Lögberg - 07.10.1954, Qupperneq 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 7. OKTÓBER 1954
Lögberg
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Gefið Qt hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 743-411
Verð $5.0U um árið — Borgist fyrirfram
The "Lögberg" ís printed and published by The Columbia Pre.se Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Hver verður hlutskarpastur eða ætti
að verða það?
Þann 8. nóvember næstkomandi verða háðar auka-
kosningar í fimm sambandskjördæmum, en ein þeirra fer
fram í Selkirk; kjördæmi þetta losnaði við óvænt fráfall
Mr. Woods í öndverðum ágústmánuði síðastliðnum; og með
það fyrir augum, að enn er eigi nerna þriðjungur núverandi
kjörtímabils runninn út, eða jafnvel tæplega það, var óhjá-
kvæmilegt, að kvatt yrði til aukakosningar; þrír megin-
flokkarnir hafa þegar valið sér frambjóðendur, sem komnir
eru á stúfana og teknir eru að biðla til háttvirtra kjósenda.
Það er lakur kaupmaður, sem lastar sína vöru, segir
hið fornkveðna, og þessir þrír frambjóðendur í Selkirk, eiga
vitaskuld sammerkt um margt við sína pólitísku stéttar-
bræður og forgylla varning sinn í alla enda; vörumerkin
eru kjósendum af langri reynslu kunn, en frambjóðendur,
að undanteknum Mr. Bryce, eru þeim hvergi nándar nærri
jafnvel kunnir, því fram að þessu hafa þeir, að minsta kosti
í hinni víðari merkingu, lítt verið við pólitík riðnir.
Mr. Bryce hefir tvisvar sinnum átt sæti á sambands-
iþingi fyrir höpd C.C.F.-flokksins við sæmilegan orðstír,
þó naumast verði hann til verulegra atkvæðamanna talinn
á vettvangi stjórnmálanna; flokkur sá, sem hann hefir fylgt
að málum og fylgir enn, hefir jafnan átt næsta erfitt upp-
dráttar og mun að líkindum hafa sömu sögu að segja í
framtíðinni, enda hefir stefnuskrá hans frá upphafi vega
verið harla þokukend; en vonandi senda kjósendur þann
manninn á þing, sem líklegastur er til að verða kjördæminu
að sem mestu liði.
Um merkisbera íhaldsmanna, Mr. David Veitzh, er
Lögbergi ókunnugt að öðru leyti en því, að hann er sagður
að njóta góðra vinsælda í héraði; færi svo að hann ynni
kosningu, sem telja má í rauninni nálega óhugsanlegt, yrði
hann vitanlega minnihlutamaður á þingi með litla von um
afreksverk í þágu kjördæmis síns, því vonlaust má telja,
að flokkur hans undir forustu Mr. Drews, komist nokkru
sinni til valda í landinu, enda hafa miðaldahugsjónir í stjórn-
málum þessarar þjóðar sungið sitt síðasta vers.
Af hálfu Liberala býður sig fram John Shanski, maður,
sem enn er á bezta aldri og kunnur að málafylgju, og þótt
hann fram að þessu hafi ekki haft mikil afskipti af stjórn-
málum, hefir hann árum saman látið margháttuð mann-
félagsmál mikið til sín taka við góðum árangri; hann er
eindreginn stuðningsmaður núverandi sambandsstjórnar og
myndi því í Ottawa óhikað knýja á dyr varðandi hagsmuni
Selkirk-kjördæmis; honum er það ljóst, að Canada býr við
holla og framtakssama stjórn og nýtur forustu eins hins
víðsýnasta stjórnmálamanns, sem þjóðin hefir eignast.
Selkirk-kjördæmi þarf allra hluta vegna að fá kosinn
Liberal á þing, og þá er heldur ekki um annað að ræða en
fylkja liði um John Shanski.
