Lögberg - 05.11.1953, Page 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 5. NÓVEMBER, 1953
Lögberg
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Gefið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrift ritstjörans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SAROENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 74-3411
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The ‘Lögberg” ia printed and published by The Columbia Press Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Class Mail, Poat Offiee Department, Ottawa
ísiendingar í bæjarstjórn og úrslit
kosninga
1 nýafstöðnum kosningum til bæjarstjórnar í Winnipeg
gengu tveir íslendingar sigrandi af hólmi, en það voru þeir
Paul W. Goodman forstjóri og Victor B. Anderson, er átt
hefir sæti í bæjarráði síðastliðin átján ár, og reynst yfir
höfuð hinn nýtasti bæjarfulltrúi; báðir voru menn þessir
kosnir í 2. kjördeild, en þar gætir íslenzkra áhrifa mest.
Þetta var í fyrsta skipti, sem Mr. Goodman leitaði
kosningar í bæjarstjórn, og er það hreint ekkert smáræðis
ánægjuefni, að hann hlaut langmest atkvæðamagn allra
frambjóðenda í kjördeildinni og var lýstur kjörinn að lok-
inni fyrstu talningu, en í borg þessari eru hlutfallskosning-
ar hafðar um hönd og þarf því tíðum að margflytja atkvæði
unz fullnaðarúrslitum er náð. Mr. Goodman er enn maður
á bezta aldri, vinsæll og hygginn maður, sem góðs má vænta
af í bæjarstjórn; frá uppruna hans og ætt hefir áður verið
sagt hér í blaðinu og því ástæðulaust nokkru þar við að
bæta að öðru leyti en því, að óska honum giftusamlegra
athafna í hinum nýja verkahring.
Þessir nýkjörnu bæjarfulltrúar nutu hvor um sig auð-
sjáanlega því nær einróma kjörfylgis af hálfu íslenzkra
kjósenda í hlutaðeigandi kjördeild, og væri vel að þeir
mintust þess jafnan hverrar ættar þeir eru.
Skólaráðið er í raun og veru hluti af bæjarstjórn, og
það engan veginn óverulegur hluti; í því á sæti Peter D.
Curry, sem er íslenzkur í móðurætt, hagvitur maður og
stöðu sinni vel vaxinn.
Flokkar kljúfa þjóðfélög og bæjarfélög og gera vafa-
laust lengi enn; í bæjarstjórn sýnist flokkaskipting óþörf
og reynist stundum beinlínis skaðleg, þar sem barist er um
persónumetnað eða keisarans skegg; borgaranefndin svo-
kallaða tjáist óháð og utanflokka; þó leggur hún engu að
síður kapp á að útnefna vissa menn og fá þá kosna; á hinn
bóginn eru jafnaðarmenn eða C. C. F.-sinnar steinblindir
flokksmenn þar sem farið er einvörðungu eftir trúmensku
við flokkinn; lengra nær nú ekki víðsýnið en það.
Frá næstu áramótum, eins og venjulegast áður, ráða
fulltrúar borgarnefndarinnar yfir ákveðnum meirihluta í
bæjarstjórn og bera því megin ábyrgð á rekstri bæjar-
málefna.
í áminstum kosningum til bæjarstjórnar bættu C. C. F,-
sinnar við sig einum bæjarfulltrúa þar sem Gordon Fines
er, en hann náði kosningu í 2. kjördeild með slíkum hætti,
að nærri lét að riði Mr. Anderson að fullu.
Tvenn aukalög, er lögð voru undir úrskurð séreigna-
manna við atkvæðagreiðsluna, náðu framgangi, en það voru
heimildarlög um lántöku til nýrra skólabygginga og til
brúargerðar yfir Assiniboineána þar, sem Donaldstræti
liggur að henni; er hér um mikla og óumflýjanlega sam-
göngubót að ræða, er auðveldar að sjálfsögðu hina miklu
bílaumferð á hlutaðeigandi svæðum í borginni.
