Lögberg - 13.05.1954, Blaðsíða 1

Lögberg - 13.05.1954, Blaðsíða 1
ANYTIME — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 67. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 13. MAÍ 1954 PROMPT - COURTEOUS - DEPENDABLE ADOLPH'S TAXI Round. The Clock Service 59-4444 52-6611 401 PRITCHARD AVE. SPECIAL RATES ON COUNTRY TRIPS WEDDINGS FUNERALS NÚMER 19 Kærkomnir gestir Hingað til borgar komu á sunnudagskvöldið hr. Einar Kristjánsson byggingameistari og frú hans Guðrún Guðlaugs- dóttir frá Reykjavík; í för með þeim var Kristján sonur þeirra og frú hans, Sigríður, fædd Soebeck, en þau eru bú- sett í Virginiaríkinu. Einar, sem rekur byggingaiðnað í stór- um stíl í Reykjavík, er Breið- firðingur að ætt, en frú Guðrún er dóttir séra Guðlaugs Guð- mundssonar frá Ballará, en syst- ir Jónasar heitins Guðlaugsson- ar skálds, Kristjáns hæztaréttar- lögmanns og þeirra systkina. Frú Guðrún er þjóðkunn gáfu- kona og mælsk vel; hún átti um tólf ára skeið sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur fyrir hönd Sjálf- stæðisflokksins og gat sér þar frægðarorð fyrir málafylgju og skörungsskap. Gestir þessir lögðu af stað heim á leið á miðvikudags- morguninn. Gullbrúðkaups- kveðja Winnipeg. Man., 16. apríl 1954 Kæru vinir, Guttormur og Jensína, Ég hafði hlakkað til að vera með og samgleðjast ykkur á þessum ykkar sannheiða bjarta heiðursdegi. En svo sendi Elli kerling mér alla sína fylgifiska: „höfuðóra, svikna sjón, sálar- kröm og valta fætur“, og í til- bót það versta brjóstkvef, sem ekki er útséð um enn. Ég verð því að fara þessarar ánægjustundar á mis og láta mér lynda að vera ósýnilegur gestur, sem árnar ykkur allrar þeirrar hamingju, sem ykkur að réttu ber, og hún er meiri og víðtækari en mér er lagið að koma orðum að, því eins og ein- hver hefir ort: Hjartans ósk er aldrei sögð eða á nokkurs tungu lögð — henni er engin umgjörð fundin. Fimmtíu ár sýnast óraleið, ef horft er fram á veginn, en sé litið til baka sýnast þau stund- um ótrúlega stutt, sérstaklega þegar hamingjan hefir spornað við því, að þeir sem manni standa hjarta næst, hafi týnst úr lestinni. Og þetta hefir ykkur báðum hlotnast. Þið hafið líka safnað miklum auð, þeim auð, sem enginn getur á brott tekið — auð andans, auð samúðar og vináttu. Þið hafið miðlað af honum óspart, og orðið við það að ríkari, því svo fer því jafnan, sem af andanum er fætt. En þetta átti hvorki að vera ræða né prédikun, heldur aðeins þökk fyrir langa kynningu og vináttu og um leið einlæg ham- i^gjuósk og von um langa og sól- ríka ævidaga framundan. Gísli Jónsson Landskjúlfti og manntjón Tveir landskjálftar í röð hafa orsakað mikið manntjón og eigna um miðbik Grikklands; mælt er að á annað hundrað naanns hafi týnt lífi og að þús- undir standi' uppi ráðþrota án skýlis yfir höfuðið; eignatjón hefir enn, sem komið er, hvergi nærri verið metið að fullu; margar mannúðar- og líknar- stofnanir með Rauða krossinn í broddi fylkingar, komu þegar til iðs við íbúa þeirra svæða, er narðast voru leikin. Rökkur Um bæklaða rúðu úr baðstofukytru ég barnsaugum forvitnum gaut. Tunglskinið flóði yfir holt og hóla en hjarn var í hverri laut. Á himninum stjörnurnar kinkuðu kolli og kyrðin að ríkjum sat. Ég skildi ekki það, sem mér skein í auga en skoðaði alt sem ég gat. Hingað til veröld var öll saman inni’ en út hafði ég ríki mitt fært, starað á stjörnur og mænt á mána og mikið á svipstundu lært. Nú komst ég á snoðir um hulda heiminn handan við þak og gler með mánalampa og logandi kertum, sem lýstu inn í hjarta mér. Það komst á alt hreyfing er kveikt var ljósið og kolan á marann fest, svo stiltist til