Lögberg - 05.11.1953, Page 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 5. NÓVEMBER, 1953
5
ÁHUGAMÁL
LVENN/L
Ritstjón: INGIBJÖRG JÓNSSON
ÁRDÍS
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna, XXI. hefti
í þetta skipti heimsækir Árdís
lesendur sína í fallegri búningi
en áður; er teiknuð á kápu henn-
ar fögur mynd af konu; göfgi og
festa lýsa sér í andlitsdráttum
hennar. I baksýn eru myndir af
heimili og kirkju, og táknar því
myndin verksvið og áhrif
kvenna innan þessara tveggja
stofnana. Myndina hefir Bjarni
Thamas Bjarnason teiknað, son-
ur Mr. og Mrs. G. M. Bjarnason;
er fjölskyldan öll listræn mjög
svo sem kunnugt er.
Innviðamestu greinarnar í rit-
inu eru þrjár: Heimsókn til
Hólakirkju, eftir Lilju M. Gutt-
ormsson. Þá kirkju sóttu afi
hennar og amma; lýsir hún
fallega hvernig kristilegra áhrifa
frá þeim gætir fram á þennan
dag meðal afkomenda þeirra.
„Áhrifin, sem streymdu frá hin-
um kristnu heimilum og kirkj-
um á íslandi til Vesturheims
með innflytjendahópnum, vara
því enn og munu vara svo lengi
og trúarfrelsi, athafnafrelsi og
einstaklingsfrelsi ríkja þar.“
Women of the New Testament,
eftir Miss Ingibjörgu S. Bjarna-
son, er fróðleg grein og vel rituð.
Sýnir hún fram á hvernig for-
dæmi Krists og kenningar hans
um umbreytta stöðu kvenna í
þjóðfélaginu, juku réttindi
þeirra og virðingu.
Fyrirlestur Miss Vilborgar
Eyjólsson um æskustöðvar
hennar, Riverton, er í senn
fróðlegur og skemmtilegur. Hef-
ir hún lagt mikið verk í það, að
afla sér gagna, og er nákvæm í
frásögn. Segir hún sögu byggð-
arinnar frá upphafi og tengir
hana við atburði síðari tíma.
Ekki getur hún um hljómmenn-
ingu byggðarinnar né skáld
hennar og rithöfunda, en á þeim
sviðum á Fljótsbyggð sögu. Er
það, ef til vill, vegna þess, að
þar átti faðir hennar ,Gunn-
steinn Eyjóífsson ríkan þátt, svo
sem kunnugt er, og hefir henni
því ekki þótt hlýða, að hún
rekti þann þátt. Vel væri það,
ef tekin væri til greina bending
Miss Eyjólfsson um að varð-
veita frá gleymsku íslenzku ör-
nefnin, og um stofnun bæjar-
bókasafns, þar sem geymd yrðu
ýms gögn varðandi sögu byggð-
arinnar, svo sem myndir, rit-
gerðir, sendi’bréf, blöð, tímarit
o. s. frv.
Styttri greinar í ritinu eru: —
Kvenfélagið Freyja, Geysir, eftir
Helgu Jacobson; er hún sögu-
legs eðlis; svo eru og Islenzkar
frumherjakonur eftir J. J. Bíld-
fell; Fyrsta íslenzka konan í
kirkjulegu embætti eftir Dr. V.
J. Eylands, og Minningar um
átta konur eftir ýmissa höfunda.
Eru allar þessar greinar sögu-
legar heimildir fyrtr framtíðina.
Ritstjórnarnir minnast við-
burða innan brezku konugsfjöl-
skyldunnar á þessu ári: Ingi-
björg J. Ólafsson með stuttri
grein, The Crown, og Miss Ingi-
björg S. Bjarnason ritar um
Maríu Bretadrottningu. Hin
síðarnefnda á og aðra stutta
grein í ritinu, um hina víðfrægu
hjúkrunarkonu, Sister Kenny.
Þriðji ritstjórinn, Mrs. Hrund
Skúlason skrifar og fallega
grein, Móðurást. — Mrs. Rann-
veig K. G. Sigbjörnsson getur
um frábæra hannyrðakonu vest-
ur við haf, Mrs. Jónínu Johnson.
Smásagan, The Retired Mother,
eftir Valdine P. Ingjaldson, er
falleg og vel samin. Margar
myndir prýða ritið, þar á meðal
mynd af frú Aðalbjörgu Brand-
son og séra Sigurði Ólafssyni,
er hann afhendir henni skraut-
ritað þakkarávarp frá kirkju-
félaginu og Betelnefnd. Loks
eru birtar greinar og skýrslur
um starfsemi Bandalagsins.
