Lögberg - 23.07.1953, Page 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 23. JÚLl, 1953
3
Möðruvallakirkja í Hörgárdal 85 ára
Sunnudaginn 5. marz 1865 varð
sá voveiflegi atburður á Möðru-
völlum, að kirkja sú, sem Stefán
amtmaður Þórarinsson hafði
reisa látið þar á staðnum 1788,
brann til kaldra kola á skammri
stund.
Var mælt að fyrstur sæi brun-
ann séra ÖÞórður Þórðarson (síð-
ar prestur í Reykholti), en hann
var þá á leið til kirkjunnar, þar
sem messa skyldi sungin um
daginn.
Engu varð bjargað „nema
skírnarfontinum og tveimur
bekkjum“. Verður ekki betur séð
en að hinar dýrmætu bækur
kirkjunnar, þær, sem hún hefir
átt um aldaskeið og enn eru í
eigu hennar, Guðbrandsbiblía og
Summaría hafi þá verið annars
staðar í vörzlu, því ekki er
þeirra getið við brunann.
Á þeim tíma bjó í Skipalóni,
hið næsta Möðruvöllum, hinn
þjóðkunni athafnamaður og
snillingur Þorsteinn Daníelsson.
En honum var nú brátt fengið
það hlutverk að reisa nýja
kirkju á rústum hinnar fyrri, og
skyldi ekkert til sparað að það
hús yrði bæði mikið og fagurt.
Réð mestu um þetta Pétur Hav-
steen, sem þá var amtmaður og
sat staðinn.
Tókst Daníelsen, en svo var
hann tíðast kallaður, þegar þenn
vanda á hendur, þótt hniginn
væri nokkuð að aldri, er hér var
komið, og hafði lokið kirkju-
smíðinni á tveim árum. Er
kirkja þessi, sem enn stendur og
nú er 85 ára gömul, vafalaust
mesta byggingarafrek hans, og
hefir raunar allt fram á þennan
dag verið talin eitt veglegasta
og virðulegasta guðshús í sveit-
um þessa lands.
Eins og líklegt má þykja hefir
Möðruvallakirkju jafnan verið
vel við haldið og þess ávallt gætt,
að hún væri á hverjum tíma svo
búin, sem bezt hæfði fyrstu gerð
hennar og smíði.. Hefir hún hvað
eftir annað hlotið ýmsar þær
umbætur, sem stutt hafa mjög
að fegurð hennar, enda ber hún
aldurinn vel.
En þó að allt sé talið, sem hér
hefir verið að gert, er víst óhætt
að fullyrða, að fá eða engin tíma-
mót hafi orðið merkari í sögu
kirkjunnar en þau, sem bundin
verða í framtíðinni 85 ára af-
mæli hennar. Og skal nú frá því
sagt örlítið nánar, en sá var að
vísu höfuðtilgangur þessa grein-
arkorns.
Haustið 1951 var rafmagn frá
Laxárvirkjun leitt að Möðru-
völlum, og þá um veturinn kom-
ið fyrir raflýsingu í kirkjunni, á
einkar viðfeldinn og skemmti-
legan hátt. En hér var ekki látið
staðar numið. Upphitun þessarar
stóru kirkju hafði frá öndverðu
verið mikið vandamál. Og nú
var í það ráðist, að fá úr þessu
bætt í eitt skipti fyrir öll.
Með góðviljuðu leyfi raforku-
niálastjóra hófst því sóknarnefnd
in enn handa og lét, á nýliðnum
vetri, setja í kirkjuna fullkomið
rafhitunarkerfi, sem þannig er
gert, að hvergi er til lýta hinum
virðulega svip og stíl þessa gamla
húss, en gerbreytir því þó að
öðru leyti, til mikilla þæginda og
unaðsbóta þeim, sem þangað eiga
að sækja.
