Lögberg - 11.11.1954, Blaðsíða 6

Lögberg - 11.11.1954, Blaðsíða 6
6 ......' ' GUÐRÚN FRÁ LUNDI: ! DALALÍF ^— —r „En þú gætir séð hann oft, og það skyldi fara vel um hann“, sagði Anna og svipur hennar dapraðist. Handleggirnir röknuðu utan af hálsinum á Þóru. Henni létti ósegjanlega mikið við það. Hún stóð upp, því að hér var ekki hægt að sitja lengur. Hún óskaði, að hún væri- komin heim. Ef hún hefði látið skíra hann heima, eins og hin börnin, þá hefði þetta líklega aldrei komið fyrir. Hún sá gleðiblikið dvína í augum Önnu, en vonbrigðasvip bregða fyrir í staðinn. Þá var það Jón, sem kom henni til hjálpar. Líklega hafði hann verið einhvers staðar þar, sem hann hafði heyrt á tal þeirra. Hann lagði handlegginn utan um konu sína og kyssti hana á kinnina. / „Við skulum ekki tala meira um þetta, góða mín“, sagði hann. „Það er engin von til þess að hún láti drenginn verða jeftir. Ég man, að mamma sáluga sagði það oft, að það væri ekki eðlilegt, að nokkur móðir gæti látið frá sér barnið sitt, ef hún hefði nokkur ráð með að hafa það hjá sér. Ef við tökum fósturbarn, þá er bezt, að það sé foreldralaust. En svo náttúrlega eignumst við bráðum svolítinn barnunga. Það er allt of snemmt, að örvænta um það, meðan þú ert ekki orðin þrítug“. Anna leit á sofandi barnið í rúminu. „Hann er svo laglegur, og hárið á honum er alveg eins og á honum Jakobi mínum“, sagði hún döpur. „Það verður rautt með tímanum eins og á Friðriki. Hann var svona bjarthærður á fyrsta árinu“, flýtti Þóra sér að segja. Aldrei hafði henni dottið í hug, að hún myndi grípa til rauða hársins eins og hjálparhríslu í svimandi fallhæð. Sigurður beið úti eftir konu sinni og börnum. Hann var ekkert hissa, þó að hún kæmi ekki strax. En hún kom fyrr en hann átti von á, og rétti honum sama böggulinn, sem hann hafði borið til kirkjunnar. Hann átti svo sem að fá að halda á honum heim aftur. Ekki var þá dálætið svo mikið hjá henni á þessum Nautaflata- hjónum, að hún tryði þeim fyrir krakkanum. Þó færi ólíkt betur um hann hjá þeim en heima. Hann var nú farinn að líta ná- grannana öðrum augum en fyrsta árið. En það tjáði lítið að tala um það. Hún varð að fá að ráða, konan sú, ef vel átti að fara. Hann kvaddi því, og fór með strákangann í fanginu. Þóra kvaddi önnu í bæjardyrunum. Hún var ekki vel ánægð á svipinn. Það eru engin eftirlætisbörn, þeagr þau fá ekki óskir sínar uppfylltar. Þóra gat ekki ásakað sjálfa sig, en samt þótti henni það leiðinlegt. Jón fylgdi henni út í traðirnar, þar sem riðið var úr hlaði. Það var alsiða að fylgjast með góðum gestum og bíða, meðan þeir stigu á bak og óska þeim góðrar ferðar. En þó að Þóra og börn hennar væru gangandi, var víst ekkert á móti því að fylgja þeim úr garði. Þóra rétti honum hendina í kveðjuskyni. Hann tók þétt í hönd henni og lagði vinstri lófann yfir handarbakið. Hún dró ,ekki til sín höndina, jafnvel þótt hún þættist vita, að eiginkonan stæði í dyrunum og horfði á þau, og sunnar á hlaðinu var Ketil- ríður á tali við gamla grannkonu sína utan úr dalnum. Varla mundi það fara fram hjá