Svo sem að ofan getur, er þetta
hefti harla fjölbreytt, skemmti-
legt og girnilegt til fróðleiks.
Verðið er 75 cents og fæst ritið
hjá Mrs. J. S. Gillies, 680 Bann-
ing St.; Mrs. B. S. Benson, 695
Sargent Ave., Winnipeg og enn-
fremur kvenfélögum lútersku
safnaðanna í íslenzku byggð-
unum.
☆ ☆ ☆ ☆
KAFLI ÚR BRÉFI
Ég held ég skilji það nokkuð
vel, hve innilega að mönnum
getur þótt vænt um staðinn, sem
þeir annaðhvort eru bornir og
barnfæddir á eða hafa verið
langdvölum á, jafnvel þó þeir
kæmu þar fulltíða menn. Ég
var einmitt að hugsa um fyrir
hádegið í dag, er ég kom úr garð-
inum mínum, að hvergi þætti
mér yndislegra að vera en ein-
mitt á þessum bletti, sem ég get
nú kallað minn og hefi átt heima
á svo lengi. í sumar hafa verið
feikna rigningar, býsna stöðugar
alt frá því í vor, með þurka-
kafla einum um mitt sumarið, í
máske tvær vikur. Annars var
óvanalega mikil og stöðug
rigning. Við létum alt frá okkur
í fyrra svo að engin tök voru
að slá í kringum húsið fyr en
nokkuð var áliðið og sumt ekki
slegið. En þvílík fádæmi af
grasi og sumstaðar í mörgum
litum. Á dálítilli sléttu annars
vegar við garðinn var jörðin
fagurblá í “Aster“, þessum bláu
fíflum, sem maður kallar „Jak-
Obs fífla“ á íslenzku það ég bezt
veit, en annars vegar við flöt
þessa, meðfram runnanum, voru
gullnu blómin, sem hér eru
nefnd “Golden Rod.” “Golden
Rod and Aster” eru rómuð á
fleirum en einum stað í ykkar
skólabókum — canadisku skóla-
bókunum. Mér þykir eldri bæk-
urnar, þær, sem stúlkur mínar
lærðu og þær sem þú hefir bæði
lært og kent, vera víða mikið
skemtilegri en þær nýjustu.
Eiga meira í sér af mýkt og yl.
Ég hef stundum litið í þær hér
og þar hjá barnabörnunum. Ég
átti marga ánægjustund fyrrum
þegar telpurnar mínar voru að
ganga á skóla, að lesa með þeim
eitt og annað, sem ég gat áttað
mig á.
Með kærri kveðju og endur-
teknum öllum góðum óskum til
þín og manns þíns, er ég þín
einlæg vinkona.
Rannveig K. G. Sigbjörnsson
I bandarískum hermanna-
kirkjugarði í Salerno er letrað á
einn af legsteinunum, eftirfar-
andi:
— Hér hvílir múlasninn
Maggy, sem á sinni lífsleið
sparkaði í 2 hershöfðingja, 6
offursta, 24 liðsforingja, 39 und-
irforingja og 545 óbreytta her-
menn. Síðasta spark hennar var
í kveikinn á 2ja tonna sprengju.
☆
Það kom fyrir kvöld eitt, að
ungur maður gekk sér til hress-
ingar.
ingar. Er hann hafði gengið spöl-
korn, kom ung stúlka á móti
honum og spurði: — Afsakið
en kunnið þér að flauta?
— Já, svaraði ungi maðurinn
undrandi. — Ég kann það, en
bara ekki mjög vel.
Hrörnun og undanhaid sósíaSismans um
gjörvallia Vesfur-Evrópu
Eflir siyrjöldina íór sósíal-
isminn sigurför um Evrópu.
Svo að segja hverjar kosn-
ingar á fyrsiu árunum efiir
slríðið færðu nýja sigra.
Sú skoðun varð almenn, að
ekkert mundi framar stöðva
framgang sósíalismans, hann
mundi leggja undir sig jörðina
áður en- öldin væri liðin. En ekki
er, allt, sem sýnist. Evrópa varð
ekki sósíalisk. Framsóknin var
stöðvuð, og svo byrjaði hrörn-
unin og undanhaldið. Fyrst töp-
uðust einar og einar kosningar,
svo kom hrunið. Þau eru fá,
löndin, sem í dag lúta stjórn
sósíalista, þegar frá eru skilin
einræðislöndin í Austur-Evrópu.
