Lögberg - 10.09.1953, Síða 1

Lögberg - 10.09.1953, Síða 1
Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs 66. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN, 10. SEPTEMBER, 1953 Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBRÖOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs NÚMER 37 Stjórn Vestur-Þýzkalands endurkosin með miklu afli atkvæða Hótíðarguðsþjónustur ó Gimli Á sunnudaginn kemur, 13. sept., kl. 3 e. h. fer fram há- tíðleg guðsþjónusta á Gimli. Verður þá hornsteinn lagður að hinni nýju kirkjubyggingu, sem þar er í smíðum. Fer sú athöfn fram á ensku. Kl. 3.30 gengur söfnuðurinn áleiðis til Sambandskirkjunnar á staðn- um, og fer þar fram guðsþjón- usta á íslenzku. Forseti kirkju- félagsins, séra Valdimar J. Eylands, flytur ræðu. Mynd af Gimli kirkju, sjá Parish Mess., last issue, p. 6. Þýzk kona dvelur tíu daga í tjaldi við Eyjabakkajökul Síðastliðinn sunnudag fóru fram almennar kosningar til þjóðþingsins í Vestur-Þýzka- landi og lauk þeim á þann veg, að stjórn sú undir forustu Konrads Adenauers ríkiskanzl- ara, sem farið hefir með völd síðustu fjögur árin, var endur- kosin með geisilegu afli atkvæða. Klokkur sá, sem Adenauer aðallega studdist við, hinn kristi- legi lýðræðisflokkur, hlaut 244 þingsæti í neðri málstofunni af 487, en auk þess fengu aðrir bandalagsflokkar stjórnarinnar 48 þingsæti, og nemur þá þing- meirihluti Adenauers 97 þing- sætum og nægir að fullu til að koma fram stjórnarskrárbreyt- ingu, sem eigi mun heldur drag- ast á langinn. Hinn mikli og ákveðni sigur Adenauers leiðir til þess, að Nýr róðherra skipaður Forsætisráðherra Manitoba- fylkis, Mr. Campbell, kunngerði í fyrri viku, að hann hefði skip- að Charles L. Shuttleworth, þingmann Hamiota kjördæmis- ins, ráðherra þjóðnýtingarstofn- ana innan vébanda fylkisins, og þar af leiðandi verður yfirum- sjón raforkumálanna í höndum hans. Mr. Shuttleworth er 42 ára að aldri og var fyrst kosinn á þing 1949. Langafi hins nýja ráðherra settist að í grend við Hamiota árið 1882 og nú býr þessi sonar- sonur hans stórbúi á sömu bú- jörðinni. Nokkrar aðrar breytingar hefir Mr. Campbell gert á ráðu- neyti sínu svo sem þær, að fylkisféhirðirinn, Mr. Turner, tekur jafnframt að sér forustu iðnaðarmálanna, en Mr. Green- lay tekst á hendur forustu nátt- úrufríðindadeildarinnar í við- bót við verkamálaráðherra- embættið. Winnipegborg, helmingur allra fylkisbúa, á aðeins einn ráð- herra í fylkisstjórn, og þykir mörgum slíkt furðulegt og ærið snubbótt. Flytur hvassyrta ræðu Á fundi fyrverandi amerískra hermanna, sem haldinn var í St. Louis hinn 1. þ. m., flutti utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, John Foster Dulles, hvassyrta ræðu, sem einkum var ætluð Lommúnistastjórninni í Kína til athugunar; fór hann ekki dult með þá skoðun sína, að í því falli að Kínverjar réðust á ný á Kóreu, eða kæmu til liðsinnis skoðanabræðrum sínum í Indo- China, gætu þeir átt á hættu, að ráðist yrði beinlínis á land þeirra, því Vesturveldin tækju ekki fleiri landránstilraunum með þegjandi þögn. Mr. Dulles kvað Kínverjum holt að átta sig á því, áður en það yrði um seinan, að forréttindum þeirra í Manchuríu, sem Rússar hefðu náðarsamlegast veitt þeim, gæti auðveldlega orðið lokið áður en langt um liði, því þau hefðu frá öndverðu hvílt á vafasömum for- sendum. Með ræðu Mr. Dulles hefir stefna Bandaríkjastjórnar 1 ut- anríkismálum skýrst til muna. Vestur-Þýzkaland hervæðist og gengur í varnarsamband við Vesturveldin; ekki einn einasti frambjóðandi af hálfu kommún- ista, né heldur nazista náði