Lögberg - 05.11.1953, Side 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
66. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN, 5. NÓVEMBER, 1953
Phone 72-0471
BARNEY#S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
NÚMER 45
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
25. OKTÓBER
1 gær var vetrardagurinn
fyrsti og var þá frost um allt
land og snjókoma hafði verið í
tfyrrakvöld og fyrrinótt um
mestallt Norðurland og jörð þar
alhvít, að minnsta kosti austan
til. Sunnanlands var bjart veð-
ur auð jörð en nýfallinn snjór
og ofan í fjallshlíðar. Veður
hefir verið milt og gott að undan
förnu.
☆
Útför biskupsins yfir íslandi,
herra Sigurgeirs Sigurðssonar,
var gerð frá dómkirkjunni í
Reykjavík á miðvikudaginn var
'og safnaðist þá saman mikill
mannfjöldi í grennd við biskups-
setrið og umhverfis kirkjuna.
Húskveðja hófst kl. 13.30 og
tflutti séra Sveinn Víkingur
biskupsritari kveðjuræðuna. —
Hempuklæddir prestar gengu
síðan fyrir kistunni tveir og
tveir saman í kirkju og var það
löng röð. Séra Jón Auðunn dóm-
prófastur flutti ræðu, Ásmund-
ur Guðmundsson prófessor, for-
maður Prestafélags Islands,
flutti kveðjur og þakkir af hálfu
presta landsins. Úr kirkju báru
ráðherrar og skrifstofustjórar úr
stjórnarráðinu. Forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, og for-
setafrúin voru við húskveðjuna
og í kirkjunni. — Hvarvetna í
Reykjavík og víðar á landinu
voru fánar drengnir í hálfa
stöng vegna útfarar biskups.
Herra Sigurgeir Sigurðsson
var skipaður biskup yfir Islandi
frá 1. janúar 1939 að telja og
gegndi því embætti til dauða-
dags. Hann var starfsmaður
mikill og ástsæll af alþýðu
manna, brennandi áhugamaður
um framgang kirkju og kristni.
Hann beitti sér af kappi fyrir
bættum starfskjörum presta og
varð mikið ágengt í því efni. Oft
ferðaðist hann til útlanda í
biskupstíð sinni, sat ráðstefnur
biskupafundi og kirkjufundi og
var nú síðast í sumar í Noregi á
>afmælishátíð dómkirkjunnar í
Niðarósi.
☆
Vöruskiptajöfnuðurinn í sept-
embermánuði s.l. varð óhag-
stæður um 12,9 miljónir króna.
Út voru fluttar vörur fyrir 77,3
miljónir króna, en inn fyrir 90,2
miljónir króna. Vöruskiptajöfn-
uðurinn við útlönd fyrstu 9 mán
uði ársins var óhagstæður um
230,6 miljónir króna. Út voru
fluttar vörur fyrir 462,9 miljónir
en inn fyrir 693,5 miljónir króna.
Merkur maður
lát-inn
Síðastliðinn mánudag lézt í
Calgary Sigurður Sigurðsson
fyrrum húsgagnakaupmaður þar
í borginni, sjaldgæfur athafna-
maður, mikill höfðingi og góður
Islendingur.
Sigurður var 79 ára að aldri,
ættaður frá Svelgsá í Snæfells-
nessýslu.
Fundið Úranium
Nýjar fregnir herma, að
skamt austan við bæinn Kenora
í Ontariofylkinu, hafi fundist
mikil Úraníumlög í jörðu, sem
námafræðingar frá Quebec telji
svo verðmæt, að vinnsla þeirra
megi ekki dragast á langinn.
Nokkrir togarar hafa selt í
Þýzkalandi að undanförnu, en
enginn í Englandi síðan Ingólfur
Arnarson rauf löndunarbann
brezkra togaraeigenda um dag-
inn. Margir togarar hafa stund-
að karfaveiðar og er sá afli
frystur. Lítt hefir gefið til síld-
veiða síðustu vikurnar. — Slátr-
un sauðfjár er víðest lokið og
var fáum gimbrum slátrað,
enda heyjuðu bændur vel í sum-
ar og hafa mikin hug á því að
fjölga fé sínu.