I gjörvalli Evrópu er aðeins
ein þjóð, sem hefir yfir sér
ríkisstjórn sósíaldemokrata. Það
eru Norðmenn. í Svíþjóð eru
jafnaðarmenn að vísu áhrifa-
miklir enn, en þar situr þó sam-
steypustjórn að völdum. Sömu-
leiðis í Hollandi og Austurríki.
Annars staðar í Evrópu hefir
jafnaðarmönnum verið þokað
burt úr stjórnarstöðu. Jafnvel
Belgía lýtur ekki lengur sósíal-
iskri stjórn. Stærsti ósigurinn
var þó í Bretlandi.
Þróunin í Breilandi
Árið 1945 taldi brezki Verka-
mannaflokkurinn það eitt höfuð
verkefni sitt að hafa pólitíska
le.ðsögu fyrir Evrópu. Útsendar-
ar stjórnarinnar á ráðstefnum
og þingum höfðu oft afgerandi
áhrif á framvindu mála þar og
ekki sízt á þá pólitík, sem jafn-
aðarmannaflokkarnir á megin-
landinu ráku.
En brezka íhaldsstjórnin hafði
ekki setið nema eitt ár að völd-
um, þegar augljóst var, að áhrif
brezku jafnaðarmannanna þoldu
ekki umskiptin. Aukakosning-
arnar, sem háðar hafa verið í
Bretlandi, sýna fráhvarfið frá
sósíaliskum kennisetningum al-
veg greinilega. Klofningurinn í
brezka jafnaðarmannaflokknum
bætist ofan á erfiðleikana, og
það er álit æ fleiri manna í Bret-
landi, að Verkamannaflokkur-
inn sé ekki hæfur til þess að
taka við stjórnarforustunni, eins
og nú standa sakir.
Afsiaða verkalýðs-
hreyfingarinnar
Þetta viðhorf kemur í raun-
inni greinilega fram í afstöðu
brezku verkalýðshreyfingarinn-
ar til ríkisstjórnarinnar. Þau
hafa haft vinsamleg samskipti
við stjórnina, og allar spár um
verkfallsöldur hafa orðið hrak-
spár einar. Það hefir og vakið
mikla athygli og skapað aukinn
glundroða í brezka jafnaðar-
mannaflokknum, að ýmsir leið-
togar verkalýðshreyfingarinnar
hafa tekið upp samstarf við
stjórnina um að afnema þjóð-
nýtingu sumra iðngreina, sem
komið var á í tíð jafnaðarmanna.
Þykir sumum þar koma fram,
að verkalýðshreyfingin sé að
verða fráhverf þjóðnýtingu af
fenginni reynslu liðinna ára.
Ekki svo að skilja, að brezka
verkalýðshreyfingin sé að segja
skilið við j afnaðarmannaflokk-
inn, heldur virðist sem leiðtogar
hennar telji sennilegast, að
jafnaðarmenn komist ekki til
valda aftur um langt skeið og
rétt sé því að haga stefnunni í
samræmi við það. Sambúð
verkalýðshreyfingarinnar og
ríkisstjórnar Churchills bendir
og til þess, að forustumenn
verkalýðsfé|aganna sjái og skilji
þá vaxandi andúð, sem ríkis-
rekstur, embættismannavald og
skriffinnska þjóðnýttra fyrir-
tækja á að mæta meðal verka-
manna, sem við hin þjóðnýttu
fyrirtæki vinna.
Afstaða samvinnumanna
Glögg vísbending um breytta
afstöðu manna í Bretlandi er
sambúð samvinnumanna og
jafnaðarmanna þar fyrr og nú.
Eftir stríðið, 1945, fylgja sam-
vinnumenn jafnaðarmanna-
ilokknum hiklaust að málum, og
studdu þjóðnýtingarfyrirætlan-
ir í árdögum þeirra. En með
hverju áripu hefir andúð sam-
vinnumanna á kredduvísindum
sósíalismans farið vaxandi. Og
er helztu kennisetningarpostul-
ar sósíalismans létu í það skína,
að þeir vildu þjóðnýta verzlun-
arrekstur og iðnað, sem sam-
vinnufélögin hafa byggt upp og
telja sig leysa bezt fyrir þjóðar-
búskapinn, kom snurða á þráð-
inn. — Ársþing samvinnu-
manna á Bretlandi hafa hvað
eftir annað skilið glöggt á milli
samvinnustefnu og sósíalisma og
bent kredduvísindamönnunum
á, að þó að samleið sé að ýmsum
áföngum, geti samvinnumenn
aldrei fallizt á að fela ríkis-
embættismönnum þau fyrirtæki
fólksins, sem hafa sannað til-
verurétt sinn og ágæti með ára-
tuga starfi. Virðist því svo, sem
bilið í milli samvinnumannanna
og kredduvísindamanna sósíal-
ismans verði sífelt breiðara, og
það verður vafalaust ekki brúað
aftur til frambúðar.