kosn- ingu. Vesturveldin fagna mjög kosningasigri Adenauers, en Rússar eru sagðir að vera súrir á svip. 200 bananaplönlur nú í ræktun í Garðyrkjuskóla íslands. upp- skeran fer að koma Unnsteinn Ólafsson, skóla- stjóri Garðyrkjuskóla Is- lands að Reykjum í Ölfusi, telur, að hægt sé að rækta hér banana í gróðurhúsum með svo litlum tilkostnaði, að þeir verði ódýrari en tómatar, þótt verð á tómöt- um sé nú lágt miðað við aðrar nauðsynjavörur. Það eru 10 ár síðan Unnsteinn fór fyrst að gera tilraunir með bananaræktun. En síðastliðin 2 ár hefir hann ræktað þá í sér- stöku húsi, sem er um 1000 fer- metrar. Þar eru nú alls 200 plöntur, og er að vænta upp- skeru af rúmlega þriðjungi þeirra nú bráðlega, sumum í haust, en sumum að vori. Fleira er þó í húsinu en banana- plönturnar. Krefjast lítillar vinnu Ástæðan til þess, að ræktun banana verður ódýrari en tóm- ata, er sú, að bananar krefjast lítillar vinnu. Þeir verða líka ó- dýrari en erlendir bananar, sem hér eru seldir. Verð á erlendum bönunum mun nú vera víða 16—17 kr. hvert kg., en það er þó misjafnt, og tómataveriðið er kr. 15.60 út úr búð. Finnst Unn- steini ekki fjarri lagi að álíta, að verð á íslenzkum bönunum gæti orðið 12—14 kr., er ræktun þeirra yrði komin í viðunanlegt horf. Bera ávöxt ár eftir ár Bananaplönturnar fara að bera ávöxt, þegar þær eru um árs- Silfurbrúðkaup 25 ára giftingarafmæli áttu nýlega þau hjónin Mr. og Mrs. Stefán E. Johnson, 586 Mary- land St. hér í borg. — í tilefni af því mættu vinir þeirra og vandamenn, um 70 talsins, að hinu veglega heimili þeirra systranna Lovísu og Jóhönnu Bergman, 28 Purcell Ave., þriðju daginn, 8. sept. s.l. Veizlustjórn hafði með höndum Mr. Halldór Bjarnason. Hafði hann orð fyrir gestum og afhenti heiðursgest- um silfurborðbúnað af vandaðri gerð og flutti árnaðarskeyti. Fyrir minni silfurbrúðhjónanna talaði Thor Thorsteinsson. Var hér setinn veizlufagnaður hinn bezti og skemmti fólk sér við söng fram til miðnættis. Af utanbæjargestum voru við- staddir Mr. og Mrs. Jóhannes A. Johnson, Oak View, Man.; Mr. og Mrs. Skapti Sigurðsson, Lakeland, Man.; Mrs. John Eyjólfsson og Mrs. Joe Eyjólfs- son, Riverton, Man., og Mrs. Needham, Wheatland, Wioming. Farþegaflugvél ferst1 Á miðvikudaginn í fyrri viku fórst frönsk farþegaflugvél með fjörutíu og tvo ' menn innan- borðs; rakst hún á 10 þúsund feta háan tind í Ölpunum og brann til ösku; för vélarinnar var heitið til Austurlanda; meðal þeirra, er fórust, var Jacques Thiband, frægasti fiðlu- leikari frönsku þjóðarinnar á þessari öld. gamlar og halda svo áfram ár eftir ár. Hægt er að láta þær bera ávöxt, hvenær sem er á árinu, t. d. í skammdeginu rétt fyrir jólin, og krefst það engrar lýsingar. Alþbl., 17. júlí Lítt verjandi móðgun Mr. Lloyd Stinson, leiðtogi C. C. F.-flokksins í Manitoba og einn af þingmönnum South Winnipeg kjördæmisins, telur það lítt verjandi móðgun við samtök verkamanna í fylkinu, að Campbell forsætisráðherra skyldi þröngva öðru umsvifa- miklu embætti upp á verka- málaráðherrann, Mr. Greenley, því fáir menn geti gegnt sam- tímis tveimur mikilvægum em- bættum svo vel fari. Mr. Stinson kvað verkamanna samtökin það mikilvæg, að þau ættu heimtingu á óskiptum ráð- herrakröftum. Með átta mílna hraða fyrir dráttarafli béinhákarls 18B 26V2 Hildarleikurinn slóð nærri klukkuslund Húsavík, 31. júlí. — Páll A. Pálsson og tveir félagar hans, sem stunda hrefnu- veiðar á bátnum Björgvin, veiddu í morgun 6 metra langan beinhákarl eftir klst. bardaga við skepnuna. í Lundeyjarsundi Beinhákarlinn reyndist fjórar smálestir á þyngd. Páll