Lögberg - 05.11.1953, Side 7

Lögberg - 05.11.1953, Side 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 5. NÓVEMBER, 1953 7 Fréttir fré ríkisútvarpi íslands 18. OKTÓBER Umhleypingasamt hefir verið að undanförnu og s.l. sunnudag og aðfaranótt mánudags var hríð á norðanverðu landinu, krapahríð um kvöldið en frost með hvassviðri og fannburði um morguninn. Tjón varð talsvert í veðri þessu, m. a. slitnuðu síma- línur mjög víða og vegir teppt- ust vegna snjóa. Háspennulínan til Ólafsfjarðar stórskemmdist og víða hrakti fé, enda var fé úti á flestum bæjum. Margar kindur fennti og urðu nokkrir fjárskaðar almennt, en hvergi stórfelldir. Síðan brá til sunnan áttar og þíðviðris og var mikil úrkoma sunnanlands. ☆ í fyrradag var tekin í notkun stærsta aflstöð landsins, Irafoss- stöðin nýja við Sog. Stjórn Sogsvirkjunarinnar bauð þang- að fjölda gesta af orkuveitu- svæði Sogsins, og voru forseta- hjónin meðal gesta. Forseti ís- lands, herra Ásgeir Ásgeirsson, ræsti nýju vélina og lýsti yfir því, að aflstöðin væri tekin til starfa. Gunnar Thoroddsen borgarstjóri í Reykjavík, for- maður stjórnar Sogsvirkjunar- innar, flutti ræðu og rakti sögu virkjunarinnar. Sogsvirkjunin er sameign ríkissjóðs og Reykja- víkurbæjar og er eignarhluti ríkissjóðs 35 af hundraði en bæjarsjóðs 65. Undirbúningur að nýju aflstöðinni tók fimm ár en framkvæmdir þrjú ár og voru verktakar margir Stöðvar- húsið sjálft er neðanjarðar, og frárennslisgöngin, sem sprengd voru í bergið, eru 650 metra löng. írafoss-stöðin nýtir 38 metra fallhæð, vatnshverflarnir eru 22.000 hestöfl hvor, og rafal- arnir hvor um sig 15,500 kíló- vött. Vélahúsið er byggt fyrir þrjár vélasamstæður og hafa -tvær verið settar upp, önnur er tekin til starfa, en hin verður tekin í notkun eftir stuttan tíma. írafoss-stöðin framleiðir 31.000 kílóvött og er það meiri orka, en afl allra vatnsafls- stöðva til almenningsnota á ís- landi var í byrjun októbermán- aðar, eða áður en nýja Laxár- virkjunin tók til starfa. Samtals er þá orkuframleiðslan í Sogi orðin 47.000 kílóvött, og næsta verkefnið þar er virkjun Efra- Sogs með 28.000 kílóvöttum, er kosta mun með núverandi verð- lagi um 100 miljónir króna. Síð- an kemur þriðja vélasamstæðan í Irafoss-stöðinni og loks þriðja stigið í Ljósafos'svirkjuninni, og er þá Sbgið fullvirkjað með 96.000 kílóvött. — írafoss-stöðin er fjárfrekasta framkvæmd, sem ráðist hefir verið í hér á landi. Orkuverið sjálft ásamt háspennulínu og aðalspenni- stöð' í Reykjavík kostaði yfir 190 miljónir króna, þar af bygging aflstöðvarinnar 55,5 miljónir króna og rafbúnaður til hennar 25,5 miljónir. Hásþennulínan, sem er reist á ferstrendum stál- grindaturnum og. er 50 km. löng, kostaði 18,2 miljónir króna. Inn- lendur kostnaður við þetta mikla mannvirki nam tæplega 96 miljónum króna, en erlendur kostnaður tæpum 97 miljónum. Samningar um framkvæmdir ýmsar voru gerðir við 30 aðilja, og er byggingarfélagið Foss- kraft, sem annaðist byggingar- framkvæmdir, stærstur þeirra. Formaður þess er danski