En auðvitað hefir allt þetta
kostað mikið fé og kirkjan safn-
að nokkrum skuldum, sem raiyi-
ar er í sjálfu sér lítið frásagnar-
efni. Hins er aftur á móti skylt
að geta, að aldrei eins og einmitt
nú hefir það sannast hvað
Möðruvallakirkja á marga vel-
unnara og vini, nær og fjær. Því
óðar en það spurðist, að hefja
ætti þessar framkvæmdir, fóru
kirkjunni að berast gjafir úr
ýmsum áttum og án þess, að eftir
væri leitað. Urðu þau hér fyrst
til Jóhanna Friðriksdóttir frá
Ytri- Reisará, fyrrverandi yfir-
ijósmóðir í Reykjavík, og syst-
kini hennar, börn þeirra Galmars
staðahjóna, Jakobínu ljósmóður
Sveinsdóttur og Friðriks Jóhanns
sonar. Gáfu þau kirkjunni í þessu
skyni rausnarlega minningargjöf
um foreldra sína á aldarafmæli
Jakobínu heit., 23. nóv. 1951. En
síðan hafa margir fleiri lagt til
drjúgan skerf, eins og fyrr grein-
ir, þótt ekki verði nú nánar frá
skýrt. Eru þeir og ef til vill enn
einhverjir, vinir kirkjunnar, sem
hefðu hug á að minnast hennar á
líkan hátt og að þessu tilefni.
Mætti þá og jafnframt geta þess,
að í sérstaka bók eru skráð nöfn
þeirra manna, látinna, sem
minnst er með slíkum gjöfum, og
helztu æviatriði. Sýnist fara all-
vel á slíku og ættu raunar að
vera nokkurs virði fyrir síðari
tíma.
En hitt skiptir þó mestu, að
kirkjan sjálf beri þess sem auð-
sæjust merki, í bráð og lengd, að
eftir henni sé munað. Og við þá
vini hennar alla, bæði nær og
fjær, sem það hafa gert og gera,
vil ég að lokum aðeins segja
það sama og endur fyrir löngu
var sagt um gamlan, vitran og
veglegan helgidóm:
„Hljóti heill þeir, er elska þig.“
Sigurður Stefánsson
—Mbl., 7. júní
Ályktanir uppeldismálaþings:
Þjóðernið og sjálfstæðið verður því aðeins varðveitt, að
þjóðin leggi rækt við menningu sína
Business and Professional Cards
Uppeldismálaþingið, sem stóð
dagana 12. til 15. júní s.l., sam-
þykkti eftirfarandi ályktun um
aðalmál þingsins: Islenzkt þjóð-
erni og skólarnir:
ein-
Uppeldismálaþingið er
huga um þá skoðun, að því að-
eins varðveiti Islendingar þjóð-
erni sitt og sjálfstæði, að þeir
leggi af alhug rækt við menn-
ingu sína. Með þeim hætti ein-
um öðlast þjóðin styrk til þess
að standa gegn þeim áhrifum
erlendum, sem ógna íslenzkri
menningu: Óvönduðum þýðing-
um, lélegum og siðspillandi kvik-
myndum, ómerkilegu útvarps-
efni frá erlendum útvarpsstöðv-
um bæði í landinu sjálfu og utan
þess. Sú ógnun, er í slíkum áhrif-
um felst, er orðin stórum hættu-
legri vegna sambýlis við erlent
herlið í landipu. Þingið leggur
því áherzlu á, að stjórnarvöld
landsins og öll þjóðleg menning-
arsamtök leggist á eitt um það,
að sporna af fremsta megni við
umgengi íslenzkrar æsku við hið
erlenda herlið. Hins vegar er
þjóðinni nauðsynlegt að njóta
hollra menningaráhrifa frá öðr-
um þjóðum, hverjar sem þær
eru, enda hefir íslenzk menning
frjógvast við slík áhrif á um-
liðnum öldum.
Þingið ber fullt traust til skóla
landsins, að þeir láti einskis ó-
frestað til að vekja ást og glæða
skilning íslenzks æskulýðs á lífs-
baráttu þjóðarinnar, sögu henn-
ar, tungu, bókmenntum, náttúru
landsins og öllu því, sem land og
þjóð á bezt í fari sínu.
Þingið vill í þessu sambandi
benda á nokkur ráð, sem komið
gætu að liði í starfi skólanna til
eflingar íslenzkri þjóðrækni. Má
þar nefna aukningu íslenzkra
kennslumynda (kvikmynda,
skuggamynda, vinnubókamynda,
veggmynda), bætta myndskreyt-
ingu kennslubóka, söfnun ís-
lenzkra náttúrugripa og plantna,
heimsóknir í söfn (þjóðmynda-
söfn, byggðasöfn, listasöfn, nátt-
úrugripasöfn). Þyrfti að stofna
til skipulegra leiðbeininga í því
sambandi. Heimsóknir nemenda
á vinnustaði mundu koma þeim
í nánari tengsl við þjóðlífið.