sá hann fyrst í Lundeyjarsundi. Sigldu þeir hann uppi og skutu á hann á sæmilegu færi. Skutullinn festist rétt aftan og neðan við eyrugga, en við það kafaði há- karlinn. Aflmikið dýr Gáfu þeir félagar eftir 15 faðma á tveggja tommu nælon- streng. Festu þeir síðan tógið, en þá herti hákarlinn ferðina og dró bátinn með 8 sjómílna hraða í tæplega klukkustund. — Var það vel gert, því að báturinn Björgin er 13 smálestir. Loks dró úr ferðinni. Kom há- karlinn þá upp og skaut Páll þá á hann úr 11,5 mm. riffli. — Geispaði skepnan ekki golunni fyrr en eftir 10 skot. 7 lunnur lýsis Páll kom með hákarlinn til Húsavíkur. — Þar verður hann kæstur og lifrin brædd, en hún gefur sennilega sjö tunnur lýsis. í maga fiskisins var mikið af rauðátu. Komin heim úr langferð Dr. Richard og Bertha Beck og Richard Jr., í Grand Forks, N. Dak., eru nýkomin heim úr þriggja vikna bílferð vestur á Kyrrahafsströnd. Var ferðin sér- staklega farin í heimsókn til tengdasonar þeirra og dóttur, Paul og Margaret Hvidston í Whittier, Californiu, en jafn- framt notuðu þau tækifærið til þess að koma á ýmsa fagra staði og söguríka á leiðinni fram og aftur yfir álfuna hálfa. Meðal annars dvöldu þau á austurleið- inni daglangt í elztu byggð ís- lendinga í Norður-Ameríku, í Spanish Fork, Utah. og skoðuðu þar hinn fagra minnisvarða ís- lenzkra landnema. Nutu þau góðfrægrar íslenzkrar gestrisni landa sinna á þeim slóðum og flutti dr. Beck erindi um ísland fyrir allfjölmennum hópi þeirra. Hefir hann í huga að skrifa nánar um þá heimsókn og ferð- ina í heild sinni. Sjaldgæf veiði norðan lands Það er mjög sjaldgæft að bein- hákarlar veiðist á þessum slóð- um. Páll hefir stundað hrefnu- veiðar undanfarin 6 ár og fengið 20 hrefnur það sem af er þessu sumri. Hver hrefna vegur að meðaltali IV2 tonn. —Mbl., 1. ágúst Herra skólastjóri Jón K. Laxdal, Forseti Islendingadagsins, Gimli, Man. Góði vinur: Þar sem ég, innan nokkurra daga, legg af stað í langferð, er útheimtir sinn undirbúning, get ég eigi sótt íslendingadag ykkar að þessu sinni, og þykir mér það mjög leitt. Vil ég því biðja þig að flytja nefndarmönnum og hátíðargest- um öllum kæra kveðju mína og innilegustu þakkir fyrir ágætar viðtökur í fyrra sumar, er ég átti því góða hlutskipti að fagna að mega flytja minni ættjarðar- innar í ljóði á íslendingadeg- inum. Ég bið þig fyrir sérstaka kveðju tl ræðumanna dagsins, dr. Watson Kirkconnells, hins ágæta Islandsvinar og góðs vinar míns persónulega, og til hins kærkomna gests frá íslandi og velunnara okkar Vestur-íslend- inga, séra Einars Sturlaugssonar, og vonast ég til að hitta hann síðar á ferðum hans. Skáldi dagsins, fornvini mínum og frænda, Guttormi á Víðivöllum, sendi ég einnig hlýja kveðju. Ágætlega fer á því, að þessi íslendingadagur er sérstaklega Hún er jarðfræðingur og rann- sakar breylingar jökla og hefir dvalið hér oft áður Hingað til lands er komin ar. Emmy Mercedes Todt- mann, jarðfræðingur, frá Hamborg. Hún ætlar að dvelja ein í tjaldi tíu daga norðan undir Eyjabakka- jökli, sem er jökulskagi norður úr Vatnajökli upp af Fljótsdal. Þar hyggst hún stunda jöklarannsóknir. Dr. Emmy Todtmann er eng- inn byrjandi í íslandsferðum, því að þetta er fimmta ferðin hennar hingað til lands. Hún dvaldi til dæmis fyrir nokkrum árum all-lengi í Öræfum, og hún átti ekki nógu sterk orð um það, hve fólkið hefði verið henni gott þar, er blaðamaður frá Tímanum hitti hana í gær. Við Brúarjökul Hún dvaldi að sumarlagi fyrir nokkrum árum uppi undir Brú- arjökli ein í tjaldi nær hálfan mánuð. Var hún flutt þangað frá Möðrudal og