Lögberg - 11.11.1954, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 11. NÓVEMBER 1954
Úr borg og bygð
Frá Laugardagsskólanum
Aðsókn að Laugardagsskólan-
um hefur enn sem komið er
reynzt átakanlega lítil, aðeins
3 eða 4 heimili sent börn sín í
skólann. Er það svo aumt, að
raun er að þurfa að segja frá því.
En vonandi þó, að fjölgi veru-
lega í skólanum næsta laugar-
dag eða laugardaga.
Hentugar bækur hafa fengizt
til kennslunnar, og fá börnin
þær, þegar í • skólann kemur.
Islenzkukennslan fer fram,
svo sem áður hefur verið aug-
lýst, á laugardagsmorgna í neðri
sal Sambandskirkjunnar við
Banning og hefst kl. 10.30.
Á föstudaginn, 5. nóv. voru
gefin saman í hjónaband að
heimili Mr. og Mrs. Baldur
Björnson, 300 Assiniboine Ave.,
þau Kristján Friðrik Petersön,
slökkviliðsmaður hér í borginni,
og Marian Louise Malnyk ung-
frú. Foreldrar brúðgumans eru
þau Halldóra og Vilhjálmur sál.
Peterson (frá Stóru-Borg) fyrr-
um kaupmaður á Baldur. Séra
Valdimar J. Eylands fram-
kvæmdi hjónavígsluna.
10 DAYS
FREE TRIAL
on a
• Bed making is easy. Only
one lightweight blanket.
• Double or Single con-
trol models for adjust-
able temperature.
• Choice of rose, green,
blue and red.
• Unconditionally guaran-
teed for one year.
• Costs abóut one cent a
night for perfect sleep.
Double Bed Size $00-95
with Single Control
Double Bed Size $y| g.95
with Two Controls ** O
Available on Easy Terms
CITY HYORO
PORTAGE AVENUE
(East of Kennedy)
Phone 96-8201
— HAUSTSALA —
Hin árlega Haustsala Kven-
félags Fyrsta lúterska safnaðar
í Winnipeg verður haldin í
neðri sal kirkjunnar á miðviku-
daginn 17. nóvember frá kl. 2 til
5 og 7.30 til 10 e. h.
Forseti, Mrs. Sigurjón Sigurd-
son, ásamt vara-forseta Mrs. A.
S. Bardal og heiðursforseta Mrs.
O. Stephensen, taka á móti
gestum.
Söluborðin eru í umsjá for-
stöðukvenna deilda: Mrs. S. O.
Bjerring, Mrs. S. Sigurdson,
Mrs. G. H. Nicholson og Mrs. S.
Björnson; en kaffiborðin annast
þær Mrs. F. Stephenson og Mrs.
C. Olafson.
Mrs. D. J. Jónasson og Mrs.
Fred Bjarnason selja heima-
bakað kaffibrauð og annað góð-
gæti, en kjötmat ánnast þær
Mrs. S. O. Bjerring og Mrs.
Gunnl. Jóhannson. Mrs. J. S.
Gillies og Mrs. F. Dalman hafa
eftirlit með “White Elephant
table” og “Surprise packages.”
“HOBBY SHOW”, sýnishorn
af allslags handavinnu og sauma
skap, er meðlimir og aðstoðar-
konur hafa unnið í frístundum,
verður til aukaskemtunar. —
Um kvöldið kl. 8.30 fer fram
stutt prógram: Violin Solo: Mrs.
Doreen Breckman og Electric
Guitar Solo: Ronald Halldorson;
einnig örstutt erindi um
“Hobbies” flutt á ensku af Mrs.
Albert Wathne.
Konurnar mælast til að sem
flestir vinir og velvildarmenn
heimsæki Kvenfélagið 17. nóv-
ember. Ýmsir smámunir, heppi-
legir til jólagjafa, verða á boð-
stólum, og allir éru boðnir og
velkomnir.