verk- fræðingurinn Kaj Langvad. Sænskir sérfræðingar í náma- sprengingum sáu um að sprengja jarðgöngin miklu og fyrir stöðvarhúsinu. Meginfjárfram- lögin til stöðvarinnar voru fengin að láni og úr mótvirðis- sjóði. Steingrímur Steinþórsson raforkumálaráðherra flutti ræðu við opnunarathöfnina og gat þess að fjárframlögin til fram- kvæmda þessara hefðu verið fengin af fé því, sem Bandaríkin hafa veitt til aðstoðar erlendum þjóðum, og flutti ráðherrann þakkir fyrir þessa miklu aðstoð. Jafnframt flutti hann Edward B. Lawson sendiherra Banda- ríkjanna þakkir fyrir margvís- lega fyrirgreiðslu og samstarf við ríkisstjórnina, sömuleiðis fulltrúa Alþjóðabankans, en sá banki hefir veitt lán og greitt á ýmsan hátt fýrir framgangi þessa máls. Sagði ráðherrann að hlutverk hinnar nýju virkjunar væri að miðla raforku til sem flestra, ekki aðeins til áburðar- verksmiðjunnar nýju, kaup- túna og þorpa á orkusvæðinu heldur einnig sem víðast þar um sveitir. — Framkvæmdastjóri Sogsvirkjunarinnar er Stein- grímur Jónsson rafmagsstjóri í Reykjavík. Hann komst svo að orði í ræðu sinni, að nú væri aflétt rafmagnsskorti þeim, sem verið hefði á undanförnum árum, og aflstöðin nýja ætti að fullnægja þeirri þörf sem nú væri og aukningunni næstu fjögur árin. ☆ í vikunni, sem leið, urðu þau tiðindi að rofið var fisklöndun- arbann brezkra togaraeigenda og íslenzkur fiskur var aftur borinn á borð á brezkum heim- ilum. Togarinn Ingólfur Arnar- son, einn af togurum bæjarút- gerðar Reykjavíkur, kom til Grimsby með ísfisksfarm á mið- vikudagsmorgun og var sá farmur sendur samkvæmt samn- ingi íslenzkra botnvörpuskipa- eigenda við brezka kaupsýslu- manninn Dawson. Uppskipun hófst á miðnætti og gekk greið- lega og nokkur hluti aflans var sendur til Lundúna og var kom- inn á markaðinn þar um morg- uninn. Fiskikaupmenn í Grims- by létu bugast fyrir hótunum togaraeigenda og keyptu ekki íslenzka fiskinn, nema einn fiskikaupmaður nokkur þúsund kílógrömm, en enginn hörgull var á verkamönnum til vinnu við löndunina og engar óspektir urðu. Fjöldi blaðamanna hafði beðið þess í Grimsby, að fyrsti íslenzki togarinn freistaði þess að rjúfa löndunarbann brezku togaraeigendanna og fréttin um þetta varð forsíðufregn í brezk- um blöðum og gífurleg auglýs- ing fyrir Dawson. Togaraeig- endur höfðu ekkert til sparað að torvelda Dawson fram- kvæmdir og auka á kostnað hans við fisksöluna. Þeir létu neita honum um ís í Grimsby til að geyma fiskinn, en hann keypti þá eignir þar og lét hefja ísframleiðslu. íslenzkir togara- eigendur hafa samið við Dawson um að færa honum minnst tvo togaraframa vikulega og er hann reiðubúinn að taka jafnvel á móti fleiri förmum á viku. Samið hefir verið um fast verð, en þó misjafnt eftir árstíðum. Farmur togarans Ingólfs Arnar- sonar var rösklega 200 lestir og verðið fyrir hann tæp 9.000 sterlingspund. ☆ Fimmtánda Iðnþingi Islend- inga var slitið í fyrrakvöld í Reykjavík, og var ákveðið, að næsta iðnþing skyldi haldið á Akureyri. ☆ Bæjarútgerð Hafnarfjarðar keypti nýlega togarann Elliða- ey frá Vestmannaeyjum og gaf honum nafnið Ágúst. Togar- inn kom til Hafnarfjarðar í gær og bauð Emil Jónsson, formaður Útgerðarráðs Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, skip og skips- höfn velkomna til Hafnarfjarð- ar. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar hefir nú starfað 20 ár, og Ágúst er fimmta skipið, sem hún eignast. ☆ Fiskaflinn í ágústmánuði í sumar varð samtals 25.770 lestir, og er þá heildaraflinn frá ára- mótum til ágústloka rösklega 268.000 lestir, eða rúmlega 20.000 lestum meiri en á sama tíma í fyrra. í vikunni var stofnað í Reykjavík flokksfélag Þjóð- varnarmanna og nefnist það Þjóðvarnarfélag Reykjavíkur. Formaður þess er Gils Guð- mundsson alþingismaður. Þetta er fyrsta almennt flokksfélag' Þjóðvarnarflokksins, sem stofn- að hefir verið. ☆ Síðdegis á miðvikudag kom upp eldur í verzlunar- og skrif- stofuhúsi Kaupfélagsins Þórs á Rangárvöllum. Húsið var að mestu úr timbri en múrhúðað, og brann það til grunna. All- mikið brann þar af vörum. ☆ Aðfaranótt sunnudags síðast- liðins kom upp eldur í trésmiðju í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Brann verkstæðið til grunna á skammri stundu. ☆ Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra hélt nýlega aðalfund sinn. Félagið á nú 433.000 krónur í sjóði, og er rúmlega helmingur þess fjár ágóði af eldspýtnasölu félagsins. Komið verður upp sérstakri deild fyrir lömunar- sjúklinga í hinni nýju viðbygg- ingu við Landsspítalann og legg- ur félagið til 500.000 krónur 1 því skyni. Ákveðið hefir verið, hvernig skipta skuli verkum, ef lömunarveikifaraldur skyldi koma upp hér á landi, og bær og ríki munu sameiginlega greiða kostnað af öndunartækj- um og öðrum útbúnaði, en þeg- ar þau tæki hafa verið útveguð, verða íslendingar ekki varbún- ari í þeim efnum en hinar Norðurlandaþjóðirnar. Á fundi Norðurlandafélaganna gegn lömunarveiki var ákveðið m. a. að skiptast á læknum og hjúkr- unarliði og láná áhöld eftir því sem þörf gerðist. ☆ Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurgeir Sigurðsson, lézt í Reykjavík á þriðjudaginn. Hann varð bráðkvaddur að heimili sínu. — Sigurgeir Sigurðsson biskup var fæddur 3. ágúst 1890. Hann tók prestsvígslu og vígð- ist til ísafjarðar 1917. Biskup yfir íslandi var hann skipaður seint á árinu 1938 frá 1. janúar 1939 að telja og var vígður biskupsvígslu í Dómkirkjunni í Reykjavík af fyrirrennara sín- um, Jóni biskupi Helgasyni. Forseti guðfræðideildar Háskól- ans, Ásmundur prófessor Guð- mundsson, minntist biskups í útvarpinu á þriðjudagskvöldið. Samúðarkveðjur hafa borizt hvaðanæfa vegna fráfalls bisk- ups. Útför hans verður gerð á miðvikudagskvöldið kemur. ☆ Aðalfundur Prestafélags Is- lands hófst í háskólanum á mið- vikudaginn og minntist formað- ur félagsins biskúps, er fundur var settur. Aðalmál fundarins var húsvitjanir. — Hinn al- menni kirkjufundur hófst 1 Reykjavík í fyrrakvöld. Aðal- fundarmálið er Ríki og kirkja. ☆ Þjóðleikhúsið hafði frumsýn- ingu á miðvikudaginn á sjón- leiknum