☆ ☆ ☆
Fá orð í fullri meiningu
Til þess eru þjóðræknisþing háð ár hvert, að þar sé
tekin til umræðu og viturlegrar lausnar þau mál, er mestu
skipta um þjóðræknisviðleitni vora, verndun tungunnar og
hins andlega sambands við stofnþjóðina í austri; þings-
ályktunartillögur eru afgreiddar og erindrekum falið, að
vinna að framgangi þeirra milli þinga; stundum hefir þessu
að einhverju leyti verið sint, en oftar en einu sinni hefir
framtakið í þessum efnum gufað upp.
Á því hefir réttilega verið hamrað ár eftir ár, að án
Lögbergs og Heimskringlu, þótt þeim vafalaust sé í einu og
öðru áfátt, yrði þjóðræknisstarf vort lítt kleift, ef ekki með
öllu ókleift vegna þess rofna sambands, er lát þeirra óhjá-
kvæmilega hefði í för með sér, og með það fyrir augum,
að halda þessum þjóðræknislegu máttarstoðum sem lengst
við líði, hafa þjóðræknisþingin skorað á erindreka sína frá
hinum ýmissu deildum, að vinna heima fyrir að útbreiðslu
blaðanna; þetta er sjálfsagt ekkert áhlaupaverk, en þó
engu að síður með góðu atfylgi og í fullri alvöru mætti
nokkru til vegar koma; þetta er ekki mælt út í hött, því
ritstjóri þessa blaðs hefir þó nokkra persónulega reynslu
þessu viðvíkjandí vegna ferðalaga og annara sambanda við
íslenzk bygðarlög hér í álfu.
Deildir Þjóðræknisfélagsins verða að minsta kosti að
láta sér skiljast, að þær verði eitthvað á sig að leggja, er
vor dýrustu málefni eiga í hlut, og skyldur sínar við blöðin
mega þær ekki undir neinum kringumstæðum vanrækja.
☆ ☆ ☆
Líknarsamlagið
Hin árlega fjársöfnun til líknarsamlags Winnipegborgar
hófst í byrjun þessarar viku, og er ráðgert, ef alt gengur að
óskum, að henni ljúki þann 1. nóvember næstkomandi;
upphæðin, sem safna skal, er nokkru hærri en sú í fyrra
og nemur $890,000. Stofnanir þær, sem líknarsamlagið
leggur lið eru margar og þær eru þess eðlis, að bæjar-
félagið má ekki án þeirra vera; það er þess vegna hvorki
meira né minna en siðferðisleg skylda, að þeir, sem njóta
atvinnu og heilsu, leggi af mörkum það, sem þeim framast
er unt þeim til aðstoðar, er rás viðburðanna hefir synjað
um sjálfsbjörg.
Veturinn hér um slóðir getur stundum orðið langur og
kaldur; minnumst þess, að allir eiga jafnt tilkall til fæðis,
klæðis, húsnæðis og hita.
Leifur E. Summers
F. 21. maí 1893 — D. 13. apríl 1954
— MINNINGARORÐ —
Leifur E. Summers var fædd-
ur að Carberry í Manitoba 21.
maí 1893 og voru foreldrar hans
Eiríkur Sumarliðason og Þor-
björg Jónsdóttir, bæði ættuð úr
Borgarfirði syðra. Þau voru af
góðum og traustum, íslenzkum
bændaættum og nutu vinsælda
og virðingar. Átti Leifur Sum-
mers margt skyldfólk hér í
Ameríku og heima á íslandi.
Eru þar á meðal lærðir menn,
lögfræðingar, læknar, skáld og
listamenn. — Af systkinum
Leifs eru nú þrjú á lífi, Jónína,
kennslukona í Los Angeles, Jón
í Vancouver og Henry í Ed-
monton. Ein systir Ingibjörg
Jackson, lézt fyrir allmörgum
árum.
I.eifur ólst upp í foreldrahús-
um og var í bernsku mjög
heilsulítill, svo að óttast var um,
að hann myndi ekki ná full-
orðins aldri. En honum óx
styrkur og hann varð heilsu-
betri er leið á bernsku og æsku-
árin, þó aldrei yrði hann vel
hraustur eða heilsugóður. —
Þegar hann var 17 ára bvrjaði
hann að starfa hjá T. Eaton’s
félaginu í Winnipeg og hjá því
félagi starfaði hann þar til hann,
vegna heilsubrests, lét af störf-
um árið 1950. Um þriggja ára
skeið hvarf hann þó frá störfum
sínum hjá félaginu og stundaði
landbúnaðarvinnu á bújörð í
Teulon í Manitoba. Gerði hann
það sér til heilsubótar.
