Lögberg - 07.10.1954, Page 8

Lögberg - 07.10.1954, Page 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 7. OKTÓBER 1954 Úr borg og bygð Frú Lovísa Fenton frá Struthers, Ohio, hefir dvalið hér um slóðir undanfarinn hálfs- mánaðartíma, en hverfur heim- leiðis í byrjun næstu viku; frú Lovísa var ilin upp á Gimli og þangað fór hún norður í heim- sókn til æskuvina og samferða- manna; hún er einnig vinamörg í þessari borg. ☆ Hon. J. T. Thorson forseti Ex- chquer réttarins í Canada, var staddur í borginni nokkra daga í embættiserindum fyrir og um síðustu helgi; hann leit sem snöggvast inn á skrifstofu Lög- bergs svo sem hann á vanda til, þegar hann er hér á ferð. ☆ Séra S. O. Thorlakson og frú, sem hér hafa dvalið í rúman mánaðartíma, lögðu af stað áleiðis til heimilis síns í San Francisco á þriðjudagsmorgun- inn; svo sem áður var skýrt frá, fór Mrs. Thorlakson á Almenna spitalann hér í borg til læknis- aðgerða, er tókust hið bezta og nýtur hún nú ágætrar heilsu; en vegna sjúkravistar sinnar átti hún þess ekki kost að að heilsa upp á alla sína mörgu vini. Þessi mætu hjón báðu Lögberg að flytja ættingjum og vinum al- úðarþakkir fyrir hjartanlegar viðtökur. ☆ Síðastliðinn sunnudag, 3. okt., ferðuðust nokkrir vinir Mrs. Hansínu Olson til Gimli til þess að óska henni til hamingju með daginn, sem var afmælisdagur hennar, og varð hún þá 91 á^s gömul. En afmælisfagnaðurinn fór fram á sumarheimili þeirra Mr. og Mrs. W. H. Olson, sem fögnuðu gestunum og afmælis- barninu; en Hansína dvelur nú á Betel. Jók það ekki lítið á gleðina, að þarna var stödd frú Sigríður Olson frá Balfour, B.C. ekkja Dr. Baldurs heitins Olson- ar, sonar Hansínu, en hún er í heimsókn til sona sinna hér í borginni. ☆ Mr. George Jóhannesson frá Edmonton, Alta, kom til borgar- innar í vikunni, sem leið, í heim- sókn til móður sinnar, Mrs. Guð- laugar Jóhannesson, Ste 15 Elinore Apts. Brugðu þau mæðginin sér síðan vestur til Argyle og dvöldu þar í nokkra daga hjá ættingjum og ástvin- um. George er vel þekktur flug- maður og hefir verið flugstjóri hjá Canadian Pacific Airlines í mörg ár, og flýgur milli stór- borganna í Vestur-Canada. ☆ Mr. Jóhann K. Johnson frá Hecla, Man., er nýkominn heim eftir mánaðardvöl vestur á Kyrrahafsströnd. — Heimsótti hann þar vini og vandamenn í Steveston, B.C., og Vancouver. Lét hann hið bezta af viðtökun- um þar vestra. ☆ Helga Ólafía Marie, dóttir Mr. og Mrs. G. Peterson, Gimli, Man., og Ronald Peter Malis frá Selkirk voru gefin saman í hjónaband í St. Vital, 23. sept. Heimili þeirra verður að Radium Hot Springs, British Columbia. ☆ Gefin voru saman í hjónaband 25. september að Gimli Barbara Thorbjörg, dóttir Mr. og Mrs. Helgi Stevens, og Herman Henderson frá Newcastle, B.C. Séra Harold S. Sigmar gifti. SÍÐAN 1910 Canadískir menn bera traust til Tip Top Tailors elztu og stærstu fatagerðarinnar í Canada. Tip Top föt, sniðin eftir máli, njóta mestrar hylli í Can- ' ada vegna sniðs, gæða og endingar. Spyrjist fyr ir hjá nágranna yðar i=. hann veitir svarið. Beztu föt I Canada, “ sem fáanlep eru. Ávalt Tip Top búð 1 grendinni. r 3/ KURTEISIVEGNA SAMNOTASÍMA Þetta er mikilvægt vegna bættrar afgreiðslu! • Gætið þess að línan sé auð áður en samtal byrjar. Mrs. P. J. Sivertson, 497 Telfer Ave., Winnipeg, er ný- komin heim úr mánaðar skemti- ferð vestur á Kyrrahafsströnd. ☆ Mr. og Mrs. Christian Guð- mundsson og Mr. Haraldur Ólafsson frá Mountain, North Dakota, voru stödd í borginni í fyrri viku. ☆ Frú Marja Björnsson frá Miniota, Man., var stödd í borg- inni fyrripart yfirstandandi viku. ☆ Frú Kristjana Anderson frá Vancouver, B.C., er nýlega kom- in til borgarinnar í heimsókn til ættingja og vina. ☆ Hingað kom til borgar frá ís- landi í fyrri viku ungur maður, Guðmundur Halldórsson, á leið til Vancouver, B.C. ☆ 1 fyrri viku kom hingað til borgarinnar Mrs. L. E. Summers frá Vancouver, B.C., í heimsókn til ættmenna og annara vina. ☆ Ritstjóra Lögbergs væri greiði ger ef einhver sá, er vita kynni um heimilisfang Guðjóns Guð- mundar Guðjónssonar, léti hon- um þar að lútandi upplýsingar í té. Maður þessi átti heima að Ste 2 Corrine Apts., hér í borg 1948 til 1949 og stundaði þá nám við Success Business College. ☆ The Women’s Association of the First Lutheran Church will meet Tuesday Oct. 12th at 2.30 p.m. in the lower auditorium of the church. ☆ Séra Pétur Magnússon frá Vallanesi lagði af stað suður í Bandaríki síðastliðinn sunnudag, en mun halda heim til íslands um mánaðarmótin næstu. ☆ Laugard. 25. sept. voru gefin saman í hjónaband í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg af séra Braga Friðrikssyni ungfrú Ásta Kristín Björnsson frá Lundar og Mr. C. Smart frá Dominion City. Um kveldið var setin vegleg brúðkaupsveizla í salarkynnum St. Regis hótels í Winnipeg. — Heimili ungu hjónanna verður í Winnipeg. ☆ Mr. Guttormur J. Guttorms- son skáld frá Riverton var staddur í borginni á þriðjudag- inn í sól^kinsskapi og lék við hvern sinn fingur. ☆ Mr. Árni Jóhannsson frá Cavalier, N. Dak. dvaldi í borg- inni um síðustu helgi. ☆ Frónsfundurinn, er haldinn var síðastliðið mánudagskvöld var dável sóttur og þótti takast hið bezta; mikla hrifningu vöktu myndirnar frá lýðveldistökunni 1944 sem og það annað, er á skemtiskrá var. Forsæti skipaði Mr. Johnson. ASHRAF PRIN5ESSA Tvíburasyslir íranskeisara, sem sögð er hafa meiri áhrif á hann en nokkur persóna önnur Því er ekki að neita, að kalda stríðið hefir að ýmsu leyti gengið andstætt vesturveldun- um að undanförnu. Vopnahlés- samningarnir í Indó-Kína eru líklegir til að styrkja kommún- ista í Suðaustur-Asíu og í Ev- rópu heldur áfram gamla þófið með Erópuherinn og virðist nú helzt úlit fyrir, að hann sé úr sögunni. Slíkt yrði í bili veru- legt áfall fyrir vesturveldin, þar sem þau hafa unnið að því á þriðja ár að tryggja endurvíg- búnað Þjóðverja með þessum hætti og allt það starf myndi reynast unnið fyrir gíg. Þó kann þetta að reynast til hags, þegar fram líða stundir, ef það verður til þess, að fundið verði annað fyrir komulag, sem tryggir víg- búnað Þjóðverja, en meiri ein- ing næst um. Að