Lögberg - 10.09.1953, Page 4

Lögberg - 10.09.1953, Page 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 10. SEPTEMBER, 1953 Lögberg Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Gefið út hvern fimtudag af THE COlUMBIA PRESS LIMITED 695 8AHGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA J. T. BECK, Manager UtanSakrift ritstjðrans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN. PHONE 74-3411 Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram The ‘Lögberg" is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Auithorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa Hinn háttvísi konungur Svíanna Nema því aðeins, að alveg sérstæðar ástæður komi til greina, heldur Gustaf Adolf Svíakonungur ríkisráðsfund í höll sinni klukkan ellefu sérhvern föstudagsmorgun, en þangað eru þá komnir sænsku ráðherrarnir, sextán að tölu; um leið og konungurinn gengur inn í fundarsalinn rísa ráð- herrarnir úr sætum og hneigja sig, en konungur heilsar þeim hverjum um sig með handabandi; allir koma ráð- herrarnir til fundarins í venjulegum jakkafötum og slíkt hið sama gerir konungurinn líka; þarna er ekkert, er minni á stéttaskiptingu, ekkert tákn hinnar svonefndu pípuhatta- menningar, er klofið hefir þjóðfélögin eitt af öðru nálega til agna; á þesum stað eru það sænskir menn, allir jafnir fyrir lögunum, sem til fundar koma með það markmið eitt fyrir augum, að vinna að sæmd og velfarnan þjóðar, sem er móðir þeirra allra og þeir allir unna jafnt. Gustaf Adolf er ekkert barn í lögum, er til stjórnmál- anna kemur, og þótt hann frá stjórnmálalegu sjónarmiði séð sé hafinn yfir flokka, mun það mála sannast, að áhrifa hans gæti allverulega á ýmissum sviðum hinnar mikilvægustu löggjafar; hann er manna háttvísastur og kunnur að skapstillingu. A ríkisráðsfundum spyr konungur ráðherra sína margra spurninga; eftir að hafa hlustað gaumgæfilega á málaflutning þeirra, mun það engan veginn óalgengt að hann spyrji hvort þetta og þetta málið sé þannig undirbúið, að líf liggi við, að því verði hrundið í framkvæmd þegar í stað; í öðrum tilfellum er hann vís til að spyrja hvort ekki væri ríkari ástæða til að flýta framgangi einhvers annars máls; en þetta leiðir nálega undantekningarlaust til þess, að þau mál, sem til umræðu koma og úrskurðar, verða að jafnaði grandgæfilegar athuguð en ella myndi verið hafa; sænsku ráðherrarnir eru ráðherrar konungs og hann er sjálfur einn af þeim. Um mörg undanfarin ár hafa sósíal-demokratar, eða lýðræðisjafnaðarmenn farið með völd í Svíþjóð og þeir hafa fram til skamms tíma viljað losna með öllu við konungsvald og ríkiserfðir; um þetta var konungi fyrir löngu fullkunnugt, án þess að það kældi eða veikti að nokkru náið samstarf hans við þann stjórnmálaflokk. Og nú hafa sósíal-demokratar sannfært sjálfa sig um 'það, að Svíar vilji eiga konung, góðan konung, er skapað fái þá stjórnarfarslegu kjölfestu, er þjóðin megi eigi án vera, og að það sé vissulega ekkert eftirsjárefni, að greiða honum 1,600,000 krónur ($309.280) í árslaun. Núverandi konungur Svíanna er mikill maður að vallarsýn, sex fet og tveir þumlungar á hæð og gengur tein- réttur sem ungur væri þrátt fyrir sjötíu ár að baki; hann gengur nær, sem vera vill um hvaða götu, sem er í Stokk- hólmi án þess að hafa um sig lífvörð; það er engu líkara en allir þekki hann hvar, sem hann fer; allir heilsa honum og lyftir hann þá hattinum