aftur, er starfið var hafið á stokkana fólkið sezt. Er seilst var til bókar hátt á hillu og hafin ríma eða sögn, hlust hver var opin að hlýða lestri, hver hendi eljandi í þögn. Páll Guðmundsson Maurice Eyjólfsson Kjörinn formaður Þessi ungi maður, sem er dóttursonur Guttorms J. Gutt- ormssonar skálds, hefir verið kjörinn formaður Progressive Concervative stjórnmálasamtak- anna í Winnipeg Centre kjör- dæminu. Móðir hans, frú Arn- heiður Eyjólfsson, er búsett hér í borginni. Mr. Eyjólfsson er um alt hinn mesti efnismaður. Úr borg og bygð Gefin saman í hjónaband í lútersku kirkjunni í Selkirk þann 8. maí: Raymond Sigurjón Indriðason, Selkirk, og Alvina Unger, sama stað. Við gifting- una aðstoðuðu Mr. og Mrs. Jó- hann Oliver og Miss Harper, Selkirk. — Yfir 100 manns sátu veizlu í samkomuhúsi safnaðar- ins að afstaðinni giftingunni. — Ungu hjónin setjast að í Selkirk. Sóknarprestur gifti. ☆ Hinn 24. apríl voru gefin sam- an í hjónaband í Fyrstu lútersku kirkju, Gail Idora Forrest, 526 Arlington Street, og Raymond Frederick Taylor, loftsiglinga- fræðingur í canadiska flughern- um; hann er ættaður frá New- foundland. Dr. Valdimar J. Ey- lands frmakvæmdi hjónavígslu- athöfnina; brúðurin er dóttur- dóttir Halldórs Sigurðssonar byggingameistara; að lokinni vígsluathöfn var haldin mikil og vegleg brúðkaupsveizla; ungu hjónin fóru í brúðkaupsferð til Vancouver. ☆ Mr. Einar Hrappsted írá Leslie, Sask., var staddur í borg- inni í fyrri viku ásamt tveimur sonum sínum. ☆ Dr. Richard Beck frá Grand Forks, N. Dak., kom til borgar- innar á fimmtudaginn í fyrri viku og dvaldi hér fram á Laugardagskvöld; var hann hér staddur í þjóðrækniserindum. Verðskulduð viðurkenning Mánaðarblað (Monthly Bul- letin) hins kunna ameríska menningarfélags, The American- Scandinavian Foundation í New York, hefir undanfarið sýnt ýmsum forystumönnum í félags- og menningarmálum Norður- landabúa vestan hafs sóma með því að velja þá úr hópi meðlima stofnunarinnar sem “Member of the Month” og birta eftir þá stutta grein varðandi norræna menn þeim megin hafsins, sam- hliða æviágripi greinarhöfundar og mynd af honum. f nýútkomnu aprílhefti blaðs- ins skipar dr. Richard Beck þann heiðurssess, birtist þar stutt grein eftir hann um íslendinga í Bandaríkjunum (“Icelandic- Americans”), ásamt vinsamlegri umsögn um hann og störf hans og mynd af honum. Allra nýjusfu fréttir Eftir 57 daga frækilega vörn féll höfuðvígi Frakka í Indo China í hendur kommúnistum, er tóku 8,000 franska hermenn til fanga. Á Geneva-ráðstefnunni hafa umræður um vopnahlé í Indo China hafist hvernig svo sem þeim reiðir af, því eins og sakir standa eru horfur um samkomu- lag alt annað. en vænlegar. Fylkisprentari fylkisstjórnar- innar í Manitoba, Queens Printer, hefir látið af stöðu sinni °g fylgir það sögu, að stjórnin hafi í raun og veru látið hann segja af sér vegna þess, að hún hafi komist á snoðir um, að hann ætti hlutdeild í prentfyrirtæki og gæti þess vegna ekki talist með öllu óvilhallur varðandi út- hlutun á prentverki fyrir stjórn- arinnar hönd. Nú er að því komið, að verk hefjist á hinu mikla verzlunar- hverfi í Suður-Winnipeg, sem áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu. Áætlað er, að fyrir- tæki þetta kosti 13 miljónir dollara; verður reist ein deilda- búð, tvær keðjubúðir, tveir skólar og að minsta kosti huridrað íbúðarhús. Rannsóknarnefndin í vínsölu- málum Manitobafylkis, undir forustu Mr. Johns Bracken fyrr- um forsætisráðherra, er nú sezt á rökstóla og hefir haldið tvo fundi. Mr. Bracken er strangur bindindismaður, og að því er fróðir menn segja, mun áfengi aldrei hafa komið