis.“
Spámaðurinn Malakía segir:
„Því sjá, dagurinn kemur,
brennandi sem ofn, og allir
hrokafullir og allir þeir, sem
guðleysi fremja, munu þá vera
sem hálmleggir, og dagurinn,
sem kemur, mun kveikja í þeim,
segir drottinn hersveitanna, svo
að hvorki verði eftir af þeim, rót
né kvistur. En yfir yður, sem
óttist nafn mitt, mun réttlætis-
sólin upp renna með græðslu
undir vængjum sínum.“
Ekki er lýsing Jeremía smá-
tækari á þessum viðburðum:
„Sjá, ógæfa fer frá einni þjóð
til annarrar og ákafur stormur
rís á útjaðri jarðar, og þeir, sem
drottinn hefur fellt, munu á
þeim degi liggja dauðir frá ein-
um enda jarðarinnar til annars.
Þeir munu eigi verða harmaðir,
eigi safnað saman og eigi jarð-
aðir, þeir skulu verða að áburði
á akrinum . . . Því að sverði býð
ég út gegn öllum íbúum jarðar-
innar . . .
Iður mín! iður mín! Ég engist
sundur og saman! ó, veggir
hjarta míns! Hjartað berst ákaft
í brjósti mér, ég get ekki þagað!
því að önd mín heyrir lúður-
hljóminn, bardagaópið. Hrun á
hrun ofan er boðað, já, allt land-
ið er eytt . . . Já, fíflsk er þjóð
'mín, mig þekkja þeir ekki,
heimskir synir eru þeir og van-
hygnnir eru þeir. Vitmenn eru
þeir illt að fremja, en gott að
gera kunna þeir ekki. Ég leit á
jörðina, og sjá: hún var auð og
tóm, og upp til himinsins, og
ljós hans var slokknað. Ég leit á
fjöllin, og sjá: þau nötruðu, ög
allar hæðirnar, þær bifuðust. Ég
litaðist um, og sjá, þar var eng-
inn maður, og allir fuglar him-
insins voru flúnir. Ég litaðist
um, og sjá: aldingarðurinn var
orðinn að eyðimörk og allar
borgir hans gereyddar.“
Þessum ægilegu syndagjöldum
þjóðanna lýsir spámaðurinn Jóel
á þessa leið:
„Boðið þetta meðal heiðingj-
anna: Búið yður í heilagt stríð!
Kveðið upp kappana! Allir her-
færir menn komi fram og fari í
leiðangur! Smíðið sverð úr plóg-
járnum yðar og lensur úr sniðl-
um yðar! Heilsuleysinginn,
hrópi: Ég er hetja! Flýtið yður
og komið, allar þjóðir, sem um-
hverfis eruð, og safnist saman.
Drottxnn, lát kappa þína stíga
niður þangað. Hreyfing • skal
koma á þjóðirnar og þær skulu
halda upp í Jósafatsdal, því að
þar mun ég sitja, til þess að
dæma allar þjóðir, sem um-
hverfis eru . . . því að illska,
þeirra er mikil. Flokkarnir
þyrpast saman í dómsdalnum,
því að dagur drottins er ná-
lægur í dómsdalnum.“
Hinni almennu spillingu lýsir
spámaðurinn Hósea með svo-
felldum orðum:
„Drottinn hefur mál að kæra
gegn íbúum landsins, því að í
landinu er engin trúfesti, né
kærleikur, né þekking á Guði.
Þeir sverja og ljúga, myrða og
stela og hafa fram hjá, þeir
brjótast inn í hús, og hvert vígið
tekur við af öðru. Fyrir því
drjúpir landið og allt visnar, sem
í því er, jafnvel dýr merkur-
innar og fuglar himinsins, og
enda fiskarnir í sjónum eru
hrifnir í burtu . . . Lýður minn,
verður afmáður, af því að hann
hefur enga þekkingu. Af því að
þér hafið hafnað þekkingunni,
þá vil ég hafna yður, svo að þér
séuð ekki prestar fyrir mig, og
með því að þér hafið gleymt lög-
máli Guðs yðar, þá vil ég gleyma
börnum yðar. Því voldugri sem
þeir urðu, því meir syndguðu
þeir gegn mér, vegsemd minni
skipta þeir fyrir smán. Þeir lifa
af synd lýðs míns og þá langar í
misgerð þeirra . . . Hór, vín og
vínberjalögur tekur vitið burt.“
Hvílíkur ægilegur dómur: —
„Þeir lifa af synd lýðs míns og
þá langar í misgerð þeirra.“ —
Hafa ekki hinir voldugu meðal
þjóðanna oftsinnis lifað af synd
lýðsins? Hvað má þar segja um
áfengissöluna fyrr og síðar, her-
gagnaframleiðslu og margs kon-
ar spillingu, sem menn hafa
fyrir gróðaveg.