og brosir hlýlega um leið. Gustaf Adolf lifir einbrotnu lífi; að vísu heldur hann veglegar og fjölmennar veizlur þar, sem mikið er um dýrðir, en venjulega unir hann sér bezt á heimili konungs- fjölskyldunnar með fámennan hóp vina umhverfis sig; hann er árrisull maður, sem kemur miklu í verk; á undan morgun- verði les hann jafnaðarlegast þrjú dagblöð, tvö sænsk og stórblaðið London Times; allan liðlangan daginn veitir hann viðtöku á skrifstofu sinni fulltrúum erlendra ríkja, lang- ferðamönnum og forustumönnum í sænsku þjóðlífi, er vitja á fund hans ýmissa erinda, og alt af er það sama háttvísin, sem einkennir dagfar hans. Gustaf Adolf var sextíu og átta ára að aldri, er hann kom til ríkis að föður sínum látnum 1950 og hafði hann þá ferðast vítt um lönd; hann hefir um langt skeið gefið sig að fornfræði og fornleyfarannsóknum og er sem sérfræð- ingur viðurkendur í þeim efnum; vann hann að slíkum rannsóknum á Grikklandi, ítalíu, Cyprus, Kóreu og Kína; hann hefir grafið í dysjar og rofið hauga og leitt fram í dagsljósið merkar, sögulegar minjar, er huldar hefðu verið að öðrum kosti sjáaldri nútímans; þeir finna margt, sem hlífa sér eigi við áreynslu og þora djúpt að grafa. Gustaf Adolf hefir yndi af hestum og kann manna bezt með þá að fara; hann þykir einnig góður veiðimaður, en gefur sig einkum við silungsveiði; hann á veiðileyfi í á nokk- urri norður í Svíþjóð og hygst að ná þangað fótgangandi í haust; vegalengdin er eitthvað um fjórar mílur, en þangað er enn eigi bílfært að sögn. Gustaf Adolf ræður yfir góðu landi og mikilli fram- faraþjóð; hann hefir eigi aðeins með skapgerð sinni, stefnu- festu og hreinskilni, orpið bjarma á sænsku þjóðina, heldur og norræna kynþáttinn í heild. Hugleiðingar um Guðmund G. Hagalín og bók hans „Úr blámóðu aldanna/# Þorbjörn Björnsson, Geitaskarði: Mér er gott að lesa sögur og frásagnir Guðmundar Hagalíns. Það er hugþekkur svipur yfir þeim, líkt sem vorblær strjúkist um vanga manns. Þó getur hagl kastazt úr heiðríkjunni hjá hon- um, svo að svíði undan. En það er tilbreytinganna hressileiki, sem alltaf er gott að hafa með í lífsins ýmislegheitum. Það líkar mér — að tekið sá á mannanna brestum og bagsi með góðleik og skilningi, að fært sé frekar til hins betri vegar það sem áfátt verður með réttbreytnina. Það finnst mér G. H. æviniega leit- ast við að gera í skáldsögum sínum og frásögnum. Líka er hann snillingur að lýsa hinum spaugilegu hliðum mannlegs lífs skapa kímna frásögn. Honum virðist flestum skáldum fremur sýnt um, að hirða upp af götu sinni ýmislegt það, er að góð- gæti verður, er farið hefir í gegnum hug hans og penna. Úr brotasilfri gamalla og nýrra frá- sagna steypir hann fagra, dýrð- lega gripi, sem nautn og mann- bót er á að horfa og um að þenkja eða svo finnst mér. Nú hefi ég nýskeð lesið Sólirn- ar hans sjö mér til mikillar nautnar, en þar um ræði ég ekki nú, heldur var mér hitt ofar í hug, að minnast örfáum orðum á hina andlega bragðljúfu frá- sagnaþætti hans — bókina, er hann nefnir „Úr blámóðu aldanna“. Þar er um að ræða fyrirbæri og frásagnir frá löngu liðnum tímum, er geymzt hafa í hugum fólksins, lið fram af lið, móðir sagt dóttur og faðir syni, þar til nú að G. H. hirðir upp og færir í letur. Einkum eru það frá- sagnirnar tvær, af Þórhildi bænakonu og Brandi rauða, er mér hafa orðið að umhugsunar- efni. Þórhildur bænakona hafði frá barndómi verið líkamlega