Skipbrotsmenn
En það, sem veldur mestu um
hrörnun sósíalismans meðal
frjálsra þjóða er, að sósíalism-
inn hefir beðið skipbrot í lífinu
sjálfu. Sósíalisminn átti að færa
þjóðunum aukna lífshamingju
og aukið réttlæti. En þegar til
lífsreynslunnar sjálfrar kom
fann fólkið, að það var ekki
hamingjusamara en áður undir
stjórn fjarlægs embættismanna
kerfis, og réttlætið fór ekki eldi
Ný brú gerð yfir Hörgá hjá
Möðruvöllum
Ýmsar smærri og stærri
brýr eru í smíðum víðs-
vegar um land.
Vísir hefir áður í sumar skýrt
frá þeim brúabyggingum, sem
þá voru hafnar, svo sem yfir
Hvítá hjá Iðu, Skjálfandafljót
hjá Stóru-Völlum o. fl., og skal
það ekki endurtekið hér. En ný-
lega hitti fréttamaður blaðsins
Árna Pálsson yfirverkfræðing
að máli, er var þá nýkominn úr
brúaleiðangri um landið, og
innti hann frétta af því helzta,
sem nú væri á döfinni í þessum
efnum.
Sagði yfirverkfræðingurinn að
byrajð hafi verið á þó nokkrum
brúm víðsvegar um land, auk
þeirra sem Vísir hefir áður get-
ið, og skulu þær helztu nefndar
hér.
Stærst þessara brúa er brúin
yfir Hörgá hjá Möðruvöllum.
Þar er hafin bygging 43 metra
langrar brúar, sem kemur í
stað nær 50 ára gamallar hengi-
brúar, en sú brú er fjarri því
að geta svarað til þeirrar um-
ferðar, sem orðin er um hana
nú. — Verði tíðarfar hagstætt
má jafnvel vænta þess að lokið
verði við brúarsmíðina í haust.
Verið er að byggja brú yfir
Skeggjastaðaá í Bakkafirði. Hún
er 25 metra löng og er á leiðinni
milli Bakkafjarðar og Þórshafn-
ar í Þistilfirði. Hafa þá allar
helztu ár á þeirri leið verið
brúaðar.
Unnið er að brúargerð yfir
Lambadalsá í Dýrafirði. Það er
22ja metra löng brú á leiðinni
milli ísafjarðar og Dýrafjarðar.
Ennfremur er verið að brúa
Gufudalsá í Barðastrandasýslu.
Sú brú er 24 metra löng og er
á hinum nýja þjóðvegi vestur á
Barðaströnd og Patreksfjörð.
Á Snæfellsnesi er verið að
brúa Stóru-Langadalsá á Skóg-
arströnd. Það er 27 metra brú.
Þar með hafa öll stærri vatns-
um löndin að heldur. Það kom
auk þess í ljós, að kerfi sósíalista
varð víða til þess að draga úr
framleiðslu og minnka mögu-
leika þjóðanna til betri lífs-
afkomu.
Utan Evrópu — um hinn
frjálsa heim — nru sömu tíðindi
að gerast. 1 Ástralíu og Nýja-
Sjálandi er sósíalisminn á undan
haldi. Og í Ameríku hefir hann
aldrei náð fótfestu.
íhaldið hagar seglum eftir vindi
Á hinu leitinu er svo hin harð-
snúna auðgunar- og íhaldsstefna
á undanhaldi. ,Ósigur sósíalism-
ans er ekki vegna þess, að menn
telji málum sínum betur komið
í höndum íhaldsmanna. Sú stað-
reynd hefir leitt til þess, að
íhaldsflokkarnir hafa tekið upp
írjálslyndari stefnu, en mest
munar um það, að frjálslyndir
borgaralegir flokkar hafa fengið
betri aðstöðu til að vinna að
áhugamálum sínum. Það eru
milliflokkarnir á meginlandi Ev-
rópu, sem hafa hrundið í fram-
kvæmd sumum helztu fram-
faramálum landsins, alveg eins
ög Demókrataflokkurinn í
Bandaríkjunum vann stórvnki
á tímum Rposevelts og Trumans.