Já, langt yrði það mál, sem
hér þyrfti að flytja, ef gefa ætti
ofurlítið fullnægjandi mynd af
hinni voldugu boðun guðinn-
blásnu mannanna, af hinni ýmist
ægilegu eða þá dásamlegu lýs-
ingu þeirra á viðburðunum, er
þeir boða ýmist refsidóma, dauða
og eyðingu, eða frið, blessun og
hinar mestu dásemdir.
Mál þeirra er hárbeitt og
kröftugt, stíllinn skáldlegur og
orðunum er oft slöngvað út af
ægikrafti guðmóðsins og eldsins,
sem hið innra brennur. Þeir eru
ýmist eins og hin gjósandi eld-
fjöll, sem þyrla björgum í allar
áttir, eða sem blíður blær og
vermandi geisli, sem allt græðir
og blessar.
Þessir menn höfðu eitthvað
sérstakt að segja. Orð þeirra
voru ekki laglega stílaðar, stefnu
lausar og hálfvolgar ræður. Þeir
höfðu kafað í djúpin og stigið
til hinna hæstu hæða, yfirsýn
þeirra var mikil og boðun þeirra
voldug og stórbrotin. Þeir urðu
píslarvottar þjóðanna. Þeir urðu
auðlegð þjóðanna. Þeir urðu hin
logaskæru blys allra alda, þeir
urðu leiðtogarnir í heimi andans.
Þeir urðu hinir ódauðlegu menn
þjóðanna.
Spámenn, skáld og listamenn,
eru hinir ódauðlegu menn þjóð-
anna. Hvar væri vegsemd þjóð-
anna án þeirra? Hvar væri veg-
semd Islendinga, ef þeir hefðu
aldrei átt neinn Snorra Sturlu-
son, ekki Hallgrím Pétursson,
enga Fjölnismenn, ekki Jónas
Hallgrímsson, ekki Jón biskup
Vídalín, ekki Matthías Jochums-
son og ekki Einar Benediktsson,
svo að nokkrir séu nefndir?
Hvílík huggun, leiðsögn og
andleg heilsulind íslenzku þjóð-
inni um dimmar þjáningaaldir,
voru ekki trúarljóð guðsmanns-
ins, sem Matthías kveður um:
„Hér er skáld með drottins
dýrðarljóð,
djúp, svo djúp sem líf í heilli
þjóð,
blíð, svo blíð, að heljarhúmið
svart,
hvar sem stendur verður
engilbjart.
Hér er guðlegt skáld, er svo vel
söng,
að sólin skein í gegnum dauðans
göng.
Hér er ljós, er lýsti aldir tvær,
ljós, hví ertu þessum manni
fjær.“
Og munu þau ekki ylja lengi
hjörtum íslenzkra manna, trúar-
ljóðin, §em andi Guðs blés
Matthíasi í brjóst:
„I gegnum lífsins æðar allar,
fer ástargeisli, drottinn, þinn.
1 myrkrin út þín elskan kallar,
og allur leiftrar geimurinn,
og máttug breytast myrkraból
í morgunstjörnur, tungl og sól.“
Og:
„í Sannleik hvar sem sólin skín
er sjálfur Guð að leita þín.“
Eða:
„Hann heyrir sínum himni frá,
hvert hjartaslag þitt jörðu á.“
„Vér lofum þitt heilaga, heilaga
nafn.“
„Vér deyjum, ef þú ert ei ljós
það og líf,
sem að lyftir oss duftinu frá . ...
Ó, Guð, ó, Guð, vér föllum fram
og fórnum þér brennandi,
brennandi sál.“
„Fyrir hálmstrá Herrans jötu
frá,
hendi ég öllu, jörðu, lofti og sjá.“
Og hvar er kall drottins betur
flutt, en hjá Matthíasi í orðum
sálmaskáldsins:
„Hann býður yður ennþá: Farið,
laðið, leiðið,
og leitið, kallið, biðjið, þrýstið,
neyðið.