Til fyrirbrigða mátti það teljast, að í þessum nýaf-
stöðnu kosningum gekk Jacob Penner kommúnisti aftur og
vann kosningu til bæjarstjórnar, en flestir hugðu hann úr
sögunni eftir hina eftirminnilegu útreið hans í kosningun-
um 1951. Það er því auðsætt, að enn eiga kommúnistar ærið
örugt vígí þar, sem 3. kjördeild á í hlut.
Kjörsókn var slæleg og kjósendum þessarar vingjarn-
legu borgar til lítillar sæmdar.
☆ ☆ ☆ ☆
*
Vitaskuld er það okkur holt og að því nokkur sæmdar-
auki, að eiga í bæjarstjórn hæfa menn af okkar stofni, en
við þurfum að koma víðar við sögu en í ráðhúsinu í Winni-
peg. Því eigum við ekki ráðherra af íslenzkri ætt í stjórn
Manitobafylkis þar sem varanlegt landnám okkar fyrst festi
rætur og íslenzka þjóðarbrotið vestra er enn fjölmennast?
Því er ekki fiskiveiðaráðuneytið í höndum Islendings eins
og íslenzkir fiskimenn og fiskkaupmenn koma hér mikið
við sögu?
A fylkisþingi eiga sæti tveir ágætir og hæfir íslend-
ingar, þeir Dr. S. O. Thompson þingmaður Gimli kjör-
dæmis og Mr. Chris. Halldórsson þingmaður fyrir St.
George kjördæmið. Myndi ekki Dr. Thompson sóma sér all-
vel í heilbrigðismálaráðherraembætti eða Mr. Halldórsson
sem forustumaður fiskiveiðaráðuneytisins, sem fæddur er
og uppalinn á bökkum Manitobavatns? Gjalda þeir þess að
vera af íslenzkum ættum, en ekki skozkum?
Við Islendingar þurfum að standa vörð um réttmætan
metnað okkar og láta hvorki Skotann né heldur nokkurn
annan þjóðflokk éta okkur á fæti.
☆ ☆ ☆ ☆
Deild Þjóðræknisfélagsins á Gimli heldur. hátíðlegt tíu
ára afmæli sitt á föstudaginn kemur og telur nú fleiri félaga
en nokkru sinni áður í starfssögu sinni; af þessu er meðal
annars sýnt, þó að margt gangi á tréfótum á vettvangi þjóð-
ræknismálanna, að enn er síður en svo, að alt sé komið í
kalda kol; nýjar félagsdeildir þarf að stofna og endurvekja
þær, sem í dái liggja.
Ávarp forseta íslands við
setningu Alþingis
Hinn 17. september síðastlið-
inn var gefið út forsetabréf svo-
hljóðandi:
Forseti íslands
gjörir kunnugi:
Ég hef ákveðið samkvæmt til-
lögu forsætisráðherra, að reglu-
legt Alþingi 1953 skuli koma
saman til furídar fimmtudaginn
1. október n.k.
Um leið og ég birti þetta, er
öllum, sem setu eiga á Alþingi,
boðið að koma nefndan dag til
Reykjavíkur og verður þá Al-
þingi sett að lokinni guðsþjón-
ustu í dómkirkjunni, er hefst
klukkan 13.30.
Gjört í Reykjavík 17. sept. 1953
Ásgeir Ásgeirsson
(L. S.)
Ólafur Thors
(sign)
FORSETABRÉF
um að reglulegt Alþingi 1953
skuli koma saman til fundar
fimmtudaginn 1. október 1953.
Samkvæmt því bréfi, sem ég
nú hefi lesið, lýsi ég yfir því, að
Alþingi íslendinga er sett.
Frá því er Alþingi var stofn-
að eru nú 1023 ár. Frá því að
Alþingi var endurreist og kom
saman að nýju fyrir 108 árum,
er þetta 88 samkoma þess, en
frá því að það fékk aftur lög-
gjafarvald fyrir 79 árum, er
þetta hið 73. í röðinni, en 56.
aðalþing.