Leifur Summers kvæntist eft-
irlifandi konu sinni Sigurlaugu
(Lil) Árnason 9. okt. 1915. Var
hjónaband þeirra framúrskar-
andi ástúðlegt. Þau eins og héld-
ust í hendur öll samvistarárin og
unnu hvort öðru jafn innilega
síðasta dag samvistanna eins og
þann fyrsta. Þau áttu fagurt
heimili og voru með afbrigðum
gestrisin. Það var alltaf hlýtt og
bjart á heimili þeirra 1 Winni-
peg og Vancouver. Móttökurnar,
sem gestirnir fengu þar, voru
svo höfðinglegar og ástúðlegar
að slíkt gleymist aldrei. Með
þeim hjónum dvaldi um 30 ára
skeið móðir húsmóðurinnar og
var hún alblind í mörg ár. Leifur
Summers var tengdamóður sinni
svo góður og skilningsríkur, að
oft talaði hún um það, að ekki
gæti hann verið sér betri þó
hann væri hennar eigin sonur.
Þegar Leifur E. Summers tók
að sér forsetastarfið í heimilis-
nefnd elliheimilisins „Höfn“
hér í Vancouver hafði hann dýr-
mæta reynslu í því að starfa
fyrir og vera með fólki á gamals
aldri. Hann skildi það betur en
flestir aðrir. Hann sagði oft: —
Það verður að gera allt sem
hægt er til þess að gamla fólk-
inu líði vel. Hann kom oft að
„Höfn“ og ræddi af vinsemd og
velvild við hvern sem var. Þar
var hann alltaf aufúsugestur.
Hjá T. Eaton’s félaginu hafði
hann mikla trúnaðarstöðu, þar
sem hæfileikar hans og mann-
kostir hans nutu sín vel. Hann
var þar deildarstjóri og hafði
eftirlit og umsjón með starfi
fjölda fólks. Hversu vinsæll
hann var í stöðu sinni sýna bezt
bréfin og samúðarkveðjurnar,
sem ekkju hans bárust að hon-
um frá fólki, sem starfað hafði
í áratugi með honum og fyrir
hann. Hann var ekki aðeins yfir-
maður eða húsbóndi heldur
einnig góður vinur og hjálp-
samur, þegar mest reyndi á. Og
allir ljúka upp einum munni um
það, að fyrst og fremst var hann
góður maður.
Honum var margt vel gefið og
til lista lagt. Á yngri árum var
hann góður íþróttamaður og
fékk mörg verðlaun sem góður
hlaupari. Þá var hann meðlimur
“The North End Athletic Club“
í Winnipeg. Einnig hafði hann
mikla ánægju af því að leika
golf í frístundum sínum. Hann
var ágætur taflmaður og hefði
orðið þar í flokki hinna fremstu,
Leifur E. Summers
ef hann hefði haft tíma til að
stunda þá göfugu íþrótt. Og svo
lék allt í höndunum á honum
og var hann listasmiður. Hafði
hann smíðastofu á heimili sínu
og úrvalsverkfæri af öllum teg-
undum. Smíðaði hann marga
fagra gripi, er prýða heimili
þeirra hjónanna og margra ann-
arra. Þetta var hans tómstunda-
vinna og honum til mikils yndis-
auka. — Úti í blómagarðinum
við íbúðarhús sín átti hann mörg
handtök og allt var þar með
mesta snyrtibrag.