henni. „Þú mátt ekki álíta“, sagði hún innilega, „að ég trúi ykkur ekki fyrir barninu. Þvert á móti vildi ég hvergi eiga börnin mín annars staðar en hérna. En það hefði orðið þung ganga fyrir mig heim, ef hann hefði ekki verið með“. Hann þrýsti lófanum fastar að hönd hennar og sagði: „Ég skil þig, vinkona. Ég held, að ég hafi aldrei séð það fyrr en í dag, hversu sterk og mikil kona þú ert“. Hún var allt í einu orðin eitthvað svo meyr og viðkvæm. Líklega var það þetta hlýja handaband, sem kom henni til að segja það, sem hana iðraði. „Já, ég vona, að þú skiljir mig. Börnin eru mér allt“, sagði hún. „En ef svo færi, að ég yrði tekin frá þeim, ætla ég að biðja þig að reynast þeim vel. Þá verða þau algerlega munaðarlaus“. „Auðvitað tek ég þau öll, því að varla verða þau orðin svo mörg, að þau komist ekki fyrir í bænum“, sagði hann og var nú orðinn kátur og gáskafullur eins og hann var vanur. „En mér þykir ólíklegt, að þú verðir á undan. Trúlegra þætti mér, að ég yrði búinn að hálsbrjóta mig áður af einhverri ótemjunni, þegar ég hef fengið mér heldur mikið „neðan í því“.“ „Það verður nú aldrei, að þú sitjir ekki hest“, sagði hún hressari og sleit handabandið. Krakkarnir kvöddu og Þóra hraðaði sér á eftir manni sínum, sem var kominn spölkorn út fyrir túnið. Þá sá hún fljótlega, hvað sér hafði orðið á. Hún hafði óviljandi flett ofan af því, sem hún hafði alltaf reynt að hylja. Játað það, að maður sinn væri börnun- um ekkert. Það var ekki laust við, að henni fyndist hún hafa gert honum rangt til. Hver gat vitað það, hvernig honum færist við börnin, ef hennar vissti við? Björn vakti hana af þessu hugsanagrufli. „Ætlar hann að taka okkur öll til sín?“ spurði hann áfjáður. „Ætl^r hann að taka okkur öll til sín?“ bergmálaði Friðirk. „Betra er belgur en barn“, hugsaði Þóra. „Nei, nei, hann var bara að segja það að gamni sínu. Þið skuluð ekkert tala um það, svo að pabbi ykkar heyri“. „Ég heyrði hann segja það“, sagði Björn. „Ég heyrði hann líka segja það“, staglaði Friðrik. Þau náðu Sigurði við merkjalækinn. Þóra bauð Sigurði að bera drenginn ögn, en hann neitaði því stuttlega. Eftir það var ekkert talað nema það, sem bræðurnir töluðu um sín á milli. Þeir höfðu séð margt þennan dag, og þurftu að fá útskýringar á því hjá mÖmmu sinni. Sigurður lagði drenginn hálf hranalega frá sér í rúmið, þegar heim kom. „Það er skárra hlassið hann er orðinn, þessi strákur“, sagði hann og blés hálf þreytulega. „Ójá, hann sígur þó nokkuð í“, sagði móðir hans dálítið hreykin. „Það hefði sparað okkur að taka kaupakonu í sumar, ef þú hefðir þegið það, að hann yrði eftir“, sagði hann eftir að hafa ranglað aftur og fram um gólfið dágóða stund. „Við erum ekki svo fátæk ennþá, að við getum ekki borgað LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 11. NÓVEMBER 1954 kaupakonu“7 sagði Þóra. Hún hafði átt von á þessu. „Það þarf nú líka að gera fleira í bænum en hugsa um hann“. „Það man ég, að fátækar konur þarna úti á Ströndinni komu yngsta krakkanum fyrir um sláttinn, svo að þær gætu gengið út“, nöldraði