Það er nýkosið þing, sem nú
kemur saman til fyrsta fundar.
Að vísu hafa þingflokkar áður
komið saman til viðræðna um
stjórnarmyndun utan þing-
funda. Um þá aðferð við stjórn-
armyndun er fordæmi ,og eins
er öllum kunnugt, að samningar
um stjórnarmyndanir fara al-
drei fram á opnum þingfundum.
Auk þess stóð nú svo á, að tveir
stærstu flokkar þingsins, sem
störfuðu saman í ríkisstjórn á
síðasta kjörtímabili, höfðu á-
kveðið að ganga til samninga á
ný um stjórnarsamstarf. Að svo
komnu mæltist ég til þess við
fyrrverandi forsætisráðherra, að
gefnu tilefni, að ríkisstjórnin
segði ekki af sér fyrr en séð
væri fyrir um úrslit þeirra
samningstilrauna. Það er eðli-
legast, að samningar og auk þess
æskilegt við öll stjórnarskipti,
að sem skemmst sé á milli full-
gildra ríkisstjórna. Eins og öll-
um er kunnugt tókust samning-
ar og var ný ríkisstjórn skipuð
fyrir þingbyrjun.
Ég tel vel farið að komizt var
hjá þeim töfum og tilkostnaði,
sem fer í langdregna stjórnar-
myndun um sjálfan þingtímann.
Ég hygg og að flestir muni telja
þátttöku þessara tveggja flokka
í stjórnarmyndun vera eðlilega
afleiðing af úrslitum síðustu
kosninga og styrMeikahlutföll-
um flokka á Alþingi.
Hin nýja stjórn er samstarfs-
stjórn tveggja þingflokka. Ég
segi samstarfsstjórn en ekki
samsteypustjórn því flokkarnir
starfa saman en er ekki steypt
saman. Margir telja, að illt sé
að búa við samstarfsstjórnir
móts við það, að einn flokkur
hafi þingmeirihluta, og geti
framkvæmt stefnuskrá sína án
íhlutunar annara. Ýmsir eru og
þeirrar skoðunar að betri væru
minnihlutastjórnir með öllum
ráðherrum af einum flokki en
samsettar stjórnir af fleiri
flokkum.
En það er margt, sem kemur
til greina, er getur orkað tví-
mælis, þegar um skipun minni-
hlutastjórnar er að ræða. Minni-
hlutastjórn bjargast ekki án
‘samkomulags við aðra þing-
flokka, og þarf þá einnig nokk-
urn samstarfsvilja milli flokka.
Lítill þingflokkur getur haft
jafngóð starfsskilyrði eins og
aðrir stærri. Minnihlutastjórn
þarf, ef hún er ekki skipuð til
þess eins að starfa fram yfir
kosningar, að hafa líkur fyrir
því, að henni verði eirt af þing-
meirihluta og að geta komið
fram nauðsynjamálum á Al-
þingi. Framtíð hennar er ótrygg
og sífelldir lausasamningar. Þó
fer það nokkuð eftir stjórnmála-
starfsvenjum í hverju landi,
hvernig slíkt gefst. Meðalaldur
minnihlutastjórna er miklum
mun styttri en meirihluta-
stjórna, hvort sem er samstarfs-
eða hreinna flokksstjórna. Eftir
því sem ég þekki til í þeim
löndum, sem eru oss skyldust
stjórnarfarslega, þá hefir gengi
minnihlutastjórna farið minnk-
andi að sama skapi og þjóðfé-
lagið hefir færzt meira í fang
um stuðning við og afskipti af
félags- og atvinnumálum. Skip-
un minnihlutastjórnar getur
samt verið pólitísk nauðsyn, þó
þeir stjórnarhættir séu ekki
i'ramför frá þeim samstarfs-
venjum, sem vér Islendingar
höfum tamið oss um langt skeið.