Leifur E. Summers var prýði-
lega vel gefinn og minnugur,
sérstaklega á ættir fólks, og bók-
hneigður. Honum gafst ekki
tækifæri til mentunar við æðri
skóla, en að loknu barnaskóla-
námi, stundaði hann nám við
bréfaskóla Central Collegiate í
Winnipeg. Hann unni íslenzku
máli og talaði íslenzku prýði-
lega og studdi íslenzk menning-
armál hér í álfu. Og eitt sinn
sagði hann mér, að hann færi
alltaf með „Faðir vor“ á íslenzku
og aðrar bænir, sem hann lærði
við móðurkné. Trúmaður var
hann og unni kirkju og kristin-
dóm. Þau hjónin voru meðlimir
Fyrstu lúthersku kirkju í Win-
nipeg og sóttu einnig guðsþjón-
ustur íslenzka safnaðarins hér í
Vancouver og studdu hann af
ráði og dáð. Hann hafði sterka
trú á því, að réttlætis- og kær-
leiksboðskapur Jesú Krists væri
einasta von mannkynsins. Rang-
læti þoldi hann ekki og hafði
samúð með öllum, sem áttu bágt
og liðu neyð. — Þeim hjónum
fæddust ekki börn, en öll börn
er kynntust þeim urðu vinir
þeirra. Börn okkar hjónanna
nutu vináttu þeirra og góð-
vildar og það mun okkur aldrei
gleymast.
Leifur E. Summers var fríður
maður og fyrirmannlegur og
háttprúður í framkomu svo að
af bar. Hann var jafn við æðri
sem lægri, því í manngreinarálit
fór hann aldrei og vissi ekki
hvað það var að gera sér manna-
mun.
Það kom fagurlega í ljós við
útför hans hversu frábærlega
vinsæll hann var og þau hjónin
vinmörg. I kringum kistuna
hans á útfararstofunni var eins
og blómahaf og heim til ekkju
hans bárust auk þess fjöldi
fegurstu blóma. Víðsvegar að
bárust samúðarkveðjur og hefur
þetta allt verið ekkju hans ó-
metanlegur styrkur í hennar
djúpu sorg. Fjöldi fólks var við-
statt kveðjuathöfnina, sem var
innileg, samúðarrík og hátíðleg.
Kæri vinur, Leifur E. Sum-
mers! Það sakna þín allir, sem
þekktu þig og þeir mest, sem
þekktu þig bezt, því að það eru
of fáir góðir menn í heiminum.
Okkur fannst, að þú ættir eftir
að vinna gott og fagurt starf hér
með okkur, en við trúum því
að þú hafir verið kallaður til
starfa í æðri tilveru. — Guð
blessi þig, hjartkæra eiginkonu
þína, ættingja og vini. — Hafðu
þökk fyrir allt og allt.
Vertu blessaður og sæll. —
E. S. Brynjólfsson
Mestur f jöldi
ólæsra í Afríku
og Asíu
Unesco gefur út hagskýrslur í
handbókarformi
Að því er síðustu hagfræði-
skýrslur frá Unesco herma,
eru milli 45 og 55 prósent
íbúa heimsins á aldrinum
10 ára og þar yfir ólæs.
í Afríku er mestur fjöldi hinna
ólæsu eða 75—85%, en næst
kemur Asía (að fráteknum Sovét
ríkjunum) með 65—75%. Þá er
Suður-Ameríka með 40—50%.
Norður-Ameríka með 10—25%
og Evrópa (að fráteknum Sovét-
ríkjunum) með 5—10%. Frá
þessum staðreyndum er sagt í
hagfræðilegri handbók, sem er
nýlega komin út, aukin og end-
urbætt. Fyrsta útgáfa hennar
kom út 1952.
I þessari handbók, þar sem
skýrt er frá því, hversu mörg
börn séu í barnaskólum og fram-
haldsskólum miðað við barna-
fjölda hvers lands, er einnig sagt
frá því, að árið 1952 hafi verið
mestur fjöldi erlendra náms-
manna í æðri skólum eða 30.462.
Af heildarfjölda nemenda í
æðri skólum voru hlutfallslega
flestir erlendir stúdentar við
nám í svissneskum háskólum
eða 4.065.
Mest bókaútgáfa 1952, eftir
bókaheitum fyrstu útgáfu að
dæma, var 13,150 í Bretlandi,
10,536 í Vestur-Þýzkalandi,
10,410 í Frakklandi, 9,643 í Japan
og 9,399 í Bandaríkjunum.
