Lögberg - 21.10.1954, Side 4

Lögberg - 21.10.1954, Side 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 21. OKTÓBER 1954 Lögberg Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Geíið It hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SAKGENT AVENUE, WINNIPEG, MaNITOBA J. T. BECK, Manager Utanáskrlft rltstjórana: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENCE, WINNIPEG, MAN. PHONE 743-411 Verð $5.0U um árið — Borgist fyrirfram The "Lögberg” ia printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Authorized as Seeond Class Mail, Post Office Department, Ottawa Afskipfaleysið kemur mörgum óþyrmilega í koll Það gegnir oft furðu hversu menn sýnast íáta sér á sama standa um alla skapaða hluti milli himins og jarðar, alveg eins og flest, sem gerist á vettvangi hins daglega lífs sé þeim með öllu óviðkomandi; slíkt kæruleysi kemur mörg- um manninum seint og síðar meir oft óþyrmilega í koll; menn láta hið gullna augnablik fljúga framhjá án þess að líta til hægri né vinstri og vakna svo upp við vondan draum. Hinn lítilsigldi maður kýs sér værðarvoðir athafna- leysisins, í stað þess að sá, er skilur ábyrgð sína gagnvart samferðasveit sinni og félagsmálaþroskanum gengur fagn- andi til iðju við uppkomu sólar einráðinn í því, að leysa af hendi nokkurt nytjaverk áður en sól sigi til viðar. — Sléttuborgin okkar er falleg og vingjarnleg borg, er okkur að sjálfsögðu þykir vænt um; en eins og á öllum sviðum mannlegra athafna verður ræktarsemin í verki þyngri á metum en innantómur fagurgali, þó blekt geti hann tíðum og kitlað eyru ótrúlega margra manna. — A miðvikudaginn hinn 27. yfirstandandi mánaðar verða haldnar, svo sem áður hefir verið sagt frá, almennar kosningar til bæjarráðs í þessari borg; kjósa skal borgar- stjóra, bæjarfulltrúa og skólanefndarmenn; hvernig til tekst um slíkt val hvílir eingöngu á herðum kjósenda og hvernig þeir rækja hinar borgaralegu skyldur sínar með því að fjölmenna á kjörstað. Að því var vikið hér í blaðinu í fyrri viku, að hvorki meira né minna en sex frambjóðendur keptu um borgar- stjóraembættið og er með því sett met í stjórnmálasögu borgarinnar; borgarstjóra skal kjósa til tveggja ára; nú- verandi borgarstjóri, Garnet Coulter, leitar kosningar á ný, en hann hefir gegnt þessu vandasama og virðulega embætti öllum öðrum mönnum lengur; hann er maður réttlátur í embættisfærslu og svo háttvís, að af ber; hann hefir með vitsmunafestu sinni og samvinnulipurð skapað í bæjar- félaginu slíkt samræmi, að aðdáun hefir hvarvetna vakið; borgarstjóraskipti ættu því ekki, eins og nú hagar til, að koma til greina. Réttmætt er, og í rauninni sjálfsagt, að það sé að fullu viðurkent, að George Sharpe myndi sóma sér vel í borgar- stjórasessi; hann hefir árum saman átt sæti í bæjarstjórn og reynst í þeim efnum hinn nýtasti maður. Coulter eða Sharpe? Aðrir frambjóðendur koma naumast til greina. En það er engan veginn fullnægjandi að vanda val borgarstjóra, þótt það sé vitaskuld mikilvægt; trausta og hollráða menn þarf engu að síður að velja í hinum ýmissu kjördeildum í bæjarfulltrúastöður og skólanefnd; svo mikið gætir áhrifa íslendinga í 2. kjördeild, að atkvæði þeirra geta í ýmissum tilfellum ráðið allverulega um úrslit; í þessari kjördeild leitar endurkosningar í bæjarstjórn Mrs. Lillian Hallonquist, er reynst hefir stöðu sinn vel vaxin og verðskuldar traust kjósenda; hún hefir sótt bæjarstjórnar- fundi með ágætum og látið velferðarmál bæjarfélagsins mikið til sín taka; hún býður sig fram til tveggja ára tímabils. í 2. kjördeild býður sig fram til eins árs Albert E. Bennett verkfræðingur, góður maður og gegn, er telja má víst, að reynast myndi kjördeildinni hinn ágætasti bæjar- fulltrúi . Nýliði á vettvangi bæjarmálefna, íslenzkur í báðar ættir, og borinn og barnfæddur í Winnipeg, Stefán E. Johnson, leitar kosningar í 2. kjördeild til tveggja ára tíma- bils í bæjarstjórn og var frá framboði hans skýrt í fyrri viku; hin borgaralega kosninganefnd, The Civic Election Committee, hefir lagt blessun sína yfir Mr. Johnson og framboð hans, og vinnur að kosningu hans með oddi og egg svo sem títt er um þá aðra, er hún hefir tekið upp á arma sína. Mr. Johnson er enn maður á bezta aldri og fylginn sér vel. Og hvað ætti þá svo sem að vera því