Lögberg - 13.05.1954, Síða 8

Lögberg - 13.05.1954, Síða 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 13. MAI 1954 Úr borg og bygð Matreiðslukona óskast Eilliheimilið Höfn í Vancouver þarf að fá matreiðslukonu í þjónustu sína fyrir þann 1. júní næstkomandi. Upplýsingar veit- ir forstöðukona heimilisins, Miss M. F. Stevenson, 3498 Osler St., Vancouver, B.C. ☆ Leit að erfingjum Ræðismannsskrifstofa Islands í Winnipeg hefir verið beðin að afla upplýsinga um ættingja Freygerðar Árnadóttur frá Stokkseyri, sem andaðist 20. júlí 1953. Meðal erfingja dánarbúsins eru talin systurbörn hinnar látnu í Ameríku, en nánari upp- lýsingar um nöfn þeirra eða heimili eru ekki fyrir hendi. Ætlað er, að systir Freygerðar og móðir umræddra erfingja hafi heitið Margrét Árnadóttir, en ekki er það þó vitað með vissu. — Upplýsingar varðandi málaleitun þessa sendist til Conculate of Iceland, 76 Middle- gate, Winnipeg, Man., eða um síma 74-5270. ☆ Frú Marja Bjornson frá Mini- ota, Man., var stödd í borginni í vikunni, sem leið og sat fund í milliþinganefnd Þjóðræknisfé- lagsins varðandi samvinnu um skógræktarmál íslands. ☆ The Close Radio verzlunin að 705 Sargent Ave., hefir til sölu um þessar mundir nokkuð af íslenzkum hljómplötum; sendið pantanir sem fyrst, því eftir- spurn er mikil. ☆ Mr. Jack St. John, Liberal- þingmaður fyrir Winnipeg Centre kjördæmið, heldur leið- arþing í Goodtemplarahúsinu kl. 8 á mánudagskvöldið hinn 17. þ. m., þar sem hann skýrir að nokkru frá störfum nýafstað- ins fylkisþings og sýnir merka litkvikmynd. Aðgangur ókeypis. Free Sheets & Bags For COTTON & WOOLEN BAGS Please write for full information. New prints. Pieces size approxi- mately 36 x 40, very good quality cotton, but mipsrints and grue- some colors, cheap, each 15c. Thick chenile rugs, pastel colors, 24 x 36". Special $2.49 Unbleached Flour, 100 lbs. 23c Unbleached Feed, extra large 22c Unbleached Sugar, 100 lbs. 23c Bleached Flour, 100 lbs. 29c Same, slightly damaged 22c Bleached Feed, extra large 28c Bleached Sugar 29c Turkisþ Towels, pastel colours, half price, 21"x41", sale price 49c each Print Bags, 50 lb., perfects 23c Coloruful Print Perfects, 100 lbs. 39c Damaged, extra large 100 lb. prints, all different colours, special 25c 36" Colourful Dress Prints, yard i... 33c Good quality white flannelette, 36" wide, 10 yds. for $3.85. 20 yds. heavy unbleached cotton, 40" wide, sale price $6.00. Unbleached double sheets, heavy cotton, sale I price $1.69. Same bleached $1.89. Cotton pieces, 26" x 26", 12 for $1.00 98-lb. flour, slightly dmaaged 17c Towels, bleached 16c Towels, bleached, extra large 18c Bleached Sheets, single ....... 94c Winnipeg Bag Co. 975 Main St. Dept. W Winnipeg — Brúðkaup í Riverton — Gefin saman í hjónaband í kirkju Bræðrasafnaðar, River- ton, Man., voru þau Miss Eleanor Vilborg Thorsteinson og Mr. Antonius Lorne Peterson. Hjóna vígsluna, sem fór fram 24. apríl s.l. kl. 3 s.d., framkvæmdi séra Robert Jack. Kirkjan var þéttskipuð, þrátt fyrir mjög slæma vegi. Brúðarmeyjar voru Miss Margrét Thorsteinson, systir brúðarinnar, og Miss Anna C. Benedictson. Blómamey var Miss Sandra Guðmundson, og hringana bar Mr. Ronald Lax- dal. Brúðgumann