inn fyrir hans varir; hann segir að sér þyki límónaði allra drykkja beztur, þótt það vitanlega hefði engin áhrif á rannsóknina hvað sér persónulega félli betur eða ver, því í öllum efnum yrði hún að vera óhlutdræg. Lög samþykkt um virkjun Efri-Sogsfossa og um lón til smcnbúða Tvö af stórmálum þeim er ríkisstjórnin flutti frum- vörp um á Alþingi urðu'að lögum í gær. Eru það frum- vörpin um virkjun Sogsins og heimild til lántöku vegna smáíbúðabygginga. Eru þá að lögum orðin frumvörpin fjögur er ríkisstjórnin bar fram til efnda á loforðum, er gefin voru, er málefna- samningur ríkisstjórnarinn- ar var undirritaður — þ. e. um fyrirgreiðslu við þá er byggja smáíbúðir, rafvæð- ingu í sveitum landsins og kaupstöðum, og lækkun skatta. Sogsvirkjunin Frumvarpið um virkjun Sogs- ins kveður á um heimild fyrir ríkisstjórnina til 100 milljón kr. lántöku í því skyni að virkja Efri-Sogsfossa, en með þeirri virkjun er Sogið fullvirkjað. Hefir mikil undirbúningsvinna verið unnin í þessu sambandi, og er, að því er segir í athugasemd- um er frumvarpinu fylgdu, svo langt komið að leitað verður til- boða í verkið á þessu ári og með það í huga að framkvæmdir hefjist næsta vor. Smáíbúðir Frumvarpið um smáíbúðalán heimilar ríkisstjórninni að taka 20 milljón króna lán og lána það aftur þeim er byggja smáíbúðir með sömu kjörum og lánið er tekið. Er heimild þessi miðuð við þetta ár. Ríkisstjórnin lét þess getið, að hún teldi öruggt að þetta lán myndi fást. Jafnframt gat stjórnin þess að hér væri um bráðabirgða-aðgerðir að ræða, og fyrir næsta þing myndi verða undirbúin heildarlausn húsnæðis málanna. —Mbl., 13. apríl Fréttir fró ríkisútvarpi íslands 2. MAÍ Kinni opinberu heimsókn for- setahjónanna til Finnlands lauk á sunnudaginn var og héldu þá forsetahjónin til Abo. Móttök- urnar allar í Finnlandi voru sér- staklega alúðlegar og áhugi al- mennings fyrir íslandi mikill og kom hlýhugur Finna í garð Is- lendinga fram á margan hátt. Er forsetahjónin komu til Abo, var tekið á móti þeim með viðhöfn. Skoðuðu þau dóm- kirkjuna undir leiðsögn erki- biskups, en héldu með skipi frá Abo síðdegis á mánudag og höfðu margar þúsundir manna safnazt saman á hafnarbakkan- um og herflokkur stóð heiðurs- vörð. Á miðvikudag fór forseti íslands í heimsókn til háskólans í Uppsölum og var þar samkoma í hátíðasal háskólans. Flutti vararektor ræðu við það tæki- færi og kvað forseta Islands vera fyrsta Uppsalastúdent, sem komið hefði aftur til háskólans, sem þjóðhöfðingi annars lands. Frá Svíþjóð héldu forsetahjónin til Kaupmannahafnar og þar efndi Norræna félagið í Dan- mörku og félagið Dansk- Islansk Samfund til samkomu í hátíðasal ráðhússins í Frederiks- borg í Kaupmannahöfn og voru forsetahjónin heiðursgestir fé- laganna. Samkomuna sóttu yfir 1400 manns. Danskir og íslenzk- ir listamenn í Kaupmannahöfn skemmtu á samkomunni, meðal annars var ballettsýning, sem konunglegi danski ballettinn hafði, Anna Borg og Poul Reumert lásu upp, Stefán Is- landi, Einar Kristjánsson og Elsa Sigfúss sungu með undir- leik prófessors Haraldar Sig- urðssonar og ræður voru fluttar. Forseti Islands þakkaði mót- tökurnar með ræðu og lagði áherzlu á samstöðu Norður- landanna. Kvað hann óttann við að íslendingar væru að fjar- lægjast Norðurlöndin á mis- skilningi byggðan. „Vér teljum oss vissulega til norrænna þjóða, sagði forsetinn. Hér eru örlög okkar. Vér teljum, að vér hÖfum varðveitt nokkuð af sam- eiginlegum arfi okkar betur en aðrir, en vér viljum ekki taka að okkur að vera forngripasafn norrænnar menningar. Með því að halda áfram verkaskiptingu milli Norðurlandanna, vænta Is- lendingar þess, að þeim verði falin forusta um rannsóknir í ákveðnum greinum hins forna norræna máls og menningar.