Heimsóknir íslenzkra rithöfunda,
STRIVE FOR KNOWLEDGE
In these modern times Business College
Education is not only desirable but almost
imperative.
The demand for Business College Educa-
tion in industry and commerce is steadily
increasing from year to year.
Commence Your Business
Training Immediately!
For Scholarships Consult
THE COLEMBIA PRESS LIHITED
PHONE 74-3411 695 Sargent Ave„ WINNIPEG
menntamanna og listamanna
væru og tvímælalaust til að örva
áhuga nemenda á íslenzkum þjóð
armenntum. Ennfremur telur
þingið athyglisverða þá hug-
mynd að helga íslenzkri tungu,
sögu og bókmenntum sérstaka
skóladaga eingöngu og er því
meðmælt að skólum verði veitt
heimild til þess.
Um kennslu í íslenzku máli,
bókmenntum og sögu vill þingið
taka fram:
a) Að lögð verði miklu meiri
áherzla en nú tíðkast á mælt
mál í daglegu skólastarfi,
skýran' framburð, glögga
frásögn og áheyrilega fram-
sögu. Málfræðikennslan mið-
ist einkum við rétta, hagnýta
meðferð málsins. Núverandi
tilhögun, að próf séu nær
eingöngu skrifleg, þarf að
sjálfsögðu að breyta til sam-
ræmis við ábendingar þessar.
b) Aukin verði kennsla í ís-
lenzkum bókmenntum í
skólum landsins, nemend-
urnir látnir læra sem mest
af ljóðum, áherzla lögð á
merkingu orða og orðtaka og
reynt að glæða skyn þeirra
á anda málsins.
c) Að lögð verði aukin áherzla
á kennslu í íslandssögu,
einkum eftir 1874.
Uppeldismálaþingið samþykk-
ir að leita samvinnu við presta-
stétt landsins um aðferðir og
leiðir til verndar íslenzkum æsku
lýð í sambandi við þjóðernisleg
og siðferðisleg vandamál. '
Þá voru samþykktar eftirfar-
andi tillögur:
1.
Uppeldismálaþingið telur höf-
uðnauðsyn, að hið allra fyrsta
verði ráðnar bætur á þeirri óvið-
unandi aðbúð, sem kennaraskól-
inn hefir lengi orðið að sætta sig
við. Skorar þingið eindregið á
hæstvirtan menntamálaráðherra,
að hann hlutist til um, að hafin
verði bygging nýs kennaraskóla
þegar á þessu ári.
II.
Vegna viðtals við Gunnar
Finnbogason cand. mag., skóla-
stjóra á Patreksfirði, sem birt er
í Morgunblaðinu sunudaginn 14.
júní, vill uppeldismálaþingið
lýsa því yfir, að það telur eftir-
farandi ummæli hans um ungl-
inga í skólum landsins gífuryrtan
og ómerkilegan sleggjudóm:
„Skólabragur er í mörgum at-
riðum losaralegur. Ábyrgðar-
kennd barna og unglinga er
þorrin. Nemendur eru óhlýðnir,
kunna ekki að skammast sín,
meta einskis hvort þeir standa
sig betur eða verr. Kæruleysið er
afskaplegt og námsleiði mikill.“
Þótt höfundur þessara til-
færðu ummæla hafi ef til vill
kynni af slíku misferli í einstök-
um skóla, sínum eigin eða öðrum,
nær engri átt að gera það að
átyllu fyrir almennan áfellisdóm
af þessu tagi, og sízt vænlegt til
góðra áhrifa.
III.
Samþykkt var tillaga um end-
urheimt íslenzkra handrita úr
dönskum söfnum, önnur um að
koma söngnámi kennara í full-
komnara horf, og ennfremur
beindi þingið þeirri áskorun til
menntamálaráðherra, að hann
beiti sér fyrir því á Alþingi, að
%% af framlagi ríkisins til
fræðslumála verði framvegis
veitt til vísindalegra rannsókna
á uppeldi og kennslutækni.
—TÍMINN, 21. júní
GAMAN OG
ALVARA
J
Bara ef-----
—O-h, stundi gamla pipar-
jómfrúin, — ég átti einu sinni
stefnumót við liðsforingja á
mínum yngri árum, — bara ef
hann hefði komið, þá væri ég
hershöfðingjafrú í dag!