☆
Háskóli Islands var settur
með viðhöfn í gær. Alexander
Jóhannesson háskólarektor á-
varpaði nýstúdenta, Ólafur
Lárusson prófessor flutti erindi
um skaðabætur og Páll Isólfsson
stjórnaði flutningi á alþingis-
hátíðarkantötu sinni. í upphafi
ræðu sinnar minntist rektor
Árna Pálssonar prófessors, sem
lézt á liðnu skólaári og síðan
minntist hann nýlátins biskups
þjóðarinnar. Rektor gat þess, að
nú væru innritaðir til náms í
háskólanum 759 stúdentar, auk
þess eru margir íslenzkir stú-
dentar erlendis og mun tala
stúdenta við nám hérlendis og
erlendis vera milli 900 og 1000.
Rannsakað hefir verið, hve
Framhald á bls. 4
íslenzki
Rugby-kappinn
Lorne Benson
Frækni þessa unga íþrótta-
manns hefir verið á hvers manns
vörum þessa síðustu daga vegna
afreks hans þegar Rugby-flokk-
ar Winnipeg Blue Bombers og
Saskatchewan Rough Riders
leiddu hesta sína saman í fyrri
viku í Winnipeg Stadium. Kom
hann knettinum í mark sex
sinnum og er það met í þeim
leik. Keptu þessir tveir flokkar
aftur í Regina á laugardaginn,
og meiddist þá Lorne nokkuð,
svo óvíst er talið að hann geti
tekið þátt í leikkeppninni milli
Blue Bombers og Edmonton
Eskimos á laugardaginn, en svo
verður önnur leiksamkeppni
milli þessara flokka í Winnipeg
11. nóvember og er þá vonandi,
að hann geti aftur komið sínum
flokki, Blue Bombers, til liðs.
Þessa harðsnúna og frækna
Rugby-leikara hefir áður verið
getið í Lögbergi. Hann er
fæddur f Riverton, sonur Mr. og
Mrs. C. Richard Benson. Al-
bertina móðir hans er dóttir
Baldwins heitins Halldórssonar
og eftirlifandi konu hans, Maríu
ólafsdóttur, systur Odds Ólafs-
sonar og þeirra bræðra. En
faðir hans er sonur Egils heitins
Benson og konu hans, Lovísu.
Lorne er kvæntur og á þrjú
börn.
.» • • • •
17 dvalargestir dvelja nú á
EMiheimiíinu í Hveragerði
MR. OG MRS. J. J. VOPNI
Kunn Kjón eiga demantsbrúðkaup
Síðastliðinn fimtudag áttu hin kunnu hjón, Mr. og Mrs.
J. J. Vopni demantsbrúðkaup og var þess minst með
fjölskyldufagnaði á heimili sonar þeirra og tengdadóttur,
Mr. og Mrs. Edward Vopni, 125 Chataway Blvd. þá um
daginn.
Mr. Vopni kom af íslandi árið 1887 og hefir átt heima í
Winnipeg jafnan síðan; hann kvæntist 1893 Sigurborgu
Magnúsdóttur, sem er austfirzk eins og hann; þeim varð
ellefu barna auðið og eru níu af þeim á lífi.
Mr. Vopni hefir verið mikill athafnamaður um dagana
og hlíft sér lítt; hann átti um skeið sæti í bæjarstjórn og
var um mörg ár í framkvæmdarnefnd Almenna sjúkra-
hússins í Winnipeg; einnig tók hann, ásamt frú sinni,
virkan þátt í starfrækslu Fyrsta lúterska safnaðar.
Lögberg flytur demantsbrúðhjónunum hlýjar árnaðaróskir.
Senator Dovis
lótinn
Hinn 26. október síðastliðmn
lézt í St. Boniface Sentator John
Caswell Davis 65 ára að aldri,
merkur maður og vel að sér ger;
hann var verkfræðingur að
mentun og stofnaði fyrirtæki
það hér, er ber nafn hans. J. C.