aðstoðaði Mr. Bjarni Peterson, bróðir hans, og til sætis leiddu Mr. Kristján Thorsteinson, bróðir brúðarinn- ar, og Mr. Laurence Helgason, frændi brúðgumans. Við orgelið var Mrs. Sigurlín Bergen, en einsöngva söng Miss Birdeen Johnson. Foreldrar ungu hjónanna eru hin velmetnu hjón Mr. og Mrs. Hermann Thorsteinson, River- ton, Man., og Mr. og Mrs. Th. Peterson, Árnes, Man. Að lokinni hjónavígslunni var setin vegleg veizla í Riverton Community Hall, og voru um tvö hundruð gestir viðstaddir. Fyrir minni brúðarinnar mælti Mrs. Kristín S. Benedictson, en minni brúðgumans var flutt af Mr. Thor Helgason. Eftir stutt ferðalag munu hin vinsælu ungu sjón setjast að i Árnesi, Man. Hugheilar heilla- óskir fylgja þeim úr garði. ☆ List of Donalions to the Arborg Red Cross Memorial Hospital From Framnes U.M.F. in memory of Mrs. Margaret Vig- fússon $ 5.00. From Mr. and Mrs. Snæbjörn S. Johnson in memory of: — Mr. Hannes O. Jónasson Mrs. Ólöf Jónasson Mr. Hermann von Renesse Mrs. Ingigerður Elín Hólm Mrs. Guðrún Hólm Mrs. Ragnheiður Björnson Mr. Jakob Sigvaldason Mrs. Herdís Jónsson and Mr. Jón Borgfjord 50.00. Total Amount $55.00. Received with thanks Mrs. Einar Gíslason, Sec.-Treas., Árborg Red Cross Memorial Hospital, ☆ Frá Los Angeles Að því er Lögberg hefir ný- lega fengið vitneskju um, mun allmargt íslenzkt fólk í Los Angeles og víðar úr Californíu, vera að búa sig til Islandsferðar; meðal þeirra verða Gunnar Matthíasson, Thora dóttir hans og maður hennar; Mrs. George Freeberg og sonur, Mrs. Erla Anderson, Mrs. Sigga Nash, Mrs. E. Bernards, og Josep Myres frá National City, svo og Beta Thomas, er dvelja mun þrjá mánuði á Islandi. — ÞAKKARÁVARP — Innilegustu þakkir vil ég votta Gimli Women’s Institute, Gimli Students Council og öllum öðr- um félögum og einstaklingum, sem tóku þátt í samsæti fyrir mig í Gimli-miðskóla 6. maí, og styrktu á sama tíma skólabóka- safnið, sem er mér hugfólgið fyrirtæki. Einnig vil ég votta dýpsta þakklæti öllum þeim, sem hafa styrkt mig og kennslu- starf mitt og sýnt mér vináttu um þrjátíu og eins árs skeið á Gimli. Sigurbjörg Stefánsson ☆ Síðastliðinn föstudag lézt að Betel á Gimli Guðjón Johnson frá Ytra-Núpi í Vopnafirði, 86 ára að aldri, vinsæll maður og drengur hinn bezti; útför hans var gerð frá Bardals á mánudag- inn. Dr. Valdimar J. Eylands flutti kveðjumál. Alvin Blöndal söng einsöngva, en Gunnar Er- lendsson var við hljóðfærið; þessa aldurhnigna Austfirðings mun frekar verða minst í næsta blaði. Þrítugasta þing Bandalags lúterskra kvenna verður haldið í Selkirk, Manitoba, föstudag, laugardag og sunnudag, 28., 29. og 30. maí Dagskrá þingsins verður birt í næsta blaði. ☆ Finnbogi Guðmundsson pró- fessor lagði af stað áleiðis til Is- lands í gærmorgun í heimsókn til ættingja óg vina; mun hann dveljast á fósturjörðinni nálægt þriggja mánaðatíma. Lögberg biður honum fararheilla og á- nægjulegrar dvalar í faðmi ætt- jarðarinnar. ☆ Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðhr efnir til sölu á lifra- pylsu og blóðmör á miðvikudag- inn 19. maí frá kl. 2 e. h. í fund- arsal kirkjunnar. ☆ Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar efnir til sölu á lifra- pylsu og blóðmör