sótt aftur, og þótti henni öll sú fyrirgreiðsla hin bezta. Við upptök Jökulsár á Dal Á morgun fer dr. Emmy Todt- mann með flugvél til Egilsstaða. Þar mun Friðrik Stefánsson, hreindýragæzlumaður, taka við og flytja hana á hestum inn með Jökulsá á Dal alla leið upp að helgaður öndvegisskáldinu Step- hani G. Stephansson í tilefni af aldarafmæli hans. I persónu- leika sínum, hugsunarhætti og stórbrotnum skáldskap sínum sameinaði hann fagurlega margt það djúpstæðasta og eftir- breytnisverðasta í íslenzku eðli og norrænum anda, ekki sízt órofa tryggð við ísland og allt það, sem íslenzkt er. Um frjó- sama rækt við ætt og erfiðir getur hann verið okkur til fyrir- myndar. Skáldskapur hans er einnig auðug uppspretta skáld- legrar fegurðar, vizku og eggj- anar til dáða. Það er hollt og gott að hlúa að minningu slíkra manna, og eiga hér við spakleg orð Davíðs Stefánssonar: Minning þeirra, er afrek unnu, yljar þeim, sem verkin skilja. I þeim anda ræktarseminnar við hinar íslenzku erfiðir vorar, mál og menning, sendi ég ykkur öllum hugheilustu kveðjur, bið ykkur blessunar, og óska þess, að dagurinn megi verða ykkur heiður og fagur. Lifið alltaf heil! Ykkar einlægur, RICHARD BECK Eyjabakkajökli. Þar við Eyjafell á tungunni fram undan jöklinum við upptök árinnar mun hún slá tjaldi sínu og dvelja þar tíu daga við rannsóknir sínar, en síðan verður hún sótt aftur. Dr. Todtmann á marga kunn- ingja hér á landi, bæði jarðfræð- inga og bændur og heimilisfólk á bæjum, þar sem hún hefir komið á ferðum sínum. Hefir hún hvarvetna verið hinn bezti gestur, enda segist hún kunna við sig hér á íslandi eins og heima hjá sér. Dr. Emmy Todtmann er mið- aldra kona, en lætur sér þó í engu bregða við ferðir og lang- dvalir á öræfum. Hún er og kunnur jarðfræðingur í heima- landi sínu, og munu ekki margar konur aðrar hafa stundað jökla- rannsóknir á íslandi. —TÍMINN, 17. júlí Ársþing canadiska vikublaða- sambandsins Hið 34. ársþing canadiska vikublaðasambandsins var hald- ið í Bessborough hótelinu í Saskatoon, Sask., dagana 27., 28. og 29. ágúst s.l. Þinginu stjórn- aði forseti sambandsins ,Mr. Robert Moore, Swift Current, Sask. En formaður þingnefndar var Mr. John Vopni, Davidson, Sask. Hafði John og meðnefnd- armenn hans unnið ósleytilega að undirbúningi þingsins og eiga skilið þakkir allra hlutaðeigenda, því alt fór fram með sérstakri rausn og prýði. — Á sjötta hundrað vikublaða eru í sam- bandinu og því erindrekar úr öllum landshlutum Canada, frá hafi til hafs, þar mættir. Er vissulega ánægjulegt að eiga samfundi og samneyti við fólk úr öllum áttum og víðsvegar að. Auðvitað eru aðal-viðfangsefn- in varðandi viðhald og vanda- mál blaðanna. Framkvæmdarstjóri sambands ins, Mr. W. E. McCartney, sagði lausri stöðunni, en í hans stað var kosinn Mr. William Telder, Toronto. Mr. W. K. Walls, Barrie, Ont., var kosinn forseti; Mr. W. B. Swanson, Sackville, N.B., varaforseti, og Mr. John Vopni, Davidson, Sask., annar varaforseti. Á þinginu nutu gestir að vanda risnu ýmissa félaga, þar á meðal fylkisstjórnar Saskatchewan og járnbrautarfélaganna beggja — C.N.R. og C.P.R. Fyrir allan þann velgerning ber vissulega að þakka. Eftir þingið var farin skemti- ferð. Sumir fóru til Lac La Rouge, en aðrir til Waskesiu, Prince Albert National Park, og var sú ferð hin ánægjulegasta í alla staði og hressing góð. J. T. Beck Bananar verða rækfaðir hér í gróðurhúsum ódýrar en tómatar Með ótta mílna hraða fyrir drótt-arafli beinhókarls Kveðja til íslendingadagsins að Gimli 1953

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.