“ — Forsetahjónin héldu heimleiðis í gær með Gullfossi og koma til Reykjavíkur á föstudags- morgun. ☆. Árbók landbúnaðarins flytur nýlega yfirlit yfir landbúnaðinn 1953. Segir þar, að árið hafi ver- ið mjög hagstætt fyrir landbún- aðinn. Búpeningur gekk vel undan vetri, heyfengur var mjög mikill, til dæmis 50% meiri en árið áður, og sauðfjársjúkdóm- arnir eru mjög 1 rénun. Niður- skurði vegna mæðiveikinnar lauk 1952 og nú þykir sýnt, að halda megi garnaveiki í sauðfé í skefjum með bólusetningu. Árið 1953 var mjög hagstætt til jarðvinnslu og túnauki yfir árið varð rúmlega 2500 hektarar. Fjárfesting í landbúnaði mun hafa numið 150—130 milljónum króna og er það vafalaust meiri fjárfesting en nokkurt annað ár. ☆ Fjölmörg verkalýðsfélög í Reykjavík og víðar á landinu hafa nú sagt upp samningum sínum við vinnuveitendur frá 1. júní að telja og eru meðal þeirra ýmis stærstu félögin. Yfirlýstur tilgangur félaganna er að vinna að því að fá uppsagnarákvæðum samninganna breytt, þannig að þeir séu uppsegjanlegir með eins mánaðar fyrirvara hvenær sem er, en ekki þurfi að miða upp- sögn með mánaðarfyrirvara við 1. júní eða 1. desember ár hvert. Hjörtur Brandsson Þú áttir stærri hugarheim en hversdags maður. Hlýlyndur og hjartaglaður. Ekki varstu afskiftur af ýmsum raunum. Sorgin vaxtar vit að launum. Enga hrekki í brjósti barst né brigð til vina. Lá þér rómur lágt um hina. Göngum hljótt um góðra manna grafarvegi. Væri gott þeir gleymdust eigi. Margt var rætt og mörgu spáð og mætt var gaman, þegar að við sátum saman. Fræðaslyngur, fjölhygginn og frjáls í anda, skygn á stefnu lýðs og landa. Þó hann löngum lúa kendi lífs í hildi, allra böl hann bæta vildi. Ég skal ekki í eftirmæli öfgar skapa. Tízku þarf ég ekki að apa. Breiðafjarðar bernskulög í barmi sungu. Lá þér fagurt ljóð á tungu. Hönd þér rétti ég, Hjörtur minn, fyrir hlýja kynning. Kveðjan er helguð kærri minning. Jón Jónatansson Frú Sigríður Hall 101*111 Síðastliðinn mánudag lézt á St. Pauls sjúkrahúsinu í Saska- toon söngkonan frú Sigríður Hall, kona prófessor Steingríms K. Hall að Wynyard, Sask., rúmlega 73ja ára að aldri; hún var ættuð úr Dalasýslu. Frú Sigríður var glæsileg og góð kona og gædd óvenju fagurri rödd; var hún um langt skeið einsöngvari í Fyrstu lútersku kirkju og jók mjög á söngmenn- ingu íslendinga vestan hafs; auk manns síns, sem er ágætur píanó- og organleikari og kunn- ur sönglagahöfundur, lætur frú Sigríður eftir sig tvær dætur, Sylvíu og Eveline í Washington, D.C., og einn bróður, Jón Hör- dal að Lundar, Man. Útför þessarar merku konu verður gerð frá Fyrstu lútersku kirkju í dag, fimtudag, kl. 2 e.h., undir forustu Dr. Valdimars J. Eylands. Vafalaust verður frú Sigríðar frekar minst hér í blaðinu áður en langt um líður. Róttækar ráðu- neytisbreytingar Að því er símfregnir frá Lon- don herma hinn 27. apríl síðast- liðinn, hefir forsætisráðherra Rússa, Georgi Malenkov, hrund- ið í framkvæmd róttækum breytingum á ráðuneyti sínu; skipt var um átta ráðherra; ör- yggismálaráðherra verður A. L. Senov og tekur hann jafnframt við forustu leyniþjónustunnar, hvort sem hann síðar meir sætir sömu afdrifum og fyrirrennari hans, Lavrenty Beria, er sakað- ur var um dróttinsvik og tekinn af lífi. Landbúnaðarráðherra, nýr af nálinni, hefir verið dubbaður upp, og fylgir það sögu, að Malenkov hafi ekki verið farið að lítast á blikuna varðandi búnaðarframleiðsluna í landinu, sem mælt er að gengið hafi á tréfótum undanfarna mánuði.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.