miðvikudag- inn 19. maí. — Salan hefst kl. 2 e. h. og verður í fundarsal kirkjunnar. GULLBRÚÐKAUPSKVEÐJA til Guttorms og Jensínu Guttormsson Nokkur minningarorð um Mrs. Guðrúnu Agötu Kjartansson F. 11. júní 1863 — D. 4. nóvember 1953 ■sv*f T. EATON C°, C A N A D A Hinn 4. nóv. síðastliðinn and- aðist að heimili sínu, Brekku í Mikley, - merkiskonan Guðrún Agata Kjartansson eftir talsvert langan ellilasleika, en var þó ekki rúmföst nema part af síð- asta misseri. Guðrún sál. var fædd 11. júní 1863 að Desey í Norðurárdal í Borgarfjarðarsýslu. Foreldrar hennar voru: Árni Gíslason og Ingibjörg Guðmundsdóttir frá uppsölum í Hálsasveit, er þá bjuggu á Desey. Föður sinn misti Guðrún sál. þegar hún var á unga aldri, en ólst upp hjá móður sinni og bróður sínum (er þá tók við búsforráðum með móður sinni) fram til tvítugs, er hún misti móður sína. Þá fór hún til vandalausra sem .vinnu- kona. Fyrst að Sigmundarstöð- um í Norðurárdal, og var þar eitt ár, næst í Hjarðarholti 16 ár og eitt ár í Sólheimatungu; en þá tók hún upp á því ný- mæli að gjörast vistleysingi, er þá þektist lítt og taldi sér heim- ili í Dalsmynni í Norðurárdal, en vann á ýmsum stöðum í , dalnum og víðar við sauma og prjónaskap. Keypti hún sér stóra prjónavél í félagi við ýmsar konur sveitarinnar. Þann starfa iðkaði hún þar til hún trúlof- aðist frænda sínum, Benedikt Kjartanssyni, Einarssonar, (voru þau þremenningar að ætt af hinni alkunnu Háafellsætt). Var hann til heimilis í Sólheima- tungu í Stafholtstungum. Haust- ið 1897, 10. október, giftust þau. Var þá Benedikt til heimilis á Flóðatanga í Stafholtstungum hjá Árna Jónssyni, Stykkishólms póst, en Guðrún sál. var í húsa- mennsku í Melkoti, þar til Árni póstur drukknaði. Tók þá Bene- dikt við starfi hans og flutti Guðrún þangað. Bjuggu þau þar rúmt ár, eða þar til vorið 1900, að þau fóru vestur um haf ásamt einkasyni sínum, Jóni Ágúst, þá tæpra tveggja ára að aldri. — Fluttu þau það sama ár til Mikl^yjar, fyrst að Grund, en um haustið að Birkilandi og voru þar eitt ár, næst fóru þau að Helgavatni og dvöldu þar þangað til Benedikt keypti Brekku; fluttu þau þangað 1903 og þar bjuggu þau jafnan síðan eða rúm fimmtíu ár. Um 1907 tóku þau dreng til fósturs, Stefán að nafni. For- eldrar hans voru Þorleifur Ei- ríksson og Guðbjörg Sakarías- dóttir, var Þorleifur þá nýdáinn frá mörgum ungum börnum. Tóku þau Guðrún sál. og Bene- dikt Stefán og ólu hann upp til fullorðins ára. Hann kvæntist stúlku af pólskum ættum og voru þau til húsa hjá Guðrúnu og Benedikt næstu tvö árin, eða þar til Stefán keypti hús og flutti það að Brekku í námunda við gömlu hjónin. Fyrir nokkr- um árum seldi Stefán húsið og flutti ásamt fjölskyldu sinni vestur að hafi, og búa þau nú í Prince Rupert, B.C. Guðrún sál. var mesta dugn- aðarkona, enda þurfti hún oft á því að- taka, þar sem Benedikt maður hennar stundaði fiski- veiðar árið um kring að mestu, og var því að heiman tímunum saman, en hún sá um búskapinn heima fyrir og lá þá aldrei á liði sínu, þar sem hún á fyrstu árunum hafði enga aðstoð utan drengi sína þá á unga aldri, en hún kunni ekki að æðrast. Vorið 1936 varð hún fyrir því slysi að mjaðmarbrotna og eftir það bar hún aldrei sitt barr, en