Hér heima á íslandi er þróun-
in svipuð. Kredduvísindi sósíal-
ista eru á undanhaldi. íhalds-
flokkurinn þorir ekki lengur að
koma til dýranna eins og hann
er klæddur, en sveipar sig sauð-
argæru frjálslyndis í ýmsum
málum og kemst nokkuð áleiðis
af þeim sökum.
En framtíðin tilheyrir hvorki
íhaldi né sósíalistum, heldur
frjálslyndum borgaralegum
flokki, sem hafnar öfgunum til
beggja handa en vinnur að lýð-
ræðislegri uppbyggingu eftir
leiðum samvinnu og samhjálpar.
föll á Skógarströnd verið brúuð.
Nýlega er lokið við að steypa
brú yfir Torfustaðaá í Grafningi.
Brúin er 12 metra löng, en hefír
þýðingu vegna daglegra mjólk-
urflutninga þar í sveitinni.
Þess má geta, að allar framan-
greindar brýr eru steinsteyptar.
Þá má og að lokum geta þess,
að þessa dagana er verið að
hefja brúarbyggingu yfir Kerl-
ingardalsá í Mýrdal. Auk fram-
antalinna brúa hafa margar
smærri brýr verið byggðar víða
um land.
Fréttir . . .
Framhald af bls. 4
jafnt sem félögum gert kleift að
byggja upp atvinnurekstur sinn
á fjárhagslega traustum grund-
velli og safna eigin rekstrarfé.
Skorað var á alþingi og ríkis-
stjórn að gera varanlegar ráð-
stafanir til þess að tryggja eðli-
legan rekstur skipasmíðastöðv-
anna með öryggi utgerðarinnar
og hagsmuni alþjóðar fyrir
augum.
☆
Nýlega var haldið fjórða
landsþing Náttúrulækningafé-
lags íslands og sóttu það full-
trúar frá 7 félagsdeildum, en
félagsdeildir eru 11. Náttúru-
lækningafélagið hefir undanfar-
in þrjú ár rekið hressingar-
heimili og hefir nú fengið land
í Hveragerði undir slíkt heimili
og eru framkvæmdir hafnar að
koma því upp. Áætlað er, að
byggingarkostnaður verði um
það bil hálf þriðja miljón króna.
Jónas Kristjánsson er forseti
félagsins.
☆
Fjársöfiíunardagur Landssam-
bands íslenzkra barnaverndar-
félaga var í gær. í sambandinu
eru 10 félög. Það styrkir nokkra
kennara til dvalar erlendis ti!
að kynna sér sérkennslu í ýms-
um greinum, m. a. við kennslu
tornæmra barna, að laga mál-
galla barna og kenna lesblind-
um börnum að lesa.
☆
Vetrarstarfsemi íþróttafélag-
anna í Reykjavík er nýlega haf-
in og stunda um ^650 manns
íþróttaæfingar á hverju kvöldi.
Lætur nærri að kostnaður við
innanhússæfingar nemi um
70.000 krónum á mánuði hverj-
um. íþróttafélögin í Reykjavík
eiga samtals 10 skíðaskála, enn
fremur fjögur félagsheimili, tvö
eru í smíðum og undirbúningur
hafinn að smíði hins þriðja. —
Kostnaður við verklegar fram-
kvæmdir á íþróttasvæðum fé-
laganna nemur árlega 7 til 8
hundruð þúsund krónum.
☆
Bergur Jónsson fyrrverandi
alþingismaður lézt í Noregi s.l.
mánudag og var hans minnst á
alþingi á þriðjudaginn. Hann
var 55 ára. — Ásmundur P. Jó-
hannsson í Winnipeg lézt s.l.
föstudag.
Gesturinn: — Hvers vegna
hafið þið ekki síma?
Forstjóri „Kónga-klúbbsins“:
— Flestir félagsmenn okkar eru
kvæntir.
—VÍSIR, 19. sept.
CHDOSING A FIELD
A Business College Education provides
the basic information and training with
which to begin a business career.
Business College students are acquiring
increasing alertness and skill in satisfy-
ing the needs of our growing country for
balanced young business people.
Commence Your Business
Training Immediately!
For Scholarships Consult
THE COLEMBIA PRESS LIMITED
PHONE 74-3411 695 Sargent Ave., WINNIPEG
DAGUR, 23. sept.
Margar smærri og stærri brýr í smíðum