Sigurður. „Það kemur mér ekkert við, hvað þær hafa orðið að gera“, sagði hún. „Ég veit bara, að ég geri það ekki á meðan ég hef önnur ráð. Mér hefði sjálfsagt ekki orðið svefnsamt í nótt, með brjóstin full af mjólk, en hugsa til hans grátandi hjá ókunnugum, alltaf að leita að brjóstinu“. „O, ég held hann hefði ekki skælt mikið“, sagði Sigurður. „Ég held, að Önnu hafi bara mislíkað það“, bætti hann við. „Það getur verið^, sagði Þóra. „En hitt veit ég líka, að hún hefði fljótlega orðið leið á að hugsa um hann, ef hann hefði orðið óspakur“. Svo bætti hún við, og talaði talsvert hærra: „Ég sé ekki, að það sé mín skylda, að láta hana hafa barn. Svo þykir líklegt, að hjón, sem eru búin að eiga þrjú börn, geti bætt við því fjórða og fimmta“. „Það er nú búið að sýna sig, hvernig það gengur“, sagði Sigurður og var nú orðinn ánægður á svipinn. „Þau fæðast veik og fara strax í gröfina. Það er sjálfsagt henni að kenna, þessum pappírsbúk. Þetta er engin manneskja. Ég get ekki láð Jóni það, þó að hann skrölti eitthvað utan hjá“. „Hann gerir það víst ekki, býst ég við“, sagði Þóra alveg hissa. Svona var Sigurður óvanur að tala. Nú hló hann bara: „Þú ættir að heyra hvað sjómennirnir segja. En ég hef ekki viljað segja þér það. Þig tekur alltaf svo sárt til hans“. „Því hefur lengi verið við brugðið, sjómannaskrafinu. Jón hefur heldur aldrei farið varhluta af slúðrinu“, sagði Þóra og fór að klæða sig úr sparifötunum, og sneri sér undan birtunni, svo að Sigurður sæi ekki hvað hún var rauð í framan. Hún fann það, þó að hún sæi það ekki. „Nú, jæja“, sagði Sigurður, og var nú allur kominn að sínum venjulega verkahring. „Gott væri að fá eitthvað að borða. Ég þarf að fara að bunka torfinu senni partinn. „Geturðu nú ekki unnt þér hvíldar einn dag?“ sagði Þóra ánægð yfir því, að hætt var að minnast á sjómannaskrafið. „Þú getur aldrei verið öðruvísi en þrælandi“. „Ojæja, lífið heimtar þetta“, sagði hann. „Þær eru víst ekki margar, hvíldarstundirnar þínar heldur, og samt tímirðu ekki að sjá af einum krakkanna; það hefði þó verið léttir fyrir þig“. „Það munar ekki mikið um hann, elsku stúfinn minn“, sagði hún í gæluróm. Þeir foreldrar, sem telja eftir sér að hugsa um börnin sín, þurfa ekki að vonast eftir miklu af þeim, þegar þau eru sjálf orðin vesalingar“. „Það er bezt, að vera ekki að hugsa svo langt fram í tímann“, sagði hann og fór að klæða sig úr sparifötunum. Næsta sunnudag reið Þóra fram að Nautaflötum. Hún hafði verið hálfeyðilögð yfir því alla vikuna, að hugsa til þess, að Anna væri óánægð við sig. En nú lá prýðilega á Önnu. Hún minntist ekki á drenginn. Allur hugur hennar var bundinn við ákaflega fallegt slifsi, sem maður hennar hafði gefið henni kvöldið áður. Slíkur dýrgripur var fáséður. En hún trúði Þóru fyrir því, að hann hefði verið óskemmtilega mikið kenndur, en hún hefði mátt til með að fyrir- gefa honum það, fyrst að hann hefði komið með þetta slifsi. Þóra reið heim í ágætu skapi. I seinustu viku af Þorra fór að snjóa enn á ný. Það hlóð niður nótt og dag. Alltaf kom nýr snjór áður en