varð að haltrast áfram á hækj- um. En hetjumóðurinn var sá sami, því að hún gjörði sín hús- verk að mestu leyti án hjálpar á hverju sumri meðan hún lifði; en allmarga síðustu veturna höfðu þau menn til að hjálpa sér. En í gamla húsinu fannst þeim sjálfsagt að vera, því alltaf var sjálfstæðishugurinn hinn gami Um 1940 misti Benedikt sjón- ina, þá um áttrætt. Hafði þá Jón sonur þeirra tekið við bús- forráðum, var hann þá kvæntur fyrir nokkrum árum. Kona hans er Kristjana dóttir Jóhannesar Grímólfssonar frá Jónsnesi í Mikley. Byggði Jón sér hús á Brekku við hliðina á húsi for- eldra sinna og áttu þau því hægt með að líta eftir þeim, og til hans flutti Benedikt, er hann misti Guðrúnu, svo nú stendur gamla Brekkuhúsið autt. Árið 1947 var þeim Guðrúnu sál. og Benedikt haldið gull- brúðkaup af eyjaskeggjum og fleirum, og kom þá bezt í Ijós, hve sterk ítök þau hjón áttu í hugum samferðamannanna fjær og nær. Guðrún sál. var vel gefin bæði til munn og handa, skemmtileg heim að sækja með skrítlur á reiðum höndum og furðu hnytt- in í tilsvörum, enda bókhneigð og las allt, sem hún náði til; minnið var furðu gott, svo hún hafði þess full not, er hún las; hún var laglega hagmælt, en fór dult með þá gáfu. Hún var fé- lagslynd í bezta lagi og studdi allan félagsskap eyjarbúa með ráði og dáð, og mun hafa verið forseti lúterska kvenfélagsins í allmörg ár. Hún var mjög barn- góð og mátti ekkert aumt sjá; hennar er því sárt saknað bæði af vinum og vandamönnum, en þó sérstaklega af börnum í ná- grenninu, er öll kölluðu hana ömmu sína, óskyld sem skyld, enda áttu þau þar hauk í horni, sem hún var, ef eitthvað bjátaði á og hún gat lagfært, og þá ekki sízt lífstíðarfélaganum, manni hennar, sem nú bíður eftir að fá að sameinast henni á landi lifenda, þar sem ekkkert lengur fær amað. Blessuð sé minning hinnar látnu. Jóhannes H. Húnfjörð Grand Forks, North Dakota, 12 apríl 1954 Ágætu gullbrúðkaupshjón og kæru vinir: Ef skyldustörfin væru ekki fjötur um fót, myndum við hjónin hafa verið í þeim fjöl- menna hópi frænda og vina, sem hyllir ykkur á þessum ykkar gullna heiðursdegi. En fyrst við eigum ekki heimangengt af fyrrgreindum ástæðum, verður hið skrifaða orð að vera boðberi samfagnaðar okkar og heilla- óska. Ég hefi oft áður, Guttormur frsendi, að verðugu lofað og þakkað þitt ljóðagull, í ræðu og riti. Á þessum degi verður mér gæfugul! þitt ofar í huga. önd- vegisskáld Norðmanna, Henrik Ibsen, lætur, í frægu leikriti, söguhetju sína bera sigur af hólmi, af því að góðar konur og heilhuga stóðu honum að baki. Og þegar gerðir eru upp lífs- reikningarnir, m u n u m við kvæntu mennirnir, ef allur sann- leikurinn er sagður, einnig viðurkenna, að það, sem við kunnum að hafa afrekað, sé um annað fram því að þakka, að við áttum við hlið okkar konu, er ótrauð stóð okkur að baki í stormum lífsins. Eða eins og annað öndvegisskáld norskra frænda vorra, Björnstjerne Björnson, orðaði það í afbragðs- kvæði sínu „Föruneytið mitt“: „Með mér er ein af þeim málmi gjörð fyr mig að fórnaði’ hún öllu’ á jörð, já, hún, sem hló, er mitt fleyið flatti, né fölnaði’, er gein yfir sjórinn bratti, já, hún, sem lét milli ljósra arma mig lífsyl þekkja’ og trúarvarma". Undir