Samstarfsstjórnir eru eðlis-
skyldari þeim hreina flokks-
meirihluta, sem flestir virðast
þrá. Ókostinn þekkjum vér af
reynslunni. Sá er eldurinn heit-
astur, sem á sjálfum brennur.
En stjórnmálastarfið verður al-
drei auðvelt eða vélgengt. Ef
stjórnmálaflokkur er svo fjöl-
mennur, að hann nái hreinum
þingmeirihluta, þá rúmar hann
einnig innan sinna vébanda
sundurleita hagsmuni, sem þarf
að samræma og ólík sjónarmið,
sem þarf að samrýma — og lík-
ist að því leyti samstarfsflokk-
um, sem þurfa að semja sín á
milli um hagsmuni, hugsjónir
og völd. Samstarfsstjórn tveggja
eða fleiri flokka gerir í upphafi
með sér málefnasamning, sem
kemur í stað kosningastefnu-
skrár, og er hann hennar stjórn-
arstefna. Málefnasamningurinn
tryggir að nokkru framhald-
samstarfsins mgðan verið er að
koma honum í framkvæmd, þó
alltaf berist jafnframt að ný og
óvænt viðfangsefni. Glöggir
stjórnmálamenn, sem eiga að
skilja hvar samningamörkin
liggja, eru þar í daglegri sam-
vinnu um afgreiðslu mála og
undirbúning löggjafar. Ummæli
mín ber ekki að skilja svo, að
ég taki samstarfsstjórnir fram
yfir hreinar meirihluta flokks-
stjórnir, heldur á hinn veg, að
hvern meirihlutastjórnarmögu-
leika beri að rannsaka til hlítar,
áður en horfið sé að myndun
minnihlutastjórnar.
örlög ríkisstjórna liggja jafn-
an í höndum hins háa Alþingis
og kjósendanna við hverjar
kosningar. Hver stjórn, hvernig
sem hún er til komin, þarf að
skapa sér starfhæfan þingmeiri-
hluta, til að geta haldið áfram
störfum. Það fer því bezt á því
að tryggja hverri stjórn meiri-
hlutastuðning eða hlutleysi í
upphafi, þó nokkuð þurfi að
sveigja til frá því sem einstakir
flokkar mundu helzt kjósa.
Það er krafa almennings að
afstöðnum kosningum, að starf-
hæfar stjórnir séu myndaðar án
verulegrar tafar. Um það eru
uppi ýmsar tillögur á síðari ár-
um, hvernig megi tryggja
stjórnarmyndun án óhæfilegs
dráttar. Ekki skal ég draga í efa,
að nokkuð megi ávinna með
breyttri löggjöf, og því síður
ræða einstakar tillögur, en ég
tel mér það bæði rétt og heimilt
að benda á, að stjórnarfari verð-
ur seint borgið með löggjöf einni
saman. Þess er dæmi, að stór-
veldi hafi liðið undir lok, sem
bjó við eina hina fullkomnustu
stjórnarskrá, sem fræðimenn
hafa samið, þó annað stórveldi sé
enn við líði, og njóti mikils álits
fyrir stjórnmálaþroska, sem býr
við óskráðar stjórnskipulags-
venjur einar saman. Þingmenn
og þingflokkar hafa óskráða
skyldu til stjórnarmyndunar
eftir sinni aðstöðu, og kemur
þar margt til grema, sem of
langt yrði upp að telja, en það
er hætt við að lögboðin stjórn-
armyndun myndi losa um hið
nauðsynlega samstarf við lög-
gjafarvaldið og draga að nokkru
úr þeirri ábyrgð, sem hver
stjórn á að finna til og bera.
Það er eðli lýðræðisins, að þeir,
sem við það búa, verði að reyn-
ast hæfir lil þess að stjórna.
Árna ég svo hinu nýkjörna
Alþingi allra heilla í störfum
fyrir land og lýð, þjóðinni árs og
friðar og bið alþingismenn að
minnast ættjarðarinnar með því
að rísa úr sætum.