Davis Limited. Hinn látni
Senator hafði jafnan mikinn
áhuga á stjórnmálum þótt aldrei
byði hann sig fram til þings;
hann var um langt skeið for-
maður • Liberalsamtakanna í
Manitoba og lá ekki á liði sínu
ef velferðarmál flokksins áttu
í hlut. Senator Davis var fædd-
ur í Montreal af írsku foreldri
og játaði kaþólska trú; útskrif-
aður var hann í vélaverkfræði
af McGill háskóla; með Senator
Davis er til grafar genginn
góður og gildur Canadaþegn;
hann var skipaður Senator 1949.
VICTOR B. ANDERSON
Endurkosinn í bæjarsijórn.
Unnið að því að auka húsrýmið
svo að unni verði að iaka við
fleiri gesium
Elli- og dvalarheimilið í
Hveragerði hefir nú starfað
í rúmt ár. Hefir verið mikil
eftirspurn eftir dvöl þar og
ekki unnt að anna henni.
Dvalargestir eru nú 17 eða
eins margir og húsnæðið
rúmar en unnið er nú að því
að innrétta aukið húsrými
og verður þá væntanlega
hægt að taka við fleiri
dvalargestum.
Húsnæði Elli- og dvalar-
heimilisins í Hveragerði er eign
Árnessýslu en Elliheimilið
Grund í Reykjavík sér um
rekstur þegs.
Kúsnæðið aukið
Húsnæði elliheimilisins hefir
undanfarið verið tvö timburhús,
annað fyrir dvalargesti en hitt
fyrir starfsfólk. Nú er verið að
innrétta það þriðja og verður
því unnt að bæta við dvalar-
gestum.
Aðsókn hefir stöðugt aukizt að
elliheimilinu. Þegar það tók til
starfa voru dvalargestir aðeins
3, en núna eru þeir orðnir 17 eða
eins margir og húsnæðið rúmar.
Greiður aðgangur á milli
•Þar eð bæði elliheimilin í
Reykjavík og Hveragerði eru
undir sömu stjórn hefir vefið
greiður aðgangur þar á milli.
Hafa gestir af Elliheimilinu
Grund iðulega dvalið um tíma í
Hveragerði og dvalargestir úr
Hveragerði hafa verið sendir
til Reykjavíkur einkum er þeir
hafa þurft betri og nákvæmari
umönnun, þar eð heilsugæzla er
á hærra stigi á elliheimilinu í
Reykjavík.
Lömuð börn þar í sumar
I sumar dvöldu um mánaðar-
tíma nokkur lömuð börn í
Hveragerði á vegum lækningar-
stöðvar lamaðra í Elliheimilinu.
Voru þau þar einkum sér til
hvíldar og hressingar, þar eð
sjúkraleikfimin og nuddæfingar
eru þreytandi til lengdar. Með
börnunum var stúlka og gátu
börnin undir eftirliti hennar
PAUL W. GOODJVIAN
Kosinn í bæjarsljórn með miklu
afli atkvæða.
Unaðslegt söngkvöld
Söngsamkoma frú Guðmundu
Elíasdóttur í Fyrstu lútersku
kirkju síðastliðið þriðjudags-
kvöld, má teljast til meiriháttar
viðburða í hljómmenningu okk-
ar Vestmanna og raunar íslenzku
þjóðarinnar í heild, því hér var
verið að kynna ísland nútímans
í tónum; meðal nýrra snildar-
laga má telja í dag skín sól
eftir Pál ísólfsson, Seinasta
nóttin eftir Magnús Jóhannsson,
Hjá lygnri móðu eítir Karl Ó.
Runólfsson og Unglingurinn í
skóginum eftir Jórunni Viðar;
lög þeirra Sigfúsar Einarssonar
og Björgvins Guðmundssonar
eru okkur fyrir löngu að góðu
kunn; ánægjuefni mikið var það,
að kynnast íslenzku þjóðlögun-
um í skrautbúningi Jórunnar
Viðar, ekki sízt eins og frú Guð-
munda. túlkaði þau fagurlega;
söngskráin var fjölbreytt og um
alt hin vandaðasta; .gbtt var að
hlusta á Solveigs Sang eftir
Grieg og hrifniúgu mikla vakti
meðferð söngkonunnar á sænska
þjóðlaginu Fjorton Aar.