þetta veit ég, frændi sæll, að þú munir taka heilum huga, og réttilega telja þína ágætu Jensínu mesta gersemi, sem þér hefir hlotnast í lífinu. Sameiginlega munuð þið auð- vitað segja með rómverzku skörungskonunni fornu, að ykk- ar mannvænlegi barnahópur (að barnabörnunum ógleymdum) séu ykkar dýrustu gimsteinar, og um það erum við hinir mörgu vinir ykkar sammála, og vottum ykkur ekki sízt virðingu okkar fyrir það, að koma þeim stóra barnahóp til manns eins fagur- lega og raun ber vitni. Það eitt sér er ærið ævistarf, mikilvægt og þakkarvert að sama skapi. Væri ég eins snjallt gullbrúð- kaupsskáld og þú ert, Guttormur, myndi ég hafa ort til ykkar kvæði á þessum merkisvega- mótum ykkar; en leir. þó hertur væri í eldi heitrar ræktarsemi, vil ég ekki hnoða á gullbrúð- kaupsdegi; það væri synd móti guði og mönnum, og þó sérstak- lega gagnvart ykkur, virðuleg- um gullbrúðkaupshjónum. Fer ég því x smiðju til Einars Bene- diktssonar*og segi í fögrum og djúpskyggnum orðum úr „Brúð- kaupssöngvum" hans: stólpi“, eins og Jónas Hallgríms- son sagði spaklega endur fyrir löngu. Sérstaklega vil ég votta ykkur þökk fyrir það, hve vel þið hafið ori lífsjóð ykkar undir ástarinnar hljómfagra bragar- hætti. Fyrir óbrigðula vináttu þökkum við ykkur hjartanlega og biðjum ykkur blessunar í kvöldskininu eftir langan og nytjaríkan dag. Lifið sem lengst og lifið heil! Ykkar einlægur, RICHARD BECK Breyiing á áriian: Núverandi áritan mín er 710 Notre Dame Ave., Winnipeg, Manitoba. S. S. Chrisíopherson MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Messur í Norður-Nýja-íslandi Sunnud. 16. maí: Víðir, kl. 2, á ensku. Geysir, kl. 8, á íslenzku. (Safnaðarfundur eftir messu). Roberi Jack „Við arin eldsins helga skal eining lífsins tengd og harpa samanhljómsins af hjartaþráðum strengd. Þar á til ytra stríðsins hið innra að sækja frið og drekka þrótt til dáða í draumi um starfsins svið. Sitt afl skal öðru tvinna, sá auðnu vill í heim. Hvert jarðar blys, sem brennur, er bál af neistum tveim.“ Kaupið Lögberg Víðlesnasta íslenzka blaðið "A Realisiic Approach to ihe Hereafier" by Winnipeg auihor Edith Hansson Bjornsson's Book Siore 702 Sargeni Ave. Winnipeg You’ll save a lot of worry, With the way prices are today; If you pick your cakes and dainties, From Aldo’s great display. ALDO'S BAKERY 613 Sargenl Ave. Phone 74-4843 Þarna lýsir skáldið á ógleym- anlegan hátt samfylgd og sam- starfi karls og konu í fegurstu mynd sinni, og þá um leið langri og farsælli samferð ykkar um lífsins veg. I nafni okkar hjónanna þakka ég þér, Guttormur skáld, fyrir að hafa ori lífræn og listræn ljóð og leikrit, og ykkur báðum fyrir að hafa yrki jörðina með mikl- um sóma áratugum saman, en „bóndi er bústólpi, bú er land- LOW First Cost LOW Operating COST KOH LER Electric Plants For Homes, Siores, Trailers, Boals, Docks, Ouibuildings, eic. An independent source of light and power — sole supply or standby protection. Sizes up to 15 KW — fully automatic. No fear of power failure when you have a Kohler. Ask for il- lustrated details. AVUMFORD, AVedland, flMITED, 576 WoU SU Wpg. Ph. 37 187 also Regina, Saskatoon and Calgary

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.