—Mbl., 2. okt.
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
Framhald af bls. 1
margir stúdentar af þeim, sem
innritast, ljúka burtfararprófi,
og kom þá í ljós, að rúmlega
40% ljúka burtfararprófi en
hinir hverfa svo til allir frá
námi einhvern tíma á fyrstu
þremur árunum eftir stúdents-
próf. — Rektor ræddi um fjár-
mál háskólans, en happdrætti
hans hefir staðið undir flestum
byggingaframkvæmdum á há-
skólalóðinni. Háskólinn hyggst
nú hefja byggingu Náttúru-
gripasafns ríkisins og hefir
skuldbundið sig til þess að
greiða byggingarkostnaðinn, sem
er áætlaður 5 til 6 miljónir
króna, en það samsvarar tekjum
af happdrættinu í fimm til sex
ár. Árlegar tekjur af kvikmynda
húsi háskólans eru um 250.000
krónur, og er þeim að mestu
varið til kandidatsstyrkja, út-
gáfu rita, útgáfu íslenzkrar
orðabókar, bókakaupa og bók-
bands og aðstoðar í bókasafni.
Bókasafn háskólans er nú um
70.000 bind'i. Framlag ríkissjóðs
til háskólans á fjárlögum þessa
árs er um 3 miljónir króna. —
Háskólinn á marga sjóði og er
sáttmálasjóður stærstur þeirra,
3,650,000 krónur. Á árinu bárust
háskólanum tvær gjafir til sjóðs
stofnunar, 50,000 krónur frá
Finnboga Rúti Þorvaldssyni pró-
fessor og Sigríði Eiríksdóttur
konu hans til minningar um
son þeirra Þorvald, en hin gjöfin
er dánargjöf Gunnlaugs Krist-
mundssonar sandgræðslustjóra
til eflingar bóklegum þjóðlegum
fræðum eða til jarðvegsrann-
sókna eða gróðurathugana á
sandfokssvæðum hér á landi. —
Skömmu áður en háskólahátíðin
hófst afhenti forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, há-
skólanum að gjöf málverk af dr.
Vilhjálmi Stefánssyni eftir
bandaríska listmálarann Paul
Sample. Dr. Vilhjálmur Stefáns-
son var kjörinn heiðursdoktor
við Háskóla íslands árið 1930.
☆
Hið nýja hjúkrunar- og elli-
heimili Hafnarfjarðar verður
vígt í dag og síðan tekið í notk-
un upp úr næstu mánaðamótum.
Húsið er fjórar hæðir og kjall-
ari undir einum sjötta hluta
þess. Það er um 7500 tenings-
metrar, rúmar um 100 vistmenn
og kostaði nær því 5 miljónir
króna. Á einni hæðinni er sjúkra
deild og fæðingardeild, sem
rúmar 20 sængurkonur.
☆
Nýlega var haldinn á Selfossi
fundur um raforkumál Árnes-
sýslu og var þess krafist þar, að
á næstu fimm árum verði að
fullu lokið við að leiða rafmagn
um sýsluna alla, þar eð nú sé
nægilegt rafmagn fyrir hendi.
☆
Sanddæluskipið, sem verið
hefir á Hornafirði síðan 11.
ágúst í sumar, er nýlega farið
þaðan. Það hefir dælt þar upp
um 140.000 teningsmetrum af
sandi og gert nýja innsiglingar-
leið eða skipaskurð, sem er 750
metra langur. Sandurinn hefir
verið notaður til uppfyllingar
milli lands og Áslaugareyjar og
hefir nú verið lagður vegur
þangað, en þar eru verbúðir og
olíugeymar.