Meðal hinna stærri við fangs-
farið í laugina og notið sumar-
blíðunnar í Hveragerði.
Heniugur siaður fyrir
elliheimili
Hveragerði væri mjög hentug-
ur staður einmitt fyrir lækninga
stöð lamaðra vegna hins mikla
jarðhita.
Staðurinn er einnig mjög
hentugur fyrir elliheimili og
ætlunin er að stækka húsnæðið
fyrir austan smátt og smátt svo
að sem flestir geti dvalið þar.
—Alþbl., 19. sept.
efna ber að nefna hlutverkið úr
II Trovatore og Samson og
Dalila og kom þá að góðu haldi
hin ágætlega þjálfaða og blóð-
ríka rödd frú Guðmundu;
einna bezt naut hún sín á mið-
tónum og hinum lægri tónum
og þar gætti raddmýktarinnar
mest; meðferð hennar á laginu
úr Carmen, en Jakob Jóhannes-
son Smári, hafði snúið textan-
um á íslenzku, féll í frjófan
jarðveg meðal hlustenda og það
að makleikum.
Frú Guðmunda er enn ung og
á vonandi langan og merkilegan
listaferil framundan; textafram-
burður hennar er hreinn og tón-
túlkun ákjósanleg.
Við hljóðfærið var Thora
Ásgeirsson—du Bois og var
undirleikur hennar samúðar-
ríkur og heillandi. Söngkonunni
var ákaft fagnað og varð hún
að syngja mörg aukalög.
Aðsókn að söngkvöldi þessu
var með ágætum og munu víst
flestir ala í brjósti þaðan ljúfar
i endurminningar.
Jakobínukvöld
Samkoman, er félag unga
fólksins, Leifs Eiríkssonar klúbb
urinn efndi til á föstudaginn
23. okt. í tilefni af 70 ára af-
mæli skáldkonunnar Jakobínu
Johnson, var vel sótt og fór hið
bezta fram. Miss Lilja Eylands
hafði samkomustjórn með hönd-
um og leysti það hlutverk vel
af hendi. Fyrirlestur Dr.
Richard Becks um skáldkonuna,
var með ágætum eins og"vænta
mátti og mun hann birtast í
jólahefti Icelandic Canadian
ritsins. — Þakkaði Erlendur
Eggertson Dr. Beck fyrir kom-
una og fyrirlesturinn. — Miss
Evelyn Thorvaldson söng nokk-
ur lög, er samkomugestir höfðu
mikla unun af; hún hefir fagra
og tæra rödd; var sérstaklega
ánægjulegt að heyra hana
syngja Vögguljóð eftir Jakobínu
Johnson, lagið eftir Steingrím
K. Hall. Björn Sigurbjörnsson
las nokkur kvæði eftir skáld-
konuna og Einar P. Jónsson
þakkaði félaginu fyrir að heiðra
tengdasystur sína á þennan
hátt, og las síðan kvæði, er Dr.
Sigurður Júl. Jóhannesson hafði
ort til skáldkonunnar í tilefni
afmælisins.
W. J. Lindal dómari, forseti
Icelandic Canadian Club, las
heillaskeyti frá félagi sínu, er
fylgjast skyldi með árnaðarósk-
um Leifs Eiríkssonar félagsins.
Hlýtur
viðurkenningu
Dr. Edward Johnson
Hinn mikilhæfi yfirlæknir við
geðveikraspitalaífn í Selkirk, Dr.
Edward Johnson, var á nýáf-
stöðnu ársþingi ameríska geð-
veikislæknafélagsins að Little
Rock, Arkansas, sæmdur verð-
launum þessa félags fyrir frá-
bæra hæfni varðandi meðferð
geðveikra og sjúkrahúsrekstur
slíkrar tegundar.
Dr. Johnson er fæddur í Win-
nipeg og útskrifaður í læknis-
fræði af háskóla Manitoba-
fylkis; foreldrar hans voru hin
kunnu landnámshjón, Guð-
mundur Johnson álnavörukaup-
maður í Winnipeg og Katrín
kona hans.