einu leyti hefir kalda stríð- ið hins vegar verið hagstætt vesturveldunum að undanförnu. Fyrir rúmu ári síðan virtist minstu muna, að hin nálægari Austurlönd gengu þeim alveg úr greipum. Kommúnistar virtust þá hafa miklar líkur til að ná völdum bæði í íran og Egypta- landi, og Arabar voru vestur- veldunum fjandsamlegir. Nú er þetta gerbreytt. Olíudeilan í íran og Súezdeilan eru leystar og í Iran og Egyptalandi fara með völd alltraustar andkomm- únistískar stjórnir. Tyrkland og Pakistan hafa stofnað með sér varnarbandalag og þykir líklegt að Iran og írak gerist brátt að- ilar að því. Þá hefir risið upp nýtt varnarbandalag á Balkan- skaga með þátttöku Tyrkja, Grikkja og Júgóslava. Ástandið er því allt gerbreytt á þessu svæði vesturveldunum í vil. John Eyðið engum mælgi. tíma í óþarfa Farið af línunni ef samnotandi hennar þarf að ná áríðandi tali. Látið ekki símann. börn fitla við MANITOBA TELEPHONE SYSTEM Frá Árborg, 4. okt. 1954 Kæri ritstjóri: Ég hefi í huga að messa í Ar- borg á sunnud. 10. þ. m. kl. 8 e. h á íslenzku. Séra Pétur Magnússon frá Vallanesi talaði hérna í Geysi á föstudagskveldið í giftingar- veizlu sem haldin var Vigdísi Sigurðsson og Joseph Baun- huber til heiðurs. Ég gifti þetta fólk fyrir 5 vikum. Um 300 manns sóttu veizluna og þótti þeim það gaman að heyra til prestsins, sem mælti á ensku •— en aðallega á íslenzku. Hann rakti eitthvað í þróun nútímans heima og hrósaði Vestur-íslend- ingum fyrir dugnað og framsýni í ríki þar sem Socialismi hjálpar ekki einstaklingnum eins og heima. Má geta þessa nokkrum orð- um í sambandi við heimsókn séra Péturs hingað; ennfremur heimsótti hann séra Braga, var Járnviljinn bak við keisarann Sennilega er það í Iran, er kommúnistar voru komnir næst því að hrifsa völdin. Ef keisar- inn hefði dregið það öllu lengur í fyrra að rísa gegn Mossadegh, er næsta líklegt, að þar væri nú komin kommúnistísk stjórn. Kunnugir telja það einnig lík- legt, að Mossadegh hefði orðið hlutskapari, ef hann hefði ekki hrakið Ashraf prinsessu, systur keisarans, í útlegð. Það var fyrst eftir þann atburð, sem keisar- inn sá, að ekki var um annað að gera, en að rísa einbeittlega gegn Mossadegh ella myndi hann sjálfur brátt sviptur völd- unum. Systir hans mun líka hafa hvatt hann óspart til þess. Raunverulega er það hún, sem átti meiri þátt í því en nokkur persóna önnur, að Mossadegh var steypt úr stóli. Ýmsir þeirra, sem kunnugir eru, telja hana sízt valdaminni en sjálfan keis- arann og Zahedi forsætisráð- herra. Það orð hefir lengi farið af keisaranum, Mohamed Reza Pahlevi, að hann væri maður framfarasinnaður og velviljað- ur, en veikgeðja og undanláts- samur. Það sama hefir hins veg- ar ekki verið sagt um systur hans. Hún er að vísu sögð hlynt framförum eins og bróðir henn- ar, en er hins vegar einbeitt og skaphörð í mesta máta. Oft hefir því svo verið að orði komizt, að hún sé járnviljinn á bak við keisarann. Frá fyrstu tíð hafa þau systkinin verið mjög sam- rýmd og hún jafnan ráðið miklu um gerðir bróður síns. Þegar hann hefir verið tregur