Sumri hallar (Summer and Smoke) eftir Tennessee Williams í þýðingu eftir Jónas Kristjánsson magister. Leik- stjóri var Indriði Waage. Með annað aðalhlutverkið- fór Bald- vin Halldórsson, en með hitt ung stúlka, sem lék nú í fyrsta sinn í Þjóðleikhúlsinu, Katrín Thors, og fengu þau bæði góða dóma fyrir leik sinn. ☆ Sinfoníuhljómsveitin efnir til hljómleika í Þjóðleikhúsinu á þriðjudaginn kemur og verða þar flutt verk eftir Beethoven, Grieg og Brahms. Einsöngvari með hljómsveitinni er Guð- mundur Jónsson. Olav Kielland stjórnar. Þetta verða tíundu sinfóníutónleikarnir á árinu. ☆ Félagið Menningarteagsl ís- lands og Ráðstjórnarríkjanna efndi til tónleika óg ballettsýn- inga í Þjóðleikhúsinu á sunnu- daginn var og komu þar fram nokkrir rússneskir listamenn, sem hér dveljast nú í boði Mír. Húsið var fullskipað. Listamenn þessir, sem eru frá stóra leik- húsinu í Moskvu og Leningrad- óperunni, hafa skemmt á nokkr- um stöðum í nágrenni Reykja- víkur ug halda nokkrar skemmt- anir enn í Reykjavík. ☆ Dr. Páll ísólfsson varð sex- tugur á mánudaginn var. Mikill fjöldi fólks hyllti hann það kvöld í Þjóðleikhúsinu á af- mælishátíð, sem Tónlistarskól- inn og Ríkisútvarpið gengust fyrir. Meðal gesta voru forseta- hjónin. Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi flutti ræðu og Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarps- stjóri ávarp. Einleikarar, söngv- arar og hljómsveit fluttu verk eftir Pál og fleiri tónskáld, af- hjúpuð var brjóstmynd af Páli, sem Sigurjón Ólafsson mynd- Kosningar í Sameinuðu þingi og deildum í dag Hið nýkjörna Alþingi var sett í gær. — Söfnuðust þingmenn og ríkisstjórn saman í fordyri Alþingishússins og gengu þaðan fylktu liði til Dómkirkjunnar, en þar hófst guðsþjónusta kl. 1.30. — Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup prédikaði og lagði út af þessum orðum Lúkasar- guðspjalls: Lögvitringur nokkur stóð upp, freistaði Jesú og mælti: „Meist- ari, hvað á ég að gera til þess að eignast eilíft líf?“ En hann sagði við hann: „Hvað er skrifað í lögmálinu?“ — „Hvernig les þú?“ En hann svaraði og sagði: „Elska skalt þú Drottinn guð þinn af öllu hjarta og af allri sálu þinni, og af öllum mætti þínum, og af öllum huga þín- um, og náunga þinn eins og sjálfan þig.“ En hann sagði við hann: „Þú svaraðir rétt, gjör þú þetta, og þá muntu lifa.“ Fyrir prédikun var sunginn sálmurinn „Þú ríkir hátt yfir kærleikans straum.“ Síðan var lesinn ritningarkafli, og þar næst sunginn sálmurinn „Sann- leikans andi.“ Á eftir prédikun var sunginn sálmurinn „Upp þúsund ára þjóð.“ Ennfremur flutti vígslu- biskup fagra bæn. Að lokum var þjóðsöngurinn sunginn. Alþingi seii Þá var gengið til Alþingis- hússins, og setti forseti Islands, Ásgeir Ásgeirsson, Alþingi þar með ræðu, sem birt er á öðrum stað í bláðinu. Að henni lokinni minntust þingmenn fósturjarð- arinnar með ferföldu húrra- hrópi. Þá tók aldursforseti, Jörund- ur Brynjólfsson, við fundar- stjórn. Minntist hann fyrst þriggja fyrrverandi alþingis- manna, sem létust á