hinn gat sigið. Enginn maður sást á ferð öðruvísi en á skíðum. Það voru byggð löng snjó- göng frá öllum dyrum, sem um þurfti að ganga, og upp úr göng- unum voru margar tröppur. Stórir flekar voru lagðir yfir vatns- bólin og fötunum rennt niður í þau með kaðalspotta eða snæri, sem bundið var um hölduna. Jakob og Dí^ voru allan daginn úti á skíðum. Jakob sagði, að Dísa yrði aldrei skíðakona, hún væri alltaf á rassinum, ef ein- hver halli yrði á veginum. Sjálfur gat hann rennt sér hæst ofan úr fjalli og niður að á. Dísa sagði, að það væri bara af því að hann ætti svo góð skíði. Svo kom allt í einu hlákubloti, svo að snjórinn seig saman, og eftir eina frostnótt var skíðafærið horfið, en komin glerhál skán ofan á fönnina. En þá voru teknir út dálitlir sleðar. Á þeim var gaman að renna sér. Rétt á eftir þiðnaði aftur og gerði logndrífu. Þá var eiginlega ekkert hægt að gera sér til gamans, kvartaði Jakob. Þórður var svo kátur um þessar mundir, að hann tók þátt í leikjum krakkanna, þó að nóg væri annað að gera. Hann sýndi þeim hvernig hægt væri að hnoða snjóbolta, og sagði þeim til við að hlaða kerlingu. Jakobi fannst skemmtilegra að eiga við boltana. Hann fór kippkorn upp í fjallið og lét snjóbolta velta niður á jafn- sléttu. Þá voru þeir orðnir að stærðar snjóstykki. Þetta var reglu- lega gaman. Grundirnar fyrir utan túnið voru orðnar þéttsettar af snjókúlum. Eitt kvöldið kom Björn litli í Hvammi. Hann varð hissa á þessu. „Hver hefur kennt þér þetta?“ spurði hann. „Þórður gerði það“, svaraði Jakob. „Ég skal svei mér gera þetta, þegar ég kem heim“, sagði Björn. Hann afhenti Jakobi bréf til föður hans og hélt svo heim- leiðis. Hann mátti aldrei vera að því að stanza, þó að hann langaði til þess, því að margt átti Jakob, sem gaman var að sjá og hand- leika. Hann átti skauta, og hann átti sltíði. Það voru óþekktir gripir í eigu Hvammsbræðra. Jakob hafði einu sinni gefið þeim lítinn sleða. Það var það eina, sem þeir gátu skempit sér við. En að búa til svona snjóbolta það var vel hægt, enda voru nokkrir komnir á mýrina fyrir neðan túnið næsta morgun. „Hvaða uppátæki er nú þetta?“ sagði Sigurður við syni sína. „Þið verðið víst þokkalegir úr þessu. Hvaða börn, nema þið, skyldu leika sér svona?“ Björn var fljótur til svars: „ Jakob á Nautaflötum gerir svona“. Það var ólíklegt, að hann væri að finna að því, sem Jakob gerði. „Nú, einmitt það“, sagði Sigurður. „Ég hélt, að mamma ykkar hefði annað að gera en þurrka fötin ykkar, þegar þið atist svona í snjónum. En það er sjálfsagt ágætt, fyrst það er þaðan upprunnið“. Hann gat ekki losnað við þá þykkju, sem hann fann til yfir þeirri aðdáun, sem kona hans hafði á ölld, er tilheyrði því heimili. Sífellt var verið að áminna drengina um, að líkjast Jakobi, því að hann væri svo góður. Ef drengurinn kom, sem sjaldan var, tók hún honum eins og hann væri kóngssonur. Björn litli hafði fáar frístundir. Hann varð að vinna það, sem litlu kraftarnir leyfðu, bæði utan bæjar og innan; en samt fjölgaði snjóboltunum í mýrinni. Eitt kvöldið í rökkrinu komu synir Erlendar á Hóli í forvitnisferð. Þeir höfðu séð, að eitthvað nýstár- legt var við .mýrina; og þeir ráðgerðu að koma svona löguðu i framkvæmd hjá sér. En Sigurður var alltaf úrillur út í þennan þarflausa leik sona sinna. „Geturðu ekki látið þá hjálpa þér eitthvað, heldur en að þeir láti svona með þessa snjódrymbi?