☆
Clubs hold joint meeting
A joint meeting of the Ice-
landic National League, the
Icelandic Canadian Club and the
Leif Eiríksson Club was held
on Monday evening, November
lst, at the Clifford School. While
held primarily to introduce new
members to the Leif Eiríksson
Club, it also allowed the clubs
to get better acquainted with
each other. There was a good
crowd present.
Art Swainson, the new Presi-
dent of the Leif Eiríksson Club
was the Chairman. A fairly re-
cent film entitled “Iceland
To-day” was shown. A prize-
winning Canadian film: The
Seasons, was also shown. This
was a colour film in which,
against a musical background,
was depicted the effect of the
changing seasons on the
weather, landscape and wild
life around Georgian Bay. It
was an exellent film. Professor
F. Guðmundsson showed some
color slides of Southern Iceland
and commented thereon. Greet-
ings were brought by Dr.
Eylands and Judge Lindal to the
group. Refreshments and fellow-
ship concluded a very enjoyable
evening.
☆
Mr. og Mrs. J. B. Vopni frá
Prince Albert, Sask., hafa dvalið
hér í borginni nálægt þriggja
vikna tíma í heimsókn til ætt-
ingja og annara vina.
Qud ilo.mattiu.lz:
^JahUuj, íloúi
IN
Canada
Bókin er 283 blaðsíður
að stærð, skreytt 23
fögrum og sögulegum
myndum. Hér er um
að ræða fyrir margra
hluta sakir sérkenni-
lega og merka bók, er
fjallar um frumbyggjalíf og merka samtíðarmenn í Riverton
og grend, svo sem Dr. S. O. Thompson; atvinnuhætti til
lands og fiskveiðar á Winnipegvatni. Höfundur bókarinnar
er af úkraníuættum og er mikill vinur íslenzka mann-
félagsins í Norður-Nýja-íslandi. — Hann veitir forstöðu
Sandy Bar hótelinu í Riverton.
Bók þessi, sem prentuð er hjá The Columbia Press Limited,
kostar í kápu $4.00, en í bandi $5.00.
Pantanir ásamt andvirði, sendist
MR. GUS ROMANIUK, Riverion, Man.
Þegar Páll Guðmundsson
fékk nýju lennurnar
Nú er Páll með nýjan kjaft,
— nú er karlinn sjáandi; —
skáldið lengi hefir haft
hann í slæmu „ástandi“.
Lúðvík Kristjánsson
☆
— Silfurbrúðkaup —
Tuttugu og fimm ára giftingar
afmæli tveggja hjóna í Mikley
voru haldin hátíðleg á laugar-
dagskveldið í samkomuhúsi
byggðarinnar, þeirra Mr. og Mrs.
Sigurgeir Jónsson og Mr. og Mrs.
Brynjólfur Doll. Eru þessi hjón
bæði mjög vinsæl í héraði.
☆
Dr. og Mrs. S. E. Björnsson,
eru nýflutt til bæjarins. Hafa
þau búið í Miniota um all-langt
skeið. Heimili þeirra verður að
Dorchester Ave.
☆
Séra K. K. Ólafsson, fyrrum
forseti Hins evangeliska lúterska
kirkjufélags Islendinga í Vestur-
heimi, er nú í þann veginn að
láta af. fastri prestsþjónustu;
hann er kunnur hæfileikamaður,
málsnjall og fylginn sér. Hann
hefir nú skipt um bústað og er
hið nýja heimilisfang hans að
1608 Liberty Ave., Beloit, Wis..
U. S. A.
☆
The “Evening Alliance,”
ladie’s, of the First Federated
(Unitarian) church, are holding
their Annual fall, Tea and
Coffee party on Saturday
November 13th, from 2.30—5.30
p.m. in the church parlors,
corner of Banning and Sargent.
Guests will be received by
Miss Elsa Pétursson president,
and Mrs. Wm. Suffka, General
Convener.
Other Conveners are, Tea
table—Miss Fanny Sigurdson,
Homecooking—Mrs. J. Árnason.
Christmas cards will be on
display. There will also be a
“White Elephant” table.