☆
Rachmaninoff hefir sagt eftir-
farandi sögu af sjálfum sér:
„Þegar ég var mjög lítill
drengur, var ég eitt sinn feng-
inn til að leika á slaghörpu í
samkvæmi fyrir rússneska
fursta og greifa, og mér fannst
tilhlýðilegt að leika eitthvað
stórt verk fyrir svona háttsett
fólk. Og þess vegna ákvað ég
að leika Kreutzer-sónötuna eftir
Beethoven. En eins og kunnugt
er þá eru margar langar þagnir
í þessu verki, og er ég var í einni
þögninni kom ein furstafrúin,
klappaði mér á öxlina og sagði:
— Heyrðu, væni minn, ég held
að þú ættir heldur að leika eitt-
hvað, sem þú kannt dálítið betur,
en þetta getur orðið gott hjá
þér, bara ef þú æfir þig nógu
mikið.“
☆
Frjálslyndi í Rússlandi og
Bandaríkjunum
Bandarískur og rússneskur
hermaður í Vínarborg voru að
ræða saman um frjálslyndi í
heimalöndum sínum.
— I Bandaríkjunum, sagði sá
bandaríski — er svo mikið frjáls
ræði, að maður getur farið beint
heim í Hvíta húsið og sagt að
forseti Bandaríkjanna sé bjáni
og einskis nýtur, án þess að fá
refsingu! —
— Það er nú ekkert, sagði
rússneski hermaðurinn — í
Rússlandi getur maður farið
beint til Kremlarinnar og sagt,
að forseti Bandaríkjanna sé
aumingi og fífl, og þá verður
manni ekki refsað, heldur verð-
ur maður hækkaður í tigninni
og gerður að hershöfðingja!
Kaupið Lögberg
Víðlesnasta
íslenzka blaðið
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg
PHONE 92-6441
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
308 AVENUE BLUG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. út-
vega peningalán og eldsábyrgð,
bifreiðaftbyrgð o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For Quick, Reliable Service
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK, MANITOBA
Phones: Office 26 — Residence 230
Office Hours: 2.30 - 6.00 p.m.
Thorvaldson. Eggerlson,
Baslin & Slringer
Barristers and Solicitors
209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg.
Portage og Garry St.
PHONE 92-8291
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Director
Whoiesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Office: 74-7451 Res.: 72-3917
Office Phone
92-4762
Res. Phone
72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur likkistur og annast um öt-
farir. Allur útbúnaSur sá bezti.
StofnaíS 1894
SÍMI 74-7474
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposite Matemity Pavillon
General Hospital
Nell's Flower Shop
Wedding Bouquets, Cut Flowers,
Funeral Designs, Corsages,
Bedding Plants
Nell Johnson
Res. Phone 74-6753
Lesið Lö
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viC, heldur hita frá aC rjúka út
meC reyknum.—Skrifið, símið til
KELLY SVEINSSON
625 WaU St. Winnipeg
Just North of Portage Ave.
Slmar 3-3744 — 3-4431
J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance in all its branches
Real F.state - Mortgages - Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 93-7181 Res. 46-3480
LET US SERVE YOU
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith St. Winnipeg
PHONE 92-4624
Phone 74-7855 ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Asphalt Roofs and Insulated
Siding — Repairs
Country Orders Attended To
632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
Dr. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 92-7932
Home Telephone 42-3216
L
Dr. ROBERT BLACK
Sérfræöingur I augna, eyrna, nef
og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusími 92-3851
Heimasími 40-3794
EGGERTSON
FUNERAL HOME
Dauphin, Manitoba
Eigandi ARNI EGGERTSON Jr.
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
/ FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street Sími 92-5227
Creators of Distinctive Printing Columbia Press Ltd. 895 Sargent Ave. Winnipeg PHONE 74-3411
Aristocrat Stainless Steel Cookware For free home demonstrations with- out obligation, write, phone or call 302-348 Main Street, Winnipeg Phone 92-4665 “The King of the Cookware”
Gundry Pymore Ltd. British Quality Fish Netting 58 VICTORIA ST. WINNIPEG Phone 92-8211 T. R. THORVALDSON Manager Your patronage will be appreciated
Minnist BETEL í erfðaskrám yðar.
Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered Accountant 505 Confederatton Life Building WINNIPEG MANITOBA
Parker, Parker and Kristjansson Barristers - Solicitors Ben C. Parker, Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnipeg, Man. Phone 92-3561
Van's Electric Ltd.
636 Sargent Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL
McCLARY ELECTRIC — MOFFAT
Phone 3-4890