til stór- ræða, hefir hún hvatt hann ó- spart. Ef keisarinn hefði skap systur sinnar, mætti telja efa- laust, að hann væri nú einvaldur í íran líkt og faðir hans var. eina nótt á Lundum, einnig Ólaf Hallson í Eriksdale og var eina nótt hjá honum. Einnig heim- sótti hann séra Sigurð í Selkirk og skoðaði kirkjuna. Þinn einl. Roberl Jack Eflirmynd föður síns Keisarinn og Ashraf prinsessa eru tvíburar, 35 ára gömul. Keis- arinn er aðeins tveimur mínút- um eldri. Þegar þau fæddust, var faðir þeirra, Reza Shah, liðs- foringi í hernum. Stuttu síðar eða 1921 stóð hann að stjórnar- byltingu og 1925 steypti hann þáverandi keisaraætt úr stóli og tók sér skömmu síðar keisara- nafn. Hann var síðan einvaldur írans í 16 ár, eða til 1941, er vesturveldin hröktu hann frá völdum vegna þess, að hann var talinn hliðhollur Þjóðverjum, en sonur hans varð þá keisari og hefir verið það síðan. Reza Shah var forkur mikill, duglegur, skapstór og einráður. Hann stjórnaði með harðri hendi, svo að fullkomið einveldi var í landinu í stjórnartíð hans. Hann hafði mikinn áhuga fyrir verklegum framförum og kom mörgu góðu til leiðar á því sviði. Þegar sonur hans kom til valda, ásetti hann sér að taka upp lýðræðislegri stjórnarhætti, enda henta þeir skaplyndi hans betur. Raunin hefði sennilega orðið önnur, ef systir hans hefði fengið völdin í hans stað, Hún er á flestan hátt talin eftirmynd föður síns, a. m. k. hvað skap- lyndi snertir. Hún er ágælega gáfuð, en skapbráð og óvægin eins og faðir hennar var. Ráðrík er hún einnig og lætur sig því miklu skipta, hvernig bróðir hennar heldur á stjórnartaum- unum. Ashraf prinsessa hefir haft mikinn áhuga fyrir stjórnmálum síðan á unga aldri. Hún hagaði menntun sinni með tilliti til þess, að hún hefði sem mesta þekkingu á þeim málum. Faðir hennar hafði mikið dálæti á henni og gaf henni kost á að fylgjast með störfum sínum. Ætlun hans var, að hún yrði ráðunautur bróður síns, eins og raun hefir *á orðið, enda taldi Reza Shah syni sínum það helzt til lasts, að hann væri ekki nógu ráðríkur og einbeittur. Leppstjórnin í Asserbaijan Það var fyrst að stríðinu loknu, er það byrjaði að kvisast út, að Ashraf réði miklu um aðgerðir bróður síns. Rúss- ar höfðu þá komið upp lepp- stjórn í nyrzta fylki landsins, Asserbaijan. Ætlunin var ber- sýnilega sú, að skilja það frá íran með tíð og tíma. Það vakti því mikla athygli, þegar keisar- inn gaf franska hernum í desem ber 1946 óvænt þá fyrirskipun, að hann skyldi steypa lepp stjórniyii í Asserbaijan úr stóli og afmá völd hennar með öllu. Talsvert var óttazt, að Rússar myndu ekki þola þetta, en sú varð þó raunin. Síðar hefir það vitnazt, að keisarinn fór hér að ráðum systur sinnar, er jafnan hefir verið eldheitur andstæð- ingur kommúnista. Deilan við Mossadegh Milli Mossadegh og keisara- ættarinnar hafði jafnan verið grunnt á því góða. Sambúðin versnaði þó óðum eftir að Mossa degh tók að hrifsa völdin meira og meira í sínar hendur og hundsa keisarann. Fyrst og fremst var það þó Ashraf prin- sessa, sem tók upp þykkjuna fyrir