☆
Síðastliðinn laugardag voru
gefin saman í hjónaband í
kirkju lúterska safnaðarins á
Gimli þau Miss June Dalman og
Mr. Hermann Árnason rafvirki;
brúðurin er dóttir þeirra Mr. og
Mrs. Earl Dalman í Riverton,
en brúðguminn er sonur þeirra
Mr. og Mrs. W. J. Árnason á
Gimli. Séra H. S. Sigmar fram-
kvæmdi hjónavígsluathöfnina.
Um kvöldið var setin vegleg og
fjölmenn brúðkaupsveizla í
samkomuhúsi Riverton-bæjar,
en í þeim bæ er brúðurin fædd
og uppalin. — Framtíðarheimili
ungu hjónanna verður í Winni-
Peg.
☆
Á sunnudagsmorguninn var
lézt að heimili sínu í Selkirk
einn hinna ágætustu borgara
bæjarins, Mr. Runólfur Benson
kaupmaður 75 ára að aldri, ætt-
aður frá Ljótsstöðum í Vopna-
firði; hann lætur eftir sig sjö
mannvænleg börn; einnig lifa
hann tvær systur og einn bróðir.
Útför Mr. Benson’s var gerð frá
kirkju Selkirk-safnaðar í gær
að viðstöddu miklu fjölmenni.
Séra Sigurður Ólafsson jarð-
söng.
Hinna mætu Benson-hjóna
verður frekar minst í Lögbergi
í næstu viku.
• ☆
Mr. og Mrs. A. J. Thromberg
frá Hay River, Northwest Terri-
tories, eru nýlega komin til
borgarinnar og munu dveljast
hér fram eftir vetri. Mr. Throm-
berg leit sem snöggvast inn á
skrifstofuna til að heilsa upp á
ritstjórann og greiða áskriftar-
gjald sitt við blaðið; hann kvað
þau hjón einkum hingað komin
til að stytta fyrir sér veturinn;
fátt sagði Mr. Thromberg að
væri um íslendinga að Hay
River, þó væri þar, auk þeirra,
einn íslendingur, Sigurður Sig-
urðsson, er ræki þar matvöru-
verzlun.
☆
Séra Robert Jack frá Árborg
var staddur í borginni á mánu-
daginn var.
Síðastliðinn mánudag lögðu af
stað til Islands Þorsteinn Þor-
steinsson óðalsbóndi á Húsafelli
í Borgarfirði hinum meiri, Þor-
steinn Hjálmarsson sundkennari
úr Reykjavík og Ingibjörg
Guðmundsdóttir úr Hafnarfirði,
systir Páls Johnson leikhús-
stjóra í St. Vital. Fólk þetta
hafði dvalist hér um hríð í heim-
sókn til ættingja og annara vina.
☆
Hinn 10. október síðastliðinn
lézt í Calgary Indriði Reinholt
byggingameistari 92 ára að
aldri, fæddur á Akureyri 16.
september 1862. Hann var frá-
bær athafnamaður og drengur
góður. 1 næstu viku munu birt-
ast nokkur minningarorð um
Indriða hér í blaðinu.
☆
Dr. og Mrs. William Ewart
frá Pontiex, Sask., ér dvalið
hafa hér. í þriggja daga heim-
sókn hjá foreldrum Mrs. Ewart,
Mr. og Mrs. Lúðvík Kristjáns-
son, Banning St., lögðu af stað
heimleiðis í gær.
☆
Frú Kristín Pálsson frá Lund-
ar hefir dvalið í borginni nokkra
undanfara daga.
Skagfirzk
vesfurheimska
Man ég feðrafoldu
og feðra minna ljóð;
man ég hvar í moldu
mitt hvílir hold og blóð.
Man ég fjöll og fossa
og fjólum skreyttan lund;
man ég meyjarkossa
og marga gleðistund.
Forna, fagra saga
með feðrahug og dáð;
elskum alla daga
og alt, sem þér er háð.
Ættarland, vor eyja,
vort auðdauðlega mál.
Baldur, Freyr og Freyja
þér friðar drekki skál.
Vonum mínum velja
vildi ég mætti beð.