ör- kumla manneskja og liðið þján- ing mikla, en henni hafði þrátt fyrir líkamskröm ræktazt við móðurkné sliturstilbeiðsluþrótt- ur, bænhiti og guðstraust, að við hinir veiktrúuðu menn verðum undrun slegnir við frásögnina af þessari líkamlega þjökuðu, en andlega sterku konu. Hún birtist alls staðar, með sinn líknandi og læknandi kærleikshug til manna og dýra. Síðast tjáir frásögnin, að henni hafi með eldhita bæn- ar sinnar tekizt að lægja um stund hamslausa brotöldu haf- sjóanna og bjarga 40 mannslíf- um. En í sjálfsgleymi bænar- hitans gleymir hún eigin lífs- hættu og hafaldan hverfist yfir hana og hún hverfur í öldurótið. Sumir telja þessa frásögn af Þórhildi bænakonu fjarstæða og með engum líkindum. En ég segi við sjálfan mig og aðra, við sem ekki höfum öðlazt styrk hins eldheita bænarmagns, getum ekki neitað, að fyrir mátt bæn- arinnar, hafa yfirnáttúrlegir hlutir gjörzt og gerast enn þann dag í dag, þar sem máttur bæn- heyrsluvissunnar býr í manns- sálunum. Getur ekki sá sami drottinsmáttur, er fyrir eldheit- ar bænir fiskimannanna á Genesaretvatni forðum lægði brotnandi háölduna, hafa heyrt og bænheyrt Þórhildi bænakonu á þáverandi háskastund. Hin sagan eða frásögnin af Brandi rauða, er einnig mjög athyglisverð. Hún segir frá hin- um dullynda, hefnigjarna jötun- eflda skapmanni. Hann hafði fastráðið hefnd á hendur mönn- um tveim, er gerzt höfðu mót- gjörðamenn konu hans. — Hann var fastráðinn til blóðhefndar og dráps þessara manna. En þá kemur Gunnhildur kona hans til skjalanna, sú, er raunar sökótt- ast átti við mennina. Hún elskar Brand og Brandur hana, en á örlagastund sögunnar birtist hún, ekki með stóryrðamagn á vörum né sterkum handsveifl- um, heldur með mildi og góðleik geislandi úr augum. Með mýkt og skilning hins fyrirgefandi kærleikshugar, vinnur hún sinn stóra sigur yfir hefnigirni og drápshug bónda síns. í lok sögunnar segir: „Hún greip hönd hans og hefti för hans og segir: „svo mun þér nú finn- ast Brandur minn, að ég tali furðulega, svo sem ég sé einhver spekikona. En ég hefi margt hugsað, bæði fyrr og síðar, þó ekki sízt eftir að hin sárasta kvöl og dýpsta niðurlæging snerist til gæfu og gleði vegna ástar þinnar og gæzku við fæð- ing sonar okkar, og hvort mundi nú ekki ærinn vandi að höndum borinn Brandur minn. Hér mundi margt að ugga. Mér skilst bóndi minn og bjargvættur, að engin örlög muni sárari en þau, að manneskjan tortími sjálf mik- illi hamingju, sem henni hefir unnist fyrir ástundun þess bezta, er í henni býr. Hamingja okkar sýnist mér sem juri, er þú hefir borgið undan skriðum og grjót- hruni — borgið hingað heim og hlúð að, af allri þeirri nærfærni og ástúð, sem guð hefir þér gefið. Og nú hefir hún borið það blóm, er tryggt fái hana varanlega, ef sjálfskaparvíti okkar koma ekki til — þú telur, að á hana hafi fallið skuggi misgerðanna — en hvort mundi sá skuggi dreifast og blómi hennar aukast — eða þá hitt, að hún félli við róð, ef við vökvuðum hana blóði, hvort sem sekt er eða saklaust — ef við skírum son okkar blóði þeirra umkomulausu manna, er þú hefir hrifið úr hrönnum brims og veðurógna.