til fyrirstöðu, að honum gæfist kostur á að spreyta sig á sviði opinberra mála? Hvernig til tekst um val í skólanefnd, er engan veginn smávægilegt atriði, því svo er skólakerfi borgarinnar orðið umfangsmikið og flókið viðfangs; það liggur í augum uppi, að engu síður beri að kjósa hina hæfustu menn í skóla- nefnd, en í borgarstjóraembætti og bæjarfulltrúastöður. Síðastliðin tvö ár hefir átt sæti í skólanefnd sem full- trúi 2. kjördeildar G. A. Frith, góður skólamaður, víðsýnn og áhugasamur um mentamál; hann hefir við góðan orðstír skipað sæti í mörgum mikilvægum nefndum innan vébanda skólaráðs; hann er maður kunnur að skyldurækni í störfum og er þess því að vænta að kjósendur í 2. kjördeild stuðli að endurkosningu hans af fremsta megni. Borgin okkar verðskuldar dygga forráðamenn, og það verða kjósendur að hafa í huga, er að kjörborðinu kemur á miðvikudaginn hinn 27. yfirstandandi mánaðar. //ROÐHATTARNIR// Framhald af bls. 1 svo almenn, og næstum hvers- dagsleg, að þau vekja sáralitla undrun og umtal. Um þetta kemst skáldið svo að orði: „Feigðarkúlan blind, þá bálar stríð, beinist jafn að hraustum og að rögum. Stjarna og kross í heiðursteikna hrið, hittir alveg eftir sömu lögum“. Samkvæmt vitnisburði sög- unnar gefa „gljátákn“ þessi takmarkaða þekkingu á mann- kostum manna. Vænn söðull greinir fátt um kosti reið- skjótans. Fáir eru betur búnir en kon- ungar og gæðingar þeirra, og heiðursteikn bera þeir mörg. Vel kunnugur er vitnisburður sög- unnar um það, að höfðingjar þessir voru löngum andlegir vonarpeningar. Þó má líklega telja þessa menn, þá, sem bera roðhatta, og ganga „undir stjörnum“. Og braut þeirra fyrir heimsins aug- um líkist vetrarbrautinni að bjartleika. All-löngum virðast heiðurs- teiknin falla jafnt í skaut mæt- um mönnum, jöfnum sem mis- jöfnum. Væru menn þeir einir mætir, sem örlagadísin hefir skreytt í heimi þessum, væri illt í efni. Mætti þá alt að því segja og ætla, að veröldin væri í manna- hraki. til er stór flokkur manna, sem ekkert koma við þessi mál. Það eru menn, sem þekkja köllun sína og rækja hana af ýtrustu kröftum í kyrþey og ró- semi. Það er ekki talinn neinn „héraðsbrestur“, þegar menn þessir falla frá. Þeir hafa sjald- an nöfn sín skráð meðal þeirra, sem heimurinn dáir, og sem leita sér athvarfs hjá hinum hégóma- sjúka heimsanda. Mennirnir lítt kunnu „standa og brjóta í stór- hríðum ævinnar mannraunaís“. Úr flokki þeirra voru mennirnir, sem hlýddu með gleði á boðskap frelsara síns. Hefði það komið betur í ljós, ef ekki hefði verið hrært í þeim af hinum skraut- borðalögðu höfðingjum, hverra dómur stendur skráður í tuttug- asta og þriðja kapítula Matteus- ar Guðspjalls. Nöfn hinna lágt settu manna þekkjast af fáum. Duft þeirra geymist í gleymdri gröf; þó eru menn þessir mergur og bein flestra framfara. Svo bezt fær skipstjórinn borgið skipi sínu til hafnar, að hásetarnir gæti skyldu sinnar. Fyrir það fær hann að ganga með stjörnur á brjósti og borða- lagða húfu. Altaf verður til nóg af barns- legu hugarfari, sem dáir alt það, sem gengur í augun. Gljátákn öll stanza þó við grafarmunnan; legra komast þau ekki. Og þeir, sem þau báru, gleymast líka. Þannig jafnar dauðinn reikning- inn. „Allir eru fingurnar jafnir, þegar í lófann kemur“. Þegar lesnar eru hinar lipur- legu mannlofsgreinar og kvið- lingar, er eins og bregði fyrir barnsvip. Ritmál þetta minnir á kosningabeitu-erindi. Og tíglar, titlar og stjörnur minna.á hinn gljáandi glysvarning, sem dreift er til sýnis og sölu við glugga verzlunarbúðanna. S. S. C. October 27th . . • RE-ELECT MRS. LILLIAN HALLONQUIST ALDERMAN WARD 2 Mark Your Ballot HALLONQUIST, Lillian 1 s- E- JOHNSON—2nd Choice FOR GOOD CIVIC GOVERNMENT Elect INDEPENDENT Candidafes • for Aldermen—Ward 2 S. E. JOHNSON MRS. HALLONQUIST One-Year Term A. E. BENNETT • for School Trustees—Ward 2 ANDY TURPIE G. A. FRITH Endorsed by ihe CIVIC ELECTION COMMITTEE Vote Wednesday, October 27, 10 a.m.—9 p.m. Winnipeg þarfnast nú þegar virkra ATHAFNA! vegna djarfmannlegrar forustu, er Winnipeg krefst SHARPE ungan áhrifamann með 8 ára reynslu í meðferð bæjarmála Kjördagur, miðvikudagur, 27. október GREIÐIÐ ÞANNIG ATKVÆÐI SHARPE, GEORGE E. 1 Kosningaskrifslofa Sími: 92-2229

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.