árinu. Voru það þeir Ólafur Thorlacius, Jón Auðunn Jónsson og séra Krist- inn Daníelsson. Risu þingmenn úr sætum sínum í virðingar- skyni við hina látnu þingmenn. Nokkrir þingmenn ókomnir Nokkrir þingmenn voru í gær ókomnir til þings. Voru það þeir Ásgeir Bjarnason, Emil Jónsson, Hermann Jónasson, Jóhann Þ. Jósefsson, Jóhann Hafstein, Kjartan J. Jóhannsson og Lúð- vík Jósefsson. En fyrir hann var mættur sem varamaður Ás- mundur Sigurðsson og fyrir Jó- hann Hafstein var mætt frú Kristín Sigurðardóttir. Ein kona átti þannig sæti á hinum fyrsta þingfundi þessa kjörtímabils, sem nú er hafið. Forseiakjör Á fundinum í gær skipti Al- þingi sér í kjördeildir til þess að rannsaka kjörbréf þingmanna. Mun því starfi verða lokið ár- degis í dag og fundur hefjast í Sameinuðu þingi kl. 1.30 e. h. Munu kjörbréf þá verða sam- höggvari hafði gert. Að tónleik- unum loknum stóð upp Ólafur Thors forsætisráðherra og mælti fyrir minni Páls og bað menn hylla listamanninn með ferföldu húrrahrópi. Páll Isólfsson svar- aði með nokkrum orðum og bað menn minnast tónlistarinnar. ☆ Árbók Landsbókasafnsins 1952 er nýkomin út. Bókakostur safnsins var í árslok það ár um það bil 190.000 bindi, og hafði aukizt um rösklega 4000 bindi á árinu. Handritasafnið er talið vera um 10.200 bindi. Árið 1952 töldust gestir í le^trarsal um 18:000. ☆ Sjómannadagsráðið hefir að vanda efnt til kabarettsýninga í Reykjavík til ágóða fyrir Dvalar heimili aldraðra sjómanna, sem nú er verið að reisa. Sýningarn- ar eru fjölsóttar. þykkt\ og forsetar kjörnir í Sam- einuðu þmgi og báðum þing- deildum. Ekki er gert ráð fyrir, að nefndarkosningar fari fram fyrr en á mánudag. Ræða vígslubiskups Hér fer á'eftir niðurlag hinnar merku ræðu, sem séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup, flutti við guðsþjónustuna í Dómkirkjunni í gær: „Látum þessa stund vera þakkarstund og heitstrengingar- hátíð. Um leið og vér þökkum veitta blessun, þá strengjum þess heit, að starfa að landsins heili, að fela Guði allan þjóðar- hag, um leið og vér heúum því, að vinna landi og lýð allt hvað vér megnum. Sameinum boðorðin tvö. Elskum Guð og náungann. Elskum ísland eins og sjálfa oss. Hver þjóð, sem í gæfu og gengi vill búa, á Guð sinn og land sitt skal trúa. Um þetta skulum vér sam- einast. Vér erum ekki allir eins. Þess vegna skiptast menn í flokka samkvæmt mismunandi skoð- unum. En í einum skilningi eig- um vér að vera eitt. Þótt mörg sé skoðun og margbreytt lund, þá eigum vér samhuga að efla heill og heiður þjóðar vorrar. Biðjum fyrir landi og þjóð með þessi heilögu orð í huga: „Elska og trúfesti mætast, rétt- læti og friður kyssast. Trúfesti sprettur upp úr jörðinni og rétt- læti lítur niður af himni.“ í hvaða flokki sem vér erum, skulu boðorðin bæði ná til vor og stjórna störfum vorum. Gleymum ekki boðorðinu, sem brýnir það fyrir oss, hvar sem vér í fylking stöndum, að oss ber „að elska, byggja og treysta á landíð.“ Fyllumst vandlæti Látum fyrirbæn vora fyrir þjóð vorri vera í anda þessara orða: „Lát réttinn vella fram sem vatn og réttlætið sem sírennandi læk.