“ — Mér er það raunar freisting nokkur að tilfæra fleira úr samræðum þeirra Gunnhildar og Brands, en nem hér þó staðar. Það er meining mín að vekja athygli á því, sem er hinn rauði þráður og bjarta skin þessarar sögu eða frásagnar G. Hagalíns og á að vera og getur verið hinn trausti skapandi máttur mann- legs lífs — hinn mildi fyrirgef- andi kærleikshugur, sem rækt- ast getur í mannlegum sálum og það oft við hin ólíkustu ytri skil- yrði. Hitt mætti einnig á benda í þessu sambandi, hvílíkur mátt- ur og vald býr í konunnar milda hjarta og mjúku hönd — máttur, sem getui; lægt og frá bægt á- hrifum og afleiðingum frá hinni stórbrotnu, vígreifu karlmanns- lund, er oft birtist í ýmsum myndum. Svo er það, sem betur fer, að enn í dag er fjölda íslenzkra kvenna í blóð borinn sá máttur slíkur, er Gunnhildur þessarar sögu hefir hjá sér að hlúð og ræktað — máttur til að afstýra böli og vandræðum ýmissum. Guðmundur Hagalín ann gró- andi mold og grýttum fjöllum, brotnandi báru og blikandi hafi — hann er sonur íslenzkrar nátt- úru, hann talar af miklum næm- leik og skilningi um íslenzkt dýralíf, tamið og villt. Hann er dýrkandi fegurðar, góðleiks og manndáða, hann er, þrátt fyrir hinn létta gleðibrag stíls síns, mikið innsæisskáld. Hann gerir lesendur sína bjartari í skapi og betur þenkjandi. Hann er einn þeirra velgefnu, bjartsýnu skálda, er eiginlega alltaf sér margar sólir á lífshimni sínum og annara — sólir lífsgleði og hamingju. Þær vona ég að hann sjái — og segi frá — allt til sinnar áraháu elli. —TÍMINN, 18. juíí Faðirinn: — Hvernig heldurðu að hefði farið fyrir mér, ef ég hefði verið síspyrjandi að öllu, þegar ég var lítill, eins og þú? Sonurinn: — Þá gætirðu lík- legast svarað einhverju af því sem ég er að spyrja þig um nú! Smásagan Menningarbragur GIUSEPPE MANIOLA græn- metissali missti konu sína skömmu eftir að hún hafði fætt honum dóttur, sem skírð var Rósa. Og Giuseppe ákvað að ala barnið upp sjálfur og hugsa um það að öllu leyti. Hann matreiddi handa Rósu, saumaði fötin á hana jafnvel í körfu ofan á grænmetisvagninum sínum á meðan hann var að selja. Það var því almennt gamanyrði á torginu næstu árin: „Hvað kostar Rósa?“ Giuseppe hugsaði um framtíð dóttur sinnar. Á hverju kvöldi lét hann alla smámynt í gamla olíukönnu, og þegar Rósa hafði lokið námi í gagnfræðaskóla, þá tæmdi hann könnuna og í henni voru þá nálega 500 dollarar. Því miður nægði þetta ekki til þess að hann gæti sent Rósu í há- skóla, svo hann tók þann kost að senda hana í verzlunarskóla. HÁLFU ÁRI seinna fékk Rósa atvinnu á skrifstofu lögfræðings. Þetta var ungur maður — John Wakefield hét hann — og hann hafði mikið álit á sjálfum sér. Það var svo sem ekki undarlegt, því að faðir hans var stórríkur og hafði látið hann stunda nám í Oxford, Sorbonne og að lokum í lögfræðideild Harvard háskóla. Það er svo ekkert af því að segja nema að kunningsskapur þeirra Johns og Rósu varð al- veg eins og segir í ævintýrasög- unum. Fyrst í stað leit hann ekki við henni. Síðan gerðist hann svo lítillátur að lesa henni fyrir. Og þá fór hann að taka eftir því, að hvorki heima né erlendis hafði hann kynnst stúlku, sem var eins og Rósa. Og þá fór hann að bjóða henni í smáskemmti- ferðir með sér og í Tívoli. Og þegar þau fóru hringferðir með stóra hjólinu og Rósa varð hrædd, strauk hann lokka henn- ar og hvíslaði að henni orðum, sem allar ungar stúlkur þrá að heyra. Hún var fyrst í sjöunda himni, en svo kom hugsunin um föðurinn, grænmetissalann og skyggði mjög ískyggilega á gleðina. Og það varð ekki hjá því komizt að hún varð að sýna kærastanum föður sinn. Áður en þau lögðu á stað til skrifstofunn- ar, lét hún föður sinn raka sig og setja á sig nýtt