Samkvæmt handbókinni voru
til árið 1953 alls í heiminum
230,000,000 útvarpsviðtæki eða
9,9 fyrir hverja 1000 íbúa. Af
þessum viðtækjafjölda áttu
Bandaríkin um helminginn, en
af því voru 25,000,000 bíla-
viðtæki.
Bandaríkjamenn áttu líka
mestan fjölda fjarsýnistækja. f
júlímánuði 1953 vöru þau 25,100,-
000 og slíkum tækjum fjölgaði
um kringum 40% á ári. f Bret-
landi voru 2,900,000 og nam
fjölgunin um 70% á ári. í sept-
embermánuði 1953 höfðu um
tuttugu lönd reglulegt fjarsýnis
útvarp.
Einnig er frá því sagt, að árið
1952 hafi Hong Kong verið
þriðji stærsti framleiðandi
langra kvikmynda með 259.
Framar stóðu aðeins Bandaríkin
með 368 og Japan með 261. Ind-
land framleiddi 233 og ítalía 148.
En Stóra-Bretland átti hlut-
fallslega hæstu bíósókn árið
1953. Það voru að meðaltali 26
bíóferðir á mann á ári. Stóra-
Bretland hafði líka mesta dag-
blaðaútbreiðslu á hverja 1000
íbúa árið 1952. Stóra-Bretland
var með 615, Svíþjóð 490. Japan
og Bandaríkin voru jöfn í fimta
sæti með 353.
Þessi nýja útgáfa bæklingsins
er miklu nákvæmari en sú fyrri.
Allt hefir verið nákvæmlega
endurskoðað og mörgum nýjum
löndum hefir verið bætt inn i-
Alls eru 18 línurit í bæklingn-
um varðandi ólæsi, fræðslu,
bókasöfn, önnur söfn, bókaút-
gáfu, blaðaútgáfu, fréttakvik-
myndir, útvarp og fjarsýnis-
útvarp.
—VfSIR, 24. ágúst
JOHN SHANSKI
Kynnist
LIBERAL
þingmannsefni yðar
331 skrásettur erindreki úr öllum deildum Selkirk-kjör-
dæmis, sótti nýlega afstaðinn framboðsfund Liberala ásarnt
fjölda annara, en fylgdust með af áhuga miklum öllu því,
sem fram fór; á þessum fjöruga fundi var Mr. John Shanski
valinn sem þingmannsefni í aukakosningunni til sambands-
þings, er þar verður haldin hinn 8. nóvember.
John Shanski er maður á bezta aldri aðeins 45 ára; hann
hefir ávalt borið hag kjördæmisins fyrir brjósti, en foreldrar
hans eru búsettir að Malonton. Hann hefir rekið timbur-
verzlun og selt húsavið miklum fjölda einstaklinga innan
vébanda kjördæmisins, en þrátt fyrir miklar annir gaf hann
sér tíma til starfa við YMCA, jafnframt því að hafa með
höndum forustu Selkirk Chamber of Commerce. Hann er
einnig gerkunnur búnaðarháttum í kjördæminu og ÞV1
manna hæfastur til að vinna því gagn í þeim efnum.
Með þetta fyrir augum og fjölþætta reynslu hans á vett-
vangi opinberra mála, er John Shanski ágætlega til þesS
fallinn, að gæta hagsmuna Selkirk-kjördæmis í Ottawa.
John Shanski er einbeittur stuðningsmaður núverandi sam;
bandsstjórnar og því líklegur til að hafa heillavænleg áhrif a
stefnu hennar.
Þeir, sem leita kosningar af hálfu annara flokka eiga ekki
eins hægt um vik að koma hugðarmálum sínum í fram-
kvæmd.
Með það fyrir augum að láta eitthvað til sín taka varðandi
stjórnarfarsleg áhrif og viðhalda góðri stjórn, er sjálfsagt
að greiða frambjóðanda Liberala, John Shanski atkvseði
þann 8. nóvember og hvetja aðra til að gera það líka.
Greiðið af-kvæði og vinnið fyrir
SHANSKI John
X
Pub. by authority of Liberal Election Committee