“ spurði hann konu sína. Hann þóttist vita, að nóg væri til að gera, enginn kvenmaður á heimilinu, utan hún, sem var alveg komin að því að leggjast á sæng að fimmta barninu. „Þær eru ekki margar frístundirnar þeirra. Þeir mega eiga þessa“, svaraði hún venjulega. Nokkrum dögum seinna var Björn sendur fram á merki eftir ánum. Þeim hafði verið leyft að hlaupa fram grundirnar til að viðra sig. En nú langaði Björn óumræðilega mikið til að sjá hvað boltarnir væru orðnir margir hjá Jakobi. Hann hvatti því sporið. Það var ekki sérlega langt fram á grundirnar. Hann hljóp fram eftir, og gleymdi því alveg, að annað hnéð var út úr buxunum, þar til hann sá, hvað Jakob var vel uppábúinn, í kápu og háum snjósokkum. En boltarnir voru orðnir fjölda margir. Allt var svo margt og stórt á Nautaflötum, hugsaði drengurinn. Það voru fleirf en þau Jakob og Dísa þarna frammi á grundinni. Jón hreppstjori var þar sjálfur. Hann hafði látið það eftir syni sínum, að velta tveim snjóboltum alla leið niður að á. Þar sátu þeir eins og stærðar heysátur, hvítar að lit. Jakob var himinlifandi yfir þessu. Björn var alveg hissa. Hvað skyldi faðir hans segja, ef hann færi að biðja hann að velta snjóboltum? hugsaði hann. Jakob átti víst miklu betri pabba en hann. Hann hafði líka tvo vinnumenn, og þurfti því ekki að vinna eins mikið og pabbi hans. Jakob þurfti heldur aldrei að gefa kúnum og moka flórinn, en það var vanaverk Björns litla. Hann átti miklu betra en hann, það hafði hann séð fyrir löngu síðan. Björn var að snúa heim á leið, þegar Jón kom til þeirra. „Þú hlýtur að geta sagt okkur einhverjar fréttir fyrst þu komst?“ sagði Jón. „Ég átti ekkert erindi“, sagði Björn hálf vandræðalegur yfir því, hvernig hnéð leit út. „Mig langaði bara’ til að sjá, hvað boltarnir væru orðnir margir. En ég segi engar fréttir, nema nú er kominn lítill bróðir hjá okkur“. „Það eru nú góðar fréttir. Þótti þér ekki vænt um það?“ „O-nei, mamma er í rúminu. Hún er víst eitthvað lasin. Jóhanna yfirsetukona er hjá okkur núna. Hún veit ekkert og finnur ekkert, er alltaf að kalla á mig og spyrja mig eftir, hvar hlutir séu. Hún getur ekki einu sinni fundið saltið“, sagði dreng- urinn dapurlega. „En er ekki litli bróðir ákaflega fallegur og skemmtilegur?1 spurði Jón. „Nei, mér finnst hann of lítill. Guð hefði átt að hafa hann stærri og fallegri, fyrst hann fór að gefa mömmu hann. En hún segir að hann fríkki“. Þá fór Jón að hlæja svo mikið, að drengurinn hélt, að hann hefði sagt einhverja vitleysu, og kvaddi því og hljóp heim á leið. Það var engin skepna sjáanleg á merkjaholtinu, þar sem hann hafði skilið við þær. Þær voru víst allar komnar heim. Nú matti hann eiga von á ákúrum hjá föður sínum. Hann hljóp enn meira. En ærnar voru