keisarastólinn. Mossadegh fór ekki heldur dult með það, að hann teldi hana vera and- stæðing sinn. Vorið 1953 krafðist hann þess af keisaranum, að hún færi úr landi. Keisarinn féllst á það að lokum, þrátt fyrir mót- mæli systur sinnar. Þessi at- burður varð hins vegar til þess, að keisarinn ákvað skömmu síð- ar að láta til skarar skríða í deil- unni við Mossadegh, enda mátti það ekki síðar vera. Systir hans mun líka óspart hafa hvatt hann til þess, þótt í fjarlægð væri, og það er talið, að hún hafði ráðið M ESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 10. okt.: Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 12 Islenzk messa kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson Njósnari segir fró WASHINGTON, 14. ágúst:------ Bandaríkin hafa veitt fyrrv. ritara í rússneska sendiráðinu i tókíó, hæli í landi sínu sem pólítískur flóttamaður. Flúði hann úr sendiráðinu í janúar- mánuði s. 1. Bandaríska utanríkisráðuneyt ið segir að hann hafi verið njósn ari fyrir Rússa í Japan í nær þvi 4 ár og var höfuðsmaður í rúss- nesku leynilögreglunni. Sagði Rússinn, að sendiráðið hefði fengið leyndarupplýsingar frá háttsettum mönnum í jap- önsku stjórninni. miklu um það, að fornvini föður hennar, Zahedi hershöfðingja, var falin stjórnarforustan. Sitl af hverju um Ashraf prinsessu Ashraf prinsessa lætur sig að sjálfsögðu fleira varða en stjórn- mál. Kunnugir telja, að hún hafi ráðið mestu um síðara kvonfang bróður síns. Hún kynntist seinni konu keisarans, er hún dvaldi við nám í Sviss, og taldi sig hafa fundið þar rétta konu fyrir bróður sinn. Sjálf er hún tvígift- Fyrri maður hennar var íransk- ur liðsforingi, en sá seinni er Egypti, sem nú er forstjóri flug- félagsins í Iran. Ashraf prinsessa ferðast allmikið erlendis og ger* ir t. d. flest fatakaup sín í París- Hún klæðir sig vel, en þykir þó nota helzt til fyrirferðarmikla hatta. Hún er ekki sérlega fríð sýnum, en ber allmikla persónu og er frjálsleg í framgöngu og skemmtileg í samræðum. Hun hefir stór dökk augu og stóran gáfulegan munn, en hefir að öðru leyti heldur lítið andlit og er lítil vexti. Venjulegast er Ashraf prin- sessa sögð fara seint á fætur og eyða deginum fram að hádegis- verði við að baða sig og nyrta sig til. Venjulega hefir hún ein- hverja gesti við hádegisverðinn og tvisvar í viku býður hun nokkrum helztu vinum til kveld- verðar. Hún krefst þess af gest" um sínum, að þeir mæti stund- víslega og fari á settum tíma- Sjálf er hún mjög stundvís. Hun er lagin á að halda uppi samrseð- um og virðist líka kunna því vel að hafa sem mest orðið. Þeir, sem þekkja til að tjalda- baki í Iran, telja, að Ashraf prin- sessa eigi eftir að koma Þar mjög við sögu og bróðir hennar hafi eina sína helztu og styrk- ustu stoð, þar sem hún er. —TIMINN, 25. ágúst SONGS OF THE NORTH By S. K. HALL. Bac. Mus. JUST PUBLISHED— „ „ Volume III—Ten Icelandic Songs with English Translation ano Piano Accompaniment. Price per copy—S2.00 On Sale by— S. K. HALL, Wynyard, Sask.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.