Fjólur fríðar telja
og framtíð þeirra séð.
Ég vildi ég mætti vaka
hjá vinum langa stund,
og svo með Ásum aka
í eilífværan blund.
Albert frá Tjörn
Brosmildi . . .
Framhald af bls. 4
þingsins hönd annast eftirlit
með starfi ríkisstjórnarinnar. Þá
skal hún ákveða, hvort hafin
skuli styrjöld eða ekki, þegar
slíkar ákvarðanir þarf að taka.
Formaður þessarar nefndar
var kjörinn Li-Shao-Chi, en
hann er talinn sá af foringjum
kínverskra kommúnista, sem
er eindregnast fylgjandi nánu
samstarfi við Rússa. Hann hefir
lengi dvalið í Moskvu. Árið 1948
vakti hann athygli á sér fyrir
að fordæma Tito.
Þessir fjórir menn, Mao Tse-
Tung (61 árs) Chu Teh (67 ára),
Chou En-lai (56 ára) og Liu
Shao-Chi (56 ára) eru nú taldir
valdamestu menn Kína. Þeir
mynda í sameiningu æðstu
stjórnarnefnd Kínaveldis.
Eftir kosningu og skipun
þessara manna í umræddar
trúnaðarstöður, hefir talsvert
verið um það rætt, hvort þær
bæru merki þess, að kínverskir
kommúnistar hölluðust að aukn-
um tengslum við Rússa eða
ekki. Dómar um þetta eru mjög
á reiki og verður því lítið á
þeim byggt. Sama er og að segja
um almennt álit á því, hvort
Kínverjar muni taka upp nán-
ari samvinnu við Rússa. Eftir
Kínaförina virðist t. d. Attlee
hallast að því í greinum sínum,
að hægt kunni að vera að losa
um böndin milli Kínverja og
Rússa, og er þetta einnig álit
Nehrus. Bevan hefir hins vegar
haldið því fram eftir Kínaförina,
að hann telji þetta mjög ólíklegt.
—TIMINN, 5. okt.
M ESSU BOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands. Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjuni
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Local Page ........
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnud. 14. nóvember:
Hnausa kl. 2
Riverton kl. 8.
Roberl Jack
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 14. nóv.:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
Islenzk messa kl. 7 síðd.
S. Ólafsson
SONGS OF THE NORTH
By S. K. HALL. Bac. Mus.
JUST PUBLISHED—
Volume III—Ten Icelandic Songs
wlth English Translation and
Piano Accompaniment.
Price per copy—$2.00
On Sale by—
S. K. HALL, Wynyard, Sask.
Ágætt handa ömmudreng —
og ömmu!
Ljúffent á bragðiS. Wampole’s
inniheldur ekki neina olfu og
reynist fyrirtak ár flt og ár inn
fyrir fólk á ölium aldri. Eink-
um holt fyrir ungbörn. Auðugt
af bœtlefni “D” og calcium.
pað styrkir .bæði heilsu og
llfsþrótt. Reyn- ^T7T*ITH?1
ið hetta sjálf.
EXTRACT
OF COD LIVER
Hvort Keldur æskið þér að læra
ensku eða frönsku
Nýir innflytjendur til Canada, er ekki geta sótt tungumála- eða
þegnréttindakenslustundir, geta fengið ókeypis sjálfkensluefni gegn
umsókn til Canadian Citizenship Branch, West Block, Ottawa.
Fyllið út eftirfylgjandi eyðublað og sendið í pósti til Canadian
Citizenship Branch.
I Sé áritun til ofangreindrar deildar þarf ekki frímerki.
Merkið tungumálið sem þér
óskið að læra.
English ( )
French ( )
Your name and address (please print):
BIRT AÐ TILHLUTAN:
DEPARTMENT OF CITIZENSHIP & IMMIGRATION
HON. J. W. PICKERSGILL, P.C., M.P.,
Minister of Citizenship and
Immigration
LAVAL FORTIER, O.B.E., Q.C.,
Deputy Minister of Citizenship
and Immigration