víst allar komnar inn í hús. Faðir hans var við ærhúsin. Björn fór nefsneiðing fyrir húsin, svo að hann sæi sig síður, og hraðaði sér heim í skjólið til mömmu sinnar. „Það var gott að þú komst“, sagði hún, þegar hann kom inn úr dyrunum. „Bogi er alltaf að skæla. Friðrik getur ekki fundið pelann hans, og hann er orðinn syfjaður“. Bogi var nú orðinn tvævetur kútur, sem stóð volandi við rúm- stokk móður sinnar. ann hafði þvegið sér í framan úr tárum sínum með hálfóhreinum höndunum, og andlitið leit ekki sem bezt út. Björn var fljótur að finna pelann og setja mjólk á hann. Þar næst var að finna vatn og þurrku og þvo andlitið. Ekki jókst ánægjan við það. En pelinn bætti það allt. Björn settist á koffort við rúmstokkinn hjá mömmu sinni og raulaði við bróður sinn þangað til hann var sofnaður. Hann var alvanur því að svæfa hann. Þá fór Björn að segja mömmu sinni frá því, sem hann hafði séð frammi á grundinni. Hann talaði samt ekkert um, að Jón hefði hlegið að sér. Hann var hálfhræddur um, að það hefðu verið' buxurnar, sem hann hló að, og ímyndaði sér, að mömmu sinni leiddist það, að hann skyldi fara svona illa útlítandi á aðra bæi- „Heldurðu að pabbi gerði þetta fyrir okkur, ef hann hefði vinnumenn, sem gerðu í húsunum fyrir hann, að velta snjo- boltum, eins og Jón gerir fyrir Jakob?“ spurði hann að lokinni frásögn sinni. „Ekki get ég nú ímyndað mér það?í‘ sagði móðir hans. „Ég er ákaflega hrædd um, að hann gerði eitthvað annað áður“. „Jón er víst barngóður“, hélt drengurinn áfram. „Hann var að tala um litla bróður minn“. „Hvað var hann að tala um hann?“ spurði Þóra, hálfkvíðandi því, að þau færu enn á ný að tala um, að hún léti þeim eftir barn til uppeldis. „Hann var bara að spyrja eftir því, hvort hann væri ekki fallegur, og hvort að mér þætti ekki vænt um hann“. „Það er mikið, að þú ert kominn“, sagði Sigurður við son sinn, þegar hann kom inn úr húsunum. „Hvað átti það að þýða að svíkjast fram að Nautaflötum, þegar þú áttir að ná ánum. Reyndar komu þær sjálfar heim, en það er sjálfsagt nóg til handa þér að gera annað en að strjúka á bæi“. Þóra svaraði fyrir son sinn: „Hann langaði til að sjá, hvað Jakob væri búinn að hnoða marga snjóbolta“. „Jú, það er ekki verið að telja eftir krókana, þegar það er að fara fyrir sjálft sig, þetta dót. Hann lætur allt vitið í þessa fjandans vitleysu. Gaztu þá ekki látið hann sækja fötin um leið? „Því var nú ver, að ég vissi ekkert um ferðalag hans , sagði Þóra. „Nei, það var ekki einu sinni hægt að hafa svo mikið gagn af rápinu í honum“, sagði Sigurður ergilegur. Anna Friðriksdóttir var vön að sauma smábarnafötin fyrir Þóru. En í þetta sinn hafði hún ekki komið þeim til hennar nogn snemma. „Ég veit bara ekki hvernig við förum með litla manninn , sagði ljósmóðirin. „Nú þarf bráðum að fara að skipta á honum • „Ég get hlaupið aftur“, sagði Björn litli. „Þú ætlaðir að fara að þvo gólfið“, sagði mamma hans. „Ætli ég verði þá ekki að skreppa fram eftir, þegar ég er búinn að éta“, sagði Sigurður.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.