hálsbindi. En það var með hálfum huga að hún leiddi hann fram fyrir kærastann. Giuseppe varð þegar hrifinn af hinum fögru skrifstofum og sérstaklega af heiðursskjölunum, 'sem þar voru upp um alla veggi. Og hann tókst á loft, þegar hann heyrði að John hafði misst móður sína í bernsku, eins og Rósa. — Hver eldaði matinn handa þér? spurði hann. Rósa reyndi að koma föður sínum í skilning um að faðir Johns hefði haft nóga þjóna og þj ónustustúlkur til þess að hugsa um hann. En Giuseppe var ekki ánægður með það. — Það er ekki sama að láta þjóna elda matinn eins og að gera það sjálfur, sagði hann. Heimsæktu mig á firnmtudag- inn, og hafðu pabba þinn með, og þá skal ég sýna þér hvernig á að fara að því að elda heima. — Ég tek boðinu, sagði John. Rósa hefir sagt mér, að enginn, geti búið til jafn góðar pönnu- kökur og þú. Um kvöldið heyrði Giuseppe að Rósa var að gráta og kom honum það á óvart. Morguninn eftir spurði hann hvað að henni hefði gengið. — Ég veit, að þú gerðir það í góðu skyni að bjóða þeim heim, sagði hún, en með þessu hefirðu glatað framtíð minni. Þegar faðir Johns sér, hvað allt er hér ömur- legt, þá tekur hann það ekki í mál að John giftist mér. Þegar hún var farin svipaðist gamli maðurinn um í herberginu og var að furða sig á því hvað hún hefði átt við. Hvað var að þessu herbergi? Það var þó hreint upp í loft. Hvers vegna kallaði Rósa það ömurlegt? Allt í einu rann upp ljós fyrir honum — það voru veggirnir. Á þeim var ekkert nema mynd hinnar heilögu meyjar og al- manak frá járnvöruverzlun. Já, þá voru ólíkir veggirnir hjá honum Wakefield — allir með istórum skjölum í umgjörð. — Ég skal kippa þessu í lag, Rósa, sagði hann við sjálfan sig. Á FIMMTUDAGINN kom Rósa með þá feðgana til föður síns. Þar var upp marga bratta stiga að ganga, svo þeir voru lafmóðir, er þeir voru komnir alla leið. En þegar þeir komu inn í herbergi Giuseppe supu þeir blátt áfram hveljur af undrun. Frá gólfi til lofts voru veggirnir allir þaktir hinum furðulegustu skjölum, bjórauglýsingum, námsvottorð- um rakara og ýmissa annarra handverksmanna, vöruauglýs- ingum, félagsskírteinum og ótal mörgu öðru þess háttar. Rósa varð náföl þegar hún sá þetta, og John dreyrroðnaði. En gamli Wakefield byrjaði að hlæja. — Er þetta------jú, þetta á að vera eftirlíking af skrifstofu sonar míns, sagði hann. Ég á við — að þú hefir verið að stæla veggskrautið þar, öll heiðurs- skjölin. Er það ekki rétt? Gíuseppe kinkaði kolli. — Mér sýnist á svip sonar míns, að hann hafi skilið skensið, sagði gamli Wakefield. Þú hefir ætlað að koma honum í skilning; um það, að allir geta fengið heiðursskjöl, en að mannkostir og manndáð eykst ekki við það, að hengja slíkt upp á vegg hjá sér. Ég er þér innilega sammála og ég tek í höndina á þér fyrir þ.etta ágæta bragð. Giuseppe brosti vandræðalega. — Mér þykir vænt um að þér lízt vel á herbergið, sagði h&nn. En gerið þið nú svo vel að fá ykkur sæti. Pönnukökurnar eru, tilbúnar .... Daginn eftir tók John öll heiðursskjölin niður af veggjun- um hjá sér og lét þau fram í ruslakompu. En Giuseppe er enn eigi farinn að skilja. —Lesb. Mbl. Vísitors to the tented camp at Dundurn, Sask., inspect the “lines”. The Army cadets attending the camp normally sleep in barrack blocks. However, during their stay at Dundurn Camp each boy spends at least one week in the tented camp.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.