Mitt kærleiksdjúp á himins víðar
hallir,
í húsi mínu rúmast allir — allir.“
Hve ólíkt hinum dómsjúka og
þröngsýna tíðaranda í samtíð
skáldsins: ,
„í húsi mínu rúmast allir —
ALLIR.“
Og snúi hann sér til okkar á
veraldlega sviðinu, þá er hitinn
og heilindin hin sömu: „Græðum
saman mein og mein, metumst ei
við grandann . . . Sendum út á
sextugt djúp sundurlyndis-
fjándann."
Þjóðhátíðarárið 1874 blæs andi
Guðs Matthíasi í brjóst hinn
dýrðlega þjóðsöng okkar íslend-
inga. Og um aldamótin kemur og
andinn yfir önnur stórskáld
okkar. — Hannes Hafstein sér
glæsilega sýn, einn fegursta
draum þjóðarinnar:
„Sú kemur tíð, er sárin foldar
gróa,
sveitirnar fyllast, akrar hylja
móa,
brauð veitir sonum móðurmoldin
frjóa,
menningin vex í lundi nýrra
skóga.“
Hér er boðuð þjóðholl trú, hér
er boðskapur fluttur og fagnað-
arerindi íslenzku þjóðinni.
Þá yrkir líka Einar Benedikts-
son eitt sitt mesta kraftakvæði:
„Orka með dyggð reisi bæi og
byggð,
búi hver að sínu með föðurlands-
tryggð.
Frelsi og ljós yfir landsins
strendur,
ei lausung og tálsnörur hálfleiks
og prjáls,
því menning er eining, sem
öllum Ijær hagnað.
með einstaklingsmenntun, sem
heildinni er gagn að,
og frelsi þarf táps móti tæling og
lygð,
ei trúgirni á landsins féndur.
Þá verður vor móðir og fóstra
frjáls,
er fjöldinn í þjóðinni nýtur sín
sjálfs,
er kraftarnir safnast og
sundrungin jafnast
í samhuga fylking þess almenna
máls.
Og tíminn er kominn að takast
í hendur,
að tengja það samband, er
stendur.“ —
Fáir hafa, fyrr eða síðar, lyft
kindlinum hærra, eða kveðið
þjóðinni í eyra kröftugri hvatn-
ingarorð, en þetta höfuðskáld
hennar:
„Kveikið neista guðdómsglóðar
gröfum frá í hjarta þjóðar
sólarlandsins landnámsmenn.“
Það var þeim mönnum holt,
meinti skáldið, að standa á gröf-
um feðranna, sem áttu því hlut-
verki að gegna að kveikja
„neista guðdómsglóðar“ í hjarta
þjóðarinnar og vera „sólarlands-
ins landnámsmenn.“ Þar rann
blóðið til skyldunnar.
Og hver hefur séð land sitt í
fegurri sýn eða lýst henni betur,
en þessi rishái vökumaður
þjóðarinnar:
„Þar rís hún, vor drottning,
djúpsins mær,
með drifbjart men yfir göfgum
hvarmi
og framtíma-daginn ungan á
armi
eins og guðs þanki hrein og
skær.
Frá henni andar ilmviðsins blær,
en eldhjarta slær í fannhvítum
barmi.
Jökulsvip ber hún harðan og
heiðan,
en hæðafaðm á hún víðan og
breiðan
og blávatna-augun blíð og tær.“
En það er hátt stökkið sjá-
andans og skáldsins, ofan af sól-
gylltum jöklum óskalandsins
niður í hyldýpismyrkur okrara-
sálarinnar:
„Melrakkaaugað var flóttaflátt,
flærðin rist í hvern andlitsdrátt
og glottið ein glæpasaga. —
Hann hafði ævinnar löngu leið
leikið sér frjáls að tárum og
neyð,
óheftur ginið við gróðans veig,
geymdur helvítis aga.“
Eða lýsingin á hinum miklu
siðferðilegu hröpufn þjóðanna:
„Þjóðheiftin kotvitsins, blindni
og böl,
blóðvargi sigaði yfir vorn heim.
Vor menning varð dreyrrauð og
dauðaföl.
Dagfælna bergtröllið sat yfir
líki.