“ Vér biðjum fyrir þjóð vorri. En þjóðin skal einnig biðja fyrir þeim fulltrúum, sem hún hefir valið. Þegar löggjafarþing þjóðar- innar vinnur af alhug að far- sæld þeirra, er landið byggja, skal þjóðin svara með því, að þekkja sinn vitjunartíma og gegna trúlega hlutverki sínu. Sú þjóð, sem veit sitt hlutverk, er helgast afl um heim, eins hátt sem lágt má falla fyrir kraftinum þeim. Þess er ^hin brýnasta þörf, að náið samstarf sé milli þings og þjóðar. Helgum landi og lýð krafta vora. Fyllumst vandlæti vegna þjóðaj vorrar. Þegar Jesús með heilögum myndugleik hreinsaði musterið, kom lærisveinum hans í hug, að ritað er: „Vandlæti vegna húss þíns uppetur mig.“ Og hvað segir postulinn: „Ég vegsama þjónustu mína, ef ég gæti vakið vandlæti hjá ættmönnum rnínurn." Þannig á kristin kirkja að vegsama þjónustu sína ,ef .hún með fagnaðarerindinu fær vak- ið vandlæti vegna þjóðar vorrar. Vandlæti vegna íslands skul- um vér helga þá starfskrafta, sem Guð hefir gefið oss. Spámaðurinn segir: Sökum Zíonar get ég ekki þagað. Minnumst þeirra, sem báru merki í fylkingarbrjósti. Vér munum sjá, að á merkið er letrað: Sökum Islands get ég ekki þagað. Verkin verða að fylgja svarinu Biðjum þess, að störf Alþingis mótist af boðorðunum, sem ég hefi talað um. Lögvitringurinn kunni boð- orðin. Jesús sagði: „Þú svaraðir rétt.“ En það er ekki nóg að geta svarað. Verkin verða að fylgja svarinu. Vér þekkjum einnig boðorðin. En það er ekki nóg að þekkja þau og getað vitnað til þeirra. Þess yegna er sagt við oss í dag: Gjör þú þetta og þá munt þú lifa. Þessi orð ná til alþingis- manna í dag: „Gjörið þetta og vinnið þannig að landsins heill.“ Við þjóð vora skal einnig í dag sagt: „Gjör þú þetta, og þú munt lifa.“ Könnumst við sannleika þess- ara orða: Vér deyjum, ef þú ert ei ljós það og líf, sem að lyftir oss duftinu frá. Guð heifr vakað yfir oss fram að þessari stund, hann mun framvegis vaka yfir oss og láta þjóð vora erfa blessunina. Við þjóð vora er sagt: Þú átt, þú átt að lifa, öll ár og tákn það skrifa. Ég bið þess, að hjá oss megi búa þessi heilögu orð: „Ég á ekki að deyja, heldur lifa og kunngjöra verk Drott- ins.“ Með þessi orð í hjarta bið ég íslandi blessunar. Ég bið bless- unar stjórnendum landsins og löggjafarþingi. Guð veiti Alþingi styrk til þess að halda vel á málefnum þjóðar vorrar. Frá húsi Drottins blessa ég yður. Ég skila þeirri blessunar- kveðju til þeirra, sem nú ganga til starfa í Alþingishúsinu. Drottinn Guð sé Islandi sól og skjöldur. I hendi Guðs er hver ein tíð, í hendi Guðs er allt vort stríð, hið minnsta happ, hið mesta fár, hið mikla djúp, hið litla tár.“ —Mbl., 2. okt. Kaupið Lögberg Víðlesnasta íslenzka blaðið Cobble and Stove for hand-fired furnaces. Booker Nut for Bookers. Stoker Size for Stokers. All Oil Treated. HAGBORG FI)tL/^| PHONE 7<*-545! John Olafson, Representative. PHONE 3-7340 Virðuleg setning ASþingis í gær OILNITlÍflGHITE

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.