☆
Aðalfundur Prestafélags Is-
lands, sem nýlega var haldinn í
Reykjavík, gerði þessa ályktun
um aðalmál fundarins, hús-
vitjanir: „Þar sem húsvitjanir
presta eru bein embættisskylda
þeirra og auk þess einn þýðing-
armesti þátturinn í starfi þeirra,
væntir fundurinn þess, að prest-
ar landsins láti ekki undlr höfuð
leggjast að rækja þær, þar sem
þeim verður nú viðkomið, svo
kostgæfilega sem frekast er
unnt. Jafnframt beinir fundur-
inn því til stjórnar prestafélags-
ms, að leggja fyrir næsta aðal-
fund tillögur um það, hvernig
húsvitjunum presta í fjölmenn-
ustu kaupstaðarsöfnuðunum
verði bezt fyrirkomið.“ — Þeirri
áskorun var beint til stjórnar-
valdanna og alþjóðar, að veita
endurreisn Skálholts öruggan
stuðning, til þess að þjóðin geti
á verðugan hátt haldið hátíðlegt
900 ára afmæli biskupsstólsins
þar árið 1956.
☆ '
Það slys varð s.l. sunnudag,
að bandarísk flotaflugvél fórst
norðvestur af Vestmannaeyjum
með allri áhöfn, 9 manns. Flug-
vélin sendi neyðarkall kl. hálf
tíu um morguninn og heyrðist
ekki frá henni síðan. Veður var
mjög vont, en flugvélar voru
þegar sendar á staðinn og leitar-
flokkar gengu á fjörur. Nokkru
ef-tir hádegið sást gúmbátur
á reki og voru send þangað skip,
er að vísu fundu ekki gúm-
bátinn en ýmislegt brak úr flug-
vélinni, sem tók af öll tvímæli
um að hún hefði farizt. Leit var
haldið áfram næstu daga og
fundust tvö lík flugmanna úr
flugvél þessari.
☆
Síðdegis á miðvikudaginn
kviknaði í íbúðarhúsinu á Stóru
Borg í Grímsnesi. Heimilisfólk
var allt að heiman, en fólk á
næstu bæjum sá eldinn og kom
til aðstoðar, og síðan slökkvi-
liðið á Selfossi. Bærinn brann
og varð engu bjargað af innan-
stokksmunum, en næstu hús
tókst að verja.
☆
Bændaskólinn á Hvanneyri
var settur fyrra laugardag og er
skólinn fullskipaður, rúmlega
60 nemendur. Steingrímur Stein
þórsson landbúnaðarráðherra
var viðstaddur og hvatti til auk-
innar framleiðslu landbúnaðar-
afurða.
☆
Nýlega var haldinn aðalfund-
ur Norræna félagsin-s. Formaður
þess, Guðlaugur Rósinkranz
Þjóðleikhússtjóri, flutti skýrslu
um starfsemi félagsins, en það
hefir enn sem fyrr unnið að
nemendaskiptum og eru farnir
héðan í haust 13 unglingar til
náms í skólum á hinum Norður-
löndunum á vegum norrænu
félaganna, en tveir erlendir
nemendur eru hér við nám á
vegum félagsins. Það er nú í
ráði, að danski rithöfundurinn
Jörgen Bukdahl komi hingað til
lands á vegum félagsins í vor og
flytji hér fyrirlestra. í Norræna
félaginu eru nú um 1100 félags-
menn.
☆
Fimmtánda Iðnþing íslend-
inga, sem haldið var í Reykja-
vík um daginn, gerði ýmsar
ályktanir og m. a. lýsti það á-
nægju sinni yfir þeirri ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar að leggja
niður Fjárhagsráð og vænti
þess, að þar með sé lagður grund
völlur að því að aflétt verði öll-
um hömlum af húsabyggingum
í landinu. — Því var og fagnað,
að ákveðið hefir verið að taka
'skattalögin til endurskoðunar á
þessu Alþingi, og vænti Iðn-
þingið þess, að við þá endur-
skoðun verði þess gætt að stilla
skattabyrðunum svo í hóf, að
þær lami ekki framtak manna,
heldur verði einstaklingum
Framhald á bls. 5