Sjá, guðsmyndin sokkin í
djöfladíki
er dýrasta fórnin í sólargeim. —
því samvígsla, eining af öfgum
tveim,
er ævanna hlutverk í skaparans
ríki.“
Eða hin ægilega sálarglötun
þess manns, er grefur sitt pund:
„Dauði og þögn. Þó til grafar
hann græfi
í glitlausum brotum síns fölnaða
prjáls.
Hann horfir í augu við svip sín
sjálfs
og sér aðeins skuggann af
glataðri ævi.
Hans líf var sem helför með
hrylling og feiknum *
til haugs eða báls,
— en líkið sjálft hafði svikizt úr
leiknum.
Aldrei skín framar í lífdagsins
ljósi
lokkbjarta sveinsins vöggugjöf.
Vaxtalaust, óþekkt um hauður
og höf
ber hjartað sitt pund að dauðans
ósi.
Það borgast ei fyrr en himinninn
hrynur
á hataða gröf
og Hel undir dauðadóminum
stynur.“
Eða böl hins ólánssama manns:
„Á brjóstinu hvílir, helföl og
köld,
höndin, sem alltaf sló vankant á
steininn."
En þegar skáldið og sjáandinn
snýr sér í sólarátt, þá er hann
ekki heldur neitt smátækur í
fullyrðingum sínum:
„Sjálfsköpuð þján, bæði þjóðar
og manns,
skal þurrkast úr lífsins bókum,“
þegar menn hætta að sinna alls
konar „glaplögum“, sem skáldið
kallar.
Hefur nokkur kveðið hinni
voldugu og mildu móðurást veg-
elgri óð en þetta:
,Þú vógst upp björg á þinn
veika arm,
Þú vissir ei hik né efa.
í alheim ég þekkti einn einasta
barm,
sem allt kunni að fyrirgefa.“
Og um mátt kærleikans hefur
skáldið þessi orð:
„Ein barnsrödd getur um fold og
fjörð
fallið sem þruma af hamranna
storð,
eins getur eitt kærleikans
almáttugt orð
íshjartað kveðið frá dauðum.“
Án þess kærleiksmáttar, hvað
er þá allt hitt:
„Sjálft hugvitið, þekkingin
hjaðnar sem blekking,
sé hjarta ei með, sem undir
slær.“
Þetta eru mennirnir, sem
segja það, sem allir vildu hafa
geta sagt, en aðeins fáum er
gefið. En það er í rauninni hið
hæsta og dýpsta í mannssálun-
um og þess vegna tigna þær og
varðveita guðmál spámannsins
og hið „lífvæna“ ljóð skáldsins,
þótt báðum sé oft fálega eða
jafnvel illa tekið, er þeir þruma
yfir samtíð sinni. En þótt blind-
ar réttlínustefnur, skoðana-
dýrkun, öfund, heimska og
valdagræðgi skjóti, brenni, sagi
í sundur eða krossfesti hina
miklu anda — afburðamennina,
þá rísa þeir upp í lífi þjóðanna
og verða þar hinir ódauðlegu
menn. „Sá deyr ei, sem heimi gaf
lífvænt ljóð.“
Hvaða þjóð hefur ráð á að
gleyma mönnum, sem tala til
hennar á þessa leið:
„Allt skal frjálst, allt skal jafnt,
réttan skerf sinn og skammt
á hvert skaparans barn, allt frá
vöggu að gröf.
Þetta boðorð knýr fram, knýr
menn brautina fram
undir blikandi merkjum um lönd
og höf.“
„Þeim, sem vilja vakna og skilja,
vaxa þúsund ráð.“
,Þú lýður við lagarband, —
bjargarlaus við frægu fiskimiðin,
fangasmár, þótt komizt verði á
miðin.“
„Þú fólk með eymd í arf!
Snautt og þyrst við gnóttir
lífsins linda,
litla þjóð, sem geldur stórra
synda
reistu í verki viljans merki, —
vilji er allt, sem þarf.
Trúðu á sjálfs þíns hönd, en
undur eigi.
Upp með plóginn. Hér er þúfa í
vegi.
Bókadraumnum, bögu-
glaumnum
breyt í vöku og starf.“
Sú kynslóð, sem fylgdi leið-
sögn og eggjunarorðum hinna
beztu manna mannkynssögunn-
ar, mundi breyta jarðlífi í sælu-
Framhald á bls. 7